Stríðsspámaðurinn Albert Pike. Launhelgar og alheimsstjórn

Launhelgar eru þekktar aftur úr grárri forneskju. Úr Íslandssögunni þekkjum við samningssnilld Þorgeirs Ljósvetningagoða, þegar kristni var lögtekin á Íslandi. Menn skyldu taka kristni, en máttu blóta á laun. Þannig hefur háttað til um siðaskipti af ýmsu tagi, t.d. þegar kristni var gerð að ríkistrú í Rómverska heimsveldinu.

Rómverjar höfðu eins og norrænir menn, ástundað fjölgyðistrú um aldir alda. Það á einnig við um hin fornu menningarríki í Asíu og Evrópu. Dýrkun fólst oft og tíðum í einhvers konar fórnum, blótum. Mannfórnir voru ekki óalgengar, venjulega í tengslum við frjósemi. Það sama átti við um kynsvall. Slík blót eru ennþá stunduð. Nýlega fundust í Nýju Jórvík göng undir bænahúsi Gyðinga. Vegsummerki benda til mannfórna.

Innherji hjá Alheimsefnahagsráðinu upplýsti t.d., að á nýlegum fundi hafi börnum verið flogið inn til Davos, svo auðkýfingarnir gætu svalað girndum sínum. (Þau hafa ábyggilega verið flutt þangað í grænni flugvél.)

Launhelgar í sambandi við trú voru víða samofnar leynimakki stjórnmálanna. Þekkt er Véfréttin í Delfí. Þangað leituðu höfðingjar og auðmenn til að ráða í framtíð sína, forlög og gjörðir. Víma, annað hvort við sefjun eða neyslu fíkniefna, var algeng. Í Delfí var véfréttin kona í vímu, sem átti torræðar samræður við guðina. Það þurfti hóp sérfróðra til að túlka boðskapinn. Þar var kominn vísir að hugveitum á voru méli.

Ýmis konar trúarreglur eiga sér sömuleiðis langa sögu. Á ármiðöldum, áður en kristni var lögtekin sem ríkistrú í Rómarveldi, var alls konar kristna söfnuði að finna á gríska og rómverka menningarsvæðinu. Þessir söfnuður sameinuðust í kirkju Guðs á jörðu undir forystu páfans í Róm. Hann starfaði undir handarjaðri rómversks aðals og auðmanna.

Þegar á sjöundu öld e.Kr. voru stofnuð klaustur og reglur í umsjón páfa, sem átti í erjum við konungsveldi Evrópu, þjóðveldin. Páfi vann að því að stofna Guðs ríki á jörð í bókstaflegum skilningi. Baráttuaðferðir hans voru trúarlegs eðlis, m.a. innheimta syndaaflausna og bannfæring úr samfélagi kristinna manna. Bannfæring og útskúfun var vitaskuld þekkt í sögu mannkyns. T.d. voru slíkar refsingar heimilar samkvæmt íslenskum lögum.

En páfi var gírugur. Hann þurfti bæði á hermönnum og trúboðum að halda til að leggja undir sig heiminn. Það var kristin heimsveldisstefna. Upp úr reglu heilags Benedikts spratt Jesúítareglan, sem olli straumhvörfum í alþjóðastjórnmálum. Hún stundaði allt í senn; trúboð, hernað og speki.

Skipulagning Jesúítareglunnar var fyrirmynd hreyfingar „Ljósberanna eða Ljósálfanna“ (Iluminati), sem Gyðingarnir, Johann Adam Weishaupt (1748-1830) og Meyer Amschel Rotschild (1744-1812), stofnuðu, undir lok átjándu aldar. Markmiðið var heimsyfirráð og stofnun ríkis Gyðinga í Palestínu.

Þeir tileinkuðu sér einnig laumuyfirtökur (infiltration) á öðrum samtökum og spenntu fyrir vagn sinn. Frímúrarar eru trúlega þekktasta fórnarlamb þeirra. Það má telja líklegt, að regla Ljósálfanna hafi einnig sótt innblástur til „Bræðralags rósarkrossins“ (Rosicrucianism), heimuglegrar reglu, sem stofnuð var snemma á sautjándu öldinni.

Musterisriddararnir voru hermenn Guðs og páfa. Þeir fóru myrðandi, rænandi og ruplandi, alla leið til Palestínu til að frelsa Landið helga og íbúa þess undan Múhameðstrúarmönnum, sem hið franska ríki Stutta-Pipin (714? – 768), konungs Franka, og afkomenda hans, höfðu átt góð og frjósöm samskipti við. Verslun hafði staðið með blóma, m.a. um silkiveginn milli Kína og Mið-Asíu. Krossferðirnar bundu endi á hvort tveggja. Síðan hafa Vesturveldin þrálátlega alið á andúð í garð Múhameðstrúarmanna, sem ekki vilja þýðast þau og láta þeim í té auðlindir og aðstöðu.

Undirróðurinn keyrði um þverbak, þegar Þjóðabandalagið kokgleypti leynisamninga Breta og Frakka um skiptingu Miðausturlanda, leyfunum af Ottómanveldinu. Þeir deildu og drottnuðu – sér í lagi Bretar. Bandaríkjamenn fylgdu í þeirra fótspor.

Krossferðirnar urðu þrjár talsins og Musterisriddararnir og páfastóll auðguðust vel. Enda ráku Musterisriddararnir banka á svæðinu frá Evrópu til Palestínu. Þeir urðu voldugt ríki í ríkinu og gerðu kónga og keisara að skuldunautum sínum, stundum höfðinu styttri. Það er einmitt sú leið, sem auð- og bankamenn hafa farið síðan.

Rómversku/ítölsku auðmannaættirnar stjórnuðu páfadæminu og sameinuðust öðrum slíkum eins og á Spáni. Smám saman fluttist þungmiðja auðmagnsins til Hollands og Þýskalands, þaðan til Lundúna og svo til Wall Street í Nýju Jórvík.

Með krossferðunum voru lögð drög að nýlendustefnu síðmiðalda. Helstu nýlenduríkin voru/eru Bretar, Frakkar, Spánverjar, Belgar, Hollendingar, Portúgalar og Danir, sem m.a. gerðu Ísland að nýlendu sinni. Síðar bættust Þjóðverjar og Bandaríkjamenn í hópinn.

Nýlenduveldin drógu sér mikinn auð, sem var ein af stoðum iðnvæðingar og uppbyggingar á öllum sviðum. Bretar sóttu t.d. ómældan auð til suðurhluta Afríku. Þar var breska hernum beitt til að greiða auðjöfrum eins og við Rothschild og Rhodes, leið að auðlindum eins og eðalsteinanámum. Cecil John Rhodes (1853-1902) lét sér ekki muna um að búa til eigið ríki, Ródesíu. Öll nýlenduveldin hafa leikið þennan leik.

Auðmenn í Lundúnum og víðar stofnuðu alls kyns launhelgar og leynifélög eins og Fabian félagið, svo skírt til heiðurs hinum rómverska hershöfðingja og ræðismanni, Quintus Fabius Maximus (280 - 203), sem þekktur var fyrir laumustríðssnilli sína og þolgæði. Heimsyfirráð, sem fólu í sér alheimsyfirráð og ný trúarbrögð voru á dagskrá félagsins.

Fabianfélagið hafði náin samráð við Hringborðið (Round Table), sem fyrrnefndur Rhodes ánafnaði öllum sínum auðæfum í þágu áætlunar um alheimsyfirráð. Kristmenn og Gyðingar sameinuðust í þessu framtaki.

Hvergi hafa þó svipaðar áætlanir verið mótaðar með jafnskýrum hætti og í áætlun þeirra, er grifluðu hina umtöluðu heimsyfirráðaáætlun Öldunganna þrjú hundruð frá Zion.

Eins og ýjað var að stofnuðu auðmenn fjölda leynilegra og hálfleynilegra félaga, þrýstihópa og hugveitur, til að hrinda áætlunum sínum í framkvæmd. Í þessu sambandi gekk Frímúrarareglan, með náin tengsl við fyrrgreind félög, bankaveldi, hervald, embættismannavald og stjórnmálamenn, í endurnýjun lífdaganna.

Höfuðsmiðir utanríkisstefnu Bandaríkjanna áttu sína eigin Frímúrarastúku. Stúkan hét því lýsandi nafni, „Þríauga“ (Three Eyes), tveggja augna vant í „Fimmauga“ (Five Eyes), njósnasamstarfi Bandaríkjanna, Bretlands, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Kanada, sem Winston Spencer Churchill (1874-1965) og Franklin Delano Roosevelt (1882-1945) höfðu forgöngu um að stofna í annarri heimstyrjöldinni. Þríauga stofnuðu David Rockefeller (1915-2017), Henry (Heinz) Kissinger (1923-2023) og Zigniew Brezinski (1928-2917).

Henry var kennari forystumanns Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum), Klaus Schwab, og einn aðalhvatamanna að stofnun þess. Hann var auk þess félagi í Bilderberg hópnum. David var félagi í Rómarklúbbnum, sem ýtti úr vör grænu geggjuninni. Hann koma víða við, þar sem niðurrif og auðmannayfirráð bar á góma. David lagði eins og hinir tveir gjörva hönd á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í „Þríhliðaráðinu“ (Trilateral Commission - Tricom). Það fæst einkum við stefnumótun í Suðaustur-Asíu.

Við endurreisn Frímúrarareglunnar í Bandaríkjunum bar þó Albert Pike (1809-1891) höfuð og herðar yfir aðra góða múrara.

Albert Pike reis til hæstu metorða í Frímúrarareglunni, Scottish Rite (í 33. vígslu- eða virðingarþrepi, stórmeistari), sem um aldir hefur verið ein máttugasta reglan í veröldinni. Hún skaut rótum í Bandaríkjunum á græðlingum frá Bretlandi. Félagar voru frá upphafi meðal áhrifamestu manna í bankaveldi og í stjórnmálum, m.a. í borgarastríðinu.

Albert Pike var hershöfðingi í her Suðurríkjanna, um skeið eins konar flóttamaður í Kanada, en náðaður af Bandaríkjaforseta, frímúraranum, Andrew Jackson (1867-1845).

Albert varð einn meginhugmyndafræðinga reglunnar. Hann skrifaði m.a. „Bíblíu“ hennar: „Siði og kennisetningar hinnar fornu og viðurkenndu Skosku stúku Frímúrara“ (Morals and Dogma of the Ancient and Accepted Scottish Rite of Freemasonry).

Í þessu höfuðverki Frímúrarareglunnar staðhæfir höfundur m.a., að Skoska reglan sé endurbætt útgáfa af Jesúítareglunni, sem sjálf var grundvölluð á reglu Musterisriddara (Knights Templar, Temple Order). Hvergi er farið leynt með trú- og trúarathafnir, þ.e. djöflatrú (Satanism, Luciferianism, Phallasdýrkun) í ákveðnum kimum stúkunnar (palladism – eftir gyðjunni Phallas). Albert var leiðtogi kynþáttahatara í hreyfingu þeirra, Klu Klux Klan.

Albert átti samskipti við reglubræður í Evrópu eins og Guiseppe Mazzini (1895-1872), byltingarmann og yfirmann Ljósberanna (Illuminati) á Ítalíu. Í bréfi 1871 (birt 1925) til reglubróðurins sagði Albert:

Fyrsta heimstyrjöldin verður að eiga sér stað, svo Ljósberunum verði sköpuð vígstaða til að kollsteypa yfirvöldum í Rússlandi og koma þar á virki byltingarhyggjunnar (kommúnismans). Forsendan er að reka fleyg millum Þjóðverja og Breta. Í stríðslok verður byltingarhyggjunni beitt til að tortíma öðrum ríkisstjórnum og veikja trúarbrögðin.

Annarri heimstyrjöldinni verður komið í kring með því að ala á úlfúð milli stjórnmálaarms Síonista og fasista. Stríði þessu verður að lykta þannig, að gengið verði milli bols og höfuðs á Nasistum, en Síonistar elfdir, svo þeir mættu stofna fullvalda, ísraelskt ríki í Palestínu.

Í rás annarrar heimstyrjaldarinnar verður að tryggja, að alþjóðahreyfing byltingarmanna (kommúnista) verði svo öflug, að hún nái að reisa rönd við kristninni, halda henni í skefjum til þess dags, þegar hennar er þörf til að skapa hinstu hamfarir.

Þriðju heimstyrjöldinni verður hrundið af stað með því nýta úlfúð, sem Ljósberarnir hafa skapað milli leiðtoga Múhameðstrúarmanna og Síonista. Stríðið verður að há með þeim hætti, að andstæðingarnir gangi frá hvor öðrum.

Trúlega er þriðja heimstyrjöldin hafin. Þess má til fróðleiks geta, að erki Sínonistinn og Frímúrarinn, Henry (Heinz) Kissinger (1923-2023), spáði eyðingu Ísraelsríkis árið 2022.

Sumir segja bréf Alberts falsað eins og skjal hinna lærðu öldunga frá Síon, sem lýsir því í stuttu máli, hvernig sköpuð verði menningarleg upplausn á Vesturlöndum, hópum og þjóðum att saman, stuðlað að skærum og stríðum og boðin léleg menntun, í þeim tilgangi að auðvelda hinum útvöldu að ná undirtökum í veröldinni og stofna alheimsstjórn.

Einnig hefur öðrum kenningum um alheimsstjórnina verið vísað á bug sem heilaspuna, samsæriskenningum eða rangfærslum. Það á t.d. við um kenningar Augustin Barruel (1741-1820), John Robinson (1739-1805), William James Grey Carr (1895-1959), Nesta Helen Webster (1876-1960) og Marie Joseph Gabriel Antoine Jogang-Pagés/Leó Taxil (1854-1907).

Franski Jesúítapresturinn, Augustin Barruel, lýsti því í bók sinni frá 1797, „Minningar, sem varpa ljósi á sögu Jakobína“ (Mémoires pour servir á l‘Historie du Jacobinisme), hvernig franska byltingin var skipulögð og framkvæmd af leynifélögum, þ.m.t. Frímúrarar. (Jakobínar (Société des Jacobins, amis de la liberté et de l‘égalité) voru ofbeldisfull byltingarsamtök, sem stjórnuðu gangi frönsku byltingarinnar á tímabili.) Tilgangurinn var m.a. að ganga milli bols og höfuðs á kristinni trú.

John Robinson var breskur eðlis- og stærðfræðingur, prófessor í heimspeki við háskólann í Eðínaborg (Edinburgh). Árið 1797 birti hann bókina, „Sönnur um samsæri gegn öllum trúarbrögðum og ríkisstjórnum Evrópu, spunnið á leynifundum Frímúrara, Ljósálfa og í málfundafélögum“ (Proofs of a Conspiracy against all the Religions and Governments of Europse, carried on in the secret meeting of Freemasons, Illuminati og Reading Societies).

Franski rithöfundurinn, Leó Taxil, sem m.a. skrifaði um djöfladýrkun í Frímúrarareglunni, var fimm ára gamall settur í umsjá Jesúíta, sem ólu hann upp og menntuðu. En smám saman brást hann öndverður við reglunni. Leó henti gaman að Frímúrarareglunni og smám saman gerðist hann afhuga kristinni trú, taldi hana skaðlega.

Leó skrifaði nokkrar bækur eins og; „Fyndnu Bíblíuna“ (La Bible amusante) og „Ástkonur páfa“ (Les Maitresses du Pape). Hann segir yfirmenn kirkjunnar nautnaseggi á valdi frygðar sinnar. Útgáfa bókarinnar, „Heilaga húfan tekin ofan“ (A Basl a Calotte), leiddi til ákæru þess efnis, að hann hefði vanvirt ríkistrú.

William G. Carr starfaði í bandaríska sjóhernum. Á fjórða áratugi síðustu aldar setti hann fram kenningar um alþjóðlegt samsæri. Því var tvískipt. Annars vegar var um að ræða alþjóðlega byltingarhyggju (kommúnisma) og hins vegar alþjóðlega auðhyggju (capitalism).

Hvor tveggju samsæranna voru runnin undan rifjum alþjóðlegs bankaveldis undir forystu Rockefeller og Rothschild ættanna, samkvæmt kennisetningum og áætlunum, sem mótaðar voru af Bilderberg hópnum. Hann skrifaði nokkrar bækur eins og: „Peðin í leiknum“ (Pawns in the Game) og „Bandaríkin í rauðri þoku“ (Red Fog over America).

Enski rithöfundurinn, Nesta Helen Webster (1876-1960), kenndi, að Ljósálfarnir (Illuminati) stunduðu særingar í launhelgum og legðu á ráðin um heimsyfirráð byltingarmanna eða kommúnista. Hún útskýrði frönsku byltinguna sem áfanga á þeirri leið. Sama ætti við um byltinguna í París 1848, byltingu bolsévikka (Vladimir Lenin og félaga) í Rússlandi og fyrstu heimstyrjöldina.

Nesta Helen var einnig mikilvirkur blaðamaður og sagnfræðingur. Hún skrifaði m.a. bækurnar; „Leynifélög og undirróðurshreyfingar“ (Secret Societies and Subversive Movements); og, „Heimsbyltinguna, launráðin gegn menningunni“ World Revolution; the Plot Against Civilization), og „Frönsku byltinguna: lýðræðisgreiningu“ (The French Revolution: a Study in Democracy), og; „Þýskaland og England. (Forleikinn að stríði)“ (Germany and England. (A Prelunde to War 1938)).

Í þeirri bók fjallar hún m.a. um hvatningu alþjóðlegra þrýstihópa Gyðinga til stríðs. Meginorsök annarrar heimstyrjaldarinnar telur Nesta Helen vera þá ákvörðun Adolf Hitler að fjarlæga Gyðinga úr valdastöðum í Þýsklandi. Hún átelur eigin stjórnvöld fyrir morð þeirra á Palestínumönnum.

Árið 1978 skýrði John Todd, áður félagi í leynireglunni, „Stórráði þrettán Drúída“ (The Grand Druid Council of 13), frá heimsyfirráðaáætlun í þrepum yfir átta ár. John var stungið í fangelsi fyrir nauðgun. Þegar út kom var hann sóttur í þyrlu. Síðan hefur ekkert til hans spurst.

Á árabilinu frá 1931 til 1933 gáfu Pasquita Louise de de Shishmareff/Louise A. Chandor/L.Fry (1882-1970) og Edith Starr Miller (1887-1933) eða lafði Queenborough, út merkilega bók um áhrifamestu leynifélög samtímans, „Guðspekilega guðveldið“ (Occult Theocracy).

Þar er fjallað um leynifélög eins og; Kabalinn (Cabal), Ljósálfana (Illuminati), Alheimsstjórnina (One World Government), Huliðsheimsstjórnina (Secret World Government) og Hin nýju heimsskipan (New World Order). Eftir útgáfu bókarinnar lést Edith skyndilega í París.

Í formála skrifar Edith: „Í bók þeirri, er hér birtist fyrir almenningsjónum, hef ég leitast við að afhjúpa aðferðir og tilburði, sem beitt er í huliðsheimum. Það lætur nærri að tala mætti um undirheima, sem rjúfa, tortíma og ríkja ekki einungis yfir yfirstéttinni, sem svo er kölluð, heldur lunganum úr öðrum stéttum. … Ég hef undir höndum órækar sannanir fyrir ofríki undirheimanna.“

Síðar: „Þrátt fyrir alþýðleg viðfangsefni (exoteric objects), beinast stefnumiðin í flestum samfélögum að sömu lyktum, nefnilega þeim að skipa saman stjórnmála-, efnahags- og upplýsingavaldi (intellectual power), í hendur fáeinna einstaklinga. Hver og einn öðlast yfirráð yfir ákveðnum geira mannlífsins í alheimi, bæði í efnalegu og andlegu tilliti.“

Innræting hjarðarinnar verður tryggð með stjórn á fjölmiðlum og menntakerfi.

Edith sagði líka 1932: „Á líðandi stundu er flestir hinna góðhjörtuðu smeykir við að vera góðir. Þeir leggja sig í líma við að vera víðsýnir og umburðarlyndir. Það er í tísku að vera umburðarlyndur … þó frekast umburðarlyndur gagnvart illskunni … og þessi nýju siðboð (code) eru orðin svo öflug að krafist er umburðarleysis gagnvart hinu góða.“

Hvernig sem heimurinn hverfist má segja, að forspár „hugveitna“ fjármagnaaðalsins hafa gengið furðuvel eftir. Áætlun Ljósberanna um stofnun Ísraelsríkis, var samþætt heimsvaldastefnu Breta og síðar Bandaríkjamanna, eftir að alþjóðlegi fjármagnsaðallinn í City of London og Wall Street, náði tökum á bandarísku hagkerfi, bankakerfi og stjórnmálum.

Bretar og Frímúrarar höfðu víða ítök. Úkraínumaðurinn, Vladimir Jabotinsky, sem síðar varð ísraelskur hryðjuverkamaður – Vladimir „Hitler“ (samkvæmt David Ben-Gurion (1886-1973)) – starfaði á mála hjá Bretum og hlaut þjálfun í Frímúraraaðgerðinni, sem kennd er við „Unga Tyrki,“ uppreistarhreyfingu í Ottómanveldinu. (Sbr. grein Steven P. Meyer; Netanyahu’s Godfather: How British Imperialists Created the Fascist Jabotinsky (larouchepub.com)

Hinir þrjú hundruð „öldungar frá Síon,“ segja t.d., að ný lög verði samþykkt á Vesturlöndum, sem uppræti frelsi það og umburðarlyndi, sem ríkt hefur í samfélögum Ógyðinga (goyim).

„Konungdæmi okkar mun státa af umlykjandi einræði, sem aldrei áður hefur sést, svo eyða megi sérhverju sinni og hvarvetna öllum Ógyðingum, sem voga sér að andæfa okkur í orði eða á borði.“

Höfundar fjalla einnig um „listina að stjórna hjörðinni með lymskulegum blekkingum og orðræðu“ sem og reglugerðum um hvaðeina í lífinu. Ógyðingarnir munu ekki átta sig á áróðurssnillinni. Aðeins Jesúítar (kristin regla) kynnu að hafa roð við þeim.

„Þjóðir heims munu ekki fá að semja um lítilvægustu mál, nema við komum dulbúnir að borðinu,“ segja höfundar Leiðarvísisins.

Á voru méli blómstrar vitundariðnaðurinn (fjölmiðlun, kennsla, áróður, ritskoðun og lygar) og hefur svo gert, síðan umrætt plagg var útgefið. Bankar og fjárglæframenn hafa reyrt efnahagslífið í fjötra með eignaupptöku í kreppum, sjúkdómum og stríðum.

Okkur hefur verið att á forað kynjaaðskilnaðarstefnu. Stríðið gegn fjölskyldu, drengjum/körlum/feðrum geisar, sem aldrei fyrr. Kyn er orðið valfrjálst. Ríkisvaldið lætur skattgreiðendur fjármanna þessa ósvinnu og skarar stöðugt eld að sinni köku. Það gín í vaxandi mæli yfir uppeldi og mótun ungviðisins. Menntun hrakar og tungumálið er í uppnámi. Frelsisskerðing hefur færst í vöxt.

Þróunin í átt að alheimseinveldi – eins og áætlun öldungana og Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum) segir fyrir um – er langt komin. Alþjóðaauðvaldið hefur nær algjörlega lagt undir sig Sameinuðu þjóðirnar. Samstarfsaðilji þeirra er Alheimsefnahagsráðið, sem rær að því öllum árum í umboði G7 ríkjanna og SÞ, að gera okkur að örmerktum öreigum, auðsveipum þegnum Alríkis- eða alheimsstjórans.

Samtímis blóta hinir útvöldu á laun. Launhelgar blómstra, sbr. iðju Jeffrey Epstein (1953-2019) og félaga, svo og náin tengsl þeirra við leyniþjónustur, leikara, löggæslu, embættis- og stjórnmálamenn, þar sem börnum er fórnað, stundað kynsvall og vímuefnaneysla, rétt eins og í blótum forðum.

(Bendi áhugasömum á pistlaraðirnar: Leyniþræðir og leyndarlíf og Mikla móðir. Þær má nálgast á arnarsverrisson.is og arnarsverrisson.blog.is.)

https://archive.org/details/MoralsAndDogmaAlbertPikeTheCouncil1871 https://rumble.com/v46oqyu-horrific-child-adrenochrome-market-found-in-nyc-jewish-tunnels-media-blacko.html https://www.encyclopedia.com/science/dictionaries-thesauruses-pictures-and-press-releases/robison-john https://www.youtube.com/watch?v=WZ-f0lJQfjc https://www.henrymakow.com/unsung_heroine_--_illuminati_d.html https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2288704/ https://secure.moneyballeconomics.com/?cid=MKT717179&eid=MKT726318&channel=&oid=43&affid=18&tid=2dbc2eae551d40f7a320accf7763afc8&creative_id=500&source_id=&sub1=&sub2=&sub3=&sub4=&sub5=&assetId=AST286629&page=2 https://www.historyskills.com/classroom/ancient-history/quintus-fabius-maximus/ https://www.theguardian.com/us-news/2024/jan/01/jeffrey-epstein-ghislaine-maxwell-associates-list https://archive.org/details/OccultTheocracyEdithStarrMiller1933 https://archive.org/details/SecretSocietiesAndSubversiveMovementsNestaHelenWebster https://ia601900.us.archive.org/16/items/albert-pike-letter-to-mazzini/Albert%20Pike%20Letter%20to%20Mazzini.pdf https://www.youtube.com/watch?v=m581aW5AH4M https://www.youtube.com/watch?v=iCsXeJ3diJk https://rumble.com/v48t24u-turbo-aids-set-to-kill-billions-after-disease-x-rollout-gates-insider-warns.html https://www.youtube.com/watch?v=lqsSONR-vu0 https://www.youtube.com/watch?v=nXJy_MlOQ7o https://www.youtube.com/watch?v=Z-W30MaiTjo https://archive.org/details/worldrevolutionp00webs https://archive.org/details/frenchrevolutio00websuoft https://en.wikipedia.org/wiki/Rosicrucianism https://www.ostarapublications.com/product/germany-and-england-a-prelude-to-war-1938/ Over 40 Years Ago, John Todd Warned About An 8-Step Plan to Take Over the World – The Expose (expose-news.com) https://www.encyclopedia.com/people/philosophy-and-religion/other-religious-beliefs-biographies/leo-taxil Map of Mithraea (mithraeum.eu) The Origins of the Deep State in North America Part I: The Round Table Movement – the Canadian patriot The Origins of the Deep State in North America Part II: Milner’s Perversion Takes Over Canada – the Canadian patriot The Fabian Society, Eugenics and the Historic Forces Behind Today’s Systemic Breakdown (substack.com) ‘That Hideous Strength’: A Tale of Transhumanism and the Occult – the Canadian patriot The Origins of America's Secret Police: Ancient Roots of Occult Societies & Intelligence Operations (youtube.com) https://cynthiachung.substack.com/p/the-shaping-of-a-world-religion-carl?utm_source=substack&utm_medium=email https://cynthiachung.substack.com/p/the-shaping-of-a-world-religion-carl-413?utm_source=substack&utm_medium=email The Origins of the Counterculture Movement: A Gathering of Anarchists, Occultists and Psychoanalysts for a New Age – the Canadian patriot https://www.youtube.com/watch?v=kaUemcqIQ-k Hell Fire Club Secret Society - Sex, Satanism and Secret Societies • Soul:Ask | Unlock your mind and soul (soulask.com) : https://matthewehret.substack.com/p/the-ancient-occult-roots-of-the-fabian?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140439126&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email The Scottish Rite’s KKK Project – The Impious Digest Secret Satanic Council of 13 called the Grand Druid Council, page 1 (abovetopsecret.com) https://rumble.com/v48j9uc-child-sex-workers-fully-booked-at-davos-wef-insider-says.html https://www.youtube.com/watch?v=8R1kcdbbcmo Is John Todd Still Alive? - henrymakow.com Milner’s Round Table as Grail Knights of Mithra: Solar Cults from Rome to the New British Empire – the Canadian patriot The British Empire’s Gnostic Revival of Scientific Paganism and a New World Religion (substack.com) Sir Henry Kissinger: Midwife to New Babylon (substack.com) https://expose-news.com/2023/11/16/world-economic-forum-stripped-naked/ https://expose-news.com/2023/07/21/freemasons-mychip-programme-tracking-children/ Why Are the Freemasons Collecting Our Children's DNA? | HuffPost News COP26 and Pope Francis’ “Greening of Christianity” (substack.com) https://matthewehret.substack.com/p/secret-societies-of-1776-and-the?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140882821&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://expose-news.com/2024/01/07/the-protocols-of-the-learned-elders-of-zion/ https://matthewehret.substack.com/p/sir-henry-kissinger-midwife-to-new?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=139991340&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://ia601900.us.archive.org/16/items/albert-pike-letter-to-mazzini/Albert%20Pike%20Letter%20to%20Mazzini.pdf https://www.news.com.au/lifestyle/real-life/true-stories/chilling-letter-written-150-years-ago-predicted-both-world-wars-and-a-third-battle-against-islamic-leaders/news-story/e266a72972815e53e9c7aab009778796


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband