Gervigreind og morðæði Ísraela. Í minningu Amr Abdallah

Ísraelum er margt til lista lagt. Tölvusnillingar eru þar á hverju strái. Njósna-, eftirlits- og drápsforrit þeirra eru viðurkennd um víðan völl og útflutningsvara. Eitt þeirra var t.d. notað til snjallnjósna um leiðtoga Evrópu. Vígvöllurinn á Gaza er tilraunastofan.

Einn ofangreindra snillinga er leiðtogi ofurnjósnadeildar Ísraela, kölluðuð 8200. Hann gengur undir dulnefninu, Y.S. og gaf fyrir þrem árum út bókina: „Teymi véla og manna: Hvernig má samvirkja mann- og gervigreind til að bylta veröldinni“ (The Human-Machine Team: How to Create Synergy Between Human and Artificial Intelligence That will Revolutionize Our World).

Tæknin, sem fjallað er um, byltir nú veröldinni, að einhverju leyti. Njósna- og eftirlitsforritið, Guðspjallið (Gospel), hefur nú þefað uppi og greint lungann af íbúum Gaza. Tengiforritið, „Lofnarblómið“ (Lavender), greinir þá samkvæmt Hamashollustu á mælikvarða frá 0 og upp í 100.

Annað tengiforrit Guðspjallsins heitir, „Hvar er pabbi.“ Það rekur slóð þeirra, sem Guðspjallið hefur gefið varhugaverðan fjölda stiga á Hamas-mælikvarðanum. Lágt settir Hamasliðar eru sprengdir með „bjálfasprengjum“ (dummies), sem vega á víð og dreif. Gildari Hamasliðar eru drepnir á heimilum sínum, ásamt heimilismönnum. „Hvar er pabbi,“ sér til þess. Þá er send stýriflaug á vettvang. Unglingspilturinn Amr var myrtur í einni slíkri.

Það er hrollvekjandi til þess að hugsa, að þrátt fyrir mótmæli gegn barnamorðingjanum, Brjálaða-Bensa, virðast langflestir Ísraelar kynda undir drápsæðinu. Hatur í garð Palestínumanna er meira að segja kennt í skólum. Börnum er einnig kennt um yfirburði stofnsins, þ.e. hinna fornu Hebrea, sem fæstir Ísraelsmanna geta rakið ættir til.

Bandaríski sagnfræðiprófessorinn, „Lawrence Davidson, kallar yfirburða- og drápshyggjuna „sjúka menningu“ (sick culture belief system).

Ísraelar halda áfram, þrátt fyrir málamyndavandlætingu Joe Biden og gervihótanir. Hræsnisfulla karlkvölin ætlar að láta byggja bryggju, svo auðveldara verði að flytja Palestínumenn á brott. Þreifingar um móttökuland standa yfir. Kannski þeir hafni í Austur-Afríku. En þangað vildu Síonistar fyrir engan mun flytja Gyðinga Evrópu.

Palestínumönnum er vitaskuld fækkað við gervigreindardrápin, en hungurvofan tekur sinn toll einnig. Eins og er á allra vitorði, ásökuðu Ísraelsmenn starfsmenn hjálparsamtaka Sameinuðu þjóðanna um hollustu við Hamas. Það dugði til þess að stórskerða framlög Vesturlanda. Í staðinn voru önnur samtök, „Alþjóðaeldhúsið,“ send á vettvang. Þau hafa m.a. verið þóknanleg Bandaríkjamönnum og Úkraínumönnum. Ísraelsmenn sprengdu þrjá bíla þeirra í tætlur. Því hefur þeirri aðstoð verið hætt.

Stór-Ísrael er innan seilingar – eða hvað? Tekst Ísraelsmönnum að egna til allsherjarstríðs í Miðausturlöndum með vitorði Bandaríkjamanna og Breta? Eða ætli fórn rauðu kvíganna frá Texas sefi drápsæði Ísraelsmanna og minnki landvinningaþörfina?

Við verðum að trúa og vona. Alla vega virðist engin guð ætla að skerast í leikinn. Bænir Kristmanna og Gyðinga um heimsendi og endurkomu Messíar eða Krists, gætu hafa fengið hljómgrunn á himni og jörðu.

Yfirvöld og ríkisstjórnir skerast heldur ekki í leikinn. Sú íslenska þegir þunnu hljóði. Það er alkunna, að þögn sé sama og samþykki.

https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/for-israel-foreign-aid-workers-blood-is-thicker-than-palestinians/11/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/stop-reporting-on-bidens-angry-feelings-toward-israel-its-not-news-its-not-interesting/14/ https://www.globalresearch.ca/israel-quest-palestinian-free-palestine-continues/5853557 https://www.youtube.com/watch?v=fbNPrEypMjU https://informationclearinghouse.blog/2024/04/02/daily-polls-show-that-israelis-continue-to-choose-this-war/11/ https://steigan.no/2024/04/rode-kviger-truer-med-a-sette-full-fyr-pa-midtosten/?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/sick-cultures-when-belief-systems-turn-pathological/16/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/this-was-deliberate-murder-by-the-israelis/13/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/lavender-the-ai-machine-directing-israels-bombing-spree-in-gaza/11/ https://www.972mag.com/lavender-ai-israeli-army-gaza/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/philip-giraldi-israels-quest-for-a-palestinian-free-palestine-continues/13/ https://beeley.substack.com/p/israels-serial-convention-violation?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=143255342&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/the-death-of-amr?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=143186629&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Bloggfærslur 6. apríl 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband