Angelique Coetzee og Ómikron. Þöggunartilburðir

Angelique Coetzee er suður-afrískur læknir til þrjátíu og þriggja ára og formaður læknasamtakanna í heimahögunum. Það var hún, sem fyrst gerði viðvart við Ómikron tilbrigði veirunnar vinsælu, sem ræktuð var í Georgíu og Whuhan. En þá hafði afbrigðið þegar verið greint í Hollandi.

Það kom strax í ljós, að einkenni voru væg. Aðallega var um að ræða ungia karlmenn, sem smituðust, bæði óbólusettir og bólusettir. (Þeir, sem eina sprautu hafa fengið í Suður-Afríku, eru skilgreindir óbólusettir.)

Í heimalandi Angelique þótti þetta svo sem ekkert tiltökumál. Það er alkunna, að veirur stökkbreytist. En svo þótti ekki í Evrópu. Það bætti varla úr skák, að hún kallaði bægslaganginn „storm í vatnsglasi.“ Hún sætti óviðurkvæmilegum þrýstingi og tilburðum til útskúfunar fyrir bragðið.

Í Evrópu ætlaði sem sé allt af göflunum að ganga, m.a var flug til Suður-Afríku bannað. Reglur voru hertar um tilgangslausa grímunotkun, lengri sóttkvíar og jafnvel sektir. Því stjórnuðu stjórnmálamenn. En mörgum þeirra verður iðulega fótaskortur í skynseminni og vísindunum eins og allir vita.

En öðru máli ætti að gegna um vísindamenn og fagmenntaða embættismenn. En því var ekki að heilsa. Angelique segir: „Ég fékk blátt bann við því frá vísindamönnum og evrópskum stjórnmálamönnum að nefna einu orði, að viðbrögð við þessu nýja tilbrigði væru afar væg.“

M.a. hafði formælandi heilbrigðisyfirvalda í Hollandi, Jaap van Dissel, samband, og tjáði Angelique, að það væri eiginlega of snemmt að fullyrða um viðbrögð við veirunni. Þar að auki hefði hún ekki hugmynd um önnur afbrigði, sem kynnu að skjóta upp kollinum. Og þá mátti einu gilda, hvort hún hefði fylgt gildandi reglum frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni eður ei.

https://steigan.no/2021/12/legen-som-fant-omicron-dere-overreagerer/

https://steigan.no/2022/02/legen-som-oppdaget-omikron-fikk-ordre-om-a-holde-kjeft-om-a-kalle-den-alvorlig/

https://nypost.com/2021/11/30/omicron-detected-in-europe-before-s-africa-reporting-officials/

https://www.europereloaded.com/doctor-who-discovered-omicron-i-was-ordered-to-label-this-variant-serious/

https://www.dailymail.co.uk/debate/article-10256373/Dr-ANGELIQUE-COETZEE-discovered-Omicron-says-reacting-threat.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband