Draumalýðræðið

Gildi frásagnarinnar eða sögunnar verður seint ofmetið í mannlífinu. Við segjum söguna af okkur sjálfum, fjölskyldunni, hópunum og þjóðinni sjálfri – eða ríkinu og veröldinni. Sjálfsagan verður eins konar skilningsrit, sem stjórnar skynjun, hugsun, tilfinningum og viðhorfum. Sjálfsagan liggur – ásamt eðlinu og hópaðildinni – til grundvallar manngerðinni sjálfri.

Arfur kynslóðanna er mikilvægur með tilliti til frásagnarlistarinnar; þróun tegundar, mannlífsins og menningar. Maðurinn er félagsvera; hópvera, hjarð- eða múgvera. Aðild að hópi er lífsnauðsyn. Því er hópsagan örlagarík, gildi og lögmál (inn)hópsins, hjarðarinnar. Henni fylgir taumhald og viðurlög. Útskúfun, útlegð, skógargangur, er grimmileg refsing. Jaðrar við líflát.

Sjálfsöryggi, innra og ytra öryggi, öryggi hópsins, þjóðarinnar, er önnur lífsnauðsyn. Því hefur ævinlega legið lífið við að greina sem skjótast andskota, óvini, hina, (út)hópinn. Sú þörf virðist rík í mannfélaginu, snar þáttur í sjálfsskilningi hvers og eins, rauður þráður sjálfsgreiningar- og viðmiðunarsögu.

Hinir valda tortryggni, andúð og vekja sjálfsvörn. Meira að segja framandi hugsun og siðir hinna. Reyndar allt sem ógnar sjálfssögunni, hópsögunni. Fólk bregst ókvæða við, ber sér á brjóst með skírskotun til sjálfssögunnar, ver sögu sína, líf og ásjónu. Aðildarviðurkenning hópsins er forsenda sjálfsöryggisins. Án hennar erum við skipreika í lífsins ólgusjó.

En sagan er háð valdi. Hver segir söguna? Hver er sögumaður? Foreldrar, skóli, hópur, stjórnvöld? Hvað er sjálfsvaldið? Valdið til að segja söguna af okkur sjálfum og taka ákvarðanir í eigin lífi og taka þátt í stjórnum samfélagsins, vera jafnoki hinna, jafnrétthár hinum, gildur hluti lýðsins, jafn fyrir lögum og reglum. Sjálfsákvörðunarrétt, frelsi og lýðræði ber oft á góma í því sambandi.

Lýðræði er stjórnunarfyrirkomulag eða -sáttmáli, sem byggir á virðingu fyrir óþvinguðu sjálfsvaldi, þar sem fólk ræður því sjálft, að hve miklu leyti það framselur vald sitt til fulltrúa, sem taka ákvarðanir um stjórn samfélagsins í umboði hlutaðeigandi.

Drauma- eða kjörlýðræði er samfélag fólks, sem býr við óskorðað félagafrelsi, málfrelsi og frelsi til athafna og atvinnu. Í slíku samfélagi eru greinileg skil millum sviða ríkisvaldsins; löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Þessi þrískipting er bundin í stjórnarskrá.

Stundum er talað um fjórða valdið, fjölmiðlunarvaldið, eins konar tjáningarfrelsisvald, viðaukavald við málfrelsið.

Slíkt draumasamfélag er kallað opið og frjálst. Býrð þú í draumalýðræði?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband