Fyrir nokkrum áratugum síðan komst samkunda auðkýfinga, svokallaður Rómarklúbbur, að því, að hugmyndin um helvítishlýnun gætu orðið viðskiptum þeirra til framdráttar, þ.e. aukið auð þeirra.
Framhaldinu er prýðilega lýst í heimildarmyndinni, eftir Martin Durkin. Glöggir áhorfendur sjá, að aðferðin er svipuð og þegar kvenfrelsunarvitleysan, þ.e. að karlar hefðu frá örófi alda kúgað konur, komst á koppinn. Hvort tveggja eins og veirufaraldurinn reyndar einnig fylgir svipaðri uppskrift.
Bábiljur sértrúarsöfnuða eru blásar upp í fjölmiðlum, fjármagn tekur að streyma til þeirra, vísindamönnum er mútað sem og fjölmiðlum til að flytja boðskapinn. Smám saman verður til trúarhreyfing, rétttrúnaður, sem grópast í vitund manna, verður almannarómur.
Almannarómurinn blindar, enda eiga margir lifibrauð sitt undir honum, sérstaklega á því stigi, þegar rétttrúnaðurinn hefur verið löggiltur og komið á laggirnar stofnunum til að varðveita hann. Þá er fokið í flest skjól.
Þegar frjáls hugsun og umræða er skert, skerðist dómgreind og lýðréttindi. Ríkisvaldið skarar stöðugt eld að eigin köku og styttir í ólinni. Það þykir um þessar mundir skiljanleg afstaða, að málfrelsi sé lýðræðinu skeinuhætt. (CIA hefur reyndar lengi starfað samkvæmt því boðorði.)
Í Skotlandi taka t.d. gildi 1. apríl lög um hatursorðræðu og reglu á almannafæri, á Íslandi og í Kanada er slík löggjöf í deiglunni, og í Dakóta er talað fyrir löggjöf, sem gerir gagnrýna umræðu Ísrael að Gyðingahatri. Þetta eru bara nokkur dæmi.
Geggjunin hefur reyndar gengið svo langt, að til viðbótar skordýrabuffum er nú mannakjöt komið á matseðilinn í grænu paradísinni. Þar munu spóka sig öðrum fremur frelsaðar konur, ef unnið verður áfram samkvæmt Sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, Alheimsefnahagsráðsins og íslensku ríkisstjórnarinnar.
Lýsingu á mannlífi framtíðarinnar má ef til vill sjá í kvikmyndinni, Minority Report. Það er nefnilega svo, að fjármagnseigendurnir, sem fjármögnuðu veiruvitfirringuna, grænu geggjunina og kvenfrelsunarfárið, stjórna vitundarsmiðjunni í Hollývúdd eins og fjölmiðlunum. Þar erum við oft og tíðum búin undir það, sem koma skal, samtímis því, að gamlar rétttrúnaðarsögur eru sagðar til að styrkja okkur í trúnni.
Trúlega hefur fyrrverandi dómsmálaráðherra og vinur Ríkislögreglustjóra, horft sér til innblásturs og gagns á fyrrnefnda kvikmynd. Þar eru nefnilega sýndar afbrotavarnir þær, sem hann og Kristilega jafnaðarmannaflokkinn dreymir um á Íslandi, þ.e. að handtaka fólk fyrir afbrotahugsanir og jafnvel skjóta það með rafbyssum.
https://www.youtube.com/watch?v=s3Tfxiuo-oM https://corbettreport.substack.com/p/burn-hollywood-burn-with-irina-slav?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=142786644&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.rollingstone.com/culture-council/articles/how-hollywood-is-crafting-new-climate-change-narrative-1234972469/ https://substack.com/@irinaslav https://irinaslav.substack.com/p/lets-eat-each-other https://www.newscientist.com/article/mg26134783-600-is-it-time-for-a-more-subtle-view-on-the-ultimate-taboo-cannibalism/ https://www.eugyppius.com/p/my-interview-with-irina-slav-on-the https://vigilantcitizen.com/latestnews/scientist-proposes-cannibalism-to-save-the-climate-on-swedish-tv/ https://irinaslav.substack.com/p/burn-hollywood-burn?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://dailysceptic.org/2024/02/27/green-billionaires-press-hollywood-to-promote-armageddon-climate-messages-in-movies/ https://www.igor-chudov.com/p/excessive-free-speech-is-a-threat?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=142814708&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://twitchy.com/amy-curtis/2024/03/01/canada-hate-crime-law-levant-n2393461#google_vignette https://steigan.no/2024/03/vil-canada-forby-precrime/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.heraldscotland.com/news/24194006.police-scotland-hate-crime-training-leaked/
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021