Katrín, kristin trú og klerkurinn, sem segir sjálfbærnimarkmiðin gildru

Ríkisstjórn vor, með græna byltingarleiðtogann, Katrínu Jakobsdóttur, í broddi fylkingar, berst á vegum alheimsauðvaldsins í Sameinuðu þjóðunum og Alheimsefnahagsráðinu, fyrir þróun, samkvæmt svokölluðum sjálfbærnimarkmiðum, Áætlun 2030.

Hún boðar eins konar himnaríki á jörðu eða draumaveröld. Í nýrri, endurræstri veröld, verða allir sælir og saddir, búa við friðsemd og frjósemi, elska frið og strjúka kvið. Þar ríkir sem sé friður og fjölbreytni, regnbogafáninn blaktir við hún.

Konur hafa þá loksins frelsast undan eitruðum körlum og frá bannsettum barneignunum. Börn eru framleidd í meðgönguverum. Þegar þau skríða úr gervileginu er þeim úthlutað kyni, hvorugkyni. Þegar þau komast til vits og ára geta þau valdið sér kyn eða bara verið kynlaus.

Vilji svo óheppilega til, að enn fæðist óstýrilátir drengir (ADHD) mun uppeldis- og barnavernd sjá til þess, að viðurkenndir skurðfræðingar græði í búk þeirra lyfjaskammtara (Rítalín eða sambærilegt) með sjálfvirkni skömmtunarstjórn samkvæmt vottaðri hegðunarmælingu færustu sálfræðinga um æskilega og viðráðanlega hegðun.

Í skammtara þennan má líka setja önnur lyf. Þunglyndis- og oflátalyf eru bráðnauðsynleg til að halda fólki í hamingjusamlegu jafnvægi.

Ef líffæri fara í taugarnar á fólki, getur það snúið sér til vansældarteymis stjórnvalda, sem endurræsir, dópar eða sker, þangað til þau eru sæl og sátt. En bregði til beggja vona má barasta breyta aftur. Því kynið er svo órætt og þjált.

Kúgun kvenna er á enda runnin í draumaríki sjálfbærninnar og börnin hafa alfaríð frelsast frá feðrum sínum. Karlmenn hafa horfið inn í samkyn fjölbreytninnar. Fólk er næstum örvasa af öreiga- og snjallsímasælu einni saman.

Í umboði Úrvalsins, skipað mörgum „Katrínum,“ býður Bónus heimsendingu á vistum með þyrilskutlu eða flygildi, sem flýgur fæðunni beint úr vottuðum framleiðsluverum. Hamingjunni sé lof! Engin losun koltvísýrings.

En það á reyndar bara við um þá hlýðnu, með nægilegan stigafjölda í miðlægum hlýðnistigagrunni. Hinir óþekku geta etið það, sem úti frýs eða stungið höfðinu inn í sjálfsvígshjúpinn í heilbrigðisþjónustunni.

Úrvalið fylgist með heilsu og hamingju sjálfbæringanna. Þeir mæla heilsufar og hollustu hugsana þeirra ekki síður en mataræðis. Lestur er að mestu óþarfur. Innræting réttra viðhorfa berst með örflögum, sem skotið er undir húð eða beintengdar taugkerfinu.

Örflögur koma reyndar með bólusetningum líka. Þær tryggja öruggar sýkingavarnir. Í draumaríki sjálfbærninnar er engin þörf á Landlæknisembætti lengur, því „upplýsingaóreiðan“ hverfur, samtímis falsfréttum og samsæriskenningum.Það verður gott að lifa.

Það er líka óþarfi að spjalla mikið saman. Fólk hittist bara í sýndarveruleikanum. En þó skal aðgát höfð í nærveru sálar eins og skáldið sagði. Innbyggður ritskoðari mun sjá til þess, að engin verði hatursorðræðan. „Egill-inn-við-beinið“ hefur ekkert að óttast.

Það er svo undarlegt með unga menn og roskna kirkjunnar þjóna eins og Manuel Sánchez Monge. Hann veit þetta allt, en samt hreyfir hann mótmælum, segir draumríkið ekki samræmast kristinni trú og góðum gildum og mætri menningu.

Ja hérna! Þetta er bullandi hatursorðræða, upplýsingaóreiða og samsæriskenningasmíði, segir egill-inn-við-beinið. Manuel leyfir sér að segja.

„Sjálfbærnimarkmiðin [Áætlun 2023]um þróun alheimsins („sjálfbærni“ er töfraorðið um þessar mundir, sem felur í sér, hvað sem er) eru að miklu leyti lofsverð og öllum boðleg: vernd náttúrunnar, útrýming fátæktar og hungurs í heiminum, aðgengi allra að drykkjarvatni, og svo framvegis. Öll eru markmiðið nægilega óljóst orðuð til að leyfa hinar margvíslegustu túlkanir.

En að baki Áætlunar 2030 býr viðleitni til að breyta menningunni, ný heimsskipan, sem knýr fram breytingar á trú fólks. Um er að ræða alheimsyfirráð – sem hafa ekkert með alþjóðavæðingu að gera – í því skyni að setja á stofn ólýðræðislega stjórn embættismanna.

Skjalið geymir svo snjallar, almennar yfirlýsingar, að fólk freistast til að trúa því, að framselji það allt vald til Sameinuðu þjóðanna og samþykki Áætlun 2030, muni allt verða í stakasta lagi. En því fer fjarri. Áætlun 2030 er gildra.“

https://www.eldiariomontanes.es/opinion/manuel-sanchez-monge-agenda-2030-nuevo-orden-mundial-20230415072609-nt.html https://www.lifesitenews.com/blogs/new-world-order-spanish-bishop-exposes-uns-2030-agenda-as-an-anti-christian-trap/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband