Hörmuleg afdrif Kennedy fjölskyldunnar. Samsæriskenningar

Höfundar heimssögunnar eru eigendur fjölmiðlasamsteypnanna. Sú saga, sem okkur er sögð í dag, eru fréttir hennar síðustu áratugi. Hún er kennd í skólum, verður uppistaðan í vitund okkar og trú jafnvel. Í dag eru sagðar fréttir, sem börnum og barnabörnum verða sagðar sem sannleikurinn um sögu okkar tíma.

Annar veruleikaskilningur og önnur röksemdafærsla en sú, sem svokallaðir meginstraumsmiðlar kynna okkur, er kölluð falsfréttir, upplýsingaóreiða og samsæriskenningar. Reynt er að þagga niður í hlutaðeigandi og þeim útskúfað úr samfélagi hinna boðlegu.

Það er ekki fyrir en leynd ríkisvaldsins af staðreyndagögnum er aflétt og grúskarar skoða staðreyndir, að sönnur eru færðar á æði margar samsæriskenningar. Covid-19 herferð alheimsauðvaldsins og ríkisvaldsins er augljóst dæmi um þessar mundir.

Það eru til sagnfræðingar, sem láta sér ekki nægja að hlusta á fréttaveitur auðjöfra og ríkisvalds, sem er þeim trútt. Ríkisvaldið heldur jafnan úti útvarpsstöðvum fyrir almenning eins og Ríkisútvarpið, Sveriges Radio, Norsk Kringkasting, Danmarks Radio og British Broadcasting Corporation. Skattgreiðendur borga.

Einn hinna óstýrilátu sagnfræðinga er Bandaríkjamaðurinn, Mike King. Hann skoðar frumheimildir og kærir sig kollóttan um rétttrúnað auðjöframiðlanna, þegar svo ber undir.

Enda er hann bannfærður eins og margir aðrir í svipaðri stöðu. T.d. hætti Amazon að selja bækur hans. Mike leyfir sér meira að segja að líta á Adolf Hitler í ljósi tilbrigðanna, en ekki alvondan eins og okkur hefur verið kennt. Aukin heldur færir hann veigamikil rök gegn því, að allir Gyðingar séu sálarlega hvítskúraðir.

Okkur er kennt, að Þjóðverjar hafi átt upptökin að bæði fyrstu og annarri heimstyrjöldinni. Það er í sjálfu sér jafnrétt og að Rússar hafi átt upptökin að stríðinu í Úkraínu, sem að óbreyttu mun þróast í þriðju og síðustu heimstyrjöldina. En var það svo, þegar brotið er til mergjar?

Aðvörunarraddir glymja nú sem fyrr, m.a. frá Robert Kennedy yngri, sem fetar í fótspor föður og frænda og býður sig fram til forseta. Því er ekki úr vegi að skoða stjórnmála- og ættarsöguna. Robert þessi er sonur þess eldri, sem var bróðir Joe, John F. og Edward, og frændi John yngri, sem allir hlutu vofveiflegan aldurtila, en voru að öllum líkindum myrtir.

Fleiri í þessari ólánsömu, en hugprúðu ætt, hafa horfið af sjónarsviðinu með dularfullum hætti; flugslys, bílslys og byssukúlur. Að viðbættri hengingu og hnífstungum eru þetta þekktar aftökuaðferðir huliðsstjórnar alþjóðaauðvaldsins.

Mike telur, að skýringuna sé að finna í hefnd alþjóðaauðvaldsins, gyðinglegrar deildar þess, sem „átti“ báða stríðsbrjálæðinganna, Frank D. Roosevelt og Winston Churchill.

Joseph, ættfaðir Kennedy fjölskyldunnar í Boston, var sendiherra Bandaríkjanna í Lundúnum. Líklega hefur hann unnið sér til óhelgi að vera gagnrýninn og berorður um auðvaldið og þý þess í stjórnmálum.

Joseph var friðarsinni. Hann sá gjörla, hvert stefndi og hverjir báru meginábyrgð; gyðinglegt alþjóðaauðvald í City of London og Wall Street og fyrrnefndir hvolpar þeirra. Joseph átt fund með utanríkisráðherra Þjóðverja og reyndi að ná fundum foringjans. Hann studdi friðarumleitanir Neville Chamberlain. Allt í óþökk F. Roosevelt og W. Churchill.

En eins og kunnugt er kom allt fyrir ekki. Önnur heimstyrjöldin skall á, þegar Þjóðverjar réðust inn í Pólland, eftir árásir Pólverja á landamærastöðvar þeirra og þýska minnihlutann í „pólsku“ Prússíu, sem stórveldin höfðu skapað í „firðarsamningunum“ í Versölum 1919.

Pólverjar höfðu gert „Nató“ samning við Frakka og Breta, sem þótti þeim renna blóðið til skyldunnar eins og í fyrstu heimstyrjöldinni, að frelsa Evrópubúa frá Þjóðverjum, þ.e. þegar stríðshaukar alþjóðaauðvaldsins höfðu sest í lýðræðisstólana.

Það vildi svo vel til, að Chamberlain fór sömu leið og stór hluti Kennedy fjölskyldunnar. Safnaðist til feðra sinna og mæðra.

https://rumble.com/v2vm41k-what-is-the-true-cause-of-the-kennedy-curse.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband