Hefndarstríð úkraínskra stjórnvalda gegn eigin þegnum í Donbas

Eins og lesendur kynnu að muna, sögðu Luthansk og Donestsk (Donbas) héröðin skilið við ríkisstjórnina í Kænugarði árið 2014, í kjölfar stjórnarbyltingar Bandaríkjamanna og úkraínskra nasista, sem þjálfaðir voru af Bandaríkjamönnum og fleiri Vesturlöndum. Hinn ungversk-bandaríski George Friedman (f. 1949), stjórnmálafræðingur að mennt og leiðtogi „Skuggaleyniþjónustu Bandaríkjanna,“ Stratfor, sagði byltinguna „augljósustu stjórnarbyltingu í sögunni.“

Stjórnvöld Úkraínu lýstu stríði á hendur íbúum Donbas, sem kostað hefur um 14.000 mannslíf. Donbasbúar nutu stuðnings Rússa. Gyðingum Úkraínu er sömuleiðis hætta búin af stormsveitum nasistanna. Forverar þeirra, úkraínskir og þýskir, myrtu um þrjár milljónir Kænugarðs-Gyðinga í síðasta heimsstríði. Örfáir þeirra, sem undan komust, búa enn í Kænugarði. Gyðingasamfélagið þar telur um 200.000 manns.

Einn af foringjum stormsveitanna, Andriy Yevhenovych Biletsky (f. 1979) hefur lýst ætlunarverkinu svo: „leiða hinn hvíta kynstofn veraldarinnar í síðustu krossferðinni - svo hann megi lifa af - … gegn undirmennum [Untermenchen] af ætt Sems (þ.e. Miðausturlandabúar, sem eru afkomendur Sem (Shem) Nóasonar, sem Nóaflóðið er kennt við – Semítar).

Franski blaðamaðurinn, Anne-Laure Bonnet (f. 1978), gerði heimildarmynd um stríðsátökin í Austur-Úkraínu, sem hér er krækt. Í upphafi myndarinnar segir forseti Úkraínu, Petro Oleksiyovych Poroshenko (f. 1965):

“Við munum hafa vinnu, en þau [íbúar Donbas] ekki. Við munum fá ellilífeyri, en þau ekki. Ellilífeyrisþegar okkar og börn munu búa við velferð, en þeirra ekki. Börnin okkar munu ganga í skóla, en börnin þeirra munu hírast í kjöllurum. Því þau geta ekkert gert. Og það er nákvæmlega svona, sem við munum vinna þetta stríð.”

Á síðustu árum hefur forsetinn og Gyðingurinn, Volodymyr Zelensky (f. 1978) og þingið samþykkt áhugaverð lög í þessu sambandi. T.d. er rússneska bönnuð sem opinbert tungumál og „frumbyggjar“ skilgreindir sem Úkraínumenn af germönsku eða skandinavísku bergi brotnir. (Það hljóta að vera afkomendur Hræreks konungs og sonar hans, Yngvars, sem komu Rússlandi eða Garðaríki á koppinn á níundu öldinni.) Þingið greiddi einnig götu erlendra málaliða inn í Úkraínska herinn. Volodymyr hefur áætlað, að 16.000 erlendir málaliðar muni berjast gegn Rússum. Hann hefur auk þess náðað fanga og tekið í herþjónustu. Meðal þeirra eru morðingjar, sem eftirlýstir eru í Rússlandi.

Nasistar hafa verið áberandi í hersveitum Úkraínu. Þar er bæði um að ræða innlenda og útlenda nasista. Úkraínski herinn hefur fengið stuðning af aðkeyptum málaliðum frá Blackwater/Academi (stríðsfyrirtæki, stofnað af auðkýfingnum Erik Dean Prince (f. 1969)). Nasistahersveitin, Azov, undir leiðsögn Blackwater, hefur bækistöð í Mariupol, sem mikið hefur verið í fréttum undanfarið. (RÚV hefur flutt fréttir af því, að Rússar skjóti á varnarlaust fólk, sem þeir hafa leyft að flýja helvítið í borginni. Einn af íbúum Mariupol segir Azov vera þar að verki.)

Ivan Kharkiv, liðþjálfi lét hafa eftir sér í viðtali árið 2017: „Við þekkjum Mariupol út og inn. Við höfum stjórn á vegum og hæðun í kring. Hann [Putin] gæti beitt flughernum, en það skiptir ekki máli. … Ef hugur Putin stendur til að hernema Mariupol, skal hann vita, að 10.000 hermenn hans munu láta lífið – að lágmarki.“

Útlendingahersveit hefur verið stofnuð í úkraínska hernum. Hermenn úr öfgahersveitum Múhameðstrúarmanna eða ISIS, bandamenn Bandaríkjamanna í Sýrlandsstríðinu, munu, eftir því sem best verður komist, berjast undir hennar merkjum. Meðal þeirra eru alræmdir óþokkar, sem eru eftirlýstir af Bandarískum yfirvöldum. Herskáir Tétsenar (Chechen) bjóða líka fram þjónustu sína, svo og nasískir stríðsmenn Vesturlanda, þar á meðal sænskir hermenn. Þetta gerist, þrátt fyrir það, að Minsk samkomulagið banni Úkraínustjórn að kaupa málaliða frá útlöndum.

Í þessum fríða flokki eru líka „Hvíthjálmarnir“ (white helmets), laumuhermenn Nató frá Sýrlandi, sem börðust undir forystu bresks hermanns, James Le Mesurier (1971-2019), málaliða frá öðru stríðsfyrirtæki, Olive Group. Þeir gengu líka undir nafninu „Borgaravarðlið Sýrlendinga (Syrian Civilian Defense). Hvíthjálmarnir eru fjármagnaðir af Nató, Bandaríkjamönnum og Japönum. Leyniþjónusta Bandaríkjanna starfar að tjaldabaki bæði í Sýrlandi og Úkraínu, sbr. hryðjuverkadeild hennar Operation Gladio.

Eins fáránlega og það hljómar fá úkraínskir nasistar og trúbræður þeirra af erlendu bergi brotnir, fjárstuðning og annan liðstyrk frá Gyðingum. Þar er bæði um að ræða Gyðinga innan landamæra Úkraínu, t.d. hinn gjörspillta auðkýfing eða ræningja, Ihor Kolomoisky (f.1963), og Ísraelsríki sjálft. (Hinn spillti forseti Úkraínu og strengjabrúða Bandaríkjanna og Nató, Volodymyr Zelensky er líka Gyðingur alveg eins og Victoria Nuland (f. 1961), sem komin er af „Ostjuden“ (Gyðingum í austurvegi) í föðurætt. Hún var vettvangsstjóri forseta Bandaríkjanna, Barrack Obama (f.1961), þegar hann steypti lýðræðislega kjörinni stjórn Úkraínu.)

Dmytro Anatoliyovych Yarosh (f. 1971) er raunverulegur yfirhershöfðingi umræddra hersveita í umboði úkraínskra kvislinga Bandarískra stjórnvalda og stjórnaði hernaðaraðgerðum í stjórnarbyltingunni í Kænugarði, hernaði gegn aðskilnaðarsinnum í Donbas og fjöldamorðunum í Odessa. Í heimalandinu hefur hann í aldarfjórðung þjálfað trúbræður sína til hernaðar og taldi sjálfur í viðtali við Newsweek í desember 2014, að her hans teldi meira en 10.000 hermenn. Þjálfun hefur einnig farið fram í Póllandi undir stjórn Nató.

Dmytro þessi er einnig kunnur fyrir herstjórn sína í Tétséníu, fór þar fyrir hersveitum, sem skipaðar voru heilögum stríðsmönnum úr Miðausturlöndum og vestrænum, nasískum málaliðum, til að berjast gegn Rússum 1994.

Það er miður mars 2022. Vonandi hillir undir lok hildarleiksins í Úkraínu. Það er vissulega mikilvægt að sýna samúð og mótmæla viðbjóðslegum stríðsrekstri. En ég leyfi mér að spyrja? Hvar var RÚV, hvar var samúðin og hvar voru mótmælin, þegar íbúar Donbas voru strádrepnir?

https://www.youtube.com/watch?v=b8j0tJsKltg https://consortiumnews.com/2022/03/06/robert-parry-when-us-house-saw-ukraines-neo-nazis/ https://www.businessinsider.com/erik-prince-had-pitched-10-billion-private-army-in-ukraine-time?r=US&IR=T https://www.huffpost.com/entry/note-to-ukraine-stop-whit_b_6535316 https://www.kommersant.ru/doc/2636177 https://www.newsweek.com/2014/03/21/dmitry-yarosh-man-who-claims-victory-ukrainian-revolution-speaks-247987.html https://www.thedailybeast.com/how-many-neo-nazis-is-the-us-backing-in-ukraine?ref=scroll https://www.salon.com/2014/02/25/is_the_us_backing_neo_nazis_in_ukraine_partner/ https://www.timesofisrael.com/netanyahu-meets-with-head-of-ukrainian-party-that-includes-neo-nazis/ https://www.globalresearch.ca/this-is-the-real-americanized-nazi-ukraine/5650005 https://electronicintifada.net/content/israel-arming-neo-nazis-ukraine/24876 https://therealnews.com/israel-is-arming-ukraines-blatantly-neo-nazi-militia-the-azov-battalion https://www.theguardian.com/world/2014/sep/10/azov-far-right-fighters-ukraine-neo-nazis https://www.nytimes.com/2015/07/08/world/europe/islamic-battalions-stocked-with-chechens-aid-ukraine-in-war-with-rebels.html?referrer= https://thehill.com/opinion/international/359609-the-reality-of-neo-nazis-in-the-ukraine-is-far-from-kremlin-propaganda https://www.countercurrents.org/zuesse140515.htm https://www.globalresearch.ca/ukraine-and-the-politics-of-anti-semitism-west-upholds-neo-nazi-repression-of-ukraines-jewish-community/5370790?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=ukraine-and-the-politics-of-anti-semitism-west-upholds-neo-nazi-repression-of-ukraines-jewish-community https://www.telegraph.co.uk/news/worldnews/europe/ukraine/11025137/Ukraine-crisis-the-neo-Nazi-brigade-fighting-pro-Russian-separatists.html https://www.ynetnews.com/articles/0,7340,L-4452331,00.html https://www.youtube.com/watch?v=GGHXjO8wHsA https://off-guardian.org/2017/03/24/what-americas-coup-in-ukraine-did/ https://www.bbc.com/news/magazine-20824693 https://thegrayzone.com/2022/03/04/nazis-ukrainian-war-russia/ https://steigan.no/2022/03/natos-hvite-hjelmer-folger-al-qaida-til-ukraina/ http://rinf.com/alt-news/breaking-news/meet-ukraines-master-mass-murderer-dmitriy-yarosh/ https://www.counterextremism.com/press/extremist-content-online-pro-isis-facebook-accounts-spread-isis-and-hurras-al-din-propaganda https://english.almayadeen.net/news/politics/450-arab-and-foreign-extremists-from-idlib-arrive-in-ukraine https://steigan.no/2022/03/hvordan-ukrainas-jodiske-president-zelensky-inngikk-fred-med-nynazistiske-paramilitaere-pa-frontlinjene-i-krig-med-russland/ http://justicefornorthcaucasus.info/?p=1178002980 https://www.strategic-culture.org/news/2015/05/04/isil-is-using-ukraine-as-a-forward-base-into-caucasia-and-as-for-entry-into-europe/ https://steigan.no/2015/11/enheten-mellom-ukrainske-nazister-og-jihadister-opprettet-alt-i-2007/ https://www.nytimes.com/2015/07/08/world/europe/islamic-battalions-stocked-with-chechens-aid-ukraine-in-war-with-rebels.html?smid=fb-share&_r=1 https://english.almayadeen.net/news/politics/al-jaafari:-the-us-could-be-sending-isis-to-ukraine https://steigan.no/2022/03/onkel-sams-nazi-krigarar/ https://jacobinmag.com/2022/01/cia-neo-nazi-training-ukraine-russia-putin-biden-nato/ https://www.yahoo.com/news/cia-trained-ukrainian-paramilitaries-may-take-central-role-if-russia-invades-185258008.html https://www.voltairenet.org/article215891.html https://www.globalresearch.ca/evidence-ukraine-been-run-nazis-since-february-2014/5772997 https://www.thegatewaypundit.com/2022/02/exclusive-bidens-friends-ukraine-include-neo-nazi-azov-battalion-known-brutal-attacks-immigrants-gypsies-transvestites/ https://www.globalresearch.ca/us-natos-ongoing-support-neo-nazis-ukraine/5674577?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://english.almayadeen.net/news/politics/zelensky:-16000-foreign-mercenaries-are-going-to-fight-for-u https://www.newsweek.com/evidence-war-crimes-committed-ukrainian-nationalist-volunteers-grows-269604 https://crimes-of-ukraine.ru/video/ukraine-crisis-donbass-chronicle-of-genocide.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband