Algleymi alræðislýðræðisins

Maður er nefndur John Laughland. Hann er Breti og talsmaður „Alþjóðlegu lýðræðissamtakanna“ (Forum for Democracy International). Fyrir drjúgu ári síðan var John handtekinn á Gatwick flugvelli á grundvelli laga um vernd gegn hryðjuverkamönnum á landamærum heimsveldisins. Þau heimila lögreglu að handtaka hvern sem er, án rökstudds gruns um hryðjuverk. Hryðjuverkalögreglan tók traustataki tölvu John m.a.

(Þetta eru svipaðar aðfarir og þegar Evrópusambandið gerði brottrækan rússneska heimspekinginn, Alexander Dugin. Honum var í raun refsað fyrir hugsanaglæp. Hugsanaglæpurinn er trúlega hrifning af rússnesku þjóðinni og sú sannfæring, að hana beri að verja.)

Hver ætli séu hryðjuverk John? Vísbending fæst við að skoða greinar hans. John skrifar m.a. um gerræðisstefnu breskra stjórnvalda. Hann bendir einnig á, hvernig bandarísk yfirvöld beita svokallaðri réttindabaráttu sinni í þágu homma, lesbía, hinsegin, kynsegin, tvíkynja, millikynja og kynskiptinga, sem tæki í heimsveldisstefnu sinni. Evrópusambandið og Nató fara að dæmi þeirra.

Kit Klarenberg er breskur blaðamaður, sem einnig var handtekinn og yfirheyrður fyrir hryðjuverkastarfsemi sína. Hún felst m.a. gagnrýnum skrifum um leyniþjónustur Breta og Bandaríkjamanna, ákvarðanir stjórnvalda, sem ekki þola dagsljós. Síðasta grein Kit fjallar um þátttöku Breta í harmleiknum fyrir botni Miðjarðarhafs, sérstaklega vopnasendingar frá herstöð Breta á Kýpur og breska sérsveitarhermenn á Gaza.

Sömu örlög og Kit hlutu blaðamennirnir, Johanna Ross, sem neitaði að taka undir í andrússneska kórnum, og Vanessa Beeley, sem er blaðamanna fróðust um stöðu mála í Levantíu, og gagnrýnt hefur stefnu Ísraelsstjórnar.

(Þetta minnir óneitanlega á viðurlög þeirra, sem ekki tóku þátt í kór lyfjaframleiðenda og stjórnvalda um dásemdir bóluefnanna við covid-19. Sumir voru meira að segja neyddir til að taka geðveikislyf.)

Franski útgefandinn, Ernest Moret, sem hafði mótmælt „umbótum“ Emmanuel Macron í París, var boðinn velkominn með sama hætti og ofangreindir. (Sjá t.d. grein á Greyzone, um Julian Assange og Craig Murrey, sem bönnuð er á Fésbók.)

Craig John Murray, er skoskur að ætterni, fyrrverandi sendiherra Breta í Usbekistan, blaðamaður og mannréttindafrömuður. Hann var handtekinn nýlega, eftir komuna frá Íslandi, þar sem hann m.a. tók þátt í mótmælum gegn slátrun ísraelsku varnarsveitanna (eins og kristilegir jafnaðarmenn (Sjálfstæðisflokkurinn) á Íslandi kalla ísraelska herinn) á óbreyttun borgurum á Gaza.

Hann fékk svipaða úreið og John og Kit. Breska hryðjuverkalögreglan vildi ólm fá að vita, hvað ræðumennirnir á Íslandi hefðu sagt. (Nú ættu þeir að vara sig!) Craig hefur m.a. bent á dóma Alþjóðaglæpadómstólsins um sífelld stríð og erjur milli Ísraela og Palestínumanna. Þar segir m.a. að ísraelska ríkinu sé rétt og skylt að tryggja öryggi þegna sinna, en ekki með almennu harðræði gegn Palestínumönnum og aðskilnaðarstefnu, t.d með því að girða þá af.

Rangir blaðamenn eiga undir högg að sækja í lýðræðisríkjunum. Julian Assange rotnar í bresku fangelsi. Svíar, Bandaríkjamenn og Bretar, hafa allir gert atlögu að honum fyrir að ljóstra upp leyndarmálum valdhafa lýðræðisríkja.

Ísraelsku varnarsveitirnar myrtu Shireen Abu Akleh á Vesturbakkanum. Um fjörutíu palestínskir blaðamenn hafa verið drepnir á Gaza.

Vestræn lýðræðisríki stefna hraðbyri í svipaða átt og Ítalir og Þjóðverjar á fjórða áratugi síðustu aldar. Þegnar þeirra eru sviptir lýðréttindum og stofnun samfélagsins er beitt í þágu ofstopa- og alræðisafla. Trúlega er Ísrael lengst komið í þessu efni. Þar vinnur Likud flokkur Benjamin Netanyahu að því að ónýta hæstarétt þjóðarinnar.

Framkvæmdastjóra Nýju-Jórvíkurdeildar Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Craig Mokhiber, er nú nóg boðið, eftir áratuga starf. Craig sagði stöðu sinni lausri. Afsagnarbréf hans er afar fróðlegur lestur. Hann lýsir því m.a., hvernig þrýstihópar á vegum ísraelskra stjórnvalda ota sínum tota hjá Sameinuðu þjóðunum. Hann kallar hernað Ísraela á Gaza dæmigert þjóðarmorð.

„Á skrifandi stundu býr heimurinn við mikið kvalræði. Það búa margar starfsbræður- og systur [einnig] við. Einu sinni enn erum við vitni að þjóðarmorði í burðarliðnum, og stofnunin, sem við þjónum, virðist ófær um að stöðva það.“

https://fvdinternational.com/article/europe-s-descent-into-totalitarianism https://fvdinternational.com/author/john-laughland https://fvdinternational.com/article/british-totalitarianism https://www.farsnews.ir/en/news/14000729000586/en/Arcive https://fvdinternational.com/article/lgbt-a-weapon-for-american-hegemony https://kitklarenberg.substack.com/p/britains-sas-abetting-gaza-genocide?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=139012115&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.dv.is/frettir/2023/10/16/vinur-kristins-tekinn-hondum-eftir-islandsheimsokn-er-runnid-algert-andskotans-ofsoknaraedi-menn/ https://www.craigmurray.org.uk/ https://nournews.ir/En/News/153204/Former-UK-diplomat-Craig-Murray-detained-after-supporting-Palestine https://www.theguardian.com/world/2023/may/11/shireen-abu-akleh-friends-and-family-call-for-justice-on-anniversary-of-killing https://www.theguardian.com/world/2023/nov/01/un-official-who-denounced-gaza-genocide-was-under-review-after-pro-israel-lobby-complaint https://www.theguardian.com/books/2023/apr/20/chilling-arrest-of-french-publisher-by-uk-counter-terrorism-police-condemned-ernest-moret https://www.craigmurray.org.uk/archives/2023/11/a-textbook-case-of-genocide/ https://www.craigmurray.org.uk/archives/2023/11/the-right-of-self-defence/ https://www.craigmurray.org.uk/archives/2023/10/zionism-is-bullshit-2/ https://www.documentcloud.org/documents/24103463-craig-mokhiber-resignation-letter


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband