Siðblindir stjórnmálamenn, sálsýkisræði og hjarðmorð

Árið 1984 var gefin út á pólsku merkileg bók með titlinum, „Stjórnmálafræðileg illskufræði“ (Ponerologia Polityczna). Bókin var þýdd á ensku ári síðar. Enski titillinn er: „Political Ponerology: A Science on The Nature of Evil adjusted for Political Purposes.“ Aukin útgáfa forlagsins, Red Pill, heitir: „Political Ponerology: The Science of Evil, Psychiatry and the Origins of Totalitarianism.“

Höfundur er pólski sjúkrasálfræðingurinn (clinical psychologist), Andrzej Lobaczewski/Andrew M. Lobaczewski (1921-2007) og fleiri. Andrzej hafði þá einstöku lífsreynslu í farteskinu að hafa lifað og starfað undir tvenns konar gerræðisstjórnum; stjórn byltingarmanna (kommúnista) og þjóðernisjafnaðarmanna (nasista).

Bókin fór grýtta leið tilurðar- og útgáfu. Fyrsta handritið rataði í ofninn, skömmu áður en leynilögregla Pólverja gerði húsleit hjá höfundum. Annað handrit höfunda, sem unnu við skilyrði ofbeldis og undirokunar, var sent með sendiboða til Páfans í Róm. Það fór líka í glatkistuna. Páfi gekkst aldrei við að hafa tekið á móti handritinu.

Enn á ný var handrit skrifað af síðasta eftirlifandi höfundinum, Andrew Lobaczewski. En þá brá svo við, að landi hans, Zbigniew Brzezinski (1928-2017) meginhugmyndafræðingur heimsvaldastefnu Bandaríkjastjórnar, kom í veg fyrir birtingu þess.

Höfundur segir rannsóknir sínar og félaganna hafa snúist um „kjarnasálsýki“ (essential psychopathy). Samfélög, sem búa við forystu hinna sálblindu eða geðveiku kallar hann „brjálræði“ eða „sturlunarræði“ (pathocracy).

Andrzej heldur því fram m.a., að í sérhverju samfélagi stofni siðblindingjar og aðrir afbrigðungar (deviants) á þeirra valdi, félög til leynimakks og undirróðurs. Félög þessi eru bara að litlu leyti á vitorði almennings.

Hann bendir einnig á þátt tilfinningaalgleymisins (emotionalism) í lífi einstaklinga, hópa og þjóða. Þegar það keyrir úr hófi fram, samþætt dómgreindarleysi og blindu á staðreyndir, örvast sjálfhverfa og sefasýkislegt næmi. Fólk verður ofurviðkvæmt fyrir áreitni, sem veldur sífelldum erjum. Það verður öfugsnúið og ofurgagnrýnið. Slíkt ástand virkar eins og mykjuskán á mý, dregur að sér illa innrætt fólk, sem talar tungum, og kyndir undir hinum illu öflum í samfélaginu.

Hugmyndir Andrzej bergmála í grein Michael Brenner, alþjóðastjórnmálafræðings við háskólann í Pittsburgh, höfundi margra bóka um efnið. Hann hefur nýlega skrifað merkilega grein um svipað efni, „Uppgjör Vesturlanda,“ þar sem hann leitast við að skilja brenglaða hegðun stjórnmálamanna úr sálfræðilegu sjónarhorni.

Það gerir líka blaðamaðurinn, Thomas Fazi, í grein sinni, „Sálgreiningu úrvalsins á Vesturlöndum“ (A psychoanalytical analysis of Western elites), þar sem hann skoðar furðulega og órökrétta hegðun úrvals stjórnmálamanna af sál-stjórnmálalegum (psychopolitical) sjónarhóli.

Boðskapur Michael og Thomas er á þessa leið: Stjórnendaúrvalið er geysilega valdamikið, en ólögmætt. Því tekst að viðhalda völdum sínum einvörðungu vegna valdanna sjálfra. Völd þeirra eru „sjálfgefin“ (autochthonous), þ.e. án réttmætrar eða hefðbundinnar skírskotunar eins og t.d. erfðafylgju. „Lýðræði“ er einasta uppspretta réttlætingar, sem auðvaldarnir (oligarch) geta vísað til. Í reynd er vald þeirra algert.

Úrvalið telur okkur trú um, að það sé að frelsa oss frá illu, vondum öflum, sem séu á hælum okkar. Það gæti verið um að ræða Rússa, hryðjuverkamenn, veirur og svo framvegis.

Því leggja auðvaldarnir sig í framkróka um hafa öðlast tögl og haldir á lýðræðinu, því þeir geta ekki gefið það alveg upp á bátinn. En lýðræði þeirra er óttalegt þunnildi orðið. Þess vegna er auðvöldunum skotinn skelkur í bringu. Það skýrir, hvers vegna félagslegt aðhald stöðugt er hert og sorfið að lýðfrelsi og -réttindum; ritskoðun, undirokun og örvæntingarfull leit að ytri óvinum.

Viðbrögð auðvaldanna verða sefasýkleg við minnstu ógn. Úrvalið er siðblint, sýnir engin merki um sekt. Ei heldur skömm. Samtímis sýnir það dómgreindarskort á eigin gjörðir, þ.e. það grefur undan sjálfu sér.

Þetta sést greinilega í hernaðarósigri Vesturveldanna í Úkraínu og þjóðarmorðinu í Palestínu. Skömm og auðmýking ná ekki í gegnum brynju trúarsetninga, kredda og hroka. Óöryggið er djúprætt. Jafnframt blómstrar sjálfsaðdáunin.

Auðvaldarnir eru eins og raun ber vitni um, sálsjúkir. Þeir stjórna við sálsýkisræði (pathocracy). Því eru Vesturlönd á leið til sjálfsútrýmingar, hjarðvígs (collective suicide), bæði í siðferðilegum og efnahagslegum skilningi.

Úrvalið er ófært um sjálfsgagnrýni. Það virðist hafið yfir allan vafa. Drápsþörfin er óseðjandi. Lagðar eru áætlanir um frekari þátttöku í stríðsrekstri Nató í Úkraínu. Þær fela í sér árásir langt inn í Rússland. Það er gamall draumur alþjóðabankaauðvaldsins að leggja undir sig Rússland. Einnig er gælt er við hugmyndir um að láta gamlan draum ofstækismanna í Ísrael rætast; árás á Íran og stofnun Stór-Ísraels.

Hugarfarið er djöfullegt. Ætli djöfladýrkun skýri þessa þróun (Luciferianism, Satanism, occultism theosophy)? Hún greip fjölda auðkýfinga heljartaki á ofanverðri nítjándu öldinni, sbr. rit Helena Petrovna Blavatsky (1831-1891), um guð- og dulspeki.

Djöfladýrkun gróf um sig í ýmsum (leyni)félögum auðvaldanna, þeirra, er hugðu á heimsyfirráð. Það er fjöldi heimilda um slíka dýrkun í dag. Bandaríski blaðamaðurinn, Brandon Smith, kallar þetta „sálsýkistrú“ (psychophatic religion).

Brjálræðið eða sálsýkisræðið blómstrar í Ísrael um þessar mundir undir gunnfána ísraelsks fasisma. Stofn hans á rætur í Úkraínu. Höfuðpaurinn er Ze‘ev Jabotinsky (1880-1940). Þaðan kvíslast greinar til brjálaða barnamorðingjans, Benjamin Netanyahu, gegnum Gyðinginn og Síonistann, Leo Strauss (1899-1973), og til ný-íhaldssinna, sem halda um stjórnvöl bandarískrar utanríkisstefnu.

Ísraelar halda uppteknum hætti við að drepa og pynda fólk. Nýlega birti New York Times (þó undarlegt megi virðast) skýrslu frá Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (United Nations Relief and Works Agency -UNRWA), þar sem tekið er undir ályktanir sérstakra erindreka (special rapporteur) og hjálparstofnanna beggja vegna víglínunnar í Gaza.

Niðurstaðan er sú, að niðurlæging á grundvelli kyns og pyndingar á Palestínumönnum, hafi aukist, eftir innrásina á Gaza. Hermenn Ísraels hafi tekið höndum um 4000 Palestínumenn og svívirt fjölda þeirra af báðum kynjum, börn jafnt sem öldunga; sýnt þeim kynofbeldi og pyntað á margvíslegan hátt. Sumir fanganna hafa látist af þessum sökum.

Hliðstæð skýrsla hefur einnig verið unnin vegna ásakanna um nauðganir hermanna Hamas á ísraelskum konum. Það er hvorki meira né minna en Pramila Patten, sérstakur fulltrúi SÞ í sambandi við kynofbeldi í stríðsátökum (United Nations Special Representative on Sexual Violence in Conflict), sem annaðist rannsóknina.

Ásakanir um nauðganir kvenna í samyrkjubúinu, Be‘eri, höfðu ekki við rök að styðjast og fleiri ásakanir í sama dúr voru einnig áróður. Grunur kviknaði um, að ísraelsk yfirvöld hefðu sviðsett nauðganir og ónákvæmi gætti við túlkun þeirra á vettvangsgögnum.

Nokkrir fjölmiðlar Vesturlanda gefa annað í skyn. T.d. segir New York Times í véfréttarstíl, að SÞ teymið sjái ástæðu til að ætla að styðja megi skýrslur um kynofbeldi af hálfu Hamasliða við fyrrgreinda árás. (U.N. Team Finds Grounds to Support Reports of Sexual Violence in Hamas Attack).

Pramila sagði þó, að fyrir lægju „greinilegar og sannfærandi upplýsingar,“ þess efnis, að kynofbeldi gegn Ísraelum hefði átt sér stað, eftir 7. október. Hins vegar gerði hún hvorki nánari grein fyrir heimildum, né eðli brotanna. Þrátt fyrir þetta, segja skýrsluhöfundar: „Við „löglæknislegt“ (medicolegal) mat á aðgengilegum myndum og myndskeiðum, var ekki unnt að staðfesta vísbendingar um nauðgun.“

Þessi niðurstaða féll ísraelskum miðlum og yfirvöldum illa í geð og vafalaust einnig þeim konum, sem áráttubundið fjalla um þessar skelfilegu, meintu nauðganir á ísraelskum konum. Enda er slíkt ofbeldi í bága við trú og siðferði Múhammeðstrúarmanna, sbr. orð Erki-Arabans og CIA-liðans, Osama bin Laden (1957-2011), þegar hann var inntur eftir þátttöku sinni í sprengingu tvíburaturnanna í Nýju Jórvík 2001.

„Þar eð ég er Múlími reyni ég af fremsta megni að segja satt. Ég hafði ekki hugmynd um þessar árásir. … Dráp á saklausum konum, börnum og öðru fólki, tel ég ógeðfelldan gjörning. Íslam leggur blátt bann við því að vinna tjón saklausum konum, börnum og öðru fólki. Slíkt athæfi er meira að segja forboðið í stríði.“

Illræmdasta fangelsi Ísraelsmanna eða pyndingasetur er kallað 1391, fangelsi, sem Bretar reistu fyrir hartnær heilli öld. Þar er starfsemin með slíkum hætti, að jafnvel harðsvíraðir leyniþjónustumenn eins og Ami Ayalon (f. 1945), áður yfirmaður innanríkisleyniþjónustunnar, Shin Bet, vilja ekki láta bendla sig við hana. Hann segir:

„Ég vissi um stofnun, sem ekki var á ábyrgð Shin Bet heldur hersins. Ég hugsaði þá sem svo og geri enn, að slík stofnun ætti ekki að vera til í lýðræðisríki.“

Ísraelsmenn hafa tekið gervigreind í þjónustu sína við þjóðarmorðið eins Bill Gates við ræktun skordýra í matinn handa okkur. Enda eru Ísraelsmenn snillingar á sviði gervigreindar og tækni fjórðu iðnbyltingarinnar, sem Alheimsefnahagsráðið er í þann mund að steypa yfir okkur.

Ástralski Gyðingurinn, Anthony Lowensten, heldur því raunar fram, að stríðið gegn Palestínumönnum sé eins konar rannsóknarstofa í beitingu gervigreindarstríðstækni, sem gegni hliðstæðu hlutverki og Úkraína fyrir hernaðariðnað Vesturlanda.

Stríðssnatar þeirra eru þó sérstaklega eftirtektarverðir eins og sjálfsvígsflygildin og hákarlasvifdrekarnir. Nýjasta njósnaforritið heitir Toka og skýtur Pegasus ref fyrir rass. Því er auðvelt að koma inn í hin og þessi snjalltæki, að eigendum þeirra forspurðum.

Morð og pyndingar eru ekki einasta studd gervigreind heldur taka yfirvöld – líka á Íslandi – beinan og óbeinan þátt í ódæðum sálsjúkra yfirvalda Ísraels. Stuðningur Bandaríkjamann er væntanlega öllum ljós, en færri vita um mútur Ísraela til breskra stjórnmálamanna, sem umhverfast í kennisetningar um, að Ísraelar hafi rétt til að verja hendur sínar eða verjast Gyðingaofsóknum. Hergögn er látin af hendi rakna úr nálægri herstöð á Kýpur. Sömuleiðis eru hernjósnagögn látin í té.

Ísraelsmenn stunda hjarðpyndingar á Gaza og á Vesturbakkanum. Þeir skapa skelfingu með handahófskenndum handtökum, árásum og morðum. Fólk býr við látlausar sprengingar og er sífellt á flótta, en getur þó ekkert flúið. Það eru pyndingar. Það er svelti vissulega einnig.

Það fer óhugur um mig við að lesa niðurstöður viðhorfskannanna meðal ísraelskra borgara um sveltið. Um tveir þriðja hluta almennra borgara í Ísrael er hlynntur þessari svívirðu.

Ætli fólk sé orðið skilyrt; bogið, beygt og undirokað, til hlýðni við geðveiki leiðtoganna? Það vill svo til, að um þessar mundir eru tvö ár, síðan flestar ríkisstjórnir veraldar sviptu þegna sína lýðréttindum undir yfirskini veirufaraldurs. Ísraelsk yfirvöld voru sérstaklega grimm í því efni.

Fen er fótum nær en hyggur.

https://??????.co/articles/israel-physically-sexually-abusing-gaza-detainees-unrwa (setjið inn: thecradle) https://?????.com/2024/03/07/media-concocts-un-hamas-rape-report/ (setjið inn: thegrayzone) https://informationclearinghouse.blog/2024/03/16/israel-uber-alles/13/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/video-the-covid-19-lockdown-it-was?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=142675117&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.amazon.com/CRASH-COURSE-INSIDE-Debunking-Official/dp/B0CTXSVKJV/ref=tmm_pap_swatch_0?_encoding=UTF8&qid=1708219392&sr=1-1 https://matthewehret.substack.com/p/carl-jungs-gnostic-revival-the-age?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140635061&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/the-ancient-occult-roots-of-the-fabian?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140439126&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/the-british-empires-gnostic-revival?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140087303&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.learnreligions.com/helena-blavatsky-4690489 https://expose-news.com/2024/03/14/four-years-ago-this-month-a-lockdown-was-imposed-by-national-governments-worldwide-never-forget-what-they-are-capable-of/ The psychopathic religion of the Globalists shapes their decisions and actions – The Expose (expose-news.com) https://steigan.no/2022/05/mobiltelefonene-til-spanias-president-og-forsvarsminister-avlyttet-av-det-israelske-pegasus-systemet/ https://steigan.no/2021/07/israelsk-spionprogram-brukt-mot-aktivister-journalister-og-politikere/https://steigan.no/2021/07/israelsk-spionprogram-brukt-mot-aktivister-journalister-og-politikere/ https://www.theguardian.com/world/2021/jul/18/revealed-leak-uncovers-global-abuse-of-cyber-surveillance-weapon-nso-group-pegasus https://steigan.no/2024/03/israels-e-krigforing-bruk-av-smarttelefoner-for-a-drepe-i-libanon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://alexkrainer.substack.com/p/the-power-behind-the-throne-and-the?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://www.globalresearch.ca/israel-psych-war-relentless-vicious-deliberate/5851290 https://mondoweiss.net/2024/02/over-2-3-of-jewish-israelis-oppose-humanitarian-aid-to-palestinians-starving-in-gaza/ https://www.mintpressnews.com/media-israel-intelligence-2020-elections-cyber-security/264361/ https://edition.cnn.com/2023/01/15/politics/ukraine-russia-war-weapons-lab/index.html https://expose-news.com/2024/03/05/israels-military-industrial-complex-is-experimenting-with-military-robots-in-gaza-in-an-effort-to-avoid-harming-soldiers-and-dogs/ https://www.youtube.com/watch?v=9PEWDLunejA https://edition.cnn.com/2023/01/15/politics/ukraine-russia-war-weapons-lab/index.html https://chrishedges.substack.com/p/the-chris-hedges-report-with-ali?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=142632765&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://archive.vn/P6mAQ https://archive.vn/T3V3N https://archive.vn/RRQbn https://archive.vn/RRQbn https://www.youtube.com/watch?v=LK0AonRiOSY&rco=1 https://www.declassifieduk.org/uk-extremism-adviser-has-been-funded-by-israel-lobby/ https://steigan.no/2024/03/gaza-verdens-forste-aki-drevne-robotaktiverte-folkemord/?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/03/08/how-the-fight-against-antisemitism-became-a-shield-for-israels-genocide/14/ https://corbettreport.substack.com/p/the-flour-massacre-and-the-gaza-holocaust?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=142387975&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/zionist-spy-unit-8200-influences?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=142381648&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/sluta-finansiera-terrorism-eller/ https://dontbuyintooccupation.org/reports/dont-buy-into-occupation-report-2023/ https://expose-news.com/2024/03/06/protests-over-the-international-israeli-sales-events-of-stolen-palestinian-land/ https://expose-news.com/2024/03/06/the-united-kingdom-zionisms-covert-nerve-center/ https://www.theguardian.com/commentisfree/2023/dec/29/health-organisations-disease-gaza-population-outbreaks-conflict?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.un.org/sexualviolenceinconflict/wp-content/uploads/2024/03/report/mission-report-official-visit-of-the-office-of-the-srsg-svc-to-israel-and-the-occupied-west-bank-29-january-14-february-2024/20240304-Israel-oWB-CRSV-report.pdf https://electronicintifada.net/blogs/asa-winstanley/israel-killed-israelis-confirms-new-7-october-documentary https://www.voltairenet.org/article220564.html https://www.theguardian.com/world/2003/nov/14/israel2 https://www.nytimes.com/2024/03/03/world/middleeast/unrwa-gaza-detention-israel.html https://rumble.com/v4j0yt5-bill-gates-urges-govts-to-replace-farmers-with-ai-smart-farming-bots.html https://www.thomasfazi.com/p/a-psychoanalytical-analysis-of-western https://scheerpost.com/2024/03/08/michael-brenner-the-wests-reckoning/ https://www.voltairenet.org/article220564.html https://www.globalresearch.ca/netanyahu-criminally-insane-monster-serial-killer-captive-children/5852000


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband