Mennirnir með covid-ljáinn

Hollensku rannsóknablaðamennirnir, Janet Ossebaard og Cynthia Koeter, hafa nú lokið við gerð 26. þáttar í heimildamyndaröð um fyrirbæri, sem kallað er ýmsum nöfnum eins og kært barn; t.d. „Hinir upplýstu“ (Iluminati) eða „Kaballinn“ (The Cabal).

Átt er við þau öfl, sem ljóst og leynt berjast fyrir alheimsyfirráðum undir forystu ákveðinna auðhringa og auðjöfra. Talsmenn þeirra er einkum að finna í alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar, samtökum auðjöfra og ríkisstjórna á borð við bólusetningafélagið, GAVI, og í Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum). Þar situr í forsæti Klaus Schwab, sem rætt hefur og ritað manna mest um „Hið nýja skipulag veraldarinnar“ eða nýju alheimsstjórnina (New World Order).

Í þessum þætti er fjallað um einn lið í þessari viðleitni, covid-19 faraldurinn, sem er allsherjaræfing í gerræði stjórnvalda um allan heim. Bill Gates lét eins og kunnugt er, þau boð út ganga, að bólusetja ætti alla heimsbyggðina. (Hann er stór hluthafi í GAVI.)

Það láðist hins vegar að biðja um upplýst samþykki bólusetningaþega þessara tilraunaefna og veita vitneskju um innihald sprautunnar eins og t.d. kvikasilfur og graffen/grafít (graphene – kolefnisíðefni), sem virkjast við rafsegulörvun eins og frá 5G sendum.

Það gleymdist líka að geta þess, að bólusetning kemur síður en svo í veg fyrir smit. Það á sér aftur á mót stað svokallað „bóluefnaflæði“ (shedding), þ.e. bóluefnið „smitast“ til hinna óbólusettu við snertingu eða með loftflæði.

Óháðar rannsóknir sýna ýmis konar óhugnað í bóluefnaglundrinu, þ.m.t. örefni (microskopic object) og örbeina (micro router) til boð- eða fjarskipta. Því hlýtur sú spurning að vakna til hvers þeim sé sprautað inn í líkamann. Þáttarhöfundar spyrja sig, hvort fjöldadauðinn í Seúl fyrir skemmstu gæti skýrst af fjarskiptaboðum? Fórnarlömbin báru þess ekki merki að hafa troðist undir. Um eitt hundrað og fimmtíu manns hrundu niður nokkurn veginn samtímis.

Bólusetninga-Bill vonaðist til, að það tækist að fækka mannfólkinu um tvo millarða í þessari atlögu. Það tókst í sjálfu sér vel. En betur má ef duga skal. Bill og Alþjóðaheilbrigðisstofnun hans, hafa – samkvæmt uppljóstrurum í stofnuninni – níu til viðbótar upp í erminni.

Í þættinum er staðreyndum um faraldurinn gert góð og áhrifarík skil, áhrifum á heilsu fólks, líf og hag. Sömuleiðis er stiklað á stóru um það ofbeldi, sem óþægir þegnar og andófsmenn bólusetningarinnar urðu fyrir.

Stöllurnar benda á þann óheyrilega fjölda líkpoka, sem stjórnvöld hafa fjárfest í. Þær benda í því sambandi líka á eldgamla aðferð í áburðargerð, sem Amos Herbert Hanson, gildur bóndi í Bandaríkjunum, fann upp til að gera áburð úr dýrahræjum (alkaline hydrolysis). Aðferðin var fyrst notuð við Læknaháskólann í Albany árið 1993 og í útfarariðnaðinum 2011.

Hluti af myndefninu er varla fyrir viðkvæma. Ég vona, að einhver gauki myndinni að Guðrúnu og Ölmu og ríkisstjórninni. Þau virðast lifa í einhvers konar afneitunarfílabeinsturni.

En þar eru fleiri sem halda sig; fjölmiðlar. Fyrir skemmst var haldin ráðstefna í Ósló um siðferði heilbrigðisstarfsmanna og vísindamanna í covid fárinu. Það þótti þeim ekki fréttnæmt. Það þótti þeim heldur ekki, þegar Vesturlandabúar mótmæltu covid frelsisskerðingunum. En þeir ruku upp til handa og fóta, þegar Kínverjum var nóg boðið.

Meðan á öllu þessu gengur glíma óháðir vísindamenn við að leysa covid gátuna til fullnustu, þ.e. hvað sé í bóluefnasullinu og hvernig það meiðir og drepur. T.d. er það nú staðfest, að frjósemi minnkar í Noregi eins og víðar.

https://steigan.no/2022/11/patolog-ryan-cole-om-overdodelighet-dette-er-hva-jeg-ser-i-mikroskopet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.nlhf.no/wp-content/uploads/2022/11/19-November-Program.pdf https://steigan.no/2022/11/mediene-full-taushet-om-demonstrasjoner-mot-lockdown-helt-til-de-kom-til-kina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2022/11/dr-aseem-malhotra-hvordan-kurere-informasjonspandemien-om-mrna-vaksinene/?utm_source=substack&utm_medium=email https://dossier.substack.com/p/army-officer-resigns-commission-in https://steigan.no/2022/11/dramatisk-fall-i-fodselstallene-i-norge-i-2022/?utm_source=substack&utm_medium=email https://expose-news.com/2022/11/29/how-covid-jabs-cause-intravascular-growths/ https://www.bitchute.com/video/1PDslsRRaPbx/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband