Bloggfærslur mánaðarins, mars 2024
Fimmtándi september 2022 var merkisdagur í sögu kristni og Gyðingdóms á flugvellinum, kenndum við Ben Gurion, í Ísrael. Þá lentu heilu og höldnu rauðar kvígur fimm. Þær voru ræktaðar af kristnum bónda í Texas og grandskoðaðar samkvæmt kröfum Gyðingsdóms; rauðar skulu þær vera og lýtalausar. Ei heldur skal þeim hafa verið íþyngt með aktygjum. Þetta er í samræmi við reglur um fórnir í fornri menningu fyrir botni Miðjarðarhafs, þ.e. fórnarlömb skulu verð a óspjölluð og ung. Börn eru þar meðtalin.
Það var haldin vegleg móttaka á vegum ísraelska ríkisins fyrir kusurnar. Um athöfnina sáu fimm Gyðingaprestar, jafnmargir kvígunum. Þær hlutu blessun Guðs, enda liggur mikið við; sjálf fórnin. Að henni lokinni mun Frelsarinn (Messías) brenna hræin til ösku, svo reisa megi í þriðja sinn musteri Salómons konungs á Musterishæðinni. Þar stendur nú moskan, Al-Asqa, sú þriðja heilagasta í Múhammeðstrú. Kusunum skal gert að horfa í átt til moskunnar, meðan þær eru skornar.
Það er ofsatrúarhópurinn í kringum Gyðingaprestinn, Yitshak Mamo, í Jórsölum, sem hefur veg og vanda af vali og ferðalagi kvíganna, ásamt trúarsöfnuði, sem kallar sig Hofstofnunina (Temple Institute). Hvor tveggja félagsskapurinn nýtur stuðnings stjórnvalda.
Enda þótt fordæming Jesúsar á okurlánastarfsemi og fórnum (hinna) Gyðinganna, þ.e. Faríseanna, í seinna hofi Salómons, hafi verið eins konar trúarleg vegamót í sögu Gyðingdóms og kristinnar trúar, og sem leiddi til krossfestingar Jesúsar, hafa tekist sættir milli forna trúarfjenda.
Lagður var grundvöllur að þessum trúarlegu sættum um það leyti, sem Síonismi (Zionism) tók á sig mynd í Bretlandi á ofanverðri nítjándu öldinni, og fór eins og eldur í sinu um gervöll Bandaríkin, einkum fyrir tilstilli guðsmanna, sem studdust í trúboði sínu við Scofield-Bíbluna svokölluðu. Moldríkir Ashkenazi Gyðingar, með augastað á Palestínu, stóðu að útgáfu hennar (Rothschild).
Rætur þessarar túlkunar má rekja að minnsta kosti aftur til sextándu aldar. Spænski Jesúítinn, Fransisco Ribera (1537-1591), taldi, að teikn um ragnarök (end times) yrðu fyrst greinileg, þegar Gyðingar hefðu snúið heim.
Vangaveltur Fransisco eru felldar undir kenningar um Aðdraganda úthlutunar Þúsundárakonungsríkisins (Pre-Mellennila Dispensationalism), kristinna manna þ.e.a.s.
Prestar Gyðinga og Kristmanna í Bandaríkjunum hafa spunnið trúartúlkanir svo saman, að Guð hafi boðið landtöku Gyðinga í Palestínu og stofnun Ísraelsríkis. Annar þráður spunans lýtur að frelsun mannkyns frá syndum sínum. Þannig verður bygging þriðja hofsins eða musterisins, í kjölfar tortímingar mannkyns, forsenda frelsunar kristinna manna og Gyðinga.
Þessi framvinda gæti nú verið innan seilingar einmitt fyrir tilstilli þessara öfgatrúarmanna úr herbúðum beggja. Því er ekki seinna vænna að fórna kusunum. Nú skal heldur betur byggja betur og endurræsa eins og Alheimsefnahagsráðið og aðrir stjórnvitringar Vesturlanda segja. Guðleysingjarnir í Auðvaldsúrvalinu hafa Kristmenn og Gyðinga að leiksoppi einu sinni enn. Nú er þeim ekki att gegn hver öðrum heldur sameiginlega gegn Múhammeðstrúarmönnum og Rússum.
Draumurinn um Þúsund ára ríkið (millennium) er að sönnu fagur. Kristur mun síga af himni niður í allri sinni dýrð, safna saman hinum réttlátu, eyða fjandsamlegum öflum, og stofna dýrðlegt ríki hér á jörð. Fólk mun njóta velgjörða í andlegum og efnalegum skilningi. Sjálfur mun hann ríkja sem konungur með þátttöku hinna réttlátu, þar með taldir dýrlingarnir, endurheimtir í tölu lifenda.
Að lyktum þessa konungsríkis mun Kristur ásamt dýrlingunum stíga upp til himna, meðan hinir illu, sem einnig gengu í endurlífgun lífdaganna, munu fordæmast til eilífðar nóns.
En á meðan kusurnar jótra í Jórsölum, takast hinir lærðu á um, hvað sé Gyðingdómur og hvað sé Ísrael og hvað megi segja um ríki hinnar guðs útvöldu þjóðar og hverjir hati hvern. Barnamorðingjanum, Brjálaða-Bensa, og sálufélögum hans, er í nöp við gagnrýni á hugmyndafræði þeirra og stefnu. Það kalla þeir ýmist andsemítaviðhorf eða Gyðingahatur, sem lærðustu prestar Gyðinga hafa fundið út, að sé í raun það sama.
Það rak m.a. hin snjalla Candice Owen sig á. Hún komst af þeim sökum í hann krappan. Hún hefur stjórnað þjóðmálaþætti innan vébanda fjölmiðlafyrirtækis í eigu gyðinglegra ofsatrúarmanna, Daily Wire. Þegar henni varð á að gagnrýna Gyðingaprestinn, Boteach Schmuley (Jacob Smuel Boatech), sem skín eins og hver önnur Davíðsstjarna í Bandaríkjunum, fauk í hennar skjól. Hún var rekin.
Boateach þessi hefur m.a. látið út úr sér: Nú er sá tími runninn upp, að Gyðinga ætti að óttast en ekki elska. Einungis með því móti mun sljákka í Semítahöturum (antisemites). (Flestar fornþjóðir í Miðausturlöndum voru reyndar Semítar.)
Nýja bókin hans, er Stríðsmaður Ísraels (The Israel Warrior). Hún kom út á hárréttum tíma, segir hann, svo kenna megi og þjálfa ykkur í baráttu fyrir hinu dýrðlega og stórbrotna Gyðingaríki, Ísrael.
Það snuggaði í Candice Owens: Presturinn, Schmuley, er ófreskja, sem efnt hefur til grimmilegrar sóknar gegn blakkskinnum (black) og jarpskinnum (brown) í því skyni að stjórna umræðunni og skemma tengsl þeirra.
Djúprætt hatur Shmuley prests í garð svartra, Múslíma og kristinna, er engum vafa undirorpið, sbr. opinbera orðræðu hans.
Candice er hvergi smeyk við Gyðingapresta af þessari tegund. Annar úr því sauðahúsi er Michael Barcley.
Candice segir: Glæpur minn er sá, að ég tek afstöðu gegn því, að bandarískum skattgreiðendum sé gert að greiða fyrir stríðsrekstur Ísraels eða fyrir stríð annars staðar. Sú afstaða mun ekki breytast. Og nú er spurningin; hvað verður næst gert á minn hlut.
Það fylgir sögunni, að gagnrýnendur hennar hafi komist í sérstakt uppnám, þegar hún minnti á Matthíasarguðspjallið, þar sem segir, að friðarsinnar muni sælir verða.
Fleiri fremja svipaðan glæp eins og kvikmyndagerðarmaðurinn og Gyðingurinn, Jonathn Glazer og leikritahöfundurinn, Tony Kushner. Hann sagði um ræðu Jonathan við afhendingu Óskarsverðlauna í vitundarsmiðjunni, Hollývúdd, nýlega:
Hann [Jonathan] sagði einfaldlega, að Gyðingdómur, gyðinglegur sjálfsskilningur, saga Gyðinga, Helfarar og þjáninga Gyðinga, geti ekki þjónað sem afsökun fyrir áætlun um að skrímsla aðrar þjóðir og slátra þeim.
En Benjamín lætur sér fátt um finnast og ályktanir Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé hripa af honum eins og vatn af gæs. Enda eru mikil auðævi undir og viðskiptahagsmunir. Nýlega benti t.d. tengdasonur Donald Trump á, að strandlengja Gaza gæti verið verðmæt. Það er allavega olían í landhelgi Gaza.
Svo gæti farið, að á strandlengjunni risu spilavítin, sem gætu orðið bjargráð Gaza-búa.
https://www.commondreams.org/news/kushner-ethnic-cleansing-gaza https://www.youtube.com/watch?v=In5I9KasnyM https://informationclearinghouse.blog/2024/03/25/deterrence-by-savagery/14/ https://informationclearinghouse.blog/2024/03/25/death-culture-when-1000-in-hollywood-proclaim-support-for-gaza-slaughter/15/ https://chrishedges.substack.com/p/professor-norman-finkelstein-and?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=142957135&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://expose-news.com/2024/03/24/candace-owens-declares-she-refuses-to-be-silenced-by-the-powerful-group-that-people-are-not-allowed-to-talk-about/ https://www.sportskeeda.com/pop-culture/who-rabbi-shmuley-candace-owens-feud-explained-author-urges-ben-shapiro-fire-podcaster https://www.sportskeeda.com/pop-culture/who-rabbi-shmuley-candace-owens-feud-explained-author-urges-ben-shapiro-fire-podcaster https://www.youtube.com/watch?v=GJ9GQ-gexhQ https://web.archive.org/web/20101209094535/http://bibleprophesy.org/jesuitrapture.htm https://www.youtube.com/watch?v=9i-XC3tf43A https://www.bitchute.com/video/3PTIpm1S5hZ3/ https://www.youtube.com/watch?v=s1qRX7tkkeA https://www.middleeastmonitor.com/20230816-israels-red-cow-will-blow-up-the-region/ https://www.prophecynewswatch.com/article.cfm?recent_news_id=6772 ++ https://allisrael.com/does-the-arrival-of-five-red-heifers-in-israel-signal-third-temple-end-times https://theins.ru/en/society/269112
Það býr þróttur í velvilja, segir hinn ungi, gáfaði sagnfræðingur, Cynthia Chung, frá Kanada. Hún hefur, ásamt Matthew Ehret, beint kastljósinu að sögu heimsins frá sjálfstæðisbaráttu Bandaríkjamanna - og um leið óhjákvæmilega að átökum góðra og illra afla sérstaklega eins og þau birtast í glímu eiginlegra lýðræðissinna og alheimsstjórnarauðvaldanna, sem stjórna veröldinni í krafti auðs. Þeir hafa undirtökin í veröldinni eins og Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum), Alþjóðabankinn, Alþjóða gjaldeyrisvarasjóðurinn og Sameinuðu þjóðirnar, bera t.d. vitni um.
Hér er í spjalli þeirra við kunnáttufólk um sögu fjallað um efnið með sérstöku tilliti til söngvarans, lögfræðingsins og friðarsinnans, blökkumannsins Paul Leroy Bustill Robeson (1898-1976).
Árið 1937 sagði hann: Sérhver listamaður, sérhver vísindamaður, sérhver rithöfundur, verður að taka afstöðu núna. Listamaðurinn verður að láta hug sinn í ljós. Hann ætti að skipa sér í raðir þeirra, sem berjast fyrir frelsi. Hann verður að velja baráttu fyrir frelsi eða ánauð. Ég hef gert upp hug minn. Tónlistin er minn vopnaburður.
Paul var fjölhæfur listamaður og mikill málamaður. Hann lagði áherslu á þjóðlagatónlistina til að vekja fólk til vitundar um þjóðararf sinn og þjóðlega visku, í þeirri von, að þannig mætti kynda friðarbálið, skapa sátt og samlyndi þjóða.
Paul lét til sín taka á stjórnmálasviðinu bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi. Hann stofnaði m.a. Lýðréttindaþingið (Civil Rights Congress). Á þingi, lét hann þessi orð falla:
Frelsun nýlendnanna, sem nú á sér stað, er trygging þess, að frelsi okkar sé innan seilingar. Það líður að því, að blakkskinnar í Asíu og Afríku hristi af sér hlekki arðráns, sem hefur þjáð þá um aldir.
Frelsun vindur fram í Asíu. Því má gera ráð fyrir, að bráðum nái hún til Afríku [einnig] [Frelsun] rúmlega helmings jarðarbúa úr klóm Dulles, Rockefeller og Firestone, mun áreiðanlega verða öflugur hvati til frelsisbaráttu okkar hér heima.
(Dullesbræðurnir, Allan W. (1893-1969), sem stofnaði Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), og John Foster (1888-1959), utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lögðu drög að heimsvaldastefnu Bandaríkjanna milli heimsstyrjaldanna.)
Fjármagns- og bankaauðjöfrana kallaði Adolf Hitler (1889-1945) alþjóðlegar hýenur. Paul segir þá hafa verið fjandmenn Frank Delano Roosevelt (1882-1945):
Það eru þeir, sem eru kjarninn í bandarískum (American) fasisma, samkvæmt því, sem Roosevelt sagði. Paul heldur áfram og bendir á, að umræddum megi líkja við þýska og spænska fasista.
Það eru þeir, sem leggja hatur á bandarískt lýðræði eins og gerðu fjandmenn Jefferson og Lincoln áður. Þeir eiga ekki hlutdeild í Bandaríkjunum. Það eru þeir, sem munu viðhalda fasisma í veröldinni og eru andstæðingar framsækinna Bandaríkja.
(Thomas Jefferson (1743-1926), var einn stofnfeðra bandaríska lýðveldisins, og þriðji forseti þess. Abraham Lincoln (1809-1865) var sextándi forseti Bandaríkjanna, einn nokkurra forseta lýðveldisins, er andsnúnir voru bankavaldinu og sem myrtir hafa verið í fyrrgreindum átökum.)
Hugsanlega er spá Paul, hvað Afríku viðkemur, loksins að rætast. Ríkin í Sahel-beltinu kasta Frökkum á dyr, en Bandaríkjamenn læsa klónum þó fastar.
Þjóðir á suðurhveli jarðar krefjast lýð- og viðskipafrelsis. Þær eru jafnvel svo óforskammaðar að krefjast tilhlýðilegra valda á alþjóðavettvangi, í Sameinuðu þjóðunum.
Paul var einn þeirra, sem studdi forsetaframboð Henry A. Wallace (1888-1965). Hann fékk sparkið sem viðskiptamálaráðherra fyrir andstöðu við stríðsskrattann, kjarnorkuvopna Harry S. Truman (1884-1972). Af því tilefni sagði Paul:
Við erum harmi slegin vegna þvingunaruppsagnar Wallace. Við tökum höndum saman við þann yfirgnæfandi meirihluta Bandaríkjamanna, sem vilja frið og lýðræði í landi þessu og heiminum öllum. [Þar með] tökum við undir gagnrýni Wallace. Sú sársaukafulla niðurstaða er óhjákvæmileg, að í gjörðum Trumans felist fullkomin uppgjöf fyrir þeim íhaldssama minnihluta í landi voru, sem sækist eftir heimsyfirráðum.
Það kemur varla á óvart, að Paul hafi verið kallaður Hinn svarti Mussolini og njósnari Ráðstjórnarríkjanna. Þar voru sömu öfl að verki og lýstu yfir stríði á hendur Þjóðverjum.
John Dulles sá til þess, að vegabréfið var frá Paul tekið og Alríkislögreglan (FBI) tryggði, að hann fengi ekki vinnu. Alþjóðlegur þrýstingur varð þó til þess, að Paul losnaði úr þeirri prísund.
Paul bar þó aldrei sitt barr, eftir ofsóknir ríkisvaldsins. Þessi fjölhæfi gáfumaður og friðarsinni yfirgaf jarðvistina þunglyndur og þjáður. Örlög hans eru ævarandi skammarblettur á bandarískum yfirvöldum.
En hver veit, nema Paul nái enn að syngja frið, sátt og samlyndi inn í hnuggin hjörtu og beygðar sálir?
Ég læt Paul sjálfan slá botninn í þennan pistil: Þrátt fyrir sameiginlegar þjáningar er á herðar okkar lögð sú ábyrgð að tryggja börnum okkar öllum börnum hvarvetna að við gerum allt, sem í okkar sameinaða valdi stendur til að halda í skefjum (refrain) þeim, sem sækjast eftir að verða alheimsdrottnar eða drottnar aldarinnar.
http://encyclopedia-loadbalancer-1-1782916326.us-west-2.elb.amazonaws.com/people/literature-and-arts/music-history-composers-and-performers-biographies/paul-robeson https://www.history.com/this-day-in-history/singer-actor-athlete-activist-paul-robeson-dies https://theduran.com/paul-robeson-and-the-battle-for-the-soul-of-america-2/ https://www.youtube.com/watch?v=B0bezsMVU7c https://www.youtube.com/watch?v=eh9WayN7R-s
Fyrir nokkrum áratugum síðan komst samkunda auðkýfinga, svokallaður Rómarklúbbur, að því, að hugmyndin um helvítishlýnun gætu orðið viðskiptum þeirra til framdráttar, þ.e. aukið auð þeirra.
Framhaldinu er prýðilega lýst í heimildarmyndinni, eftir Martin Durkin. Glöggir áhorfendur sjá, að aðferðin er svipuð og þegar kvenfrelsunarvitleysan, þ.e. að karlar hefðu frá örófi alda kúgað konur, komst á koppinn. Hvort tveggja eins og veirufaraldurinn reyndar einnig fylgir svipaðri uppskrift.
Bábiljur sértrúarsöfnuða eru blásar upp í fjölmiðlum, fjármagn tekur að streyma til þeirra, vísindamönnum er mútað sem og fjölmiðlum til að flytja boðskapinn. Smám saman verður til trúarhreyfing, rétttrúnaður, sem grópast í vitund manna, verður almannarómur.
Almannarómurinn blindar, enda eiga margir lifibrauð sitt undir honum, sérstaklega á því stigi, þegar rétttrúnaðurinn hefur verið löggiltur og komið á laggirnar stofnunum til að varðveita hann. Þá er fokið í flest skjól.
Þegar frjáls hugsun og umræða er skert, skerðist dómgreind og lýðréttindi. Ríkisvaldið skarar stöðugt eld að eigin köku og styttir í ólinni. Það þykir um þessar mundir skiljanleg afstaða, að málfrelsi sé lýðræðinu skeinuhætt. (CIA hefur reyndar lengi starfað samkvæmt því boðorði.)
Í Skotlandi taka t.d. gildi 1. apríl lög um hatursorðræðu og reglu á almannafæri, á Íslandi og í Kanada er slík löggjöf í deiglunni, og í Dakóta er talað fyrir löggjöf, sem gerir gagnrýna umræðu Ísrael að Gyðingahatri. Þetta eru bara nokkur dæmi.
Geggjunin hefur reyndar gengið svo langt, að til viðbótar skordýrabuffum er nú mannakjöt komið á matseðilinn í grænu paradísinni. Þar munu spóka sig öðrum fremur frelsaðar konur, ef unnið verður áfram samkvæmt Sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, Alheimsefnahagsráðsins og íslensku ríkisstjórnarinnar.
Lýsingu á mannlífi framtíðarinnar má ef til vill sjá í kvikmyndinni, Minority Report. Það er nefnilega svo, að fjármagnseigendurnir, sem fjármögnuðu veiruvitfirringuna, grænu geggjunina og kvenfrelsunarfárið, stjórna vitundarsmiðjunni í Hollývúdd eins og fjölmiðlunum. Þar erum við oft og tíðum búin undir það, sem koma skal, samtímis því, að gamlar rétttrúnaðarsögur eru sagðar til að styrkja okkur í trúnni.
Trúlega hefur fyrrverandi dómsmálaráðherra og vinur Ríkislögreglustjóra, horft sér til innblásturs og gagns á fyrrnefnda kvikmynd. Þar eru nefnilega sýndar afbrotavarnir þær, sem hann og Kristilega jafnaðarmannaflokkinn dreymir um á Íslandi, þ.e. að handtaka fólk fyrir afbrotahugsanir og jafnvel skjóta það með rafbyssum.
https://www.youtube.com/watch?v=s3Tfxiuo-oM https://corbettreport.substack.com/p/burn-hollywood-burn-with-irina-slav?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=142786644&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.rollingstone.com/culture-council/articles/how-hollywood-is-crafting-new-climate-change-narrative-1234972469/ https://substack.com/@irinaslav https://irinaslav.substack.com/p/lets-eat-each-other https://www.newscientist.com/article/mg26134783-600-is-it-time-for-a-more-subtle-view-on-the-ultimate-taboo-cannibalism/ https://www.eugyppius.com/p/my-interview-with-irina-slav-on-the https://vigilantcitizen.com/latestnews/scientist-proposes-cannibalism-to-save-the-climate-on-swedish-tv/ https://irinaslav.substack.com/p/burn-hollywood-burn?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://dailysceptic.org/2024/02/27/green-billionaires-press-hollywood-to-promote-armageddon-climate-messages-in-movies/ https://www.igor-chudov.com/p/excessive-free-speech-is-a-threat?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=142814708&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://twitchy.com/amy-curtis/2024/03/01/canada-hate-crime-law-levant-n2393461#google_vignette https://steigan.no/2024/03/vil-canada-forby-precrime/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.heraldscotland.com/news/24194006.police-scotland-hate-crime-training-leaked/
Árið 1984 var gefin út á pólsku merkileg bók með titlinum, Stjórnmálafræðileg illskufræði (Ponerologia Polityczna). Bókin var þýdd á ensku ári síðar. Enski titillinn er: Political Ponerology: A Science on The Nature of Evil adjusted for Political Purposes. Aukin útgáfa forlagsins, Red Pill, heitir: Political Ponerology: The Science of Evil, Psychiatry and the Origins of Totalitarianism.
Höfundur er pólski sjúkrasálfræðingurinn (clinical psychologist), Andrzej Lobaczewski/Andrew M. Lobaczewski (1921-2007) og fleiri. Andrzej hafði þá einstöku lífsreynslu í farteskinu að hafa lifað og starfað undir tvenns konar gerræðisstjórnum; stjórn byltingarmanna (kommúnista) og þjóðernisjafnaðarmanna (nasista).
Bókin fór grýtta leið tilurðar- og útgáfu. Fyrsta handritið rataði í ofninn, skömmu áður en leynilögregla Pólverja gerði húsleit hjá höfundum. Annað handrit höfunda, sem unnu við skilyrði ofbeldis og undirokunar, var sent með sendiboða til Páfans í Róm. Það fór líka í glatkistuna. Páfi gekkst aldrei við að hafa tekið á móti handritinu.
Enn á ný var handrit skrifað af síðasta eftirlifandi höfundinum, Andrew Lobaczewski. En þá brá svo við, að landi hans, Zbigniew Brzezinski (1928-2017) meginhugmyndafræðingur heimsvaldastefnu Bandaríkjastjórnar, kom í veg fyrir birtingu þess.
Höfundur segir rannsóknir sínar og félaganna hafa snúist um kjarnasálsýki (essential psychopathy). Samfélög, sem búa við forystu hinna sálblindu eða geðveiku kallar hann brjálræði eða sturlunarræði (pathocracy).
Andrzej heldur því fram m.a., að í sérhverju samfélagi stofni siðblindingjar og aðrir afbrigðungar (deviants) á þeirra valdi, félög til leynimakks og undirróðurs. Félög þessi eru bara að litlu leyti á vitorði almennings.
Hann bendir einnig á þátt tilfinningaalgleymisins (emotionalism) í lífi einstaklinga, hópa og þjóða. Þegar það keyrir úr hófi fram, samþætt dómgreindarleysi og blindu á staðreyndir, örvast sjálfhverfa og sefasýkislegt næmi. Fólk verður ofurviðkvæmt fyrir áreitni, sem veldur sífelldum erjum. Það verður öfugsnúið og ofurgagnrýnið. Slíkt ástand virkar eins og mykjuskán á mý, dregur að sér illa innrætt fólk, sem talar tungum, og kyndir undir hinum illu öflum í samfélaginu.
Hugmyndir Andrzej bergmála í grein Michael Brenner, alþjóðastjórnmálafræðings við háskólann í Pittsburgh, höfundi margra bóka um efnið. Hann hefur nýlega skrifað merkilega grein um svipað efni, Uppgjör Vesturlanda, þar sem hann leitast við að skilja brenglaða hegðun stjórnmálamanna úr sálfræðilegu sjónarhorni.
Það gerir líka blaðamaðurinn, Thomas Fazi, í grein sinni, Sálgreiningu úrvalsins á Vesturlöndum (A psychoanalytical analysis of Western elites), þar sem hann skoðar furðulega og órökrétta hegðun úrvals stjórnmálamanna af sál-stjórnmálalegum (psychopolitical) sjónarhóli.
Boðskapur Michael og Thomas er á þessa leið: Stjórnendaúrvalið er geysilega valdamikið, en ólögmætt. Því tekst að viðhalda völdum sínum einvörðungu vegna valdanna sjálfra. Völd þeirra eru sjálfgefin (autochthonous), þ.e. án réttmætrar eða hefðbundinnar skírskotunar eins og t.d. erfðafylgju. Lýðræði er einasta uppspretta réttlætingar, sem auðvaldarnir (oligarch) geta vísað til. Í reynd er vald þeirra algert.
Úrvalið telur okkur trú um, að það sé að frelsa oss frá illu, vondum öflum, sem séu á hælum okkar. Það gæti verið um að ræða Rússa, hryðjuverkamenn, veirur og svo framvegis.
Því leggja auðvaldarnir sig í framkróka um hafa öðlast tögl og haldir á lýðræðinu, því þeir geta ekki gefið það alveg upp á bátinn. En lýðræði þeirra er óttalegt þunnildi orðið. Þess vegna er auðvöldunum skotinn skelkur í bringu. Það skýrir, hvers vegna félagslegt aðhald stöðugt er hert og sorfið að lýðfrelsi og -réttindum; ritskoðun, undirokun og örvæntingarfull leit að ytri óvinum.
Viðbrögð auðvaldanna verða sefasýkleg við minnstu ógn. Úrvalið er siðblint, sýnir engin merki um sekt. Ei heldur skömm. Samtímis sýnir það dómgreindarskort á eigin gjörðir, þ.e. það grefur undan sjálfu sér.
Þetta sést greinilega í hernaðarósigri Vesturveldanna í Úkraínu og þjóðarmorðinu í Palestínu. Skömm og auðmýking ná ekki í gegnum brynju trúarsetninga, kredda og hroka. Óöryggið er djúprætt. Jafnframt blómstrar sjálfsaðdáunin.
Auðvaldarnir eru eins og raun ber vitni um, sálsjúkir. Þeir stjórna við sálsýkisræði (pathocracy). Því eru Vesturlönd á leið til sjálfsútrýmingar, hjarðvígs (collective suicide), bæði í siðferðilegum og efnahagslegum skilningi.
Úrvalið er ófært um sjálfsgagnrýni. Það virðist hafið yfir allan vafa. Drápsþörfin er óseðjandi. Lagðar eru áætlanir um frekari þátttöku í stríðsrekstri Nató í Úkraínu. Þær fela í sér árásir langt inn í Rússland. Það er gamall draumur alþjóðabankaauðvaldsins að leggja undir sig Rússland. Einnig er gælt er við hugmyndir um að láta gamlan draum ofstækismanna í Ísrael rætast; árás á Íran og stofnun Stór-Ísraels.
Hugarfarið er djöfullegt. Ætli djöfladýrkun skýri þessa þróun (Luciferianism, Satanism, occultism theosophy)? Hún greip fjölda auðkýfinga heljartaki á ofanverðri nítjándu öldinni, sbr. rit Helena Petrovna Blavatsky (1831-1891), um guð- og dulspeki.
Djöfladýrkun gróf um sig í ýmsum (leyni)félögum auðvaldanna, þeirra, er hugðu á heimsyfirráð. Það er fjöldi heimilda um slíka dýrkun í dag. Bandaríski blaðamaðurinn, Brandon Smith, kallar þetta sálsýkistrú (psychophatic religion).
Brjálræðið eða sálsýkisræðið blómstrar í Ísrael um þessar mundir undir gunnfána ísraelsks fasisma. Stofn hans á rætur í Úkraínu. Höfuðpaurinn er Zeev Jabotinsky (1880-1940). Þaðan kvíslast greinar til brjálaða barnamorðingjans, Benjamin Netanyahu, gegnum Gyðinginn og Síonistann, Leo Strauss (1899-1973), og til ný-íhaldssinna, sem halda um stjórnvöl bandarískrar utanríkisstefnu.
Ísraelar halda uppteknum hætti við að drepa og pynda fólk. Nýlega birti New York Times (þó undarlegt megi virðast) skýrslu frá Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (United Nations Relief and Works Agency -UNRWA), þar sem tekið er undir ályktanir sérstakra erindreka (special rapporteur) og hjálparstofnanna beggja vegna víglínunnar í Gaza.
Niðurstaðan er sú, að niðurlæging á grundvelli kyns og pyndingar á Palestínumönnum, hafi aukist, eftir innrásina á Gaza. Hermenn Ísraels hafi tekið höndum um 4000 Palestínumenn og svívirt fjölda þeirra af báðum kynjum, börn jafnt sem öldunga; sýnt þeim kynofbeldi og pyntað á margvíslegan hátt. Sumir fanganna hafa látist af þessum sökum.
Hliðstæð skýrsla hefur einnig verið unnin vegna ásakanna um nauðganir hermanna Hamas á ísraelskum konum. Það er hvorki meira né minna en Pramila Patten, sérstakur fulltrúi SÞ í sambandi við kynofbeldi í stríðsátökum (United Nations Special Representative on Sexual Violence in Conflict), sem annaðist rannsóknina.
Ásakanir um nauðganir kvenna í samyrkjubúinu, Beeri, höfðu ekki við rök að styðjast og fleiri ásakanir í sama dúr voru einnig áróður. Grunur kviknaði um, að ísraelsk yfirvöld hefðu sviðsett nauðganir og ónákvæmi gætti við túlkun þeirra á vettvangsgögnum.
Nokkrir fjölmiðlar Vesturlanda gefa annað í skyn. T.d. segir New York Times í véfréttarstíl, að SÞ teymið sjái ástæðu til að ætla að styðja megi skýrslur um kynofbeldi af hálfu Hamasliða við fyrrgreinda árás. (U.N. Team Finds Grounds to Support Reports of Sexual Violence in Hamas Attack).
Pramila sagði þó, að fyrir lægju greinilegar og sannfærandi upplýsingar, þess efnis, að kynofbeldi gegn Ísraelum hefði átt sér stað, eftir 7. október. Hins vegar gerði hún hvorki nánari grein fyrir heimildum, né eðli brotanna. Þrátt fyrir þetta, segja skýrsluhöfundar: Við löglæknislegt (medicolegal) mat á aðgengilegum myndum og myndskeiðum, var ekki unnt að staðfesta vísbendingar um nauðgun.
Þessi niðurstaða féll ísraelskum miðlum og yfirvöldum illa í geð og vafalaust einnig þeim konum, sem áráttubundið fjalla um þessar skelfilegu, meintu nauðganir á ísraelskum konum. Enda er slíkt ofbeldi í bága við trú og siðferði Múhammeðstrúarmanna, sbr. orð Erki-Arabans og CIA-liðans, Osama bin Laden (1957-2011), þegar hann var inntur eftir þátttöku sinni í sprengingu tvíburaturnanna í Nýju Jórvík 2001.
Þar eð ég er Múlími reyni ég af fremsta megni að segja satt. Ég hafði ekki hugmynd um þessar árásir. Dráp á saklausum konum, börnum og öðru fólki, tel ég ógeðfelldan gjörning. Íslam leggur blátt bann við því að vinna tjón saklausum konum, börnum og öðru fólki. Slíkt athæfi er meira að segja forboðið í stríði.
Illræmdasta fangelsi Ísraelsmanna eða pyndingasetur er kallað 1391, fangelsi, sem Bretar reistu fyrir hartnær heilli öld. Þar er starfsemin með slíkum hætti, að jafnvel harðsvíraðir leyniþjónustumenn eins og Ami Ayalon (f. 1945), áður yfirmaður innanríkisleyniþjónustunnar, Shin Bet, vilja ekki láta bendla sig við hana. Hann segir:
Ég vissi um stofnun, sem ekki var á ábyrgð Shin Bet heldur hersins. Ég hugsaði þá sem svo og geri enn, að slík stofnun ætti ekki að vera til í lýðræðisríki.
Ísraelsmenn hafa tekið gervigreind í þjónustu sína við þjóðarmorðið eins Bill Gates við ræktun skordýra í matinn handa okkur. Enda eru Ísraelsmenn snillingar á sviði gervigreindar og tækni fjórðu iðnbyltingarinnar, sem Alheimsefnahagsráðið er í þann mund að steypa yfir okkur.
Ástralski Gyðingurinn, Anthony Lowensten, heldur því raunar fram, að stríðið gegn Palestínumönnum sé eins konar rannsóknarstofa í beitingu gervigreindarstríðstækni, sem gegni hliðstæðu hlutverki og Úkraína fyrir hernaðariðnað Vesturlanda.
Stríðssnatar þeirra eru þó sérstaklega eftirtektarverðir eins og sjálfsvígsflygildin og hákarlasvifdrekarnir. Nýjasta njósnaforritið heitir Toka og skýtur Pegasus ref fyrir rass. Því er auðvelt að koma inn í hin og þessi snjalltæki, að eigendum þeirra forspurðum.
Morð og pyndingar eru ekki einasta studd gervigreind heldur taka yfirvöld líka á Íslandi beinan og óbeinan þátt í ódæðum sálsjúkra yfirvalda Ísraels. Stuðningur Bandaríkjamann er væntanlega öllum ljós, en færri vita um mútur Ísraela til breskra stjórnmálamanna, sem umhverfast í kennisetningar um, að Ísraelar hafi rétt til að verja hendur sínar eða verjast Gyðingaofsóknum. Hergögn er látin af hendi rakna úr nálægri herstöð á Kýpur. Sömuleiðis eru hernjósnagögn látin í té.
Ísraelsmenn stunda hjarðpyndingar á Gaza og á Vesturbakkanum. Þeir skapa skelfingu með handahófskenndum handtökum, árásum og morðum. Fólk býr við látlausar sprengingar og er sífellt á flótta, en getur þó ekkert flúið. Það eru pyndingar. Það er svelti vissulega einnig.
Það fer óhugur um mig við að lesa niðurstöður viðhorfskannanna meðal ísraelskra borgara um sveltið. Um tveir þriðja hluta almennra borgara í Ísrael er hlynntur þessari svívirðu.
Ætli fólk sé orðið skilyrt; bogið, beygt og undirokað, til hlýðni við geðveiki leiðtoganna? Það vill svo til, að um þessar mundir eru tvö ár, síðan flestar ríkisstjórnir veraldar sviptu þegna sína lýðréttindum undir yfirskini veirufaraldurs. Ísraelsk yfirvöld voru sérstaklega grimm í því efni.
Fen er fótum nær en hyggur.
https://??????.co/articles/israel-physically-sexually-abusing-gaza-detainees-unrwa (setjið inn: thecradle) https://?????.com/2024/03/07/media-concocts-un-hamas-rape-report/ (setjið inn: thegrayzone) https://informationclearinghouse.blog/2024/03/16/israel-uber-alles/13/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/video-the-covid-19-lockdown-it-was?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=142675117&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.amazon.com/CRASH-COURSE-INSIDE-Debunking-Official/dp/B0CTXSVKJV/ref=tmm_pap_swatch_0?_encoding=UTF8&qid=1708219392&sr=1-1 https://matthewehret.substack.com/p/carl-jungs-gnostic-revival-the-age?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140635061&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/the-ancient-occult-roots-of-the-fabian?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140439126&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/the-british-empires-gnostic-revival?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140087303&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.learnreligions.com/helena-blavatsky-4690489 https://expose-news.com/2024/03/14/four-years-ago-this-month-a-lockdown-was-imposed-by-national-governments-worldwide-never-forget-what-they-are-capable-of/ The psychopathic religion of the Globalists shapes their decisions and actions The Expose (expose-news.com) https://steigan.no/2022/05/mobiltelefonene-til-spanias-president-og-forsvarsminister-avlyttet-av-det-israelske-pegasus-systemet/ https://steigan.no/2021/07/israelsk-spionprogram-brukt-mot-aktivister-journalister-og-politikere/https://steigan.no/2021/07/israelsk-spionprogram-brukt-mot-aktivister-journalister-og-politikere/ https://www.theguardian.com/world/2021/jul/18/revealed-leak-uncovers-global-abuse-of-cyber-surveillance-weapon-nso-group-pegasus https://steigan.no/2024/03/israels-e-krigforing-bruk-av-smarttelefoner-for-a-drepe-i-libanon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://alexkrainer.substack.com/p/the-power-behind-the-throne-and-the?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://www.globalresearch.ca/israel-psych-war-relentless-vicious-deliberate/5851290 https://mondoweiss.net/2024/02/over-2-3-of-jewish-israelis-oppose-humanitarian-aid-to-palestinians-starving-in-gaza/ https://www.mintpressnews.com/media-israel-intelligence-2020-elections-cyber-security/264361/ https://edition.cnn.com/2023/01/15/politics/ukraine-russia-war-weapons-lab/index.html https://expose-news.com/2024/03/05/israels-military-industrial-complex-is-experimenting-with-military-robots-in-gaza-in-an-effort-to-avoid-harming-soldiers-and-dogs/ https://www.youtube.com/watch?v=9PEWDLunejA https://edition.cnn.com/2023/01/15/politics/ukraine-russia-war-weapons-lab/index.html https://chrishedges.substack.com/p/the-chris-hedges-report-with-ali?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=142632765&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://archive.vn/P6mAQ https://archive.vn/T3V3N https://archive.vn/RRQbn https://archive.vn/RRQbn https://www.youtube.com/watch?v=LK0AonRiOSY&rco=1 https://www.declassifieduk.org/uk-extremism-adviser-has-been-funded-by-israel-lobby/ https://steigan.no/2024/03/gaza-verdens-forste-aki-drevne-robotaktiverte-folkemord/?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/03/08/how-the-fight-against-antisemitism-became-a-shield-for-israels-genocide/14/ https://corbettreport.substack.com/p/the-flour-massacre-and-the-gaza-holocaust?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=142387975&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/zionist-spy-unit-8200-influences?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=142381648&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/sluta-finansiera-terrorism-eller/ https://dontbuyintooccupation.org/reports/dont-buy-into-occupation-report-2023/ https://expose-news.com/2024/03/06/protests-over-the-international-israeli-sales-events-of-stolen-palestinian-land/ https://expose-news.com/2024/03/06/the-united-kingdom-zionisms-covert-nerve-center/ https://www.theguardian.com/commentisfree/2023/dec/29/health-organisations-disease-gaza-population-outbreaks-conflict?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.un.org/sexualviolenceinconflict/wp-content/uploads/2024/03/report/mission-report-official-visit-of-the-office-of-the-srsg-svc-to-israel-and-the-occupied-west-bank-29-january-14-february-2024/20240304-Israel-oWB-CRSV-report.pdf https://electronicintifada.net/blogs/asa-winstanley/israel-killed-israelis-confirms-new-7-october-documentary https://www.voltairenet.org/article220564.html https://www.theguardian.com/world/2003/nov/14/israel2 https://www.nytimes.com/2024/03/03/world/middleeast/unrwa-gaza-detention-israel.html https://rumble.com/v4j0yt5-bill-gates-urges-govts-to-replace-farmers-with-ai-smart-farming-bots.html https://www.thomasfazi.com/p/a-psychoanalytical-analysis-of-western https://scheerpost.com/2024/03/08/michael-brenner-the-wests-reckoning/ https://www.voltairenet.org/article220564.html https://www.globalresearch.ca/netanyahu-criminally-insane-monster-serial-killer-captive-children/5852000
Þegar tæpur áratugur hafði liðið frá upplausn Ráðstjórnarríkjanna, m.a. vegna litskrúðsuppreisna (color revolution), stríðsins í Afganistan, innri átaka, friðarumleitanna, einkavæðingar og efnahagsaðstoðar Vesturveldanna, gerði Nató árásir á Júgóslavíu til að vernda lýðræði, frelsi og mannréttindi, íbúa ríkisins. Þetta gerðist í mars 1999.
Vesturveldin höfðu kynt undir þjóðerniserjum, þar til Júgóslavía logaði. Nató-ríkin Íslendingar meðábyrgir frömdu fjöldamorð á Serbum. Nató var sérstaklega umhugað um að bjarga Kósovó undan Serbíu. Kósovó er eins konar leppríki Bandaríkjanna í dag. Þar eru m.a. þjálfaðir heilagir stríðsmenn Múslíma til árása fyrir botni Miðjarðarhafs.
Nató var líka umhugað um að refsa forseta Serba, Slobodan Milosevic (1941-2006), fyrir þjóðarmorð á Albönum. Hann var tekinn höndum og færður til yfirheyrslu við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag (International Criminal Tribunal).
Þar lést hann saklaus við skringilegar aðstæður, að líkindum myrtur eins og Muammar Gaddafi (1942-2011) í Líbíu og Saddam Hussein (1937-2006) í Írak. Bæði Saddam og Slobodan voru bandamenn Vesturlanda, sem brugðust vonum.
Árásin á Júgóslavíu markar upphaf nýrrar útþenslu- og heimsvaldastefnu Vesturlanda. Hin Nýja bandaríska öld (New American Century) byggði á gömlum, breskum heimsveldisdraumi um að leggja undir sig heiminn. Draumurinn er kenndur við Halford John Mackinder (1861-1947), breskan landafræðing. Hann kallaði Evróasíu hjarta heimsins. Yfirráð yfir því væri forsenda alheimsdrottnunar.
Þegar árásin var gerð höfðu þrjú fyrrum Varsjárbandalagslönd orðið fullgildir aðiljar í Nató. Stríðið í Júgóslavíu var aðdragandi þess stríðs, sem nú geisar í Úkraínu.
Árásir Nató í austur fylgja býsna vel tillögum ungversk-bandaríska auðkýfingsins, George Soros, um drög að stofnun alheimsríkis fjármagsauðvaldins.
Hér má finna viðtal við Alex Krainer, sem skrifaði bókina, Stóru blekkinguna (Grand Deception), og þýska heimildarmynd (með enskum texta) um stríð Nató gegn Júgóslövum.
https://www.britannica.com/place/heartland https://www.thesocialistcorrespondent.org.uk/articles/media-silence-when-milosevic-is-cleared/ https://www.georgesoros.com/1993/11/01/toward-a-new-world-order-the-future-of-nato/ https://beeley.substack.com/p/25-years-on-how-the-nato-bombing?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=142665278&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Það er skelfilegt til þess að hugsa, að slík geðveiki, þ.e. að gera átylluárásir á eigin borgara eða vinaþjóðir, sé hvergi nærri ný af nálinni. Sömu aðferð var beitt til að leysa bæði fyrstu og aðra heimstyrjöldina úr læðingi og margsinnis beitt í Evrópu af neðanjarðar-Nató, þ.e. Gladio hersveitunum (Operation Gladio).
Hastings Ismay (1887-1965), hershöfðingi og fyrsti framkvæmdastjóri Nató, sagði eitt sinn, að bandalagið hefði verið stofnað í þeim tilgangi að frysta Rússa úti, halda Þjóðverjum niðri og tryggja stuðning Evrópuríkja við Bandaríkin. En honum láðist að geta þess, að Nató var líka stofnað í því skyni að tryggja, að borgararnir kysu rétt í lýðræðislegum kosningum. Bandaríkin og Nató eru eins og allir vita, verndarar lýðræðis og frelsis á jarðarkringlunni. Leynihersveitir Nató skyldu líka ræstar út, ef Rússar gerðu sig heimakomna í Evrópu.
Stofnendum Nató var ljóst, að hræðsla og óöryggi kalli á öryggi af yfirvalda hálfu. Aðgerðir Gladio, þ.e. ýmis konar hryðjuverk, sem útsendurum Rússa eða Araba var kennt um oft og tíðum, voru einmitt til þess fallin. Forseti Frakka, Charles de Gaulle (1890-1970), slapp, en forseta Ítala, Aldo Moro (1916-1978), var rænt og hann myrtur.
Svissneski stjórnmálarýnirinn, Gianfranco Sanguietti (f. 1948), staðhæfði, þegar árið 1980, að öllum tilþrifameiri hryðjuverkum væri ýmist fjarstýrt eða beinlínis unnin af leyniþjónustum ríkja vorra.
Dennis Kucinich (f. 1946), sem var þingmaður á Alríkisþinginu í Washington í sextán ár, segir: Ég var vitni að því, hvernig lygasögur (fabricated narratives) voru samdar til að leiða Bandaríkin til stríðs og sömuleiðis til að styðja stríðsbrölt í öðrum löndum.
Það kemur varla nokkrum á óvart, að sögurnar snúast iðulega um árásir íslamskra hryðjuverkamanna, hvarvetna um heim. Stórkostlegasta lygasagan sagði frá gereyðingarvopnum Íraks. Saddam Hussein var nú orðinn ámóta ljótur karl og Osama bin Laden, og beið í ofvæni eftir að gereyða veröldinni.
Bandaríska blaðamanninum og Gyðingnum, Carl Bernstein (f. 1944), ofbauð. Hann sagði á þessa leið: Við fórum í stríð við náunga, sem hafði nákvæmlega ekkert með 9/11 að gera, þ.e. seinni árásina á tvíburaturnana. Það var einfaldlega yfirdrep og yfirvarp Gyðinga meðal nýíhaldsmanna (neo-con), sem ætla sér að endurskapa heiminn.
Þess má og geta, hugmyndafræði nýíhaldsmanna á rætur að rekja til þýsk-bandaríska stjórnmálaheimspekingsins, Gyðingsins og fasistans, Leo Strauss (1899-1973), sem var lærisveinn úkraínska Gyðingsins og Síonistans, Leev Jabotinsky (1880-1940). Hugmyndafræði hans lifir enn góðu lífi í Ísrael.
Kunnasti nemandi Leós er líklega Henry (Heinz) Alfred Kissinger (1923-2023), kennari Klaus Martin Schwab (f. 1938), forstjóra Alheimsefnahagsráðsins. Annar nemandi, kunnur fyrir mótun heimsvaldsstefnu Bandaríkjanna á nýrri öld (New American Century), var Paul Wolfowitz (f. 1943). Elliot Abrams (f. 1948), utanríkismálaerindreki nokkurra bandarískra forseta, bakhjarl Benjamin Netanyahu, kemur úr sama sauðahúsi.
Hershöfðinginn Wesley Kanne Clark (f. 1944) skýrði frá því, árið 2007, að honum hefði verið kynnt áætlun Hermálaráðuneytisins (Pentagon) um að leggja undir sig sjö ríki á fimm árum: Írak, Sýrland, Líbanon, Líbíu, Sómalíu, Súdan og Íran.
Árið 2013 kom Íslamska ríki Íraks og Sýrlands fram á sjónarsviðið - eða ISIS (Islamic State in Iraq and Syria) eins og þetta hugarfóstursríki er kallað í daglegu tali. (Stundum er líka talað um ISIL Islamic State in Iraq and the Levant). Þetta eru hersveitir íslamskra málaliða, upphaflega nátengdar Alkæda, undir forystu Osama bin Laden. Ein deild þeirra gengur undir nafninu Jabhat al Nusrah.
ISIS var stofnað af Mossad og CIA með dyggum stuðningi Pakistana, Ísraela, og Sádí-Araba. Tyrkir sáu að töluverðu leyti um þjálfun þessara málaliða. Sumir þeirra koma úr röðum vestrænna herja. Tilgangurinn er að grafa undan stjórnum Sýrlands og Íraks.
Sjónarspilið hafði og hefur enn þann tilgang að ljósta veröldina með óþverrahætti, svo réttlætt yrðu afskipti Bandaríkjanna og Nató. Yfirlýstur tilgangur yrði að stöðva ISIS, en eiginlegur sá, sem fram kom í stríðsáætlun þeirri, sem fyrr er frá greint.
ISIS virðist nú gengið í endurnýjun lífdaganna, eftir að andspyrnuhreyfingin í Írak tók upp á því að gera árásir á bandarískar herstöðvar í landinu í kjölfar stríðsins á Gaza. Sýrlandsher og Rússar sendu, að því að talið er, um 25.000 þeirra inn í eilífðina á sínum tíma, en 10.000 þeirra gufuðu upp. Tyrkir skutu skjólshúsi yfir nokkur hundruð þeirra.
Það er ekki ólíklegt að ISIS láti nú til sín taka undir bandarískri vernd í Vestur-Írak og undir leiðsögn nýja kalífans, Abdullah Qaardash (f. 1967). Þeir láta einnig að sér kveða í Sýrlandi. Þjálfunarbúðir ISIS eru m.a. í Houran-dalnum, sem teygir sig frá landamærunum við Sádí-Arabíu til Efrat fljótsins. Leiðtogi Hisbolla, Hassan Nasrallah, hefur bent á viðleitni Vesturlanda til að endurnýja ISIS hulduherinn.
Markaðsetning hryðjuverka ISIS er fjórþætt; handhófsdráp og rán á konum í Írak og Sýrlandi; eyðilegging og þjófnaður sögulegra verðmæta; afhöfðun hjálparliðsmanna og blaðamanna venjulega sviðsett; hryðjuverk í Evrópu, þar sem blandað er saman veruleika og sjónhverfingum.
Það er beinlínis grátbroslegt, að Ísraelsmenn skuli reka sjúkrahús fyrir þennan óþjóðalýð á herteknu svæðum Palestínu og með velþóknun Jórdana.
Utanríkisleyniþjónusta Ísraels, Mossad, var stofnuð með fulltingi MI6 og CIA. Þýskir nasistar lögðu sitt af mörkum. Yitzhak Shamir (1915-2012), sem síðar varð forseti Ísraels, var leiðtogi þeirrar deildar í Mossad, sem skipulagði leynilögreglu Írans, Savak. M.a. voru kenndar pyndingar með hjálp þýskra nasista.
Síðar tók deildin að sér svipað verkefni í Kongó, þ.e. þjálfuðu leynilögreglu Mobotu Sese Seko (1930-1997). Því má svo við bæta, að forsætisráðherra Ísraels, Golda Meir (1898-1978), hafði náið samband við Idi Amin (1925-2003), einræðisherra Uganda.
Yitzhak var ekki allur, þar sem hann var séður. Hann lagði einnig lið einveldinu á Formósu (Taiwan) og aðstoðaði öfgamanninn, Meir (Martin David) Kahane (1932-1990), við að stofna hryðjuverkasveitina, Varnarsveit Gyðinga (Jewish Defense League), í Nýju Jórvík.
Afrek Yitzhak eru þó ekki upptalin. Hann og Mossad skipulögðu árásir á sendinefndir Ráðstjórnarríkjanna og sendiráð Palestínu, og stóðu jafnframt fyrir áróðursherferðum í Ráðstjórnarríkjunum fyrir innflutningi Gyðinga til Ísrael.
Mossad lét einnig að sér kveða í Ródesíu (Rhodesia Zimbawe) og Suður-Aríku. Ísrael fjármagnaði rannsóknir tvö hundruð vísindamann undir forystu einkalæknis forsetans, Pieter Botha (2016-2006), að nafni Wouter Basson (1950), með það fyrir augum að skapa veiru, sem einungis sýkti Araba og blökkumenn.
Þessi heiðursmaður, Wouter, gekk undir gælunafninu Mengele Suður-Afríku og læknir dauðans. Mossad tók einnig þátt í stofnun sérstakra stjórnsýslusvæða fyrir blökkumenn (bantustan), sem urðu fyrirmynd að Gaza. Gaza er stundum kallað stærsta fangelsi veröldinni, eftir að fangabúðir Bandaríkjamanna fyrir u.þ.b. 1.2 milljónir þýska stríðsfanga voru lagðar niður. Þeir hírðust reyndar undir berum himni.
Yithak og Mossad létu ekki sitja við svo búið. Þeir seldu einræðisherra Gvatemala (Guatemala) vopn og elfdu leynilögreglu hans. Frumbyggjar voru reknir í samyrkjubú eða kibbútsa. Þar var komið fyrir njósnabúnaði til að hafa með þeim eftirlit. Einræðisherrann, Efrain Rios Montt (1926-2018), lét myrða um fjórðung milljónar frumbyggja. Fyrrnefndur Elliott Abrams hafði veg og vanda af samvinnu Ísraels og Bandaríkjanna um þetta verkefni.
Samvinna milli Síonista í Ísrael og Úkraínu stendur enn með fullum blóma. Úkraínski auðvaldurinn (oligarch), Gyðingurinn, Ihor Kolomoisky (f. 1963), fjármagnaði t.d. hersveitir, sem réðust gegn rússneskumælandi íbúum í Donbass, og tók þátt í að steypa ásamt CIA, Nató og Evrópusambandinu löglega kjörinni stjórn Úkraínu 2014.
Ihor, sem einnig hefur ríkisfang í Ísrael og á Kýpur, fjármagnaði trúbróður sinn, Volodomyr Zelensky (1978), á valdastól í Úkraínu. Það var hins vegar fyrrverandi ráðherra í stjórn Ariel Sharon, Refuznik Natan Sharansky (f. 1948), sem skipulagði stuðningfundi með Volodomyr og málsmetandi Gyðingum í veröldinni, bakhjörlum hins unga forseta.
Niðurlag:
Heimsveldi deila og drottna. Það hafa þau ævinlega gert, jafnvel þau lýðræðislegu. Það er margt,sem bendir til þess, að kosnir stjórnmálamenn séu meira eða minna til sýnis, eins konar ásjóna. Þá, sem tögl og haldir hafa, er að finna á bak við tjöldin.
Huliðsstjórnin hefur í mismiklum mæli hreðjatak á ríkisvaldinu eins og t.d. átök nokkurra forseta Bandaríkjanna við ofurefli stofnanna hennar ber vitni um. Þeir hafa venjulega verið myrtir eða bolað út fyrir hliðarlínu.
Leyniþjónustan er trúlega ein af mikilvægustu stofnunum huliðsstjórnarinnar. Hún stundar undirróður, uppreisnir, morð og alls konar óhæfuverk. Hluta starfsemi sinnar fjármagnar hún við glæpastarfsemi á borð við eiturlyfjasölu.
James Jesus Angleton (1917-1987), sem var yfirmaður gagnnjósnadeildar Bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) á árunum 1954-1974, sagði: Blekking er hugarástand og hugur ríkisvaldsins. Í huganum býr blekkingin. Hún er sál ríkisvaldsins.
Lyndon Bains Johnson (1908-1973), kallaði leyniþjónustu sína; fjárans morðfyrirtæki. Það er hún reyndar, en ákúran kemur úr hörðustu átt, því það leikur enginn skynsamlegur vafi á því, að þessi annálaði stríðsfursti tók þátt í morði CIA á John Fitzgerald Kennedy (f. 1917) 1963.
John F. var mjög í nöp við þessa samkeppnisstjórn CIA og ógnarleg völd hennar. Hann hafði hugsað sér að skerða völd leyniþjónustunnar verulega, en var drepinn, áður en að því kom.
Innanríkis- og utanríkisstefna huliðsstjórnarinnar er samþætt. Raunar er um að ræða huliðsstjórn alls hins vestræna heims, sem nú hefur greinilega sýnt andlit sitt með stofnun Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum) og umtalsverðri stjórn á Sameinuðu þjóðunum. Tilburðir til alheimsstjórnar og ofurstjórnar almennings eru greinilegir. Þess má geta, að Katrín Jakobsdóttir er handgengin báðum, og íslenska ríkisstjórnin fylgir stefnu hvorra tveggju.
Eftir aðra heimstyrjöldina tóku Bandaríkjamenn forystuna í vestrænni heimsvaldastefnu. Evrópusambandið og Nató, sem Íslendingum er tamt að kalla Varnarbandalag vestrænna ríkja, samkvæmt kennisetningum Kristilega jafnaðarmannaflokksins, sem öðrum flokkum fremur hefur stutt heimsvaldastefnu Bandaríkjanna.
Það er skiljanlega á fárra vitorði, að eitt hlutverka Nató sé að gæta þess, að lýðræðisþjóðir Vesturlanda kjósi rétt og hegði sér í samræmi við rétttrúnaðinn. Sú deild Nató, hræðslu- og hryðjuverkadeildin, er kennd við Gladio.
Skelfdu fólki er auðvelt að veita taumhald. Því voru samdar sögur um tvær megingrýlur; Rússa- og Araba. Fólki var talin um það trú í fjölmiðlum, ýmist í eigu leyniþjónustnanna eða í náinni samvinnu við þær, að oss stafaði ógn og skelfing af kommúmisma og Múhammeðstrú.
Ljóti karlinn í Rússlandi er um þessar mundir Valdimar Putin (f. 1952) og ljóti karl Múhammeðstrúarmanna var Saddam Hussein (1937-2006) eða bandaríski leyniþjónustumaðurinn, Osama bin Laden (1957-2022). Nú heitir hann trúlega barasta Hamas.
Deng Xiaoping (1904-1997), forystumaður Kínverja, sagði eitt sinn, að litur kattarins skipti engu máli, meðan hann dræpi mýs. Sama má um leyniþjónusturnar segja. Það má einu gilda, hvaða guð menn tilbiðja; Karl Marx, Valdimar Lenin, Jesú Krist, Muhammad eða Jahve, meðan þeim má beita í þágu málstaðarins, stríðsátaka, bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi.
Huliðsstjórn Bandaríkjanna og Vesturlanda er skipuð gráðugum auðjöfrum, sem aldrei fá nóg af fjármunum og völdum. Adolf Hitler og þýska þjóðin skildi þetta í þaula. Adolf kallar þá hýenur:
Hvaða gildi hefur lýðræðis- eða alræðiríki (authoritarian) fyrir þessar alþjóðlegu hýenur. Þeim er slétt sama. Áhugi þeirra snýst um eitt atriði: viltu láta féfletta þig? Já eða nei? Ertu nóg heimskur til að ljúka ekki upp munni, meðan á því stendur? Já eða nei? Sýni lýðræðið slíka heimsku, er það gott. En lýsti alræðisríkið yfir andspyrnu og lýsi yfir, að arðrán verði ekki lengur liðið, er það slæmt. (Þýtt úr ensku, frumútgáfu hafði ég ekki við hendina.)
Hið nýja tilbrigði heimsveldisstefnu Bandaríkjanna, Áætlun um nýja bandaríska öld (A Project for a New American Centure), er runnið undan rifjum svokallaðra nýíhaldsmanna (neo-conservative) í Bandaríkjunum. Um hana segir kanadíski hagfræðiprófessorinn, Michel Chossudovsky (f. 1946):
Það vakir ekki fyrir nýíhaldsmönnum að sigra í stríðinu heldur sundra fullvalda þjóðríkjum, ganga af menningu þeirra dauðri sem og ættjarðarást (national identity), lítilsvirða grundvallargildi og mannréttindi.
Herkænskan er í því fólgin að leysa úr læðingi stjórnmálalegan og félagslegan glundroða, kollsteypa þjóðarhagnum, leggja undir sig auðævi þeirra og auðlindir, rýra gervallann hnöttinn, þar með taldir bandarísku átthagarnir.
Vopnabúrið hefur að geyma gereyðingarvopn, leynilegar njósnaaðgerðir, áróður og öflug efnahagslyf. Mér er orða vant við lýsingu á glæpum Bandaríkjanna og Nató.
Það eru viðsjár miklar í veröldinni. Þær skýrast af ofangreindri stefnu. Og eins og allir ættu að vita stendur yfir stríð Bandaríkjanna, Ísraels og Nató í Úkraínu og í Palestínu. Bandaríkjamenn gæla við þá hugmynd að beita kjarnavopnum eins og í Nagasaki og Hirosima. Látum því Fidel Castro hafa síðasta orðið (2010):
Bandaríkin munu tapa stríði með hefðbundnum vopnum og kjarnorkustríð er engum valkostur. Hins vegar myndi kjarnorkustyrjöld óhjákvæmilega breiðast til heimsins alls. Hliðartjón í kjarnorkustyrjöld yrði mannkyn allt.
Látum oss sýna það hugrekki að lýsa yfir, að allt, sem gagnist við stríðsrekstur, hefðbundin vopn og kjarnorkuvopn, verði látin hverfa.
Heimildir:
https://??????.com/2023/04/18/9-11-hijackers-cia-recruits/ (setja inn: grayzone) https://www.realnewsandhistory.com/hitler-quotes/ https://www.youtube.com/watch?v=mm1vv7OVtto https://www.youtube.com/watch?v=uG0yvdF138E https://www.voltairenet.org/article220564.html https://www.youtube.com/watch?v=1f_UPdbOIH8&t=10s https://michelchossudovsky.substack.com/p/in-a-nuclear-war-the-collateral-damage?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=142442143&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/missiles-near-russia-f-35-thermonuclear-bombs-nato-ready-war/5851908 https://www.amazon.com/CRASH-COURSE-INSIDE-Debunking-Official/dp/B0CTXSVKJV/ref=tmm_pap_swatch_0?_encoding=UTF8&qid=1708219392&sr=1-1 https://beeley.substack.com/p/genocide-and-empire-examining-october?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=140884550&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/was-911-a-false-flag-americas-just-war-against-muslim-countries-self-defense-against-the-civilizational-war-of-islam-against-the-west/5843516 https://www.kitklarenberg.com/p/gladio-role-in-aldo-moro-murder-confirmed?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=141645788&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v3wpl0y-trump-nobody-has-gotten-to-the-bottom-of-9-11.html https://realnewsandhistory.com/dancing-israelis/ https://kitklarenberg.substack.com/p/third-911-hijacker-may-have-been?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=137763621&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-from-ronald-reagan-and-the-soviet-afghan-war-to-george-w-bush-and-september-11-2001/20958 https://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2023/09/21/what-really-happened-on-9-11.aspx?ui=50823ccf152775dc8e8154c0ff79da522ef0aa959b384df904857f2fc49c6730&sd=20221129&cid_source=dnl&cid_medium=email&cid_content=art1ReadMore&cid=20230921&foDate=false&mid=DM1466981&rid=1917872991 https://frettin.is/2023/09/13/huldustjornendur-ad-baki-9-11-bush-neitadi-ad-birta-njosnaskyrslur/ https://corbettreport.substack.com/p/the-911-emergency-from-gladio-to?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=137036553&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.corbettreport.com/interview-1206-michel-chossudovsky-on-911-and-the-war-on-terror/ https://www.corbettreport.com/the-real-cost-of-the-war-of-terror/ https://www.corbettreport.com/ptech-and-the-9-11-software/ https://www.corbettreport.com/page/7/?s=war https://www.globalresearch.ca/death-thousand-cuts-many-ways-rights-usurped-911/5832196 https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-from-ronald-reagan-and-the-soviet-afghan-war-to-george-w-bush-and-september-11-2001/20958?doing_wp_cron=1694275789.0335359573364257812500 https://markcrispinmiller.substack.com/p/peace-war-and-911-a-great-new-documentary?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://derimot.no/blir-ikke-ferdig-med-9-11-sa-lett-hva-fikk-kameraene-til-a-riste-for-tarnene-falt/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/911-analysis-reagan-al-qaeda-bush-911?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/latest-news-and-top-stories https://expose-news.com/2023/09/11/what-really-happened-on-911/?cmid=3cc77790-4459-4c1f-a5f4-9a15ea8f55d7 https://www.informationclearinghouse.info/57817.htm https://rumble.com/v3gn3po-covid-911-from-homeland-security-to-biosecurity-watch-along-and-q-and-a.html https://www.corbettreport.com/covid911/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.realnewsandhistory.com/e-team-9-11/ https://www.globalresearch.ca/osama-bin-laden/5688305 https://www.facebook.com/kla.tv.island/videos/987518719155330/ https://www.globalresearch.ca/it-took-long-time-face-what-knew-true-about-911/5761325 https://corbettreport.substack.com/p/peace-war-and-911-ted-walter-on-the?r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://michelchossudovsky.substack.com/p/911-unanswered-questions?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/documentary-film-peace-war-911/5830612 https://corbettreport.substack.com/p/james-corbett-on-the-nature-of-false?utm_source=substack&utm_medium=email https://expose-news.com/2022/10/09/james-corbett-9-11-al-qaeda-and-the-war-on-terror/ https://www.tmz.com/2023/03/20/9-11-the-fifth-plane-suspicious-passengers-hijackers-documentary-fox/ https://www.israelnationalnews.com/news/368982 https://www.tmz.com/2023/03/20/9-11-the-fifth-plane-suspicious-passengers-hijackers-documentary-fox/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/the-war-on-iraq-five-us-presidents?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=142492409&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.israelnationalnews.com/news/368982 https://www.youtube.com/watch?v=LK0AonRiOSY&rco=1 https://search.brave.com/search?q=5th+plane+9%2F11+documentary https://www.corbettreport.com/911wargames/ https://shoestring911.blogspot.com/2011/04/many-false-hijackings-of-911.html https://twitter.com/AE911Truth/status/1636512601957072897 https://www.youtube.com/watch?v=SI9OdnyvQew https://www.newworldencyclopedia.org/entry/Islamic_feminism https://www.britannica.com/biography/Aishah https://korybko.substack.com/p/russia-thwarted-isis-ks-plot-to-trigger?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142446341&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michelchossudovsky.substack.com/p/womens-rights-in-afghanistan-before?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=142419227&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/empire-drugs-taliban-opium-reveals-reality-us-occupation-afghanistan/5831597?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://www.globalresearch.ca/the-war-is-worth-waging-afghanistan-s-vast-reserves-of-minerals-and-natural-gas/19769?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-from-ronald-reagan-and-the-soviet-afghan-war-to-george-w-bush-and-september-11-2001/20958 https://www.nytimes.com/2009/02/04/world/middleeast/04iraq.html?auth=login-google1tap&login=google1tap https://www.commondreams.org/opinion/cia-destablizes-the-world https://sarajevotimes.com/former-cia-agent-claims-they-gave-us-millions-to-split-up-yugoslavia-2/ https://steigan.no/2024/02/new-york-times-om-usas-hemmelige-krig-mot-russland-siden-maidan-i-2014/?utm_source=substack&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/a-century-of-ufo-psyops-exposed-part?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140639974&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://olatunander.substack.com/p/the-deception-committee-part-ii https://olatunander.substack.com/p/the-deception-committee-part-ii https://www.youtube.com/watch?v=kaUemcqIQ-k https://www.youtube.com/watch?v=e8Oy2XCcJEY https://www.britannica.com/topic/Office-of-Strategic-Services https://www.youtube.com/watch?v=vHpxdagNjwg https://www.indianpunchline.com/russia-wont-congratulate-cia-on-its-diamond-jubilee/ https://www.mintpressnews.com/spooks-establishment-journalists-circling-wagons/281217/ https://web.archive.org/web/20071026060752/https://www.carlbernstein.com/magazine_cia_and_media.php https://www.youtube.com/watch?v=GGHXjO8wHsA https://www.reddit.com/r/Documentaries/comments/29psbh/full_bbc_documentary_operation_gladio_1992/https://www.reddit.com/r/Documentaries/comments/29psbh/full_bbc_documentary_operation_gladio_1992/ https://steigan.no/2023/06/storbritannias-rolle-i-natos-terrorarmeer-avslort/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.corbettreport.com/episode-049-paperclipped-nazis-and-stay-behind-gladios/ https://uncensoredhistory.blogspot.com/2013/01/phoenix-program-cia-eliminating-vietcong-vietnam-war.html https://matthewehret.substack.com/p/breaking-history-ep-35-how-natos?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=142430699&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.corbettreport.com/episode-256-gladio-revisited/ https://www.corbettreport.com/episode-298-gladio-b-and-the-battle-for-eurasia/ https://corbettreport.substack.com/p/remembering-fletcher-prouty-2012?utm_source=substack&utm_medium=email&utm_campaign=email-half-post&r=ry8jq#play https://vigilantnews.com/post/testimony-from-cia-whistleblower-reveals-new-claims-on-covid-19-origins?omnisendContactID=64f0f8b594a54bbd3d3b2eec&utm_campaign=campaign%3A+Vigilant+Fox+Daily+Digest+%5B09%2F14%2F23%5D+%28650229b222572db966c65861%29&utm_medium=email&utm_source=omnisend https://covertactionmagazine.com/2023/07/24/cia-has-been-working-to-overthrow-the-peoples-republic-of-china-prc-since-its-inception-in-1949/ https://expose-news.com/2023/07/25/how-much-influence-does-mi6-have/ https://steigan.no/2023/07/i-20-ar-drev-usa-en-narkostat-i-afghanistan-til-taliban-satte-en-stopper-for-det/?utm_source=substack&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2023/04/17/meet-a-forgotten-cia-critic-who-presciently-characterized-the-agency-as-a-cancer-in-1970-book/?mc_cid=2529d976ff&mc_eid=5cd1ec03b1 https://covertactionmagazine.com/2023/04/05/a-look-back-at-the-american-experience-in-world-war-i-shows-the-danger-of-where-we-may-be-headed/?mc_cid=a804d1ea71&mc_eid=5cd1ec03b1#post-54548-footnote-ref-0 https://www.goodreads.com/book/show/33780311-the-cia-as-organized-crime https://kitklarenberg.substack.com/p/anatomy-of-a-coup-how-cia-front-laid?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://sonar21.com/on-the-precipice-of-world-war-iii/ https://steigan.no/2022/12/hvorfor-rorer-usa-i-den-eksplosive-gryta-pa-balkan/?utm_source=substack&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/the-cia-and-the-news-media-20?utm_source=substack&utm_medium=email#play https://www.youtube.com/watch?v=0gMGhrkoncA https://covertactionmagazine.com/2023/05/25/cia-officers-admitted-the-agency-ran-drug-traffic-during-indochina-wars/?mc_cid=ed39eac4cb&mc_eid=5cd1ec03b1 https://kitklarenberg.substack.com/p/anatomy-of-a-coup-how-cia-front-laid?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://steigan.no/2023/05/james-jesus-angletons-fall/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.voltairenet.org/article220334.html https://islamgreatreligion.wordpress.com/2011/03/15/marriage-in-islam-purpose-and-virtues-special-article/ https://www.history.com/news/sunni-shia-divide-islam-muslim https://www.newworldencyclopedia.org/entry/Sharia https://www.bbc.com/news/world-africa-25432367 https://www.learnreligions.com/difference-between-shia-and-sunni-muslims-2003755 https://www.youtube.com/watch?v=9PEWDLunejA https://michelchossudovsky.substack.com/p/al-qaeda-existential-threat-meaning-al-qaeda?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=140137159&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2023/03/29/chechen-fighters-sign-deal-with-ukraine-to-form-all-chechen-brigade-to-fight-russians/?mc_cid=a804d1ea71&mc_eid=5cd1ec03b1 https://covertactionmagazine.com/2022/11/23/georgian-legion-carries-out-isis-style-executions-in-ukraine-with-covert-u-s-support/ https://www.globalresearch.ca/washington-accuses-putin-of-targeting-our-guys-including-cia-operatives-and-western-military-advisers-inside-syria-instead-of-isis-terrorists/5482475?utm_source=substack&utm_medium=email https://michelchossudovsky.substack.com/p/islamic-state-isis-pentagon-caliphate-project?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=139880221&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=emailhttps://michelchossudovsky.substack.com/p/islamic-state-isis-pentagon-caliphate-project?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=139880221&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://expose-news.com/2024/03/06/the-united-kingdom-zionisms-covert-nerve-center/ https://www.whyislam.org/aishah/ https://www.businessinsider.com/saudi-arabia-sent-inmates-against-assad-2013-1?utm_source=substack&utm_medium=email&r=US&IR=T https://www.globalresearch.ca/state-sponsored-terrorism-who-was-behind-the-charlie-hebdo-paris-attacks/5425322?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.realnewsandhistory.com/anyt-10-19-23/ https://www.globalresearch.ca/when-terrorism-becomes-counter-terrorism-the-state-sponsors-of-terrorism-are-going-after-the-terrorists/5496051?utm_source=substack&utm_medium=email Syria: Escalation, Terrorism and Military Invasion. A Proxy War against Russia and Iran? - Global ResearchGlobal Research - Centre for Research on Globalization https://covertactionmagazine.com/2022/11/23/georgian-legion-carries-out-isis-style-executions-in-ukraine-with-covert-u-s-support/ With Russia in their sights, Chechens depart Syria for Ukraine - Asia Timesal https://www.amazon.com/Full-Spectrum-Dominance-Totalitarian-Democracy/dp/398132630X https://winteroak.org.uk/2024/02/26/fake-terrorism-and-the-genocide-agenda/ https://www.youtube.com/watch?v=bFn7Zd_J69w https://www.realnewsandhistory.com/anyt-02-26-24/ https://www.globalresearch.ca/world-war-iii-about-start-has-already/5850305 https://informationclearinghouse.blog/2024/01/25/pepe-escobar-five-variables-defining-our-future/15/ https://steigan.no/2024/01/isis-et-amerikansk-vapen-mot-motstandsaksen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/twenty-six-things-about-the-islamic-state-isil-that-obama-does-not-want-you-to-know-about/5414735?utm_source=substack&utm_medium=email The struggle against terrorism cannot be won by military means | Robin Cook | The Guardian https://corbettreport.substack.com/p/al-qaeda-doesnt-exist-2009?utm_source=substack&utm_medium=email&utm_campaign=email-half-post&r=ry8jq https://www.newworldencyclopedia.org/entry/Wahhabism https://www.history.com/topics/middle-east/persian-gulf-war https://www.history.com/topics/19th-century/monroe-doctrine https://www.globalpolitics.se/regeringsrapport-i-usa-motsager-pentagons-pastaenden-om-att-isis-ar-ett-hot-i-irak-och-syrien/ https://theconversation.com/the-sykes-picot-agreement-and-the-making-of-the-modern-middle-east-58780 https://theconversation.com/explainer-what-is-wahhabism-in-saudi-arabia-36693 https://www.geopoliticalmonitor.com/wahhabism-isis-and-the-saudi-connection/ https://www.youtube.com/watch?v=oeZYxLyLcR4 https://www.worldhistory.org/Prophet_Muhammad/
Eins og áður er drepið á skiptu Bretar og Bandaríkjamenn með sér Miðausturlöndum og Vestur-Asíu, þegar Frökkum hafði verið skákað út fyrir hliðarlinu. Forseti Bandaríkjanna, Franklin Delano Roosevelt, hafði gert tilkall til svæðisins og Dwigth D. Eisenhower (1890-1969) hafði lagst á sömu sveif. Stefna Bandaríkjanna í Vestur-Asíu var áþekk svokallaðri (James) Monroe (1758-1831) stefnu (Monroe doctrine) í heimaálfunni. Bandaríkjamenn skilgreindu gervalla Ameríku sem sinn heimaleikvöll.
Jimmy Carter (f. 1924) fetaði ákveðið í slóð Monroe (Carter doctrine): Afstaða okkar er kýrskýr. Tilburðir utanaðkomandi afla til að seilast til valda á Persaflóasvæðinu, munu túlkaðir sem árás á hagsmuni Bandaríkja Norður-Ameríku.
Á tímabili dreymdi þá um að leggja undir sig gervöll olíusvæði Sádí-Arabíu. Síðar stofnuðu Bandaríkjamenn sérstakan Miðausturlandaher, Central Command (Centcom), sem beitt var i fyrsta Persaflóastríðinu (Operation Desert Storm) 1991, í Afganistan 2001 og Írak 2002.
Frelsun og lýðræði er jafnan notað sem yfirvarp við stríðsrekstur Bandaríkjamanna eins og kunnugt er. En Robert Dreyfus efast:
Um árabil, sérstaklega, meðan á Kalda stríðinu stóð, skutu Bandaríkjamenn einræðisherrum, konungum, höfðingjum (emir) og lífstíðarforsetum í Miðausturlöndum og um gervalla veröld, í hásæti. Í heimi Araba í Sádí-Arabíu, Jórdan, Egyptalandi og Persaflóaríkjunum ríktu þessir einræðisherrar, að sumu leyti í slagtogi við íslamska öfgamenn (islamic rights) og fyrir tilstuðlan bandarískra stjórnmálamanna.
Undir lok síðustu aldar settust á rökstóla nokkrir Ný-íhaldsmenn (neo-conservative) í Bandaríkjunum og lögðu drög að bandarískri utanríkisstefnu á nýrri öld, New American Century. Tveir þeirra, bandaríski stjórnmálarýnirinn, Robert D. Kaplan (f. 1952) og landi hans og jafnaldri, William Kristol, skrifuðu í bók sinni, Íraksstríðinu (The War Over Iraq):
Við stöndum á þröskuldi nýs söguskeiðs. Þetta eru kaflaskil Stríðið snýst augljóslega um meira en Írak. Þetta snýst fremur um framtíð Miðausturlanda og stríðið gegn hryðjuverkum. Kjarni máls er það hlutverk, sem Bandaríkin hyggjast leika í veröldinni á tuttugustu og fyrstu öldinni.
Bandaríski sagnfræðingurinn og utanríkismálafrömuðurinn, Michael Ledeen (f. 1941): Að mínum dómi ber okkur skylda til að heyja svæðisbundið stríð, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það kynni að verða stríð til að endurskapa heiminn.
Fyrstu áætlun í þessum anda má m.a. lesa í minnisblaði frá 1996 til Benjamin Netanyahu. Það ber lýsandi heiti: Hreinn skurður: Ný herkænskuáætlun til að tryggja vettvanginn (A Clean Break: A New Stragegy for Securing the Realm). Þar er lýst, hvernig hvert ríkið í Miðausturlöndum á fætur öðru skuli lagt að velli. Það er komið að Íran, hin eru fallin, Sýrland þó bara til hálfs.
Seinni árásin á á tvíburaturnana í Nýju Jórvík, þ.e átyllu- eða tálárásin (false flag) var notuð af bandarískum yfirvöldum sem átylla hernaðarins í Miðausturlöndum á Nýrri bandarískri öld, og framin í samvinnu við leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, Alríkislögregluna (Federal Bureau of Investigation - FBI) og leyniþjónustu Ísraelsmanna, Mossad.
Sú fyrri, árið 1993, var að öllum líkindum eins og sú seinni, gerð að undirlagi djúpríkisins. Þá var blinda sjeiknum kennt um. Hugsanlega var hún einungis hugsuð til að hrista upp í fólki og vekja ótta eins og allir veirufaraldrarnir.
Það gefur meira að segja barnamorðinginn, Brjálaði-Bensi (Benjamin Netanyahu), sterklega í skyn í bók sinni Baráttan gegn hryðjuverkamönnum (Fighting Terrorism), sem kom út 1995:
Hvaða leið ættu Bandríkjamenn og aðrar lýðræðisþjóðir að velja í því skyni að vinna bug á lymskulegum hryðjuverkamönnum á alþjóðavettvangi eins og við sprengingu Alþjóðaverslunarmiðstöðvarinnar (World Trade Center), árið 1993. Þau gætu hæglega leitt af sér fleiri slíka harmleiki. Í verstu sviðsmyndinni væri ekki um bifreiðarsprengju að ræða heldur kjarnorkusprengju í kjallara Alþjóðaverslunarmiðstöðvarinnar.
Osama neitaði alfarið að hafa nokkuð með sprenginguna að gera: Ég kom hvergi nærri árásunum 11. september. Ég vissi heldur ekkert um þessar árásir. Það er til að dreifa stjórn í ríkisstjórninni í Bandaríkjunum. Það verður að inna huliðsstjórnina eftir því, hverjir stóðu að árásunum.
Trúlega voru árásir á sendiráð Bandaríkjamanna í Keníu og Tansaníu 1998 undanfari seinni sprengingarinnar í NY, sama eðlis, og framkvæmdar af Mossad. Nú var það ekki blindi sjeikinn heldur hinn dularfulli CIA-maður, Osama bin Laden, sem var ljóti karlinn og heilinn á bak við árásirnar.
Bandaríkin studdu við bakið á Ísrael við njósnir og inngrip í nágrannalönd eins og Egyptaland og Jemen. Þar beittu Ísraelsmenn fyrir sig Gyðingum frá Jemen, sem flust höfðu til Ísraels. Jemens-Gyðingarnir höfðu veg og vanda af því að þjálfa uppreisnarmenn gegn yfirvöldum.
Ísraelsmenn eru margfaldir í roðinu og ekki allir, þar sem þeir eru séðir. Þeir áttu samvinnu við kristna ofsatrúarmenn, Falangista, í Líbanon, leyniþjónustu Jórdana og Bræðralag Múhameðstrúarmanna. Ísraelsmenn studdu Írana og seldu þeim vopn í stríðinu gegn Írak. Þeir studdu líka íslamskt staðgengilsstríð (mujahideen Operation Cyclone) Bandaríkjamanna í Afganistan.
Bandaríkjamenn tóku þátt í stofnun Taliban-Wahhabi hreyfingarinnar í Afganistan og fjármögnuðu hana að hluta, m.a. í þeirri viðleitni að tryggja lögn olíuleiðslu frá Túrkmenistan um Afganistan.
Í þessum jarðvegi, þ.e. stuðningi Bandaríkjamanna við Taliban 1994-1998 og arabískra bandamanna, skaut Alkæda (Al Qaida) rótum, undir forystu CIA-liðsmannsins, Osama bin Laden. (Eiginlega merkir Al Qaida einungis tölvugagnagrunn (computer database.)
Osama og félagar þjálfuðu aragrúa stríðsmanna, bæði innan Bandaríkjanna og utan. Fjöldi múslímaríkja tæmdi fangelsi sín af óþokkum og sendu til Afganistan. (Það gerðu síðar Úkraínumenn og Rússar.) Þessum óþokkaher sínum hafa Bandaríkin beitt víða um Asíu, Afríku og í Úkraínu.
Robin Cook (1946-2005), fyrrverandi utanríkismálaráðherra Breta, sagði: Bin Laden var afkvæmi gríðarlegs dómgreindarleysis leyniþjónustna Vesturlanda. Á níunda áratugi síðustu aldar var Osama vopnum væddur af CIA og fjármagnaður til heilags stríðs á vegum Sádí-Araba gegn Rússum í Afganistan.
Franski leyniþjónustumaðurinn, Pierre-Henri Bunuel (f. 1952), segir: Þegar Osama bin Laden starfaði fyrir Leyniþjónustu Bandaríkjanna í Afganistan, kom Al Qaida netið að góðum notum við að senda leynileg skilaboð eða dulkóðuð. Sannleikurinn er sá, að það er enginn her eða hryðjuverkasveit, sem ber þetta nafn. Og allir vakandi leyniþjónustumenn vita þetta.
Hann bætir við: En það á sér stað áróðursherferð í því skyni að telja almenningi trú um að til sé hreyfing (identified entity), sem er fulltrúi djöfulsins. [Þannig] á að öðlast stuðning sjónvarpsáhorfenda við sameinaða, alþjóðlega forystu í stríði gegn hryðjuverkum. Það eru Bandaríkjamenn, sem standa á bak við þennan áróður og það vakir einungis fyrir þrýstihópum í þágu stríðs gegn hryðjuverkum að græða peninga.
Það fylgir sögunni, að Pierre-Henry Bunuel var dreginn fyrir leynilegan dómstól franska hersins.
Bræðralag Múslíma er meiðurinn, sem spruttu af hreyfingar eins og Hisbolla (Hesbollah), Hamas, heilagir stríðsmenn í Afganistan (Mujahideen) og Alkæda (Alkaida). Sú síðastnefnda var undir stjórn CIA-liðans, Osama bin Laden (1957-2011), sem myrtur var af Bandaríkjamönnum.
Bæði Jórdaníumenn og Ísraelar hafa stutt íslamska öfgahópa og beitt þeim gegn Sýrlendingum. Bandaríkjamenn hafa einnig beitt þeim í Téténíu og öðrum múslímskum hlutum Rússneska ríkjasambandsins.
Leiðir Bræðralagsins lágu víða eins og til breska embættismannsins og múftans (æðstaprestins) í Jórsölum, Hai Amin Al-Husseini (1895-1974), sem átti í vinfengi við þýska nasista og sótti m.a. Adolf Hitler (1889-1945) heim. Haj Amin skipulagði meira að segja sérstaka Schutzstaffel- hersveit (SS) Múslíma. Flestir liðsmanna hennar komu frá Bosníu. Múftinn var síðar ráðinn að áróðurútvarpsstöð Breta í Kaíró.
CIA og MI16 höfðu reyndar augastað á öllum, sem að gagni mættu koma í baráttunni gegn Ráðstjórnarríkjunum í veröldinni. Þeir leituðu einnig uppi hæfa Nasista eins og Reinhard Gehlen (1902-1979), fyrrum njósnaforingja Þjóðverja. Reinhard var gerður að yfirmanni Gehlen-gengisins. Í þessu gengi eða stofnun, sem CIA setti á laggirnar, störfuðu fyrrum njósnarar nasista. Gengið varð vísirinn að nýrri Vestur-þýskri leyniþjónustu.
Segja má, að Bræðralagið hafa komið að flestum myrkraverkum Vesturveldanna í Miðausturlöndum og Vestur-Asíu. Um miðja síðustu öld höfðu Frakkar enn þá umtalsverð ítök á svæðinu, sbr. Sykes Picot samkomulag þeirra og Breta um skiptingu svæðisins við lok fyrstu heimstyrjaldarinnar.
Súezskipaskurðurinn hafði verið grafinn fyrir tilstilli Frakka og þjónaði sem mikilvæg flutningsleið milli Evrópu og Asíu. Þegar Nasser, sem var þjóðernissinni, vildi þjóðnýta skurðinn, háðu Bræðralagið, Ísrael, Bretar og Frakkar, stríð gegn Egyptalandi. Nasser skyldi steypt af stóli.
CIA (Allen Dulles (1893-1969)) og utanríkismálaráðuneyti Bandaríkjanna (John Foster Dulles (1888-1959)), unnu markvisst að því að efla al-íslömsku (pan Islamic) Wahhabi hreyfinguna í Sádí-Arabíu og fengu hana til liðs við sig í andófinu gegn Nasser - og styrktu Bræðralagið samtímis.
Einn af framámönnum í þessari hreyfingu var Sheikh Abdel Aziz bin Baz (1912-1999), stundum kallaður blindi sjeikinn. Hann var andvígur nútímavæðingu í Sádí Arabíu og talaði fyrir ofbeldi og hryðjuverkum. Í huga Abdel Aziz var jörðin flöt. Þeir, sem héldu öðru fram væru guðleysingjar og andsnúnir Kóraninum og Spámanninum.
Anwar Sadat (1918-1981), sem tók við, þegar Nasser var steypt af stóli, var bróðir Múhammeðs. Fáir hafa líklega verið jafn hollir Bandaríkjamönnum við að auka áhrif sín í Miðausturlöndum, t.d. með því að sundra Aröbum, gera Camp David samkomulagið við Ísrael, styðja uppreisn (jihad) múlíma á vegum Bandaríkjamanna í Afganistan og greiða götu þeirra umhverfis Persneska flóann.
Svo fór, að Anwar féll fyrir flugumanni úr eigin hreyfingu, öfgafyllsta armi hennar (Islamism) undir forystu Abdul Rahman, sem lagði CIA lið við að útvega heilaga stríðsmenn til stríðs þeirra í Afganistan. Stjórnmálaarmur öfga-Íslam var fjármagnaður af arabísku olíuríkjunum (Kúvæt, Katar, Sádí) og fjármálastofnunum þeirra, sem bankamenn Vesturlanda komu á koppinn. Bræðralagið fékk einnig fjárstuðning frá Ísrael og Jórdan.
Ísraelsmenn studdu þá viðleitni Bræðralags Múslíma að skjóta rótum á hernumdum svæðum Palestínumanna til að andæfa Frelsissamtökum þeirra (Palestine Liberation Organization - PLO). Þeir voru innan handar Ahmed Yassin (1936-2004), leiðtoga þeirra, við stofnun Hamas. Þetta staðfestir m.a. Charles Freeman (f. 1943), fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Sádí-Arabíu og bendir á, að stofnun Hamas hafi verið samkvæmt áætlunum Shin Bet, innanríkisleyniþjónustu Ísraels, til að vinna gegn PLO.
Ísraelsk yfirvöld hafa síðar beitt Hamas markvisst til að berjast gegn sjálfstæðishreyfingu Palestínumanna á Gaza og á Vesturbakkanum. Ariel Sharon t.d. notfærði sér Hamas, Heilögu hersveitirnar (Islamic Jihad) og Hisbolla. Samkvæmt yfirlýsingum barnamorðingjans, Benjamin Netanyahu (f. 1949), er þetta enn þá hornsteinninn í stefnu Ísraels gagnvart Palestínumönnum.
Hugmyndafræðilegur grundvöllur að Hamas var þó til staðar í Palestínu allar götur frá fjórða áratugi síðustu aldar, er múftinn fyrrnefndi, Haj Amin al-Husseini, í senn bæði vinur Breta og Þjóðverja, hvatti til uppreisna gegn landnáms- og landtökumönnum Gyðinga. Múftinn hitti fulltrúa Bræðralagsins árið 1935. Það opnaði bækistöðvar í Jórsölum tíu árum síðar.
Said Ramadan (1926-1995) var mikilvægur bandamaður Bandaríkjanna eins og Adul og fleiri. Svissneska leyniþjónustan sagði hann erindreka CIA. Said var samtímis fulltrúi Jórdan hjá Sameinuðu þjóðunum og helsti alþjóðahernaðarhugsuður Bræðralagsins. Hann stofnaði m.a. Miðstöð Múhameðstrúarmanna í Genfar 1961. Það urðu höfuðstöðvar Bræðralagsins.
Það má geta þess, að konungur Jórdaníu, Hussein bin Talai (1935-1999), var á launaskrá hjá CIA. Öðru máli gegndi um Bashir Assad (f. 1965), forseta Sýrlands, Yasser Arafat (1929-2004), yfirmanns Sjálfstæðishreyfingar Palestínu (PLO) og Saddam Hussein (1937-2006), forseta Íraks, sem voru einarðir andstæðingar Bræðralagsins og allra þess afsprengja.
Smám náðu Múslímar undirtökunum á Arabíuskaga, löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, í Norður-Afríku, Persíu (Íran), suðurhluta Spánar, Tyrklandi og víðar.
Á síðmiðöldum og nýöld (1400) voru í uppsiglingu þrjú islömsk heimsveldi; Ósmanar í Anatólíu (Tyrklandi Ottóman heimsveldið), Safavidar í Persíu (Íran) og Mógúlar [Mughal] á Indlandi. (Mughal er afbökun úr Mongol, vísar til mongólsks uppruna drottnaranna.)
Heimsveldi Ottómana og Safavida voru reist á rústum Seljuka (Seljuk Turks), sem í byrjun elleftu aldar hertóku þessi svæði. Aðrir tyrkneskir ættbálkar höfðu ráðið ríkjum á Norður Indlandi.
Mógúlaríkið var stofnað af afkomendum Chinggis Khan (Gengis Kan), sem vann lönd einkum á Norður-Indlandi. Það festist enn frekar í sessi í byrjun sextándu aldar fyrir atbeina tyrknesks-mongólsks hershöfðingja, Zahir-ud-din-Muhammad Babur (1483-1530), sem lagt hafði undir sig Afganistan.
Um sautján hundruð tók ríkið meira eða minna til alls Indlandsskaga. Persneska var opinbert mál í heimsveldinu. Gerðar voru miklar stjórnarumbætur með tiltölulega sjálfstæðum héraðsstjórum. Skipan fjögurra ráðherra; fjármála, hermála, dóms- og trúmála, og innanríkis- og samgöngumála.
Í fyrrgreindum veldum Íslams voru reist stórkostleg og fögur mannvirki, persneskri skrúðgarðahefð (gardening) var gert hátt undir höfði, ásamt ýmis konar list og menntun. Um miðja fimmtándu öldina lágu mikilvægar verslunarleiðir um ofangreind heimsveldi.
Á ofanverðri átjándu öld áttu íslömsku heimsveldin í vök að verjast. Safavidaveldið féll á fyrsta fjórðungi aldarinnar. Bretar lögðu undir sig Bengal um miðja átjándu öld. Næstu öldina réð Austur-Indía félag þeirra lögum og lofum á Indlandi.
Undir forystu Suleiman I (1494-1566) náði Ottóman heimveldið fótfestu við innanvert og sunnanvert Miðjarðarhaf. Það náði frá Egyptalandi til Anatólíu. Í norðri og vestri tók það til Ungverjalands, Rúmeníu, Moldavíu, sneiðar úr Póllandi og Úkraínu, og allar götur norður og austur að Kaspíahafi og til Mesópótamíu (Iraks). Mikligarður (Istanbul, Constantinobel) var höfuðborg veldisins.
Tyrkneska ríkið var stofnað, þegar Ottóman heimsveldið leið undir lok. Stofnandi þess og aðalhugmyndafræðingur var hinn frjálslyndi múlími, Mustafa Kemal Atatürk (1881-1938). Hann færði líf og trú hins forna Ottóman heimsveldis nær vestrænum samfélögum, t.d. með innleiðingu lýðræðis.
Mustafa gagnrýndi íslamskan fasisma. Hugtakið felur í sér andúð og gagnrýni á svonefnt guðaveldi eða klerkaveldi (theocracy) í Múhammeðstrú og viðleitni þeirra hreyfinga, sem vilja innleiða það. Um þessar mundir er iðulega átt við Íran, Sádí-Arabíu, Algeríu og Súdan, en skírskotun til fasisma er grundvölluð á fjöldamorðum leiðtoga Ottóman heimsveldisins eða kalífadæmis, Yavuz Sultan Selim (1465-1520), í byrjun sextándu aldar, á tyrkneskum ættflokkum (Turcomans).
Eftir fyrstu heimstyrjöldina fetuðu Bandaríkjamenn í slóð Breta, sem voru, ásamt Frökkum, atkvæðamesta heimsveldið fyrir botni Miðjarðarhafs, sem og í Afríku, á Indlandi og í Asíu. Bretum og Frökkum hafði verið falin umsjón með löndum íslamska Ottómans-heimsveldisins. Það gerði Þjóðabandalag sigurvegaranna.
Bretar sáu til þess, að Síonistum, þ.e. heimalandshreyfingu meðal Gyðinga í Evrópu, yrði úthlutað landi, sem þá var Palestína (Balfour yfirlýsingin). Það átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir þróun heimshlutans.
Gyðingar kölluðu landnám sitt Ísrael og lýstu einhliða yfir sjálfstæði 1948. Ríkið hlaut viðurkenningu smávaxinna Sameinuðu þjóða, m.a. með atkvæði Bandaríkjamanna og Íslendinga, sem hafa verið dyggir stuðningsmenn Bandaríkjanna og Ísraels allar götur síðan.
Ísraelsríki var hernaðarfleygurinn, sem Bandaríkjamenn og Bretar beittu í sókn sinni eftir olíu, áhrifum og völdum, í heimshlutanum. Síðar hafa Bandaríkin líkt Ísraelsríki við flugmóðurskip eða herstöð.
Bretar höfðu eins og bent var á - deilt og drottnað í Miðausturlöndum eins og í Kína og á Indlandi. M.a. öttu þeir ættkvíslum Araba ýmist saman eða sameinuðu til að berja á Ottómönum, sem voru komnir að fótum fram. Raunar hafa Bretar meira eða minna sett örlagaríkan svip sinn á lönd og ríki fyrir botni Miðjarðarhafs. Þeir bjuggu t.d. til bæði Jórdan og Sádí-Arabíu.
Það var sömuleiðis draumur Breta og Bandaríkjamanna að vinna gegn áhrifum Ráðstjórnarríkjanna (Sovét-) í Vestur-Asíu. Því var haldið fram, að þau reyndu að bera víurnar í Miðausturlönd eins og heiminn allan reyndar. Þessi fásinna er enn á ný borin á borð fyrir Evrópumenn, svo efla megi Nató.
Bandaríkjamenn ætluðu sér að endurtaka Nató-leikinn í Miðausturlöndum, þ.e. að stofna varnarbandalag gegn Ráðstjórnarríkjunum í Miðausturlöndum; t.d. Varnarbandalag Miðausturlanda (Middle East Defense Organization), Bagdað- bandalagið (Baghdad Pact) og Miðaustur bandalagið (Central Treaty Organization CENTO). Það fór út um þúfur. Í staðinn var Nató þanið út og umlykur hér um bil rússneska ríkjasambandið.
Eitt helsta vopn Bandaríkjamanna var ein öfgahreyfinga Múslima, kölluð Bræðralag Múhameðstrúarmanna (Ikhwan al Muslimin - Moslem Brotherhood). Öfgatrú þeirra er iðulega kennd við Wahhabism (Salafism Sunni Islam), eftir spámanni þeirra, Mohammad ibn Abdul Wahhab (1703-1792), sem vildi taka upp lifnaðarhætti fyrri tíma.
Stofnandi Bræðralagsins var Hassan al-Banna (1905-1949). Það var stofnað 1928 í Egyptalandi með styrkjum frá Súesskurðarfélagi Englendinga. Bræðralagið var einnig dyggilega stutt af Sádum. Stofnaðar voru deildar í Amman, Jórsölum og Damaskus.
Bræðralagið sótti innblástur í önnur öfgasamtök, Al-Íslam (pan-islamic movement). Stofnandi þeirra var frímúrarinn, Jamal Eddine al-Afghani (1838-1897), á seinni hluta nítjándu aldar. Hann var Bretahollur mjög og vildi að þeir tækju að sér forystu samtakanna. Í annarri heimstyrjöldinni bættist sú þriðja við, Íslamska fylkingin (Islamic Group) í Pakistan. Foringi hennar var Abul-Ala Mawdudi (1903-1979).
Kenningar Jamal Eddine urðu sagnfræðingnum, Bernard Lewis (1916-2018), og Samuel Phillips Huntington (1827-2008), innblástur að hugtakinu um ásteyting siðmenninga (clash of civilizations). Í hnotskurn felst í hugtakinu sú staðhæfing, að allar götur frá landtöku Mára á Suður-Spáni og fram að öðru umsátri Tyrkja um Vínarborg, hafi Evrópa búið við stöðuga ógn frá Íslam.
Gyðingurinn, Bernard, fyrrum njósnari hennar hátignar og aldavinur fyrrum forseta Ísraels, jarðýtunnar, Ariel Sharon (1928-2014), les og túlkar söguna úr sjónarhorni anglósaxiskrar heimsvaldastefnu og ísraelskrar útþenslustefnu, sbr. Stór-Ísrael og Konungdæmi Gyðinga.
Fyrrgreindu vopni, þ.e. öfgahreyfingum Múslíma, beittu Bretar og Bandaríkjamenn gegn þjóðernishreyfingum Araba, m.a. í Egyptalandi og Íran, steyptu bæði forseta Egyptalands, Gamal Abdel Nasser (1918-1970), og forseta Írans, Mohammed Mossadegh (1882-1967), af stóli.
Í Íran náðu Bretar þannig undirtökunum í olíuiðnaði þjóðarinnar. Leyniþjónusturnar, CIA (stofnuð 1947 á grundvelli leyniþjónustu hersins, Office of Strategic Services - OSS) og MI6, höfðu veg og vanda af þessum ódæðum. (Vísir að MI6 varð til, þegar Bretar lögðu undir sig Indland.)
CIA greiddi íslömskum öfgasamtökum fyrir þátt þeirra í uppreisninni í Íran eins og þeir gera nú við uppþot kvenfrelsara og mannréttindasamtaka á þeirra vegum. CIA nýtur nú að vísu liðsinnis svokallaðra frjálsra félagasamtaka (non-governmental organization) á vegum auðkýfinga eins og George Soros.
Leiðtogi íslamskra öfgamanna í Íran, bandamanna CIA og MI6, var Ayatollah Seyyed Abolqassem Kashnai (1882-1962), lærifaðir Ayatollah Ruhollah Khomeini (1902-1989), sem 1979 tók við völdum í Íran. Hann tók einnig þátt í aðgerð CIA. Íranska grein Bræðralagsins heitir Aðdáendur Íslams, (Devotees of Islam), kennd við Navab Safavi (1924-1956).
Það voru íslamskir CIA-byltingarmenn, sem steyptu eins og vikið var að - Mossadegh af stóli 1953, til að rýma fyrir Mohammad Reza Pahlavi (1919-1980). Það voru sömu byltingarmenn, sem svo steyptu Mohammad af stóli 1979. Örlaganornirnar eru bæði gráglettnar og kaldhæðnar.
Um miðbik síðustu aldar var CIA þó enn þá lærlingur MI6. Breska leyniþjónustan hafði langa reynslu í að etja fólki, ættkvíslum og þjóðum, gegn hver öðrum. Haldbestu reynsluna öðluðust þeir á Indlandi. Þeirra ær og kýr var að drottna og deila, spilla, stela og há stríð.
Þjófsnautarnir, Bretar og Bandaríkjamenn, skiptu olíuþýfinu á milli sín. Forseti Bandaríkjanna Franklin Delano Roosevelt (1882-1945) komst svo að orði við samningamann Breta, Lord Edward Wood Halifax (1881-1959): Þið fáið persnesku (írönsku) olíuna. En olíuauðævum í Kúvæt og Írak skiptum við á milli okkar. Olía Sádi-Arabíu kemur [hins vegar] í okkar hlut.
Það er svo sem ekki furða, að Bandaríkjamenn hafi haldið hernaðartryggð við Sádí Araba, þrátt fyrir trú þeirra og samfélagshætti. Það er lítið um lýðræði og frelsi á þeim bæ. Hver forsetinn á fætur öðrum hefur játað þeim ást sína og tengst þeim frekari hernaðarlegum tryggðaböndum.
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021