Uggvænleg þróun í Úkraínustríðinu. Bankar og bólusetningar

Eins og flestum væntanlega er orðið ljóst hófu Nató og Bandaríkin að byggja upp úkraínskan herafla samkvæmt eigin stöðlum, eftir að bandamennirnir höfðu steypt af stóli lýðræðislegri stjórn Úkraínu árið 2014. Skömmu síðar hófst borgarstríð í Úkraínu, þegar íbúar rússnesku menningarhéraðanna, Donetsk og Luhansk, lýstu yfir sjálfstæði. Þar hafa fallið á bilinu 12.000 til 14.000 manns. Úkraínustjórn framdi þessi voðaverk með stuðningi bandamanna sinna.

Minsk friðarsamningarnir voru virtir að vettugi til að kaupa tíma til frekari hernaðaruppbyggingar. Eftir að innrás Rússa hófst fyrir rúmu ári síðan, hafa vestrænir bandamenn stjórnvalda í Úkraínu fjarstjórnað aðgerðum Úkraínuhers, að töluverðu leyti. Þeir hafa einnig haft hermenn á vígvellinum og hluta stjórnstöðvar þeirra er að finna í nágrannalöndunum og í Úkraínu sjálfri.

Þar er líka að finna fjarskiptamiðstöðvar, sem vinna úr njósnagögnum, sem berast utan úr háloftunum, m.a. úr herflygildum Bandaríkjamanna. Eitt þeirra hrapaði í Svartahafið. Rússar náðu því upp og hugsa sér nú gott til glóðarinnar.

Sprenging neðanjarðarstjórnstöðvar Nató og Bandaríkjanna er annað uggvænlegt dæmi um ömurlega þróun í hinu skelfilega stríði, sem Íslensk stjórnvöld styðja af ráðum og dáð. Þeir senda meira að segja Katrínu, forsætisráðherra, og Þórdísi Kolbrúnu, utanríkisráðherra, til að faðma Volodymyr, hugga og hvetja til dáða.

Íslendingar eru ein þeirra fjörutíu þjóða í „alþjóðasamfélaginu,“ sem Bandaríkjamenn hafa í taumi. Ríkisstjórn Íslands og RÚV er tíðrætt um það. Enda faðmast þar þjóðarleiðtogar, klappa og strjúka hver öðrum, hylla og hampa.

En þó kastar tólfunum, þegar þeir veita hver öðrum friðarverðlaun Nóbels. Barrack Obama var heiðraður. Nú er Jens Stoltenberg útnefndur.

Nú færist greinilega sú harka í leikinn, sem rússnesk yfirvöld hafa þrálátlega varað við. Í stað þess að semja frið eins og Rússar hafa jafn þráfaldlega boðið, rekur hver stríðsyfirlýsingin aðra frá Vesturlöndum. Alvarlegust var líklega sprenging gasleiðslunnar í Norðursjónum, sem Norðmenn og Bandaríkjamenn eru ábyrgt fyrir. Hryðjuverk Bandaríkjamanna í veröldinni eru þekkt og óumdeild. Nú skipa Norðmenn sér á jafn óumdeilanlega á bekk hryðjuverkaþjóða.

Í því ljósi má skoða sprengingu umrædds byrgis. Sprengjuflaugin, sem grandaði einhverjum tugum herforingja Nató, er vægast sagt ógnvænleg. Og ástæða er til að ætla, að Rússar eigi nóg af slíkum vígtólaviðbjóði.

Stjórnmálamenn hafa annað hvort ekki áhuga eða þroska til að stöðva þetta stríð. Það er mál að linni. Stríð alþjóðlegra fjármagnsdrottna og flugumanna þeirra meðal stjórnmálamanna, gegn almúganum í veröldinni, birtist á vígvöllum Úkraínu, í veiruvitfirringu og nú í framhaldskollsteypu bankanna. Allar eru þessar hörmungar til þess fallnar, fyrst og fremst, að hrella almenning, ræna hann eigum sínum og troða yfir höfuð hans sívaxandi gerræði. Er um að ræða tortímandi sköpunarverk eða eða siðrof, nema hvort tveggja sé?

Gerræðisþróuninni lyktar – að óbreyttu – með alheimsstjórn. Sú þróun er langt komin á vettvangi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, svo dæmi sé tekið.

Jósef, frelsari lífs vors og ljóss, boðberi lýðræðis, frelsis og mannréttinda, hefur þegar lofað grænu auðjöfrunum í Silicon Valley að bæta þeim inneignartap, alveg eins og Barrack Obma gerði á sínum tíma.

Forsetinn þarf fé í kosningasjóði flokks síns. Kosningar eru handan við hornið, enda þótt í Bandaríkjunum eins og Bretlandi, sé í raun um sé að ræða einflykking, sem í aðalgreinum er leiksoppur fjármagnsauðvaldins og auðhringa.

Jósef minnir óneitanlega á ömmuna, sem sat upp á og þaki og spilaði og söng, meðan kofinn bann til kaldara kola – og ekki síður á rómverska keisarann, Nero, sem lék á fiðlu, með eldurinn bálaði um glugga og göng Rómarborgar.

https://finance.yahoo.com/news/regulators-seize-signature-bank-in-third-largest-us-bank-failure-231404695.html https://www.visionnews.online/post/prepare-for-governments-to-push-cbdcs-in-wake-of-banking-crisis?postId=b60d259b-ec94-4581-97a4-19ffb18b6251&utm_campaign=422d8c91-8db1-4f4a-a8c2-a5687f7c7f39&utm_source=so&utm_medium=mail_lp&utm_content=d97c78dc-e441-4594-9b5e-4bfa05156287&cid=13822ff6-9cac-4fec-a138-6b457b06a2f5 https://steigan.no/2023/03/etter-silicon-valley-er-det-na-tur-for-kollaps-i-credit-suisse-og-enda-et-tap-for-oljefondet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://schillerinstitute.nationbuilder.com/reorganize_the_bankrupt_financial_system https://steigan.no/2023/03/bankenes-korthus-fortsetter-a-rase-de-globale-markedene-skjelver/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.brighteon.com/63bbbb36-72ed-4bd9-ad2c-15689995587f https://www.visionnews.online/post/prepare-for-governments-to-push-cbdcs-in-wake-of-banking-crisis?postId=b60d259b-ec94-4581-97a4-19ffb18b6251&utm_campaign=422d8c91-8db1-4f4a-a8c2-a5687f7c7f39&utm_source=so&utm_medium=mail_lp&utm_content=d97c78dc-e441-4594-9b5e-4bfa05156287&cid=13822ff6-9cac-4fec-a138-6b457b06a2f5 https://schillerinstitute.nationbuilder.com/reorganize_the_bankrupt_financial_system https://steigan.no/2023/03/washingtons-jukeboks/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/03/bankenes-korthus-fortsetter-a-rase-de-globale-markedene-skjelver/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.brighteon.com/63bbbb36-72ed-4bd9-ad2c-15689995587f https://finance.yahoo.com/news/regulators-seize-signature-bank-in-third-largest-us-bank-failure-231404695.html https://www.newsweek.com/who-joseph-gentile-silicon-valley-bank-exec-scrutinized-after-collapse-1787182 https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/michael-hudson-us-bank-crash?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.blackrock.com/corporate/investor-relations/larry-fink-annual-chairmans-letter https://www.theinteldrop.org/2023/03/14/horrific-slaughter-russia-finally-admits-to-destroying-natos-deep-underground-command-bunker-in-kiev/ https://kolozeg.org/massive-media-coverup-after-russias-hypersonic-missiles-decimate-nato-command-in-the-ukraine/ https://steigan.no/2023/03/ble-nato-kommando-i-ukraina-tilintetgjort-av-hypersonisk-russisk-missil/?utm_source=substack&utm_medium=email https://thenextrecession.wordpress.com/2023/03/15/moral-hazard-or-creative-destruction/ https://www.theamericanconservative.com/the-gathering-storm/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband