Færsluflokkur: Bloggar
Konur ákæra karla stöðugt um kynferðislegan dólgshátt í sinn garð. Það kemur hver flóðbylgjan á fætur annarri. RÚV kallar fyrirbærið byltingu.
Forsætisráðherra vor, Katrín Jakobsdóttir, sem lýsir sér sem svolítilli frenju og ríkisstjórnin öll hafði þungar áhyggjur af slíku hátterni karlmanna. Það varð að stefnu stjórnarinnar að uppræta holskeflu kynbundins ofbeldis, þ.e. ofbeldi karla gegn konum, kynferðislega áreitni og alls konar ótilhlýðilega kynhegðun. (Ég hef þó hvergi séð, hvernig löggjafinn aðgreinir kynbundið ofbeldi (gender based) og kynferðislega áreitni (sexual harassment.)
Hin dugmikla Katrín lét nú hendur standa fram úr ermum og fól jafnréttisráðgjafa sínum, Höllu Gunnarsdóttur (sem víða skýtur upp kollinum, nú hjá þjáningasystur sinni, Drífu Snædal hjá ASÍ), að stýra úrbótahópi, enda þótt Vinnueftirlitið sinni málum, þar sem áreitni, ofbeldi og einelti koma við sögu. Betur mætti, ef duga skyldi. Í skýrslunni stendur (krækja neðanmáls):
Í skipunarbréfi stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi er farið þess á leit að hópurinn geri tillögu um samræmd viðbrögð stjórnvalda við #metoo bylgjunni, bæði að því er lýtur að samfélaginu í heild og að Stjórnarráðinu og stofnunum þess sem vinnuveitenda.
Eins og jafnan er, þegar slík mál skal brjóta til mergjar, eru konur (iðulega kvenfrelsarar) fremur en karlar fengnar til verksins:
Stýrihópurinn var skipaður 20. febrúar 2018. Hann skipa frá ráðuneytunum: Halla Gunnarsdóttir, Svala Ísfeld Ólafsdóttir, Rósa Guðrún Erlingsdóttir, Sveinn Magnússon, Jóna Pálsdóttir, og Axel Nikulásson.
Starfsmaður hópsins var Fanney Karlsdóttir. Sérstakir ráðgjafar voru: Í umfjöllun um aðgerðir í kjölfar #metoo fékk stýrihópurinn eftirtalda aðila á sinn fund: Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og Einar Gylfa Jónsson frá sálfræðistofunni Líf og sál; Guðnýju Elísabetu Ingadóttur, mannauðsstjóra samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins; Hugrúnu Hjaltadóttur, sérfræðing hjá Jafnréttisstofu, sem jafnframt hefur umsjón með reglubundnum fundum jafnréttisfulltrúa ráðuneytanna; og Söru Lind Guðbergsdóttur, lögfræðing hjá kjara- og mannauðssýslu. Kynjaskipting er því þannig: átta konur og þrír karlar.
Aðferðin fólst einnig í spjalli við lykilpersónur í ráðuneytunum. Fundirnir voru með óformlegu sniði. Skýrt var tekið fram að ekki yrði vitnað til einstaka samtala eða til málefna einstaka ráðuneyta, heldur væri markmiðið að varpa ljósi á starfsmenningu innan Stjórnarráðsins og hvort og þá hvað megi betur fara til að uppræta þá menningu sem kann að leyfa kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi að viðgangast.
Enda þótt varfærnislega sé til orða tekið, dylst varla nokkrum, að hópurinn sé á höttum eftir karlakynofbeldismenningunni, en tilvist hennar er sjálf réttlæting verkefnis hópsins. En lesandi er þó ekki upplýstur um, hvað í þessari menningu sé fólgið.
Vísbending er þó gefin: Á heildina litið er óþarflega tilviljanakennt hvernig staðið er að fræðslu og forvörnum sem er sérstaklega beint að því að uppræta þá samfélaglegu menningu sem ýtir undir eða leyfir kynferðislegri og kynbundinni áreitni að viðgangast.
Eftir spjall sitt kemst hópurinn að ánægjulegri niðurstöðu, eftir atvikum, það er að segja: Kynferðisleg áreitni virðist frekar óalgeng en aðeins 1,4% segjast hafa orðið fyrir slíkri framkomu. Þá er í engu kannað, hvaða skilning gerandinn kynni að hafa. Ei heldur er gerð grein fyrir því, hvaðan þetta hlutfall sé komið og hvernig. Frekar óalgeng er skrítið orðalag, þegar um er að ræða 1.4%. Afar sjaldgæft hæfði betur.
Hópurinn virðist hafa orðið fyrir vonbrigðum, því enn er róið: Hlutfallið eykst lítillega þegar spurt er um hegðun sem telja megi til áreitni, s.s. um óumbeðna snertingu eða kynferðislegar athugasemdir Og hvaða hegðun ætli það sé?
Þetta getur t.d. átt við um menn [les: karlmenn] sem hegða sér ósæmilega á starfsmannaskemmtunum og nefnd voru dæmi um að konur forðist starfsmannaskemmtanir vegna hegðunar eins eða tveggja einstaklinga. Dæmi er um formann (eldri karl) sem kallaði starfsmann (yngri konu) alltaf elskan og talaði niður til hennar.
Að þessu sögðu er ljóst að vanda [þurfi] sérstaklega til verka þegar valdamisræmi er milli geranda og þolanda, s.s. sökum stöðu, kyns, sérfræðiþekkingar, lífaldurs eða starfsaldurs. Hjá Stjórnarráðinu eru konur í talsverðum meirihluta.
Það er sem sé um að ræða 1.4% kvenna, sem finnst sér misboðið. Þetta réttlætir þrátt fyrir jafnréttis- og öryggisfulltrúa í sérhverju ráðuneyti, allsherjar Vinnueftirlit, löggæslu og dómstóla margþættar aðgerðir:
Skipað verði óháð fagráð, sem hefur það hlutverk að taka við, meta og fara með tilkynningar og ábendingar sem því berast um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi.
Samhliða er því beint til ráðuneytisstjóra að tryggja að fram fari áhættumat á félagslegum og andlegum þáttum í vinnuumhverfinu og [l]agt er til að Stjórnarráðsdagurinn árið 2019 verði helgaður #metoo ...
Enn er ekki nóg að gert: í samvinnu við stýrihópinn og jafnréttisfulltrúa Stjórnarráðsins, að [t]aka saman upplýsingar um fræðslu sem miðar að því að byggja upp vinnustaðamenningu jafnréttis og vinna gegn kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi.
Fræða skal starfsmenn með margvíslegum hætti, m.a. sé stefnt að því nýta vettvang Stjórnarráðsskólans fyrir frekari fræðslu þvert á ráðuneyti. Mikilvægt er að fræðslan sé með sterka samfélagslega skírskotun en einblíni ekki um of á lagalega nálgun eða málsmeðferð. tryggja að ný kynslóð starfsmanna Stjórnarráðsins stuðli að bættri menningu og starfsanda.
Athyglisvert! Hér er sterklega ýjað að því, að aðferð me-too hreyfingarinnar skuli í heiðri höfð.
Ofbeldismálin eru greinilega jafnréttismál: Grænu skrefin í ríkisrekstri hafa reynst árangursrík leið til að efla vistvænan rekstur hjá opinberum stofnunum. Lagt er til að Jafnréttisstofu verði falið að kanna fýsileika þess að útbúa sambærilegt ferli á sviði jafnréttismála.
Þegar jafnréttislög voru samþykkt á Alþingi (nr. 10) 2008, voru þegar í gildi lög um jafnan rétt allra fyrir lögum og meira að segja eldgömul lög, Búalög, sem kváðu á um jöfn laun karla og kvenna fyrir sömu vinnu. Það fer varla á milli mála, að svokölluð jafnréttislög voru sérsamin til; 1) að þjóna hugmyndafræði kvenfrelsunarhreyfinganna með það fyrir augum að berjast hvarvetna og almennt gegn hinu margumrædda feðraveldi, þ.e. að heyja heilagt stríð gegn körlum; 2) að tryggja rétt kvenna til sömu launa og karlar fá, án tillits til menntunar, ábyrgðar, reynslu og vinnutíma; 3) að tryggja svipað hlutfall kynjanna (þá voru þau reyndar tvö), þegar það var talið í þágu valdeflingar kvenna; 4) að leggja lagalegan grundvöll að atlögu að kynjakerfinu (sundurgreiningu fólks í karla og konur) og ofsóknum á hendur körlum, sem myndbirtast einmitt í me-too.
Ný jafnréttislög hafa nú tekið gildi. Hér er fróðleg samantekt eftir Arnfríði Aðalsteinsdóttur hjá Jafnréttisstofu, Til hamingju með ný jafnréttisslög, þ.e. Lög um jafna stöðu kynjanna (150/2020) og Lög um stjórnsýslu jafnréttismála (151/2020).
Helsta breytingin felst í því að ekki er lengur talað um tvö kyn, karl og konu, heldur er nú með kyni einnig átt við fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Þetta er í samræmi við lög nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræði sem heimila einstaklingum að skilgreina kyn sitt sjálfir.
Fyrirtæki skulu semja sér jafnréttisáætlun, þar sem m.a. skal kveða á um baráttu gegn kynbundu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni. Nú er sem sé áreitni aðgreind í kynbundna og kynferðislega. Enn er aukið við orðasúpuna í þessu efni frá fyrri lögum.
Jafnréttisstofa er stóra systir: Jafnréttisstofa vinnur gegn kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni [og] neikvæðum kynjaímyndum og neikvæðum staðalímyndum um hlutverk kvenna og karla sem og neikvæðum staðalímyndum byggðum á kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu. Fólk velkist varla í vafa um, hvað sé neikvætt í þessu sambandi.
Jafnréttisstofa öðlast einnig aukin völd til eftirlits og rétt til að beita viðurlögum, sektum: Bregðist viðkomandi ekki við þrátt fyrir ábendingar um úrbætur og ítrekanir hefur Jafnréttisstofa heimild til að beita dagsektum sbr. 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála. Það sama á við ef fyrirtæki eða stofnanir sinna ekki jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu.
Svona eru skrifræðisbákn búin til. Hvergi hef ég séð útreikninga á því, hvað þetta bákn kostar skattgreiðendur og atvinnulífið og hversu mikilli hæfni er kastað á glæ í stjórnsýslunni.
https://kjarninn.overcastcdn.com/documents/Skyrsla_um_a%C3%B0ger%C3%B0ir_v._metoo_innan_stjornarra%C3%B0sins.pdf
Árið 2014 skýrði BBC frá sérstökum málaferlum. Lögfræðingar ákærðu áfengissjúka móður stúlkubarns og kröfðust bóta fyrir heilaskaðann, sem móðirin olli dótturinni í móðurkviði. Dómarinn sýknaði móðurina með þeim rökum, að til að unnt væri að skilgreina glæp, þyrfti að eiga sér stað íþynging við alvarlegan skaða á einstaklingi alvarlegur skaði á fóstri ætti þar ekki við.
Kvenfrelsunarfrömuðurnir, Rebecca Schiller og Ann Marie (Bradley) Furedi (f. 1960), töldu dóminn viðbrigðamikilvægan fyrir frelsi mæðra. Sú síðarnefnda sagði m.a.: Uppkvaðning dómsins er mikilvægur fyrir konur hvarvetna. Æðstu dómstólar í Sameinaða konungsríkinu (UK) hafa viðurkennt rétt kvenna til að ákvarða sjálfar um þungun sína. Rebecca þessi er meðstofnandi Fæðingarréttar (Birthright), félagsskapar, sem berst fyrir mannréttindum við fæðingar. Ann Furedi var aðalframkvæmdastjóri hinnar Bresku ráðgjafarþjónustu við meðgöngu (British Pregnancy Advisory Service)
Móðurkviðurinn er hvergi nærri sæluveröld öllum fóstrum. Samkvæmt nýlegri skýrslu frá Landlæknisembætti Bandaríkja Norður-Ameríku (BNA), þar sem dregnar eru saman helstu staðreyndir um reykingar mæðra á meðgöngu, þ.e. um fjórðungs mæðra, geta reykingar haft skaðvænlegar afleiðingar fyrir fóstrið eða barnið. T.d. óeðlilegan vefjaþroska við fæðingu (lága fæðingarþyngd) og alvarlega fæðingargalla. Embættið bendir einnig á, að reykingar mæðra verði um eitt þúsund reifabörnum í BNA að fjörlesti árlega. Þar af eru um fjörutíu af hundraði dauðsfalla flokkuð sem vöggudauði eða heilkenni skyndilegs andláts hvítvoðungs (sudden infant death syndrome). Þar að auki er sérstök hætta á fósturláti, ótímabærri fæðingu, fæðingu andvana barns og höfuðsmæð.
Um sjö þúsund börn í BNA fæðast með skarð í vör (oral cleft) eða holgóm (cleft palate), sem rakið er til reykinga mæðra þeirra. Hvort tveggja kann að hafa í för með sér erfiðleika með inntöku fæðu, eyrnabólgu, heyrnarskerðingu, talörðugleika og tannvanda.
Óhóflega neysla lyfseðilsskyldra lyfja, þ.e. löglegra efna, þar með talin þunglyndislyf, er einnig þekkt fósturmeiðandi hegðun mæðra. Hún er svo algeng, að í BNA er stundum talað um þjóðarheilbrigðisvanda og ekki að ósekju. Á þriðja tug þúsunda nýbura þjást af þessari fíkn mæðra sinna, þ.e. þjást af því, sem kallað er heilkenni fráhvarfseinkenna nýbura (neonatal abstinence syndrome neonatal withdrawal syndrome). Þessi fjöldi samsvarar því, að um tvö börn á hverri klukkustundu hljóti slík örlög. Einstök einkenni geta verið m.a.: vandræði með svefn og andardrátt, niðurgangur, uppsölur, aukinn hjartsláttur, skerandi grátur, skjálfti og skert fæðuinntaka.
Það kveður svo rammt að þessu, að fjöldi krílanna fjórfaldaðist á árabilinu 2004 til 2013, sem endurspeglaðist í sjöföldun innlagna á bráðadeildir fyrir nýbura.
Neysla ólöglegra fíkniefna (drug abuse) er býsna algeng. Í BNA segjast samkvæmt Lyfjastofnun í þvísa landi (National Institute on Drug Abuse) - tæpar tuttugu milljónir kvenna eða rúm fimmtán af hundraði, hafa neytt fíkniefna síðasta árið. Sú tala felur reyndar einnig í sér misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja. Sá hópur kvenna er talinn um átta og hálf milljón eða 6.6 af hundraði kvenna. Þetta á við um konur, átján ára og eldri, ári áður en rannsóknirnar voru gerðar. Á árabilinu 1999 til 2014 fjórfaldaðist fjöldi fæðandi fíkniefnamæðra (opioid use disorder).
Stofnunin minnir á, að [f]lest lyfja, þar með talin ópíöt [deyfandi og kvalastillandi lyf] og örvunarlyf (stimulants), geti haft skaðleg áhrif á hið ófædda barn. Neysla nokkurra efna getur aukið líkur á fósturláti og geta valdið heilakveisu (migraine - mígreni), krömpum og háum blóðþrýstingi móður, sem geta haft áhrif á fóstur hennar.
Einnig bendir stofnunin á, að áhætta á andláti barns við fæðingu sé tvisvar til þrisvar sinnum meiri hjá mæðrum, sem reykja tóbak eða hamp (marijuana), taka verkjalyf eða neyta ólöglegra lyfja, meðan á meðgöngu stendur.
Óhófleg áfengisneysla móður er skeinuhætt fóstri, barni, hennar og getur leitt til skelfilegra afleiðinga fyrir afkvæmið; áfengiseitrunarheilkenni fósturs (foetal alcohol syndrome fetal alcoholic syndrome foetal alcohol spectrum disorder), sem tekur til margvíslegra þroskaskerðinga. Tæp fimm af hundraði mæðra í BNA eru greindar með áfengissýki. Kannanir úr álfu þeirri sýna, að um tíu af hundrað mæðra drukku áfengi í þeim mánuði, sem könnun var gerð, en hins vegar höfðu tuttugu til þrjátíu af hundraði drukkið á meðgöngu.
Í BNA fæðast árlega fimm til tólf þúsund börn vegna áfengiseitrunar í móðurkviði. Dæmigerð einkenni: Afbrigðilegir drættir í andliti, lítið höfuð, hamlaður vöxtur, ónóg þyngd, skert samhæfing hreyfinga, ofvirkni, athyglibrestur, minnisleysi, námsörðugleikar, skertur málþroski, greindarskerðing, dómgreindarskortur, svefnvandamál, brengluð sogþörf, skert sjón eða heyrn, brenglun í starfsemi hjarta, nýrna eða beina.
Til viðbótar þeim fóstrum, sem týna lífinu í móðurkviði, er um níu hundruð þúsund fóstrum eytt í BNA árlega.
(Greinin birtist í Morgunblaðinu 20.september 2021.)
Eins og landsins börnum mun kunnugt, samþykkti Alþingi Íslendinga lög um kynrænt sjálfræði (nr. 80/2019). Þau voru samkvæmt upplýsingum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, aðalhvatamanns þeirra, samin af forkonu kynskiptingafélagsins í ríkinu (Trans Ísland), Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur, kynjafræðingi, og heilbrigðismálaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, íslenskufræðingi. Hvorar tveggju eru svarnir kynfrelsarar og berjast fyrir samstöðu kvenfrelsunar- og kynskiptakvenfrelsunarhreyfinga (transfeminism).
Allir þekkja kvenbyltingarhugsun og störf Svandísar. Hina merku Uglu Stefaníu þekkja líklega færri, þrátt fyrir, að hún sé ein voldugasta kona heims. Hún var þátttakandi í ráðstefnu á vegum Kvenréttindafélags Ísland um efnið. Í inngangi kom m.a. fram, að í sögulegu ljósi séð, hafi á Íslandi um langt skeið ríkt samhugur kvenréttindahreyfingar og baráttusamtaka lesbía, homma, tvíkynunga, kynskiptinga og hinsegin fólks (LHTKH eða LGBTQ, þ.e. lesbian, gay, bisexual, trans, queer).
En þar segir Ugla Stefanía (mín snörun): Ég berst af sjónarhóli kvenfrelsunar. Þess vegna fór ég í mastersnám í kynjafræðum (gender studies) t.d. Hugur minn stóð til þess að finna persónulegri reynslu og aðgerðum einnig stoð í æðri fræðimennsku og [samtímis] víkka út sjóndeildarhringinn.
Ugla Stefanía upplýsti, að hún hefði unnið á vegum kvenfrelsunarhreyfinga eins og Stígamóta og baráttuhreyfinga LHTKH. Hún heldur áfram: Það hefur ævinlega verið augljóst, að barátta kvenfrelsara og baráttumanna fyrir réttindum LHTKH ætti samleið, því við háum stríð gegn sömu hugmyndunum, sama kúgunarkerfinu, feðraveldinu, kynjatvískautun.
Það á við um Uglu Stefaníu eins og marga sams konar baráttumenn, að þeim er meinilla við málfrelsi, og er tamt að líta á annars konar skoðanir sem hatursplæp.
Í ljósi þessa er auðskilin samvinna Katrínar, Svandísar og Uglu Stefaníu. Allar berjast þær fyrir kven- eða hvorugkynsveldinu. Alþingismenn fljóta sofandi að feigðarósi og láta kyneymdarhugmyndafræðingana teyma sig eins og leikskólabörn í bandi.
Norður-ameríski lögfræðingurinn, Catharine MacKinnon (f. 1946) er einn meginhugmyndafræðinga VG og Katrínar. í ritgerðinni: Kvenfrelsun, Marxhyggja, aðferð og ríkið. Drög að kenningu (Feminism, Marxism, Method, and the State: An Agenda for Theory), líkir hún stéttarlegu arðráni og kúgun við kynstéttarkúgun, og þar með skilgreiningu konunnar. Catarine segir m.a.:
Gagnkynhneigð er fyrirkomulag [kúgunarinnar], kynferði og fjölskyldan er hið storknaða mót; kynhlutverk endurspegla það í hugarfari þegnanna (social persona); æxlun er afleiðing þess og drottnum ær þess og kýr. [Fylgismenn Marx og kvenfrelsunar] eru hvorir um sig á einu máli um, að aðalviðfangsefni stjórnmálanna séu tengsl, þar sem [annars vegar] margir vinna og fáir njóta góðs af og [hins vegar] þar sem fáir serða og margir eru sorðnir.
Fleiri hugmyndafræðingar kven- og kynfrelsunar leggja orð í belg:
Breski heimspekingurinn, Janet Radcliffe Richards (f. 1944): Kvenfrelsun er róttæk eðli sínu samkvæmt ... við berum okkur fyrst of fremst illa undan stofnunum ... Sé litið um öxl er það engum vafa undirorpið, að samfélagsgerðin var til þess ætluð að tryggja körlum fullkomið vald yfir konum.
Norður-ameríski taugafræðingurinn, Ruth Harriet Bleier (1923-1988): Í ímyndunarsamfélagi, án gilda eða þvingunar í sambandi við kynlíf, myndi fólk væntanlega fullnægja þörf fyrir kynlíf, nánd, vináttu, ást og hlýju með alls konar þeim hætti, sem ekki væri undir áhrifum eðlisbundins kynferðis. ... Sérstaklega eru það stofnanir og hugmyndafræði gagnkynhneigðarinnar (þ.e. gagnkynhneigðarfólskan (heterosexism)), sem umfram önnur [samfélags]öfl viðhalda undirokun kvenna í félagslegu, efnahagslegu og stjórnmálalegu tilliti.
Norður-ameríski stjórnmálafræðingurinn, Rosalind Pollack Petchesky (f. 1942): Þar eð kynskipting ríkir í sambandi við meðgöngu barna, sem [þar með] skilgreinir stöðu kvenna, gætu stjórnvaldsaðgerðir með áherslu á efnaleg hlunnindi og þjónustu í því skyni að stuðla að barneignum, létt móðurbyrðina. En [slík aðstoð] gæti viðhaldið gildandi kynskiptingu vinnunnar og kúgunar kvenna. ... Umhverfing ríkjandi æxlunarfyrirkomulags í anda kvenfrelsunar og jafnaðarstefnu fæli í sér ... nýja tegund tengsla . ... Við krefjumst gjörtækra breytinga.
Umrædd lög eru einmitt liður í þessum gjörtæku breytingum, sem Rosalind boðar. Í hnotskurn segja þau, að kynin séu að minnsta kosti tvö. Þó hefur Katrín enn þá ekki svarað fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um fjölda þeirra. En hvernig sem því víkur við er talið, að nýfætt barn sé hvorki kven- né karlkyns í sjálfu sér, heldur sé því úthlutað kyni.
Renni upp fyrir barni eða forráðamönnum þess, að því hafi verið úthlutað röngu kyni, má því sem hægast breyta. Breytingin getur hafist snemma á unglingsaldri með inntöku viðeigandi kynvaka (kynhórmóna). (Forseti Bandaríkja Norður-Ameríku, Joseph Biden, nefnir t.d. tíu ára aldur.) Lokahnykkurinn er kynleiðrétting.
Án tillits til nýúthlutunar kyns, sem á sér stað á Barna- og unglingageðdeild Landsspítalans, getur hver og einn valið að skrá kyn sitt hlutlaust, þ.e. hvorugkyns. Nöfn getur fólk aukin heldur valið að vild, án tillits til þess kyns, sem því er úthlutað.
Katrín Jakobsdóttir og VG, sem barist hafa fyrir lögleiðingu nýrra kynja, leiða oss enn frekar inn á vettvang kynleysunnar í frumvarpinu neðan máls. Þessi leiðangur er kvenfrelsurum sumum hverra málfarsleg raun, því lög kveða á um jafnrétti karla og kvenna eins og ráðgjafahópurinn bendir á. Hvorugkynið skapar vandræði:
Í þessu sambandi er vert að benda á að ýmis ákvæði laga sem fjalla um kynjajafnrétti miða að því að jafna þátttökumöguleika og áhrif karla og kvenna í samfélaginu og byggjast á því að fjöldi hvors kyns á hverjum tíma sé svipaður. Dæmi um þetta eru ákvæði sem kveða á um lágmarkshlutfall karla og kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum. Slíkar reglur geta eðli máls samkvæmt tæpast tekið fullum fetum til einstaklinga með hlutlausa skráningu kyns enda er sá hópur mun minni en hinir tveir. Kynsegin kjósendur eru fjörutíu að tölu, svo ályktun hins þverráðuneytislega ráðgjafahóps er óneitanlega skarpleg.
Eftir því sem kynhvarfinu vindur fram, þ.e. að aukinn fjöldi karla kvengervist til hvorugkyns (þar sem kvengildi eru í heiðri höfð), liggur við borð, að þríkynjajafnrétti náist ekki, fyrr en hvorugkynið í ýmsum tilbrigðum er komið á par við hin fornu kyn, karl- og kvenkyn. Í stjórnun fyrirtækja t.d. yrðu að sitja 33.3% hvorugkyns, 33.3% kvenkyns og 33.3% karlkyns. Unnið er að því að útbúa sérstaka aðstöðu hjá hinu opinbera fyrir hvorugkynið, svo að manneskjuréttindi og kynréttindi verði tryggð.
Svo kemur að því, að þeir, sem þriðja kynið eða hvorugkynið skipa, aðgreinist í fleiri undirhópa samkvæmt nánari sjálfsskilgreiningu hvers og eins. Það mun vafalítið verða erfitt hlutskipti að taka að sér starf í Kynúthlutunarstofnun Íslands. Í hinum nýjum lögum um kynrænt sjálfræði er nefnilega talað um úthlutun kynferðis eins og drepið var á. Á grundvelli hennar verður vafalaust reist skrifræðisbákn eitt mikið í líkingu við jafnréttisbáknið.
Lausnarorð löggjafa og stjórnsýslu kemur frá Danmörku, manneskja (menneske) sem íslenskukennari minn kallaði mannsveskju. Nú verða feður, mæður, börn, eiginkarlar og -konur, að manneskjum eða jafnvel að enn skrítnari eskjum. Það verður svipaður öfugsnúningur með manneskjuna og skurðina í löndum bænda. Fyrst voru þeir grafnir (á kostnað skattgreinenda að mestu), en nú skal ofan í þá mokað (aftur á kostnað skattgreiðenda). Í skólakerfinu var mikilli atorku beitt til að útrýma mannsveskjunni, á sínum tíma. Nú bjargar hún löggjafanum undan tvískautunarkynfárinu (eðlislægu kven- og karlkyni) í jafnréttislögunum svona hér um bil.
Nokkur dæmi: Í stað orðanna faðerni eða móðerni kemur: foreldrastöðu manneskju gagnvart barni.
Við ... bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama á við ef barn, sem gift manneskja sem breytt hefur skráningu kyns hefur alið en getið er utan hjónabands, hefur verið tilkynnt sem hjónabandsbarn með samþykki maka.
Í stað orðanna móðir deyðir barn sitt kemur: manneskja sem elur barn deyðir það.
Í stað orðsins móður þungaðrar manneskju; og í stað orðsins móður hinnar þunguðu.
Pari í hjúskap eða skráðri sambúð er heimilt að gefa hvort öðru kynfrumur. Það hélt ég reyndar hafi átt við síðan á tímum homo ramidus (Ardipithecus ramidus). Svo það er svei mér ekki seinna vænna að lögfesta það við Austurvöll.
Samtímis upprætingu hinna fornu kynja er unnið að námsefni fyrir skóla landsins í boði ríkisstjórnar og skattgreiðenda. Nýlega skilaði skýrslu nefnd Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra Framsóknarflokksins, sem ég hvet fólk til að lesa. Nefndin var í raun skipuð ellefu konum og einum pilti.
Konurnar í nefndinni leggja til grundvallar sömu kynhugmyndafræði og höfundar umræddra laga. (Það er gerð stuttleg grein fyrir skýrslunni í greininni: Kynliljur Lilju. Kynheilbrigði og ofbeldisvarnir í grunn- og framhaldsskólum. Af þvingaðri gagnkynhneigð og gagnkynhneigðarhyggju á: arnarsverrisson.is og arnarsverrisson.blog.is.)
https://www.althingi.is/altext/151/s/0021.html?fbclid=IwAR29co8KjA51k7CG0f0fPOUV6qSe_PAoso4JFknXmAc0_oWqWyd6KfajRJI
Bloggar | 18.9.2021 | 21:06 (breytt kl. 21:07) | Slóð | Facebook
Peter Gregory Boghossian (f. 1966) er norður-amerískur heimspekingur, lektor við Portland State háskólann, þar sem hann kenndi í áratug. Árið 2017 stofnað hann, ásamt Helen Pluckrose, sagnfræðingi, og James A. Lindsay, stærðfræðingi, þríeyki til höfuðs vondri fræðimennsku.
Þeim var eins og mér farið að ofbjóða vísindaleg lágkúra í samfélags- og hugvísindum sérstaklega. Þau segja: Eitthvað hefur farið úrskeiðis í háskólunum sérstaklega á vissum sviðum hugvísinda. Fræðimennska, þar sem umfjöllun um félagsleg harmkvæli (social grievances) er mikilvægari en leit að sannleikanum, hefur grafið um sig. Hún er jafnvel allsráðandi á þessum vettvangi og hlutaðeigandi fræðimenn veitast að nemendum, stjórnendum og öðrum deildum, til að draga eigin veraldarsýn yfir höfuð þeim. Þessi heimssýn er hvorki vísindaleg né vönduð.
Þríeykið settist niður og skrifaði um tvo tugi fræðigreina á sviði menningar og vitundar (t.d. kynjafræða) og einnig svonefndrar rýnikenningar (critical theory). Sú kenning fékk byr undir báða vængi um tveim áratugum eftir lok síðustu heimsstyrjaldar eða um það leyti, sem stúdentaóeirðirnar stóðu sem hæst. Dæmi:
Peter og James skrifuðu greinina, Hugtakið reður sem félagssmíði. (The Conceptual Penis as a Social Construct). Höfundar segja m.a.: Hvað karlmennsku snertir er fyðillinn ruglingsleg smíði. Við færum rök fyrir því, að reðurhugtakið megi betur skilja í ljósi kynlifunar (performativity) sem afar sveigjanlega félagssmíði (social construct), fremur en líffæri. Greinin birtist í Cogent Social Sciences.
Ásamt Helen Pluckrose skrifuðu þeir félagar greinina Viðbrögð manna við nauðgunarmenningu og hinseginlifnaði í hundagörðum í borginni, Portland, Oregon (Human Reactions to Rape Culture and Queer Performativity at Urban Dog Parks in Portland, Oregon) í kvenfrelsunartímaritið, Gender, Place and Culture. A Journal of Feminist Geography. Í greininni halda höfundar því fram m.a., að kynlíf hunda varpi ljósi á nauðgunarmenningu þá meðal manna, sem karlmenn hafa stofnað til, og sé eitt helsta greiningarverkfæri í fræðimennsku kvenfrelsaranna.
Þriðja greinin, Okkar barátta er mín barátta (Our Struggle is My Struggle) birtist í kvenfrelsunartímaritinu, Affilia: Journal of Women and Social Work Affilia. Greinin er samsuða úr bókinni Baráttu minni, (Mein Kampf) eftir Adolf Hitler og stæling á orðavaðli kvenfrelsaranna um félagslegt réttlæti og kúgun kvenna. Greinin gengur nú undir nafninu, Kvenfrelsunar Mein Kampf.
Umsagnir um greinarnar voru almennt jákvæðar; gefandi og spennandi framlag til skoðunar ... á skörun endaþarmshneigðar og karlmennsku, frábært og [orð] í tíma töluð, og mikilvæg samræða félagsráðgjafa og kvenfrelsunarfræðimanna. Að sögn höfunda lögðu ritrýnendur oft og tíðum til enn þá fáránlegri texta, en þeir höfðu sjálfir samið.
Birting greinanna varð til þess, að háskólinn ýtti úr vör rannsókn á rannsóknum Peters. Hann ku hafa brotið siðareglur um rannsóknir. Nú er svo komið, að honum þótti ekki vært í starfi lengur og sagði því lausu 11. sept 2021. Bréfið er hjálagt. Hér er stiklað á stóru og þýddar nokkrar glefsur:
Það hvarflaði aldreii að mér ei heldur nú að tilgangur kennslu minnar væri sá að beina nemendum í farveg tiltekinnar niðurstöðu. Ég leitaðist fremur við að skapa aðstæður rökhugsunar; að hjálpa þeim til skerpa hugsun sína og gera þá þannig í stakk búna til að plægja akurinn, [sá og] uppskera eigin niðurstöður. Því gerðist ég kennari og þess vegna á kennsla hug minn allan.
Smám saman hefur háskólinn lagt stein í götu rökbundinnar þekkingarleitar (intellectual exploration). Vígi frjálsar hugsunar hefur hann umbreytt í félagsréttlætisverksmiðju. Einasti efniviður [framleiðslunnar] er kynþáttur, kynferði (gender) og fórnarlambsþjáning (victimhood). Afurðirnar eru harmkvæli og klofningur. Nemendum við Portland háskólann er ekki kennt að hugsa, heldur hljóta þeir þjálfun í að tileinka sér siðferðilega fullvissu hugmyndafræðinga. Þannig var lagður grundvöllur að móðgunarmenningu, sem veldur því, að nemendur kinoka sér við að tala hreinskilningslega og heiðarlega.
Snemma á ferli mínum við háskólann varð ég var við teikn ófrjálslyndis (illiberalism) Ég varð þess áskynja, að nemendur skelltu skollaeyrum við andstæðum skoðunum. Spurningar af hálfu deildarinnar, sem brutu í bága við rétttrúnaðinn (approved narratives) voru látnar sem vindur um eyru þyti. Þeir fengu skömm í hattinn, sem dirfðust að inna eftir rökum (evidence), sem réttlættu nýja stefnu stofnunarinnar. Og prófessorar voru ákærðir fyrir ofstæki, þegar þekkt rit hvítra, evrópskra heimspekinga, rötuðu inn á námsefnislista.
Í upphafi námsársins 2016-17 kærði mig fyrrverandi nemandi og háskólinn hóf níundu greinar rannsókn. [Kveður á um bann við mismunun. Eftirgrennslari háskólans innti nemendur eftir því] hvort þeim væri kunnugt um, að ég berði konu mína og börn. Þessar skelfilegu ásakanir urðu fljótlega að sögusögnum.
Rannsóknarréttur eða sýndardómstóll, Allsherjar fjölbreytni og meðveru (Global Diversity and Inclusion) háskólans gaf Peter ekki kost á að verja sig. Ei heldur voru honum kynntar ásakanir. Kennarinn var fundinn sýkn saka, en þó var mælt með leiðbeinandi endurhæfingu (coaching).
Fljótlega, eftir að hinar vísindalegu háðsgreinar komu fyrir sjónir fólks, fóru að birtast hakakrossmyndir á salerni skólans með nafni Peter árituðu. Stundum var krossinn hengdur á skrifstofudyrnar og stundum saurpoki.
Peter var einnig kærður fyrir óheiðarleg, vísindalega vinnubrögð, þar sem hann hafði komið fram við ritstjóra þeirra tímarita, sem tóku háðsgreinar hans og þremenninganna góðar og gildar, sem mannleg viðföng (human subjects). Peter var fundinn sekur um að gera rannsóknir á mannlegum viðföngum án leyfis.
Og áfram var Peter hrelldur; dreift var skrípamyndum af honum, hrækt á hann, starfsbræður og -systur hvöttu nemendur til að sniðganga kennslu hans. Fyrirlestrum Peter með heimsspekingnum, Christina Hoff Sommers og þróunarlíffræðingunum, Bret Weinstein og Heather Heying, var hleypt upp. Brunaboði var ræstur, þegar hann átti samtal við menningarrýninn, Carl Benjamin, hátalarar teknir úr sambandi, meðan á pallborðsumræðum við fyrrverandi verkfræðing hjá Google, James Damore, stóð. Háskólinn lét þetta gott heita, hreyfði hvorki legg né lið. Enginn fékk ákúru, engum var refsað.
Þetta snýst ekki um mig. Þetta lýtur að þeirri gerð stofnana, sem við óskum okkur og þeirra gilda, sem við kjósum. Sérhver frelsishugmynd hefur ævinlega [og] undantekningalaust, verið fordæmd í upphafi. Okkur er sem einstaklingum oft fyrirmunað að reka minni til þessarar lexíu, en það einmitt hlutverk stofnanna að minna á grundvallarrétt okkar til að draga í efa. Menntastofnanir ættu sömuleiðis að minna okkur á, að sá réttur sé jafnframt skylda.
Eitthvað þessu líkt á sér stað um allan hinn vestræna heim einnig, þegar raungreinar eru annars vegar. Samtímis fækkar karlmönnum, sem stunda æðri menntun. Þeir eru um fjórðungur til þriðjungs allra nemenda við æðri mennastofnanir og nærfellt horfnir úr samfélags-, heilbrigðis- og hugvísindum.
Það er dynur fyrir dyrum eða hvað?
https://www.cfact.org/2021/09/11/academic-intolerance-professors-full-resignation-letter/?fbclid=IwAR3QvQ4x0yxk08EvXfba77vGScMJW-gecC37tM_gcQ-Cn7BCXfyvP-dRKGE
Ég tottaði enn þá snuð og dúsu, þegar stríðið á Kóreuskaganum geisaði á árunum 1950 til 1953. Það var hryggilegur hildarleikur í kjölfar heimsstyrjaldarinnar síðari, þar sem heimsveldin tókust á með þátttöku Sameinuðu þjóðanna. Um tvær milljónir manna voru drepnar, áður en eins konar sættir tókust, enda þótt aldrei hafi verið samið um eiginlega frið.
Skaganum var skipt í tvennt. Hvort tveggja ríkjanna kennir sig við lýðveldi. Norður-Kóreumenn hafa síðan lifað og hrærst í skjóli gömlu Ráðstjórnarríkjanna (Sovét nú Rússland) og alþýðuveldisins Kína. Rússar, sem höfðu þegið þekkingu á kjarnafræðum og -vopnum frá þýskum vísindamönnum (rétt eins Bandaríkjamenn), veittu Norður-Kóreumönnum hlutdeild í henni, skömmu eftir lok stríðsins. Bandaríkjamenn höfðu þá varpað kjarnorkusprengjum á japönsku borgirnar Hirosima og Nagasaki með skelfilegum afleiðingum.
Þegar mér fór að vaxa grön og áhugi kviknaði á alþjóðamálum, vakti þessi þróun mála athygli mína. Því gerðist ég áskrifandi að nokkrum málgögnum stjórnarinnar í Peking/Beijing og Pyongyang.
Ég fylgdist í þaula með skrifum um stóra stökkið fram á veg og menningarbyltinguna í Kína og mörg fleiri afrek landsföðurins, Mao Zedong (1893-1976). Eins og allir hinir, sem lásu verk Friedrich Engels (1820-1895) og Karl Heinrich Marx (1818-1883), sagðist hann hafa fundið hinu réttu túlkun hugsunar þeirra. Það varð kínverskur rétttrúnaður. Halldór Kiljan Laxness (1902-1998) hafði einu sinni á orði, að svo virtist sem enginn gæti lesið þýskar bækur, nema Kínverjar.
Handan suðurlandamæra Kína ríkti annar andans jöfur og landsfaðir, Kim Il-Sung (1912-1994). Í frásögnum þarlendra var hann sveipaður ofurhetjudýrðarljóma. Stundum varð mér á að kíma, þegar ég las um ævintýri þess ofurmennis. Hollur er heimafenginn baggi. Sonur hans, Kim Jong-il (1941-2011) var einnig ævintýralegt stórmenni.
Sonur hins síðarnefnda, sem nú er tekinn við, Kim Jong-un (f. 1984), skýtur föður sínum og afa jafnvel ref fyrir rass, enda dáður og dýrkaðar af þjóð sinni, sem hann heldur ánauðugri innan landamæra ríkisins. Kim leggur rækt við alþjóðlega ímynd sína, m.a. með þessari glæsilegu mynd (sjá neðanmáls) af sjálfum sér á hvítum stóðhesti eins og Napóleon forðum daga og Pútín sjálfur, en hann var ber að ofan. (Það gæti skipt sköpum.)
Í hjálagðri grein er að finna dágott og áhugavert yfirlit yfir glímu þeirra, feðga og langfeðga, í kóreanska keisaradæminu við alþjóðasamfélagið, einkum það, sem lýtur að þróun kjarnavopna. Það er grátbroslegt til þess að hugsa, hvernig Bandaríkjamenn hafa verið dregnir á asnaeyrunum.
Eins og margar þjóðir aðrar lögðu Norður-Kóreumenn ofuráherslu á það að eignast kjarnorkuvopn til að tryggja öryggi sitt í viðsjárverðum heimi. Stórveldunum hefur verið mjög í mun að takmarka dreifingu þeirra af augljósum ástæðum.
Opinberlega eru einungis fimm ríki, sem búa yfir þessum ógnvænlegum vopnum; Kína, Frakkland, Sameinaða konungsdæmið (Bretar), Rússar og Bandaríkjamenn. En það leikur varla vafi á því, að Ísraelar, Íranar, Indverjar, Pakistanar og Norður-Kóreumenn eigi slík vopn eða búi yfir þekkingu og tækni til að framleiða þau.
Því miður hefur mannkynið enn þá ekki borið gæfu til að eyða öllum gereyðingarvopnum í veröldinni. Hagsmunagæsla og valdatafl kemur í veg fyrir það. En alþjóðalögreglan, Bandaríkjamenn, fara stundum á kreik í því skyni.
George W. Bush (f. 1946) (eða ræðuritari hans, David Frum, og aðstoðarmaður hans, Michael Gerson) skilgreindi Norður-Kóreu meðal öxulvelda illskunnar, ásamt Írak og Íran. Afganistan flaut með sem felustaður Osama bin Laden (1957-2011), illvirkjans frá Sádí-Arabíu. Líklega hefur kjarnorkuvopnamáttur Norður-Kóreumanna og verndarhjúpur Kína, valdið því, að Bush eins og forverar hans, áræddu ekki að gera innrás í landið. En það urðu hins vegar örlög Afgana og Íraka. Enn sem fyrr hljómaði undirleikurinn frá SÞ.
Ætli sneypuinnrás Bandaríkjamanna og NATO í Afganistan hafi loksins sannfært leiðtoga heims um, að friður verði seint tryggður með ofbeldi heldur ekki í Kóreu.
En svo er engan veginn víst, að þeir sem braggast á vopnasölu, kæri sig um frið. Vopnaiðnaður og stríðsrekstur sér mörgum farborða í iðnríkjunum fyrsta heimsins.
https://www.foreignaffairs.com/articles/north-korea/2021-08-24/north-koreas-nuclear-family?utm_medium=newsletters&utm_source=twofa&utm_campaign=Winning%20Ugly&utm_content=20210903&utm_term=FA%20This%20Week%20-%20112017
Fyrir skemmstu var hleypt af stokkunum átaki um jákvæða karlmennsku. Í broddi fylkingar fer vinstri-grænn kynjafræðingur frá Háskóla Íslands, Þorsteinn V. Einarsson. Jafnréttissjóður veitti honum, m.a. með fulltingi Jafnréttisstofu, á annan tug milljóna til að fræða landsins börn um karlmennsku sér í lagi skaðvænlega eða eitraða karlmennsku.
Andhverfa hennar er sem sé jákvæð karlmennska. Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir, hefur reyndar í viðtali við RÚV kallað hana nýja karlmennsku, þ.e. karlmennsku, sem einkennist af því, að karlmenn sýni tilfinningar.
Átakið er ekki síður áhugavert vegna samsetningar bakhjarla og þátttakenda; Háskóli Íslands, kynjafræðideild, Stígamót, Kvennaáróðursdeild Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (UN Women) og Píetasamtökin, sem eru áhugamannasamtök um vernd gegn sjálfsvígum.
Bleik var brugðið. Mér var ókunnugt um, að um væri að ræða kvenfrelsunarsamtök. Því er ekki ljóstrað upp á heimasíðu þeirra. Mér hrýs hreinlega hugur við tilhugsun um það viðmót, sem karlmönnum í sjálfsvíghugleiðingum hlýtur að vera sýnt á þeim bæ. Það er svipað því viðmóti, sem mætir þeim í ofbeldisgeiranum eða -iðnaðinum, þar sem kvenfrelsarar ráða ríkjum.
Hér tekur sem sé ríkisstofnun æðri menntunar, HÍ, höndum saman við alþjóðleg og þjóðleg áróðurssamtök á skattjötunni. Píetasamtökin eru þó undantekning.
Hjálagt er hlaðvarp með viðtölum áðurnefnds Þorsteins við fulltrúa þessara samtaka. Þorsteinn sjálfur er opinberun, viðtölin fróðleg bæði í ljósi efnis þeirra og málflytjanda.
Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, fræðileg kvenfrelsunarmóðir fjölda kvenfrelsara á Íslandi, segir: Hugtakið, jákvæð karlmennska á sér tvær fræðilegar stoðir. Fyrra sjónarhornið er jákvæð sálfræði. Í því skilningsljósi er skoðað, hvað karlmönnum sé fyrir bestu, svo þeim og öllum öðrum muni líða betur. Seinna sjónarhornið er gagnrýnin karlafræði, femíniskar kenningar. Þá er horft meira á valdatengsl kynjanna í stærra samhengi, svona meira samfélagslegra sjónarhorn
Þorsteinn spyr lærimeistara sinn, hvort það megi skilja sem samtal við toxic masculinity, eitraða eða skaðlega karlmennsku. Þorgerður játir því og segir: Karlafræðingarnir okkar, t.d. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor á menntavísindasvið við Háskóla Íslands, talaði um skaðlega karlmennsku, og hann útskýrði það þannig, að það væri aðallega tvennt, sem hann horfði á. Og það var annars vegar ofbeldi, beint og óbeint ofbeldi í hinum margvíslegustu birtingarmyndum, mjög margar birtingarmyndir.
Hitt snýr svona að vinnumarkaði, annars vegar kynjaskipting vinnumarkaðarins og fyrirvinnuhlutverk karla. Þeir sem sinntu því, væru að stuðla að samfélagi aðgreiningar, væru að stuðla að því, að karlar tækju ekki virkan þátt í heimilislífi og t.d. barnauppeldi. Það hefur auðvitað neikvæð áhrif á börnin, það hefur slæm áhrif á þá sjálfa, þeir missa bara af mjög miklu, og það ýtir undir þessa hefðbundnu sýn á vinnumarkaðinn, bæði að konur séu þar í aukahlutverki og kynjaskiptingu starfa.
Svo er fjallað um tvíhyggjuna [kynin tvö, karl- og kvenkyn], sem liggur til grundvallar allri skoðun á karlmennsku og því sem nemendur í kynjafræði eru uppteknir af; ofbeldi gegn konum og auka vinnuálagi á konur. Þorgerður lýsir að lokum hrifningu sinni af hugtakinu jákvæðri karlmennsku, því það auki líkurnar á því að fá karlmenn til að taka þátt í breytingu karlmennskunnar, svo hún megi verða jákvæð.
Kristín Ólafsdóttir, talsmaður Píetasamtakanna, spyr Þorsteinn: Hvað viljið þið að gerist með þátttöku í þessu verkefni, þ.e. um jákvæða karlmennsku?: Við viljum jafnrétti, við stöndum algerlega með því. Við gerum það bara sem fólk og við styðjum allt sem færir okkur sem samfélag nær því og svona samkennd og samúð. Við erum öll í grunninn eins. Þannig að við vonum heitt og innilega, að þetta skili sér í því að menn, karlmenn, eða fólk, sem skilgreinir sig karlkyn, skilji, að það má gráta, það má gera það sem það vill tilfinningalega séð. Það eru ekki til konutilfinningar og karlatilfinningar og H-tilfinningar (?). Þetta er allt sama tilfinningin.
Marta Goðadóttir, kynningarstýra UN Women á Íslandi: Við erum náttúrulega sú stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem vinnur að valdeflingu kvenna um allan heim og okkar starf lýtur aðallega að vitundarvakningu og fjáröflun hérna á Íslandi.
En við störfum í þágu UN Women á heimsvísu. Og þar er okkar verkefni náttúrulega að valdefla konur og stúlkur. Og það sem við höfum séð í okkar vinnu er, hvernig svona skaðlegar karlmennskur eru að þvælast fyrir okkur þar. Og þessi valdatengsl og baráttan eilífa við kynjakerfið og tvíhyggjuna, þar sem það eru einhvern veginn þessi viðteknu gildi, að karlmaðurinn sé viðmiðið og stúlkan, konan, sé frávikið. Og það er svona grunnurinn í okkar starfi, auðvitað. Við erum að berjast gegn þessu.
Marta hælir Þorsteini á hvert reipi fyrir það lofsverða framtak hans að upplýsa um margar karlmennskur. Og svo kemur umfjöllun um tvíhyggjuna, þ.e. um karlkyn og kvenkyn, sem samfélagskerfi: Við þurfum að gera svolítið samning við sjálf okkur óháð því, hvers kyns við erum sem einstaklingar. Vegna þess, að þessi tvíhyggja náttúrulega útilokar konur og alla aðra jaðarhópa.
Og hér segir Þorsteinn: Algjörlega, einmitt. Og spyr, hvað Marta vilji að komi út úr þessu sameiginlega átaki. Hún er afskaplega hrifin af því, að það sé nú talað um eitthvað jákvætt, en ekki alltaf eitthvað eitrað og skaðlegt, enda þótt það sé alveg fakta, en það er alveg rosalega mikilvægt að hafa uppbyggilegan tón í þessu, sem okkur langar til að breyta.
Og þetta snýst um hugarfarsbreytingu. Jákvæð karlmennska frelsar okkur öll undan höftum tvíhyggjunnar og þessu kynjakerfi, myndi ég segja. Vegna þess, að jákvæð karlmennska er ekkert annað en femínismi og viðurkenna hann.
Og viðurkenna fjölbreytileika, hafna þessum viðteknu valdatengslum, sem fylgja þessu blessaða feðraveldi, sem við erum dálítið undirokin af öll. Þetta eru ekki bara við konur og stúlkur eða önnur kyn en karlmenn, sem er undirokið því, þú veist.
Þetta er að hafa hræðileg áhrif á okkur öll. [Skoða áhrif] þessarar stöðluðu karlmennsku, svokölluðu skaðlegu karlmennsku, hvernig þetta er að hafa áhrif í skólakerfinu og stráka. Þetta er að auka sjálfsvígstíðni stráka og karla, fyrir utan það, að [við] konur, fáum heldur aldrei jöfn tækifæri. Við þurfum að taka á okkur alla þessa ógreiddu heimilis- og umönnunarstörf. Covid hefur sýnt okkur það, að þessi aukabyrði fellur harðar á konur. Það er náttúrulega kynbundið ofbeldi og me-too svipti algjörlega hulunni af því, sem við vissum mörg hver
Og það er það sem jákvæð karlmennska snýst um, að frelsa okkur frá þessu feðraveldi.
Hjálmar Sigmarsson frá Stígamótum veður á súðum lengi vel um, hvað Stígamót eru að gera. Svo dregur til tíðinda, þegar Hjálmar tjáir áhorfendum, að ekki sé unnt að tala um kynafbrot, nema að tala um gerendur, og að það sé menning okkar karla, þannig að við þurfum að tala um kynjakerfið, þannig að við þurfum að tala um karlmennskur. Við getum ekki talað um kynferðisofbeldi . án þess að tala um karlmennsku. [Jákvæð karlmennska], sem felur í sér stuðning og skilaboð til allra brotaþola. Til þess að geta tekist á við nauðgunarmenningu, á við kynferðisofbeldi og allt kynbundið ofbeldi og bara allt kynjamisrétti, þá þurfum við einmitt að skoða ræturnar. (Hjálmar þennan, sem er kynjafræðingur, tók kvenfrelsunarráðherra Framsóknarflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, með sér til Nýju Jórvíkur á jafnréttisþing, þ.e. rakarastofuþingið (Barbershop Conference) árið 2015.)
https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/karlmennskan/thattur-12-jakvaed-karlmennska/
Bloggar | 13.9.2021 | 11:18 (breytt 15.9.2021 kl. 08:53) | Slóð | Facebook
Frelsun kvenna er á stefnuskrá allra (eða hér um bil), íslenskra stjórnmálaflokka. Eins og allir ættu að vita, er draumur þeirra að afeitra karlmenn, að kvengera þá eða útrýma jafnvel alveg. Þeir berjast fyrir gyðju- eða grýluveldi, þar sem konur sérstakrar tegundar fara með völd.
Þegar hefur tekist að afeitra fjölda karlmanna, sem leggjast á árar í þessu hugmyndafræðafleyi. Einn þeirra er hlaupagikkurinn, Arnar Pétursson. Annar er Þorsteinn Einarsson, sem stjórnvöld gerðu út af örkinni til að kenna landsins börnum um afeitraða karlmennsku. Þá karlmennsku kallar hann jákvæða. Sá fyrrnefndi lét hafa eftir sér, að nú ættu karlar að hverfa úr stjórnmálum og konur að taka við. Þessi hugmynd hefur verið viðruð bæði af Sjálfstæðisflokknum og Vinstri-grænum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (f. 1949), Sjálfstæðisflokki, uppeldisfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri í Mosfellsbæ, spurði þingheim fyrir síðustu kosningar, hvort það væri möguleiki í kosningum árið 2017 að lögbinda [að þá sætu] eingöngu konur á þingi í tvö ár, frá 2017 til 2019. Þá yrði kosið til kvennaþings til tveggja ára og konur fái tækifæri til að sýna fram á, hvort það sé í raun satt, því sem haldið er fram, að vinnubrögð kvenna séu með öðrum hætti en vinnubrögð karla. Þingið yrði stutt, það yrði tvö ár, og að loknu því þingi gæti þjóðin sjálf, að sjálfsögðu, og þeir, sem að kosningu koma, velt því fyrir sér, hvort það væri jafnvel bara skynsamlegra að hafa kvennaþing.
Lýðræðislegar öfgahreyfingar eins og nasistar og fasistar hafa farið svipaða leið og reyna það enn að ná völdum í löggjafarsamkundu þjóðanna. Samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn, VG, hefur kynnt svipaðar hugmyndir á þingi.
Lilja Rafney Magnúsdóttir (f. 1957), VG (áður í Alþýðubandalagi), fyrrverandi oddviti Suðureyrarhrepps, sagði í þingræðu sumarið 2015: Við héldum hérna veglega upp á aldarafmæli kosningaréttar kvenna og kjörgengi og er það ekki bara rétt, að við setjum [konur] til þess að reyna að taka stjórn hérna á þinginu og koma einhverju verklagi á þingstörf Mér sýnist, að þeir karlmenn, sem eru hér í forsvari séu með eilífan væl og leggja ekkert til málanna og eigi að afhenda konum þá í sínum flokki og öðrum flokkum það verkefni að ljúka hér þingstörum. (Þingheimur sá ekki ástæða til að fagna kosningarétti flestra karlmanna, sem fékk þann rétt við sömu löggjöf.)
Íslenskar nútímakonur eru harðar í horn að taka, þegar kvenfrelsun ber á góma og berjast þarf gegn hinu illa feðraveldi. Karlar eru sekir eða það skiptir ekki máli eins og ónefndur kvenfrelsari orðaði það nú um daginn:
Mér er bara andskotans sama, sek, saklaus eða sek. Finnst það ekki vera málið til framtíðar. Málið er brjálæðislegt hugarfar til ungra kvenna. Og stelpur, hættið að taka þátt í þessum tilraunun til að undiroka ykkur. Ef strákarnir geta ekki plummað sig öðruvísi en að misþyrma hinu kyninu, þá bara verðum við konur, að hætta að geta af okkur karlkyns afkvæmi. Tæknin er fyrir hendi.
Þessi hugumstóri, íslenski kvenfrelsunarhugmyndafræðingur, finnur skoðunum sínum hljómgrunn meðal útlendra þjáningasystra, t.d. þessum:
Ég bið fólk að hugleiða ... sviðsmynd, þar sem við [konur] myrðum ákveðinn fjölda karlmanna í viku hverri. Hversu mörgum þyrftum við að koma fyrir, þar til feðraveldið sest niður handan borðsins og segir: Gott og vel, látum gott heita. Hvað er í okkar valdi til að stansa aflífunina? ...
Hversu marga karla þurfum við að drepa svo þeir hætti að nauðga okkur (Mona Eltahawy, f. 1967)
Hlutfall karla verður að sker niður í og halda í u.þ.b. tíunda hluta mannkyns.(Sally Miller Gearhart, f. 1931)
Það er engin þörf fyrir herkvaðningu. Við þurfum geldingarhappdrætti fyrir hvíta karla. Mánaðarleg drögum við út afmælisdag, sundurgreinum þá óþörfu og bregðum skærunum á nokkra poka [punga], helst við fjölmenna, opinbera samkomu. (Sarah Jeong, f. 1988, í ritstjórn Nýju Jórvíkur Tímans (New York Times)
Mér svellur móður við þá tilhugsun, að geta ákært sérhvern þann karlmann, sem ég hata eða er í nöp við, fyrir að hafa þuklað á mér fyrir þrjátíu og fimm árum síðan, og rústað lífi hans, án sannanna. Ég þakka þér, kvenfrelsun! ... Ef þú hefur syni þína á brjósti ertu [í raun] að þjálfa þá sem nauðgara, þegar þeir komast til vits og ára. Þú ert í raun réttri að kenna þeim, að þeir geti þuklað á konu, þegar þeim sýnist. Sértu andsnúin nauðgunum, skaltu hætta að gefa drengjum brjóst. (Shaykha Alia)
Suzanna Danuta Walters, prófessor í félagsfræði og framkvæmdastýra og við Kven- og kynfræðadeild deild Northeastern University í Bandaríkjum Norður-Ameríku, ávarpar karla: [S]tandi hugur ykkar til þess að losna undan hatri okkar [kvenna] sökum misgjörða ykkar um aldir [skulið þið heita því] að kjósa einvörðungu konur. Bjóðið ykkur ekki fram til embætta. Hafið ekki umsjón með nokkrum hlutum. Leggið frá ykkur valdasprotann. ... Og hafið það hugfast, að við munum ekki lengur þerra krókódílatár ykkar. Hatur okkar er réttlátt. Þið hafið gert á hlut okkar.
Eins og dæmin sanna, sækjast margar konur í (hér um bil) öllum stjórnmálaflokkum, eftir svipaðri reynslu og vígstöðu og kvenleikarinn, Sharon Stone (f. 1958), lýsir: Vald mitt til að meiða karlmenn eykst með aukinni frægð og valdeflingu. Það er kvenfrelsunardygð.
Hvað er ráðlegt að kjósa?
Tíundi september er Alþjóðlegur sjálfsvígsvarnadagur (world suicide prevention day). Um er að ræða skelfilegan lýðheilsuvanda. Á ári hverju falla tugir Íslendinga fyrir eigin hendi. Það eru örþrifaráð. Engin hegðun önnur brýtur jafn skýrt í bága við grundvallarlögmál lífsins, þ.e. að lifa, bjarga sér og fjölga. Ungir karlar eru yfirgnæfandi meirihluti þeirra, sem velja þessa sorglegu útleið.
Sjálfsvígstíðni drengja og karla er skelfileg. Á aldrinum10-15 ára fremja tvöfalt fleiri strákar sjálfsvíg, heldur en stelpur; á aldrinum 15-19 ára eru þeir fjórum sinnum fleiri; á aldrinum 20-24 eru þeir fimm til sex sinnum fleiri. Sjálfsvígum karla fjölgar meira, en hjá konum. Samkynhneigðir piltar svipta sig þrefalt oftar lífi, miðað við stúlkur í sömu stöðu.
Þegar piltar og karlar missa sjónar á tilgangi lífsins eða geta með engu móti fundið lífi sínu tilgang; þegar þeir eru smánaðir; þegar þeir tapa baráttunni í skóla og lífi; velja alltof margir þeirra að svipta sig lífi. Bölsýni og depurð ræður för. Oft og tíðum er einsemdin kvöl. Annað böl er hópsmit. Ákvörðun um sjálfsvíg er stundum tekin vegna áhrifa frá öðrum, sem hafa valið slíkt óyndisúrræði. Það kemst í tísku eins og t.d. kynskipti barna og unglinga einnig eru í dag.
Útskúfunarsjálfsvíg karla, tengd ákúrum og kærum um kynofbeldi, eru tímanna tákn. Dæmi: Í New York Times var Liam Scarlett sagður hið nýja undrabarn meðal listdanshöfunda. Danski óperusöngvarinn, Jens-Christian Wandt, lýsti óvenjulegum listhæfileikum Liam. Hann steig fyrst á svið í Royal Ballet í Lundúnum sem dansari. Feril hans sem danshöfundur hófst um miðjan þrítugsaldur.
Listdanssýningar Liam hafa verið settar upp víða, m.a. í Kaupmannahöfn, Lundúnum og Queensland í Ástralíu. Liam var yngsti danshöfundur listadanssýninga við Royal Ballet í Lundúnum. Fyrir tveim árum sviðsetti hinn ungi listamaður sýninguna Spar Dame í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Fyrrgreindur söngvari taldi hana einhverja bestu kvöldsýningu í fullri lengd, sem sett hafði verið á svið í Kaupmannahöfn um langa hríð. Hann var ofurstjarna, sagði Jens-Christian. Hið konunglega leikhús kallaði Liam skærasta nýstirni í heim listdansins. Gagnrýnendur voru í skýjunum.
Við æfingar á Spar Dame varð dynur fyrir dyrum. Kvartað var undan ósæmilegri hegðun Liam. Gróusögur sögðu hann hafa sýnt kynferðislega áreitni í Lundúnum gagnvart nemendum. Í Queensland var sýningum hans aflýst eins og annars staðar, enda þótt innanhússrannsókn leiddi í ljós, að enginn fótur væri fyrir áskökunum. Liam svipti sig lífi.
Áþekkir harmleikir gerast einnig á Íslandi. Dziugas Petrauskas var rúmlega hálfþrítugur knattspyrnumaður frá Litháen, sem leitaði frægðar og frama í útlöndum. Íslandi!! Hann fékk vinnu í kísilverksmiðjunni við Húsavík. Mannlíf og DV skýrðu frá sjálfsvígi hans fyrir rúmum mánuði síðan.
Í DV stendur: Petrauskas var öflugur knattspyrnumaður sem spilaði aðallega sem hægri bakvörður. Hann átti leiki með U-18 og U-19 ára landsliðum Litháen. Þá spilaði hann í efstu deild Litháen fyrir liðið knattspyrnuliðið FC Ekranas allt þar til liðið varð gjaldþrota árið 2014 og var lagt niður. Liðið var síðan endurreist úr brunarústunum í fyrra og er Petrauskas minnst með hlýju á Facebook-síðu félagsins þar sem hrundið er af stað söfnun fyrir eftirlifandi systur hans.
Hringbraut segir: Hann var svo hlý manneskja. Það eru orð sem lýsa honum best, hefur litháíski fréttamiðillinn Delfi eftir Arnas Borodinas, fyrrverandi liðsfélaga Dziugas Petrauskas.
Mannlíf segir: Hann .. svipti sig lífi [V]ar ástæðan sú að hann hafði verið ásakaður um kynferðisbrot. Heimildir Mannlífs herma að hann hafi verið borinn sökum um þetta brot og það hafi verið tilkynnt til lögreglu. Petrauskas var í framhaldinu yfirheyrður af lögreglu. Eftir það greip hann til þess örþrifaráðs að fyrirfara sér.
Íbúar Húsavíkur sýndu minningu þessa ólánssama, útlenda gests okkar virðingu með kyrrðar- og minningarstund í Húsavíkurkirkju þann níunda ágúst. Það bera að lofa.
Eins og sérhverju mannbarni vafalaust er kunnugt, ungu og öldu, hafa kærur kvenna um kynofbeldi af hálfu karla gengið eins og eldur í sinu um samfélagið síðustu árin. Þær eru margvíslegar, t.a.m. að ganga inn í sjónmál konu, líta hana hýru auga eða girndar, kyssa hana á vanga, klappa henni á öxl, hrósa henni fyrir fegurð, stíga í vænginn við hana með ljúfyrðum og fagurgala, klappa henni á afturendann, lauma hendi á hné eða lær (þegar svo ber undir), gera of lítið af því að hrósa henni eða hampa, hafa við hana samræði í ölvunarástandi eða sofandi - eða jafnvel nauðga. Margt er enn ótalið. (Í nafni jafnréttis er svipuð hegðun konu gagnvart karli vitaskuld ekki átalin.)
Ungi knattspyrnumaðurinn látni kynni að hafa framið eitthvert þessara afbrota. Það vita bara fáir. Kæruna væri lærdómsríkt að sjá. Hún er vafalaust fróðleg eins og kæra Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur á hendur öðrum knattspyrnumanni, Kolbeini Sigþórssyni. Vonandi fer hann ekki að dæmi Dziugas og Liam.
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir gefur karlmönnum eftirfarandi ráð: Ef þú, góði strákur, hefur nauðgað konu, þröngvað þér inn á yfirráðasvæði hennar, troðið tungunni upp í hana, króað hana af, gert hana hrædda, látið hana finna að sjálfsvígshugsanir þínar séu á hennar ábyrgð, suðað um að fá að fara inn í hana þangað til hún örmagnast, tekið hana næstum áfengisdauða með þér heim og klætt hana úr buxunum af því að þú verðir að fá að sýna henni hvað þú ert góður í að fullnægja konum með tungunni, almennt beitt konu eða konur einhverskonar þvingunum, gaslýsingum [andlegu ofbeldi] og ofbeldi, og ert að íhuga að stíga fram og segja hjartnæma sögu af því hvað þú ert góður strákur og ætlar að axla á þessu ábyrgð með því að auðmýkja þig í fjölmiðlum eða hætta tímabundið eða seinna í vinnunni, þá bið ég þig að hugsa þig tvisvar um.
Álit og ráðgjöf Hildar kynni líka að koma Píeta samtökunum að gagni. Þau starfa að vernd gegn sjálfsvígum, að írskri fyrirmynd. Þó hef ég miklu meiri trú á gagnsemi bókar, eftir Wilhelm Norðfjörð, sálfræðing; Þjóð gegn sjálfsvígum: Sjálfsvígfræði.
https://www.forlagid.is/vara/tjod-gegn-sjalfsvigum/
Kosningar verða haldnar innan skamms. Því gæti verið viturlegt að skoða sögu stjórnmálaflokkanna til að glöggva sig á stjórnmálum samtímans. Sum umfjöllunarefnanna virðast eilíf. Það liggur rauður þráður um söguna. Nú ganga dauðir flokkar meira að segja í endurnýjun lífdaganna. Lítum um öxl:
Íhaldsflokkurinn var stofnaður 1924. Fyrsti formaður hans, Jón Þorláksson (1877-1935), segir: Ef ég ætti að nefna eina leiðandi hugsun ... þá hef ég fundið hana í þeim einföldustu og einna göfugustu trúarbrögðum, sem ég veit til, að upp hafi verið meðal mannanna ... sem kennd eru við Zóroaster eða Zarathustra hinn persneska. ... Allt það, sem miðar að því að auka gleðina og sæluna og velgengnina í heiminum, styrkir ríki hins góða, og eru það þess vegna góðverk, en allt það, sem miðar að því að auka örbirgð, sorgir og syndir, eflir vald þess vonda. ... Hér er nóg ... af fátæklingum til að veita atvinnu, björg og blessun. Sá, sem vinnur [að þessu] ... vinnur ljóssins drottni þægt verk; en hver, sem hindrar slíkt [...] þjónar þeim vonda.
... að hagsmunum sérhverrar stéttar er þá best borgið í bráð og lengd, ef hvert mál er útkljáð með heill alþjóðar eingöngu fyrir augum. Í þeim flokki [Íhaldsflokknum] taka allar stéttir landsins höndum saman til að vinna að heill alþjóðar, vel vitandi, að með því móti er og best borgið hagsmunum hverrar stéttarinnar sér í lagi. (Úr ævisögu hans eftir Hannes Hólmstein Gissurarson.)
Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður tveim árum seinna, þ.e. 1926. Stofnendur hans voru óánægðir þingmenn gamla Sjálfstæðisflokksins, þ.e. forvera þess, sem við þekkjum, og barðist fyrir sambandsslitum Dana og Íslendinga.
Geir Hallgrímsson (1915-1990) segir um flokkinn: .Frjálslyndi flokkurinn hafði tekið eflingu almannatrygginga upp í stefnuskrá sína. En það sem fyrst og fremst skildi Frjálslynda flokkinn frá öðrum flokkum var sú mikla áherzla, sem flokkurinn lagði á sjálfstæði þjóðarinnar, þjóðernis- og þjóðrækniskennd og jafnvel varúð gagnvart öðrum þjóðum.
Okkar tíma Sjálfstæðisflokkur komst á koppinn árið 1929, þegar Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn runnu saman. Við það tilefni sagði Jón Þorláksson: Flokkurinn [hinn nýi Sjálfstæðisflokkur] vill vinna að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. En í þessu felst einmitt, að flokkurinn vill virða og efla sjálfstæði einstaklinganna innan þjóðfélagsins, bæði manna, stofnana og félaga. Á framtaki einstaklinganna og frelsi þeirra til þess að beita kröftum sínum innan leyfilegra takmarka sér og sínum til hagsbóta byggir þessi stefna fyrst og fremst vonirnar um framhaldandi umbætur á lífskjörum þjóðarinnar.
Ásgeir Hannes Eiríksson (1947-2015), segir um samrunann: Íhaldsflokkurinn kom bersýnilega með fylgið í Sjálfstæðisflokkinn en Frjálslyndi flokkurinn hefur samkvæmt þessu lagt til stefnuskrána. Enda hefur íhaldsarmi Sjallans jafnan liðið illa undir þessu frjálslyndi eins og húsdraug undir góðu orði. (Ein með öllu.)
Á tímabilinu 1916 til 1942 mótaðist fjórflokkurinn svokallaði, þ.e. Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag (forverar þess, Kommúnista- og Sósíalistaflokkur - Samfylkingin er arftaki þess og Alþýðuflokks) og Framsóknarflokkur. Sjálfstæðismálið var mál málanna, stjórnmálin voru sjálfstæðisstjórnmál. En þegar það var í höfn með sambandslagasamningnum 1918 fóru menn að beina sjónum að stéttum.
Næstu áratugi og fram undir síðustu aldamót má jafnvel tala um stéttastjórnmál og að sumu leyti kynjastjórnmál. Stjórnarskrárbreytingin árið 1915 skipti verulegu máli fyrir slíka þróun. Nú gátu allir fullveðja einstaklingar kosið, þ.e. kosningaréttur var orðinn almennur og upp var tekið landskjör í stað konungskjörs. Nú var það sem sé þjóðin sem kaus fulltrúa í efri deild Alþingis, en ekki konungur. Aukinheldur voru kynntar margs konar nýjar hugmyndir af erlendum toga um stjórnmál, stefnur og flokka.
Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn voru stofnaðir árið 1916, Sjálfstæðisflokkurinn 1929, Kommúnistaflokkurinn árið 1930 og Sósíalistaflokkurinn árið 1938. Í kosningunum 1942 hlutu flokkarnir fjórir kjörfylgi sem breyttist lítið næstu þrjá áratugina. Sjálfstæðisflokkurinn var stærstur (37-42% atkvæða), Framsóknarflokkurinn næststærstur (22-28% ), Sósíalistaflokkurinn þriðji (15-19%) og Alþýðuflokkurinn rak yfirleitt lestina (13-18%). Aðrir flokkar hlutu lítið fylgi og það gerðist aðeins einu sinni á tímabilinu 1942-1971 að einhver annar stjórnmálaflokkur ynni þingsæti. Það var árið 1953 en þá fékk Þjóðvarnarflokkurinn tvö þingsæti. (Svanur Kristjánsson)
Einar Baldvin Olgeirsson (1902-1993), sagði um Sósíalistaflokkinn, að hann væri: ...sósíalistiskur lýðræðisflokkur... [sem vildi koma á] frjálsu, stéttlausu samfélagi allra vinnandi manna í landinu, hvort sem þeir vinna erfiðisvinnu eða andleg störf; þjóðfélagi, sem stjórnað sé af þeim sjálfum og þar til kjörnum fulltrúum þeirra með fullkomnu lýðræði í stjórnmálum og atvinnumálum.
Það hefur verið og er stefna Sósíalistaflokksins jafnhliða kaupgjaldsbaráttunni að berjast fyrir hvers konar alþýðutryggingum, styttingu vinnutíma og orlofi, öryggi á vinnustöðum og tryggingu ungra sem gamalla gegn vinnuþrælkun, og róttækri löggjöf í húsnæðismálum.
Á tímum nýsköpunarstjórnarinnar, 1944-47, sem Sósíalistaflokkurinn og Alþýðuflokkurinn tóku þátt í, með meirihluta Sjálfstæðisflokksins, voru alþýðutryggingar stórbættar og gerbreyttar frá því sem verið hafði. Sett var þá róttækasta húsnæðismálalöggjöf, sem sett hefur verið um aðstoð við íbúðabyggingar, ...
Það þarf að fullkomna sjúkratryggingar, svo öll læknisþjónusta verði ókeypis, og þjóðnýta lyfsölu, því slíkt á ekki að vera gróðavegur. Það þarf að tryggja öllum vinnandi mönnum og konum orlof ... koma á félagslegri húsnæðismálalöggjöf ...tryggja 8 tíma vinnudag ... tryggja eftirlaun handa öllum .. fullkomna yfirleitt alþýðutryggingar... Annað höfuðverkefni Sósíalistaflokksins er sjálfstæðisbaráttan.
Um Framsóknarflokkinn segir Eysteinn Jónsson (1906-1993): Framsóknarstefnan er sprottin af rammíslenzkri rót, og þau tengsl verða ekki rofin. En Framsóknarflokkurinn hefur reynt að sameina það bezta, sem við þekkjum hjá öðrum þjóðum, íslenzkum staðháttum,
Framsóknarflokkurinn vill byggja upp á Íslandi sannkallað frjálst lýðræðis- og menningarþjóðfélag efnalega sjálfstæðra manna, sem leysa sameignleg verkefni eftir leiðum samtaka, samvinnu og félagshyggju. Þjóðfélag, þar sem manngildið er metið meira en auðgildið, og vinnan, þekkingin og framtakið er sett ofar og látið vega meira en auðdýrkun og fésýsla.
Framsóknarflokkurinn er upphaflega stofnaður til stuðnings og fulltingis sjálfsbjargarviðleitni almennings, og samtökum fólksins sér til styrkar í baráttunni fyrir frelsi og betra og fegurra lífi. Flokkurinn er því flokkur félagshyggju, samtaka og samvinnu ... Flokkurinn hefur hvorki byggt stefnu sína á kapítalisma né kommúnisma, né heldur sósíalisma...
Alþýðuflokknum var rituð stefnuskrá árið 1915. Hún er talin samin af Ólafi Friðrikssyni (1886-1964) og Jónasi Jónssyni (1885-1968) frá Hriflu (sem síðar varð foringi Framsóknarmanna). Lögð er áhersla á jöfnuð og baráttuna fyrir því, að sú skifting á landslýðnum í ríka og öreiga, sem er í flestum mentalöndum, verði á Íslandi.
Flokkurinn stefndi, segir Emil Jónsson (1902-1986), að ríki jafnaðarstefnunnar, en það er: 1)Þjóðfélag, sem setur frelsi einstaklingsins í öndvegi og verndar hann fyrir hvers konar kúgun og ofríki, gerir alla þegna jafna fyrir lögum og tryggir félagslegt réttlæti. 2) Þjóðfélag, sem hefur skipulega heildarstjórn á efnahagskerfinu til þess að tryggja almenna velmegun, næga atvinnu, réttláta tekjuskiptingu og sanngjarna niðurjöfnun skatta, örvar framtak einstaklinga, félaga og opinberra aðilja, en lætur eign og stjórn atvinnutækja lúta hagsmunum þjóðarheildarinnar. 3) Þjóðfélag, sem veitir öllum þegnum sínum öryggi frá vöggu til grafar, verndar lítilmagnann, tryggir afkomu sjúkra, örkumla og gamalla.4) Þjóðfélag, sem veitir öllum jafnan rétt til hvers konar menntunar á tillits til búsetu eða efnahags, örvar menningarstarf og eflir listir og vísindi. 5) Þjóðfélag, sem er aðili að alþjóðlegu samstarfi þjóða til varðveizlu friðar og frelsis.
Ótalinn er Flokkur þjóðernissinna, nasistar, sem þó aldrei bauð fram til Alþingis. Í Heimdall skrifar árið 1933 Þorsteinn Bernharðsson: (1915-2007?) Nú vill svo til, að flestir sem ennþá fylla flokk Þjóðernissinna eru gamlir sjálfstæðismenn. Það eru áhugasamir ungir menn, sem hefir fundist of mikil deyfð í flokki sínum, til þess að þeir gætu starfað þar, og heldur kosið að stofna nýjan flokk á svipuðum grundvelli.
Hugmyndafræðilegar uppsprettur þjóðernissinna voru verk Jóns Aðils Jónssonar (1869-1920), sagnfræðings, rit Guðmundar Finnbogasonar (1873-1944), sálfræðings, og rit dansk/þýska leiðtoga danskra nasista, sem var þýskmenntaður læknir, Frits Clausen (1893-1947) að nafni. Flokkurinn leið undir lok og félagar hans hurfu trúlega flestir á vit Sjálfstæðisflokksins.
Fjórflokkurinn [þ.e. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag (og forverar þess Sósíalistaflokkurinn og Kommúnistaflokkurinn] ríkti um langt skeið á síðustu öld: [þeirri tuttugustu] Fjögurra flokka kerfið, sem mótast hafði á umbrotatímabilinu 1942 og festist í sessi í kosningunum 1946 og 49, hélst í allföstum skorðum fram undir 1970 (Helgi Skúli Kjartansson: Ísland á 20 öld.)
Lýsing Lúðvíks Jósefssonar (1914-1994) á stöðu stjórnmála á hernámsárunum, er áhugaverð: [V]oru íslenzk stjórnmál í sérkennilegri millistöðu. Gömlu og stóru stjórnmálaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, höfðu lent í hatrömmum deildum og gátu ekki komið sér saman un neitt. Alþýðuflokkurinn var veikur flokkur eftir margvísleg mistök og óeiningu. Sósíalistaflokkurinn var nýr á Alþingi, orðinn býsna stór og naut augljóslega mikils fylgis í hinni sterku verkalýðshreyfingu. Í landinu ríkti hernám og mikil upplausn á mörgum sviðum. Alþingi reyndist ófært um að mynda þingræðislega ríkisstjórn og því var skipuð sérstök utanþingsstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn átti í basli: Áttundi og níundi áratugur [síðustu aldar] hefur verið erfiður Sjálfstæðisflokknum í samanburði við dýrðardagana, þegar Ólafur Thors (1934-1961) og Bjarni Benediktsson (1961-1970) veittu flokknum sterka forystu. (Ólafur Th. Harðarson og Gunnar H. Kristinsson þýðing undirritaðs.)
Ellert B. Schram var einn þeirra, sem gagnrýndu Sjálfstæðisflokkinn: Ellert segir um gömlu flokkana: Þeir ríghalda í gamla, pólitíska löggjöf, sem þeir hafa tekið í arf mann fram af manni, svo langt sem elstu menn muna. Þannig passa þeir upp á gamla og úrelta byggðastefnu og kosningalöggjöf. Halda upp gömlu og rándýru kerfi með niðurgreiðslum, bæði í landbúnaði og öðrum atvinnugreinum. Halda í hitt og halda í þetta. Passa upp á kerfið og um leið á sjálfa sig. (Ásgeir Hannes Eiríksson.)
Þegar í lok sjöunda áratugar síðustu aldar, þegar Viðreisnarstjórn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks var að renna skeið sitt á enda, hafði Sjálfstæðisflokkurinn átt aðild að stjórnum í 33 ár síðustu hálfu öldina. En svo fór ásýndin að breytast, þótt kjarninn væri sá sami:
Í kosningum árið 1987 verða straumhvörf. Samtök frjálslyndra og vinstri manna var stofnað 1969 og fékk 8,9% atkvæða í kosningunum 1971. Samtök um kvennalista hlutu eftirfarandi fylgi: 1983 5,5% og 1987 10,1%; Bandalag jafnaðarmanna naut árið 1983 7,3% fylgis og Borgaraflokkur árið 1987 10,9%. Þannig var fylgi fjórflokkanna í sögulegu lágmarki 1987. Þeir náðu aðeins ¾ atkvæða í kosningum. Í kosningunum árið 1987 var fjórflokknum verulega ógnað m.a. með nýjum framboðum, t.d. borgaraflokki Alberts Sigurðar Guðmundssonar (1923-1994). Virtist sem fylgi hans væri fremur en áður sótt til efri laga eða yfirstétta (upper class) samfélagsins. (Ólafur Th. Harðarson og Gunnar H. Kristinsson)
Enn klofna flokkar og sameinast, ekki síður vegna persónulegs ágreinings en málefnalegs, sbr. Borgaraflokkinn, Frjálslynda flokkinn, Samtök frjálslyndra og vinstrimanna og Vinstri-græn. Síðustu dæmin eru Viðreisn og Miðflokkurinn. Sósíalistaflokkurinn rís nú upp frá dauðum. Flokkur fólksins boðar svipaða stefnu. Gamli Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið endurnýjuðu ástir sínar í Samfylkingunni.
Kvennaframboðið, sprottið úr jarðvegi Alþýðubandlags að mestu, gaf upp öndina, en kvenfrelsun lifir góðu lífi í öllum flokkum, meira að segja Sjóræningjaflokknum (Pírötum), sem beita sér m.a. fyrir bleikum sköttum og fóstureyðingum. Þeir segjast nú ætla að venda sínu kvæði í kross í samræmi við kosningaloforðin: Ekkert kjaftæði og greiða okkur laun fyrir að vera til.
Í raun er varla eðlismunur á stefnu flokkana, einungis tilbrigði við sömu stefin. Andi fjórflokksins lifir enn í verkum hans og holdgervðist í síðustu ríkisstjórn. Herópið, öreigar allra landa sameinist, heyrist ekki lengur. Kvenfrelsarar allra flokka sameinist, á betur við eins og starf Alþingis ber vitni um.
Við búum sem sé í jafnaðarmennskusamfélagi, sem fjórflokkurinn lagði grunninn að með ofurforsjá og -afskiptum hins opinbera, löggjafa og stjórnsýslu, ásamt óhjákvæmilegum fylgifiskunum, ofurskattlagningu og -gjaldheimtu.
En nú siglum við hraðbyri í átt að kvenræðissamfélagi, Grýluveldinu. Það skiptir í sjálfu sér engu máli, hvort skipsstýran heitir Bjarni eða Katrín eða Sigurður Ingi. Hvað skal kjósa?
Sighvatur Kristinn Björgvinsson (f. 1942) leiðbeinir okkur í þessari grein. Hann velkist ekki í vafa:
https://kjarninn.is/skodun/atkvaedi-greitt-vg-atkvaedi-greitt-sjalfstaedisflokknum/
Út er komin «Skýrsla um Kynheilbrigði og ofbeldisvarnir í grunn- og framhaldsskólum. Greinargerð og tillögur starfshóps.» Hópurinn, sem skipaður var af Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, kemur úr nokkrum áttum: Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Stígamótum, Embætti Landlæknis, Menntamálastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambandi Íslands, Kynís (Kvenkynfræðingafélagi Íslands -) og Sambandi íslenskra framhaldsskólanema. Leiðtogi hópsins var Sólborg Guðbrandsdóttir, laganemi, skipaður af Lilju sjálfri. Lilja skipaði einnig Unni Þöll Benediktsdóttur, meistaranema (í sálfræði) í hópinn og tvær konur aðrar; Sigríði Dögg Arnardóttur, kynfræðing, og Sóley Sesselju Bender, hjúkrunarfræðing og doktor í kynheilbrigði.
Það vakti nokkra athygli, að í hópinn voru skipaðar ellefu konur og tveir karlmenn. Það fór þó verr en á horfðist. Annar þeirra heltist úr lestinni, Ingólfur Atli Ingason, fulltrúi Samfés. Hinn pilturinn, S. Maggi Snorrason, er nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík.
Það vekur furðu, að Stígamót skuli skipa fulltrúa, en það verður ef til vill skiljanlegra í ljósi þess, að hér er spyrt saman kynheilbrigði og ofbeldi. Það skýrir væntanlega einnig skipun KÍ í hópinn, en þar fer engin önnur en Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðingur frá HÍ og jafnréttiskennari m.m.. Þar er einnig að finna Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur frá þeim undarlega skóla, Jafnréttisskóla Reykjavíkur. Sú síðarnefnda stýrir einnig rannsóknarréttinum, sem leiða skal Knattspyrnusamband Íslands út úr myrki ofbeldishegðunar karla.
Það fer varla milli mála, að skipun nefndarmanna bendir sterklega til kvenfrelsunarfræðilegrar slagsíðu og ber vott um afar sérkennilega jafnréttishugsun. Þegar Lilja var innt eftir hlutfalli kynjanna við skipunina, svaraði hún því til, að hún hefði barasta ekki fundið fleiri viljuga karlmenn, en nefnda tvo framhaldsskólanema. Æ, æ!
Í inngangi stendur: Mikil vitundarvakning hefur orðið á síðastliðnum árum um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi. Í þessari skýrslu er fjallað um hugmyndafræði kynheilbrigðis og alhliða kynfræðslu, lagalega skyldu og samþykktir en jafnframt um aðalnámsskrá grunn og framhaldsskóla.
Tíndar eru til skilgreiningar frá alþjóðastofnunum, t.d. Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, um alhliða kynfræðslu. Í þýðingu hópsins hljómar hún svo: Alhliða kynfræðsla er ferli sem byggist á námsefni um kennslu og nám sem fjallar um þekkingarlega, tilfinningalega, líkamlega og félagslega þætti kynverundar. Hér er varla blöðum að fletta um hugmyndafræðina. Kynverund er orðskrípi, sem er kvenfrelsunarfræðileg þýðing á enska orðinu sexuality sem merkir kynferði og kynlíf á íslensku.
Samkvæmt túlkun hópsins á skilgreiningum SÞ, skal miða námsefni við fjölþætt efnisval um kynverund mannsins, og hún skal byggja á umfjöllun um mannréttindi og þess að vera án mismununar (hvað það svo sem merkir).
Í kennslunni skal leggja áherslu á jafnrétti kynjanna og áhrif þess á kynverund einstaklingsins og réttlátt samfélag sem felur í sér gagnrýna hugsun og valdeflingu en jafnframt að skapa jákvæð viðhorf til kynheibrigðis. Valdefling merkir venjulega að blása konum kvenfrelsun í brjóst.
Yfirlýsing Heimssamtaka um kynheilbrigði (WAS - World Association for Sexual Health heimssamtök kynfræðinga) frá 2014 er svo túlkuð: nær rétturinn m.a. til þess að lifa heilbrigðu kynlífi og geta átt ánægjulegt kynlíf þar sem kynferðislegs öryggis er gætt, að geta átt sitt einkalíf, notið jafnréttis og verið án mismununar, laus undan hvers kyns ofbeldi og þvingunum og að geta ákvarðað eigin barneignir.
Síðastnefnda atriðið á trúlega bara við rétt kvenna. Hvað með rétt karla? Og hvað með rétt þeirra, sem eru háðir því að beita ofbeldi í kynlífi sínu til að fá fullnægingu með fúsum elskhugum?
Bent er á nýlegar eigindlegar (qualitative) rannsóknir (venjulega viðtöl við nokkra viðmælendur) hópfélaga og baráttusystra við Rannsóknarstofnun í kynjafræðum við HÍ - og fræðamóður þeirra, Þorgerði Einarsdóttur við HÍ) - á ungum, íslenskum karlmönnum, sem kváðust vilja fá fræðslu um annað og meira en líkamann og kynsjúkdóma. Fræðimennirnir hafa áhyggjur af klámáhorfi piltanna.
Einn kaflanna í skýrslunni ber titilinn; kynjajafnréttisfræðsla og ofbeldisvarnir. Þar er m.a. vikið að félagsmótun sem ýtir undir staðlaðar karlmennsku- og kvenleikahugmyndir, sem aftur ýtir undir valdaójafnvægi, gagnkynhneigðarhyggju og eykur líkur á kynbundnu ofbeldi. Mikilvægt er að þeir aðilar sem sinna kynfræðslu hafi þekkingu á hinum kynjaða veruleika. Búi yfir ákveðnu jafnréttisnæmi og hafi færni til að flétta jafnrétti ætíð saman við kynfræðsluna.
Haft er eftir skólastjóra Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar, að enn í dag gilda strangari kröfur um kynhegðun stelpna en stráka þar sem þær eru kallaðar druslur fyrir sömu hegðun og þeir eru kallaðir folar eða kóngar. Áfram er haldið: Hinar stöðluðu kröfur kynhlutverkanna geta haft skaðleg áhrif á ungt fólk af öllum kynjum því þær ýta undir að stelpur séu óvirkar og leitist frekar við að uppfylla þarfir annarra en sínar eigin og að strákar séu kynferðislegir gerendur sem eiga að líta á kynlíf sem leik og keppni. Ekki má gleyma því að þau sem skilgreina sig hinsegin eru gjarnan jarðarsett í hefðbundinni kynfræðslu sem ekki gerir ráð fyrir ríkri jafnréttisfræðslu samhliða.
Hópurinn er nú kominn hressilega á kvenfrelsunarflug: Líkt og MeToo bylgjan leiddi í ljós er kynferðisleg áreitni og annað kynferðisofbeldi landlægt á öllum sviðum mannlífsins. [Þetta segir einnig ríkisstjórnin.] Klámvæðing, nauðgunarmenning og gerendameðvirkni eru í dag orðin hluti af samfélaginu og félagsmótum barna og ungmenna. Óhugsandi er að nokkur kynfræðsla verði án þess að setja í samhengi við þennan veruleika barna og undmenna. Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta (2019) eru 70% þolenda undir 18 ára aldri þegar kynferðisbrot á sér staða í fyrsta sinn.
Í skýrslunni er vísað til mýgrúts laga og alþjóðasamninga, sem segja, að fullorðnir eigi að bera góðir við börn, sýna þeim virðingu og kenna þeim um kynverund. Samkvæmt túlkun hópsins á samningu Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (2011), skal námsskrá sniðin að skilningi nemenda (kemur varla nokkrum á óvart), svo sem um jafnrétti kynjanna, kynhlutverk sem víkja frá staðalímynd um kyngervingu, gagnkvæma virðingu, friðsamlega lausn deilumála í samskiptum manna á milli, kynbundið ofeldi gegn konum og friðhelgi einstaklinga [ætli hér sé ekki átt við konur?]. Það ber að kynna börnum og ungmennum lög og alþjóðasamninga. Meyjum verður þá kennt, að þær séu fórnarlömb, og sveinum, að þeir séu ofbeldismenn og beri ábyrgð á fórnarlambseymd kvenna.
Vísað er til aðgerðaáætlunar þeirrar fyrir árin 2019-2022, sem Katrín forsætisráðherra, telur svo oft til afreka sinna, þ.e. um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess: Kennslan skyldi endurskipulögð í ljósi MeToo, þar með talin kennsla til nemenda, kennara og annarra sem vinna með börnum.
Í þingályktunartillögu og áætlun fyrir árin 2021 til 2025 var samþykkt að námsefni, sem stuðli að forvörnum gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi, skyldi tryggt öllum nemendum á öllum skólastigum, þar sem tekið væri tillit til mismunandi aðstæðna og ólíkra þarfa nemenda, svo sem fatlaðra barna, hinsegin barna Og svo skal skipa forvarnarteymi til að tryggja kennslu í öllum árgöngum um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi,
Í ljósi framangreinds skyldi engan undra tillögu hópsins: Kynfræðslan verði gerð að skyldufagi fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum og hefjist við upphaf grunnskólagöngu. Og svo skal gæta þess, að rétt kynfræðsla fari fram.
Til viðbótar lögum og alþjóðasamningum og áliti erlendra fagfélags vísa höfundar til verka sjálfra sín og útlendra jásystra í fræðunum.
Sóley S. Bender skrifar í greininni: Virðing: Lykilþáttur í kynheilbrigði ungs fólks: Í íslenskum og erlendum samfélögum bendir margt til þess að vanvirðingar gæti gagnvart kynverund einstaklingsins og er MeToo-byltingin dæmi um viðbragð við þeim vanda. Gerð var endurgreining á tveimur eigindlegum rannsóknum sem byggðust á viðtölum við unga menn. Einnig var byggt á MeToo-frásögnum af kynferðisofbeldi gagnvart unglingsstúlkum. Niðurstöður sýna að sjálfsvirðing er ungum karlmönnum mikilvæg í jafningjahópum en einnig við kaup og notkun smokka. Þeim finnst mikilvægt að virða samþykki hins aðilans og telja virðingu vera einn af lykilþáttum góðs kynlífs. Vanvirðing ungra manna birtist í umræðu um ráðandi karlmennsku en einnig þegar samþykki fyrir samförum er hunsað. Lýsingar á nauðgun unglingsstúlkna sýna fram á mikla vanvirðingu gagnvart rétti þeirra til kynheilbrigðis.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Þórður Kristinsson og Þorgerður J. Einarsdóttir, segja í grein sinni: Kynlífsmenning framhaldsskólanema frá sjónarhorni ungra karla: Tekin voru einstaklings- og rýnihópaviðtöl við 11 stráka á aldrinum 18 til 21 árs úr tíu framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Þannig eiga strákar og ungir karlar gjarnan að vera virkir kynferðislegir gerendur og mikil reynsla á kynlífssviðinu þykir eftirsóknarverð. Stelpur á hinn bóginn eiga að halda sig innan ákveðins ramma og takmarka fjölda bólfélaga, annars eiga þær á hættu að fá á sig druslustimpil.
Lóa Guðrún Gísladóttur Ragný Þóra Guðjohnsen og Sóley S. Bender, skrifa bókarkaflann: Stelpan er einhvern veginn hlutur, hún á að gegna okkur. Sýn ungra karlmanna á kynheilbrigði og Me-Too byltinguna (Í Fléttum útgefnum af RIKK Rannsóknarstofnun í kvennafræðum, HÍ.):
#MeToo-byltingin varpaði ljósi á ýmsa þætti sem snúa að framkomu karla í garð kvenna. Greinin fjallar um niðurstöður eigindlegrar rannsóknar á viðhorfum ungra karlmanna til kynheilbrigðis og skilaboða #MeToo-byltingarinnar. Í rannsókninni voru tekin viðtöl við sex karlmenn á aldrinum 1821 árs sem valdir voru með tilgangsúrtaki. Þá kom fram að þeir telja skilaboð #MeToo-byltingarinnar mikilvæg fyrir samfélagið. Á sama tíma viðurkenna þeir að byltingin og skilaboð hennar séu töluð niður í strákahópum og að þeir hafi sjálfir tekið þátt í að ræða um stelpur á niðrandi hátt innan vinahópsins. Þeir töldu slíkt tal eiga rætur í hugmyndum ungra karlmanna um kynhegðun og kynheilbrigði, sem gjarnan kæmi úr klámefni þar sem stelpur væru kynferðisleg viðföng.
Fræðilegur bakgrunnur: Hugmyndafræðilegt líkan um kynheilbrigði: Tolman og félagar settu fram hugmyndafræðilegt líkan um kynheilbrigði stelpna sem byggist á ýmsum rannsóknum, bæði eigindlegum og megindlegum. Við þróun líkansins lögðu höfundar til grundvallar femínísk fræði með sérstöku tilliti til þvingaðrar gagnkynhneigðar. Lögðu þeir áherslu á kyngervi (e. gender) sem mikilvægan þátt félagslegs réttlætis en einnig félagslega mótunarkenningu (e. social construction theory) og sambandskenninguna (e. relational theory). Þvinguð gagnkynhneigð er afar áhugavert hugtak.
Rannsókn Guðbjargar Hildar Kolbeins er megindleg, þ.e. rafræn spurningalistakönnun: Aðalmarkmið þeirrar rannsóknar, sem hér er kynnt, er að endurtaka rannsókn sem gerð var árið 2006 á klámnotkun og kynlífshegðun íslenskra framhaldsskólanemenda; sérstaklega með tilliti til þeirra tæknibreytinga sem orðið hafa síðasta áratuginn sem aukið hafa aðgang að klámi og auðveldað dreifingu á kynferðislegu efni. Á vormánuðum 2016 var því lögð fyrir rafræn könnun meðal nemenda, sem náð höfðu 18 ára aldri, í 28 skólum á framhaldsskólastigi á öllu landinu, og tóku á annað þúsund nemendur þátt í henni. Niðurstöður sýndu að 92% svarenda töldu sig hafa séð klám, og að 17% þátttakenda skoðuðu klám af fúsum og frjálsum vilja næstum því á hverjum degi, og jafnvel oft á dag. Klám, sem að mestu leyti er skoðað á vefsíðum, er aðallega notað til sjálfsfróunar í einrúmi heima hjá sér, enda sögðu þátttakendur að klámið hefði fyrst og fremst kynferðislega örvandi áhrif á sig. Helst vildu þátttakendur sjá kynmök karls og konu, og munnmök. Rúmlega átta af hverjum tíu svarendum fannst klám gefa ranga mynd af kynlífi, en um þriðjungur hafði samt reynt eitthvað sem hann hafði séð í klámi og fundist það spennandi. (GHK getur ekki rannsóknaniðurstaðna, sem fráleitt benda til þess að klámáhorf stuðli að kynofbeldi í garð kvenna.)
Afar líklegt má telja, að námefni og kennsla verð sniðin að þessum tillögum í megindráttum. Hún bendir til sömu áttar og lög um Kynrænt sjálfræði, sem þingheimur samþykkti (hér um bil með lófataki) fyrir skemmstu. Íslendingar feta enn í (ógæfu)spor Bandaríkjamanna og fleiri vestrænna þjóða. Barist skal gegn þvingaðri gagnkynhneigð. Framtíðarfleyinu er haldið á vit kynleysunnar, frekara óöryggis, angistar, þunglyndis og kynbrenglunar barna og ungmenna. Þekking, skynsemi, reynsla og vísindi, víkja fyrir kvenfrelsunarhugmyndafræðinni.
Norður-amerískur spaugari segir, að eftir um hálfa öld verði fólk almennt kynlaust á Vesturlöndum. Þá loksins verður kvenfrelsunar ekki þörf. Allir hafa frelsast. Af himni ofan (eða neðan úr helvíti, en þar telja kvenfrelsarar, að ég muni vistast) mun ég svipast um í kynleysulandinu, Grýlu- eða Gyðjuveldinu, og skoða, hvernig kynleysunum tekst að ganga í fótspor karla frá dögun mannkyns; að skapa nýja tækni og vísindi til ferðalaga, framleiðslu og framfærslu og æðri hugsunar auðvitað. Hamingjan er undir því komin og hún skiptir öllu máli. Kvenfrelsun verður alla vega ekki í askana látin og engin hamingja hefur henni fylgt.
https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/MRN/Sk%c3%bdrsla%20starfsh%c3%b3ps%20um%20kynfr%c3%a6%c3%b0slu%20010721.pdf
Eldri færslur
- Október 2025
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021