Fyrir nákvæmlega hálfri öld síðan opnaði Erin Pizzey (f. 1939) í Lundúnum, Chiswick terrance, athvarf fyrir konur, sem orðið höfðu fyrir ofbeldi af hálfu maka. Athvarfið var rekið af hugsjón, af vanefnum. Erin þekkti ofbeldi af eigin raun. Móðir hennar var ofbeldismaður. Því kom henni ekki á óvart, að fjöldi þeirra kvenna, sem barðar voru af körlum sínum, væru sjálfar ofbeldismenn, þ.e. beittu líkamlegu ofbeldi.
Samtök kvenfrelsara sáu sér leik á borði til að færa sér í nyt þörf karla til að koma bágstöddum konum til hjálpar og bylgjuna til frelsunar kvenna, sem þá var að komast í algleyming. Þarna var aura von. Það skipti engum togum. Samtökin lögðu undir sig athvörf Eirin, sem þá voru orðin nokkur að tölu. Kenningum þeirra samkvæmt var ofbeldi kvenna úthýst, þaggað niður. Samtökin höfðu eignast mjólkurkú. Nytin er afbragð.
Við þekkjum framhaldið. Ofbeldi karla gegn konum varð að síþulu, eins konar möntru, sem brenglaði skynsemi almennings, fag- og stjórnmálamanna, sem kepptust við að klappa kvenfrelsunarhreyfingunum lof í lófa og ausa í þær fjármagni. Stofnun kvennaathvarfs var meira að segja beitt sem atvinnuskapandi úrræði ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á síðasta Herrans ári. Ríkisstjórninni þótti þó ekki ástæða til að styðja við stofnun karlaathvarfs.
Erin Pizzey var bolað út í horn, varð hornreka. Síðar neyddist hún til að flýja land sökum ofsókna kvenfrelsaranna. Hún var þó ekki alveg af baki dottin. Í útlegðinni hélt hún áfram að fræða um hina sönnu ásjónu heimilisofbeldis. Hún lifir nú í hárri elli og fátækt í Lundúnum.
Um áratugi hafa alvörurannsóknir (kvenfrelsunarrannsóknir frátaldar) sýnt svipaða mynd af ofbeldi á heimilum og Erin reyndi að bregða birtu á. En kvenfrelsarar og stjórnmálamenn almennt skella skollaeyrum við þeirri þekkingu. Líka á Íslandi. T.d. hefur Katrín forsætisráðherra stundum látið hafa eftir sér, að í þjóðmálum skuli taka tillit til vísindalegra rannsókna. En það gerir hún og hennar sálufélagar bara, þegar þeim hentar.
Í þeirri kosningaumræðu, sem nú stendur yfir, ber málefnið ekki á góma, nema að sjálfsögðu hjá Katrínu, sem lætur ekki deigan síga við að kynna meinlokur sínar um kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni og svo framvegis. En vel gæti verið, að fólk annars staðar en á Íslandi sé að vakna til vitundar.
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku hefur verið stofnað Bandalag til höfuðs heimilisofbeldi, (Coalition to End Domestic Violence). Bandlagið sendi frá sér sérstaka skýrslu nýverið, Hálfsannleik, falsanir og lygar um heimilisofbeldi í þrjátíu ár (Thirty-Years of Domestic Violence Half-Truths, Falsehoods, and Lies). (Sjá: endtodv.org.) Þar er m.a. fjallað um nýjustu fjáröflunarherferðina, sem RÚV þreytist seint á að auglýsa, þ.e. aukið ofbeldi karla gegn konum í kófinu.
Í Ástralíu standa vonir til, nú þegar Þjóðarátak til að andæfa ofbeldi gegn konum og börnum þeirra (National Plan to Reduce Violence against Women and their Children) rennur sitt skeið á enda innan skamms, að unnt verði að spyrna gegn kvenfrelsunarofbeldishugmyndafræðinni í framhaldinu. Þetta mikla átak að mestu fjárveitingar til kvenfrelsunarstofnanna mun kosta þrjá milljarða dala.
En þrátt fyrir, að gælt sé við slíkar hugmyndir í skýrslum frá ástralska þinginu, er við ramman reip að draga. Kvenfrelsarar vilja nauðugir missa spón úr aski sínum. Velta jafnréttis- og ofbeldisiðnaðarins er gífurleg og völd þeirra, bein og óbein, eru blátt áfram ógnvænleg, hvor heldur er á heimavelli eða alþjóðlegum vettvangi.
Ein umræddra stofnana í þvísa landi, er Þjóðarrannsóknarstofnunin til rannsókna á öryggi kvenna (National Research Organisation for Womens Safety). Hún mun vafalítið hanga á skattpeningum eins og hundur á roði.
Pistillinn er saminn við innblástur frá Bettina Arndt. Sjá nýjasta fréttabréf hennar, Hálfrar aldar lygar um heimilisofbeldi. Aurakú kvenfrelsaranna afhjúpuð (Fifty years of lies about domestic violence. Exposing the feminist cash cow).
https://bettinaarndt.substack.com/p/fifty-years-of-lies-about-domestic?token=eyJ1c2VyX2lkIjo0Njk0NzAxNCwicG9zdF9pZCI6NDE2Mjk5ODAsIl8iOiJvVEw4TCIsImlhdCI6MTYzMjQxNzQ0NSwiZXhwIjoxNjMyNDIxMDQ1LCJpc3MiOiJwdWItNDQ4MjYzIiwic3ViIjoicG9zdC1yZWFjdGlvbiJ9.CM2ROfbJRu0rQy9w7ojkdCIUSCMhGY7J7aa0K0CYrT4
Nýjustu færslur
- Síonistabyltingin og gjöfulir Gyðingar. Byltingargyðingaprest...
- Baráttan fyrir betri heimi á nítjándu öldinni. Jafnaðar- og b...
- Baráttan fyrir betri heimi á nítjándu öldinni. Jafnaðar- og b...
- Gáttir Helvítis munu yður opnast. Stríðsyfirlýsing Ísraels og...
- Uppreisn í Ísrael og friðarhöfðinginn í Hvíta húsinu
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- Selenskí kallar eftir auknum þrýstingi á Rússland
- Fundust á lífi í rústunum eftir 60 klukkustundir
- Léku golf og ræddu viðskipti með ísbrjóta
- Ítrekar áhuga sinn á þriðja kjörtímabilinu
- Hann er blaðamaður, ekkert annað
- Skjálfti af stærðinni 7 við Tonga
- Trump: Rekur ekki fólk vegna falsfrétta eða nornaveiða
- Skotum hleypt af í unglingapartíi
- Tala látinna hækkar
- Harry prins sakaður um áreitni og einelti