Undur og org í Ísrael. Barnamorðinginn brjálast enn

Bandarískar fréttaveitur sýna leiðtoga Ísraelsríkis orga sig rauðan af vanþóknun. Fólk í Bandaríkjunum (og víðar) leyfir sér að mótmæla morðum Ísraelsríkis á varnarlausu fólki. Benjamin ber enn á helfararbumbuna og krefst þess, að bandarísk stjórnvöld stöðvi mótmælin. Hann lítur á sjálfan sig sem fulltrúa Gyðinga í veröldinni.

Bandarískir þingmenn, sem umvörpum eru fjármagnaðir af áróðurs- og styrktarfélögum í þágu Ísraelsríkis, hlaupa til og semja nýja löggjöf (Antisemitism Awareness Act), sem bannar Gyðingahatur, þ.e. sambærileg haturslöggjöf „Katrínar forseta.“ Barnamorðinginn heldur því nefnilega fram, að sá óþverrasíonismi, sem hann er fulltrúi fyrir, sé hin rétta myndbirting Gyðingdóms.

En það er að sönnu fráleitt, sbr. mótmælasögu Gyðinga sjálfra gegn ofbeldisfullri nýlendustefnu Ashkenazi Gyðinga frá Austur-Evrópu, sem tóku virkan þátt í Gyðingadrápum. (Sjá t.d. bók Daphna Levits: „Glímuna við Síonisma: Andmælaraddir Gyðinga (Wresting With Zionism: Jewish Voices of Dissent). Göfugustu Gyðingarnir mótmæla barnamorðingjanum og drápsfúsri hirð hans eins og alvöru spámenn þeirra og afreksmenn gerðu fyrir öld og áratugum.

Mótmælin virðast áköfust í háskólum, sem haldið er á floti af Gyðingum, og að einhverju leyti fjármögnuð af óeirða- og undirróðursmanninum, George Soros, sem víða hefur komið við, þegar uppreisnar- og eyðileggingar hefur verið þörf, bæði innan Bandaríkjanna og utan. Nefna má Georgíu, Armeníu, Úkraínu, Íran, „Black Lives Matter“ og margar undirróðursaðgerðir aðrar.

Hvernig skal skilja þessi firn? Bandaríski blaðamaðurinn, Michael King, segir sem svo, að hér sé „snillingurinn“ Dónaldur Trump að verki með lævíslega aðför að Ísrael, sem hann styðji í orði kveðnu. Varla hefur Gyðingurinn, George, snúist á sveif með fjandmönnum Ísraels? Ætli spádómur Henry Kissinger um fall Ísraels sé að rætast?

Meðan á þessu stendur hamast Bandaríkjamenn, þrátt fyrir nasablástur forseta síns, við að undirbúa frekari þátttöku í sameiginlegu stríði Bandaríkjanna, Ísraels og Breta (og Nató/Evrópusambandsins) fyrir botni Miðjarðarhafs, með byggingu bryggju, sem Ísraelar hafa áður verið andsnúnir. Þar bætast um þúsund bandarískir hermenn við heraflann.

Væntanlega verða þeir þó ekki sendir ofan í göngin til að eltast við Hamashermenn. Ísraelsmenn hafa keypt sér erlenda málaliða til þess arna á alþjóðadrápsmarkaðnum.

Það verður fróðlegt að sjá, hverju samrunaheimsveldi Ísraela og Bandaríkjamanna tekur upp á næst. Erkifjandinn, Íran, hefur skákað þeim svo eftirminnilega með ofurflugskeytum sínum, að kjarnavopn eru líklega einustu drápstólin, sem það á upp í erminni – og ekki hefur verið beitt.

Bretar taka óbeinan þátt í Gazaslagnum frá herstöð sinni á Kýpur og beinan þátt í aðgerðum gegn litla Jemen, sem fullum hálsi rífur kjaft, í raun einasta þjóð veraldar, sem reynir að fara að alþjóðalögum, sem bjóða aðildarlöndum að koma í veg fyrir þjóðarmorð.

Bein og óbein áhrif Ísraelsríkis á stjórnmál Vesturlanda, trú- og fjármál, eru svo gífurleg, að klókur maður komst svo að orði: „Sannleikurinn er sá, að allur heimurinn, nema Gaza, er hersetinn af Ísrael.“

Syndaskrá ísraelskra stjórnvalda er löng. Þeim er sjaldan álasað fyrir samvinnu og fjárstyrk til Hamassamtakanna, sem taka þátt í þessum skelfilega skollaleiki á Gaza og í Ísrael (þ.e. einhver deild innan þeirra). Það er með engu móti unnt að skýra innrás samtakanna í Ísrael öðruvísi en sem svo, að þeim hafi verið „boðið“ inn. Árásin var skipulögð í þaula og ísraelsk stjórnvöld höfðu nasasjón af henni. Þó virðast Hamasliðar ekki hafa vitað af tónleikahaldi á svæðinu.

Þessi manndráp eru enn einn smánarbletturinn á mannkyni.

https://covertactionmagazine.com/2024/04/06/the-ghosts-of-gaza-are-whispering-every-night/?mc_cid=af5fe30ca7&mc_eid=5cd1ec03b1 https://steigan.no/2024/05/amerikanske-stovler-pa-bakken-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.realnewsandhistory.com/anyt-05-01-24/ https://covertactionmagazine.com/2024/04/29/jewish-prophets-who-predicted-nightmarish-escalation-of-israeli-palestine-conflict-were-blacklisted-and-ignored/?mc_cid=aa16e92c2c&mc_eid=5cd1ec03b1 https://efrat.substack.com/p/gazas-new-temporary-port-cui-bono?utm_source=post-email-title&publication_id=1148466&post_id=144195898&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/israel-uses-foreign-mercenaries-gaza/5856051 https://www.globalresearch.ca/top-universities-pro-palestine-encampments/5856022 https://expose-news.com/2024/05/02/george-soros-is-funding-pro-palestinian-student-groups/ https://expose-news.com/2024/04/30/reese-reports-the-zionist-death-grip-on-the-united-states-government/ https://beeley.substack.com/p/zionism-as-a-fascist-ideology-and?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=144120836&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/second-round-retaliation-israel-iran/5855218 https://informationclearinghouse.blog/2024/04/26/first-rafah-then-hezbollah-then-iran-israels-government-plans-for-more-war/11/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/25/naomi-klein-zionism-is-a-false-idol-that-betrayed-every-jewish-value/10/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/25/israeli-council-considers-issuing-international-arrest-warrant-for-netanyahu-report/12/ https://www.globalresearch.ca/israel-s-plans-to-wage-nuclear-war-on-iran-history-of-israel-s-nuclear-arsenal/4477 https://korybko.substack.com/p/the-antisemitism-awareness-act-is?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=144232903&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Höfuð snáksins; bakmenn endurræsingarinnar miklu, veiruvitfirringarinnar, kven- og kynfrelsunar, svo og hamfarahlýnunar. Elizabeth Nickson

Elizabeth Nickson er kanadískur blaðamaður. Hún hefur starfað á fjölda miðla, en er nú sjálfstæð og óháð. Hún er höfundur nokkurra bóka.

Ég geri hér að umtalsefni tvær merkar greinar, sem Elizabeth hefur skrifað um þá nýju veröld, sem er í burðarliðnum við endurræsinguna miklu (Great Reset), sem Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) hefur lofað okkur.

Elizabeth hefur um sumt sérstakan sjónarhól. Hún hefur alist upp meðal þess fólks, sem eru bakhjarlar Alheimsefnahagsráðsins. Það er þetta fólk, sem hamast við að fækka heimsverjum, svipta þá eigum, sjálfsvaldi og frelsi.

Elizabeth lítur um öxl til sjöunda áratugs síðustu aldar, þegar „ásetningur þeirra var að rugla í ríminu (break) börn þriggja kynslóða (sem ljúka ætti með kynskurði), eyðileggja hugsun þeirra, koma fjölskyldum þeirra á vonarvöl, sannfæra þær um, að barneignir væru böl, að vöxtur, velmegun og sjálfsstjórn, væri sem ókleifur hamar – jafnvel tortímandi.“

Morðið á John F. Kennedy (1917-1963) markar að sumu leyti þáttaskil í þeirri áætlun, sem blasir við augum í dag; fólki og hópum er att gegn hver öðrum, atferlisvísindin tekin í þjónustu þeirra, sem vilja móta hugsun fólks og hegðun. Úr þessari deiglu var umhverfishreyfingin stofnuð sem og önnur bylgja kvenfrelsunar. Sömuleiðis náðu „þeir“ tökum á fjölmiðlum og beittu fyrir sig leyniþjónustum. MKUltra, heilaþvottarannsóknaráætlunin, er eitt skilgetinna afkvæma leyniþjónustu Bandaríkjanna - CIA.

Kvenfrelsunarhreyfingunni var sérstaklega komið á laggirnar í því skyni að eyðileggja hjónabandið og gera barneignir óaðlaðandi.

Hverjir eru þeir? Kært barn ber mörg nöfn; Ólympíujöfrarnir (Olympians), Úrvalið (Elect), Bilderbergersveitin (Bilderbergers), Þriggja hundraða ráðið (the 300), Hálfguðirnir (demi-gods), Svarti aðallinn, sem og fleiri kjánaheiti.

Þeir fara með veggjum, laumast og læðast, stunda alls konar kukl, sem ekki þolir dagsins ljós. Þeir eru sólgnir í völd eins og Hillary Clinton, en enn þá spilltari en hún, Joe Biden og sonarómyndin. Þeir hafa verið á stjái um þúsund ára skeið og gera sjálfa sig hlægilega með því að rekja ættir sínar aftur til Súmera og Faróa.

Hunter Biden er eins konar holdgervingur þeirra; djúpsál, myndbirting viðbjóðslegrar úrkynjunar og kynlífsþráhyggju. Að mínum dómi, segir Elizabeth, var Hunter tekinn í söfnuðinn og missti vitið í fíkniefnaneyslu, blóðdrykkju, drápum og kynfórnum. Það eru blótin, sem færa þeim völd.

Hvernig hefur slík grimmd skotið rótum, spyr Elizabeth. Grimmdin birtist í áætlunum um að endurræsa veröldina, stinga öllum í stundarfjórðungsfangelsi, örmerkja fólk, hafa með því eftirlit og fóðra það á gerviefnaglás.

(Úkraína er nú orðið fyrirmyndarríki að þessu leyti. Yfirvöld hafa tögl og haldir í gegnum snjallforrit, sem tæknirisarnir hafa hannað, sbr. viðtal við þýska blaðamanninn, Tom-Oviver Regenauer. Alþingi Íslendinga hefur nýlega endurnýjað stuðning sinn við Úkraínu.).

Og enn spyr Elizabeth. Hvernig má það vera, að heilbrigðisstarfsmenn hafi sprautað skaðvænlegu bóluefni gegn covid-19 í fólk (sbr. samantekt Edward Dowd á meinviðbrögðum)?

Svarið er fólgið í fyrirlitningu úrvalsfólksins á öllum – eða því sem næst. Þau eru svo vel efnum og búin og búa við slík fríðindi, að á sérhvern utanaðkomandi er litið sem hjarðdýr, sem megi ráðskast með.

Stríðshugmyndafræðin gegn okkur var mótuð gagngert á nítjándu og tuttugustu öldinni í leynifélögum á borð við Fabianfélagið (Fabians) og af rithöfundum á þeirra vegum eins og H.G. Wells (1866-1946) og Huxley bræðra (Aldous Leonard(1894-1963) og Julian Sorell (1887-1975)).

Faðir bræðranna, Thomas Henry (1825-1895), var stundum kallaður almannatengill Charles Darwin (1809-1882), en kenningar hans um þróun lífsins á jörðinni voru afbakaðar í félagslega Darwinhyggju (social Darwinism), sem urðu grundvöllur mannbótastefnunnar (eugenics), sem enn hefur víðtæka skírskotun.

Samkvæmt stefnunni er sumt fólk betra en annað og hefur því lífsins rétt. Uppræta skal hina óæskilegu. Það á einnig við um kynstofna eða kynþætti. Þekkt tilbrigði við þessa hugmyndafræði eru Aríar (hugarfóstur þýskra nasista) og Gyðingar.

Thomas var einnig félagi í Hringborðinu (Round Table) og Rhodes-félaginu. Hvor tveggju eru félög breskra heimsvaldasinna og auðkýfinga. Einn þeirra, Cecil John Rhodes (1853-1902), átti meira að segja hluta Afríku (Ródesíu).

Leyniþjónustan átti sinn fulltrúa, sagn- og alþjóðafræðinginn, Arnold Joseph Toynbee (1889-1975), sem einnig stjórnaði um hálfrar aldar skeið „Konunglegu stofnununni um alþjóðamál“ (Royal Institute for International Affairs).

Hugmyndafræðin og framtíðarsýnin er eftirminnilega kynnt í bókum fyrrgreindra höfunda. Opið samsæri sögðu þeir, uppdrættir af nýrri (fagurri) veröld, áætlun um heimsbyltingu, sem m.a. fæli í sér einn „heimsheila.“ Aldous talaði um „lokabyltingu,“ „alræði án tára,“ þar sem fólk öðlaðist þrælslund.

Bróðir Aldous, Julian, hafði einnig afdrifarík áhrif sem fyrsti yfirmaður Mennta-, menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO – United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization).

Markmiðið – eins og lesa má t.d. í ritum Aldous - væri að stofna til samfélags eða fangabúða án þjáninga, þar sem fólk væri svipt frelsi, en léti hjá líða að ybba kíf. Áróður og lyfjastuddur heilaþvottur kæmi í veg fyrir það. (Þarna eru við reyndar stödd í dag – eða hvað?)

Fólk af þessu sauðahúsi sótti í dýrkun gamalla frjósemis-, vímu- og svallguða eins og Dionýsusar (Dionysus). Dulvitringur þeirra var rússneski rithöfundurinn, Helena Petrovna Blavatsky (1831-1891). Leiðtogi breskra fasista, Oswald Ernald Mosley (1896-1980) lét einnig ljós sitt skína.

Fyrrgreindir stríðsjöfrar, ásamt Rockefeller-ættinni, Henry (Heinz) Kissinger (1923-2023), Alþjóðaseðlabankanum (Bank of International Settlements), Seðlabankanum í Nýju Jórvík, gamalgrónum fjölskyldum í Evrópu og fleirum, tóku eftir aðra heimstyrjöldina til óspilltra málanna við að eyðileggja samfélag Norður-Ameríku.

Eyðileggingin var einkum þríþætt; skapa óreiðu í borgunum og ala á óeiningu; skapa menningarleg áföll eins og morð, aftökur og sjúkdóma (covid), í því skyni að bæla viðnámsþróttinn, svo og eyðileggja menninguna, konur og börn.

Endurræsingin bergmálar víða á Íslandi, m.a. í sambandi við forsetakosningarnar. Það eru hvorki meira né minna en þrír forsetaframbjóðendur, sem eru Alheimsefnahagsráðinu hliðhollir; Katrín Jakobsdóttir og Höllurnar tvær. Katrín er holdgervingur baráttu þess fyrir kvenfrelsun og brenglun kyns. Auk þess berst hún fyrir rétti kvenna til geðþóttaeyðingar fóstra sinna fram að fæðingu. Í slíkum rétti felst endaleg frelsun konunnar – eða þar til klakstöðvarnar taka við.

Katrín bergmálar eins og Halla smalastúlka, ofstækisfulla umhverfisstefnu Ráðsins og Sameinuðu þjóðanna (Sjálfbærnimarkmiðin). Aukin heldur eru tveir frambjóðendur (Katrín og Baldur/Felix (tveir fyrir einn) hlynntir kynbreytingum á börnum eins og Bandaríkjaforseti.

Alheimsúrvalið (höfuð snáksins) hefur erindi sem erfiði.

https://rumble.com/v33js3w-del-bigtree-wed-dowd-black-rock-vaccinated-folks-collapses-disabilities-dea.html https://www.kla.tv/28792 https://steigan.no/2024/04/ukraina-administreres-av-apple-microsoft-og-amazon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steemit.com/stanfordresearch/@duanehayes/stanford-research-institute-changing-images-of-man https://rumble.com/v33js3w-del-bigtree-wed-dowd-black-rock-vaccinated-folks-collapses-disabilities-dea.html https://elizabethnickson.substack.com/p/the-demonic-flooding-of-america-was https://elizabethnickson.substack.com/p/they-break-every-family-every-country


Örlagadagar nálgast. Veiruvitfirringin og vinstri-græni forsetinn. Sprautumorðin

Bráðum kýs íslensk þjóð sér forseta, þjóðardýrlinginn, Katrínu Jakobsdóttur, sem bæði er fulltrúi Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum - WEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (AH). Sú síðastnefnda, fjármögnuð að miklu leyti af bólusetninga- og lyfjaauðjöfrinum, Bill Gates, lýsti nýlega yfir gerviheimsfaraldri.

Katrín „forseti“ tók þátt í þessari blekkingu almennings og leiddi stórfellda ógæfu yfir þjóðina, sem nú kýs hana á Bessastaði. Þá mun vafalítið kætast Klaus Schwab, forstjóri WEF. Ráðið á nú fólk sér handgengið meðal stjórnvalda víða um heim, ekki síst úr röðum kvenfrelsara, sem það hefur stutt dyggilega til áhrifa og valda. Það er ekki útilokað, að íslensk þjóð vakni um síðir til vitundar um þá ógæfu, sem Katrín og ríkisstjórn hennar hafa leitt yfir þjóðina. Ætli hún muni njóta friðhelgi dómstóla sem Bessastaðafrú?

Vafalítið mun vestræn kven- og kynfrelsunarhreyfing einnig fagna sigri. Katrín er holdgervingur baráttu þeirra, ekki síst fyrir þá sök, að hún berst fyrir fóstureyðingum fram að fæðingu. Í fyrsta sinn eignast íslenskir karlmenn forseta, sem telur þá „eitraða“ kúgara kvenna. Fáir stjórnmálamenn hafa barist svo ötulleg gegn körlum; drengjum og feðrum. Þetta verður magnaður áfangi í sögu lýðveldisins.

Forsetakosningarnar, munu eiga sér stað þann fyrsta júní. Hinn örlagadagurinn rennur upp viku fyrr eða 24. maí. Þá kjósa aðildarríki Sameinuðu þjóðanna um, hvort veita eigi AH endanlegt alræðisvald í heilbrigðismálum þjóðanna. Það má telja víst, að AH vinni tvöfaldan sigur; öðlist langþráð alræðisvald með tilheyrandi skerðingu fullveldis þjóða og fái fulltrúa sinn á Bessastaði.

Örveirufræðingurinn góðkunni, Michael Yeadon, gerir alræðisvald AH að umtalsefni í umfjöllun um fyrirlestra Paul Schreyer, Stefan Homburg og Christian Perronne (allir tilgreindir í grein hans). Vitnisburður Denis Rancourt fyrir alþýðudómstóli í Ottawa er einnig afar áhugaverður.

Michael beinir sjónum okkar enn þá lengra. Hann bendir á, að sjálf heilbrigðiskenningin, sem öll blekkingin grundvallast á, þ.e. um veirusýkingar og veirusmit, sé á sandi byggð; þjóðtrú og rétttrúnaður heilbrigðisstétta.

„Trúin“ er hugarfóstur Louis Pasteur (1822-1895), „föður“ örverufræðinnar. Enginn hefur nokkru sinni séð veirur úr mönnum, segir Kyle Young. Heldur ekki síðustu svikaveiru, þrátt fyrir allar PCR sjónhverfingarnar. (Sbr. einnig bók Thomas Cowan: Vaccines, Autoimmunity, and the Changing Nature of Childhood Illness.)

Boðskapur Michael er ógnvekjandi. Það gerir hann sér fyllilega ljóst. Þegar Michael einu sinni ræddi við starfsfélaga um uppgötvanir sínar var einum þeirra að orði, að hann vildi ekki trúa, „það væri einfaldlega of ógnvekjandi.“ Því væri upplagt að stinga höfðinu í sandinn.

Það gera þó ekki allir. Þar á meðal eru Jonathan Engler, Tom Cowan, Andrew Kaufman, Stefan Lanka, Marc McDonald, Peggy Hall, Mark and Samantha Bailey, Sally Fallon, Alphonse Faggiolo, Barre Lando, Kelly Brogan, Veda Austin, Tony Roman og Sayer Ji.

Fyrrgreindur Kyle Young, sem beið óbætanlegan bólusetningarskaða, skipar sér í þessa sveit. Hann segir um veirufræðingana: „Þeir eiga tekjur sínar undir því að halda þessari veirugoðsögn við. Reyndar er það svo, að gervallur bóluefnaiðnaðurinn grundvallast á viðhaldi hennar.“ Goðsögnin um veiruna er nauðsynleg til að vekja ugg í brjósti fólks, svo auðveldara sé að ráðskast með það.

Snillingurinn, James Corbett, hefur gert heimildarmynd um þróun læknisfræðinnar, síðan Rockefeller-ættin lagði grundvöllinn að „vísindalegri“ læknisfræði í Bandaríkjunum á öðrum áratugi síðustu aldar.

James kallar þessa þróun Rockefeller-læknisfræði (Rockefeller Medicine) með skírskotun til bókarinnar, „Rockefellerlæknanna. Lækninga og auðvalds í Bandaríkjunum“ (Rocekfeller Medicine Men. Medicine & Capitalism ín America), eftir bandaríska lýðheilsufræðinginn, E. Richard Brown (1942-2012).

Mæli sterklega með myndinni. Þess má einnig geta í þessu sambandi, að faðir ættarhöfðingjans, John D. Rockefeller (1839-1937), William Avery Rockefeller (1810-1906), hagnaðist m.a. á sölu snákaolíu. (Inntaka þessa töfralyfs kynni jafnvel að skýra langlífi Rockefeller kappanna. Alla vega tek ég snákaolíu nú í stað lýsis á hverjum morgni.)

James getur einnig bókar eftir Eustance Clarence Mullins (1923-2010), „Sprautumorðið. Sagan um lækningasamsærið gegn Bandaríkjamönnum“ (Murder by Injection. The Story of the Medical Conspiracy Against America).

Hvet áhugamenn um ritskoðun, ároður og vitundariðnað að lesa umfjöllun Wikipedia um manninn: https://en.wikipedia.org/wiki/Eustace_Mullins#:~:text=Eustace%20Clarence%20Mullins%20Jr.%20(March,to%20enact%20it%20into%20law

Áhugamál Rockefellerættarinnar (sem Bill Gates dáist mjög að) eru samtvinnuð og aflvakinn er valda- og peningagræðgi. Þetta á t.d. við um þráhyggjuna um að fækka hinum óæskilegu (eugenics) og sjúkdómsvarnir við bólusetningar. Bóluefnin valda mörg hver ófrjósemi og margvíslegum heilsuvanda. Síðasta afurðin, bóluefnið við Covid-19, er einungis eitt dæmi um þetta.

Og eins og allir gera sér væntanleg í hugarlund; fólksfjölgunin ógnar náttúrunni, þannig að við stöndum við opnar dyr til helvítis eins og aðalritari Sameinuðu þjóðanna fullyrðir. Því hlýtur að gefa auga leið, að fólki og fénaði verði að fækka. Það var einmitt David Rockefeller (1915-2017), sem fann upp hamfarahlýnunina (eins faðir hans lyfja- og bólusetningaiðnaðinn).

file:///C:/Users/arnar/Downloads/Wodarg_Yeadon_Ema_Petition_Pfizer_Trial_Final_01dec2020_En_Unsigned_With_Exhibits.pdf https://www.westonaprice.org/health-topics/notes-from-yesteryear/germ-theory-versus-terrain-the-wrong-side-won-the-day/#gsc.tab=0 https://corbettreport.com/meet-william-rockefeller-snake-oil-salesman/ https://theshamecampaign.com/2014/04/12/snake-oil-salesman-william-rockefeller-taught-his-son-well/ http://whale.to/w/appleton1.html https://childrenshealthdefense.org/news/failure-to-vaccinate-or-vaccine-failure-what-is-driving-disease-outbreaks/ https://steigan.no/2024/03/hpv-vaksine-knyttes-til-4-ulike-autoimmune-lidelser/?utm_source=substack&utm_medium=email https://archive.org/details/rockefellermedic00browrich/page/n1/mode/2up https://healthpolicy.ucla.edu/newsroom/blog/obituary-dr-e-richard-brown-leading-proponent-health-care-reform-and-wide-dissemination-public https://secularheretic.substack.com/p/does-the-covid-virus-exist https://www.youtube.com/watch?v=hIBPVKUl52g https://prepareforchange.net/2020/11/23/the-rockefeller-drug-empire-since-1913/ https://expose-news.com/2024/04/20/germ-warfare-the-internecine-battle-over-germ-theory-is-ratcheting-up/ https://secularheretic.substack.com/ https://drmikeyeadon.substack.com/p/statement-by-mike-yeadon?utm_source=substack&utm_campaign=post_embed&utm_medium=web https://denisrancourt.substack.com/p/there-was-no-pandemic?utm_source=substack&utm_campaign=post_embed&utm_medium=web https://secularheretic.substack.com/p/germ-warfare https://t.me/DrMikeYeadonsolochannel/1138 https://expose-news.com/2024/04/27/treaty-of-lies-pandemic-of-lies-whistleblowers-of-truth-viroliegy-is-wholly-fraudulent-says-dr-yeadon/ https://drmikeyeadon.substack.com/p/treaty-of-lies-pandemic-of-lies-whistleblowers https://corbettreport.com/rockefeller-medicine-video/


Sjónhverfingalýðræðið í Bandaríkjunum Dennis J Kucinich

Blaðamaðurinn, Chris Hedges, átti á dögunum viðtal við óvenjulegan, bandarískan stjórnmálamann, Dennis J. Kuchinich. Hann er fyrrum borgarstjóri í Cleveland og frambjóðandi til forseta Bandaríkjanna. Honum var bolað úr stöðu borgarstjóra vegna þrákelni við að selja orkufyrirtæki borgarinnar.

Hann hefur skrifað bókina, „Skiptingu ljóss og valds“ (The Division of Light and Power), sem var 40 ár í smíðum. Dennis býður sig nú fram til þings, en óháður flokkunum tveim, sem drottna á víxl í augljósu gervilýðræði.

Dennis er einn fárra bandarískra stjórnmálamanna, sem reynt hefur að andæfa stríðsbrjálæðingunum á vegnum vopnaframleiðenda, sem stjórna utanríkisstefnu þjóðarinnar. Stríðsreksturinn hefur kostað sérhverja fjölskyldu, í landi hinna hugprúðu og frjálsu, ógnarlegar upphæðir, og enn er barist fyrir lán.

Dennis viðurkennir umbúðalaust ábyrgð Bandaríkjanna á þjóðarmorðinu á Gaza.

Chris segir m.a.: Það eru eingöngu hernaðarmáttaröflin, fyrirtækin og auðmennirnir, sem að staðaldri vinna kosningar í Bandaríkjunum – og sviðsetja kosningasjónhverfingarnar.

Í sjálfu sér er enginn munur á stefnuskrá flokkanna tveggja í raun; langvinn stríð, viðskiptasamningar, afiðnvæðing, stjórnvaldseftirlit, velferðarskerðing, gróðamiðað heilbrigðiskerfi, sem auðveldar fyrirtækjum að græða á hinum sjúku, fjölgun fanga og hermiðuð lögregla.

Spurt er, hvernig má okkur auðnast að endurheimta lýðræði vort, sem heimspekingurinn, Sheldon Wolin, hefur kallað umsnúið alræði (inverted totalitarianism)?

https://chrishedges.substack.com/p/the-chris-hedges-report-with-independent?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=144021905&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Andarslitur lýðræðisins og úkraínsku unglingarnar í Noregi

Öðru hverju stíga á stokk herfræðingar, stjórnmála- og fræðimenn, og tíunda áhyggjur sínar af þróun vestræns lýðræðis. T.d. lýsir ástralski stjórnarerindrekinn, John Lander, fyrrum sendiherra þjóðar sinnar í Kína og Íran, hvernig ríkisstjórnin sverfur að lýðræði og lýðfrelsi á öllum sviðum. Þetta virðist eiga sér stað hvarvetna á Vesturlöndum.

Í Bandaríkjunum bendir Ron Paul á, að síðustu afrek þingmanna þar um slóðir, þ.e. löggjöf, sem bannar TikTok og sambærilega miðla annars vegar, og heimila hins vegar ógnarlegar viðbótarfjárveitingar til manndrápa í Ísrael og Úkraínu, megi líta á sem síðasta naglann í líkkistu Bandaríkjanna. Það er hér um bil spaugilegt, að Bandaríkjamenn bollaleggi að nota þýfi, þ.e. fjármuni Rússa, til að standa straum af vopnakaupum frá bandarískum vopnaframleiðendum.

Bandaríkjamenn eiga í vök að verjast gegn illum öflum í veröldinni, sem vilja þá feiga, lýðræði þeirra og frelsi, enda hafa þeir gert fjölda þjóða sér handgengnar í varnarstríðum sínum. Í Úkraínu hafa hundruð þúsunda ungra drengja og karlmanna fallið eins og flugur. Sumir þeirra taka þó hvatningu Rússa og gefast upp. Aðrir flýja eins og fætur toga. Til að mynda þeir 15.860, sem hafa fengið vernd gegn herþjónustu í Noregi, en liggja undir ámæli hernaðaryfirvalda. Þeir ættu að sjá sóma sinn í að vernda lýðræði Vesturlanda eins og Noregs og Íslands.

Það virðist vera að renna upp fyrir stríðsóðum stjórnmálamönnum Vesturlanda, að tapist Úkraína, hafi þeir sungið sitt síðasta heimsyfirráðavers. Stríðskempan, Boris Johnson, sem hefur beitt sér af atorku gegn friðarsamningum, fer ekki í grafgötur með það.

En hvað er þá til ráða? Emmanuel Macron, nýr franskur Napóleon, hefur þegar fjölgað í frönsku herliði sínu í Úkraínu og nýlega fjallaði Foreign Affairs, sem oft og tíðum leggur línurnar um stjórnarstefnu Bandaríkjanna, um stofnun herliðs frá Evrópu til að berjast gegn Rússum.

En líklegt má telja, að þeim frelsishetjum verði fljótlega velgt undir uggunum með heitum tortímingarkveðjum. Það ber ekki á öðru, en mesta herveldi sögunnar og framlenging þess fyrir botni Miðjarðarhafs, Ísrael, neyðist til að endurskoða hermáttinn, eftir að Íranar sendu ofurflaugar sínar í heimsókn eins og Rússar hafa gert í Úkraínu. Ofurflaugarnar ráða Vesturveldin ekki við.

Því kann vel að fara svo, að Ísraelsríki í núverandi mynd hverfi af sjónarsviðinu eins og Henry Kissinger spáði. Sannfærist ísraelska þjóðin um samsæri yfirvalda sinna og vina þeirra í Hamas, kynni að sverfa til stáls á vettvangi stjórnmálanna einnig.

Það er næstum grátbroslegt, að sárafátæk þjóð Jemena, skuli einust þjóða gera sér far um að virða alþjóðalög, þ.e. að reyna að koma í veg fyrir þjóðarmorð.

https://informationclearinghouse.blog/2024/04/24/blood-on-their-hands-79-us-senators-approve-billions-more-in-military-aid-for-israel/10/ https://www.globalresearch.ca/ukraine-war-funding-failed-russian-sanctions/5855512 https://rumble.com/v4r2z35-michel-chossudovsky-the-dangers-of-nuclear-war.html?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/04/24/final-nail-in-americas-coffin/11/ https://steigan.no/2024/04/krigslobbyen-i-usa-europa-ma-sende-soldater-til-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.indianpunchline.com/ukraine-us-doubles-down-russia-is-cool/ https://www.voltairenet.org/article220735.html https://steigan.no/2024/03/sagaen-om-de-fire-klovnene/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/03/ukraina-frankrike-er-allerede-tapt-i-odessa/?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/03/16/european-powers-stab-each-other-in-the-back-over-ukraine-proxy-war-defeat/13/ https://steigan.no/2024/03/ola-tunander-om-den-totalitaere-mediemaskinen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/ukraine-is-facing-the-scenario-of?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142636067&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://janataweekly.org/the-military-situation-in-the-ukraine/ https://ninacappelen.substack.com/p/hvem-profitterer-pa-bistanden-til https://informationclearinghouse.blog/2024/03/23/its-war-the-real-meat-grinder-starts-now/15/ https://steigan.no/2024/03/fransk-general-sier-haeren-forbereder-seg-pa-de-hardeste-slag/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/foreign-mercenaries-fighting-kiev-regime-forces-should-leave-immediately/5852795 https://www.globalresearch.ca/biggest-us-allied-lies-about-war-ukraine/5852670 https://www.newdawnmagazine.com/articles/why-did-russia-really-invade-ukraine https://korybko.substack.com/p/putins-talk-of-setting-up-a-sanitarysecurity?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142715159&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.voltairenet.org/article220630.html https://steigan.no/2024/04/linjene-fra-hitlers-sikkerhetssjef-til-nazinettverkene-i-dagens-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.unz.com/estriker/the-collapse-of-the-american-empire-part-i-demographics/ https://steigan.no/2024/04/biden-ber-xi-jinping-om-stabilisering-av-forholdet-mellom-kina-og-usa/?utm_source=substack&utm_medium=email https://citizensparty.org.au/betrayed https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/ukraine-war-end-western-hegemony-boris-johnson?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=143973970&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://jackrasmus.com/2024/04/23/ukraine-war-funding-failed-russian-sanctions-print/ https://korybko.substack.com/p/whats-really-behind-polands-interest?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=144023179&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/is-the-gaza-israel-fighting-a-false-flag-they-let-it-happen-their-objective-is-to-wipe-gaza-off-the-map/5835310 https://www.globalpolitics.se/kommer-sionismen-att-forstora-sig-sjalv/


Nauðgun og nauðung í Ísrael og Palestínu. Vanessa Beeley

Vanessa er óháður, breskur blaðamaður, sem starfað hefur í áratugi í heimi arabískrar menningar. Hún hefur nú bækistöð í Sýrlandi. Vanessa hefur skrifað fjölda greina og flutt mýgrút erinda í fjölmiðlum á Vesturlöndum og víðar.

Í þessari grein, grundvölluð á góðri heimildavinnu, beinir Vanessa sjónum að kynofbeldi Ísraelsmanna og ofbeldi gegn börnum. En slíkt ofbeldi er venjulega rauður þráður í skrímslun andstæðinga, bæði við undirbúning stríðs og meðan á því stendur.

Flestir kannast líklega við áróður Ísraela í þessa veru; fjöldanauðganir Hamashermanna á ísraelskum konum (í kúlahríðinni miðri), afhöfðun ungbarna og steikingu þeirra. Á Alþingi Íslendinga og í fjölmiðlum tóku menn andköf af hryllingi.

Það leikur varla nokkur vafi á því, að um lygar sé að ræða í grundvallaratriðum. Ísraelar hafa lært áróðurskúnstirnar af Bretum m.a., sem kunna þær manna best – eða fyrirtæki á þeirra vegum. Þau gera garðinn frægan í Úkraínu sviðsettu að öllum líkindum Bucha „fjöldamorð“ Rússa og annað kræsilegt.

Fjölmiðlar á Vesturlöndum reiða sig t.d. á ZAKA hreyfinguna, sem er sambærileg Hvítu hjálmunum, sem leyniþjónustur Bandaríkjamanna og Breta beittu til áróðurs og uppreisna í Sýrlandi. Forystumaður hinnar fyrstnefndu er sjálfur dæmdur nauðgari og barnaníðingur. Ásakanir um skipulögð fjöldamorð, nauðganir og barnadráp Hamashermanna, eru yfirleitt falskar. Vanessa hefur tekið saman fjölda heimilda um þetta.

Fáir virðast gera sér grein fyrir, að Ísraelsmenn hafi fangelsað þúsundir Palestínumanna, allt frá börnum og upp í gamalmenni. Fangar þeirra eru iðulega beittir harðræði og flestir fangelsaðir fyrir engar sakir af hernámsliðinu. Kynofbeldi er algengt. Vanessa skýrir frá nokkrum rannsóknum og fréttum, sem aldrei hafa náð eyrum Vesturlandabúa, um þetta ofbeldi, t.d. um brennu sextán ára pilts og átján mánaða barns, litla Ali. Báðir voru brenndir lifandi.

Það eru margar heimildir um barnadráp Ísraelsmanna. T.d. voru þrettán börn sölluð niður í grennd við Shifa sjúkrahúsið í Gaza, samkvæmt Euro-Med Monitor.

Ísrael er stundum kallað himnaríki barnaníðinganna. Sjálfsagt muna margir eftir tengslum Jeffrey Epstein við ísraelsku leyniþjónustuna, en færri kannast við Malka Leifer, Gyðing og skólastjóra frá Melbourne í Ástraliu. Hún flúði undan réttvísinni í Ástralíu til Ísraels, hinnar Guðs útvöldu þjóðar, sem býr í einasta lýðræðisríkinu fyrir botni Miðjarðarhafs.

Fleiri barnaníðingar hafa notið sömu verndar. Israel Post segir þá skipta þúsundum. Haarets lýsir landinu sem „öruggu skjóli (hot spot) fyrir gyðingleg kynrándýr í útlöndum.“ Í þessu fríða föruneyti eru eitt hundrað prestar. Flestir eru óþokkarnir úr röðum Síonista.

Það er ekki bara ísraelskum fjölmiðlum, sem ofbýður ofbeldisviðbjóðurinn. Nýleg rannsókn á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem m.a. vísaði á bug ofangreindum ávirðingum á hendur Hamashermönnum, lýsa sérstaklega uppnámi (distress) yfir kynofbeldi í garð kvenna og stúlkna í ísraelskum fangelsum – sem og öðrum pyndingum. Karlar sleppa ekki heldur.

Því miður er þetta gömul saga og ný. Réttlæting nauðgunar og nauðungar er meira að segja fléttuð inn í trúarfræði þessara illmenna, sbr. prestana Shmuel Eliyahu og Mordechai Kedar við Bar-Ilan háskólann.

https://eabbas.substack.com/p/israels-policies-escaping-scrutiny?utm_source=cross-post&publication_id=2410345&post_id=143371468&utm_campaign=716517&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/usa-forsoker-utpeka-forfattaren-till-fns-rapport-om-israels-folkmord-som-antisemit/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/stop-reporting-on-bidens-angry-feelings-toward-israel-its-not-news-its-not-interesting/14/ https://sonar21.com/israel-catching-well-deserved-flack-for-its-undisciplined-brutality/ https://steigan.no/2024/04/israelsk-propagandist-bak-narrativ-om-massevoldtekt-utfort-av-hamas-avslort-som-grov-svindler/?utm_source=substack&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2024/04/06/the-ghosts-of-gaza-are-whispering-every-night/?mc_cid=af5fe30ca7&mc_eid=5cd1ec03b1 https://beeley.substack.com/p/israels-culture-of-rape-and-child?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=143376576&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Gervigreind og morðæði Ísraela. Í minningu Amr Abdallah

Ísraelum er margt til lista lagt. Tölvusnillingar eru þar á hverju strái. Njósna-, eftirlits- og drápsforrit þeirra eru viðurkennd um víðan völl og útflutningsvara. Eitt þeirra var t.d. notað til snjallnjósna um leiðtoga Evrópu. Vígvöllurinn á Gaza er tilraunastofan.

Einn ofangreindra snillinga er leiðtogi ofurnjósnadeildar Ísraela, kölluðuð 8200. Hann gengur undir dulnefninu, Y.S. og gaf fyrir þrem árum út bókina: „Teymi véla og manna: Hvernig má samvirkja mann- og gervigreind til að bylta veröldinni“ (The Human-Machine Team: How to Create Synergy Between Human and Artificial Intelligence That will Revolutionize Our World).

Tæknin, sem fjallað er um, byltir nú veröldinni, að einhverju leyti. Njósna- og eftirlitsforritið, Guðspjallið (Gospel), hefur nú þefað uppi og greint lungann af íbúum Gaza. Tengiforritið, „Lofnarblómið“ (Lavender), greinir þá samkvæmt Hamashollustu á mælikvarða frá 0 og upp í 100.

Annað tengiforrit Guðspjallsins heitir, „Hvar er pabbi.“ Það rekur slóð þeirra, sem Guðspjallið hefur gefið varhugaverðan fjölda stiga á Hamas-mælikvarðanum. Lágt settir Hamasliðar eru sprengdir með „bjálfasprengjum“ (dummies), sem vega á víð og dreif. Gildari Hamasliðar eru drepnir á heimilum sínum, ásamt heimilismönnum. „Hvar er pabbi,“ sér til þess. Þá er send stýriflaug á vettvang. Unglingspilturinn Amr var myrtur í einni slíkri.

Það er hrollvekjandi til þess að hugsa, að þrátt fyrir mótmæli gegn barnamorðingjanum, Brjálaða-Bensa, virðast langflestir Ísraelar kynda undir drápsæðinu. Hatur í garð Palestínumanna er meira að segja kennt í skólum. Börnum er einnig kennt um yfirburði stofnsins, þ.e. hinna fornu Hebrea, sem fæstir Ísraelsmanna geta rakið ættir til.

Bandaríski sagnfræðiprófessorinn, „Lawrence Davidson, kallar yfirburða- og drápshyggjuna „sjúka menningu“ (sick culture belief system).

Ísraelar halda áfram, þrátt fyrir málamyndavandlætingu Joe Biden og gervihótanir. Hræsnisfulla karlkvölin ætlar að láta byggja bryggju, svo auðveldara verði að flytja Palestínumenn á brott. Þreifingar um móttökuland standa yfir. Kannski þeir hafni í Austur-Afríku. En þangað vildu Síonistar fyrir engan mun flytja Gyðinga Evrópu.

Palestínumönnum er vitaskuld fækkað við gervigreindardrápin, en hungurvofan tekur sinn toll einnig. Eins og er á allra vitorði, ásökuðu Ísraelsmenn starfsmenn hjálparsamtaka Sameinuðu þjóðanna um hollustu við Hamas. Það dugði til þess að stórskerða framlög Vesturlanda. Í staðinn voru önnur samtök, „Alþjóðaeldhúsið,“ send á vettvang. Þau hafa m.a. verið þóknanleg Bandaríkjamönnum og Úkraínumönnum. Ísraelsmenn sprengdu þrjá bíla þeirra í tætlur. Því hefur þeirri aðstoð verið hætt.

Stór-Ísrael er innan seilingar – eða hvað? Tekst Ísraelsmönnum að egna til allsherjarstríðs í Miðausturlöndum með vitorði Bandaríkjamanna og Breta? Eða ætli fórn rauðu kvíganna frá Texas sefi drápsæði Ísraelsmanna og minnki landvinningaþörfina?

Við verðum að trúa og vona. Alla vega virðist engin guð ætla að skerast í leikinn. Bænir Kristmanna og Gyðinga um heimsendi og endurkomu Messíar eða Krists, gætu hafa fengið hljómgrunn á himni og jörðu.

Yfirvöld og ríkisstjórnir skerast heldur ekki í leikinn. Sú íslenska þegir þunnu hljóði. Það er alkunna, að þögn sé sama og samþykki.

https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/for-israel-foreign-aid-workers-blood-is-thicker-than-palestinians/11/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/stop-reporting-on-bidens-angry-feelings-toward-israel-its-not-news-its-not-interesting/14/ https://www.globalresearch.ca/israel-quest-palestinian-free-palestine-continues/5853557 https://www.youtube.com/watch?v=fbNPrEypMjU https://informationclearinghouse.blog/2024/04/02/daily-polls-show-that-israelis-continue-to-choose-this-war/11/ https://steigan.no/2024/04/rode-kviger-truer-med-a-sette-full-fyr-pa-midtosten/?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/sick-cultures-when-belief-systems-turn-pathological/16/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/this-was-deliberate-murder-by-the-israelis/13/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/lavender-the-ai-machine-directing-israels-bombing-spree-in-gaza/11/ https://www.972mag.com/lavender-ai-israeli-army-gaza/ https://informationclearinghouse.blog/2024/04/04/philip-giraldi-israels-quest-for-a-palestinian-free-palestine-continues/13/ https://beeley.substack.com/p/israels-serial-convention-violation?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=143255342&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/the-death-of-amr?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=143186629&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Kolbrjálaðir stjórnmálamenn, kjarnorkuváin og Stanislav Petrov. Nató sorg

Það hlýtur að liggja í augum upp, að svokölluð alþjóðalög (samþykktir Sameinuðu þjóðanna og alþjóðasamningar) gilda einungis fyrir þau ríki, sem ekki hafa mátt til að andæfa þeim. Þetta „lögmál“ er morgunljóst með tilliti til stríðsátaka í veröldinni, einkum Ísraels og Úkraínu – og ekki síst framferði Nató.

Kjarnorkuváin hefur vofað yfir veröldinni, síðan Bandaríkjamenn vörpuðu hryllilegum sprengjum sínum yfir Japan undir lok seinni heimstyrjaldarinnar. Það munaði minnstu, að Bandaríkjamenn og Bretar legðu Ráðstjórnarríkin í kjarnorkurúst, að annarri heimstyrjöldinni lokinni. Til allrar hamingju greip heilbrigt fólk í taumana.

Sumir muna væntanlega eftir Kúbudeilunni 1962, þegar lá við kjarnorkustríði. Þá var það rússneskur skipherra, sem í raun aftraði kjarnorkustyrjöld.

Tuttugu árum síðar og einu betur, bjargaði rússneskur eftirlitsmaður, Stanislav Petrov (1939-2017), veröldinni aftur. Varnarkerfin sögðu Bandaríkjamenn hafa gert kjarnorkuárás. Um að ræða tölvurugl, að hans dómi. Því var ekki gerð „gagnárás.“

Brjálæðingar á Bandaríkjaþingi krefjast beitingar kjarnorkuvopna gegn Rússum. Vladimir Putin hefur endurtekið bent á, að Rússar muni beita slíkum vopnum, verði tilvist þeirra ógnað umfram það sem Nató gerir nú, sjálft 75 ára afmælisbarnið. Talsmaður stríðsbandalagsins, sem meira að segja hefur kvenfrelsun á stefnuskrá sinni, er beinlínis raunalegur og hjákátlegur. (Pepe Escobar kallar hann rytjulegan (tawdry) og greindarrýran, norskan trjádrumb.)

Afmæli Nató markar sorgardag fyrir Íslenska þjóð. Fyrir þrem aldarfjóðungum síðan laut þjóðin endanlega í lægra haldi fyrir kvölurum sínum og gaf sig þeim á vald, kastaði hlutleysisstefnu sinni fyrir róða og hervæddist gegnum staðgengla. (Sumir fengu einnig bita í askinn sinn.) Íslendingar eru meðábyrgir fyrir öllum gjörðum Bandalagsins.

Hinn dauðvona framvörður vestrænnar heimsvaldastefnu, Ísrael, leggur sig fram um að draga Bandaríkin (og Nató) enn frekar inn í styrjöld sína í Miðausturlöndum. Ísraelar búa yfir kjarnorkuvopnum og bjóða öllum birginn. Barnamorðingjum er til alls trúandi. Tölvusnilli þeirra kemur að góðum notum við morðiðjuna.

Morðæði Ísraela virðast engin takmörk sett. Starfsmenn hjálparsamtaka (World Central Kitchen), sem eru þóknanleg bæði þeim sjálfum og Vesturlöndum, voru sprengdir upp. (Minni þó á, að ekki er allt sem sýnist og áróður berst úr hverjum króki og kima.)

Gagnrýni á ódæði ísraelsku stríðsfasistanna lýsir að sjálfsögðu andgyðinglegu viðmóti í þeirra garð – að eigin sögn. Ísraelsstjórn heldur því blákalt fram, að hún sé fulltrúi Gyðinga í veröldinni og að ódæðin séu framin í þeirra nafni.

Til allrar hamingju heyrist þó enn í boðberum friðar, gæsku og skynsemi. Slíka rödd hefur Matthew Hohs, sem fyrir skemmstu talaði í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, þar sem Bandaríkjamenn (og Bretar) veita Ísrael skjól til þjóðarmorðs og frekari landtöku.

https://www.youtube.com/watch?v=cz0zWo0pKZ8 https://steigan.no/2024/03/rettighetsekspert-rimelige-grunner-til-a-sla-fast-at-folkemord-blir-begatt-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/04/israelsk-angrep-rammet-iransk-konsulat-i-damaskus-iransk-general-meldt-drept/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/israels-bombing-of-the-iranian-consulate?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=143183528&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/a-genocide-foretold?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=143113553&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/israels-attacks-on-syria-take-a-new?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=143065166&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/us-israeli-open-secret-supporting-al-qaeda-recruiting-jihadists/5660883?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/03/israel-raser-deler-av-gaza-for-a-befeste-langsiktig-tilstedevaerelse/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.972mag.com/lavender-ai-israeli-army-gaza/ https://korybko.substack.com/p/the-polish-reaction-to-israels-bombing?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=143255800&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/04/israel-bombet-utenlandske-hjelpearbeidere-tre-ganger-til-de-alle-ble-drept/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/04/iran-det-er-grenser-for-var-talmodighet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://twitter.com/RealPepeEscobar/status/1775574496847548806?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1775574496847548806%7Ctwgr%5E44d9330a3caea5f9464e39ad84478214d59be683%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2024%2F04%2Fnato-75-ar-og-hevet-over-kritikk%2F https://spartakus.no/2024/04/03/medieovervakerne-ep-8-nato-75-ar-og-hevet-over-kritikk/ https://www.bbc.com/news/world-europe-24280831 https://www.globalpolitics.se/forre-marinkarskaptenen-matthew-hohn-talar-i-fns-sakerhetsrad-en-apokalyptisk-punkt-utan-atervando/ https://www.youtube.com/watch?v=XTiCJedDorg


Pældu ekki í píku minni

Eins og öllum, ungum og öldnum, er ljóst, ríður á að frelsa konur í ríkara mæli en áður hefur verið gert. Stundum mætti reyndar halda, að helsi kvenna aukist með auknu frelsi.

En það verður ekki undan því vikist, að karlar séu umvörpum illa innrættir og hugsi ljótt. Karlar telja konur t.d. vera kynverur. Aukin heldur er kynofbeldi snar þáttur í fari karlpeningsins. Aumingjans konurnar fá ekki rönd við reist vegna geislandi greddu karlkynsins.

Íslenski kynjafræðingurinn, Þorsteinn Einarsson, telur konur kúgaðar á vöktum. Þriðja vaktin er áberandi hryllilegust. Þorsteinn hefur skrifað um þetta bók, sem ég hvet karla til að kynna sér. Hann hlaut á sínum tíma opinberan styrk til að stuðla að vitundarvakningu um eitraða karlmennsku. En betur má, ef duga skal.

Það hlýtur að gefa auga leið, að gredda karla skapi konum óöryggi, jafnvel þótt það varði við lög, skynji kona kynfýsn í fari karlmanns. Og það er alkunna og réttarregla, að konum skuli trúa. En það er ekki nóg að gert.

Því skora ég á kynbræður, klára, kvára og kirli, að leiða ekki hugann að kynfærum kvenna og kaupa splunkunýtt frelsunarbarmmerki þeirra, sem á stendur: „Pældu ekki í píku minni“ (Don‘t think about my vagina). Vonir standa til að safna megi 34 milljónum Bandaríkjadala til styrkja öryggistilfinningu þeirra og vist í eigin líkama. Það er svo sannarlega kominn tími til að reita af sér fjaðrir forréttindanna.

Aðgerðasinninn, Lia Van Elk, er gagnorður: „Ég kæri mig ekki um, að hinn og þessi pjakkur leiði hugann að píku minni. … Það er niðurlægjandi.“ Myllumerki herfararinnar fyrir hreinni kynhugsun karlmanna er: „No Va.“

Hreyfing Lia er í örum vexti og nýtur m.a. stuðnings Sheila Rothman, fulltrúa kvenfrelsunarherfararinnar, „Hún-í-þágu-hennar“ (SheForShe). Sheila tekur undir með Lia: „Hugarórar karla eiga ekki að snúast um píku mína. No Va eykur árveki mína gagnvart karlbundinni [kyn]rándýrslegri hugsun.“

Vafalaust vaknar líka hreyfingin: „Hann-í-þágu-hennar“ (HeForShe). Það væri betur. Það má alla vega hugga sig við, að frelsun kvenna og dætra þeirra sé eitt af Sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og íslensku ríkisstjórnarinnar.

Það gefur að skilja, að ekkert gott leiði af klofklúrum hugleiðingum karla. Jafnréttisstofa beinir líka þeim tilmælum til fólks að hugsa góðar hugsanir. Hún hefur löngum reynst hollráð. Karlar ættu eindregið að fara að þeim tilmælum. Annars er hætt við að hugsanalögreglan grípi til sinna ráða, þ.e. afbrotavarnadeildin, sem Jón Gunnarsson svo kallar.

Það er löngu orðið tímabært að reisa skorður við kynofbeldislegri líffærahugsun karla. Kvenfrelsarar hafa bent á þessa ósvinnu allar götur frá áttunda áratugi síðustu aldar, þegar kastljósinu var í alvöru beint að þessum þætti í kúgun kvenna. Laura Mulvey færði t.d. rök fyrir því, að auga upptökuvélarinnar í kvikmyndaiðnaði hlutgerði konur í augliti karlsins.

Lynn Davies, prófessor í kvennafræðum við háskólann í Buffalo, spurði: „Hví ætti ekki að skilja hugaróra karla með skírskotun til sama reðurmiðaða hagumhverfis (phallocentric economy) og konuna [sjálfa] í reðurmiðuðu rými.“ Svo sannarlega tímabær spurning.

Það er þó sá galli á gjöf Njarðar, að lespur gætu átt við hugarangur að stríða í þessu sambandi. Sheri Wells, segir t.d.:

„Það bera brýna nauðsyn til að hrifsa píkuna undan stjórn karlanna. Og má þá einu gilda, hvort konur hafi fæðst með eina slíka eða ekki. Það væri að mínu skapi, ef kynskiptakonur tæku heilshugar þátt.“ En „[þ]ví miður er það svo, að margar þeirra verða áhugalitlar um píkur makans (partner) tiltölulega snemma í sambandinu. Áskorunin er [reyndar] stundum sú að minna bólfélagann á, að píkan sé þarna. Svo málið er [að sönnu] snúið.“

Hamingjusamlega eru konur óþreytandi í þeirri viðleitni að vekja karla til umhugsunar um kúgandi hugsun og hátterni í garð kvenkynsins. Það á t.d. við um leikritahöfundinn, Carolina Bianchi. Aðalleikarinn í kvenfrelsunarverki hennar lætur svæfa sig á sviðinu. Síðar koma konur með búksjá (speculum), stinga henni upp í leggöng hinnar svæfðu og skoða þannig táknrænt ummerki um nauðgun hennar. Verkið verður sviðsett í Melbourne bráðum.

Það fylgir sögunni, að nú deila lögfræðingar um, hvort kona geti misþyrmt sjálfri sér kynferðislega með vitund og vilja, án þess að það varði við lög. Svo nú liggur á að tryggja sér miða á sýninguna. Það mætti vissulega líka fara þess á leit við Íslandsdeild „Kvennastofnunar“ Sameinuðu þjóðanna að fá hana til Íslands.

Höfundur greinarinnar, Janice Fiamengo, hefur brugðið á leik, því það er fyrsti apríl í dag. En, en! Önnur frásagnanna er römm alvara. En hvor?

Hvernig sem því líður er enn í gildi heróp Kvennaverkfallsins eða forkonu Félags hjúkrunarfræðinga: „Fokk feðraveldinu.“

https://fiamengofile.substack.com/p/women-say-dont-think-about-my-vagina?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=143141021&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Jahve, Jesús og kvígurnar í Jórsölum. Er frelsun mannkyns handan við hornið?

Fimmtándi september 2022 var merkisdagur í sögu kristni og Gyðingdóms á flugvellinum, kenndum við Ben Gurion, í Ísrael. Þá lentu heilu og höldnu rauðar kvígur fimm. Þær voru ræktaðar af kristnum bónda í Texas og grandskoðaðar samkvæmt kröfum Gyðingsdóms; rauðar skulu þær vera og lýtalausar. Ei heldur skal þeim hafa verið íþyngt með aktygjum. Þetta er í samræmi við reglur um fórnir í fornri menningu fyrir botni Miðjarðarhafs, þ.e. fórnarlömb skulu verð a óspjölluð og ung. Börn eru þar meðtalin.

Það var haldin vegleg móttaka á vegum ísraelska ríkisins fyrir kusurnar. Um athöfnina sáu fimm Gyðingaprestar, jafnmargir kvígunum. Þær hlutu blessun Guðs, enda liggur mikið við; sjálf fórnin. Að henni lokinni mun Frelsarinn (Messías) brenna hræin til ösku, svo reisa megi í þriðja sinn musteri Salómons konungs á Musterishæðinni. Þar stendur nú moskan, Al-Asqa, sú þriðja heilagasta í Múhammeðstrú. Kusunum skal gert að horfa í átt til moskunnar, meðan þær eru skornar.

Það er ofsatrúarhópurinn í kringum Gyðingaprestinn, Yitshak Mamo, í Jórsölum, sem hefur veg og vanda af vali og ferðalagi kvíganna, ásamt trúarsöfnuði, sem kallar sig „Hofstofnunina“ (Temple Institute). Hvor tveggja félagsskapurinn nýtur stuðnings stjórnvalda.

Enda þótt fordæming Jesúsar á okurlánastarfsemi og fórnum (hinna) Gyðinganna, þ.e. Faríseanna, í seinna hofi Salómons, hafi verið eins konar trúarleg vegamót í sögu Gyðingdóms og kristinnar trúar, og sem leiddi til krossfestingar Jesúsar, hafa tekist sættir milli forna trúarfjenda.

Lagður var grundvöllur að þessum trúarlegu sættum um það leyti, sem Síonismi (Zionism) tók á sig mynd í Bretlandi á ofanverðri nítjándu öldinni, og fór eins og eldur í sinu um gervöll Bandaríkin, einkum fyrir tilstilli guðsmanna, sem studdust í trúboði sínu við Scofield-Bíbluna svokölluðu. Moldríkir Ashkenazi Gyðingar, með augastað á Palestínu, stóðu að útgáfu hennar (Rothschild).

Rætur þessarar túlkunar má rekja að minnsta kosti aftur til sextándu aldar. Spænski Jesúítinn, Fransisco Ribera (1537-1591), taldi, að teikn um „ragnarök“ (end times) yrðu fyrst greinileg, þegar Gyðingar hefðu snúið heim.

Vangaveltur Fransisco eru felldar undir kenningar um „Aðdraganda úthlutunar Þúsundárakonungsríkisins (Pre-Mellennila Dispensationalism),“ kristinna manna þ.e.a.s.

Prestar Gyðinga og Kristmanna í Bandaríkjunum hafa spunnið trúartúlkanir svo saman, að Guð hafi boðið landtöku Gyðinga í Palestínu og stofnun Ísraelsríkis. Annar þráður spunans lýtur að frelsun mannkyns frá syndum sínum. Þannig verður bygging þriðja hofsins eða musterisins, í kjölfar tortímingar mannkyns, forsenda frelsunar kristinna manna og Gyðinga.

Þessi framvinda gæti nú verið innan seilingar einmitt fyrir tilstilli þessara öfgatrúarmanna úr herbúðum beggja. Því er ekki seinna vænna að fórna kusunum. Nú skal heldur betur „byggja betur“ og „endurræsa“ eins og Alheimsefnahagsráðið og aðrir stjórnvitringar Vesturlanda segja. Guðleysingjarnir í Auðvaldsúrvalinu hafa Kristmenn og Gyðinga að leiksoppi einu sinni enn. Nú er þeim ekki att gegn hver öðrum heldur sameiginlega gegn Múhammeðstrúarmönnum og Rússum.

Draumurinn um Þúsund ára ríkið (millennium) er að sönnu fagur. Kristur mun síga af himni niður í allri sinni dýrð, safna saman hinum réttlátu, eyða fjandsamlegum öflum, og stofna dýrðlegt ríki hér á jörð. Fólk mun njóta velgjörða í andlegum og efnalegum skilningi. Sjálfur mun hann ríkja sem konungur með þátttöku hinna réttlátu, þar með taldir dýrlingarnir, endurheimtir í tölu lifenda.

Að lyktum þessa konungsríkis mun Kristur ásamt dýrlingunum stíga upp til himna, meðan hinir illu, sem einnig gengu í endurlífgun lífdaganna, munu fordæmast til eilífðar nóns.

En á meðan kusurnar jótra í Jórsölum, takast hinir lærðu á um, hvað sé Gyðingdómur og hvað sé Ísrael og hvað megi segja um ríki hinnar guðs útvöldu þjóðar og hverjir hati hvern. Barnamorðingjanum, Brjálaða-Bensa, og sálufélögum hans, er í nöp við gagnrýni á hugmyndafræði þeirra og stefnu. Það kalla þeir ýmist andsemítaviðhorf eða Gyðingahatur, sem lærðustu prestar Gyðinga hafa fundið út, að sé í raun það sama.

Það rak m.a. hin snjalla Candice Owen sig á. Hún komst af þeim sökum í hann krappan. Hún hefur stjórnað þjóðmálaþætti innan vébanda fjölmiðlafyrirtækis í eigu gyðinglegra ofsatrúarmanna, Daily Wire. Þegar henni varð á að gagnrýna Gyðingaprestinn, Boteach Schmuley (Jacob Smuel Boatech), sem skín eins og hver önnur Davíðsstjarna í Bandaríkjunum, fauk í hennar skjól. Hún var rekin.

Boateach þessi hefur m.a. látið út úr sér: „Nú er sá tími runninn upp, að Gyðinga ætti að óttast en ekki elska. Einungis með því móti mun sljákka í Semítahöturum (antisemites).“ (Flestar fornþjóðir í Miðausturlöndum voru reyndar Semítar.)

Nýja bókin hans, er „Stríðsmaður Ísraels“ (The Israel Warrior). Hún kom út „á hárréttum tíma,“ segir hann, „svo kenna megi og þjálfa ykkur í baráttu fyrir hinu dýrðlega og stórbrotna Gyðingaríki, Ísrael.“

Það snuggaði í Candice Owens: „Presturinn, Schmuley, er ófreskja, sem efnt hefur til grimmilegrar sóknar gegn blakkskinnum (black) og jarpskinnum (brown) í því skyni að stjórna umræðunni og skemma tengsl þeirra.“ …

„Djúprætt hatur Shmuley prests í garð svartra, Múslíma og kristinna, er engum vafa undirorpið, sbr. opinbera orðræðu hans.“

Candice er hvergi smeyk við Gyðingapresta af þessari tegund. Annar úr því sauðahúsi er Michael Barcley.

Candice segir: „Glæpur minn er sá, að ég tek afstöðu gegn því, að bandarískum skattgreiðendum sé gert að greiða fyrir stríðsrekstur Ísraels eða fyrir stríð annars staðar. Sú afstaða mun ekki breytast. Og nú er spurningin; hvað verður næst gert á minn hlut.“

Það fylgir sögunni, að gagnrýnendur hennar hafi komist í sérstakt uppnám, þegar hún minnti á Matthíasarguðspjallið, þar sem segir, að friðarsinnar muni sælir verða.

Fleiri fremja svipaðan glæp eins og kvikmyndagerðarmaðurinn og Gyðingurinn, Jonathn Glazer og leikritahöfundurinn, Tony Kushner. Hann sagði um ræðu Jonathan við afhendingu Óskarsverðlauna í vitundarsmiðjunni, Hollývúdd, nýlega:

„Hann [Jonathan] sagði einfaldlega, að Gyðingdómur, gyðinglegur sjálfsskilningur, saga Gyðinga, Helfarar og þjáninga Gyðinga, geti ekki þjónað sem afsökun fyrir áætlun um að skrímsla aðrar þjóðir og slátra þeim.“

En Benjamín lætur sér fátt um finnast og ályktanir Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé hripa af honum eins og vatn af gæs. Enda eru mikil auðævi undir og viðskiptahagsmunir. Nýlega benti t.d. tengdasonur Donald Trump á, að strandlengja Gaza gæti verið verðmæt. Það er allavega olían í landhelgi Gaza.

Svo gæti farið, að á strandlengjunni risu spilavítin, sem gætu orðið bjargráð Gaza-búa.

https://www.commondreams.org/news/kushner-ethnic-cleansing-gaza https://www.youtube.com/watch?v=In5I9KasnyM https://informationclearinghouse.blog/2024/03/25/deterrence-by-savagery/14/ https://informationclearinghouse.blog/2024/03/25/death-culture-when-1000-in-hollywood-proclaim-support-for-gaza-slaughter/15/ https://chrishedges.substack.com/p/professor-norman-finkelstein-and?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=142957135&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://expose-news.com/2024/03/24/candace-owens-declares-she-refuses-to-be-silenced-by-the-powerful-group-that-people-are-not-allowed-to-talk-about/ https://www.sportskeeda.com/pop-culture/who-rabbi-shmuley-candace-owens-feud-explained-author-urges-ben-shapiro-fire-podcaster https://www.sportskeeda.com/pop-culture/who-rabbi-shmuley-candace-owens-feud-explained-author-urges-ben-shapiro-fire-podcaster https://www.youtube.com/watch?v=GJ9GQ-gexhQ https://web.archive.org/web/20101209094535/http://bibleprophesy.org/jesuitrapture.htm https://www.youtube.com/watch?v=9i-XC3tf43A https://www.bitchute.com/video/3PTIpm1S5hZ3/ https://www.youtube.com/watch?v=s1qRX7tkkeA https://www.middleeastmonitor.com/20230816-israels-red-cow-will-blow-up-the-region/ https://www.prophecynewswatch.com/article.cfm?recent_news_id=6772 ++ https://allisrael.com/does-the-arrival-of-five-red-heifers-in-israel-signal-third-temple-end-times https://theins.ru/en/society/269112


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Ágúst 2025

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband