Örlagadagar nálgast. Veiruvitfirringin og vinstri-græni forsetinn. Sprautumorðin

Bráðum kýs íslensk þjóð sér forseta, þjóðardýrlinginn, Katrínu Jakobsdóttur, sem bæði er fulltrúi Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum - WEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (AH). Sú síðastnefnda, fjármögnuð að miklu leyti af bólusetninga- og lyfjaauðjöfrinum, Bill Gates, lýsti nýlega yfir gerviheimsfaraldri.

Katrín „forseti“ tók þátt í þessari blekkingu almennings og leiddi stórfellda ógæfu yfir þjóðina, sem nú kýs hana á Bessastaði. Þá mun vafalítið kætast Klaus Schwab, forstjóri WEF. Ráðið á nú fólk sér handgengið meðal stjórnvalda víða um heim, ekki síst úr röðum kvenfrelsara, sem það hefur stutt dyggilega til áhrifa og valda. Það er ekki útilokað, að íslensk þjóð vakni um síðir til vitundar um þá ógæfu, sem Katrín og ríkisstjórn hennar hafa leitt yfir þjóðina. Ætli hún muni njóta friðhelgi dómstóla sem Bessastaðafrú?

Vafalítið mun vestræn kven- og kynfrelsunarhreyfing einnig fagna sigri. Katrín er holdgervingur baráttu þeirra, ekki síst fyrir þá sök, að hún berst fyrir fóstureyðingum fram að fæðingu. Í fyrsta sinn eignast íslenskir karlmenn forseta, sem telur þá „eitraða“ kúgara kvenna. Fáir stjórnmálamenn hafa barist svo ötulleg gegn körlum; drengjum og feðrum. Þetta verður magnaður áfangi í sögu lýðveldisins.

Forsetakosningarnar, munu eiga sér stað þann fyrsta júní. Hinn örlagadagurinn rennur upp viku fyrr eða 24. maí. Þá kjósa aðildarríki Sameinuðu þjóðanna um, hvort veita eigi AH endanlegt alræðisvald í heilbrigðismálum þjóðanna. Það má telja víst, að AH vinni tvöfaldan sigur; öðlist langþráð alræðisvald með tilheyrandi skerðingu fullveldis þjóða og fái fulltrúa sinn á Bessastaði.

Örveirufræðingurinn góðkunni, Michael Yeadon, gerir alræðisvald AH að umtalsefni í umfjöllun um fyrirlestra Paul Schreyer, Stefan Homburg og Christian Perronne (allir tilgreindir í grein hans). Vitnisburður Denis Rancourt fyrir alþýðudómstóli í Ottawa er einnig afar áhugaverður.

Michael beinir sjónum okkar enn þá lengra. Hann bendir á, að sjálf heilbrigðiskenningin, sem öll blekkingin grundvallast á, þ.e. um veirusýkingar og veirusmit, sé á sandi byggð; þjóðtrú og rétttrúnaður heilbrigðisstétta.

„Trúin“ er hugarfóstur Louis Pasteur (1822-1895), „föður“ örverufræðinnar. Enginn hefur nokkru sinni séð veirur úr mönnum, segir Kyle Young. Heldur ekki síðustu svikaveiru, þrátt fyrir allar PCR sjónhverfingarnar. (Sbr. einnig bók Thomas Cowan: Vaccines, Autoimmunity, and the Changing Nature of Childhood Illness.)

Boðskapur Michael er ógnvekjandi. Það gerir hann sér fyllilega ljóst. Þegar Michael einu sinni ræddi við starfsfélaga um uppgötvanir sínar var einum þeirra að orði, að hann vildi ekki trúa, „það væri einfaldlega of ógnvekjandi.“ Því væri upplagt að stinga höfðinu í sandinn.

Það gera þó ekki allir. Þar á meðal eru Jonathan Engler, Tom Cowan, Andrew Kaufman, Stefan Lanka, Marc McDonald, Peggy Hall, Mark and Samantha Bailey, Sally Fallon, Alphonse Faggiolo, Barre Lando, Kelly Brogan, Veda Austin, Tony Roman og Sayer Ji.

Fyrrgreindur Kyle Young, sem beið óbætanlegan bólusetningarskaða, skipar sér í þessa sveit. Hann segir um veirufræðingana: „Þeir eiga tekjur sínar undir því að halda þessari veirugoðsögn við. Reyndar er það svo, að gervallur bóluefnaiðnaðurinn grundvallast á viðhaldi hennar.“ Goðsögnin um veiruna er nauðsynleg til að vekja ugg í brjósti fólks, svo auðveldara sé að ráðskast með það.

Snillingurinn, James Corbett, hefur gert heimildarmynd um þróun læknisfræðinnar, síðan Rockefeller-ættin lagði grundvöllinn að „vísindalegri“ læknisfræði í Bandaríkjunum á öðrum áratugi síðustu aldar.

James kallar þessa þróun Rockefeller-læknisfræði (Rockefeller Medicine) með skírskotun til bókarinnar, „Rockefellerlæknanna. Lækninga og auðvalds í Bandaríkjunum“ (Rocekfeller Medicine Men. Medicine & Capitalism ín America), eftir bandaríska lýðheilsufræðinginn, E. Richard Brown (1942-2012).

Mæli sterklega með myndinni. Þess má einnig geta í þessu sambandi, að faðir ættarhöfðingjans, John D. Rockefeller (1839-1937), William Avery Rockefeller (1810-1906), hagnaðist m.a. á sölu snákaolíu. (Inntaka þessa töfralyfs kynni jafnvel að skýra langlífi Rockefeller kappanna. Alla vega tek ég snákaolíu nú í stað lýsis á hverjum morgni.)

James getur einnig bókar eftir Eustance Clarence Mullins (1923-2010), „Sprautumorðið. Sagan um lækningasamsærið gegn Bandaríkjamönnum“ (Murder by Injection. The Story of the Medical Conspiracy Against America).

Hvet áhugamenn um ritskoðun, ároður og vitundariðnað að lesa umfjöllun Wikipedia um manninn: https://en.wikipedia.org/wiki/Eustace_Mullins#:~:text=Eustace%20Clarence%20Mullins%20Jr.%20(March,to%20enact%20it%20into%20law

Áhugamál Rockefellerættarinnar (sem Bill Gates dáist mjög að) eru samtvinnuð og aflvakinn er valda- og peningagræðgi. Þetta á t.d. við um þráhyggjuna um að fækka hinum óæskilegu (eugenics) og sjúkdómsvarnir við bólusetningar. Bóluefnin valda mörg hver ófrjósemi og margvíslegum heilsuvanda. Síðasta afurðin, bóluefnið við Covid-19, er einungis eitt dæmi um þetta.

Og eins og allir gera sér væntanleg í hugarlund; fólksfjölgunin ógnar náttúrunni, þannig að við stöndum við opnar dyr til helvítis eins og aðalritari Sameinuðu þjóðanna fullyrðir. Því hlýtur að gefa auga leið, að fólki og fénaði verði að fækka. Það var einmitt David Rockefeller (1915-2017), sem fann upp hamfarahlýnunina (eins faðir hans lyfja- og bólusetningaiðnaðinn).

file:///C:/Users/arnar/Downloads/Wodarg_Yeadon_Ema_Petition_Pfizer_Trial_Final_01dec2020_En_Unsigned_With_Exhibits.pdf https://www.westonaprice.org/health-topics/notes-from-yesteryear/germ-theory-versus-terrain-the-wrong-side-won-the-day/#gsc.tab=0 https://corbettreport.com/meet-william-rockefeller-snake-oil-salesman/ https://theshamecampaign.com/2014/04/12/snake-oil-salesman-william-rockefeller-taught-his-son-well/ http://whale.to/w/appleton1.html https://childrenshealthdefense.org/news/failure-to-vaccinate-or-vaccine-failure-what-is-driving-disease-outbreaks/ https://steigan.no/2024/03/hpv-vaksine-knyttes-til-4-ulike-autoimmune-lidelser/?utm_source=substack&utm_medium=email https://archive.org/details/rockefellermedic00browrich/page/n1/mode/2up https://healthpolicy.ucla.edu/newsroom/blog/obituary-dr-e-richard-brown-leading-proponent-health-care-reform-and-wide-dissemination-public https://secularheretic.substack.com/p/does-the-covid-virus-exist https://www.youtube.com/watch?v=hIBPVKUl52g https://prepareforchange.net/2020/11/23/the-rockefeller-drug-empire-since-1913/ https://expose-news.com/2024/04/20/germ-warfare-the-internecine-battle-over-germ-theory-is-ratcheting-up/ https://secularheretic.substack.com/ https://drmikeyeadon.substack.com/p/statement-by-mike-yeadon?utm_source=substack&utm_campaign=post_embed&utm_medium=web https://denisrancourt.substack.com/p/there-was-no-pandemic?utm_source=substack&utm_campaign=post_embed&utm_medium=web https://secularheretic.substack.com/p/germ-warfare https://t.me/DrMikeYeadonsolochannel/1138 https://expose-news.com/2024/04/27/treaty-of-lies-pandemic-of-lies-whistleblowers-of-truth-viroliegy-is-wholly-fraudulent-says-dr-yeadon/ https://drmikeyeadon.substack.com/p/treaty-of-lies-pandemic-of-lies-whistleblowers https://corbettreport.com/rockefeller-medicine-video/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband