Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

Kynjafræðsla í skólum. Námsefni

Bandaríki Norður-Ameríku eru forustusauðir samfélagsþróunar á Vesturlöndum. Það á einnig við um skóla og menntun. Í námsgreininni, kynjafræði, er kennt, að kyn séu í raun ekki til, hugarfóstur. Því skuli hver og einn skilgreina og endurskilgreina eigin kynskilning.

Foreldrar eru greinilega ekki einhuga um ágæti þessarar fræðslu. Hér er frétt um efnið. Móðir gerir uppreisn á fundi skólanefndar og les m.a. úr því lesefni, sem skólabörnum er ætlaður. Nefndin reyndi að þagga niður í henni. Samkvæmt fréttinni tísti einn nefndarmanna, Karl Frisch, svohljóðandi:

„Svo það sé alveg á hreinu; ekkert mun trufla trúfestu skólanefndar gagnvart lesbíum, hommum, tvíkynungum, kynskiptingum, hvorugkynungum (hinsegin), millikynungum og kynleysum [LGBTQIA – lesbian, gay, bisexual, transgender, queer, intersex, asexual], svo og nemendum, fjölskyldum og starfsliði. Ekkert!“

Bækurnar fjalla um kynlíf fullorðinna karla og drengja, alls konar kynferði eða kynleysur, allra handa kynlif að öðru leyti, t.d.: um kyn- og kynþáttarörvæntingu drengs, sem enn hefur ekki uppgötvað, að hann sé samkynhneigður; um hugarvíl stúlku, þegar rennur upp fyrir henni, að hún sé tveggja-anda persóna í kjölfar umræðu við vinkonurnar, sem upplýsa hana um, að hin fornu „kynrit“ útiloki „hið góða líf;“ um uppgötvun þeldökkrar telpu á kynferði sínu, kúgun kvenna og blakkskinna; um valdeflingu unglingsstúlku í anda töfraraunhyggju, en með hana að vopni brýtur mærin til mergjar sameiginlega þætti kynþáttafordóma, kynárása og kynslóðaáfalla, og svellur móður að greiningu lokinni; um blökkustúlku, sem yfirgefur vinahóp hvítra stúlkna, leitar á náðir litsystra sinna og kemst þá að því, hvernig mismunun svertingja, örýgi eða örárásir (microaggression) og meðvirkni sjálfrar hennar, móta tengslin heima við og í skólanum.

Þessum kennslubókum er mælt með af deild í „Samtökum norður-amerískra bókasafna“ (American Library Association), sem nefnd er „Bókasafnsþjónustu fyrir yngri fullorðna,“ (Young Adult Library Services – YALSA). Samkvæmt sama miðli hefur þessi þjónustudeild talsverð áhrif á, hvers konar bækur skólabókasöfnin kaupa inn. Þar sé lögð áhersla á, að mæla með róttækum bókum (far-left political influence), sem áhrif hafa á móttækilega, unga huga.

Það er ekki síður athyglivert, að þjónustudeildin mælir með bókum, sem innihalda kynferðislegar og hugmyndafræðilegar öfgar – nú einnig myndablöð um efnið. Eitt slíkra rita, sem um ræðir fyrir aldurshópinn 12 til 18 ára, er „Hinseginkynið (hvorugkynið). Minningar“ (Gender Queer: A Memoir), eftir Maia Kobabe (f. 1991). Kynskilningur „þess“ er á þá leið, að „það“ sé hinsegin, kynlaus og margskauta (nonbinary).

Íbúar í landi hinna frjálsu bregða upp framtíðarspegli Íslendinga. „Spegill, spegill, herm þú mér….“

https://www.dailywire.com/news/watch-mom-reads-graphic-gay-porn-found-in-school-library-to-school-board?utm_source=facebook&utm_medium=social&utm_campaign=benshapiro&fbclid=IwAR2uFF1RFb0wwgfxVEQ_8KFek7fmZAy9cVCF7S4BugsQd3qn0c4iR8nUnsc


Kerlingin með kúgarann í kjallaranum

Þar heitir á Hálogalandi. Fyrir nokkrum árum féll í því „landi“ dómur, sem þótti eftirtektarverður. Réttað var í máli látins karls, fjölskylduföður frá Búðarey (Bodö), sem er höfuðstaður Norðurlandsfylkis í Noregi. Þar um slóðir virðast skjaldmeyjar enn lifa góðu lífi.

Norska kvöldpóstinum (Aftenposten) segist svo frá: „Héraðsdómstóli í Hálogalandi þótti á það færðar sönnur, að eiginkarlinn hefði árum saman orðið fyrir líkamlegu ofbeldi, ógnandi hátterni og andlegri misnotkun. Ár á ár ofan var karl rekinn niður í kjallarastofu. Þar hafði hann ekki aðgang að baði, salerni og eldhúsi.“

Skjaldmær þessi á áttræðisaldri, eiginkona karls og móðir þriggja barna þeirra – og amma – var vissulega hörð í horn að taka. Jafnaðarlega fékk hún fólskuköst. Þegar svo bar undir rústaði hún húsinu og réðist að karli sínum.

Dóttirin segir, að móðir hennar hafi pyntað þau í fjóra áratugi. Hún varð m.a. vitni að því, þegar móðir hennar skar föðurinn í handlegginn með hnífi. Meðan blóðið fossaði hótaði kerla að stúta karli. Hún gekk berserksgang froðufellandi og barði hann með hverju því, sem hönd á festi. Slíkar uppákomur voru venjulegar.

Í bílskúrnum geymdi hann mat og hafði með sér lyfin sín, hvert sem leið hans lá. Að öðrum kosti hefði hún getað neitað honum um lyfin, en líf hans lá við. Það hafði hún reyndar gert. Persónulegan póst lét hann senda á annað póstfang.

Einu sinni datt karli í hug að vera viðstaddur fermingu barnabarnsins. En kerling greip þá til þess ráðs að mála yfir glugga bifreiðarinnar, svo karl komst hvergi.

Hin ákærða neitaði öllum sakargiftum, sagði karl sinn hafa borið lygar í börnin, sem öll vitnuðu gegn henni. Dóttirin segir móður sína hafa fengið makleg málagjöld; þriggja ára fangelsisvist. Hæstiréttur hafnaði áfrýjun málsins.

Því má svo við bæta, að tveim árum, áður en til réttarhalda kom, hafði frúin snúið sér til lögreglu með beiðni um, að karlinn yrði fjarlægður af heimilinu.

https://www.nrk.no/nordland/_-mishandlet-ektemannen-i-40-ar-1.8138189


Ljósagöngur og lygar kolsvartar um kynofbeldi

Það er líklega alkunna, að Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) hafa helgað 25. nóvember á ári hverju baráttu gegn kynbundnu ofbeldi, þ.e. kynofbeldi karla gegn konum. Um er að ræða upphafsdag sextán daga baráttulotu. Í nafni „jafnréttis“ gefur að skilja, að SÞ þyki ekki bera nauðsyn til að berjast með viðlíka hætti gegn ofbeldi í garð karla.

SÞ reka reyndar sérstaka áróðursstofnun, „Kvenfrelsunarstofunun SÞ“ (UN Women), með landsdeildir á víð og dreif um heiminn. „Karlfrelsunarstofnun“ innan vébanda þeirra hefur enn ekki séð dagsins ljós.

Stella Samúelsdóttir er forstýra Íslandsdeildar SÞ. Hún tjáir sig jafnaðarlega um nauðsyn þess að trúa konum, sem kveðast hafa orðið fyrir kynofbeldi. Slíkir sakaráberar eru kallaðir þolendur. Hún segir: „Við verðum að hætta að rengja trúverðugleika þolenda ...“

Fleiri stofnanir SÞ láta iðulega til sín taka í þessu efni, m.a. „Upplýsingamiðstöð“ þess (United Nations Information Centre – UNIC). Áður en til lokunar kom árið 2015, beitti Upplýsingamiðstöð Evrópusambandsins sér einnig fyrir málefninu. Hugmyndafræðin um almenna kúgun og ofbeldi karla í garð kvenna endurspeglast líka í alþjóðlegum samningum, sem leiddir hafa verið lög á Alþingi Íslendinga.

Umrædd barátta á sem sé víðtæka skírskotun og er háð á mörgum vígstöðvum. T.d. svaraði forstýra Hörpu, Svanhildur Konráðsdóttir, ákalli Stellu: „Harpa verður lýst upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis.“ Utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, lék aðra fiðlu. Utanríkisráðuneytið geislaði glóaldingulu ljósi þennan merka baráttudag til að minna þjóðina á kynofbeldishneigð karla.

Árið 2019 flutti fyrrum forstýra Kvennaathvarfs og núverandi forsæta ASÍ, Drífa Snædal, barátturæðuna í ljósagöngu Kvenfrelsunarstofnunar SÞ. Hún sagði m.a.:

„Ég hef alltaf dáðst að því hvað konur eru friðelskandi. Þrátt fyrir aldalangt misrétti og skipulagða kúgun hafa konur ekki gripið til vopna. …

[L]aun kvenna [eru] kerfisbundið lægri en karla, kynbundið ofbeldi er staðreynd og konur ná síður framgangi en karlar. Hið dulda kerfi sem er svo óskaplega erfitt að vinna á köllum við feðraveldi. ...

Feðraveldið birtist í sinni tærustu mynd þegar stjórnmálamenn hampa jafnréttisparadísinni Íslandi á sama tíma og þeir tala um konur eins og nytjahluti og meta þær eftir útliti. Feðraveldið birtist líka þegar minnt er á það að karlar hjálpa körlum að arðræna og svíkja þjóðir úti í heimi …

Og feðraveldið birtist þegar minnt er á kynbundið ofbeldi en það verður alltaf að taka fram hið sjálfsagða að ekki allir karlar nauðga. Allir eru fylgjandi jafnrétti í orði en við verðum öll vör við andstöðuna í hinu smáa. Kynjamisrétti er þannig hversdagslegt og svo algengt að ýmsir eiga erfitt með að greina það. …

Þegar það er ekki lengur í lagi að vera karlremba opinberlega þá er það gert í lokaðri hópum á börum.“ Og það eru fleiri samtök sem hasla sér völl á vígstöðvunum kynofbeldis. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), undir forystu Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, lögfræðings (sem tók við af Elínu Björku Jónsdóttur), sendi á frá sér eftirfarandi tilkynningu:

„BSRB hvetur sem flesta til að taka þátt í ljósgöngunni og styðja átak gegn kynbundu ofbeldi á vinnustöðum.“

Fyrrnefnd forsæta ASÍ hefur áður staðhæft: "Það er alveg horft fram hjá því að 95% þeirra sem beita heimilisofbeldi eru karlar og 95% sem verða fyrir því eru konur." Enn hefur Drífa ekki orðið við þeirri áskorun Þorsteins Sæmundssonar að birta heimildir fyrir slíkri staðhæfingu. Enda eru engar slíkar heimildir til. Staðhæfingin lýsir hugarfari Drífu og kvenfrelsunarhugmyndafræði hennar. Alvöru rannsóknir hafa í áratugi leitt í ljós tiltölulegt „jafnrétti“ kynjanna við barsmíðar á hvoru öðru í nánum samböndum.

Þrátt fyrir blekkingu Drífu og sálufélaga hennar um friðelskandi konur, virðast kynsysturnar leita ýmissa leiða til að klekkja á körlum. Dálætisvopnið um áratugi og aldir er ásökun um kynofbeldi. Þjóðin hefur þráfaldlega orðið vitni að því síðustu árin. En það gæti farið að renna upp fyrir skynsömu fólki, að slíkar sakargiftir sýni oft og tíðum dæmigerðan vopnaburð kvenna í heilagri baráttu þeirra gegn karlillskunni. Drífu verður skiljanlega ekki tíðrætt um hann, enda blinduð af aðdáun sinni á friðareðli kynsystra sinna.

Peter Joyce tæki vafalítið treglega undir orð Drífu. Hann er kennari að mennt, eftirlaunaþegi frá Nýja-Sjálandi. Peter hefur eins og margir aðrir karlmenn þurft að sitja undir fölskum ákærum um kynofbeldi og neyðst til að verja sig gegn feðraveldislöggæslunni. Dóttir vinar hans, tæplega fertug, lagði fram kæru um nauðgun. Hún kærði einnig föður sinn fyrir endurteknar nauðganir. Hann hafði, að sögn dótturinnar, fengið vini í lið með sér til að svívirða hana. Peter var sem sé einn þeirra, enda þótt þau hefðu aldrei sést. Þetta er þekkt tilbrigði við grundvallarstefið.

Peter hefur skrifað bók um reynslu sína, „Þurraís. Sönn frásögn um falska nauðgunarákæru“ (Dry Ice. The True Story of a False Rape Complaint). Hana má fá sem rafbók (Kindle). Peter heldur einnig úti heimasíðu: blackstonesdrum.com. Auk þess hefur hann skrifað blogg um martröðina á „thedailyblog.co.nz. Neðanmáls má finna krækju á spjall við Bettina Arndt.

Í Nýja-Sjálandi eru einnig „Drífur og Katrínar.“ Þjáningasystur þeirra setja – eins og víða á Vesturlöndum – fram kröfur um fleiri kynofbeldisdómsmál gegn körlum, fleiri sakfellingar og þyngri dóma. Stöðugt er sótt að löggjafanum um útþynningu skilgreininga á kynbundu ofbeldi og afléttingu sönnunarfærslu við sakaráburð, þ.e. koma skal til móts við kröfur kvenfrelsunarhreyfinganna um að trúa „þolendum.“ Sú trú skal duga til sakfellingar.

Á grundvelli reynslu sinnar segir Peter m.a. um frumvarp (Sexual violence bill) þess efnis, sem nú bíður afgreiðslu á ný-sjálenska þinginu: „Regluna um sakleysi uns sekt sé sönnuð hefur rýrð þegar verið varpað á. Þegar dæmt er í kynafbrotamálum er einungis um þvælt kjörorð að ræða. Og verði fyrirliggjandi frumvarp samþykkt verður á hærri bratta að sækja fyrir saklausa karla, sem sæta ákæru [fyrir kynofbeldi]. Ég tala af skelfilegri reynslu sem saklaus sökunautur. Mér var ekki varpað í fangelsi, en svo hefði hæglega getað orðið eins og á við um ókunnan fjölda saklausra karla.“

Peter heldur áfram: „Falskar sakargiftir eru algengar, en þeim er lítill gaumur gefinn …“ Jafnvel þegar færðar eru sönnur á „óheiðarleika sakarábera er fátítt að þeir séu sóttir til saka vegna „opinberra hagsmuna“ (public interest). … [M]ál eins og mitt eru ekki flokkuð sem falskar ákærur, heldur eru þau sett á ís sem „opnar“ ásakanir um kynofbeldi. Það er kaldhæðnislegt, að farið sé með þær sem „sannar“ væru í staðtöluyfirlitinu (tölfræðinni). Það veldur bólgu í þeim misvísandi „gögnum,“ [sem sýna lágt] hlutfall sakfellinga í [kynafbrota]málum og flytjendur frumvarpsins beita fyrir sig.“

„Það er eingöngu fólk, sem hefur blinda tiltrú á lögreglu og réttarkerfi, sem ekki elur á ótta við ásakanir um kynofbeldi, sem kunna að koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. Það er of einfalt til að bera skynbragð á þann einskæra hrylling, sem gæti verið handan við hornið. Svo ógeðfelldum furðum mun fjölga, verði frumvarpið samþykkt. [Sömuleiðis] verða fleiri saklausnir karlar ákærðir.“

Ros Burnett, afbrotafræðingur við Oxford háskólann, höfundur bókarinnar: „Rangar ásakanir um kynofbeldi og misnotkun barna“ (Wrongful Allegations of Sexual and Child Abuse), segir í umsögn um bók Peter:

„Við rannsóknir mínar á áhrifum rangra ásakanna hafa mér ósjaldan flogið í hug upphafsorðin í skáldsögu [tékkneska, þýskumælandi skáldsins, Franz] Kafka [1883-1924], „Réttarhaldinu“ [Der Process]. Þau lýsa því skelfilega, en fáránlega andartaki, þegar maður er tekinn höndum, án þess að þekkja ástæðuna. Frásögn Peter Joyce er nýlegt bergmál [slíkrar reynslu], þegar hann, skekinn eftir heimsókn lögreglunnar, minnist laglína í bragi The Doors: „Við lifum torkennilega daga, undarlegir dagar hafa elt okkur uppi. Þeir munu tortíma græskulausri gleði okkar.“

Hún segir enn fremur: „Peter Joyce lýsir á skýran, ljóslifandi, einlægan og aðdáunarverðan hátt hugsunum, sem svo margir aðrir, sem að ósekju hafa verið ásakaðir um hryllilega glæpi, líkast til hafa hugsað.“

Í grein sinni um efnið, birt á heimasíðu stuðningssamtaka fyrir fórnarlömb tilhæfulausra ásakanna um misnotkun, FACT (supporting victims of unfounded allegations), segir Ros: „Almennt er það svo, að oft og tíðum eru engin áþreifanleg ummerki því til sönnunar, að glæpur hafi verið framinn. Framburður sakarábera er vitnisburðurinn. Og því er treyst, að hann sé góður og gildur, þegar ekki er um andstæðan vitnisburð að ræða. Eins og í öðrum lögsagnarumdæmum (að Skotlandi undanskildu) í Englandi og Wales eru ekki gerðar kröfur til yfirlýsts sökunautar um vitnisburð til stuðnings ásökun. [Hún dugar ein og sér] til málssóknar af hálfu saksóknara og til sakfellingar kviðdóms.“ (Eftir því sem ég best veit, hafa lög um skoska réttarkerfið nú verið færðar til svipaðs horfs.)

Íslenskir kvenfrelsarar með Katrínu Jakobsdóttur í broddi fylkingar berjast fyrir ofangreindum breytingum á íslenska réttarkerfinu. Katrín kallar það umbætur.

https://www.bettinaarndt.com.au/video/surviving-a-false-historical-rape-allegation/


Börnin tapa í jafnréttis- og kynjastríðinu.

Því miður virðist stríðið fyrir eiginlegu jafnrétti tapað. Leiðtogar allra flokka eru með kynjafræðakveisu. Það er í senn bæði nöturlegt og sorglegt að sjá bjálfaþægðina og þörfina fyrir athygli og viðurkenningu. Hugsanlega vita þeir ekki, hvað kynjafræði er, en hún er kennd við háskóla á Vesturlöndum og heitir þar "woman studies" eða "gender studies." Þeir hafa hugsanlega ekki áttað sig á því, að þeir hafi þegar lögfest eina grundvallarkennisetningu kynjafræðanna, þ.e. að konur séu fórnarlömb karla. Reyndar er langt síðan, að þeir samþykktu þvíumlíka kennslu í skólum landsins. Ætli þeir hafi ámóta gullfiskaminni og kjósendur?

Það kemur varla á óvart að Kynjafræða-Katrín vilji slík fræði inn í skólana. Hún hefur barist fyrir því með oddi og eggju, að svo verði. Hún lét semja kynjafræðibiblíu handa börnum, "Kynungabók." Lilja Alfreðsdóttir lét semja uppfært álit eða bók, "Sólborgarbók," í sama anda. Þar eru karl- og kvenkyn meira að segja upprætt. Ríkisstjórnin hefur þegar styrkt alþýðufræðslu um karlmennsku (Þorsteinn Einarsson), grundvallaða á kynjafræðihugtakinu um "eitraða karlmennsku." Hún hefur líka puðrað peningum í ofbeldisiðnaðinn, sem grundvallaður er á sama kynjafræðahugtakinu.

VG fól tveim kvenfrelsurum, heilbrigðisráðherra sínum, Svandísi Svarvarsdóttur, og Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur, kynjafræðingi og einni af valdamestu konum veraldar, að semja frumvarp til laga um "Kynrænt sjálfræði." Þar segir t.d. að börnum skuli úthlutað kyni eins og um kvóta væri að ræða. Þessi lög sömdu Alþingismenn nær athugasemdalaust. Þeir eru kynjafræðingar inni við beinið.

Ætli nýir þingmenn sjái að sér? Varla þó Sigmar Guðmundsson, sem breytt hefur um leikhús. Hann hefur yfirgefið RÚV. Í viðtalsþætti sínum undraðist hann, að fólk væri að agnúast út í "femínisma." Því "femínisti" bæri jú barasta jafnréttisbarátta. Hvílíkt og átakanlegt þekkingarleysi. Þetta fólk minnir mig á rekstur bjöllusauða úr haga.

Það er skelfingarhugsun, að íslensk börn eigi framtíð sína í lífi og skóla undir þeim. Ætli námsefni Kynungabókar eða það námsefni, sem samið verður af kvennahernum í uppeldis- og kennslugeiranum í anda Sólborgarhópsins, stuðli að því, að drengir verði þægari í skóla, læri að lesa, verði hreyknir af kyni sínu og beini meðfæddri samkeppnisþörf til sköpunar þekkingar og lista?

Eða ætli það fari svo, að blásið verði nýju lífi í tilhneigingar til að leggja árar í bát, gefa skít í skóla, kennara, menntun og atvinnu? Ætli uppivöðslusemi og afbrotavilji vaxi, þrátt fyrir hækkandi skammta af róandi lyfjum og fleiri sálfræðinga? Ætli enn fleiri grípi til þess ráðs til að deyfa vansæld sína með aukinni neyslu fíkniefna og sjálfsvígi?

Við erum nær daglega vitni að þjáningafullum glundroða og hugarvíli ungs fólks um skilning á eign kynferði. Það tengist m.a. upplausn fjölskyldunnar og oft brengluðum tengslum við foreldra. Stöðugt fjölgar "móðurheimilium," þ.e. feður eru utangarðs, ótengdir eða laustengdir afkvæmum sínum. Þörf þeirra fyrir hið karllega er ekki fullnægt. Karlmennsku sjá þau oft í blekkjandi spéspegli fjölmiðla, kvenkennara og mæðra sinna, sem segja þeim eða gefa í skyn, að karlar séu óalandi og óferjandi misyndismenn - sérstaklega í öllu því, sem að kynferði og kynlífi lýtur. Það er kynjafræði.

Fyrir örfáum áratugum síðan voru drengir í meirihluta þeirra, sem vildu skipta um kyn, gerast konur. Nú fjölgar ógnvænlega stúlkum, sem vilja slá á tilvistar- og kynótta sinn með því að skipta um kyn. Það er angistarfull tilraun til að bæta sér upp missi hins karllega. Ungt fólk er beinlínis hvatt til kynskipta. Það er kynjafræði.

Umtalsverður fjöldi barna nýtur ekki samvista við feður sína, eftir skilnað. Langoftast er það þannig - jafnvel, þótt um sameiginlega forsjá sé að ræða - að embættismenn og dómarar kveði svo á um, að börn skuli hafa heimilisfesti hjá mæðrum sínum. Það er kynjafræði.

Kvenfrelsunardómstólum götunnar og samfélagsmiðla vex stöðugt fiskur um hrygg. Fjöldi karlmanna er þar "tekinn af lífi." Það er kynjafræði.

Katrín kvenfrelsari og þjáningasystur hennar (og nokkrir þjáningabræður) vinna að því eins og iðnir maurar að sveigja löggjöf, löggæslu og stjórnsýslu, að kvenfrelsunarviðhorfum sínum, grundvallaða á hugtakinu um eitraða karlmennsku. Í svokölluðum "Jafnréttislögum" er kynfólska af karla hálfu sérstaklega tiltekin, kölluð "kynbundið ofbeldi." Kynjafræðingar klifa stöðugt á "kynbundu ofbeldi." Það er vissulega kynjafræði.

https://www.visir.is/g/20212161040d/allir-flokkarnir-vilja-kynjafraedi-kennda-i-skolum


Kvennaathvarf í krumlum kvenfrelsaranna. Chiswick-athvarfið fimmtíu ára. Erin Pizzey Hálfrar aldar lygar um heimilisofbeldi

Fyrir nákvæmlega hálfri öld síðan opnaði Erin Pizzey (f. 1939) í Lundúnum, „Chiswick terrance,“ athvarf fyrir konur, sem orðið höfðu fyrir ofbeldi af hálfu maka. Athvarfið var rekið af hugsjón, af vanefnum. Erin þekkti ofbeldi af eigin raun. Móðir hennar var ofbeldismaður. Því kom henni ekki á óvart, að fjöldi þeirra kvenna, sem barðar voru af körlum sínum, væru sjálfar ofbeldismenn, þ.e. beittu líkamlegu ofbeldi.

Samtök kvenfrelsara sáu sér leik á borði til að færa sér í nyt þörf karla til að koma bágstöddum konum til hjálpar og bylgjuna til frelsunar kvenna, sem þá var að komast í algleyming. Þarna var aura von. Það skipti engum togum. Samtökin lögðu undir sig athvörf Eirin, sem þá voru orðin nokkur að tölu. Kenningum þeirra samkvæmt var ofbeldi kvenna „úthýst,“ þaggað niður. Samtökin höfðu eignast mjólkurkú. Nytin er afbragð.

Við þekkjum framhaldið. Ofbeldi karla gegn konum varð að síþulu, eins konar möntru, sem brenglaði skynsemi almennings, fag- og stjórnmálamanna, sem kepptust við að klappa kvenfrelsunarhreyfingunum lof í lófa og ausa í þær fjármagni. Stofnun kvennaathvarfs var meira að segja beitt sem atvinnuskapandi úrræði ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á síðasta Herrans ári. Ríkisstjórninni þótti þó ekki ástæða til að styðja við stofnun karlaathvarfs.

Erin Pizzey var bolað út í horn, varð hornreka. Síðar neyddist hún til að flýja land sökum ofsókna kvenfrelsaranna. Hún var þó ekki alveg af baki dottin. Í útlegðinni hélt hún áfram að fræða um hina sönnu ásjónu heimilisofbeldis. Hún lifir nú í hárri elli og fátækt í Lundúnum.

Um áratugi hafa alvörurannsóknir (kvenfrelsunarrannsóknir frátaldar) sýnt svipaða mynd af ofbeldi á heimilum og Erin reyndi að bregða birtu á. En kvenfrelsarar og stjórnmálamenn almennt skella skollaeyrum við þeirri þekkingu. Líka á Íslandi. T.d. hefur Katrín forsætisráðherra stundum látið hafa eftir sér, að í þjóðmálum skuli taka tillit til vísindalegra rannsókna. En það gerir hún og hennar sálufélagar bara, þegar þeim hentar.

Í þeirri kosningaumræðu, sem nú stendur yfir, ber málefnið ekki á góma, nema að sjálfsögðu hjá Katrínu, sem lætur ekki deigan síga við að kynna meinlokur sínar um kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni og svo framvegis. En vel gæti verið, að fólk annars staðar en á Íslandi sé að vakna til vitundar.

Í Bandaríkjum Norður-Ameríku hefur verið stofnað „Bandalag til höfuðs heimilisofbeldi,“ (Coalition to End Domestic Violence). Bandlagið sendi frá sér sérstaka skýrslu nýverið, „Hálfsannleik, falsanir og lygar um heimilisofbeldi í þrjátíu ár“ (Thirty-Years of Domestic Violence Half-Truths, Falsehoods, and Lies). (Sjá: endtodv.org.) Þar er m.a. fjallað um nýjustu fjáröflunarherferðina, sem RÚV þreytist seint á að auglýsa, þ.e. aukið ofbeldi karla gegn konum í kófinu.

Í Ástralíu standa vonir til, nú þegar „Þjóðarátak til að andæfa ofbeldi gegn konum og börnum þeirra“ (National Plan to Reduce Violence against Women and their Children) rennur sitt skeið á enda innan skamms, að unnt verði að spyrna gegn kvenfrelsunarofbeldishugmyndafræðinni í framhaldinu. Þetta mikla átak – að mestu fjárveitingar til kvenfrelsunarstofnanna – mun kosta þrjá milljarða dala.

En þrátt fyrir, að gælt sé við slíkar hugmyndir í skýrslum frá ástralska þinginu, er við ramman reip að draga. Kvenfrelsarar vilja nauðugir missa spón úr aski sínum. Velta jafnréttis- og ofbeldisiðnaðarins er gífurleg og völd þeirra, bein og óbein, eru blátt áfram ógnvænleg, hvor heldur er á heimavelli eða alþjóðlegum vettvangi.

Ein umræddra stofnana í þvísa landi, er „Þjóðarrannsóknarstofnunin til rannsókna á öryggi kvenna“ (National Research Organisation for Women‘s Safety). Hún mun vafalítið hanga á skattpeningum eins og hundur á roði.

Pistillinn er saminn við innblástur frá Bettina Arndt. Sjá nýjasta fréttabréf hennar, „Hálfrar aldar lygar um heimilisofbeldi. Aurakú kvenfrelsaranna afhjúpuð“ (Fifty years of lies about domestic violence. Exposing the feminist‘ cash cow).

https://bettinaarndt.substack.com/p/fifty-years-of-lies-about-domestic?token=eyJ1c2VyX2lkIjo0Njk0NzAxNCwicG9zdF9pZCI6NDE2Mjk5ODAsIl8iOiJvVEw4TCIsImlhdCI6MTYzMjQxNzQ0NSwiZXhwIjoxNjMyNDIxMDQ1LCJpc3MiOiJwdWItNDQ4MjYzIiwic3ViIjoicG9zdC1yZWFjdGlvbiJ9.CM2ROfbJRu0rQy9w7ojkdCIUSCMhGY7J7aa0K0CYrT4


Kynungabók Katrínar. Kvenfrelsunarbiblía handa börnum

Katrín Jakobsdóttir var mennta- og menningarmálaráðherra í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur árin 2009 til 2013. Hún beitti sér fyrir samningu „Kynungabókar: Upplýsingarits fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja,“ sem kom út árið 2010.

Ritstjórar verksins eru: Berglind Rós Magnúsdóttir, uppeldisfræðingur; Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur; Jóna Pálsdóttir, menntunarfræðingur; Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, og Kristín Jóndóttir, sagnfræðingur. Allar eru þær ástríðuþrungnir kvenfrelsarar, kennarar og fyrirmyndir hinna ungu og miðaldra meyja, sem um þessar mundir gera kvenfrelsunargarðinn frægan eins og t.d. félagsskapurinn, „Öfgar.“

Markmið:

„Veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu. Sýna fram á að jafnréttismál varða bæði kynin. Vekja ungt fólk til umhugsunar um áhrif kynferðis á líf þess. Fjalla um mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma. Vekja ungt fólk til meðvitundar um réttindi sín.“

Formáli Katrínar:

„Í ár eru liðin 95 ár síðan konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla …“ (Katrín hikar ekki við að hagræða staðreyndum. Árið 1915 öðlaðist nefnilega einnig lunginn úr íslenska karlastofninum kosningarétt.)

Katrín vísar til orða John Stuart Mill (1806-1873), sem margt sagði skynsamlegt, en viðurkenndi, að þegar talið bærist að kvenfrelsun, ætti hann í stökustu vandræðum með að greina eigin hugsanir frá hugsunum ástkonunnar, Harriet Taylor Mill (1807-1858).

„Á 19. öld benti enski heimspekingurinn John Stuart Mill á að: „Tilfinningar vorar til hinnar misjöfnu stöðu karla og kvenna [eru] … rótgrónari en allar aðrar tilfinningar sem geyma og vernda venjur fortíðarinnar. Það er því eigi að furða þótt þær séu öflugastar af öllum og hafi varist best gegn andlegum byltingum sem orðið hafa í mannfélaginu á seinni tímum“.

Þessi orð Mills eiga enn við. Kynungabók er mikilvægt framlag til að efla andlega byltingu gegn rótgrónum tilfinningum fortíðar.“

Hugmyndafræðin:

„Smám saman hefur dregið úr því kynjamisrétti sem viðgengist hafði í aldanna rás. … Talið er að rekja megi núverandi kynjamisrétti til þeirra tíma er eingöngu karlar úr valdastétt höfðu tækifæri til að móta samfélagið en það gerðu þeir út frá hagsmunum sínum. Gildismat þeirra varð undirliggjandi í trúarbrögðum, lögum, reglum, hefðum og siðum, eða í samfélaginu öllu. …

„Hugmyndir um að kynin séu ólík að eðlisfari eru algengar. Þær geta verið varhugaverðar, … Segja má að margs konar orsakir liggi að baki kynjamisrétti en ljóst er að rótgrónar hugmyndir um karlmennsku og kvenleika sem eru innbyggðar í samfélagsgerð okkar eru helsti þröskuldurinn. Þau sem berjast gegn þessum viðtekna hugmyndaheimi og vilja auka fjölbreytni og athafnarými fyrir hvort kyn skilgreina sig gjarnan sem femínista. … Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því. …

Kynungabók byggir á femínískum hugmyndum og mótunarhyggju sem er andstæða eðlishyggju. Mótunarhyggja hafnar því að ólíkt eðli kynja sé ástæðan fyrir ólíkri hegðun, hlutverki og stöðu kynjanna. Hver einstaklingur fæðist með ólíka skapgerð en ekki er hægt að setja alla einstaklinga sem fæðast af sama kyni undir einn hatt hvað varðar eiginleika og skapgerð. Manneskjan mótast af þeim hugmyndum um karlmennsku og kvenleika sem eru við lýði hverju sinni. …“

Fjölskyldan:

„Frá og með 27. júní 2006 fengu samkynhneigð pör sama lagalega rétt og gagnkynhneigð pör um ættleiðingar og tæknifrjóvganir. …

27. júní 2010 gengu í gildi ný hjúskaparlög. Breytingin felur í sér frelsi einstaklinga til að velja sér maka af sama kyni. …

Skilnaðir og sambúðarslit eru algeng í nútímasamfélagi. Árið 2008 voru 1.309 skilnaðir á Íslandi en á árunum 2001-2005 var meðaltal hjúskaparslita og skilnaða að borði og sæng 1.247 á ári. Sú breyting hefur orðið undanfarin ár að margir foreldrar nýta sér þann möguleika sem var lögfestur 1992, að hafa sameiginlega forsjá barns eða barna þegar þau skilja. Árið 2008 völdu 81% foreldra sameiginlega forsjá. Þó svo að forsjáin sé sameiginleg þarf barnið að eiga lögheimili hjá öðru hvoru foreldranna og þannig eru tölur um einstætt foreldri fundnar út. …

Árið 2009 voru einstæðar mæður mun fleiri en einstæðir feður. Þær voru 11.402 eða 91% en einstæðir feður 1.090 eða 9%. …

Könnun sem gerð var meðal 12-16 ára nemenda vorið 2006 leiddi í ljós að 73% bjuggu hjá báðum foreldrum og 24% áttu tvö heimili. Þar af voru 8% sögðust búa reglulega á báðum stöðum og 4% sem sögðust búa jafnt til skiptis á tveimur heimilum, til dæmis aðra hverja viku á hvoru heimili.“

Skólaganga

„Stjórnvöld á Norðurlöndum voru fyrst til að koma á almennri fræðsluskyldu sem var skipulögð og greidd af hinu opinbera. [Líklega er átt við greiðslu skólagöngu.] Fræðsluskylda í þeim anda varð almenn árið 1907 á Íslandi. Fram að því þótti mörgum „óþarft af kvenfólki og meðalgáfuðum drengjum að læra skrift og reikning“. Bóklegt nám umfram það sem krafist var til fermingarfræðslu taldist óþarfi fyrir almúgadrengi og allar stúlkur en þrátt fyrir það var lestrarkunnátta orðin nokkuð almenn um aldamótin 1900 þótt fáir kynnu að skrifa.

… Fyrir tæpum100 árum fengu konur jafnan rétt og karlar til alls náms, styrkja og opinberra embætta. …

[S]kipting í karla- og kvennagreinar er athyglisverð og vekur upp margar spurningar um félagsmótun kynjanna. Sífellt fleiri konur hafa farið inn á svið karla. Það að sama gildir ekki um karla [hvað svið kvenna varðar]. Fræðimenn hafa leitað skýringa í virðingarmun milli hins kvenlæga og karllæga þar sem hið karllæga er skilgreint sem mikilvægara og verðmætara.“

Vinnumarkaður:

„Tekjur kvenna voru að meðaltali um 66% af tekjum karla árið 2008. Þessi tekjumunur útskýrist að nokkru leyti af því að konur vinna færri vinnustundir í launavinnu en karlar og hefðbundin kvennastörf eru metin til lægri launa en hefðbundin störf karla. …

Þegar talað er um leiðréttan mun er átt við þann mun á launum karla og kvenna sem ekki verður útskýrður með ólíkri menntun, aldri, starfsaldri, starfshlutfalli, starfsstétt, yfirvinnu og … mældist16,3% árið 2008. …

Einn af grundvallarþáttum í lýðræðislegu þjóðfélagi er sá að ákvarðanir, skipulag og lög byggi á og endurspegli jafnt reynslu og þekkingu kvenna og karla. Það eru sjálfsögð mannréttindi að þátttaka kvenna, á sviði stjórnmála og við stjórnun fyrirtækja, sem og annars staðar þar sem ráðum er ráðið, sé til jafns við karla.“

Fjölmiðlar:

„Í rannsókn sem gerð var árið 2005 var kynjahlutfallið í fréttum og í fréttatengdum þáttum Ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2 tekið til skoðunar. Í ljós kom að konur birtust á skjánum í tæplega þriðjungi tilfella. Einnig kom í ljós munur á því hversu oft þær voru sýndar og hversu oft var rætt við þær. Þegar um var að ræða bein viðtöl voru konur eingöngu fimmtungur viðmælenda. Kastljósið skar sig þó úr með konur í meirihluta.“

Heilsufar: [B]ilið [á]milli lífaldurs kvenna og karla [hefur] minnkað. Á árunum 1971–1975 lifðu konur að meðaltali 5,9 árum lengur en karlar. Árið 2007 lifðu þær 3,5 árum lengur. Lífslíkur karla hafa aukist um 7,8 ár frá árinu 1971 en lífslíkur kvenna um 5,4 ár á sama tímabili. …

Ýmis skilaboð eru undirliggjandi í menningu karla sem hafa slæm áhrif á heilsu þeirra og skerðir lífslíkur. Meðal þeirra má nefna hugmyndir um dugnað og hreysti, svo og upphafningu á áhættuhegðun og í sumum tilfellum árásarhneigð. Sumir karlar stunda þannig vinnu að henni fylgir álagssjúkdómar og hætta á vinnuslysum. Algengara er að þeir eigi við áfengis- og fíkniefnavanda að etja en konur.

Einnig falla karlar oftar fyrir eigin hendi. Þessir neikvæðu þættir í tilveru karla eru stundum nefndir: gjald karlmennskunnar. Eitt helsta markmið jafnréttisbaráttu sem snýr að körlum er að draga úr þessum fórnarkostnaði. …

Þó að konur á Íslandi lifi að öllu jöfnu lengur en karlar eru vísbendingar um að heilsa þeirra sé að sumu leyti verri en karla. Konur fá frekar ýmsa sjálfsofnæmissjúkdóma, gigt og langvinna sjúkdóma svo sem beinþynningu. Þær nota heilbrigðisþjónustuna í meiri mæli en karlar, eru sendar í fleiri rannsóknir, fá oftar sjúkdómsgreiningu og fá oftar ávísun á lyf. Þessi staðreynd er stundum kölluð hin kynjabundna þversögn í heilsufari. Munurinn fer þó sífellt minnkandi með hækkandi aldri. …

Eftirsóknarvert markmið í uppeldi ungs fólks er að draga úr árásarhegðun sem er meiri hjá körlum en konum. Langflestir þeirra sem gerast sekir um minniháttar líkamsárás eru 20 til 24 ára. Þegar þessi hópur er skoðaður eftir kynjum koma fram ólíkar niðurstöður. Karlar eru í miklum meirihluta þeirra sem fremja þessi brot en þeir eru 90% brotamanna. …

Kynbundið ofbeldi

Hugtakið kynbundið ofbeldi er notað um ofbeldi sem karlar beita konur svo sem nauðganir, mansal, vændi, ofbeldi í nánum samböndum, kynferðisleg áreitni og klám. Ofbeldið miðar að því að lítillækka, hlutgera og/eða ráða yfir öðrum einstaklingi án tillits til vilja eða líðan [líðanar] þess sem fyrir því verður.

Áður en lengra er haldið skal tekið fram að fæstir karlar beita konur ofbeldi né telja það réttlætanlegt. Þótt konur séu í meirihluta þolenda og karlar mikill meirihluti gerenda eru til dæmi um að fólk af báðum kynjum verði fyrir kynbundnu ofbeldi.“ (Helstu heimildir: Kristín Ása Einarsdóttir, 2008; Kvennaathvarfið, 2004; Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla ; Margrét Valdimarsdóttir, 2005; María H. Marinósdóttir og Viktoría Rut Smáradóttir, 2008; Stígamót, 2008; Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, 2009.) …

Í klámi er kynlífi blandað saman við misnotkun og niðurlægingu á konum. …

Á Alþingi Íslendinga hafa verið tekin tvö mikilvæg skref til að sporna við þeirri auknu klámvæðingu sem orðið hefur í vestrænum samfélögum. [Alþingi er greinilega máttug stofnun.] Fyrsta skrefið var samþykkt laga um breytingu á almennum hegningarlögum nr.19/1940 þar sem kaup á vændi eru gerð refsiverð. Í lögunum segir að hver sem greiðir eða heitir greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi skal sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. Löggjöfin miðast við að sporna við sölu á kynlífi, enda sé óásættanlegt að líta á mannslíkamann sem söluvöru.

Ábyrgðin er talin hvíla á herðum kaupandans en ekki seljandans, þar sem aðstöðumunur þeirra sé ávallt mikill. Kaupandinn hefur val í krafti peninga en seljandi oft og tíðum ekki.

Næsta skref var samþykkt laga um breytingu á lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem gert er ráð fyrir fortakslausu banni við því að bjóða upp á nektarsýningar eða að gera með öðrum hætti út á nekt starfsmanna eða annarra sem á staðnum eru. …

Árið 2008 leituðu 253 einstaklingar til Stígamóta í fyrsta sinn; en 108 einstaklingar leituðu þangað vegna nauðgunar og afleiðinga hennar. Ofbeldismennirnir í málunum voru karlar í nánast öllum tilfellum. Árið 2008 komu 285 einstaklingar í viðtal til Aflsins á Akureyri en þau eru systursamtök Stígamóta. …

Þótt algengara sé að karlar beiti slíku ofbeldi er ekki óþekkt að konur geri það. …

Á vef Kvennaathvarfsins eru upplýsingar um ofbeldi og spurningalisti til að meta ofbeldi.“

Staðreyndir um heimilisofbeldi:

„Skráðar komur í Kvennaathvarfið voru 549 árið 2008. Af þeim komu 419 í viðtöl en 130 konur komu í dvöl og höfðu þær 77 börn með sér. Fimmtungur kvennanna kærði ofbeldið til lögreglunnar. Verkefnið Karlar til ábyrgðar miðar að því að hjálpa mönnum, sem beitt hafa ástvini sína ofbeldi, að læra aðferðir til að hemja ofbeldishneigð sína.“

Ritdómur:

Kynungabók er raunalegt rit, höfundum sínum til vansa. Þrátt fyrir, að miðlað sé óbrenglað nokkrum staðreyndum, getur ritið með engu móti talist fræðilegt og yfirvegað fræðslurit um jafnrétti. Stundum er það villandi og stundum blasir við æpandi þekkingarleysi og fræðileg einfeldni eins og t.d. í umfjöllun um ofbeldi.

Kynungabók er að meginstofni til umfjöllun um þjáningarsögu kvenna frá hugmyndafræðilegum sjónarhóli kvenfrelsunar, áróðursrit til heilaþvotta á börnum. Þrátt fyrir margan ljóðinn, má þó segja höfundum til lofs, að tilvist karl- og kvenkyns sé ekki dregin í efa. En það hefur breyst í vitund Katrínar og sálufélaga hennar, sbr. „Lög um kynrænt sjálfræði.“ Síðan Kynungabók kom út hefur Alþingi Íslendinga leitt í lög, að konur séu fórnarlömb karla.


Ofbeldiseftirlitsstofnun ríkisins. Sósíalistaflokkurinn

Í eyrum mér hljóma stöðugt hugmyndir og gylliboð af öllu tagi frá löndum mínum, sem á nýju Alþingi vilja hafa vit fyrir mér og fullnægja þörfum mínum. Þökk sé þeim og skattgreiðendum, sem kosta þessa gylliboðasýningu. En þrátt fyrir, að Sjálfstæðisflokkurinn strengi þess nú heit að efna kosningaloforð frá síðustu gylliboðaherferð, þ.e. að láta af skerðingu ellilífeyris, vekur hugmynd Sósíalistaflokksins um Ofbeldiseftirlit ríkisins mestan áhuga minn. Ætli það eigi að tillíkjast hinu andvana „Bifreiðaeftirliti ríkisins“? Allavega bliknar Draumaland Samfylkingarinnar og Tækifærisland Sjálfstæðisflokksins í samanburði. En speki Miðflokksins; „ostur er alltaf ostur,“ heldur mér þó í jarðsambandi. (Varla nota flokkarnir sömu auglýsingastofuna?)

Að þessu sögðu skulum við skoða, hvað hugmyndafræðingar Sósíalistaflokksins, sóssasysturnar, María og Margrét (MogM) Pétursdætur, segja: „Sú alvarlega staða sem nú er uppi og hefur verið til langs tíma í ofbeldismálum kallar á … að setja á laggirnar stofnun með eftirlits og rannsóknarheimildum sem festar verði í lög svo fljótt sem verða má.“

Stofnunin skal „vinna að fræðslu og inngripum þar sem þörf er á í opinberum stofnunum og með því uppræta kerfisbundið og tilfallandi ofbeldi þar sem það viðgengst, vegna valdamismunar af einhverju tagi. … [Og] [u]ppræta þarf úr sér gengin og stór varasöm vinnubrögð eins og að nota foreldrafirringarheilkenni eða PAS í meðferð fjölskylduréttar mála.“ Þessi orð leika líka á tungu forsvarsfreyja félagsskaparins, „Lífs án ofbeldis.“ (Þetta merkir í raun, að líta eigi fram hjá því ofbeldi foreldris (oftast mæðra) að meina barni samvistir við hitt foreldrið, en það er gamalkunnugt fyrirbæri.)

Hætti menn að taka tillit til foreldrafirringar verður kátt í höllinni: „Þannig verði heilbrigðum samskiptum haldið á lofti í samfélaginu og fræðsla aðlöguð mismunandi stofnunum svo sem leikskólum, skólum, hjúkrunarstofnunum og skrifstofum, en fræðsla um ofbeldi og kynjafræði ekki bundin við ákveðin skólastig eingöngu.

Á sama hátt og fólk er krafið um að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp áður en það gegnir ákveðnum störfum skulu allir yfirmenn opinberra stofnana hafa lokið námskeiði um ofbeldi og kynjafræði.“ Nú slær Sósíalistaflokkurinn vopnin úr höndum VG og „svolitlu frenjunnar,“ Katrínar, kvenfrelsara. Það er greinilega hlaupin hressileg samkeppni í þá iðju að frelsa konur.

Ofbeldiseftirlitsstofnun ríkisins á líka „[a]ð koma á laggirnar stoðdeild skipaða sjálfstæðu lögreglu- og ákæruvaldi, sem fylgir þolendum ofbeldis í gegnum réttarkerfið og sérhæfi sig í rannsókn og málsmeðferð kynbundinna ofbeldismála.“

Sömuleiðis „[e]f brotaþoli kærir þá sjái ofbeldiseftirlitið um að styðja við brotaþola í gegnum allan málarekstur og tryggði að brotaþoli fengi viðurkenningu og hlustun og að velferð og sanngirni yrði í gegnum allt ferlið. Brotaþoli fengi auk þess sálfræðiþjónustu, áfallahjálp og slíkan stuðning hvort sem hann ákveður að kæra eða ekki. Þá fengi hann aðstoð við að sækja miskabætur með minni kröfu um sönnunarbyrði.“

Hér eru lögð drög að nýju skrifræðisbákni. En hverjir eru þessir hugumstóru hugmyndafræðingar Sósíalistaflokksins. Gluggum í kynningar hans á MogM:

Margrét Pétursdóttir, frambjóðandi í Norðausturkjördæmi, önnur á lista, er kynnt í stuttu máli: Hún er „utanskólamenntuð verkakona sem hefur unnið með börnum og gamalmennum og aldurshópum þar á milli. Margrét hefur unnið margvísleg sjálfboðaliðastörf og verið með fólki á verstu og bestu stundum lífsins og samsamað sig með flestum þeirra.

Hún er róttækur aktivisti í umhverfismálum og félagi í náttúruverndarsamtökum og hefur starfað með þeim í aktivisma. Margrét er sósíalískur femínisti og vakti athygli á Borgarafundi í Háskólabíó og þegar hún klæddi styttuna af Jóni Sigurðssyni í bleik peysuföt til að beina spjótum að Neyðarstjórn kvenna sem starfaði í hruninu. Margrét aðhyllist húmanisma og vill að mannréttindastofnun verði sett á laggirnar sem fyrst af ríkisvaldinu.“ Margrét er greinilega mikill stofnanabaráttumaður; þ.e. vill setja á laggirnar bæði Mannréttindastofnun Íslands og Ofbeldisstofnun Íslands. Vonandi verður hún fljótlega fyrir þeirri hugljómun að stofna „Afeitrunarstöð ríkisins fyrir karlmenn,“ en vísir að henni er þegar til.

Nafna hennar í fyrsta sæti í Kraganum, er aftur á móti kynnt í löngu máli: „[M]yndlistamaður, öryrki og aðgerðarsinni, sem hefur starfað innan Sósíalistaflokksins síðustu fjögur árin sem formaður Málefnastjórnar. Auk listtengdra starfa hafði María umsjón með þáttunum Öryrkjaráðinu á Samstöðinni á síðasta ári en hún starfar einnig að málefnastarfi hjá ÖBÍ [Öryrkjabandalagi Íslands] þar sem hún er aðalfulltrúi MS félagsins innan bandalagsins. …

Erindi Sósíalista til fólks í Kraganum er það sama og til allra landsmanna. Við viljum draga völdin til fólksins þar sem þau eiga heima og það mun leiða til aukins jöfnuðar og réttlætis. Við viljum tryggja öllum réttinn til mannsæmandi lífs, öruggs húsnæðis og losa fólk undan nagandi afkomukvíða. Við viljum að allir sjáist og heyrist.”

María á sér langa áfallasögu og glímir við skæðan sjúkdóm. Ágrip frásagnar hennar:

„[Y]fir minni kynslóð vofði skuggi yfir, kalda stríðið og kjarnorkuváin. Móðursystir mín kynnti mig fyrir þeim Marx og Lenín þegar ég var krakki, en ég var þá strax mjög meðvituð um að ég væri vinstrisinnuð. …

Mér finnst stundum í minningunni eins og ég hafi orðið fyrir loftsteini þegar ég varð unglingur en það var auðvitað ekki svo. Ég varð fyrir grófu kynferðisofbeldi sem hafði gríðarleg áhrif á mig og fjölskylduna. …

Ég breyttist í vandræðaungling á einni nóttu. Ég var þessi krakki sem lögreglan auglýsti eftir og leitaði að um nætur. … Ég var rekin úr skólanum þegar ég var í 8. bekk fyrir að rífa kjaft og vilja ekki læra. …

Börnin mín, sem eru fimmtán ára og þrítugt í dag, eru bæði transfólk en auk þeirra á ég 36 ára stjúpdóttur og tvö barnabörn. … Húsið hefur hýst okkur [hana og seinni lífsförunaut], hánið okkar og dóttur fram eftir aldri, … [É]g er mjög fegin að hafa alið börnin mín upp í snertingu við Hinsegin samfélagið því það hefur eflaust gefið þeim styrk og öryggi til að vera þau sjálf.“

Snemma beygðist krókurinn: „Þær systur María og Kristín voru mjög samrýmdar og fylgdu móður sinni á fundi og á kosningaskrifstofu Kvennalistans í Kópavogi. Þar upplifðu þær hvernig kvennabaráttan náði flugi og nýtt stjórnmálaafl varð til.“

Nú lyftir María kvenfrelsuninni á æðra flug í Sósíalistaflokknum.

https://sosialistaflokkurinn.is/2021/08/31/ef-ksi-hefdi-haft-adgang-ad-ofbeldiseftirlitinu/?fbclid=IwAR22FxglEKc01p03yIgZr_nSnDaA2cFkzdGJK3xPLhrTVUFwpcETROxOj8g


Mýflugan sem varð að kynofbeldisúlfalda Me too í Stjórnarráðinu Jafnréttisbáknið

Konur ákæra karla stöðugt um kynferðislegan dólgshátt í sinn garð. Það kemur hver flóðbylgjan á fætur annarri. RÚV kallar fyrirbærið ”byltingu.”

Forsætisráðherra vor, Katrín Jakobsdóttir, sem lýsir sér sem „svolítilli frenju“ – og ríkisstjórnin öll – hafði þungar áhyggjur af slíku hátterni karlmanna. Það varð að stefnu stjórnarinnar að uppræta holskeflu „kynbundins“ ofbeldis, þ.e. ofbeldi karla gegn konum, kynferðislega áreitni og alls konar ótilhlýðilega kynhegðun. (Ég hef þó hvergi séð, hvernig löggjafinn aðgreinir kynbundið ofbeldi (gender based) og kynferðislega áreitni (sexual harassment.)

Hin dugmikla Katrín lét nú hendur standa fram úr ermum og fól jafnréttisráðgjafa sínum, Höllu Gunnarsdóttur (sem víða skýtur upp kollinum, nú hjá þjáningasystur sinni, Drífu Snædal hjá ASÍ), að stýra úrbótahópi, enda þótt Vinnueftirlitið sinni málum, þar sem áreitni, ofbeldi og einelti koma við sögu. Betur mætti, ef duga skyldi. Í skýrslunni stendur (krækja neðanmáls):

„Í skipunarbréfi stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi er farið þess á leit að hópurinn geri tillögu um samræmd viðbrögð stjórnvalda við #metoo bylgjunni, bæði að því er lýtur að samfélaginu í heild og að Stjórnarráðinu og stofnunum þess sem vinnuveitenda.“

Eins og jafnan er, þegar slík mál skal brjóta til mergjar, eru konur (iðulega kvenfrelsarar) fremur en karlar fengnar til verksins:

Stýrihópurinn var skipaður 20. febrúar 2018. Hann skipa frá ráðuneytunum: Halla Gunnarsdóttir, Svala Ísfeld Ólafsdóttir, Rósa Guðrún Erlingsdóttir, Sveinn Magnússon, Jóna Pálsdóttir, og Axel Nikulásson.

Starfsmaður hópsins var Fanney Karlsdóttir. Sérstakir ráðgjafar voru: „Í umfjöllun um aðgerðir í kjölfar #metoo fékk stýrihópurinn eftirtalda aðila á sinn fund: Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og Einar Gylfa Jónsson frá sálfræðistofunni Líf og sál; Guðnýju Elísabetu Ingadóttur, mannauðsstjóra samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins; Hugrúnu Hjaltadóttur, sérfræðing hjá Jafnréttisstofu, sem jafnframt hefur umsjón með reglubundnum fundum jafnréttisfulltrúa ráðuneytanna; og Söru Lind Guðbergsdóttur, lögfræðing hjá kjara- og mannauðssýslu.“ Kynjaskipting er því þannig: átta konur og þrír karlar.

Aðferðin fólst einnig í spjalli við lykilpersónur í ráðuneytunum. „Fundirnir voru með óformlegu sniði. Skýrt var tekið fram að ekki yrði vitnað til einstaka samtala eða til málefna einstaka ráðuneyta, heldur væri markmiðið að varpa ljósi á starfsmenningu innan Stjórnarráðsins og hvort – og þá hvað – megi betur fara til að uppræta þá menningu sem kann að leyfa kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi að viðgangast.“

Enda þótt varfærnislega sé til orða tekið, dylst varla nokkrum, að hópurinn sé á höttum eftir „karlakynofbeldismenningunni“, en tilvist hennar er sjálf réttlæting verkefnis hópsins. En lesandi er þó ekki upplýstur um, hvað í þessari menningu sé fólgið.

Vísbending er þó gefin: „Á heildina litið er óþarflega tilviljanakennt hvernig staðið er að fræðslu og forvörnum sem er sérstaklega beint að því að uppræta þá samfélaglegu menningu sem ýtir undir eða leyfir kynferðislegri og kynbundinni áreitni að viðgangast.“

Eftir spjall sitt kemst hópurinn að ánægjulegri niðurstöðu, eftir atvikum, það er að segja: „Kynferðisleg áreitni virðist frekar óalgeng en aðeins 1,4% segjast hafa orðið fyrir slíkri framkomu.“ Þá er í engu kannað, hvaða skilning „gerandinn“ kynni að hafa. Ei heldur er gerð grein fyrir því, hvaðan þetta hlutfall sé komið og hvernig. „Frekar óalgeng“ er skrítið orðalag, þegar um er að ræða 1.4%. „Afar sjaldgæft“ hæfði betur.

Hópurinn virðist hafa orðið fyrir vonbrigðum, því enn er róið: „Hlutfallið eykst lítillega þegar spurt er um hegðun sem telja megi til áreitni, s.s. um óumbeðna snertingu eða kynferðislegar athugasemdir …“ Og hvaða hegðun ætli það sé?

„Þetta getur t.d. átt við um menn [les: karlmenn] sem hegða sér ósæmilega á starfsmannaskemmtunum og nefnd voru dæmi um að konur forðist starfsmannaskemmtanir vegna hegðunar eins eða tveggja einstaklinga.“ … „Dæmi er um formann (eldri karl) sem kallaði starfsmann (yngri konu) alltaf „elskan“ og talaði niður til hennar.“

Að þessu sögðu er ljóst að „vanda [þurfi] sérstaklega til verka þegar valdamisræmi er milli geranda og þolanda, s.s. sökum stöðu, kyns, sérfræðiþekkingar, lífaldurs eða starfsaldurs.“ Hjá Stjórnarráðinu eru konur í talsverðum meirihluta.

Það er sem sé um að ræða 1.4% kvenna, sem finnst sér misboðið. Þetta réttlætir – þrátt fyrir jafnréttis- og öryggisfulltrúa í sérhverju ráðuneyti, allsherjar Vinnueftirlit, löggæslu og dómstóla – margþættar aðgerðir:

„Skipað verði óháð fagráð, sem hefur það hlutverk að taka við, meta og fara með tilkynningar og ábendingar sem því berast um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi.“

Samhliða er því beint til ráðuneytisstjóra að tryggja að fram fari áhættumat á félagslegum og andlegum þáttum í vinnuumhverfinu og … [l]agt er til að Stjórnarráðsdagurinn árið 2019 verði helgaður #metoo ...“

Enn er ekki nóg að gert: „í samvinnu við stýrihópinn og jafnréttisfulltrúa Stjórnarráðsins, … að … [t]aka saman upplýsingar um fræðslu sem miðar að því að byggja upp vinnustaðamenningu jafnréttis og vinna gegn kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi.“

Fræða skal starfsmenn með margvíslegum hætti, m.a. „sé stefnt að því nýta vettvang Stjórnarráðsskólans fyrir frekari fræðslu þvert á ráðuneyti. Mikilvægt er að fræðslan sé með sterka samfélagslega skírskotun en einblíni ekki um of á lagalega nálgun eða málsmeðferð. … tryggja að ný kynslóð starfsmanna Stjórnarráðsins stuðli að bættri menningu og starfsanda.“

Athyglisvert! Hér er sterklega ýjað að því, að aðferð „me-too“ hreyfingarinnar skuli í heiðri höfð.

Ofbeldismálin eru greinilega jafnréttismál: „Grænu skrefin í ríkisrekstri hafa reynst árangursrík leið til að efla vistvænan rekstur hjá opinberum stofnunum. Lagt er til að Jafnréttisstofu verði falið að kanna fýsileika þess að útbúa sambærilegt ferli á sviði jafnréttismála.“

Þegar jafnréttislög voru samþykkt á Alþingi (nr. 10) 2008, voru þegar í gildi lög um jafnan rétt allra fyrir lögum og meira að segja eldgömul lög, Búalög, sem kváðu á um jöfn laun karla og kvenna fyrir sömu vinnu. Það fer varla á milli mála, að svokölluð jafnréttislög voru sérsamin til; 1) að þjóna hugmyndafræði kvenfrelsunarhreyfinganna með það fyrir augum að berjast hvarvetna og almennt gegn hinu margumrædda „feðraveldi,“ þ.e. að heyja heilagt stríð gegn körlum; 2) að tryggja rétt kvenna til sömu launa og karlar fá, án tillits til menntunar, ábyrgðar, reynslu og vinnutíma; 3) að tryggja svipað hlutfall kynjanna (þá voru þau reyndar tvö), þegar það var talið í þágu „valdeflingar“ kvenna; 4) að leggja lagalegan grundvöll að atlögu að „kynjakerfinu“ (sundurgreiningu fólks í karla og konur) og ofsóknum á hendur körlum, sem myndbirtast einmitt í „me-too.“

Ný „jafnréttislög“ hafa nú tekið gildi. Hér er fróðleg samantekt eftir Arnfríði Aðalsteinsdóttur hjá Jafnréttisstofu, „Til hamingju með ný jafnréttisslög,“ þ.e. Lög um jafna stöðu kynjanna (150/2020) og Lög um stjórnsýslu jafnréttismála (151/2020).

„Helsta breytingin felst í því að ekki er lengur talað um tvö kyn, karl og konu, heldur er nú með kyni einnig átt við fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Þetta er í samræmi við lög nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræði sem heimila einstaklingum að skilgreina kyn sitt sjálfir.“

Fyrirtæki skulu semja sér jafnréttisáætlun, þar sem m.a. skal kveða á um baráttu gegn „kynbundu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni.“ Nú er sem sé áreitni aðgreind í „kynbundna“ og „kynferðislega.“ Enn er aukið við orðasúpuna í þessu efni frá fyrri lögum.

Jafnréttisstofa er „stóra systir:“ „Jafnréttisstofa vinnur … gegn kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni … [og] neikvæðum kynjaímyndum og neikvæðum staðalímyndum um hlutverk kvenna og karla sem og neikvæðum staðalímyndum byggðum á … kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.“ Fólk velkist varla í vafa um, hvað sé „neikvætt“ í þessu sambandi.

Jafnréttisstofa öðlast einnig aukin völd til eftirlits og rétt til að beita viðurlögum, sektum: „Bregðist viðkomandi ekki við þrátt fyrir ábendingar um úrbætur og ítrekanir hefur Jafnréttisstofa heimild til að beita dagsektum sbr. 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála. Það sama á við ef fyrirtæki eða stofnanir sinna ekki jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu.“

Svona eru skrifræðisbákn búin til. Hvergi hef ég séð útreikninga á því, hvað þetta bákn kostar skattgreiðendur og atvinnulífið og hversu mikilli hæfni er kastað á glæ í stjórnsýslunni.

https://kjarninn.overcastcdn.com/documents/Skyrsla_um_a%C3%B0ger%C3%B0ir_v._metoo_innan_stjornarra%C3%B0sins.pdf


Forlögn mótast í móðurkviði (murkuð í móðurkviði)

Árið 2014 skýrði BBC frá sérstökum málaferlum. Lögfræðingar ákærðu áfengissjúka móður stúlkubarns og kröfðust bóta fyrir heilaskaðann, sem móðirin olli dótturinni í móðurkviði. Dómarinn sýknaði móðurina með þeim rökum, að til að unnt væri að skilgreina glæp, þyrfti að eiga sér stað „íþynging við alvarlegan skaða á einstaklingi – alvarlegur skaði á fóstri ætti þar ekki við.“

Kvenfrelsunarfrömuðurnir, Rebecca Schiller og Ann Marie (Bradley) Furedi (f. 1960), töldu dóminn viðbrigðamikilvægan fyrir frelsi mæðra. Sú síðarnefnda sagði m.a.: „Uppkvaðning dómsins er mikilvægur fyrir konur hvarvetna. … Æðstu dómstólar í Sameinaða konungsríkinu (UK) hafa viðurkennt rétt kvenna til að ákvarða sjálfar um þungun sína.“ Rebecca þessi er meðstofnandi „Fæðingarréttar“ (Birthright), félagsskapar, sem berst fyrir mannréttindum við fæðingar. Ann Furedi var aðalframkvæmdastjóri hinnar „Bresku ráðgjafarþjónustu við meðgöngu“ (British Pregnancy Advisory Service)

Móðurkviðurinn er hvergi nærri sæluveröld öllum fóstrum. Samkvæmt nýlegri skýrslu frá Landlæknisembætti Bandaríkja Norður-Ameríku (BNA), þar sem dregnar eru saman helstu staðreyndir um reykingar mæðra á meðgöngu, þ.e. um fjórðungs mæðra, geta reykingar haft skaðvænlegar afleiðingar fyrir fóstrið eða barnið. T.d. óeðlilegan vefjaþroska við fæðingu (lága fæðingarþyngd) og alvarlega fæðingargalla. Embættið bendir einnig á, að reykingar mæðra verði um eitt þúsund reifabörnum í BNA að fjörlesti árlega. Þar af eru um fjörutíu af hundraði dauðsfalla flokkuð sem vöggudauði eða heilkenni skyndilegs andláts hvítvoðungs (sudden infant death syndrome). Þar að auki er sérstök hætta á fósturláti, ótímabærri fæðingu, fæðingu andvana barns og höfuðsmæð.

Um sjö þúsund börn í BNA fæðast með skarð í vör (oral cleft) eða holgóm (cleft palate), sem rakið er til reykinga mæðra þeirra. Hvort tveggja kann að hafa í för með sér erfiðleika með inntöku fæðu, eyrnabólgu, heyrnarskerðingu, talörðugleika og tannvanda.

Óhóflega neysla lyfseðilsskyldra lyfja, þ.e. löglegra efna, þar með talin þunglyndislyf, er einnig þekkt fósturmeiðandi hegðun mæðra. Hún er svo algeng, að í BNA er stundum talað um þjóðarheilbrigðisvanda – og ekki að ósekju. Á þriðja tug þúsunda nýbura þjást af þessari fíkn mæðra sinna, þ.e. þjást af því, sem kallað er heilkenni fráhvarfseinkenna nýbura (neonatal abstinence syndrome – neonatal withdrawal syndrome). Þessi fjöldi samsvarar því, að um tvö börn á hverri klukkustundu hljóti slík örlög. Einstök einkenni geta verið m.a.: vandræði með svefn og andardrátt, niðurgangur, uppsölur, aukinn hjartsláttur, skerandi grátur, skjálfti og skert fæðuinntaka.

Það kveður svo rammt að þessu, að fjöldi krílanna fjórfaldaðist á árabilinu 2004 til 2013, sem endurspeglaðist í sjöföldun innlagna á bráðadeildir fyrir nýbura.

Neysla ólöglegra fíkniefna (drug abuse) er býsna algeng. Í BNA segjast – samkvæmt Lyfjastofnun í þvísa landi (National Institute on Drug Abuse) - tæpar tuttugu milljónir kvenna eða rúm fimmtán af hundraði, hafa neytt fíkniefna síðasta árið. Sú tala felur reyndar einnig í sér misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja. Sá hópur kvenna er talinn um átta og hálf milljón eða 6.6 af hundraði kvenna. Þetta á við um konur, átján ára og eldri, ári áður en rannsóknirnar voru gerðar. Á árabilinu 1999 til 2014 fjórfaldaðist fjöldi fæðandi fíkniefnamæðra (opioid use disorder).

Stofnunin minnir á, að „[f]lest lyfja, þar með talin ópíöt [deyfandi og kvalastillandi lyf] og örvunarlyf (stimulants), geti haft skaðleg áhrif á hið ófædda barn. Neysla nokkurra efna getur aukið líkur á fósturláti og geta valdið heilakveisu (migraine - mígreni), krömpum og háum blóðþrýstingi móður, sem geta haft áhrif á fóstur hennar.“

Einnig bendir stofnunin á, að „áhætta á andláti barns við fæðingu sé tvisvar til þrisvar sinnum meiri hjá mæðrum, sem reykja tóbak eða hamp (marijuana), taka verkjalyf eða neyta ólöglegra lyfja, meðan á meðgöngu stendur.“

Óhófleg áfengisneysla móður er skeinuhætt fóstri, barni, hennar og getur leitt til skelfilegra afleiðinga fyrir afkvæmið; áfengiseitrunarheilkenni fósturs (foetal alcohol syndrome – fetal alcoholic syndrome – foetal alcohol spectrum disorder), sem tekur til margvíslegra þroskaskerðinga. Tæp fimm af hundraði mæðra í BNA eru greindar með áfengissýki. Kannanir úr álfu þeirri sýna, að um tíu af hundrað mæðra drukku áfengi í þeim mánuði, sem könnun var gerð, en hins vegar höfðu tuttugu til þrjátíu af hundraði drukkið á meðgöngu.

Í BNA fæðast árlega fimm til tólf þúsund börn vegna áfengiseitrunar í móðurkviði. Dæmigerð einkenni: Afbrigðilegir drættir í andliti, lítið höfuð, hamlaður vöxtur, ónóg þyngd, skert samhæfing hreyfinga, ofvirkni, athyglibrestur, minnisleysi, námsörðugleikar, skertur málþroski, greindarskerðing, dómgreindarskortur, svefnvandamál, brengluð sogþörf, skert sjón eða heyrn, brenglun í starfsemi hjarta, nýrna eða beina.

Til viðbótar þeim fóstrum, sem týna lífinu í móðurkviði, er um níu hundruð þúsund fóstrum eytt í BNA árlega.

(Greinin birtist í Morgunblaðinu 20.september 2021.)


Katrín, hvorugkynið og "mannsveskjan“

Eins og landsins börnum mun kunnugt, samþykkti Alþingi Íslendinga lög um „kynrænt sjálfræði“ (nr. 80/2019). Þau voru samkvæmt upplýsingum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, aðalhvatamanns þeirra, samin af forkonu kynskiptingafélagsins í ríkinu („Trans Ísland“), Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur, kynjafræðingi, og heilbrigðismálaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, íslenskufræðingi. Hvorar tveggju eru svarnir kynfrelsarar og berjast fyrir samstöðu kvenfrelsunar- og kynskiptakvenfrelsunarhreyfinga (transfeminism).

Allir þekkja kvenbyltingarhugsun og – störf Svandísar. Hina merku Uglu Stefaníu þekkja líklega færri, þrátt fyrir, að hún sé ein voldugasta kona heims. Hún var þátttakandi í ráðstefnu á vegum Kvenréttindafélags Ísland um efnið. Í inngangi kom m.a. fram, að í sögulegu ljósi séð, hafi á Íslandi um langt skeið ríkt samhugur kvenréttindahreyfingar og baráttusamtaka lesbía, homma, tvíkynunga, kynskiptinga og hinsegin fólks (LHTKH eða LGBTQ, þ.e. lesbian, gay, bisexual, trans, queer).

En þar segir Ugla Stefanía (mín snörun): „Ég berst af sjónarhóli kvenfrelsunar. Þess vegna fór ég í mastersnám í kynjafræðum (gender studies) t.d. Hugur minn stóð til þess að finna persónulegri reynslu og aðgerðum einnig stoð í æðri fræðimennsku og [samtímis] víkka út sjóndeildarhringinn.“ …

Ugla Stefanía upplýsti, að hún hefði unnið á vegum kvenfrelsunarhreyfinga eins og Stígamóta og baráttuhreyfinga LHTKH. Hún heldur áfram: „Það hefur ævinlega verið augljóst, að barátta kvenfrelsara og baráttumanna fyrir réttindum LHTKH ætti samleið, því við háum stríð gegn sömu hugmyndunum, sama kúgunarkerfinu, … feðraveldinu, kynjatvískautun.“

Það á við um Uglu Stefaníu eins og marga sams konar baráttumenn, að þeim er meinilla við málfrelsi, og er tamt að líta á annars konar skoðanir sem „hatursplæp.“

Í ljósi þessa er auðskilin samvinna Katrínar, Svandísar og Uglu Stefaníu. Allar berjast þær fyrir kven- eða hvorugkynsveldinu. Alþingismenn fljóta sofandi að feigðarósi og láta kyneymdarhugmyndafræðingana teyma sig eins og leikskólabörn í bandi.

Norður-ameríski lögfræðingurinn, Catharine MacKinnon (f. 1946) er einn meginhugmyndafræðinga VG og Katrínar. í ritgerðinni: „Kvenfrelsun, Marxhyggja, aðferð og ríkið. Drög að kenningu“ (Feminism, Marxism, Method, and the State: An Agenda for Theory), líkir hún stéttarlegu arðráni og kúgun við „kynstéttarkúgun,“ og þar með skilgreiningu konunnar. Catarine segir m.a.:

„Gagnkynhneigð er fyrirkomulag … [kúgunarinnar], kynferði og fjölskyldan er hið storknaða mót; kynhlutverk endurspegla það í hugarfari þegnanna (social persona); æxlun er afleiðing þess og drottnum ær þess og kýr. [Fylgismenn Marx og kvenfrelsunar] eru hvorir um sig á einu máli um, að aðalviðfangsefni stjórnmálanna séu tengsl, þar sem [annars vegar] margir vinna og fáir njóta góðs af og [hins vegar] þar sem fáir serða og margir eru sorðnir.“

Fleiri hugmyndafræðingar kven- og kynfrelsunar leggja orð í belg:

Breski heimspekingurinn, Janet Radcliffe Richards (f. 1944): „Kvenfrelsun er róttæk eðli sínu samkvæmt ... við berum okkur fyrst of fremst illa undan stofnunum ... Sé litið um öxl er það engum vafa undirorpið, að samfélagsgerðin var til þess ætluð að tryggja körlum fullkomið vald yfir konum.“

Norður-ameríski taugafræðingurinn, Ruth Harriet Bleier (1923-1988): „Í ímyndunarsamfélagi, án gilda eða þvingunar í sambandi við kynlíf, myndi fólk væntanlega fullnægja þörf fyrir kynlíf, nánd, vináttu, ást og hlýju með alls konar þeim hætti, sem ekki væri undir áhrifum eðlisbundins kynferðis. ... Sérstaklega eru það stofnanir og hugmyndafræði gagnkynhneigðarinnar (þ.e. gagnkynhneigðarfólskan (heterosexism)), sem umfram önnur [samfélags]öfl viðhalda undirokun kvenna í félagslegu, efnahagslegu og stjórnmálalegu tilliti.“

Norður-ameríski stjórnmálafræðingurinn, Rosalind Pollack Petchesky (f. 1942): „Þar eð kynskipting ríkir í sambandi við meðgöngu barna, sem [þar með] skilgreinir stöðu kvenna, gætu stjórnvaldsaðgerðir með áherslu á efnaleg hlunnindi og þjónustu í því skyni að stuðla að barneignum, létt móðurbyrðina. En [slík aðstoð] gæti viðhaldið gildandi kynskiptingu vinnunnar og kúgunar kvenna. ... Umhverfing ríkjandi æxlunarfyrirkomulags í anda kvenfrelsunar og jafnaðarstefnu fæli í sér ... nýja tegund tengsla . ... Við krefjumst gjörtækra breytinga.“

Umrædd lög eru einmitt liður í þessum gjörtæku breytingum, sem Rosalind boðar. Í hnotskurn segja þau, að kynin séu að minnsta kosti tvö. Þó hefur Katrín enn þá ekki svarað fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um fjölda þeirra. En hvernig sem því víkur við er talið, að nýfætt barn sé hvorki kven- né karlkyns í sjálfu sér, heldur sé því „úthlutað“ kyni.

Renni upp fyrir barni eða forráðamönnum þess, að því hafi verið úthlutað röngu kyni, má því sem hægast breyta. Breytingin getur hafist snemma á unglingsaldri með inntöku viðeigandi kynvaka (kynhórmóna). (Forseti Bandaríkja Norður-Ameríku, Joseph Biden, nefnir t.d. tíu ára aldur.) Lokahnykkurinn er „kynleiðrétting.“

Án tillits til nýúthlutunar kyns, sem á sér stað á Barna- og unglingageðdeild Landsspítalans, getur hver og einn valið að skrá kyn sitt hlutlaust, þ.e. hvorugkyns. Nöfn getur fólk aukin heldur valið að vild, án tillits til þess kyns, sem því er úthlutað.

Katrín Jakobsdóttir og VG, sem barist hafa fyrir lögleiðingu nýrra kynja, leiða oss enn frekar inn á vettvang kynleysunnar í frumvarpinu neðan máls. Þessi leiðangur er kvenfrelsurum – sumum hverra – málfarsleg raun, því lög kveða á um jafnrétti karla og kvenna eins og ráðgjafahópurinn bendir á. Hvorugkynið skapar vandræði:

„Í þessu sambandi er vert að benda á að ýmis ákvæði laga sem fjalla um kynjajafnrétti miða að því að jafna þátttökumöguleika og áhrif karla og kvenna í samfélaginu og byggjast á því að fjöldi hvors kyns á hverjum tíma sé svipaður. Dæmi um þetta eru ákvæði sem kveða á um lágmarkshlutfall karla og kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum. Slíkar reglur geta eðli máls samkvæmt tæpast tekið fullum fetum til einstaklinga með hlutlausa skráningu kyns enda er sá hópur mun minni en hinir tveir.“ Kynsegin kjósendur eru fjörutíu að tölu, svo ályktun hins þverráðuneytislega ráðgjafahóps er óneitanlega skarpleg.

Eftir því sem kynhvarfinu vindur fram, þ.e. að aukinn fjöldi karla kvengervist til hvorugkyns (þar sem kvengildi eru í heiðri höfð), liggur við borð, að þríkynjajafnrétti náist ekki, fyrr en hvorugkynið í ýmsum tilbrigðum er komið á par við hin fornu kyn, karl- og kvenkyn. Í stjórnun fyrirtækja t.d. yrðu að sitja 33.3% hvorugkyns, 33.3% kvenkyns og 33.3% karlkyns. Unnið er að því að útbúa sérstaka aðstöðu hjá hinu opinbera fyrir hvorugkynið, svo að manneskjuréttindi og kynréttindi verði tryggð.

Svo kemur að því, að þeir, sem þriðja kynið eða hvorugkynið skipa, aðgreinist í fleiri undirhópa samkvæmt nánari sjálfsskilgreiningu hvers og eins. Það mun vafalítið verða erfitt hlutskipti að taka að sér starf í „Kynúthlutunarstofnun Íslands.“ Í hinum nýjum lögum um kynrænt sjálfræði er nefnilega talað um „úthlutun“ kynferðis eins og drepið var á. Á grundvelli hennar verður vafalaust reist skrifræðisbákn eitt mikið í líkingu við jafnréttisbáknið.

Lausnarorð löggjafa og stjórnsýslu kemur frá Danmörku, „manneskja“ (menneske) sem íslenskukennari minn kallaði „mannsveskju.“ Nú verða feður, mæður, börn, eiginkarlar og -konur, að manneskjum eða jafnvel að enn skrítnari „eskjum.“ Það verður svipaður öfugsnúningur með „manneskjuna“ og skurðina í löndum bænda. Fyrst voru þeir grafnir (á kostnað skattgreinenda að mestu), en nú skal ofan í þá mokað (aftur á kostnað skattgreiðenda). Í skólakerfinu var mikilli atorku beitt til að útrýma „mannsveskjunni,“ á sínum tíma. Nú bjargar hún löggjafanum undan tvískautunarkynfárinu (eðlislægu kven- og karlkyni) í jafnréttislögunum – svona hér um bil.

Nokkur dæmi: „Í stað orðanna „faðerni eða móðerni“ … kemur: foreldrastöðu manneskju gagnvart barni.“

„Við ... bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama á við ef barn, sem gift manneskja sem breytt hefur skráningu kyns hefur alið en getið er utan hjónabands, hefur verið tilkynnt sem hjónabandsbarn með samþykki maka.“

„Í stað orðanna „móðir deyðir barn sitt“ … kemur: manneskja sem elur barn deyðir það.“

„Í stað orðsins „móður“ … þungaðrar manneskju; og í stað orðsins „móður“ … hinnar þunguðu.“

„Pari í hjúskap eða skráðri sambúð er heimilt að gefa hvort öðru kynfrumur.“ Það hélt ég reyndar hafi átt við síðan á tímum „homo ramidus (Ardipithecus ramidus).“ Svo það er svei mér ekki seinna vænna að lögfesta það við Austurvöll.

Samtímis upprætingu hinna fornu kynja er unnið að námsefni fyrir skóla landsins – í boði ríkisstjórnar og skattgreiðenda. Nýlega skilaði skýrslu nefnd Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra Framsóknarflokksins, sem ég hvet fólk til að lesa. Nefndin var í raun skipuð ellefu konum og einum pilti.

Konurnar í nefndinni leggja til grundvallar sömu kynhugmyndafræði og höfundar umræddra laga. (Það er gerð stuttleg grein fyrir skýrslunni í greininni: „Kynliljur Lilju. Kynheilbrigði og ofbeldisvarnir í grunn- og framhaldsskólum. Af þvingaðri gagnkynhneigð og gagnkynhneigðarhyggju“ á: arnarsverrisson.is og arnarsverrisson.blog.is.)

https://www.althingi.is/altext/151/s/0021.html?fbclid=IwAR29co8KjA51k7CG0f0fPOUV6qSe_PAoso4JFknXmAc0_oWqWyd6KfajRJI


Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband