Geðugar gerviguddur, gljápíur, einfarar og eitrungar

Kvenfrelsarar segja karlmenn eitraða, haldna eitraðri karlmennsku. Þeir eru eitrungar, sem frá upphafi vega hafa gert konum lífið leitt; barið þær, drepið og kúgað – umfram allt beitt þær kynofbeldi (á RÚVsku heitir það kynferðisofbeldi eða kynferðislegt ofbeldi).

Kynlíf gagnkynhneigðra er í eðli sínu ofbeldi gegn konum. Því er það ekki undarlegt að heyra þau vísdómsorð úr herbúðum kvenfrelsaranna, að konur skuldi körlum hvorki vinsemd né kynlíf. Svei attan og ójbarasta!!!

Körlum er ekki treystandi fyrir uppeldi barna. Því vilja fjölmargar konur helst, að börnin séu eingetin. Uppeldið vilja þær sjá um. Þær hafa lært þau kvenfrelsunarfræði, að í hverjum nýjum sveinstaula sé þeim nýr nauðgari fæddur. Því er sveinfóstrum eytt.

Og ríkisvaldinu er þóknanlegt, að konurnar ali upp börnin. Enda eru þær ekki eitraðar. Þær eru réttlátar, ljúfar og friðsamar. Því er það, að börn eru að miklu leyti alin upp af konum (stúlkum) á vegum hins opinbera. Fyrirkomulag í leik- og grunnskólum er almennt miðað við ljúfar stúkur, sem fara að fyrirmælum, eru duglegar að perla , kippa, teikna og stunda umræður í hópum.

Uppátækjasamir og þróttmiklir sveinar eru sjúkir. Þá þarf að sljóvga og dópa. Aðrir þjást af kynama, eru „stelpur innan í“ eins og kennt er í skólum landsmanna. Kyn skrákanna þarf að leiðrétta á sama hátt og stúlknanna, sem í örvæntingu leita að þeirri karlmennsku inni í sér, sem þær ekki fá í uppeldinu. Karlmennska er nauðsynleg fyrir jafnaðargeð og heilbrigðan kynþroska stúlkna eins og pilta.

Hið opinbera stuðlar líka að kvenmiðun samfélagsins. Stjórnsýsla og dómstólar eru yfirleitt vilhallir í garð kvenna og barna þeirra. Það eru líka alþjóðasamtök.

Það er kannski ekki kyn, að drengir dragi sig í hlé, dundi sér heima við tölvuleiki, klám og fitli við fyðil sinn. Skóla gefa þeir langt nef. Enn þá fjölgar þeim (samkvæmt nýjum tölum frá Bandaríkjunum), sem velja að kála sér.

Svo segir hin snjalla og greinagóða Janice Fiamengo:

Sjálfsmorð karla hafa aukist í heildina um 2.3%. Því sem næst 40.000 karlmenn í Bandaríkjunum - tíðnin er fjórfalt meiri en hjá konum - drápu sig á síðasta ári. Það eru tíu sinnum fleiri hvítir karlmenn, sem velja þessa leið, en bakkir. Hlutfall hvítra er 94%.“

En eins samskipunarkvenfrelsarar (intersectional feminists) halda fram eru hvítir karlar, bleikskinnar – einkum þeir, sem draga velferðarvagninn - eitruðustu mannverur veraldar.

Samskipunarkvenfrelsarar hafa boðið alla velkomna með opinn faðm, sem bágt eiga vegna kúgandi og eitraðs föðurveldis bleikskinna reðurhafa. Litskinnar skipa þar verðugan sess. Samkeppnin um mesta fórnarlambið er tvísýn og verður stöðugt harðari.

Það eru þó ekki allir eitrungar, sem deyða sig. Aðrir velja þá leið að deyfa sig með fíkniefnum og leita hamingjunnar í gerviveröld fíknarinnar. Þar eru afföllin stór. Svo eru margir, sem gerast einfarar, taka ekki lengur þá tilfinningalegu og fjárhagslegu áhættu að tengjast konum nánum börnum og eignast börn. Þessir eitrungar gerast einfarar.

En eins og allir vita er einsemd skelfileg og andlega óholl. Úrræðagóðir karlar, sem svo er komið fyrir, taka í auknum mæli upp á því að láta sérhanna fyrir sig gerviguddur og stunda með þeim fullnægjandi kynlíf.

En alúð fá þeir ekki fyrir sinn snúð. Það má ráða bót á því. Aðrir hafa nefnilega fengið sér gervigreindarguddu. Þær eru eins og hugur manns, vilja allt fyrir mann gera, tala, stynja og syngja – og þegja meira að segja.

En, en! Skammirnar dynja á einförunum fyrir háttalagið. Kvenfrelsarar og kynjafræðingar liggja þeim á hálsi fyrir tiltækið, segja þá skorast undan ábyrgð og þátttöku.

Þessi óþroskuðu grey taka alla vega hvorki fjórðu né fimmtu vaktina. Og ekki sunda þeir kynferðisofbeldi lengur – eða hvað? Hvað eiga kynjafræðingarnir nú að sýsla með í háskólunum á Bíldudal, Blönduósi, Raufarhöfn, Höfn og Selfossi? Konur eru (einu sinni enn) reiðar sonum sínum.

Kynjafræðingarnir, sem skrifa ritrýndar greinar í kvenfrelsunarvísindatímarit um efnið, segja þetta enn þá eitt sannindamerki þess, hvað karlar séu nú eiginlega eitraðir og óþroskaðir.

En eins og oft áður, tekur Janice annan pól í hæðina. Hún segir á þessa leið:

Glaðir í bragði myndu karlar láta reiði kvenna, sem tröllríður félagsmiðlum og ljósvaka, sem vind um eyru þjóta, ef reiði þeirra hefði ekki tekið sér bólfestu í löggjöf og stjórnmálum. Þar er konum skipað í efstu skör, þegar um er að ræða ráðningar, frama, menntun, opinberar áætlanir og fjárstyrk. Það á einnig við um skilnað, forsjá barna, meðlög, stuðning við börn og félagslega þjónustu.

Það bætir síður en svo úr skák, þegar hluti launa þeirra er tekinn lögtaki í kjölfar skilnaðar, þegar þeim er meinað að umgangast börn sín, vegna falskra ásakanna fyrrum eiginkvenna, eða þegar þeim er skipað í meðferð til að bæta samúð sína. [Um er að ræða eins konar karlaviðgerðir, beint eða óbeint á vegum hins opinbera.]

Reiði karla er auðskilin. Það er harla ólíklegt, að þeir kaupi þá skýringu, að reiði þeirra sé tilkomin vegna áhrifa kvenhatara í netheimum. Lýkur þá máli Janice.

Djúpvitringur meðal kvenfrelsara ræður okkur til að púkka ekki upp á eitraða einfara:

„Karlar eru ómennskir og einsemd þeirra verður ekki ráðin bót á, því þeir eru ófærir um samskipti við mennskar verur.“

https://www.jstor.org/stable/23887200?typeAccessWorkflow=login https://www.elephantjournal.com/2021/05/women-we-dont-owe-men-anything-on-the-hidden-sexism-of-male-entitlement-keri-mangis-janis-isaman/ https://fiamengofile.substack.com/p/calling-incels-terrorists-is-good https://fiamengofile.substack.com/p/ai-girlfriends-and-rage-rabbit-holes?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=138022544&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.resumebuilder.com/1-in-6-hiring-managers-have-been-told-to-stop-hiring-white-men/ Federal Resources for Women | U.S. Department of Labor (dol.gov) https://wellsinternationalfoundation.org/tswll-program-b2b-page/?gad=1&gclid=CjwKCAjwvrOpBhBdEiwAR58-3PTcwVj1_PjqFJ_2PlWXn6G36bwQFrkIlGfyYfu9dMtr8hhulSlLPRoCdUUQAvD_BwE Divorce as Revolution by Stephen Baskerville, Ph.D. (ejfi.org) 13 Business Grants For Women: Receive Free Money – Forbes Advisor https://www.theatlantic.com/magazine/archive/2000/05/the-war-against-boys/304659/ https://www.youtube.com/watch?v=ne6p6MfLBxc https://www.youtube.com/watch?v=kVu3_wdRAgY


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband