Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2022

Karlasláturhúsið Úkraína

”Utanríkismál” (Foreign Affairs) er eitt þeirra rita í Bandaríkjunum, sem að töluverðu leyti endurspeglar og mótar utanríkisstefnu stjórnvalda. Fyrir skömmu birtist áhugaverð grein með fyrirsögninni, „Nú er kominn tími til, að Nató láti að sér kveða í Úkraínu.“ Greinarhöfundar boða beina hernaðaríhlutun bandalagsins, en láti ekki þar við sitja að puðra til Úkraínu vopnum og fjármunum. Síðustu sex mánuði hafa Úkraínumenn þegið átta milljarða dala.

Vopnin, þar á meðal hreyfanlegar eldflaugar (High Mobility Artillery Rocket Systems), eru talin auðvelda gagnsóknir og varnir. En það eru einmitt þessi vopn, sem Rússar hafa eytt, m.a. í Ódessa. Bent er á ályktun síðustu Nató ráðstefnu, þar sem Rússar eru úthrópaðir sem aðalfjendur Nató. Greinarhöfundar túlka sem svo, að þessi ályktun ætti hafa í för með sér meiri hernaðarumsvif. Þjálfa beri fleiri úkraínska hermenn. En Bandaríkjamenn hafa verið, ásamt Bretum og Kanadamönnum, sérstaklega iðnir við þann kolann – einkum eftir valdaránið árið 2014.

Boðskapur höfunda skýtur þó að sumu leyti heldur skökku við, því ekki ber á öðru en að vestræn stjórnvöld séu í anda raunsæisstjórnmála að gefa eftir í efnahagsstríðinu við Rússa; útbúnaði til gasleiðslunnar, Nord Stream I, var hleypt til Rússlands; flutningar til Kalingrad með járnbraut eru leyfðir; bresk tryggingafélög eiga samstarf við rússnesk; ESB gerir undantekningu á vissum viðskiptum með landbúnaðarvörur, áburð og olíu - samtímis því, að Tyrkir og Rússar endurnýja ástir sínar og blása lífi í viðskipti sín á milli. Þar að auki má aftur ræða gjörspillinguna í Úkraínu í meginstraumsfjölmiðlum. Meira að segja RÚV flytur fréttir af ómannúðlegri meðferð fatlaðs fólks (án þess að bendla Vladimir Putin við skömmina).

Staðan á sláturvöllunum, þar sem ungum karlmönnum frá Rússlandi og Úkraínu er att á foraðið, virðist allt öðruvísi en greinarhöfundar og vestrænir miðlar óska sér. Úkraínskur hermaður segir á þessa leið: Það er varla svo, að árásum sé svarað frá varnarvirkjum okkar. Andskotarnir skjóta sprengjum fyrirhafnarlaust í skotgrafirnar og sprengja múrveggi þeirra í tætlur á svipstundu. Við hörfum stöðugt - ekkert hlé og engin hvíld. … Þetta er hakkavél helvítis þar sem hermennirnir nota líkami sína sem skildir væru.

Amnesty International sendi skoðunarhóp til Úkraínu. Í skýrslu hans var Úkraínumönnum álasað fyrir þá herkænsku, að staðsetja bardagasveitir og vopn í íbúðabyggð og í stofnunum. Það þarf varla herfræðinga til að gera sér í hugarlund, að það hafi í för með sér dráp á almennum borgurum. Þetta fór að vonum illa fyrir brjóstið á Volodomyr. Samtökin hafa nú sent afsökunarbeiðni (eða því sem næst). Amnesty benti einnig á, að samtökin hefðu fundið vísbendingar um tilefnislausar árásir Rússa á íbúðarhverfi.

Meðan drápsæðið geisaði í Úkraínu, sátu stjórnvöld vestrænna ríkja, Íslendingar meðtaldir, á rökstólum um það, hvernig reisa mætti Úkraínu úr rjúkandi rústum þess stríðs, sem mörg þeirra eru beinlínis meðábyrg fyrir. Hrossalækningar, þ.e. nýfrjálshyggjulækningar, samkvæmt aðferðum Alþjóðabankans (World Bank) og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (International Monetary Fund) voru til umræðu. Þessi aðferð var m.a. reynd á Rússum á síðasta áratugi síðustu aldar. Rannsókn frá Barnahjálparstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNICHEF) gaf til kynna, að þetta ævintýri undir leiðsögn William (Bill) Jefferson Clinton og Boris Nikolayevich Yeltsin (1931-2007), hefði kostað 3.2 milljónir Rússa lífið.

Leiðandi Úkraínuherfræðingar í Bandaríkjunum og Evrópu beita nú fyrir sig „samskipunarfrelsunarfræðunum“ (intersectionalism) þ.e. baráttufræðum kvenfrelsaranna, þar sem öllum, sem aumir teljast, er skipað í sömu stríðsskör. Enda er kveðið á um það í svokallaðri Lugano áætlun Nató, að jafnrétti kynjanna og meðveru (inclusion) annarra hópa, sem telja sig beitta misrétti, skuli tryggð. Hér ganga í heilagt hjónaband nýfrjálshyggja (neoconservativism) og félagsleg stríðshyggja (social justice warriors). Eymdarhyggjuheimsveldið (woke imperium) kynni að vera í deiglunni.

En það á ekki af íbúum Úkraínu að ganga – sérstaklega karlmönnum. (Konum, börnum, hundum og köttum er komið í skjól.). Drápin halda áfram og berjast skal til síðasta karls. Nýjasta aðildarþjóð Nató, Svíar, ætlar nú opinberlega að leggja sitt lóð á drápsvogarskálina með herþjálfun fleiri úkraínskra pilta. Óskhyggjan um úkraínskan sigur er lífseig og á henni alið.

https://www.reuters.com/world/europe/amnesty-regrets-distress-caused-by-report-rebuking-ukraine-2022-08-07/?fbclid=IwAR0NpAFYaq2oOxKVI-50os9ApguRwwez5Z0Pzsf2JZRnQe8U__h6r3dgpF4 https://steigan.no/2022/08/ostfronten-i-ukraina-kollapser-videre-krig-vil-bare-forsterke-katastrofen/ https://www.indianpunchline.com/ukraine-war-is-losing-its-sparkle-wheres-the-lady-with-the-lamp/ https://steigan.no/2022/08/medier-i-usa-gjenoppdager-korrupsjonen-i-ukraina/?r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://multipolarista.com/2022/02/23/nato-atlantic-council-ukraine-nazi-azov/ https://www.youtube.com/watch?v=_DwOZOaJfY4 https://steigan.no/2022/08/vesten-frykter-det-stadig-tettere-samarbeidet-mellom-tyrkia-og-russland/?r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://multipolarista.com/2022/03/21/cnn-nazi-ukraine-azov/ https://steigan.no/2022/08/ukraina-mens-vi-venter-pa-godot-eller-offensiven-som-aldri-kom/?utm_source=substack&utm_medium=email https://peacediplomacy.org/2022/06/27/woke-imperium-the-coming-confluence-between-social-justice-and-neoconservatism/ https://derimot.no/the-saker-intervjuer-michael-hudson-det-blir-lite-hyggelig-a-vaere-europeere-i-arene-som-kommer/ https://multipolarista.com/2022/03/10/nato-arming-training-nazis-ukraine-azov/ https://www.youtube.com/watch?v=PqCu_gmRLBo https://www.occrp.org/en/the-pandora-papers/pandora-papers-reveal-offshore-holdings-of-ukrainian-president-and-his-inner-circle https://uploads-ssl.webflow.com/621f88db25fbf24758792dd8/62c68e41bd53305e8d214994_URC2022%20Lugano%20Declaration.pdf https://www.epsu.org/article/leaked-documents-show-uk-government-supports-anti-union-labour-reform-ukraine-undermining https://multipolarista.com/2022/03/18/cia-trained-ukrainians-2014/ https://www.19fortyfive.com/2022/08/ukraine-needs-a-miracle-to-drive-russias-military-out-of-kherson/ https://www.friatider.se/forsvarsmakten-ska-utbilda-soldater-zelenskyj https://www.urc2022.com/ https://multipolarista.com/2022/02/27/us-nato-expansion-ukraine-russia-intervene/ https://mronline.org/2022/08/01/west-prepares-to-plunder-post-war-ukraine-with-neoliberal-shock-therapy/ https://www.nachdenkseiten.de/?p=86079 https://nationalinterest-org.translate.goog/feature/ukraine-needs-solutions-not-endless-war-203858?_x_tr_sl=uk&_x_tr_tl=no&_x_tr_hl=no&_x_tr_pto=op,wapp https://www.foreignaffairs.com/ukraine/time-nato-take-lead-ukraine?utm_medium=newsletters&utm_source=twofa&utm_campaign=China%20on%20the%20Offensive&utm_content=20220805&utm_term=FA%20This%20Week%20-%20112017


Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband