Árið 2022 í blíðu og stríðu. Litið um öxl. Heillaóskir

Íslendingar búa flestum þjóðum betur. Á Garðarshólma hafa flestir nóg að bíta og brenna og geta yljað sér við heita ofna eða í heitum laugum. Fjöldi manns hefur orðið þeirrar hamingju aðnjótandi að eignast börn eða barnabörn, notið þeirrar fullnægju að verða vitni að lífsins gangi. Það er lögmál þess að stefna til ljóss, framtíðar, friðar og fróðleiks.

En þó kann lífið að snúast gegn sjálfu sér eins og trúfræðingar liðinna alda hafa bent á. Í kristinni trú eru mannkindar illu öfl sögð komin frá Kölska eða Djöflinum. Því miður hefur hann verið á kreiki á liðnu ári eins og endranær.

Hið gengna ár hefur m.a. verið svið magnþrungins leikrits um yfirráðin yfir hugum manna, eigum þeirra, og baráttunni fyrir góðum siðum, lögum og reglum. Án þeirra tortímast öll samfélög.

Á árinu hefur stöðugt verið blásið lífi í stríðið gegn drengjum og karlmönnum, Ásmundur á kassanum skipaði sér eftirminnilega í sveit fjandmanna drengja. Veirustríðið stendur enn eins og stafræna stríðið. Valkyrjur Vesturlanda sýndu og sýna enn stuðning við hið viðbjóðslega stríð í Úkraínu, þar sem unglingspiltar eru skotnir í tætlur.

Allt eru þetta raunar orrustur í stríði hinna brjáluðu og auðugu gegn íbúum heimsins. Þessir stríðsmenn sækjast eftir allsherjar yfirráðum í veröldinni. Samnefnari þeirra er Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum).

Reglan hefur á snærum sínum stjórnmálamen og fjölmiðla, svo og vísindamenn og – stofnanir, sem framleiða hentugan „stórasannleik,“ sem beitt er í stríðinu um sálina, um hugarfarið. Við erum hrædd til hlýðni eins og „sannleikurinn“ um hamfarahlýnun og drepsóttir eru dæmi um.

En til allrar hamingju er til fólk, sem andmælir sviptingu frelsis til tjáningar, hugsunar og athafna, maldar í móinn. En eins og allir ættu að vita er við ofurefli að etja. Auðkýfingaúrvalið og stjórnvöld hafa mörg spil á hendi, bæði á for- og baksviði leikhússins. Það er miskunnarlaust reynt að þagga niður í þeim, sem andmælum hreyfa og taka ósvinnunni ekki með þegjandi þögninni.

Julian Assange er trúlega þekktastur andófsmanna. Andófs hans fólst í því að birta upplýsingar um glæpi bandarískra stjórnvalda. Þau sem og stjórnvöld annarra „lýðræðisríkja,“ hafa blygðunarlaust stungið slíkum upplýsingum undir stól. Almenningur, kjósendur, mega ekki af þeim vita.

En það er mörgu, sem haldið er leyndu fyrir sauðsvörtum almúganun eða hann hreinlega vill ekki hleypa inn í hugskotið, svo ógnvekjandi er það. Það hefur t.d. kostað mig innri átök að skoða í alvöru þau illvirki, sem þær, auðkýfingaúrval og skuggastjórnir, iðka að tjaldabaki. Þær stjórna okkur að miklu leyti.

Á síðastliðnu ári fjölgaði heiðvirðu fólki, sem eins og Julian, ljóstruðu upp um glæpsamlegt og siðlaust háttalag auðvaldsúrvalsins. Samtímis hefur fjölgað sviðsettum morðum á þeim. Það yrði of langt mál að gera þeim öllum skil hér. En blessuð sé minning þeirra.

Fréttamenn News Punch m.a. reyna að upplýsa okkur um nefndar skuggahliðar mannlífsins, þ.m.t. misþyrmingar og morð úrvalsins á börnum til djöfulsathafna, fórna og kynsvalls.

Uppljóstrarar þessir hafa hlotið skelfileg örlög, flestir ráðnir af dögum, skotnir eða hengdir – eða lent í flug- eða bílslysum. En líklega hefur enginn hlotið skelfilegri dauðdaga en leikarinn, Anne Heche, sem var um það bil að ljúka við kvikmynd um misþyrmingar úrvalsins á börnum. Misþyrmingar hafði hún mátt reyna á eigin skinni og sál.

Eftir sviðsett slys í bíl og bruna, var lýst yfir heiladauða Anne. Henni var troðið í líkpoka, sem hún barðist við að losna úr. Það tókst og hún reyndi að flýja (sbr. upptöku) böðla sína. En böndum var á hana komið. Líffæri Anne voru gefin til ígræðslu.

Þetta gæti vissulega - eins og kuldakastið á Íslandi um þessar mundir - verið Vladimir Pútin að kenna, en það mun fréttastofa RÚV væntanlega fjalla nánar um í fréttaannáli sínum.

Ég óska heilla og hamingju á nýju ári - í þeirri bjargföstu trú, að fólk flest sé fært um að gera greinarmun á réttu og röngu og taka afstöðu á grundvelli sannleiks og staðreynda, um það, sem mestu máli skiptir í farsælu samfélagi.

https://newspunch.com/autopsy-reveals-media-covered-up-anne-heche-murder-after-she-vowed-to-expose-pedophile-ring/ https://www.dailywire.com/news/anne-heche-was-working-on-sex-trafficking-film-before-death https://www.dailystar.co.uk/showbiz/anne-heches-never-seen-final-27730444 https://rumble.com/v2361de-we-are-defeating-the-new-world-order-2022-was-the-year-conspiracy-theories-.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband