Menningarbyltingin í Kína - kvenbyltingin

Ég geri mér ekki grein fyrir því, hvort menningarbylting Mao Zedong (1893-1976), allsherjarformanns í Kína, hafi orðið mér hvatning til að lesa „Kommúnistaávarpið,“ þar sem Þjóðverjarnir Karl Marx (1818-1883) og Friedrich Engels (1820-1895), hvöttu öreiga heimsins til að sameinast undir vígorðinu: „Öreigar allra landa sameinist.“ En hún varð mér ævarandi umhugsunarefni eins og Ávarpið.

Menningarbylting Mao Zedong (1893-1976) hét raunar „Hin mikla menningarbylting öreiganna.“ Áþekk bylting á sér nú stað á Vesturlöndum, kvenfrelsunarbyltingin, þar sem Íslendingar hafa tekið að sér leiðtogahlutverk. Og eru þegar orðnir heimsmeistarar í kvenfrelsun.

Neðanmáls er krækja á grein, sem skrifuð er af alþjóðastjórnmálafræðingnum Wenyuan Wu, framkvæmdastjóra „Jafnréttisfélags Kaliforníu“ (Californians for Equal Rights) afkomenda „rauðs varðliða“ eins og byltingarliðar Maós voru kallaðir. Rauðliði þessi tók m.a. þátt í því að sverta mannorð kennara sinna, sem síðar urðu tengdaforeldrar hans, amma og afi hennar, þ.e. greinarhöfundar.

Þegar ég komst betur til vits og ára fylgdist ég grannt með framvindu mála í Kína, m.a. með áskrift að nokkrum málgagna þeirra. Eitt þeirra hét „Kína á líðandi stundu“ (China To-Day). Annað: „Peking fréttayfirlitið (Peking Review). Þar var ósjaldan sagt frá glæpum hinna og þessara, m.a. menntamanna og kennara, sem kenndu ekki (nægilega vel) í anda ríkjandi hugmyndafræði, þ.e. hugmynda formannsins og aðal hugmyndafræðings Kínverja. Rauðliðarnir vitnuðu í „Rauða kverið.“ Þar gaf að lesa sannleikann.

„Afbrotamennirnir“ voru smáðir, misstu lífsviðurværi sitt, voru hnepptir í fangelsi og sendir í þrælkunarvinnu, myrtir. Fjöldaftökur og fjöldamorð voru algeng. Ágústmánuður 1966 er kallaður „rauði ágúst.“

Þetta fólk var dæmt af sams konar dómskerfi og nú hefur skotið rótum á Íslandi og á Vesturlöndum öllum, í stofnunum – ekki síst í æðri menntastofnunum - félögum og fyrirtækjum. Í umræðu liðandi stundar á Íslandi ber hæst hinn nýja kvenfrelsunarrannsóknarrétt í knattspyrnuhreyfingunni.

Höfundur greinarinnar víkur einmitt að hliðstæðu beggja byltinga. Hann segir m.a.:

„Það er ekki raunin, að Menningarbyltingin sé að ganga í endurnýjun lífdaganna. Ei heldur er hætta á nýjum, blóðugum ágústmánuði fjöldamorða. En Bandaríkjamenn ættu að slá varnagla við þeirri ógn, sem stafar af svipaðri, róttækri hugmyndafræði [og knúði byltinguna þá], sem og ákalli til háskólanema um að gerast aðgerðasinnar í nafni félagslegs misréttis, fjölbreytni, jafnstöðu, innlimunar (inclusion), andkynþáttahyggju, og annarra loftkenndra markmiða, menntun óviðkomandi. …

Eins og í Menningarbyltingunni er kaldhæðnin viðloðandi að því leyti, að fjölmenningarlegu öryggissvæðin í háskólunum hafa litla skírskotun til menningar eða fjölhyggju, heldur snúast þau um völd. …

Höfundur greinarinnar bendir á orð blaðamannsins, Richard Bernstein (f. 1944). „„Fólk með margs konar góðan ásetning hefur villst af leið virðingar fyrir margbreytileikanum og sokkið á hyldýpi kreddufullyrðinga, óskhyggju og sýndarvísindalegra yfirlýsinga um kynþátt og kyn.““

https://www.mindingthecampus.org/2021/10/04/maos-red-guards-and-americas-justice-warriors/?utm_source=NAS+Email+General&utm_campaign=59a773ec21-RSS_EMAIL_CAMPAIGN&utm_medium=email&utm_term=0_407924b2a9-59a773ec21-236730470&mc_cid=59a773ec21&mc_eid=3f29f8eb4a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband