Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2022

Eymdarhyggjukirkja hinna ofsóttu og undirskipuðu

Kanadíski mannfræðingurinn, Philip Carl Salzmann, er heiðursprófessor i mannfræði við McGill háskólann í Kanada. Hann hefur m.a. skrifað athygliverðar hungurvökur í Epoch Times. Titill einnar þeirra er ”Trúarhiti meðal réttlætisdýrkenda” (Religious Fervor Among the Woke). Hér er einnig vitnað til annarrar greinar hans um svipað efni: „Karlar eru frábrugðnir konum, konur frábrugðnar körlum“ (Men are Different From Women, Women From Men).

Í vangaveltum sínum um réttlætis- eða eymdardýrkunina leggur hann skilgreiningu bandarísks fræðabróður síns, Clifford Geertz, til grundvallar. Þar segir:

„Í trúarbrögðum felst (1) táknkerfi, sem stuðlar að því að (2) vekja öfluga, umlykjandi, djúprætta tilfinningu og tilhvöt í brjósti fólks af karlkyni, kvenkyni og hvorugkyni (non-binary); að (3) móta hugtök um almennar tilvistarreglur, og að (4) gæða þessi hugtök svo sannfærandi skini staðreynda, að; (5) tilfinningar og tilhvatir öðlast einstakan raunveruleikablæ.“

Kanadísku fræðimennirnir, Katherine K. Young og Paul Nathanson, sem um áratuga skeið hafa rannsakað viðhorfin gegn körlum, benda á svipaða skilgreiningu, þegar kvenfrelsunarfræðin eiga í hlut, þ.e. trúna á karlillskuna. Þau segja:

„Boðskapurinn er skýr: Í sjálfu sér er ekkert gott og jafnvel ekkert viðunandi í fari karla. Þar af leiðir, að karlar séu einungis alandi og ferjandi að því marki, að þeir annað tveggja umbreytist í konur (við líkamlega geldingu) eða tillíkist konum (við andlega eða greindarfarslega geldingu). Í hnotskurn; góður karl er annað hvort nár eða kona. ... [Það] má með sanni segja, að kvenfrelsunarhugmyndafræðin eins og [reyndar] öll önnur hugmyndafræði, þjóni sama tilgangi og trúarbrögð.“

Það vekur athygli, að bandaríski bókmenntafræðingurinn og kvenfrelsarinn (að eigin sögn), Camille Paglia, tekur í sama streng og ofangreindir. Hún færir sannfærandi rök að því, að kvenfrelsunarhugmyndafræðin sé okkar tíma trúarbrögð. (Kvenfrelsunarhreyfingin fordæmir hana reyndar fyrir villutrú.)

Eymdardýrkunina í heild sinni má skoða í ljósi ofannefndra skilgreininga. Til frekari glöggvunar: Eymdar- eða fórnarlambsdýrkunin var hafin til vegs og viðingar með kvenfrelsunarhreyfingunni. Hún náði sér verulega á flug fyrir atbeina auðmannasjóða eins og „Rockefeller Foundation,“ á áttunda áratugi síðustu aldar. Fjölmargir hópar hafa síðan hoppað um borð í fórnarlambalestina. Hún er stundum kölluð „samskipunarkvenfrelsun“ (intersectional feminism). Allir hafa farþegarnir harma að hefna. Skotspænirnir eru almennt hvítir karlar (sérstaklega gráhærðir og rosknir).

Philip Carl segir: „Eymdarfræðingar (woke) hafa ekki einungis tileinkað sér hugmyndafræði „réttlætis“ (social justice), „fjölbreytni, réttlætis og meðveru“ (diversity, equity, inclusion) og [tamið sér] fullyrðingar á borð við: „í fjölbreytninni er styrkur okkar fólginn“ (forsætisráðherra Kandada, Justin Trudeau), heldur aðhyllast þeir þessa hugmyndafræði sem óskeikul trúarsannfæring væri, en hvorki æskilegar leiðbeiningar né vísindalegar tilgátur.“

Eymdaraðgerðasinnarnir hafna skilningi vísindanna með hugmyndafræðilegum fullyrðingum eins og að „karlmennska sé eitruð, kerfisbundna kynþáttahyggju megi finna hvarvetna, gripdeildir séu ekki ofbeldi heldur vísindin, framtíðin sé kvenkennd, hörundshvíta sé ills viti, aðgreining kynþátta sé réttlæti, og svo framvegis.“

Og aðgerðasinnarnir taka einnig djúpt í árinni um kyn. „Kyn er ekki tvískauta heldur róf, karlkonur eru konur [að eðlisfari], það eru til tylftir kynja, karlkonur í íþróttum eru ekki frábrugðnar eðlislægum konum, karlar geta haft blæðingar og átt börn og börn geta valið sér kyn að vild (eða það má leiða þeim fyrir sjónir).“

Litið er á þá sem trúvillinga, sem efast um óskeikulleika trúboðins. Þeim er steytt út í ystu myrkur, gerðir skógargangsmenn, sendir í útlegð, þaggað niður í þeim, þeir ritskoðaðir, reknir úr starfi, beittir lagaofbeldi og afmáðir úr samfélaginu. Þeir eru haldnir kynfólsku (sexism), kynþáttahyggju (racism), samkynhneigðarfælni (homophobia), kynskiptingafælni (transphobia), Múhameðstrúarfæð (Islamophobia) og þvíumlíku.

Aðgöngumiðinn að eymdarkirkjunni er samkvæmt ofansögðu, huglæg tengsl hins trúaða við eitthvert tilbrigða mannleikans, oft og tíðum skilgreint á grundvelli kynferðis, kynþáttar, kynlífs, uppruna, færni ellegar vanfærni. En söfnuðurinn mismunar fólki. Það er ekki alls konar sjálfsskilningur (identity), sem er boðlegur. Sumt fólk er beinlínis litið neikvæðum augum. Því skal ekki halda hlífskildi yfir. Það getur meira að segja borið nauðsyn til ráðast á það.

Bleikskinnar eru álitnir illir, Asíubúar litlu skárri, Gyðingar jafnvel illir og „ofurbleikir.“ Gyðinglegir sameiningarsinnar eða síónistar eru skaðræði, karlmenn eitraðir og kristnir menn eru fasistafautar. Gengið er út frá hinni fornu skilgreiningu þýska byltingarfrömuðarins, Karl Heinrich Marx (1818-1883), um tvær öndverðar fylkingar manna, kúgara og þolendendur. Kúgararnir njóta forréttinda, eru yfirskipaðir, þ.e. (hvítir) karlar. Þessi bábilja gengur eins og rauður þráður um eymdarfræðin og kvenfrelsunarbaráttuna.

Aðgerðahyggjan (wokeness) felst í því að velgja slíkum dyggðafjöndum undir uggunum og steðja til varnar konum (ef ekki er um að ræða róttæka kvenfrelsara, sem útiloka vilja kvenkarla), öllum blakkskinnum, frumbyggjum, litskinnum (BIPOC – black, indigenous, people of color); öllum lespum, hommum, tvíkynhneigðum, kynskiptingum; heimilislausum, fátækum, og fötluðum.

Vitanlega fljóta þeir með, sem gjalda varhug við (are woke to) þeirri „tilvistarógn,“ sem stafar af loftlagsbreytingum og gera sér ljósa nauðsyn þess að hverfa aftur til þróunarstigs fæðusafnara, en þó er grænkerafæði skilyrði.

Philip Carl segir að lokum: „Trúarhiti eymdarhyggjusinna hefur skilað árangri eins og sjá má á yfirtöku þeirra á hér um bil sérhverri meiriháttar stofnun í Bandaríkjunum og á Vesturlöndum almennt; skólum og æðri menntastofnunum, rannsóknasjóðum, fjölmiðlum, stéttum lögfræðinga [og] lækna, mörgum fyrirtækjum, Lýðræðisflokknum (Demókrötum) í Bandaríkjunum og Frjálslynda flokknum (Liberal Party) í Kanada – og á ríkisstjórnum Bandaríkjanna og Kanada, sem beita valdi sínu til að þröngva eymdarhyggjunni upp á þegnana. Gerspillt skólakerfi og æðri menntastofnanir hafa kastað fyrir róða umboði til að veita nemendum grunnþekkingu, temja þeim sannleiksleit og hvetja til þekkingaröflunar, en kenna þess í stað hugmyndir eymdarsinna um „félagslegt réttlæti“ og fólk í úrvalsflokki.“

https://www.theepochtimes.com/men-are-different-from-women-women-from-men_4188141.html https://www.theepochtimes.com/religious-fervor-among-the-woke_4577905.html


„Þetta er eins og hryllingsmynd, sem ég er neyddur til að horfa á.“ Covid-19 bólusetningar barna

Læknirinn, Marty Makary, prófessor við John Hopkins háskólann, og læknirinn, Tracy Beth Höeg, faraldursfræðingur við heilbrigðisráðuneytið í Florida, reyna nú að reisa rönd við óábyrgum bólusetningum barna gegn Covid-19 með bóluefnum frá Moderna og Pfizer.

Þau hafa m.a. tekið viðtöl við sérfræðinga heilsuverndarmiðstöðva í Bandaríkjunum (CDC – Centers for Disease Control), Lyfja- og matvælaeftirlitsins (FDA – Food and Drug Administration) og Þjóðarheilbrigðisstofnunarinnar (NIH – National Institute of Health).

Samkvæmt greininni finnst viðmælendum þrengt mjög að málfrelsi sínu, svo mjög reyndar, að þeir þora ekki að opna munninn um alla þá ósvinnu, fúsk og ábyrgðarleysi, sem þar á sér stað. Málið virðist fyrst og fremst snúast um stjórnmál, en hvorki vísindi né lýðheilsu.

Viðmælendur leyfðu, að eftir þeim væri orðrétt haft, en undir nafnleynd. Svo sterkur er þrælsóttinn. Einn þeirra sagði: „Þetta er eins og að vera neyddur til að horfa á hryllingsmynd. Fólki eru gefin vond ráð og við verðum að þegja.“ Þessi orð féllu í sambandi við leyfisveitingu bólusetningar barna og hvítvoðunga – og örvunarsprautu þar að auki. Enn eru fúskgögn frá lyfjafyrirtækjunum lögð til grundvallar.

Um þau segja greinarhöfundar: „Svo ófullkomnar og hroðvirknislegar niðurstöður rannsókna á svo klénu þýði, hefðu hvergi birst í málsmetandi læknatímariti. En kjarni máls er sá, að þessar niðurstöður hefðu átt að valda lýðheilsufulltrúunum umhugsun og efasemdum.“

Læknir í CDC sagði: „Mér virðist það glæpsamlegt, að við skyldum gefa meðmæli með mRNA Covid bólusetningu ungbarna, án þess að hafa gild gögn í höndunum. Í raun og veru vitum við ekki enn þá, hver áhættan er.“

Grímuskylda í skólum var misráðin og skeinuhætt með tilliti til þroska barna. Aukin heldur hefti hún ekki útbreiðslu smita. Sama átti við um skólalokanir. Náttúrulegt ónæmi var litið hornauga.

Ábyrgum starfsmönnum er ofboðið. Það kynni að skýra fjölmargar uppsagnir að undanförnu. Það „verkjar í“ siðferði þeirra. Sumir ætla þó að þrauka fram á lífeyrisaldur.

https://childrenshealthdefense.org/defender/scientists-nih-cdc-failure-science-covid/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=aae370b9-9cb8-45fa-8efb-2643f0908fdf https://voiceforscienceandsolidarity.substack.com/p/vss-scientific-updates-during-pandemic-636?utm_source=substack&utm_medium=email https://childrenshealthdefense.org/defender/fda-pfizer-document-dump-minor-adverse-events-withdraw-trial/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=aae370b9-9cb8-45fa-8efb-2643f0908fdf https://childrenshealthdefense.org/defender/michael-yeadon-pfizer-covid-vaccines-hooker/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=aae370b9-9cb8-45fa-8efb-2643f0908fdf https://www.commonsense.news/p/us-public-health-agencies-arent-following https://video.foxnews.com/v/6309557805112#sp=show-clips


Hvað er bólusetning? Spillingin í heilbrigðiskerfinu

Flest okkar skilja væntanlega hugtakið, bólusetningu, sem svo, að það sé efni (veikluð útgáfa af smitveiru t.d.), sem sprautað er eða úðað inn í líkamann og veitir vernd gegn sjúkdómi. Þegar glögga Bandaríkjamenn rak í rogastans yfir því, að ábyrgar stofnanir (eins og Þórólfur nefnir þær) mæltu með bóluefnum, sem ekki veittu slíka vernd, kom babb í bátinn. (Anthony Fauci, Þórólfur Bandaríkjanna, hefur reyndar tekið eftir þessu líka.)

Hinum ábyrgu stofnunum datt það snjallræði í hug að endurskilgreina hugtakið. Efni telst nú bóluefni, örvi það ónæmiskerfið til varna gegn smiti. Bandaríski fjölmiðillinn, Epoch Times, komst yfir tölvuvpósta starfsmanna Sjúkdómavarnastofnunar Bandaríkjanna (Centers for Disease Control), sem sýna aðdragandann.

Hörðustu covid-19 bólusetningaðadáendur víðs vegar um heim gera sér nú grein fyrir, að bólusetning með nefndum efnum – mRNA efnin eru yfirleitt í brennidepli – vernda ekki gegn smiti og dreifingu veirunnar, en geta haft skelfilegar afleiðingar fyrir marga. Auk þess snýr veiruskömmin stöðugt á okkur, stökkbreytist sífellt. Nýjasta tilbrigðið kalla markaðsfræðingar lyfjafyrirtækjanna, „Mannfákinn“ (Centaurus). (Gætu hafa fengið stjörnufræðing í lið með sér.)

En misjafnt hafast mennirnir að í bólusetningamálum eins og öðrum. Það er eins og sumir embættis- og stjórnmálamanna séu um þessar mundir að búa sig undir, að réttvísin nái í skottið á þeim. Fullyrðingar hafa eru mildast og ábyrgðarokinu er jafnvel varpað yfir á aðra. Læknarnir eru tilvalinn hópur til þess arna.

Johannes Rauch, heilbrigðismálaráðherra Austurríkis, ætlar alla vega að nota lækna þjóðarinnar sem blóraböggla. Þeir skyldu, segir hann, fræða sjúklinga sína til gagns, svo þeir gætu tekið upplýsta ákvörðun um bólsetningu með efnum lyfjafyrirtækjanna.

En sá kynni að vera hængur á, að flestir læknanna virðast ekki gera sér far um að brjóta vísindi lyfjafyrirtækjanna til mergjar með sjálfstæðum hætti, en trúa boðskapi þeirra og heilbrigðisyfirvalda. Allar ættu að þekkja þá sögu á Íslandi. En það eru vissulega uppörvandi, lýsandi undantekningar frá þessari meginreglu.

Lyfjaiðnaðurinn starfar ekki einungis á einstöku læknum og samtökum þeirra, heldur beitir hann sums staðar heilbrigðiskerfi ríkjanna beinun fjárhagslegum þrýstingi. Þetta er áberandi í ríkjum Afríku t.d. – oft í samstarfi við manngæskusjóði auðmanna – en á sér einnig stað í Evrópu. Árið 2020 dældi Pfizer t.d. 31 milljón evra inn í austurríska heilbrigðiskerfið til rannsókna og þróunar og til að plægja jarðveginn fyrir markaðssetningu nýrra afurða. Líklega á enginn atvinnuvegur svo greiðan aðgang að skatthirslum íbúa.

Þeir, sem starfað hafa í heilbrigðiskerfinu í áratugi, þekkja gjörla þann fræðslu- eða áróðursþrýsting, stundum fylgt eftir með hlunnindum, sem læknar verða fyrir af útsendurum lyfjafyrirtækjanna. Austurríku fjölmiðlarnir, „Wochenblick“ og „Krone Zeitung,“ fjölluðu nýlega um þetta í tengslum við kúvendingu Jóhannesar. Hann hefur nefnilega afnumið bólusetningarskylduna, sbr. greinargerð hans til þingsins.

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að svipaðri niðurstöðu og Jóhannes í Austurríki. Hann hefur mælt fyrir um, að bólusetningarskylda ríkisstjórnarinnar þar í landi skuli takmörkuð við heilbrigðiskerfið.

Enda þótt dómur sé nú fallinn í Hæstarétti Bandaríkjanna um takmörkun bólusetningarskyldu stjórnvalda, er fólk bólusett í gríð og erg, börn ekki síst. Þar í landi sýnist – samkvæmt fjölmiðlum - hafa orðið 500% aukning í sölu á barnalíkkistum. Sum sjúkrahúsanna virðast hafa komið sér upp aukabúgrein, barnalíkbrennslu. (Vonandi bera staðreyndafyrirtækin þetta til baka.)

https://bestnewshere.com/the-supreme-court-in-the-us-has-ruled-that-the-covid-pathogen-is-not-a-vaccine-is-unsafe-and-must-be-avoided-at-all-costs-supreme-court-has-canceled-universal-vax-3/?fbclid=IwAR353csMhbBpd4323xeCsly-r_AXIJeEKFgDNi6llagvo8ETK8V_aRca5UM https://www.cnbc.com/2022/01/13/supreme-court-ruling-biden-covid-vaccine-mandates.html https://law.stanford.edu/2022/01/20/a-look-at-the-supreme-court-ruling-on-vaccination-mandates/ https://www.redvoicemedia.com/2022/07/hospitals-are-covering-up-baby-deaths-by-cremating-babies-themselves-john-olooney-with-maria-zeee/?utm_source=daily-email-breaking&utm_medium=email https://nationalfile.com/stew-peters-show-orders-for-child-size-coffins-spike-more-than-500-in-last-seven-months/ https://markcrispinmiller.substack.com/p/with-sales-of-child-sized-caskets?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2022/07/faktasjekk-reddet-vaksinen-20-millioner-mennesker/?utm_source=substack&utm_medium=email https://childrenshealthdefense.org/defender/infertility-a-diabolical-agenda-chd-wakefield-documentary-who-vaccines-global-population-cola/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=7e133681-7af4-4fdf-b25a-25a7e42ccc05 https://www.dagsavisen.no/nyheter/verden/2022/07/13/vaksinens-effekt-mot-smitte-og-mild-sykdom-er-na-helt-borte/ https://www.wochenblick.at/wp-content/uploads/2022/06/Beantwortung-der-Anfrage.pdf https://www-pfizer-at.translate.goog/verantwortung/transparenz/?_x_tr_sl=de&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=wapp https://www.foxnews.com/media/fauci-admits-covid-19-vaccines-protect-overly-well-infection https://steigan.no/2022/07/e-poster-viser-hvorfor-cdc-endret-definisjoner-av-vaksine-og-vaksinert/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.theguardian.com/world/2022/jul/12/centaurus-virologists-express-concern-at-new-covid-subvariant-omicron?CMP=Share_iOSApp_Other https://www.theepochtimes.com/emails-confirm-why-cdc-changed-definitions-of-vaccine-vaccinated_4590628.html https://www.krone.at/2741225 https://www.wochenblick.at/corona/haftungshammer-gesundheitsminister-bestaetigt-aerzte-bei-impfschaeden-verantwortlich/ https://www-wochenblick-at.translate.goog/brisant/immer-wieder-pfizer-impfexperten-der-regierung-und-ihre-verbindungen-zu-big-pharma/?_x_tr_sl=de&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=op,wapp https://www-wochenblick-at.translate.goog/corona/im-sold-der-pharmaindustrie-so-eng-verflochten-ist-der-covid-19-beraterstab/?_x_tr_sl=de&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=op,wapp https://www-wochenblick-at.translate.goog/brisant/skandaloese-pharmaverbindungen-des-covid-19-beraterstabes-und-immer-wieder-pfizer/?_x_tr_sl=de&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=op,wapp https://www-wochenblick-at.translate.goog/brisant/naechster-skandal-impfexperten-der-regierung-mit-finanz-verbindungen-zur-pharma/?_x_tr_sl=de&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=op,wapp


Er Úkraína framvörður lýðræðis og eftirsóknarverðra stjórnarhátta? Týndu vopnin

Íslenska ríkisstjórnin er óspar á aurinn til Úkraínumanna. Samfélag þeirra er fyrirmynd frjálsra lýðræðissamfélaga, segja þau, og því ber okkur skylda til að styðja baráttu þess gegn Rússum.

Síðasti milljarðurinn frá ríkisstjórninni – til viðbótar fjármunum til vopnaflutninga og stuðnings við konur, börn, hunda og ketti - er sagður skuli renna til uppbyggingar. Milljarður er raunar bara smáaurar, þó að hann mætti hugsanlega nota til að stytta biðlista í heilbrigðiskerfinu.

Á árabilinu 2014 til 2021 gaukaði Evrópusambandið 7.8 milljörðum evra að stjórnvöldum í Kænugarði. Það samsvarar um það bil þreföldu því fjármagni, sem Austurríkismen nota til hermála. Ógnarlegar upphæðir koma sömuleiðis frá Alþjóðabankanum, sem er á valdi ríkustu þjóða heims, og Bandaríkjunum.

Ábendingar um spillingu létu embættismenn Evrópusambandsins sem vind um eyru þjóta. Þeim er kunnugt um 22 auðvalda, að minnsta kosti, sem maka krókinn. En nú klingja fleiri aðvörunarbjöllur. Fjölmiðlar vara við hvarfi vopna, sem streymt hafa til úkraínskra stjórnvalda og stríðsmanna þeirra árum saman.

Úkraínskir stríðsnasistar m.a. eru himinlifandi með vopnin. Foringi nasistahersveitarinnar, C14, Yevhen Karas, systursveitar hinnar alræmdu Azov sveitar, er opinskár; það er ekki einskær hjálpsemi eða umhyggja í því fólgin, segir hann, að Vesturlönd senda okkur vopn. Það er vegna þess, að við innum umbeðin störf best af hendi og við erum þeir einustu, sem það geta gert, vegna þess, að við höfum af því gaman. Við höfum skemmtun af því að drepa og heyja stríð.

Meðan sum vopnanna tala, hverfa önnur sporlaust – eða tala allavega ekki í Úkraínu. Pólland er eins konar flutningsmiðstöð fyrir vopnasendingar Vesturlandanna. Þegar þeim er umskipað á farartæki í suðurhluta landsins, missa hin gjöfulu ríki Vesturlanda auga af þeim. Lögregluyfirvöld í Evrópu óttast skiljanlega, að þau séu falboðin á svarta vopnamarkaðnum.

Spillingin í Úkraínu ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart. Heldur ekki íslensku ríkisstjórninni. Á alþjóðlegum spillingarlista (Corruption Perception Index), verma Úkraínumenn 122. sætið af 180. Á öðrum lista (Transparancy International) skjóta Úkraínumenn Rússum ref fyrir rass í 130. sætinu, botnsætinu í Evrópu, og neðar en Sierra Leone, Gambía og Pakistan. Þrátt fyrir skelfilega spillingu, sem staðfest er við eigin rannsóknir Evrópusambandsendurskoðunarinnar, er litið á Úkraínu sem aðildarumsækjanda.

Norski fjölmiðillinn, Aftenposten, skrifaði árið 2016 grein um spillinguna í Úkraínu, þ.e. tveim árum eftir stjórnarbyltingu Bandaríkjanna. Þar segir m.a.: „Frá vöggu til grafar verða Úkraínumenn að vera viðbúnir því að þurfa að borga mútur; á læknastofunni til að njóta þjónustu besta læknisins; í leikskólanum til að hafna ekki aftastir í röðinni; í skólanum til að fá góðar einkunnir [og] í kirkjugarðinum til að fá legstað.“

Einnig eru tilgreindar rannsóknir, sem segja, að helmingur viðskipta sé svartur og opinberir starfsmenn séu háðir því að þiggja mútur. Fleiri rannsóknir eru nefndar til sögu eins og t.a.m. skoðanakönnun, sem hið kanadíska „International Republican Institute“ gerði. Þar kom m.a. í ljós, að 84% aðspurðra sagðist búa við harðstjórn (despotism); 76% taldi Úkraínu vera á rangri leið; 27% játaði mútugreiðslum. Í könnuninni tóku 17.600 manns þátt.

Réttarkerfið virðist hallt undir úkraínsk stjórnvöld. Nýlega voru fleiri stjórnmálaflokkar bannaðir, samtímis því, að virk ritskoðun ríkir í landinu og ofsóknir stundaðar gegn þeim, sem þenkja öðruvísi en leiðtoganum þóknast.

Áróður stjórnvalda, saminn með hjálp breskra áróðurssérfræðinga sér í lagi, er stundum svo átakanlega fjarstæðukenndur, að jafnvel norska varnarmálamálgagnið (Forsvarets Forum) varar fólk við að trúa því, sem af vörum Voldomyr Úkraínuforsta hrýtur.

Og jafnvel ísköldum, opinberum, bandarískum kaldastríðsmönnum ofbýður. Graham E. Fuller, fyrrum varaforstjóri bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) segir á þessa leið:

Gerspilling hlutlausra fjölmiðla í umræðu um Úkraínustríðið veldur verulegum áhyggjum. Í reynd hafa bandarísk stjórnvöld gjörsigrað í upplýsinga- og áróðursstríðinu og þvingað alla vestræna fjölmiðla til að syngja sama versið. Það hefur aldrei áður átt sér stað á Vesturlöndum, að hugmyndfræðileg viðhorf um heimsstjórnmálin hafi verið innrætt fólki. Það er heldur ekki unnt að treysta rússneskum fjölmiðlum. Í miðju eitruðu áróðursstríði gegn Rússum – og þvíumlíkt hef ég aldrei áður séð sem kaldastríðshermaður – verða þeir, sem öðlast vilja óbrenglaðan skilning á því, sem raunverulega á sér stað í Úkraínu, að grafa djúpt.

https://www.wsj.com/articles/with-billions-going-to-ukraine-officials-warn-of-potential-for-fraud-waste-11655121601 https://www.peoplesworld.org/article/kononovich-brothers-ukrainian-communist-youth-leaders-confirmed-to-be-alive/ https://www.ceps.eu/ceps-publications/ukraines-unimplemented-anti-corruption-reform/ https://www.washingtonpost.com/news/monkey-cage/wp/2016/05/05/how-western-aid-enables-graft-addiction-in-ukraine/ https://www.iri.org/wp-content/uploads/legacy/iri.org/wysiwyg/2015-05-19_ukraine_national_municipal_survey_march_2-20_2015.pdf https://www.oryxspioenkop.com/search/label/Ukraine?&max-results=7 https://www.csis.org/analysis/aid-ukraine-requires-increased-oversight https://www.kyivpost.com/article/content/business/akhmetov-inches-closer-to-monopolizing-thermoelect-117192.html https://steigan.no/2022/07/eu-avslorte-storstilt-korrupsjon-i-ukraina-og-overforte-sa-78-milliarder-euro/ https://exxpress.at/korruption-eu-ermittelte-gegen-22-ukrainische-oligarchen-und-ueberwies-78-milliarden-e/ https://www.eca.europa.eu/en/Pages/DocItem.aspx?did=59383 https://edition.cnn.com/2022/04/19/politics/us-weapons-ukraine-intelligence/index.html https://steigan.no/2022/04/ukrainsk-nazi-leder-vi-er-mest-effektive-for-vesten-fordi-vi-synes-det-er-morsomt-a-drepe/ https://www.aa.com.tr/en/europe/interpol-fears-weapons-delivery-to-ukraine-will-end-up-on-black-market/2603535 https://steigan.no/2022/07/nar-ble-korrupsjon-og-krig-vare-demokratiske-verdier-store/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=KfaAyiP8Wuc https://www.ft.com/content/bce78c78-b899-4dd2-b3a0-69d789b8aee8 https://www.washingtonpost.com/world/2022/04/06/ukraine-military-right-wing-militias/ https://grahamefuller.com/some-hard-thoughts-about-post-ukraine/ https://forsvaretsforum.no/krig-russland-ukraina/27-land-sender-militaer-bistand-til-ukraina/249791 https://forsvaretsforum.no/krig-russland-ukraina/vestlige-eksperter-advarer-mot-a-tro-pa-alt-zelenskyj-sier/276178 https://www.aftenposten.no/verden/i/eKM6y/her-maa-laereren-smoeres-og-doktoren-bestikkes-det-er-europas-mest-korrupte-land


Barátta Nató og Bandaríkjanna fyrir lýðræði og frelsi

”[M]örgum Bandaríkjamönnum er ókunnugt um, að bandaríski herinn lætur sprengjum rigna yfir fólk og drepur daglega á erlendri grundu. Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra hafa varpað fleiri en 326.000 sprengjum og flugskeytum á fólk í öðrum löndum síðan 2001 …, þar með talin 152.000 í Írak og Sýrlandi.“ Svo segja bandarísku blaðamennirnir, Meda Benjamin og Nicholas J.S. Davies, í samantekt sinni úr opinberum gögnum. Þau bæta við:

„Þetta eru 46 sprengjur og flugskeyti dag inn og dag út, ár inn og ár út, í nærfellt tuttugu ár. Á árinu 2019, síðasta árið, sem gögn voru viðunandi (fairly complete), var jafnaðarlegt, daglegt meðaltal 42 sprengjur, þar af 20 bara í Afganistan.“

Bandaríkjamenn hafa alið á heimsveldisdraumum sínum allar götur síðan George Washington leiddi landa sína til sigurs yfir nýlenduherrunum, Bretum, sem höfðu slegið eign sinni á hálfan heiminn eða svo.

Vígvöllur hins nýja heimsveldis stækkaði hratt á meginlandi Norður-Ameríku og síðar utan álfunnar. Bandaríkjamenn eru mesta herveldi sögunnar. Forystumenn þeirra hafa þráfaldlega ýjað að því, hversu ómissandi þeir séu í veröldinni, sérstaklega sökum lýðræðis- og frelsisástar. Þeir segja sig meira að segja búa í „landi hinna frjálsu.“ Og svo við hin megum búa við sams konar frelsi og lýðræði erum við tuktuð til með öllum ráðum.

Leyniþjónustunni (CIA) er oft og tíðum beitt til að tukta og koma vitinu fyrir óþæg stjórnvöld. Robert Kennedy segir í bókinni, „Hinn raunverulegi Anthony Fauci (The Real Anthony Fauci): „Ær og kýr Leyniþjónustu Bandaríkjanna hafa í sögulegu samhengi verið völd og eftirlit. Leyniþjónustan hefur verið viðriðin að minnsta kosti sjötíu og tvær velheppnaðar stjórnarbyltingar á árunum 1947 til 1989. Þær taka til um þriðjungs stjórnvalda í veröldinni. Í mörgum tilvikum var um að ræða vel starfhæfar lýðræðisstjórnir.“

Leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur einnig beitt sér fyrir og fjármagnað - í anda hugmyndafræðingsins, Zbigniew Kazimierz Brzenzinski - hinar svokölluðu „litaóerðir eða -byltingar“ í Austur-Evrópu. Í Úkraínu árið 2004 var hún glóaldingul eða appelsínugul.

Zbigniew mótaði stefnuna einkum í verki sínu, „Stóra taflborðinu“ (The Grand Chessboard), sem kom út árið 1997. Nú er kominn nýr og herskárri hugsuður fram á sjónarsviðið, Elbrigde A. Colby, sem í fyrra gaf út bókina, „Afneitunarherkænskan. Varnir Bandaríkjanna á tímum stórveldaátaka“ (Strategy of Denial: American Defense in a Age of Great Power Conflict).

Höfundur á aðild að „Utanríkismálaráðinu“ (Council on Foreign Relations), sem samkvæmt Richard Harwood, blaðamanni á Washington Post, er “sá félagsskapur (thing), sem kemst næst því að vera ríkjandi stofnun í Bandaríkjunum.“ Þar koma saman forsetar og varforsetar, mikilvægir ráðherrar og ráðgjafar, þingmenn og herforingjar, vísindamenn og fjármálamenn – frá báðum meginstjórnmálaflokkunum.

Nú duga engin vettlingatök, segir Elbridge. Íhuga skal í alvöru stríð við Kínverja og Rússa, þar sem efnahagsógn Bandaríkjamanna er að engu orðin að. „Þessi bók fjallar um stríð, um stríð í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að Kínverjar … nái að ríkja á lykilsvæði í veröldinni [Asíu].“

Geðþótta Bandaríkjamanna um stjórnun heimsmála eru varla nokkur mörk sett. Íþróttunum beita þau meira að segja fyrir frelsis- og mannréttindavagninn. Sumir muna vafalaust, hvernig þeir fóru hamförum gegn því, að Ólympíuleikarnir yrðu haldnar í Moskvu á árinu 1980. Þeir náðu að rýra leikana að gildi, en höfðu þó ekki alveg erindi sem erfiði. (Þetta geta áhugasamir rifjað upp við lestur ágætrar bókar Ingimars Jónssonar: „Átakanna um Ólympíuleikana í Moskvu 1980.)

Bandaríkjamenn gripu til hernaðaraðgerða í 85 ríkjum á árunum 2018 til 2020, samkvæmt skýrslu frá Watson stofnuninni við Brown háskólann í Bandaríkjunum. Þar er einnig skýrt frá því, að um það bil 929.000 hafi týnt lífinu vegna beinna stríðsátaka; miklu fleiri vegna afleiðinga eyðileggingar af völdum þessara átaka; meira en 387.000 óbreyttir borgarar hafi látið lífið og 38 milljónir hafi verið hraktar á flótta í Afganistan, Pakistan, Írak, Sýrlandi, Líbíu, Jemen, Sómalíu og á Filippseyjum.

Stríðsrekstur Bandaríkjamanna hefur haft í för með sér skerðingar á mannréttindum og borgaralegum réttindum bæði heima og erlendis, segir í fyrrgetinni skýrslu. Þar að auki losar bandaríska varnarmálaráðuneytið meira af gróðurhúsalofttegundum en flestir aðrir, segir í sömu heimild.

Það þarf vart að taka fram, að hergagnaiðnaðurinn blómstrar í endalausum stríðum Bandaríkjamanna á erlendri grundu, þar sem hvert stríðið rekur annað. Nú er það eins og allir vita, Úkraínustríðið.

Hernaðarútgjöld Bandaríkjamanna eru níföld í samanburði við þau níu, sem næst koma. Þau eru t.d. sexföld hernaðarútgjöld rússneska ríkisins. Það má til fróðleiks geta þess, að samkvæmt frétt í Newsweek létu Bandaríkjamenn fleiri sprengjum og flugskeytum rigna yfir Írak á einum degi en Rússar á Úkraínumönnum á heilum mánuði.

Skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldar höfðu Bandaríkjamenn forgöngu um stofnun Norður-Atlantshafs bandalagsins. Eins og nafnið bendir til er það bandalag þjóða við Norður-Atlantshaf til varnar Ráðstjórnarríkjunum sálugu, að sagt var. Það bandalag er í sjálfu sér löngu horfið og hefur frá stofnun þjónað heimveldisdraumum Bandaríkjamanna eins og látlaus stækkun þess í suður og austur, íhlutun um innanríkismál annarra ríkja og beinar árásir á sum þeirra, ber skýrt vitni um.

Stækkun bandalagsins miðar einkum að því að klekkja á Rússum í Litlu-Asíu/Evrasíu. Úkraínustríðið, þ.e. staðgengilsstríð Nató og Bandaríkjamanna gegn Rússum með Úkraínumenn að leiksoppum, er þáttur í þeirri viðleitni eins og stjórnarbyltingin í Úkraínu 2014.

Þegar Ráðstjórnarríkin voru komin að fótum fram um 1990 og varnarbandalag þeirra, Varsjárbandalagið, sem stofnað var sem andsvar við Nató, sömuleiðis, gafst kjörið tækifæri til að sættast í Evrópu og láta hlýjan þey leika um kalna kroppa kalda stríðsins. Mikhail Gorbachev, forsætisráðherra Rússlands, lét sig dreyma um Evrópu sem sameiginlegt heimili þjóðanna, sem þar búa.

Þegar þýsku ríkin voru sameinuð fengu Rússar skýrt loforð um það frá mörgum leiðtogum Vesturlanda, að Nató yrði ekki þanið út að landamærum þeirra. Þar á meðal voru James Baker, George Bush, Hans-Dietrich Genscher, Helmut Kohl, Francois Mitterand, Margaret Thatcher, William Hurd, John Major og Manfred Wörner, fyrrum framkvæmdastjóri Nató.

Það loforð var hins vegar svikið og þrátt fyrir endurteknar aðvaranir málsmetandi raunsæisstjórnmálamanna í Bandaríkjunum og Rússa sjálfra, réðu stríðshaukarnir för. Rússar búa nú við net vestrænna herstöðva við vestur og suður landamæri sín.

Reyndar var það svo um það leyti sem Ráðstjórnarríkin liðuðust í sundur, að Rússar ámálguðu þátttöku í Nató. Það var aldrei í alvöru tekið á dagskrá. En engu að síður var í stefnuskrá Nató árið 2010 fjallað um að stofna til ekta hernaðarsamvinnu við Rússa. En nú er öldin öldungis önnur. Því að á nýlegri ráðstefnu Bandalagsins eru Rússar og Kínverjar hástöfum úthrópaðir sem fjandmenn aðildarlandanna.

Undir þetta taka leyniþjónustur Bandaríkjanna (FBI) og Bretlands (M15), hvað Kína viðkemur alla vega, segja Kínverja stærstu ógn við öryggi þjóðanna og efnahag.

Sjálf lýsa Natóríkin því yfir, að engum stafi ógn af þeim, að þau ætli barasta að verja sig, frelsið og lýðræðið:

„Við erum sameinuð í hollustu okkar við lýðræði, einstaklingsfrelsi, mannréttindi og lagastjórn. Við aðhyllumst alþjóðalög og samþykktir og markmið Sameinuðu þjóðanna. Við skuldbindum okkur í alþjóðasamskiptum á grundvelli laga (rules-based). …

Yfirgengileg grimmd Rússa hefur valdið mannlegum þjáningum og umtalsverðum flutningum, sem sér í lagi hafa bitnað á konum og börnum. [Þessari setningu kynni Katrín Jakobsdóttir að hafa laumað inn í yfirlýsinguna.]“

Það er reyndar fáu, sem Nató ekki vill breyta til batnaðar í veröldinni eins og t.d. að bæta loftslag, vernda íbúa Bosníu og Hersegóvíu, Moldóvu og Georgíu, líf flóttamanna og vinna gegn mansali.

https://www.nato.int/cps/en/natohq/news_196144.htm https://www.nato.int/cps/en/natohq/official_texts_196951.htm https://www.bbc.com/news/world-asia-china-62064506 https://www.nato.int/cps/en/natohq/official_texts_68580.htm https://www.nato.int/cps/en/natohq/news_197287.htm https://thecradle.co/Article/Columns/12648 https://steigan.no/2018/02/council-on-foreign-relations-det-virkelige-partiet-for-overklassen-i-usa/ https://www.youtube.com/watch?v=GaUB3YpzG4U https://www.washingtonpost.com/archive/opinions/1993/10/30/ruling-class-journalists/761e7bf8-025d-474e-81cb-92dcf271571e/ https://monthlyreview.org/2022/05/01/giving-war-a-chance/ https://www.nytimes.com/live/2022/06/29/world/russia-ukraine-war-news#natos-new-strategic-vision-will-address-a-changed-dynamic-with-russia https://www.theguardian.com/world/2021/nov/30/russia-will-act-if-nato-countries-cross-ukraine-red-lines-putin-says https://blackballmedia.ca/2022/05/27/afghanistan-how-the-americans-trained-afghan-pilots-to-be-indiscriminate/ https://theintercept.com/2021/08/30/drone-kabul-afghanistan-civilian-casualties-children/ https://www.nato.int/nato_static_fl2014/assets/pdf/2022/6/pdf/290622-strategic-concept.pdf https://www.jonathan-cook.net/2022-07-08/nato-china-enemy-peace/ https://www.youtube.com/watch?v=QIIoyh2LdCo https://blackballmedia.ca/2022/05/29/i-blame-america-for-what-happened-to-my-family/ https://www.newsweek.com/putins-bombers-could-devastate-ukraine-hes-holding-back-heres-why-1690494 https://steigan.no/2022/07/russland-og-det-stor-eurasiske-partnerskapet/ https://www.commondreams.org/views/2021/02/03/decline-and-fall-american-empire https://braveneweurope.com/jonathan-cook-russia-ukraine-war-a-different-invasion-the-wests-same-madman-script https://steigan.no/2022/03/en-farlig-onsketenkning-i-konflikten-med-russland/ https://nsarchive.gwu.edu/briefing-book/russia-programs/2017-12-12/nato-expansion-what-gorbachev-heard-western-leaders-early https://www.jeffsachs.org/newspaper-articles/m6rb2a5tskpcxzesjk8hhzf96zh7w7 https://news.sky.com/story/ukraine-war-how-weapons-makers-are-profiting-from-the-conflict-12624574 https://www.pgpf.org/blog/2022/06/the-united-states-spends-more-on-defense-than-the-next-9-countries-combined https://watson.brown.edu/costsofwar/papers/summary https://news.sky.com/story/ukraine-war-how-weapons-makers-are-profiting-from-the-conflict-12624574 https://watson.brown.edu/costsofwar/2022/IraqWarCosts https://watson.brown.edu/costsofwar/files/cow/imce/papers/2021/US%20Counterterrorism%20Operations%202018-2020%2C%20Costs%20of%20War.pdf https://www.nato.int/nato_static_fl2014/assets/pdf/2022/6/pdf/290622-strategic-concept.pdf https://www.commondreams.org/views/2021/03/04/trump-bidens-secret-bombing-wars


Fæðuframleiðslumiðstöðvar Alheimsefnahagsráðsins. Bændum fórnað

Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) stendur fyrir stofnun fæðuframleiðslumiðstöðva (hub) víðs vegar um heiminn. Þar eru leiddir til leiks fjárfestar, stjórnvöld, uppfinningamenn, bændur, alþjóðastofnanir og fleiri. Þetta er svipað fyrirkomulag og veraldarbúum var kynnt í síðasta veiruheimsfaraldri. Þar er einnig sama stuðningsaðilja að finna, Stofnun Bill og Melinda Gates – og marga fleiri.

Þessi áætlun Alheimsefnahagsráðsins, „Bandalag um fæðuframleiðsluframtak“ (Food Action Alliance) er samstarfsverkefni með þátttöku Alþjóðlega landbúnaðarþróunarsjóðsins (International Fund for Agricultural Development) og Rabobankans, að viðbættu neti sjö hundruð staðbundinna og alþjóðlegra stofnana, þar með talin bændasamtök. Svo virðist, sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, hafi upp á sitt eindæmi undirritað samstarfssamning við aðalpáfa Alheimsefnahagsráðsins, Klaus Schwab, þessu aðlútandi.

Þarna má líka finna Unilever, PepsiCo, Master Card og Syngenta, stærsta íðefnaframleiðenda (agrochemical) fyrir landbúnaðinn í heimi hér. Það er í eigu hins kínverska Chemchina. Fjárfestingarsjóðurinn, Svarti klettur (Black Rock), og Vanguard eru stórir hluthafar í þrem þessara stórfyrirtækja.

Tilgangurinn með nefndri áætlun er að beita sér fyrir nýjungum við sjálfbæra fæðuframleiðslu og markaðssetningu þeirra - og þjóna sem fræðslusetur. Fyrstu miðstöðvarnar skutu rótum í Kólumbíu, á Indlandi og í Evrópu. Fæðudalur (Foodvalley) heitir ein slík stöð í Hollandi. Fleiri eru á leiðinni, m.a. í Sambíu, Keníu, Eþíópíu og Vietnam. Þessi nýja landbúnaðarsýn Alheimsefnahagsráðsins er í fullu samræmi við stefnu Sameinuðu þjóðanna (og Íslendinga) um sjálfbæra þróun til ársins 2030.

Sérstaklega er litið til nýrrar tækni eins og sjálfstýrineta (internet of things), gervigreindar, líftækni og tölvuagntækni (nanotechnology), rétt eins og við gerð covid-19 bóluefnanna.

Alheimsefnahagsráðið segir: „[V]ið verðum að breyta framleiðslu fæðu og neyslu hennar í grundvallaratriðum. Það felur í sér breytingar á starfsemi 500 milljóna kotbænda (smallholder) og neysluvenjum 7.7 milljarða manna.“

Bill Gates gefur okkur hugmynd um, hvað í þessum orðum felst: „Að mínum dómi ættu allar ríkar þjóðir að stefna að neyslu algjörlega tilbúins nautakjöts (synthetic beef). Þegar allt kemur til alls ætti græni vinningurinn að duga til að knýja fram breytta [neysluhegðun] fólks eða beita má reglugerðum til að breyta eftirspurninni algjörlega.“ Hinn mikli athafnamaður hefur þegar stofnað netmarkaðakeðju í Holllandi, Picnic.

Bill er maður athafna, ekki síður en orða: Í Afríku hefur hann auk mikilla bólusetningaumsvifa stofnað eigin samtök með hliðstæð markmið, „Bandalagið um græna byltingu í Afríku“ (Alliance for a Green Revolution in Africa). Leiðtoginn heitir Agnes Mathilda Kalibata, fyrrum landbúnaðarráðherra Rúanda. Markmiðið er að auka tekjur og fæðuöryggi þrjátíu milljóna sveitaheimila í þrettán Afríkulöndum. Áhersla er lögð á erfðabættar plöntur, kynblönduð fræ, tilbúinn áburð og illgresiseyði. Samkvæmt rannsókn, sem unnin var á vegum Tuft háskólans í Bandaríkjunum, leiddi einhæf ræktun til tæplega þriðjungs fjölgunar á fórnarlömbum hungurs.

En aftur að fæðuframleiðslustöðvum Alheimsefnahagsráðsins. Alþjóðleg stjórnunarskrifstofa (Global Coordinating Secretariat) þess er staðsett í Wageningen í Hollandi, en sérhver miðstöð mun hafa staðbundna stjórn.

Forsætisráðherra Hollands, Mark Rutte, sá hinn sami og sigar nú lögreglu á andófsbændur, er einarður stuðningsmaður þessa verkefnis. Hann er, ásamt Justin Trudeau, einn af uppáhaldslærisveinum Klaus Schwab, æðstaprests í Davossöfnuðinum, þ.e. Alheimsefnahagsráðinu, þar sem Katrín Jakobsdóttir einnig hefur menntast. Þar að auki hefur Mark alla starfsævi sína verið í tengslum við Unilever, sem reyndar hefur svipaða stefnu í landbúnaðarmálum og einmitt hollenska ríkisstjórnin. Mark hefur látið hafa eftir sér, að almenningur á Vesturlöndum verði að horfast í augu við heldur meiri fátækt.

Grundvallarstefnuskrá eða skýrsla Alheimsefnahagsráðsins, sem kom út 2010, heitir „Allra mál: Hvernig styrkja má alþjóðlega samvinnu í samþættari heimi“ (Everybody‘s Business: Strenghening International Cooperation in a More Interdependint World). Þetta er doðrantur upp á rúmar sex hundruð síður. Að ritunun hans komu sjö hundruð manns, sem kröbbuðu í eitt og hálf ár, samkvæmt Harris Gleckman við háskólann í Boston.

Alheimsefnahagsráðið beitir sér fyrir uppbyggingu nýrra valdastofnanna, sem eru jafnvígar eða æðri þjóðríkjunum - og alþjóðastofnunum jafnvel. Don Tapscott segir þetta skýrt: Svo að finna megi leiðir til nýrra lausna á vanda alheimsins þarf að losa sig við stóra hindrun, þjóðríki með eigin efnahag.

Í stað þjóðríkja koma yfirþjóðlegir hagsmunaaðiljar (stakeholder) eða hagsmunaráð. Hagsmunaráðin stýra af listfengi, en stjórna ekki. („Governance is the art of governing without governments,“ segir Susan George, sem skrifaði árið 2015 bókina: „Hvernig alheimsfyrirtæki seilast til valda.)

Nú er evrópskum landbúnaði heldur betur velgt undir uggunum. Ef hann veltur á hliðna bíða samkeppnisaðiljarnir, risakjötframleiðendurnir í Bandaríkjunum með klærnar úti. Svarti klettur (Black Rock) og Vanguard, eru þar einnig hluthafar.

En það örlar á andspyrnu gegn áætlunum auðkýfinga, stjórnvalda og alþjóðastofnana. La Via Campesina er andófsfélagsskapur tvö hundruð milljóna smábænda og sveitamanna, sem leggja áherslu á ræktun góðra matvæla.

Hollenskir bændur hafa nú stofnað baráttusamtök, Agractie. Þeir leggja einnig til andófsaðgerðir með stuðningi almennings þann fimmtánda júlí og flagga hollenska fánanum á haus.

Og eins og venjulega lýsa staðreyndaljósin um þetta mál sem önnur: https://checkyourfact.com/2022/07/07/fact-check-dutch-farmer-protest-july-2022/

En vonarglæta að lokum: Í Nýja-Sjálandi, þar sem Jacinda Ardern, enn ein lærisveinka Alheimsefnahagsráðsins ríkir, er kúm nú skylt að bera grímu fyrir vitum sér til að draga úr losun gróðurhússlofttegunda.

https://investinholland.com/news/the-netherlands-and-the-world-economic-forum-launch-food-innovation-hubs-initiative/ https://markcrispinmiller.substack.com/p/hitlers-press-blacked-out-the-dutch?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2022/07/partnerskapet-mellom-bill-gates-og-den-nederlandske-ministeren-for-nitrogen-%ef%bf%bc/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www3.weforum.org/docs/WEF_GRI_EverybodysBusiness_Report_2010.pdf https://www.youtube.com/watch?v=kJFM_UsqXf4 https://www-cnbc-com.translate.goog/2022/05/25/mark-rutte-were-going-to-be-a-bit-poorer-in-the-west-amid-inflation.html?_x_tr_sl=en&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=wapp https://knoopinjezakdoek.nl/?fbclid=IwAR2sNjX5iXhA7maV9q5WIvtVMwhgOLSgF4i6TdkzxaBpFPVmhHkkQUdLM6A https://off-guardian.org/2022/07/02/the-dutch-farmers-protest-and-the-war-on-food/ https://www.youtube.com/watch?v=sAm1dww6SdA https://www.weforum.org/press/2019/06/world-economic-forum-and-un-sign-strategic-partnership-framework/ https://sites.tufts.edu/gdae/files/2020/07/20-01_Wise_FailureToYield.pdf https://thegrayzone.com/2021/09/23/corporations-bill-gates-un-food-summit/ https://agra.org/zt_team/dr-agnes-kalibata-2/ https://steigan.no/2022/07/protestene-i-nederland-fortsetter/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.foodvalley.nl/news/the-netherlands-proud-host-of-global-coordination-secretariat-for-worldwide-network-of-food-innovation-hubs/ https://steigan.no/2022/07/milliardaerene-har-tatt-kontroll-over-fns-matvarepolitikk/ https://www.unilever.com/brands/nutrition/the-worlds-food-system-needs-to-change/ https://steigan.no/2019/06/gunhild-stordalen-og-hennes-eat-milliardaerer/ https://www.un.org/en/food-systems-summit https://www.theguardian.com/global-development/2020/mar/12/un-under-fire-over-choice-of-corporate-puppet-as-envoy-at-key-food-summit https://www.telegraaf.nl/nieuws/1371520830/boerenactiegroep-roept-op-werk-vrijdag-kwartier-neer-te-leggen https://expose-news.com/2022/07/10/documents-dutch-gov-wef-great-reset/ https://www.weforum.org/press/2021/01/food-innovation-hubs-put-farmers-at-head-of-the-table-for-systems-change/ https://viacampesina.org/en/ https://www.thelastamericanvagabond.com/un-food-summit-ignored-indigenous-people-pushed-great-reset-agenda/ https://steigan.no/2016/05/global-redesign-initiative-et-initiativ-for-a-nytegne-den-radende-verdensorden/ https://www.weforum.org/projects/food-action-alliance https://weforum.ent.box.com/s/wenkz4o4x5s1eegt20wpz8s2l4hknye2 https://www.weforum.org/communities/food-innovation-hubs-partners-group#:~:text=Food%20Innovation%20Hubs%20are%20a,solutions%20for%20food%20systems%20transformation https://www3.weforum.org/docs/WEF_CO_NVA_Overview.pdf https://steigan.no/2014/11/bill-gates-milde-gaver-til-hvem/ https://www.weforum.org/agenda/2021/10/how-to-build-more-sustainable-healthier-more-equitable-food-systems/ https://www.rubikon.news/artikel/das-bauernopfer-2 https://www.youtube.com/watch?v=x4xJ2G1fjbw


Regnbogauppeldið hjá Reykjavíkurborg – Dalheimar

Undanfarin ár og áratugi hafa alþjóðastofnanir, Alþingi, sveitarfélög og skólakerfi – dómstólar jafnvel – bent á nauðsyn þess eyða óheppilegum einkennum kynjanna. Einkum þó hins ”eitraða karlkyns.“ Trúlega eru Bandaríkin lengst komin á þessari braut, en Íslendingar sækja stöðugt í sig veðrið undir leiðsögn Katrínar Jakobsdóttur, sem seint þreytist á að benda okkur og öðrum veraldarbúum á að bjarga þurfi stúlkum og konum (og gæludýrum þeirra frá Úkraínu) frá karlmönnum.

Trúlega er Reykjavíkurborg framsæknasta sveitarfélagið í þessu tilliti. Mannréttindaskrifstofa hennar býður nú ”regnbogavottun.” Regnbogavottunin er sniðin eftir vottun frá samtökunum „Human Rights Campain, Stonewall í Bretlandi“ og „RFSL (sænskum samtökum, sem á ensku kalla sig: The Swedish Federation for Lesbian, Gay, Bisexual, Transgender, Queer and Intersex.)

Vottunin felur í sér fræðslu og eftirlit um rétta hugsun og viðmót gagnvart samkynhneigðum (hommum og lespum - homosexual), millikynungum (intersex), kynskiptingum (transsexuals) og kynseginfólki eða kynleysingjum. Eða:

”Kynsegin fólk tengir hvorki við að vera karl eða kona, er blanda af hvoru tveggja eða flakkar á milli.“ Og: „Trans karl er karl sem var úthlutað kvenkyni við fæðingu. Trans kona er kona sem var úthlutað karl-kyni við fæðingu.“

Alþingi Íslendinga samþykkti lög samin af kynjafræðingunum, Svandísi Svavarsdóttur og Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur, þar sem sú endurskilgreining átti sér stað, að börn fæddust ekki af tilteknu kyni af náttúrunnar hendi, heldur fengi því úthlutað eins og t.d. fiskveiðikvóta – líklega af starfsfólki fæðingardeilda eða kannski Alþingi sjálfu. (Þó hef ég ekki heyrt um kynjaúthlutunarnefnd.)

Nokkur gagnleg nýyrði úr regnbogafræðum mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar:

«Markkynja fólk fæðist með dæmigerð ky-neinkenni sem er auðveldlega hægt að flokka sem annað hvort karlkyns eða kvenkyns (er ekki intersex).- Sís eða sís-kynja [ath.: vísar ekki til Sambands íslenskra samvinnufélaga) er fólk sem býr yfir kyn-vitund sem samræmist kyninu sem því var út-hlutað við fæðingu (er ekki trans). - Hinsegin er hugtak sem nær yfir fólk sem tilheyrir minnihlutahópum á grundvelli kyn-hneigðar, kynvitundunar, kyneinkenna og/eða kyntjáningar. Svo sem samkynhneigðir, trans fólk og intersex fólk. - BDSM-hneigð að laðast að fólki sem deilir löngunum um samþykkt og meðvituð valda-skipti. - Eikynhneigð að laðast lítið eða ekkert kynferðislega að öðru fólki. …

Stálp er kynsegin barn, sbr. stelpa, strákur og stálp. - Kvár er fullorðin kynsegin manneskja, sbr. karl, kona og kvár. - Hán er persónufornafn sem sumt kynsegin fólk notar, sbr. hann, hún og hán. Það beygist með eftirfarandi hætti: hán, hán, háni, háns og tekur hvorugkyns endingar. T.d. hán er svangt.“

Hér er frásögnin um regnbogavottunina í heild sinni: „Dalheimar fór í gegnum ferli að fá Regnbogavottun Reykjavíkurborgar og til að verða Hinsegin frístundaheimili í desember 2021.

Starfsmenn Dalheima tóku þátt í fræðslu um hinsegin málefni og rýndu þjónustuna sem veitt er í Dalheimum. Fræðslan byggði á ýmsum skemmtilegum verkefnum um hinseginleika en hún beinist einnig að því að skoða með hvaða hætti hver og einn vinnustaður geti verið hinseginvænni.

Markmiðið með Regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.

Nánar um Regnbogavottun Reykjavíkurborgar má finna hér.

Af hverju að verða Hinsegin frístundaheimili? Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar er lögð til grundvallar regnbogavottuninni. Hún byggir á jafnræðisreglunni og miðar að því að allar manneskjur fái notið mann-réttinda án tillits til uppruna, þjóðernis, stéttar, tungumáls, litarháttar, trúarbragða, lífs- og stjórnmálaskoðana, trúleysis, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, kyneinkenna, aldurs, fötlunar, holdafars, líkamsgerðar, heilsufars, atgervis eða annarrar stöðu. Sjöundi kafli fjallar um þætti sem snerta hinsegin fólk og segir þar m.a.:

7.2.1 Virða ber rétt fólks til að tjá sig, eða tjá sig ekki, um kynhneigð, kyn-vitund, kyntjáningu eða kyneinkenni sín.

7.2.2 Starfsfólk skapar andrúmsloft sem er laust við fordóma gagnvart hinsegin samstarfsfólki og á það við í starfi og leik á vinnustaðnum.

Starfsfólk skal ekki ganga út frá því sem vísu að allir sem njóta þjónustu borgarinnar séu gagnkynhneigðir, sís-kynja eða eigi gagnkynhneigða eða sís-kynja foreldra. Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði eru einnig til grundvallar regnbogavottuninni en þau gilda m.a. um einstaklinga óháð kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Í 7. gr. laganna er kveðið á um bann við beinni og óbeinni mismunun sem og að atvinnurekendur skuli sérstaklega vinna að jafnri meðferð starfsmanna innan fyrirtækis síns eða stofnunar og koma í veg fyrir mis-munun vegna [ofangreindra] þátta.

Hvernig ætlum við að vera Hinsegin frístundaheimili? Það eru ýmislegt sem hægt er að gera til að vera hinseginvænt frístundaheimili. T.a.m. eru salernin okkar ekki skilgreind eftir kyni. Við pössum upp á orðræðuna, stríðni og tökum samtalið þegar upp kemur misskilningur. Við notum hinsegin hugtök í daglegu tali, hægt að sjá ítarlegan lista fyrir neðan. Við setjum okkur markmið að vera með hinsegin efni sýnilegt og reglulegt. Við setjum okkur markmið að bæta hinsegin málefnum við núverandi verkefni og skipulag. Við verðum með sýnileika hinseginleikans, með plakati og fána (þegar við fáum það) og ætlum að finna meira efni sem sýnir hinseginleikann í alls konar mynd.

Hugtakalisti (gott að hafa í huga) Bandamaður/styðjandi er manneskja sem tilheyrir ekki hinsegin samfélaginu en kynnir sér og styður baráttu og tilverurétt þess og stendur með því í orði og á borði.

BDSM-hneigð að laðast að fólki sem deilir löngunum um samþykkt og meðvituð valda-skipti.

Eikynhneigð að laðast lítið eða ekkert kynferðislega að öðru fólki.

Fordómar eru fyrirfram gefnar hugmyndir sem ekki byggja á rökum eða reynslu. For-dómar byggja oft á staðalmyndum um hópa. Fordómar og mismunun haldast venjulega í hendur og geta leitt til félagslegrar útskúfunar og undirokunar ákveðinna hópa.

Gagnkynhneigð að laðast að fólki af öðru kyni.

Hán er persónufornafn sem sumt kynsegin fólk notar, sbr. hann, hún og hán. Það beygist með eftirfarandi hætti: hán, hán, háni, háns og tekur hvorugkyns endingar. T.d. hán er svangt.

Hinsegin er hugtak sem nær yfir fólk sem tilheyrir minnihlutahópum á grundvelli kyn-hneigðar, kynvitundunar, kyneinkenna og/eða kyntjáningar. Svo sem samkynhneigðir, trans fólk og intersex fólk.

Intersex fólk hefur kyneinkenni sem ekki er auðveldlega hægt að flokka sem annað hvort karl- eða kvenkyns.

Karllæg kyntjáning er í samræmi við vænt-ingar um tjáningu bornar til karlmanna.

Kvár er fullorðin kynsegin manneskja, sbr. karl, kona og kvár.

Kvenlæg kyntjáning er í samræmi við vænt-ingar um tjáningu bornar til kvenmanna.

Kyneinkenni eru líffræðilegir þættir sem eru notaðir til að úthluta kyni (ákvarða kyn) og ná t.d. yfir hormónastarfsemi líkamans, litninga, kynfæri og æxlunarfæri. Kyneinkenni eru líffræðilegir þættir sem eru notaðir til að úthluta kyni (ákvarða kyn) og ná t.d. yfir hormónastarfsemi líkamans, litninga, kynfæri og æxlunarfæri.

Kynhneigð segir til um það hverjum fólk verður skotið í, ástfangið af og/eða laðast að.

Kynsegin fólk tengir hvorki við að vera karl eða kona, er blanda af hvoru tveggja eða flakkar á milli.

Kyntjáning segir til um hvernig við tjáum kyn okkar út á við, svo sem hvernig við klæðum okkur, berum okkur, tölum, klippum hárið okkar og hvernig almennt fas okkar er. Almennt mæld á skala á milli karlmannleika og kvenleika.

Kynvitund segir til um okkar innri upplifun af eigin kyni, hvernig við viljum lifa og vera í okkar kyni.

Markkynja fólk fæðist með dæmigerð ky-neinkenni sem er auðveldlega hægt að flokka sem annað hvort karlkyns eða kvenkyns (er ekki intersex).

Óræð eða ódæmigerð kyntjáning er á ein-hvern hátt á skjön við væntingar bornar til fólks út frá kyni.

Pankynhneigð að laðast að fólki óháð kyni.

Samkynhneigð (hommar/lesbíur) að laðast að fólki af sama kyni.

Sís eða sís-kynja er fólk sem býr yfir kyn-vitund sem samræmist kyninu sem því var út-hlutað við fæðingu (er ekki trans).

Stálp er kynsegin barn, sbr. stelpa, strákur og stálp.

Trans karl er karl sem var úthlutað kvenkyni við fæðingu.

Trans kona er kona sem var úthlutað karl-kyni við fæðingu.

Tvíkynhneigð að laðast að tveimur kynjum.“

Svo mörg voru þau orð. Fleiri stofnanir og fyrirtæki á vegum Reykjavíkurborgar hafa nú fengið slíka vottun eins og t.d. leikskólinn, Gullborg og Vesturbæjarlaug.

https://2021.reykjavik.is/regnbogavottun-reykjavikurborgar


Sameiginlega skyndihersveitin og Íslendingar

Ráðamönnum Stóra-Bretlands hefur verið tíðförult til Svíþjóðar og Finnlands til að fullvissa frændur vora og frænkur um hernaðartryggð breska ríkisvaldsins. Þessi bardagavinátta á sér sérstaka sögu.

Í Wales var haldinn fundur æðstu ráðamanna í Nató árið 2014, þegar Bandaríkjamenn gerðu stjórnarbyltingu í Úkraínu. Þar voru lögð drög að stofnun Sameiginlegu skyndihersveitarinnar (SS - Joint Expeditionary Force). Heraflann skipa hermenn frá Eystrasalts- og Norðurlöndunum. Bretar eru í forsvari.

Breska utanríkisráðuneytið kunngerir, að „SS sé í færum til að berjast hvarvetna í heimi hér, þar sem tveim aðildarríkjum þurfa þykir.“ Stofnun SS er hluti af viðbragðsáætlun Nató, sem, að sögn, er unnin með hliðsjón af innrás Rússa í Úkraínu. Leiðtogarnir segja: „Árásir Rússa gegn Úkraínu hafa skekið hugsýn okkar um Evrópu sem óskipta, frjálsa og friðsamlega.“ Það kemur varla á óvart, að SS sé þjálfuð á sama hátt og her Úkraínu, þ.e. samkvæmt Nató stöðlum og samhæfingu.

Íslendingar hafa einnig girt sig í vígaloðbrókina eins og Ragnar loðbrók forðum og grafið upp atgeirinn. Þeir sameinuðust í fyrra skjaldmeyjum í Noregi, Danmörku, Bretlandi, Eistlandi, Lettlandi, Lithaugalandi og Hollandi. Svíar og Finnar gerðust þátttakendur í SS, þegar árið 2017. Ári síðar var SS í stakk búin til að halda æfingar með Nató.

Eins og gefur að skilja eru Bandaríkjamenn himinlifandi með þetta hernaðarframtak. SS var boðin þátttaka í árlegri heræfingu, tengdri ímyndaðri ógn á og við Eystrasalt, BALTOPS, undir forystu Bandaríkjamanna.

Á fundi æðstu leiðtoga í fyrra, tveim dögum fyrir innrás Rússa í Úkraínu 24. febrúar, lýstu þeir yfir, „að SS sé hópur samstilltra forvirkniþjóða, sem aðhyllast sömu gildi og markmið, og beina sameiginlegri athygli að öryggi og stöðugleika við Norður-Atlantshaf og Eystrasalt. Þau sameinuðust m.a. gegn aukningu í herafla Rússa við landamæri Úkraínu og frekari árásum þeirra á Donbass svæðinu.“ Tveim dögum síðar gerðu Rússar einmitt innrás í Úkraínu.

Forvirkni felur í sér staðsetningu margvíslegra vígtóla meðfram vesturlandamærum Rússlands frá Finnlandi til Norður-Makedóníu - og heræfingar vitaskuld. Æfingin 2019 var kölluð „Verndarar Eystrasalts“ (Baltic Protector). Þetta er í fullu samræmi við nýheimsvaldastefnu Bandaríkjanna.

Utanríkisráðherra Breta, Ben Wallace, segir, „hersveitir okkar munu sameinast bandamönnum og samstarfsaðiljum í Nató og SS til að sýna samstöðu og styrk í viðamesta vígaviðbúnaði, eftir að kalda stríðinu lauk.“ Annað er nú reyndar skollið á.

Þegar þetta er skrifað hafa leiðtogar Lithaugalands, í umboði Evrópusambandsins, hótað Rússum lokun landflutninga til Kalingrad, en þar er Eystrasaltsflotastöð þeirra. Stríðshaukarnir í Bandaríkjunum lögðu fyrir nokkrum árum síðan áherslu á nauðsyn þess að hrifsa Kalingrad úr höndum Rússa.

Samtímis undirbúningi vígtólaátaka heldur áfram sálhernaðurinn. Það er ekki bara eitruð karlmennska, sem skapar fólki ugg, og vondar veirur á sveimi, heldur er nú endurvakin Rússagrýlan, sem grenjar ógurlega. Reyndar hefur einn af mikilhæfustu leiðtogum Vesturlanda, forsætisráðherra Breta, Boris Johnson, spunnið þetta saman í þá skýringu, að Úkraínustríðið stafi af eitraðri karlmennsku Valdimars Pútín – og auglýsir skiljanlega eftir fleiri kvenleiðtogum.

Fáir eru betur að sér í sál- og upplýsingahernaði, en einmitt Bretar, sem fyrrgreindur stríðshugmyndafræðingur stjórnar mildri hendi. T.d. höfðu Bretar veg og vanda að undirróðursstarfseminni gegn stjórn Sýrlands og Úkraínu í samstarfi við leyniþjónustu Bandaríkjanna.

Upplýsingahernaðurinn hefur það að markmiði að valda óróa, efa og skelfingu. Og hvað er þá betra en að skapa aðsteðjandi ógn. Þetta eru þekktar forsendur múgsefjunar, sbr. bók Mattias Desmet: „Sálfræði gerræðisins“ (The Psychology of Totalitarianism). Mikilvægasti aflvaki múgsefjunar er óbundið angistarflæði, sem áróðursmeistarar beina í ákveðinn farveg, þ.e. finna því útrás í blóraböggli eða einfaldri skýringu.

Meðal Jón og Gunna í Svíþjóð og Finnlandi, skelfingu lostin, samþykkja nú formlega inngöngu í Nató. Þessar þjóðir hafa í hrossakaupunum samþykkt að framselja til Tyrkja fjölda manna, sem þeir skilgreina sem hryðjuverkamenn, rétt eins og Bandaríkjamenn skilgreina Julian Assange. Aukin heldur lofa Svíar og Finnar að aflétta banni á vopnasölu til Tyrkja. Með inngöngu Svía og Finna herða Bandaríkjamenn og Bretar enn frekar tökin á vestrænum lýðræðisríkjum í baráttu sinni gegn Rússlandi og Kína.

Finnar og Svíar leggja traust sitt á hina margumræddu grein fimm í samþykktum Nató, sem kveður á um að verði aðildarþjóð fyrir vopnaárás geti hún beðið hinar um liðsinni. En SS er sem sé ekki bundin af slíkri grein.

„Íslenski herinn“ hefur á að skipa víkingasveit, sem alténd gæti aðstoðað SS. En leynivopn Íslendinga er kvenfrelsunarherinn, sem fór í útrás og hefur m.a. aflað mikilvægrar reynslu í Afganistan. Honum mætti ef til vill beita til að frelsa rússneskar konur undan álögum Valdimars, en þær ku hafa kiknað í hnjáliðunum, þegar hann birtist ber að ofan á hestbaki, hálfnakti, rússneski riddarinn.

https://steigan.no/2022/07/cyber-er-falskt-flagg-arena-nr-1/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2022/07/totalitarismens-psykologi/?utm_source=substack&utm_medium=email https://mronline.org/2022/06/27/nato-blockades-kaliningrad/ https://www.hurriyetdailynews.com/erdogan-makes-call-to-intensify-efforts-to-end-war-in-ukraine-174992 https://www.aa.com.tr/en/analysis/analysis-madrid-agreement-and-the-balance-policy-in-turkish-foreign-policy/2627975 https://www.aa.com.tr/en/analysis/analysis-madrid-agreement-and-the-balance-policy-in-turkish-foreign-policy/2627975 https://en-kremlin-ru.translate.goog/events/president/news/68783?_x_tr_sch=http&_x_tr_sl=en&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=wapp https://www.wsws.org/no/articles/2022/05/16/join-m16.html https://www.royalnavy.mod.uk/news-and-latest-activity/operations/mediterranean-and-black-sea/joint-expeditionary-force-maritime https://www.indianpunchline.com/turkey-nato-joined-at-hips-but-think-differently/ https://www-aa-com-tr.translate.goog/en/russia-ukraine-war/here-is-what-finland-sweden-promised-to-address-turkiyes-security-concerns/2625235?_x_tr_sl=en&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=en&_x_tr_pto=wapp https://www.forces.net/operations/what-joint-expeditionary-force https://www.gov.uk/government/news/joint-expeditionary-force-deploys-to-the-baltics https://medium.com/voices-of-the-armed-forces/the-joint-expeditionary-force-jef-explained-35fb42169d62


Nýheimsveldisstefna Bandaríkjamanna og Úkraína

Hagfræðingurinn, Jeffrey David Sachs (f. 1954) var einn bandarískra höfunda nýfrjálshyggjustuðsins á efnahagslíf og samfélag Rússa, Bólivíumanna og Pólverja undir, lok síðustu aldar. Hann hefur einnig þjónað sem ráðgjafi aðalritara Sameinuðu þjóðanna.

Jeffrey hefur skrifað fróðlega grein um nýíhaldshyggju eða nýheimsvaldahyggju (neocon – neoconservative) Bandaríkjamanna m.a. með tilliti til stríðsins í Úkraínu og dýpkandi heimskreppu. Hér er stiklað á stóru:

Eins og suma vafalaust rekur minni til náði bandaríska nýheimsveldishyggjan sér á flug á áttunda áratugi síðustu aldar. Fræðilegar grunnstoðir voru einkum reistar af Donald Kagan (1932-2021) og Leo Strauss (1899-1973). Hugsanlega er þó Paul Wolfowitz (f. 1943) annar kunnasti talsmaður hennar í stjórnmálum. Hinn er vafalítið Zbigniew Kzimierz Brzezinski (1928-2017), sem m.a. skrifaði „Stóra taflborðið“ (The Grand Chessboard) m.a. um nauðsyn þess, að Bandaríkin „girtu“ Rússland og Kína af með herstöðvum og næðu hernaðarlegum yfirtökum í Evrasíu.

Byltingarstjóri Barrack Hussein Obama (f. 1961) og Joseph Robinette Biden (f. 1942) við stjórnarbyltingu Bandaríkjamanna í Úkraínu árið 2014, Victoria Jane Nuland (f. 1961), og eiginmaður hennar og sonur Donald, Roger Kagan (f. 1958), eru rísandi stjörnur. Þau voru líka lykilpersónur við undirróður og valdaránstilraunina í Sýrlandi.

Grundvallarkennisetningin í bandarísku nýheimsveldishyggjunni er einföld; Bandaríkin eiga sjálfgefinn rétt til að ríkja yfir veröldinni. Af því leiðir aðra grunnkennisetningu; Bandaríkin hafa rétt til að berja niður alla, sem gætu ögrað yfirráðum þeirra.

Mikilvægustu andstæðingarnir eru Rússar og Kínverjar. En eins og allir ættu að vita hafa Bandaríkjamenn séð ögranir víða. Þeir fóru t.d. í stríð með handbendum sínum í Nató á hendur Serbíu 1999, Afganistan 2001, Írak 2003, Sýrlandi 2011 og Líbíu 2011. (Þar sló Jens Stoltenberg (f. 1959) í gegn með norska flughernum og var dubbaður upp í stöðu framkvæmdastjóra Nató).

Af sama meiði eru „litbrigðabyltingarnar“ (colour revolutions) eða byltingartilburðir í Georgíu, Hvíta-Rússlandi, Rússlandi og í Úkraínu. Í þvísa landi höfðu þeir árangur sem erfiði. Þeim tókst að lokka Rússa til innrásar með linnulausri útþenslu Nató til austurs, vopnaflutningum og þjálfun úkraínska hersins, sem samhæfður var herdeildum Nató. Enn er ekki bitið úr nálinni með þann hörmungaratburð.

Þrátt fyrir loforð Vesturveldanna um að þenja Nató ekki til austurs við sameiningu þýsku ríkjanna, sbr. orð Hans-Dietrich Genscher (1927-2016) í því sambandi, hefur Jens Stoltenberg og Nató þverbrotið öll loforð og samninga þar að lútandi. Innganga Úkraínu í Nató og Evrópusambandið er angi nefndrar stefnu.

Það virðist ekki lengur vera samsæriskenning eða falsfrétt, að Nató og Bandaríkjamenn, með leyniþjónustuna góðu – og dyggilega stund af mannvinum með loðna lófa – í fararbroddi, hafa kerfisbundið undirbúið staðgengilsstríð sitt í Úkraínu. Fjölgun hermanna og vígtóla í Austur-Evrópu er hluti allsherjar vígbúnaðarstefnu þeirra síðasta áratuginn. Stefnan blasir nú við sjónum; t.d. fjölgun vopna og hermanna við landamæri að Rússlandi og innganga Finna og Svía í Nató. En þessar þjóðir hafa haft nána samvinnu við bandalagið í öryggismálum. Íslendingar undir forystu Katrínar Jakobsdóttur (f. 1976) taka virkan þátt.

Á lokaáratugi síðustu aldar lögðu – samkvæmt Wesley Clark (f. 1944), hershöfðingja – nýheimsvaldasinnarnar einnig á ráðin um að umbylta stjórnarháttum þeirra ríkja, sem hliðholl höfðu verið hinum látnu Ráðstjórnarríkjum.

Í kræktu viðtali útskýrir hagfræðingurinn, Michael Hudson (f. 1939), áhrif nýheimsveldisstefnu Bandaríkjamanna á efnahag heimsins og Bandaríkjanna sjálfra. Kalda stríðið gegn Rússlandi og Kína, sem nú er gengið í endurnýjun lífdaganna, mun stuðla að verðbólgu og drjúglangri kreppu í veröldinni. Í hinum vestræna heimi munu ríkisstjórnir og alþjóðastofnanir undir forsjá Bandaríkjamanna leggja á ráðin um aukna eignaupptöku almennings, lækkun launa og atvinnuleysi, svo hinir auðsælu megi enn fitna eins og púkar á fjósbita.

Auðkýfingar heimsins hafa skipað sér í fylkingu og hafa sammælst um, að losa sig við um tvær milljónir manna, sem ekki er þörf fyrir, að sögn Michael Hudson.

https://steigan.no/2022/07/og-der-slapp-stoltenberg-katta-ut-av-sekken/?utm_source=substack&utm_medium=email https://multipolarista.com/2022/06/28/michael-hudson-inflation-fed-wages/ https://www.jeffsachs.org/newspaper-articles/m6rb2a5tskpcxzesjk8hhzf96zh7w7


Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband