Í minningu Luc Montagnier. Skaðsemi covid-19 bóluefna

Franski Nóbelsverðlaunahafinn og veirufræðingurinn, Luc Montaigne (f. 1932), lést þann áttunda þessa mánaðar. Það er einungis liðinn tæpur mánuður síðan, að hann bar vitni við þingréttarhald í Luxemborg (þann 12. Janúar). Luc var verðlaunaður 2008 fyrir uppgötvanir í sambandi við alnæmisveiruna (HIV), sem svo er kölluð.

Hann segir m.a. á þessa leið um covid-19 bóluefnin: Þessi bóluefni eru eitruð. Þau eru ekki raunveruleg bóluefni. Hið innsprautaða mRNA (erfðabóluefnið) afritast stjórnlaust í öllum líkamanum. Það er með engu móti unnt að segja fyrir um, hvar afritunin á sér stað. Því er þetta hræðileg óvissa.

Nýlega höfum við komist að því, að upplýsingar voru birtar fyrir ári síðan, þess efnis, að einn þáttur í mRNA (bóluefninu) væri hvítu- eða prótínsýkill (prion). Þetta getur haft í för með sér ófyrirséðar erfðabreytingar á hvítu (prótíni).

Í læknisstörfum mínum fylgdi ég eftir 21 sjúklingi, sem fengu tvo skammta af Pfizer bóluefninu, og einum, sem fékk Moderna bóluefnið. Pfizersjúklingarnir létust allir af Creutzfeldt-Jakobssjúkdómi. (Taugahrörnunarsjúkdómur í miðtaugakerfi, heila.) Sjúkdómsvaldurinn var hvítusýkill (prion).

Luc heldur því fram, að bólusetningar stöðvi ekki covid-19 veiruna heldur efli hana að allri dáð, stuðli að tilbrigðum sem séu smithæfari og öflugri. Hin nýju tilbrigði munu hrista af sér bóluefnin og valda viðtækari heilsufarsusla.

Bólusetningin skapar sem sé ný tilbrigði veirunnar. Þetta er útskýrt sem „mótefnisveiruhvati“ (antibody dependent enhancement – ADE), þ.e. stundum bregður svo við, að mótefni gegn tiltekinni veiru magna sjálfa veirusýkinguna, auðvelda aðgengi veirunnar í frumuna eða afrita hana. Þannig elnar sjúkdómurinn í stað þess, að hann réni.

Bólusetningarherferðina kallar Luc „óásættanleg mistök, vísindaleg sem og lækningaleg.“

Í grein, sem birtist fyrir réttu ári síðan, komst bandaríski veirufræðingurinn, John Barthelow Classen), að svipaðri niðurstöðu. Hann bendir á: Við greiningu á Pfizer bóluefninu gegn covid-19 fundust tveir áhættuorsakaþættir með tilliti til hvítusýkingar (prion) í mönnum. Hvíturunan í RNA bóluefninu felur í sér raðir, sem líklega valda ummyndun innanfrumu tengihvítu (TDP-43) og kjarnlægrar (nuclear) bindihvítu (Fused in Sarcoma – FUS), sem samlagast tilbrigði eða gerð (conformation) hvítusýkilsins.

Belgíski veirufræðingurinn, Gert Vanden Bossche, hefur tekið í svipaðan streng: „Hjarðbundnar smitvarnir og hjarðbólusetning með lekum covid-19 bóluefnum [þ.e. bóluefni, sem sleppur út í blóðrásina og smitar hin ýmsu líffæri] í miðri farsótt verður einungis til þess að rækta afar smitandi tilbrigði [veirunnar].“

Eftir flestum sólarmerkjum að dæma, virðast ofangreindir enn þá sannspáir – því miður. Það þarf varla að taka fram, að flugumenn lyfjaiðnaðarins (fact checkers) segja alla ofangreinda sérfræðinga óvita.

https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/12725690/

https://steigan.no/2021/08/fransk-nobelpris-vinner-advarer-vaksinene-stimulerer-til-farligere-varianter-ber-folk-om-a-ikke-ta-vaksinen/

https://steigan.no/2022/02/nobelprisvinner-montagniers-siste-budskap-vaksinene-trigger-hiv-og-creutzfeldt-jakobs-sykdom/

https://scivisionpub.com/pdfs/covid19-rna-based-vaccines-and-the-risk-of-prion-disease-1503.pdf

https://thenewamerican.com/french-nobel-prize-winner-warns-vaccines-facilitate-development-of-deadlier-covid-variants-urges-the-public-to-reject-jabs/

https://rairfoundation.com/bombshell-nobel-prize-winner-reveals-covid-vaccine-is-creating-variants/

https://odysee.com/@Kairospresse:0/Parlement_Luxembourgeois_Montagnier:d?r=5AoNrwnMxzjfijT6DrE72cBuAbqiyQoF


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband