Undur og org í Ísrael. Barnamorðinginn brjálast enn

Bandarískar fréttaveitur sýna leiðtoga Ísraelsríkis orga sig rauðan af vanþóknun. Fólk í Bandaríkjunum (og víðar) leyfir sér að mótmæla morðum Ísraelsríkis á varnarlausu fólki. Benjamin ber enn á helfararbumbuna og krefst þess, að bandarísk stjórnvöld stöðvi mótmælin. Hann lítur á sjálfan sig sem fulltrúa Gyðinga í veröldinni.

Bandarískir þingmenn, sem umvörpum eru fjármagnaðir af áróðurs- og styrktarfélögum í þágu Ísraelsríkis, hlaupa til og semja nýja löggjöf (Antisemitism Awareness Act), sem bannar Gyðingahatur, þ.e. sambærileg haturslöggjöf „Katrínar forseta.“ Barnamorðinginn heldur því nefnilega fram, að sá óþverrasíonismi, sem hann er fulltrúi fyrir, sé hin rétta myndbirting Gyðingdóms.

En það er að sönnu fráleitt, sbr. mótmælasögu Gyðinga sjálfra gegn ofbeldisfullri nýlendustefnu Ashkenazi Gyðinga frá Austur-Evrópu, sem tóku virkan þátt í Gyðingadrápum. (Sjá t.d. bók Daphna Levits: „Glímuna við Síonisma: Andmælaraddir Gyðinga (Wresting With Zionism: Jewish Voices of Dissent). Göfugustu Gyðingarnir mótmæla barnamorðingjanum og drápsfúsri hirð hans eins og alvöru spámenn þeirra og afreksmenn gerðu fyrir öld og áratugum.

Mótmælin virðast áköfust í háskólum, sem haldið er á floti af Gyðingum, og að einhverju leyti fjármögnuð af óeirða- og undirróðursmanninum, George Soros, sem víða hefur komið við, þegar uppreisnar- og eyðileggingar hefur verið þörf, bæði innan Bandaríkjanna og utan. Nefna má Georgíu, Armeníu, Úkraínu, Íran, „Black Lives Matter“ og margar undirróðursaðgerðir aðrar.

Hvernig skal skilja þessi firn? Bandaríski blaðamaðurinn, Michael King, segir sem svo, að hér sé „snillingurinn“ Dónaldur Trump að verki með lævíslega aðför að Ísrael, sem hann styðji í orði kveðnu. Varla hefur Gyðingurinn, George, snúist á sveif með fjandmönnum Ísraels? Ætli spádómur Henry Kissinger um fall Ísraels sé að rætast?

Meðan á þessu stendur hamast Bandaríkjamenn, þrátt fyrir nasablástur forseta síns, við að undirbúa frekari þátttöku í sameiginlegu stríði Bandaríkjanna, Ísraels og Breta (og Nató/Evrópusambandsins) fyrir botni Miðjarðarhafs, með byggingu bryggju, sem Ísraelar hafa áður verið andsnúnir. Þar bætast um þúsund bandarískir hermenn við heraflann.

Væntanlega verða þeir þó ekki sendir ofan í göngin til að eltast við Hamashermenn. Ísraelsmenn hafa keypt sér erlenda málaliða til þess arna á alþjóðadrápsmarkaðnum.

Það verður fróðlegt að sjá, hverju samrunaheimsveldi Ísraela og Bandaríkjamanna tekur upp á næst. Erkifjandinn, Íran, hefur skákað þeim svo eftirminnilega með ofurflugskeytum sínum, að kjarnavopn eru líklega einustu drápstólin, sem það á upp í erminni – og ekki hefur verið beitt.

Bretar taka óbeinan þátt í Gazaslagnum frá herstöð sinni á Kýpur og beinan þátt í aðgerðum gegn litla Jemen, sem fullum hálsi rífur kjaft, í raun einasta þjóð veraldar, sem reynir að fara að alþjóðalögum, sem bjóða aðildarlöndum að koma í veg fyrir þjóðarmorð.

Bein og óbein áhrif Ísraelsríkis á stjórnmál Vesturlanda, trú- og fjármál, eru svo gífurleg, að klókur maður komst svo að orði: „Sannleikurinn er sá, að allur heimurinn, nema Gaza, er hersetinn af Ísrael.“

Syndaskrá ísraelskra stjórnvalda er löng. Þeim er sjaldan álasað fyrir samvinnu og fjárstyrk til Hamassamtakanna, sem taka þátt í þessum skelfilega skollaleiki á Gaza og í Ísrael (þ.e. einhver deild innan þeirra). Það er með engu móti unnt að skýra innrás samtakanna í Ísrael öðruvísi en sem svo, að þeim hafi verið „boðið“ inn. Árásin var skipulögð í þaula og ísraelsk stjórnvöld höfðu nasasjón af henni. Þó virðast Hamasliðar ekki hafa vitað af tónleikahaldi á svæðinu.

Þessi manndráp eru enn einn smánarbletturinn á mannkyni.

https://covertactionmagazine.com/2024/04/06/the-ghosts-of-gaza-are-whispering-every-night/?mc_cid=af5fe30ca7&mc_eid=5cd1ec03b1 https://steigan.no/2024/05/amerikanske-stovler-pa-bakken-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.realnewsandhistory.com/anyt-05-01-24/ https://covertactionmagazine.com/2024/04/29/jewish-prophets-who-predicted-nightmarish-escalation-of-israeli-palestine-conflict-were-blacklisted-and-ignored/?mc_cid=aa16e92c2c&mc_eid=5cd1ec03b1 https://efrat.substack.com/p/gazas-new-temporary-port-cui-bono?utm_source=post-email-title&publication_id=1148466&post_id=144195898&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/israel-uses-foreign-mercenaries-gaza/5856051 https://www.globalresearch.ca/top-universities-pro-palestine-encampments/5856022 https://expose-news.com/2024/05/02/george-soros-is-funding-pro-palestinian-student-groups/ https://expose-news.com/2024/04/30/reese-reports-the-zionist-death-grip-on-the-united-states-government/ https://beeley.substack.com/p/zionism-as-a-fascist-ideology-and?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=144120836&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/second-round-retaliation-israel-iran/5855218 https://informationclearinghouse.blog/2024/04/26/first-rafah-then-hezbollah-then-iran-israels-government-plans-for-more-war/11/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/25/naomi-klein-zionism-is-a-false-idol-that-betrayed-every-jewish-value/10/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/25/israeli-council-considers-issuing-international-arrest-warrant-for-netanyahu-report/12/ https://www.globalresearch.ca/israel-s-plans-to-wage-nuclear-war-on-iran-history-of-israel-s-nuclear-arsenal/4477 https://korybko.substack.com/p/the-antisemitism-awareness-act-is?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=144232903&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband