Tómið (The Void) og Ava Brighton

Árið 2017 kynnti Cassie Jaye, ungur (fyrrum) kvenfrelsari, heimildarmynd sína; „Rauðu pilluna: könnunarleiðangur kvenfrelsara í karlréttindahreyfingunni“ (The Red Pill: A Feminist Journey Into the Men‘s Rights movement – fáanleg á Amazon). (Það er frekari grein gerð fyrir myndinni í pistlinum: „Hugprúðasta hlínin í Hollývúdd,” aðgengilegur á arnarsverrisson.is.)

Eins og gefur að skilja fóru kvenfrelsarar hamförum gegn myndinni og meginstraumsmiðlar ýmist tættu hana í sundur eða reyndu að þagga leikstjórann í hel eins og alla, sem reyna að vekja máls á hinni óhugnanlegu öfgahreyfingu, sem hér um ræðir. En hinn ungi leikstjóri stóð keikur með staðreyndir að vopni.

Ofstækið á öllum sviðum er svo yfirgengilegt, að mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds. Það hefur varla farið fram hjá neinum, hvernig hinni svokölluðu „jafnréttislöggjöf“ hefur verið beitt gegn körlum - enda sérstaklega samin í þeim tilgangi. En færri gera sér líklega grein fyrir því – þrátt fyrir Stígamót og Kvennaathvarf – hvernig hinu opinbera félagskerfi er beitt gegn körlum, oft og tíðum með ofbeldisásakanir að yfirvarpi og samtímis sem „banvænu“ vopni. Feður og börn tapa umvörpum í slíku stríði.

Það er sérstaklega þessi „vopnaburður“ mæðra og kvenfrelsara innan og utan hinna opinberu kerfa, sem Ava Brighton leitast við að varpa ljósi á. Hún vaknaði sjálf til vitundar, þegar spænsk yfirvöld sviptu unnusta hennar eigum og barni á grundvelli ásakana móður þess um ofbeldi af hans hálfu. Ava hin hollenska vinnur nú að heimildarmynd með svipuðum hætti og hin norður-ameríska kynsystir hennar. Hér er krækja á kynningu myndarinnar, þar sem m.a. má sjá vitnisburð um það, hvernig félagsmálayfirvöld bera sig að við að sundra fjölskyldum og „valdefla“ konur til að beita falsákæruvopninu.

https://www.youtube.com/watch?v=5gDOpo9wYYU


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband