Bloggfærslur mánaðarins, júní 2022

Loðnir lófar og lygar. Anthony Fauci. Týnda traustið

Viji menn brjóta heilbrigðisvísindin til mergjar „[e]r fyrsta skrefið að losa sig við þá tálsýn, að tilgangur nútíma læknavísinda sé að bæta heilsu Bandaríkjamanna fljótt og vel. Að mínum dómi er eiginlegur tilgangur fjármögnunar klínískra rannsókna á viðskiptalegum grunni, sá, að hámarka ágóða, en ekki heilsubót.“

Svo tjáir sig John Abrahamson við Harvard læknaskólann, höfundur bókarinnar „Ofurskammtar Bandaríkjamanna: Svikin loforð bandarískra læknavísinda“ (Overdosed America: The Broken Promise of American Medicine), sem kom út árið 2004. Síðar gaf hann út aðra bók um efnið. Meginstef eru m.a. þau, að fyrir lyfjafyrirtækjum vaki fyrst og fremst að selja og að læknar séu í sjálfu sér ofurseldir rannsóknum og leiðbeiningum fyrirtækjanna við lækningar sínar.

Þessi orð fá dýpri hljómgrunn, þegar Anthony Fauci (f. 1940), forstjóri Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar BNA (National Institute of Allergy and Infectious diseases) mælir:

«Atlaga að mér, jafngildir atlögu að vísindunum.“ Á sviði læknavísinda eru það orð að sönnu. Anthony hefur verið nær alvaldur fjárveitinga til rannsókna um áratugi, bæði í heimalandinu og á alheimsvísu, stundum í samráði við samherja sína í Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (World Health Organization – WHO) og einkasjóði auðmanna eins og Bill Gates og Wellcome Fund. Hann ávaxtar pund lyfjafyrirtækjanna, sjálfs sín, og stofnunar þeirrar, sem hann veitir forstöðu, eins furðulega og það hljómar.

Anthony var t.d. mjög í mun að telja almenningi trú um, að upphaflega covid-19 veiran hefði fundist í náttúrunni. Hann gekk meira að segja svo langt að sérpanta rannsóknir í því skyni að gera lygar sínar trúverðugri.

Þar með er saga Anthony ekki sögð. Ferill Anthony er ófagur, að dómi Vera Sharav (f. 1937), stofnanda „Samtaka um mannvernd við rannsóknir“ (Alliance for Human Research Protection). Hún hefur grandskoðað rannsóknir á börnum í Bandaríkjunum og víðar um árabil. Vera sagði: „Fauci fægði barasta öllum dauðu ungbörnunum undir teppið. Þau voru hliðartjón (collateral damage) á framabraut hans. Þau voru sorpbörn (throw away).“

Og hvergi nærri er lokið Anthony sögu Fauci.

https://childrenshealthdefense.org/defender/fauci-collins-evidence-covid-lab-leak/ https://www.youtube.com/watch?v=91Ib5NjSZ-o https://cepr.net/sickening-indeed-a-review-of-sickening-by-john-abramson/ https://www.youtube.com/watch?v=pFoaBV_cTek https://www.theepochtimes.com/mkt_app/fauci-was-told-privately-by-key-scientists-that-natural-origin-was-highly-unlikely-newly-unredacted-emails-confirm_4207003.html?fbclid=IwAR2PB4KchknUh1tJ8Cpb0VhywVe2mIt92P9vi1WXCUsHWUYc_kZSnzykqNM?v=ul https://www.youtube.com/watch?v=e-4zthajoOc https://www.theepochtimes.com/mkt_app/fauci-has-lied-about-lockdowns-vaccines-therapeutics-and-the-wuhan-lab-why-is-he-still-in-charge-of-our-nations-response-truth-over-news_4225867.html?fbclid=IwAR0FvJINW0OJ2ljbi5cy_5OgSdDk0jpuHqfjUIsco5xwDqhYeYjuANKE3_M?v=ul https://www.theepochtimes.com/mkt_app/fauci-has-lied-about-lockdowns-vaccines-therapeutics-and-the-wuhan-lab-why-is-he-still-in-charge-of-our-nations-response-truth-over-news_4225867.html?fbclid=IwAR0FvJINW0OJ2ljbi5cy_5OgSdDk0jpuHqfjUIsco5xwDqhYeYjuANKE3_M?v=ul


Ofbeldiskonur, ofstæki og mee-too Amber og Johnny

”Gerðu það heyrum kunnugt, Johnny, segðu þeim: ”Ég, Johnny Depp, karlmaður, ég er einnig fórnarlamb heimilisofbeldis” og sjáðu til, hversu margir trúa þér eða taka afstöðu með þér.” Þetta sagði Amber Heart við ástmann sinn. Svo ólíklega fór, að fólk lagði trúnað á sakleysi Johnny og Amber var dæmd fyrir allra handa ofbeldi í garð andskota síns. Þetta kynni að benda til efasemda um kvenfrelsunarboðorðin og marka viðsnúning þeirra trúarbragða - og jafnvel stjórnarstefnu - á Vesturlöndum, að konum skuli alltaf trúa og að konur séu ævinlega kúguð fórnarlömb karla.

Svipaða sögu segir Bettina Arndt frá Ástralíu. Pilturinn, sem hún í áraraðir hefði reynt að rétta hjálparhönd gegn sýndar- eða kengúrudómstóli tiltekins háskóla, var fundinn sýkn saka, þegar mál hans rataði fyrir alvöru dómstól, enda þótt nú sé réttarskilningurinn á þann veg, að fólk skuli álitið sekt uns sakleysi verði sannað.

En það gerði einmitt dómstóllinn í Ástralíu. Hann trúði framburði piltsins, sem sagði farir sínar ekki sléttar. Hann hafði ásamt vinum sínum aðstoðað ofurölvi skólasystur upp á herbergi í vistinni. En skyldilega vaknaði hún úr dáinu, gröð og glöð og gerði skólabróðurnum glingrur ákaflega. En hann var ekki til í tuskið. Engu að síður náði hin þurftamikla mær niður um hann buxunum. Hann stóð með þær á hælunum, þegar vinkonurnar komu á vettvang. Þá var ekki sökum að spyrja. Pilti var vísað úr skóla fyrir kynferðislegt ofbeldi.

Það hefur reyndar legið fyrir í áratugi í endurteknum niðurstöðum alvörurannsókna, að konur beri ekki síður ábyrgð á kynofbeldi eða heimilisofbeldi; löðrungi og svívirði karla sína engu minna en þeir kerlur sínar. Aukin heldur eru börn fremur ofbeldisfórnarlömb mæðra en feðra og föðurlaus börn eru berskjaldaðri fyrir vondum áhrifum umhverfisins, standa sig verr í námi og ná síður góðum manngerðarþroska. Allt er þetta margrannsakað og þekkt í árafjöld.

Í grein sinni, sem hér er að nokkru leyti lagt út af, nefnir Bettina Arndt nokkrar hinna nýrri rannsókna og drepur á umræðu seinni ára. Kunn rannsókn frá háskólanum í Lancaster á Englandi leiddi t.d. í ljós, að konur væru engir eftirbátar karla í ofríkistjórnun (coercive control). Margt bendir til, að þær séu aukin heldur sérfræðingar á þessu sviði. Amber sýnir dæmigerða hegðun að þessu leyti. Rannsóknir Áströlsku afbrotastofnunarinnar bentu t.d. til, að svipaður hluti barna yrði vitni að ofbeldi mæðra og feðra.

Í réttarhöldunum sagðist Amber ekki hafa löðrungað (punch) Johnny, heldur bara rekið honum kinnhest. Slíkt ofbeldi af hendi konu þykir ekki tiltökumál. Það veldur meira að segja oft og tíðum kátínu. Konur virðast hafa menningarvald til þessa.

Bandaríski félagsfræðingurinn, Murray Arnold Strauss (1926-2016), sem rannsakaði heimilisofbeldi í áratugi, varaði fyrir margt löngu við þessu ofbeldi kvenna, sem raunar felur í sér þá siðareglu, að konum sé heimilt að berja. Yfirlitsrannsókn frá Kansas State háskólanum bendir til, að slíkt ofbeldi af hálfu konu beri að líta á sem áhættuþátt við gagnkvæmt ofbeldi, þ.e. kynni að leysa úr læðingi líkamlegt ofbeldi karla.

Ofstækishugmyndafræði kvenfrelsaranna um heimilisofbeldi varð kveikjan að stofnun kvennaathvarfa um allan hinn vestræna heim. Það hefur reyndar sprottið heill ofbeldisiðnaður og -stjórnsýsla á þessum grunni, sem íslensk stjórnvöld og hluti embættisveldisins veitir brautargengi og tekur virkan þátt í.

Frægt er fyrirbærið, sem kvenfrelsararnir á RÚV kalla „mee-too – byltingu.“ Alþjóðasamtök, sem vinna gegn heimilisofbeldi hafa nú ýtt úr vör átaki, sem kallað er „MenToo campaign.“

Það væri sannarlega fróðlegt að sjá, hvað kvenfrelsunarfréttastofa RÚV muni kalla það fyrirbæri, fjalli hún um það á annað borð. Allavega hefur íslenska karlaathvarfið fengið rýra umfjöllum í sjónvarpi okkar allra. Fjólubláa ríkisstjórnin hefur heldur ekki séð ástæðu til að fjármagna það eins og kvennaathvörfin. Heldur ekki kvenfrelsararnir, sem stjórna Reykjavíkurborg. Vont er þeirra réttlæti, en jafnréttið jafnvel verra.

Harmleikur Amber og Johnny gæti bent til, að sumir séu að átta sig á rétttrúnaðarskekkjunni, þó ekki íslensk stjórnvöld. T.d. örlar fyrir andófi í Danmörku, þar sem m.a. rithöfundurinn og bókmenntafræðingurinn, Marianne Stidsen (f. 1962) , „rífur kjapt.“ Bók hennar heitir hvorki meira né minna en: „Norræna „Me-too“- byltingin 2018 og gjald hennar“ (Den nordiske metoo-revolution 2018 – og dens omkostninger). Bókin kom út 2019, en það gekk ekki þrautalaust og umsagnir kvenfrelsaranna voru einkar fjandsamlegar. Marianne segir:

„Þannig lýstu viðbrögð við bókinni því sem næst meginboðskapnum, þ.e. að við séum á leið inn í nýtt skeið alræðis með skoðanabannfæringu, þykjustumálatilbúnað og höfnun hefðbundins frelsis Vesturlanda í farteskinu. Það kallar Isaiah Berlin hið neikvæða frelsi andstætt hinu jákvæða, sértæka-óraunhæfa (abstrakt-utopiske). [Isaiah Berlin (1909-1997) var rússnesk-breskur heimspekingur, fæddur í Lettlandi, sem heimspekinga mest hefur velt vöngum yfir frelsinu.]

Að mínum dómi var þar með lögð áhersla á verstu tilhneigingu hins nýjar tíðaranda; að fólk sé svo gagntekið hræðslu við að andæfa þeirri velþóknanlegu tortímingu menningarinnar, sem er í burðarliðnum, að stundum mætti ætla, að innleidd hefði verið viðurkennd ritskoðun og vandarhögg.“

Aðra hugrakka konu og réttsýna, Lina Makboul (f. 1973), sem er sænskur fréttamaður, fýsti að vita um þátt fjölmiðla við ofsóknir á hendur karlmönnum og afdrif þeirra, sem féllu hefðu fyrir „mee-too“ spjótum kvenfrelsaranna.

Í því skyni vann Lina rannsókn, sem hún gerði grein fyrir í þættinum „Rannsóknarverkefninu“ (Uppdrag granskning). Hún fékk svipaða útreið og stalla hennar í Danmörku. Lina segir um vond orð í hennar garð: „Ein starfssystranna gekk feti lengra en hinar. Hún hringdi til mín og talaði eins og véfrétt væri. Rannsóknir á „me-too“ jafngiltu því að gagnrýna lögreglumann [„lögreglumanneskju“ á RÚVsku], sem aðstoðar barn yfir götu.“

Hluti starfsins sem blaðamaður er að taka við gagnrýni. En það, sem átti sér stað vorið 2018 var af öðrum toga. En það var andstyggilegt að verða fyrir aðkasti. Það er viðbjóðslegt að verða fyrir hatri. Það er áreynsla að verða fyrir einelti frá ókunnu fólki, sem lítur á sig sem fulltrúa kvenfrelsunarbyltingar.“

https://www.journalisten.se/debatt/sa-har-flyttar-nattrollen-fokus https://www.adlibris.com/no/bok/den-nordiske-metoo-revolution-2018-9788793060951 https://www.expressen.se/kultur/tyvarr-ar-metoo-valdigt-starkt-aven-i-danmark/ https://www.berlingske.dk/aok/to-aar-efter-metoo-kampagnens-start-metoo-er-en-terrorbevaegelse https://bettinaarndt.substack.com/p/whos-next-for-the-star-chamber?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=mvPsle2vMKQ https://www.berlingske.dk/kommentarer/marianne-stidsen-derfor-er-metoo-en-terrorbevaegelse https://www.weekendavisen.dk/2018-16/boeger/striden-om-det-svenske-akademi https://politiken.dk/debat/kroniken/art6367646/MeToo-bev%C3%A6gelsen-er-ude-af-kontrol-i-sin-selvretf%C3%A6rdighed-og-er-blevet-en-usund-folkedomstol1 https://www.visir.is/g/20222243539d/segir-metoo-hreyfinguna-vera-hrydjuverkasamtok?fbclid=IwAR245YaZ3ZR9k_kjKkT67ScIxO0zxOkQoNMH1gspkhmYpQ9Dhx9zdYK8PVU https://mannsforum.no/nyheter/boken-med-kritikk-av-metoo-var-like-vanskelig-a-utgi-som-sataniske-vers/?fbclid=IwAR2ypcV2XT7ZBJy1swNivl72nrs6rHCQzBeYOlQSRsYwKIcdkJd4bnMu_ds http://domestic-violence.martinsewell.com/Straus1996.pdf https://www.youtube.com/watch?v=DzltOobBt0E https://bettinaarndt.substack.com/p/rare-chance-for-truth-telling?s=r https://bettinaarndt.substack.com/p/johnny-depps-restraint?s=r


Klýfur Úkraínustríðið Evrópu í herðar niður?

Evrópuráðið um utanríkismál (European Council on Foreign Relations) er hugveita (think thank) í tengslum við Nató. Veitan hefur nú sent frá sér flunkunýja skýrslu um ástandið í Evrópu með tilliti til Úkraínu – almenningsálitsins sérstaklega.

Hið bannsetta stríð í Úkraínu hefur nú varað rúma eitt hundrað daga, öllum til bölvunar. Íbúar Evrópu voru afskaplega herskáir í byrjun og hugur þeirra stóð upp á gátt fyrir alls konar sögufölsunum og áróðri. Blásið var óspart lífi í gömlu Rússagrýluna – ekki síst á Norðurlöndum. Hugsunum, tilfinningum og viðhorfum fólks var stýrt með hjálp meginstraums- og samfélagsmiðla í eigu örfárra auðkýfinga eða samtaka þeirra. Þeir eru iðulega hliðhollir stjórnvöldum (og eiga þau jafnvel óbeint líka). Fésbók sker sig úr.

Evrópubúar studdu og jafnvel heimtuðu allra handa refsingar gegn Rússum, sem nú bíta sárlega í budduna þeirra. Enda virðist svellandi vígamóðurinn renna hratt af þegnum margra þjóða, nema helst Þjóðverjum, Pólverjum og Norðurlandabúum. Líklega grunar Evrópubúa almennt ekki, að þeir séu peð í alheimsskák stórveldanna, sem þeir eru dæmdir til að tapa. Evrópa og Bandaríkin eru ekki lengur miðás heimsins, sem allt hverfist um. Þau veltast í fjörbrotunum og þegnarnir skilja ekki, hverjum klukkan glymur.

Íslensk stjórnvöld einbeita sér nú að því í boði skattgreiðenda að bjarga úkraínskum köttum og hundum undan illskeyttum Rússum. Eigendum þeirra, konum og börnum, hafa þau áður reynst vel, en stuðlað að kaupum og flutningum á vopnum handa eiginkörlum og feðrum á vígvellinum í töpuðu stríði. Stríðsstjórnvisku íslenskra stjórnvalda og hernaðarsérfræðinga hennar er viðbrugðið nú sem endranær.

Í skýrslunni kemur m.a. fram, að enda þótt samúð með Úkraínumönnum sé sterk og enn sé stuðningur við efnahagsstríð Evrópu gegn Rússum, eykst fjöldi þeirra, sem óska friðsamlegrar lausnar á stríðinu. Um fjórðungur íbúa leggur þó megináherslu á að hirta Rússa.

Og viti menn! Íslenska stríðsstjórnviskan fær vissan hljómgrunn hjá hugveitunni. Hún segir nefnilega, að nú verði stjórnmálamenn Evrópu að girða sig almennilega í brók og semja nýtt áróðursstef, svo almenningsálitið fari ekki úr böndunum. Kynna verður vopnasendingar til Úkraínu og viðskiptarefsingar gegn Rússum sem hluta varnarstríðs Evrópu.

Í sjálfu sér er stefið ófrumlegt. Það var notað á sínum tíma af Bandaríkjamönnum, þegar þeir höfðu forgöngu um eða þvinguðu fram stofnun Nató til varnar blæðandi Ráðstjórnarríkjum og þjóðum á áhrifasvæði þeirra. Sannast nú sem oftar, að fátt sé nýtt undir sólinni. Og það grátbroslega er, að nefndar þjóðir fengu ekki að vera með, hvorki þá né síðar. Og viðskiptaþvinganir eru gömul brella Bandaríkjamanna gegn vanþóknanlegum ríkjum.

Það kemur varla á óvart, að fylgst sé með því voðafólki, sem viðrar annars konar eða bannaðar skoðanir á sköpunarsögu stríðsins í Úkraínu, en stjórnvöldum Evrópu og Nató eru þóknanlegar. Það er eftir föngum reynt að kefla þá, rétt eins og gerist í Rússlandi og Úkraínu sjálfri. Einn þeirra er Ítalinn, Manlio Dinucci, landfræðingur.

Pólverjum virðist sérstaklega í nöp við Manlio og hafa beitt sér fyrir að þaggað verði niður í honum. Pólverjar hafa á stuttum lýðræðisferli sínum greinilega náð tökum á lýðræðislegu umræðusiðferði samtímans.

Pólverjar gætu jafnvel sitthvað nytsamlegt lært um viðbrögð við óæskilegum hugsunum og óæskilegri tjáningu innan íslenska lögregluríkisins. Katrín okkar allra gæti vafalaust bent á leiðir til lagasetningar gegn „hatursumræðu“ og misrétti kynjanna. Hún gæti t.d. bent Pólverjum á, hvernig milda megi misrétti gegn húsmæðrum, þ.e. að skylda hið opinbera að greiða í orlofssjóð þeirra.

https://gilbertdoctorow.com/2022/06/20/right-between-the-eyes-putin-to-the-west-at-the-st-petersburg-economic-forum/ https://www.ft.com/content/10e229b8-fbbd-11e3-ad9b-00144feab7de?siteedition=intl#axzz370Guh7e2 https://www.theguardian.com/uk-news/2015/jan/31/british-army-facebook-warriors-77th-brigade?CMP=share_btn_fb https://en.wikipedia.org/wiki/George_Lakoff#Embodied_mind https://steigan.no/2022/06/vesten-plyndrer-verden-ved-hjelp-av-trykkpressene/ https://www.theguardian.com/world/2001/jun/17/russia.iantraynor https://steigan.no/2013/01/who-are-the-brain-police/ https://www.blackrock.com/corporate/literature/whitepaper/bii-macro-perspectives-august-2019.pdf https://libertyblitzkrieg.com/2014/07/01/was-the-department-of-defense-behind-facebooks-controversial-manipulation-study/ https://www.theguardian.com/world/2014/jul/08/darpa-social-networks-research-twitter-influence-studies https://journal-neo.org/2022/06/21/global-planned-financial-tsunami-has-just-begun/ https://www.theguardian.com/technology/2014/jun/29/facebook-users-emotions-news-feeds https://steigan.no/author/manliodinucci/ https://www.voltairenet.org/article217345.html https://www.corriere.it/politica/22_giugno_05/rete-putin-italia-chi-sono-influencer-opinionisti-che-fanno-propaganda-mosca-fce2f91c-e437-11ec-8fa9-ec9f23b310cf.shtml https://www.voltairenet.org/article215898.html https://ecfr.eu/publication/peace-versus-justice-the-coming-european-split-over-the-war-in-ukraine/


Vísindakreppan 3: Ritrýni, réttsýni og vísindatrú

Bandaríski vísindablaðamaðurinn, David H. Freedman skrifaði: „Enda þótt vísindamenn og vísindablaðamenn hafi iðulega mörg orð um ágæti ritrýninnar (peer review), viðkenna rannsakendur hver fyrir öðrum, að hún sé bjöguð (biased), ósönn, og að jafnvel hreinar svikarannsóknir standist ritrýni.

Í Nature, hefðarfrú (grande dame) vísindatímaritanna, gaf árið 2006 þetta að lesa í ritstjórnargrein: „Vísindamenn hafa þann skilning, að ritrýni í sjálfri sér tryggi aðeins lágmarksgæði og það sé fjarri lagi, að ritrýni sé gæðamerki eins og almenningi er tamt að trúa.““

Þetta kom eftirminnileg í ljós árið 2017, þegar stofnað var þríeyki til höfuðs slælegri eða vondri fræðimennsku. Það skipuðu Helen Pluckrose, sagnfræðingur, James A. Lindsay (f. 1979), stærðfræðingur, og Peter Boghossian (f. 1966), heimspekingur.

Þríeykið settist niður og skrifaði um tvo tugi ”fræðigreina” á sviði menningar og vitundar (t.d. kynjafræða) og einnig svonefndra ”rýnikenninga” (postmodern theory/ critical theory/constructionism). Þessar kenningar fengu byr undir báða vængi um tveim áratugum, eftir lok síðustu heimsstyrjaldar eða um það leyti, sem stúdentaóeirðirnar stóðu sem hæst.

Í stórum dráttum er inntak kenninganna, að í engu megi treysta skilningi á veruleikanum, því hugtökin um hann séu huglægs eðlis. Kenningasmiðirnir segja nauðsynlegt að rífa niður (afbyggja) ríkjandi hugtök um heiminn, svo afhjúpa megi þá kúgun, sem í þeim endurspeglast. (Kvenfrelsarar annarrar og þriðju bylgju gripu þessa speki á lofti og hafa teygt hana út úr allri skynsemi - svo kastar tólfunum.)

Þríeykið skrifar m.a.: „Rauði þráðurinn í niðurrifi þessarar meintu „hugsmíða“ (social construction) og sem mestum áhyggjum veldur, er trúin á brýna nauðsyn þess að rífa niður þann einfalda sannleik, að vísindin séu almennt betur til þess fallin að útskýra hlutlægan veruleika hinna ýmsu fyrirbæra heldur en óvísindaleg nálgun á grundvelli hefðar, menningar, trúarbragða, hugmyndafræði og töfra, [vísindi, sem] í farteskinu hafa bestu, þekktu aðferðirnar til söfnunar upplýsinga, tölfræðilegrar greiningar, prófunar tilgátna, afsönnunar og endurtekningar niðurstaðna.“ … „ …

í huga harmkvælafræðimanna eru vísindin sjálf og vísindaleg aðferð í eðli sínu vandkvæðum bundin, jafnvel beinlínis þrungin kynþáttafordómum og kynfólsku. Því liggur við borð, að þau þurfi að endurskapa til að hlaða undir stjórnmál, sem skipa harmkvælavitundarvakningu ofar hlutlausri sannleiksleit. Þetta gildir einnig um „vestræna“ heimspekihefð, sem litin er hornauga, þar eð áhersla er lögð á skynsemi fremur en tilfinningu, gjörhygli (rigor) fremur en sjálfsveruhyggju (eigingirni), rökvísi fremur en hugljómun.“

Þríeykið skrifaði fjölda tímaritsgreina, sem þau lýsa þannig: „Greinar okkar … eru unnar á grundvelli afar óvandaðra aðferða eins og … ósennilegrar talnanotkunar…, staðhæfinga, sem engin fótur er fyrir í [fals]gögnunum … og eigindlegra greinina af hugmyndafræðilegum toga. Vafasamar aðferðir á borð við sjálfsskoðun … og skáldlegt innsæi eru einnig notaðar.“

„Í mörgum greinanna gerumst við talsmenn afar vafasamrar siðfræði eins og að þjálfa karlmenn sem hundar væru…, refsa hvítum, karlkyns háskólanemum fyrir þrælahald, sem heyrir sögunni til, með því að biðja þá um að sitja hlekkjaðir á gólfinu og halda kjafti í kennslustund. Ætlast var til, að þeir drægju lærdóm af óþægindunum.

[Í sama anda var] lífshættulegri fitusöfnun [hampað] sem heilsusamlegum valkosti í lífinu …, sjálfsfróun [karla] í einrúmi var kynnt sem kynferðislegt ofbeldi gegn konum … og [einnig var kynnt til sögu] forritun yfirburða gervigreindarkonu með alls konar vitleysu og hugmyndafræðilegu þvaðri, áður en henni var gefinn laus taumurinn í veröldinni.

Sömuleiðis var borinn á borð allra handa kjánaskapur. Staðhæft var [til dæmis] að blíðlega hefði verið látið að kynfærum tæplega tíu þúsund hunda, meðan eigendur þeirra voru spurðir spjörunum úr um kynlíf seppanna. [Einnig] var það sveipað dulúð, að gagnkynhneigðir karlar löðuðust að konum; staðhæft, að tilraun, þar sem fjórir karlar voru látnir glápa þúsundir klukkutíma á gróft klám um eins árs skeið, meðan þeir fylltu hvað eftir annað út … [hugrenningalista], gæti varpað ljósi á kvenfrelsun. [Aukin heldur] voru bornar brigður á aukinn áhuga fólks á kynfærum þeirra, sem það hygðist eiga samræði við og karlmönnum ráðlögð ítroðslufróun í endaþarm í því skyni að milda kynskiptafælni sína, auka kvenfrelsunarvild og vakna betur til vitundar um skelfingar nauðgunarmenningarinnar.

Af athugasemdum ritrýnenda varð ekki ráðið, að þeir depluðu við þessu auga, nema … þar sem skráð var „hundanauðgun á klukkutíma fresti“ í hundaviðrunargarði í Portland, Oregon.“

Skoðum önnur sjónarhorn. Donna Laframboise (f. 1963) er kanadískur blaðamaður, ljósmyndari og rithöfundur, með BA gráðu í kvenna- eða kvenfrelsunarfræðum (women studies). Hún skrifaði árið 1996 bókina, “Konungsdóttirin í ljóranum. Andófssjónarhorn kvenfrelsara á karla, konur og kynjastjórnmál” (The Princess at the Window: A dissident feminist view of men, women and sexual politics).

Donna hefur víða komið við. Hún hefur t.d. beitt sér í umhverfismálum og skoðað spillinguna í kanadískum kvennaathvörfum. Þar uppgötvaði ég, segir hún; „fjárhagslega óreiðu, veikburða ábyrgð, ákærur um afbrot, lögsóknir, fjöldauppsagnir og grimmileg, innbyrðis átök. … Umfram allt vakti ég athygli á, að þjónusta, sem væri til þess ætluð að skapa öruggt umhverfi, ylli aftur á móti tjóni.“

Donna hefur ríka réttlætiskennd til að bera. Hún stóð í fylkingarbrjósti, þegar barist var fyrir endurupptöku dóma Guy Paul Morin (f. 1961), sem sat saklaus í fangelsi í sextán ár, fyrir nauðgun og morð á nágrannastúlku.

Það er tvennt, sem einkum gerir Donnu að sérkennilegum kvenfrelsara. Í fyrsta lagi skarpskyggni og hæfileikar til að rökræða staðreyndir. Í öðru lagi dálæti hennar á frelsi – ekki síst málfrelsi. Hún sat um árabil í stjórn „Kanadísku samtakanna um borgaraleg réttindi“ (Canadian Civil Liberties Asssociation). Því má skilja gagnrýnið viðhorf hennar til allra handa rétttrúnaðar eins og t.d. hamfarahlýnunar og kvenfrelsunar.

Donna hefur einnig skrifað bók um umhverfismál, ”Vandræðaunglingurinn, sem af misgáningi var talinn fremsti sérfræðingur heims um umhverfismál,” (The Delinquent Teenager Who Was Mistaken for the World’s Top Climate Expert). Þar brýtur hún m.a. til mergjar skýrslu Alþjóðlegs sérfræðingaráðs á vegum Sameinuðu þjóðanna (Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC)) um umhverfismál.

Það er trúlega vænting flestra, að þar sitji að skrafi og rannsóknum úrvalshópur vísindamanna úr víðri veröld. En samkvæmt rannsóknum hennar er því alls ekki að heilsa. Skýrsluhöfundar eru flestir miðlungar á sínu sviði, hálfskólaðir sérfræðingar og námsmenn – að ógleymdum snotrum aðgerðasinnum. Verulegur hluti undirstöðugagna skýrslunnar er vísindalega vafasamur.

Þetta minnir óneitanlega á aðra stofnun Sameinuðu þjóðanna, kvenfrelsunaráróðursdeild samtakanna, „UN Women.“ Vísindin á þeim bæ eru þó líklega enn þá miklu lakari en hjá IPCC.

Donna hefur í umboði „Stefnumótunarstofnunar um hlýnun hnattarins“ (Global Warming Policy Foundation) skrifað skýrslu um efnið. Stofnunin hefur aðsetur í Lundúnum. Skýrsla kom út árið 2016. „Þar er útskýrt, að helmingur allra útgefinna vísindagagna [um efnið] gæti verið út í hött, þar með taldar rannsóknir á loftslagi, sem liggja til grundvallar áætlunun stjórnvalda með svimandi háa verðmiða (trillion dollar).“

Donna hefur einnig á vegum ofangreindrar stofnunar skrifað álit um ritrýni, sem ber titilinn: „Ritrýni. Hvers vegna efasemdir eru nauðsynlegar“ (Peer Review. Why Skepticism is Essential). Aðfaraorð rita eðlis- og stærðfræðingurinn, Christopher Essex, og fjölfræðingurinn, Matthew (Matt) White Ridley (f. 1958).

Þeir segja m.a., að rannsóknir Donnu á heimildavinnu Intergovernmental Panel on Climate Change, hafi leitt í ljós, að um fjórðungur tilvitnanna sé sóttur í svokölluð grámóskufæði; fréttatilkynningar, þrýstihópaskýrslur og því um líkt, fjarri því að vera ritrýnd vísindi, jafnvel þótt „[r]itrýni sé ekki og hafi aldrei verið almenn vörn gegn fordómum, rangfærslum eða misskilningi um vísindaleg málefni. … [R]itrýni er sannanlega oft og tíðum bjöguð (biased), fordómafull og til málamynda, andstæð algengum væntingum um vísindin í hvívetna.“

Christopher og Matthew minnast á „umhverfisskýrsluhneykslið“ (climate-gate), þ.e. tölvupósta meðhöfunda margumræddrar skýrslu, þess efnis, að ritrýndar rannsóknir, sem þeim hafði verið bent á, en fluttu boðskap, sem andstæður var rétttrúnaði þeirra um umhverfismál, yrði látinn liggja í láginni. Þeir sögðu á þessa leið; við munum sjá til þess, að boðskapurinn nái ekki inn í skýrsluna, jafnvel þótt við verðum að endurskilgreina ritrýni. Fleiri áþekk dæmi eru nefnd, t.d. svæsin aðferðagagnrýni á nokkrar uppistöðugreinar í skýrslunni.

Þeir félagar segja að lokum: „Hin þrúgandi og menntunarsnauða skírskotun til vísinda sem væru þau steinrunnin [kunnátta], sem einungis mætti leggja mat á samkvæmt siðferðilegum hreinleika fremur en nákvæmni um staðreyndir, hefur gert það að verkum, að sanngjörn umræða er því sem næst óhugsandi. [Þetta] hefur bakað okkur öllum feiknalegt tjón.“

Við þetta bætir Donna: „Reyndin er sú, að á líðandi stundu búa vísindin við „endurgerðarkreppu,“ sem er svo svæsin, að ritstjóri málsmetandi tímarits hefur lýst yfir, að „mikið af vísindaritum, jafnvel helmingur þeirra, gæti einfaldlega verið rangur.“

https://www.youtube.com/watch?v=pGPqV_Fwo4Q https://www.netzerowatch.com/christopher-essex-should-we-trust-science/ https://expose-news.com/2022/06/05/real-climate-experts-are-stepping-forward/ https://www.theatlantic.com/magazine/archive/2010/11/lies-damned-lies-and-medical-science/308269/ https://areomagazine.com/2018/10/02/academic-grievance-studies-and-the-corruption-of-scholarship/ https://www.thegwpf.org/donna-laframboise-science-is-in-trouble/ https://www.thegwpf.org/content/uploads/2016/10/PeerReview.pdf


Vísindakreppan 2. Aðferð, inntak og endurgerð

Árið 2005 skrifaði grísk-bandaríski lækningatölfræðingurinn, John P.A. Ionanidis (f. 1965), grein í vísindatímarit um aðferð og endurgerð rannsókna. Titillinn var ógnvænlegur: „Hvers vegna flestar birtar rannsóknaniðurstöður eru rangar“ (Why Most Published Research Findings Are False). Það er óhætt að segja, að rannsóknarniðurstöður hans hafi valdið titringi í vísindasamfélaginu – og varla hefur um hægst.

John komst að þeirri niðurstöðu, að það væri býsna algegnt, að athuganir væri ekki unnt að endurtaka eða endurgera, svo sannreyna mætti fyrri niðurstöður. Niðurstöður hans hafa síðar verið staðfestar að töluverðu leyti í öllum greinum, ekki síst í lækningafræðum og félagsvísindum. Þetta er kallað endurgerðarkreppan (replication crises eða reproduction crises). Því er einboðið, að niðurstöður verði að skoða í gagnrýnu, aðferðafræðilegu ljósi.

Kanadiski sálfræðingurinn, Steven Pinker, segir í þessu sambandi: „Virðing fyrir vísindalegri hugsun er ekki fólgin í þeirri óbilandi trú, að allar vísindalegar tilgátur á líðandi stundu séu sannar. Flestar hinna nýju eru það ekki. Hringrás tilgátna og afsönnunar er sjálf lífæð vísindanna. Sett er fram tilgáta og síðan reynir á, hvort hún stenst tilraunir til að hafna henni.“

Hin vísindalega aðferð er haldbest í baráttunni við hindurvitni, fáfræði og dómgreindarbrest. En sjálfsrýni og meðrýni annarra er nauðsynleg á vísindalegum vettvangi sem og annars staðar. Það er auðvelt að gera sig að fífli. Norður-ameríski eðlisfræðingurinn, Richard Phillips Feynman (1918-1988), sagði skorinort um fyrstu reglu vísindanna: „[Þ]ú ættir ekki að blekkja sjálfan þig – og þig er auðveldast að blekkja.“

Í alvöru vísindum eru gerðar strangar kröfur um sönnunarfærslu, þ.e. að skoða, hvort ákveðin kenning, tilgáta eða fullyrðing, hafi við rök að styðjast, sé raunsönn. Því þarf í sjálfri tilgátunni að segja til um, hvaða niðurstöður eða rannsóknargögn muni annað tveggja, sanna eða afsanna (falcification) hana. Rannsaka má í sjálfu sér, hvað sem er, en samt sem áður er gerð sjálfsögð krafa um, að rannsóknarefnið sé fræðilega undirbyggt með tilliti til þess, sem aðrir hafa gert og í fullum samhljómi við fræðilega (og almenna) skynsemi.

Niðurstöður vísindalegra athuganna verða sem sé að standast gagnrýna skoðun, svo leggja megi mat á áreiðanleika niðurstaðnanna og gildi þeirra mælinga og hugtaka, sem notast er við. Þess vegna er leitast við að staðfesta niðurstöðu með endurtekinni athugun annarra vísindamanna.

Bandaríski stærðfræðingurinn, James A. Lindsay (f. 1979) og breski sagnfræðingurinn, Helen Pluckrose, eru ómyrk í máli um þróun vísindanna:

„Eitthvað hefur farið úrskeiðis í æðri menntastofnunum – sérstaklega á vettvangi hugvísinda. Fræðimennska miðar síður að því að leita sannleikans, en snýst þess í stað um félagsleg harmkvæli (social grievance). [Þetta] er margstaðfest, jafnvel alls ráðandi á nefndum sviðum. [Hlutaðeigandi] fræðimenn iðka það í auknum mæli að þvinga (bully) nemendur, skrifstofumenn og aðrar deildir til að deila heimsmynd sinni. Þessi heimsmynd er ekki vísindaleg, hún er laus í reipunum (not rigorous).“

Það hlýtur að vekja ákveðna undrun og skelfingu jafnvel, að svo sé komið vísindunum. Ætla má, að verulegur hluti þeirra rannsóknaniðurstaðna, sem almúginn og þjónar hans, t.d. heilbrigðisstarfsmenn og stjórnmálamenn, taka mark á, sé ómarktækur.

Bandaríski vísindablaðamaðurinn, David H. Freedman, segir í grein sinni: „Lygar, bannsettar lygar og læknavísindi“ (Lies, Damned Lies, and Medical Science): “Margar af þeim niðurstöðum, sem rannsakendur á sviði lækninga komast að – og í verulegum mæli – eru blátt áfram rangar. Svo hvernig má það vera – í verulegum mæli – að læknar nýti sér falsupplýsingar í daglegu starfi sínu?“

Það eru vafalaust mörg svör við spurningunni. Samkeppni vísindamanna um styrki sem og virðing meðal starfsbræðra og -systra, gæti skipt máli. Hver vill ekki vera vísindamaður meðal vísindamanna. Sumum þykir það hnekkir að þurfa að leiðrétta sjálfa sig, fari þeir villu vegar eða nýjar upplýsingar breyti forsendum niðurstöðu. Vísindamenn eru undir sömu sök seldir og fólk flest.

Áðurnefndur John segir einnig, að aðferðir séu oft og tíðum bjagaðar (bias), villi vísindamönnum sýn. Hann segir: „[S]amansafn alls konar fyrirkomulags (design), gagna, greininga og atriða við framsetningu, skapar þá tilhneigingu, að framleiða rannsóknaniðurstöður, sem ekki eiga rétt á sér.“

Skömmu, eftir að covid-19 heimsfaraldurinn skall á, hafði John orð á því, að covid-19 vísindin endurspegluðu „sannreyndarklúður, sem [einungis] sæist einu sinni á öld.“ Hann reyndi að koma vitinu fyrir forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, með skírskotun til vísindalegrar aðferðar, en án árangurs. Yfirlitsrannsóknir hans á andlátstíðni sökum covid-19 sýkingar sýndu miðgildi á bilinu 0.24 til 0.9%.

Hagsmunir skipta greinilega einnig töluverðu máli við vísindalegar rannsóknir. Rannsóknir John benda til, að þegar lyfjafyrirtækin panti rannsókn á virkni lyfja sinna, sýni þau yfirleitt meiri virkni en samanburðarlyfið (head to head inferiority ramdomized trials). John komst að því, sjálfum sér til mikillar undrunar, að þetta ætti við í 97% tilvika. Síðar hefur t.d. komist upp um margs konar óheiðarleika í rannsóknagögnum Pfizer á covid-19 lyfinu, m.a. að stinga undan gögnum um aukaverkanir. Það eru mörg villuljósin í vísindunum.

Skoski heimspekingurinn, David Hume (1711-1776), sagði um villuljós hugsunarinnar: „Þorri fólks hefur náttúrulega tilhneigingu til að vera fullvist í sinni sök og standa fast á skoðunum sínum. ... Þurfi þeir að hika og vega málin og meta, þá fipar það skilningsgáfu þeirra og tefur þá við verk sín. Þeir eru því ekki í rónni fyrr en þeir losna við allar þessar amasömu vöflur og reyna því að ganga sem allra lengst í kokhraustri vissu og halda í skoðanir sínar af sem mestri þrákelni.“ (Rannsókn á skilningsgáfunni. Þýðandi: Páll Árdal.)

Skýringa er vafalaust einnig að leita í hinni nýju þekkingarfræði, svokallaðri síðnýtímafræði (postmodernism). Í stuttu og einfölduðu máli segja þau fræði, að í reynd séu engar staðreyndir til í vísindum, heldur margs konar sjónarhorn. Sannleikurinn sé í valdinu fólginn.

Þessi kennisetning um þekkingarfræði er víða áberandi við vísindaiðkun. Hún tröllríður eins og áður er ýjað að, samfélags- og hugvísindum. Hér eru nokkur dæmi úr kvenfrelsunarfræðunum, sem í sjálfu sér gilda í grundvallaratriðum um vantrúarkenningar og hin ýmsu fórnarlambs- eða harmkvælafræði (woke theory, social grievance theory, cynical theories, critical theory):

Í ritgerð sinni: „Áleiðis til aðferðafræði kvenfrelsunarrannsókna,“ (Towards a Methodology for Feminist Research), segir Renate Klein (f. 1945): „Í stað þeirrar fullyrðingar, að rannsóknir séu óháðar gildum [og] hagsmunum – og séu óhlutdrægar gagnvart viðfanginu, þarf að koma meðvituð hlutdrægni. ... Óhlutdræg og íhugandi „þekking rannsakandans“ verður að víkja fyrir aðgerðum, hreyfingum og baráttu fyrir frelsun kvenna.“

Barbara du Bois, segir í ritgerðinni „Tilfinningaþrunginni fræðimennsku“ (Passionate Scholarship): „Í hefðbundnum vísindum er brugðist við samkvæmt samhljóma skilningi á veruleikanum. Gengið er að slíkum skilningi sem gefnum, raunverulegum, innan seilingar hugans. Hver sem er getur borið kennsl á hann utan frá, hlutlægt og hlutlaust. Kvenfrelsarar vísa á bug skilningi feðraveldisins á veruleikanum.“

Elizabeth Fee (1946-2018) heldur sig við svipað heygarðshorn. Hún segir í ritgerðinni „Eðli konunnar og vísindalegri hlutlægni“ (Women´s Nature and Scientific Objectivity), að vísindaleg frjálslyndishugsun grundvallist á „röðum kynfólskulegra tvígreininga (sexist dichotomies).“ Hún ítrekar: „Við ætlum, að eiginleikar vísinda séu eiginleikar karla; ... kaldir, hörkulegir, ópersónulegir, hlutlægir. ... Ef við samsinnum róttækum kvenfrelsurum, verður að umhverfa vísindunum. … stofna til nýrra tengsla milli mannveru og eðlisheimsins …“

Þróun samkvæmt fyrrsögðu hefur leitt til ofstækis, rétttrúnaðar, útskúfunar og skerðingar tjáningarfrelsis, þvingunar, brottrekstar og umfjöllunarbanns. T.d. bannaði tiltekinn prófessor við bandarískan háskóla gagnrýna umræðu um hjónabönd samkynhneigðra, fóstureyðingu, hreyfinguna „Líf blökkumanna skiptir máli“ (Black Lives Matter) og svo framvegis. Nemendum, sem dirfðust að daðra við slík umræðuefni af röngum kögunarhóli, yrði vísað úr kennslu.“

Í öðrum háskóla vestan hafs er einungis tekið við nemendum í framhaldsnám í „blakkskinnafræðum“ (black studies). Í þeim þriðja eru nemendur skyldaðir til að gerast sögusmettur gagnvart meðnemendum, sem sýna „kynbundna mismunun“ af einhverju tagi.

 

En það þarf ekki að leita langt yfir skammt. Við háskólann í Gautaborg hefur verið stofnaður rannsóknahópur um „bleikskinnagagnrýni“ (vithetskritik). Við Konunglega tækniháskólann þurfa nemendur að skrifa ritgerð um forréttindi gagnkynhneigðra, karlkyns bleikskinna.

Við íslenska háskóla eru kennarar reknir eða kallaðir á teppið, dirfist þeir að viðra hugsun í blóra við ofangreindan rétttrúnað.

(Efni stóðu til að nefna nokkrar rússneskar heimildir. En netsambandið hefur verið rofið.)

https://www.mindingthecampus.org/2022/03/24/modern-day-brownshirts-suppress-free-speech-at-yale-law-school/?utm_source=NAS+Email+General&utm_campaign=252e02c32c-RSS_EMAIL_CAMPAIGN&utm_medium=email&utm_term=0_407924b2a9-252e02c32c-236730470&mc_cid=252e02c32c&mc_eid=3f29f8eb4a https://expose-news.com/2022/05/19/unprecedented-attacks-on-doctors-and-experts/ https://www.mindingthecampus.org/2022/05/28/how-diversity-promotes-racial-rancor/?utm_source=NAS+Email+General&utm_campaign=ac0f72d14f-RSS_EMAIL_CAMPAIGN&utm_medium=email&utm_term=0_407924b2a9-ac0f72d14f-236730470&mc_cid=ac0f72d14f&mc_eid=3f29f8eb4a https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC9062939/?fbclid=IwAR0Nrwc8DpGOlOvX7xh5PbwBgNtTijhyN_hHyHBGKlYSN7FWTM5WN8fyQpw https://childrenshealthdefense.org/defender/pfizer-document-doctor-gates-foundation-deleted-trial-vaccine-injury/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=0d597c71-4f48-4437-9c39-0d29bbbf8360 https://www.openthebooks.com/the-ingraham-angle-on-fox-news-nih-hides-350m-royalty-payment-stream/ https://expose-news.com/2022/05/22/government-scientists-paid-to-hide-data/ https://childrenshealthdefense.org/defender/pfizer-document-doctor-gates-foundation-deleted-trial-vaccine-injury/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=0d597c71-4f48-4437-9c39-0d29bbbf8360 https://www.theepochtimes.com/english-professor-bans-disagreement-with-woke-topics_3468352.html https://childrenshealthdefense.org/defender/manipulation-guilt-shame-vaccine-compliance/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=e732db12-5c35-4f6c-a7e5-f12633833251 http://xn--knsdebat-54a.dk/blog/?p=318 https://nyheteridag.se/kth-studenter-maste-skriva-uppsats-om-fordelarna-med-att-vara-en-vit-heterosexuell-man/ https://expose-news.com/2022/05/19/covid-lies-high-lethality-no-prior-immunity-none-are-safe/ https://www.mindingthecampus.org/2022/05/16/bending-the-knee-for-diversity-inclusion-and-equity/?utm_source=NAS+Email+General&utm_campaign=93e88c4070-RSS_EMAIL_CAMPAIGN&utm_medium=email&utm_term=0_407924b2a9-93e88c4070-236730470&mc_cid=93e88c4070&mc_eid=3f29f8eb4a https://libjournal.uncg.edu/ijcp/article/viewFile/249/116 https://areomagazine.com/2018/10/02/academic-grievance-studies-and-the-corruption-of-scholarship/ https://www.mindingthecampus.org/2022/03/25/soviet-style-surveillance-at-a-connecticut-university/?utm_source=NAS+Email+General&utm_campaign=252e02c32c-RSS_EMAIL_CAMPAIGN&utm_medium=email&utm_term=0_407924b2a9-252e02c32c-236730470&mc_cid=252e02c32c&mc_eid=3f29f8eb4a https://journals.plos.org/plosmedicine/article?id=10.1371/journal.pmed.0020124 https://www.bitss.org/why-most-published-research-findings-are-false/ https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC1896210/ https://www.bmj.com/content/351/bmj.h4992 https://www.statnews.com/2020/03/17/a-fiasco-in-the-making-as-the-coronavirus-pandemic-takes-hold-we-are-making-decisions-without-reliable-data/ https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S089543561500058X https://www.theepochtimes.com/university-of-chicago-english-department-accepts-applications-only-for-black-studies_3506628.html https://www.gp.se/kultur/kultur/bo-rothstein-acceptera-inte-kr%C3%A4nkthetsstudierna-p%C3%A5-g%C3%B6teborgs-universitet-1.10169896?fbclid=IwAR2nPbhI8j_BiJaX7TvZwGSlNd_YvDXl-9a9s0jcrtxWjULc4FkqdkKzs2M https://www.theatlantic.com/magazine/archive/2010/11/lies-damned-lies-and-medical-science/308269/ -


Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband