Sjónhverfingalýðræðið í Bandaríkjunum Dennis J Kucinich

Blaðamaðurinn, Chris Hedges, átti á dögunum viðtal við óvenjulegan, bandarískan stjórnmálamann, Dennis J. Kuchinich. Hann er fyrrum borgarstjóri í Cleveland og frambjóðandi til forseta Bandaríkjanna. Honum var bolað úr stöðu borgarstjóra vegna þrákelni við að selja orkufyrirtæki borgarinnar.

Hann hefur skrifað bókina, „Skiptingu ljóss og valds“ (The Division of Light and Power), sem var 40 ár í smíðum. Dennis býður sig nú fram til þings, en óháður flokkunum tveim, sem drottna á víxl í augljósu gervilýðræði.

Dennis er einn fárra bandarískra stjórnmálamanna, sem reynt hefur að andæfa stríðsbrjálæðingunum á vegnum vopnaframleiðenda, sem stjórna utanríkisstefnu þjóðarinnar. Stríðsreksturinn hefur kostað sérhverja fjölskyldu, í landi hinna hugprúðu og frjálsu, ógnarlegar upphæðir, og enn er barist fyrir lán.

Dennis viðurkennir umbúðalaust ábyrgð Bandaríkjanna á þjóðarmorðinu á Gaza.

Chris segir m.a.: Það eru eingöngu hernaðarmáttaröflin, fyrirtækin og auðmennirnir, sem að staðaldri vinna kosningar í Bandaríkjunum – og sviðsetja kosningasjónhverfingarnar.

Í sjálfu sér er enginn munur á stefnuskrá flokkanna tveggja í raun; langvinn stríð, viðskiptasamningar, afiðnvæðing, stjórnvaldseftirlit, velferðarskerðing, gróðamiðað heilbrigðiskerfi, sem auðveldar fyrirtækjum að græða á hinum sjúku, fjölgun fanga og hermiðuð lögregla.

Spurt er, hvernig má okkur auðnast að endurheimta lýðræði vort, sem heimspekingurinn, Sheldon Wolin, hefur kallað umsnúið alræði (inverted totalitarianism)?

https://chrishedges.substack.com/p/the-chris-hedges-report-with-independent?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=144021905&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband