Þegar grúskað er í talnagögnum, er skýr samanburður nauðsynlegur. Þegar áhrif lyfja eru skoðuð, er affararsælast að miða við lyfjahreinan hóp annars vegar og lyfjatökuhóp hins vegar. Samsetning hópanna skal að sjálfsögðu grundvallast á trúverðugu úrtaki þess skara (þýði, population cohort), sem rannsaka á. Reynslan hefur eftirminnilega kennt okkur, að engin rannsókn, hversu vönduð sem hún er, afhjúpi allan sannleika um áhrif lyfs eða bóluefnis.
Víðast hvar halda heilbrigðisyfirvöld ákveðnar skrár yfir aukaverkanir lyfja. Talið er, að einungis tíundi hluti aukaverkana sé skráður í hinum opinberu skrám. Stundum hafa ný lyf valdið afmyndun, margvíslegum heilsuvanda og dauða. Því er nauðsynlegt að rýna í þessar skrár.
Það hafa rannsóknarblaðamenn Exposé gert. Þeir leita fanga í gagnagrunni alríkisstjórnar Bandaríkja Norður-Ameríku, sem heitir Tilkynningaskrá um meinviðbrögð við bólusetningum (Vaccine Adverse Event Reporting System - VAERS). Þeir fara þá leið að bera saman meinviðbrögð við flensubólusetningum og gegn covid-19 á grundvelli gefinna bóluskammta. Þeir skoða aftur til 2008, hvað flensubólusetningu varðar. Skoðað tímabil covid-19 bólusetninga er frá upphafi þeirra til loka janúar á þessu ári.
Meginniðurstaðan er sú, að covid-19 sprauturnar séu 49sinnum banvænni en flensusprauturnar. Höfundar slá ákveðinn varnagla við samanburðinn, þar sem flensubóluefni hafi að miklu leyti verið gefin viðkvæmum hópum, frábrugðið því, sem almennt á við um covid-19 bóluefnin. Því gæti flensubóluefnið virst hættulegra heldur en það er í raun og veru. Prýðilegt yfirlit fæst við að skoða töflurnar í greininni.
Yfirlitið um varanlega fötlun, afskræmingu nýbura og dauða, vakti upp minningar um hið skelfilega lyf, Thalidomide, sem ég heyrði um í æsku minni. Það setti bókstaflega að mér hroll. Lyfið fékk markaðsleyfi (þó ekki í BNA), þegar ég var fimm ára. Þegar það var tekið af markaði í byrjun sjötta áratugar síðustu aldar, hafði það valdið ólýsanlegum hörmungum. Langtímaáhrif þeirra á fóstur komu seint í ljós.
Fullyrt var, að lyfið væri hættulaust þunguðum konum og brjóstmylkingum. Svo var Distaval (thalidomide) auglýst: Það er fullkomlega öruggt að gefa Distaval þunguðum konum og mæðrum með börn á brjósti. Meináhrif á móður og barn eru engin. (Þetta eru reyndar þau skilaboð, sem íslensk heilbrigðisyfirvöld senda verðandi mæðrum og feðrum nú um erfðabóluefni (mRNA) Phizer. Rannsóknin, sem vísað er til þessu til staðfestingar, er ekki síður meingölluð og hinar Pfizer rannsóknirnar. Meira um það síðar.) Talið er, að um tíu þúsund kornabörn hafi orðið fyrir meináhrifum. Um helmingur þeirra lést skömmu, eftir fæðingu.
Niðurlag höfunda er svohljóðandi: Í samanburði við bóluefni við inflúensu og á grundvelli gefinna skammta, eru covid-19 sprauturnar að minnsta kosti;
17sinnum líklegri til að valda meinviðbrögðum;
65sinnum líklegri til að skapa þörf fyrir bráðalækningu;
23sinnum líklegri til að skapa þörf fyrir sjúkrahúsinnlögn;
57.5sinnum líklegri til að valda fæðingargöllum;
19sinnum líklegri til að valda varanlegri fötlun; 18sinnum líklegri til að setja fólk lífshættu;
49sinnum líklegri til að valda dauða.
Hvernig má það vera, að þrátt fyrir þessar tölur og sambærilegar, sé knúið á um bólusetningu kornabarna, þ.e. sex mánaða til fjögurra ára, sbr. krækta frétt frá Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkja Norður-Ameríku (Food and Drug Administration)? Spyr sá, sem ekki veit.
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/21507989/
https://www.sciencemuseum.org.uk/objects-and-stories/medicine/thalidomide#:~:text=Thalidomide%20is%20a%20drug%20that,morning%20sickness%20in%20pregnant%20women.
https://wonder.cdc.gov/vaers.html
https://www.fda.gov/news-events/press-announcements/coronavirus-covid-19-update-fda-advisory-committee-meeting-discuss-request-authorization-pfizer
https://dailyexpose.uk/2022/02/10/us-gov-data-covid-jabs-49x-deadlier-than-flu-jabs/
Nýjustu færslur
- Hverjum þykir sinn sögufuglinn fagur. Auschwitz og Sankti Pét...
- Bandaríkin. Dónaldur trumpar um undirróður, stríð og bólusetn...
- Trumpur og eldingar. Kolsvarti, stríðsóði tíkarsonurinn og mo...
- Úrkynjun, ósigur og hrunadans Vesturlanda. Emmanuel Todd
- Þegar Íslendingar seldu sálu sína og frelsi: Seinni hluti
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021