Auðlindir og auðlegð Miðausturlanda, Litlu-Asíu og Arabíuskagans, hefur löngum haft sterkt aðdráttarafl á Vesturlandabúa. Fyrir hartnær tíu öldum gerðu ríki Vestur-Evópu og kaþólska kirkjan fyrstu atlögu að íbúum þessara svæða, drápu, rændu og rupluðu. Sú herför er þekkt sem krossferðirnar.
Um Miðausturlönd og Kákasus hafa legið þjóðleiðir verslunar og menningar frá fornu fari. Silkivegurinn (silkivegirnir) tengdi Asíu (Kína) og Evrópu um hina forna Kasaríu (norður af og meðfram Kaspía- og Svartahafi) með tengingum til Evrópu, Persaveldis (Íran), Mesópótamíu (Írak), Palestínu og Egyptaland. Jerúsalem var t.d. blómleg miðstöð verslunar, trúarbragða og menningar.
Þegar Rauðskjöldungar (Rotschild auðmannaættin) fóru að bera víurnar í Palestínu, laut landið veldi hinna tyrknesku Ottómana, sem þá réðu einnig yfir hluta hins gamla silkivegar. Rauðskjöldungar sáu sér leik á borði eins og í Suður-Afríku, skópu viðskiptatækifæri og létu draum forföðurins, stofnanda veldis þeirra, rætast. Í Suður-Afríku stunduðu þeir arðvænlega vinnslu dýrra steina í skjóli breskrar heimsvaldastefnu og breska hersins.
Bretar höfðu átt frumkvæði að leit og olíuvinnslu á Arabíuskaga og í Litlu-Asíu. Þeim bættist liðstyrkur frá upprennandi heimsveldi, Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þá þegar hafði alþjóðaauðvaldið, með bækistöðvar í Páfagrði, Feneyjum, Frankfurt, Hamborg og Lundúnum, náð undirtökunum í atvinnulífi og bankaveldi BNA.
Gyðingar skipuðu forystusveit þessara auðmanna. Á árinu 1913 urðu tveir samtengdir merkisatburðir, sem hafa haft ómælanleg áhrif á sögu veraldarinnar. Annars vegar náðu þeir, þrátt fyrir heiðarlega mótsspyrnu bæði forseta og þingmanna, tökum á ríkisfjármálum BNA með stofnun seðlabanka (Federal Reserve). Hins vegar stofnuðu þeir Æruverndarbandalag (The Anti-Defamation League ADL) sem hafði það hlutverk að sannfæra almenning um, að sérhver umræða um Rothschild-veldið eða bandamenn þess, væri árás á alla Gyðinga.
Bandalaginu var einnig beitt í fyrsta og öðru heimsstríði til að stýra almenningsálitinu gagnvart Gyðingum.
Bandalag þetta er í fullu fjöri og hefur heitbundist samskipunarkvenfrelsurum eða eymdar- og fórnarlambshreyfingunni (wokeism intersectional feminism). Reyndar eru þessar hreyfingar að töluverðu leyti fjármagnaðar af aðiljum með sömu grundvallarhagsmuni, í samstarfi við myrkviðastjórnir Vesturlanda, þ.e. huliðsríkið, kabalinn eða djúpríkið. Kært barn hefur mörg nöfn.
Það var því ekki einvörðungu af virðingu við ættföðurinn, að Rauðskjöldungar beislaðu heimalands- og hreintrúarhreyfingu Gyðinga (Zionism) undir lok nítjándu aldar. Þeir eru nefnilega eins og Gáttaþefur karlinn, hafa ógnarlangt og heljarstór nef, sem nemur peningailm um langan veg.
Þegar bandarískum og breskum Gyðingum hafi tekist að draga Bandaríkjamenn inn í fyrri heimstyrjöldina, knýja fram uppgjöf Þjóðverja og múta Bretum til að gefa sér land Palestínumanna, hófst land- og hernám evrópskra Gyðinga fyrir alvöru. Gyðingasöfnuðir voru þá á víð og dreif um Miðausturlönd og víðar.
Þjóðabandalagið hafði sem sé fært Bretum umboðsstjórnunarvald (mandate) yfir stórum hluta ríkis Ottómana fyrir botni Miðjarðarhafs. En áður höfðu Bretar og Frakkar gert með sér samkomulag um skiptingu Ottómans veldisins. Bretar voru eins og ýjað var að, iðnir við olíuleit á svæðinu.
Í valdaskákinni um auðlindir og olíu deildu Bretar og drottnuðu eins og sönnu heimsveldi sæmir, tefldu ættbálkum og þjóðum gegn hver annarri og skópu heilu ríkin eins og Sádí-Arabíu. Bandaríkjamenn voru oft og tíðum með í ráðum.
Í þessu samhengi verður að skoða stofnun Ísraelsríkisárið 1948, uppreisnir í ríkjum Múhameðstrúarmanna síðustu áratugi, og þróunina í Ísrael.
Fyrir rúmum tveim áratugum var staðfest, að austanverður botn Miðjarðarhafs (Levant er landræðilegt heiti á svæðunum fyrir botni þess, leyfi mér að kalla þau Levantíu) býr yfir misríkum auðlindum gass og olíu. Og það vill svo til, að þær ríkustu er að finna í palestínskri lögsögu undan strönd Gaza.
Eins og gefur að skilja hefur aðskilnaðarstjórnin í Ísrael brugðist fá við þeirri tilhugsun að kaupa olíu og gas af Palestínumönnum. En lýðræðið í landi hinna útvöldu virkaði. Hæstiréttur landsins dæmdi í samræmi við þjóðréttarreglur, alþjóðarétt og ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Auðlindir í lögsögu Palestínumanna skyldu réttmæt eign þeirra.
Nú firrtust öfgaþjóðernismenn heldur betur. Núverandi leiðtogi þeirra er Benjamin Netanyahu í flokki hryðjuverkamannsins og fjöldamorðingjans, Menachim Begin. Til viðbótar Palestínumönnum og lýðræðissinnuðum Ísraelsmönnum, flæktist nú hæstiréttur landsins fyrir honum.
Þannig varð hæstiréttur Ísraels erkióvinur Benjamin og félaga, rétt eins og Palestínumenn og nágrannar, sem andæfa stofnun stórveldis Gyðinga um alla Levantíu, suður til Egyptalands, austur til fljótanna í Mesópótamíu (Írak), Tyrklands og Persíu (Írans).
Ofangreind þróun bregður birtu á innrás ísraelskra stjórnvalda á Gaza 2008/9 (Operation Cast Lead). Réttlæting þeirrar innrásar var þrálát hryðjuverkastarfsemi og stöðug eldflaugaógn frá Gaza ræmunni, er beindust að óbreyttum íbúum Ísraels.
En mér er ekki örgrannt um, að raunverulegur tilgangur þá eins og nú, sé að sölsa undir sig auðlindir Palestínumanna. Það hefur verið háttur nýlenduveldanna um aldir.
Önnur mannskæð árás á Gaza átti sér stað árið 2014. Á sama ári steyptu Bandaríkjamenn og Bretar (Nató) líka réttkjörnum yfirvöldum Úkraínu af stóli.
Því miður hafa Palestínumenn á Gaza gripið til óyndisúrræða, þ.e. vopnaskaks, gegn Ísraelum, enda þó þeim sé fullljóst, að það sé að bjóða tortímingu heim.
En íbúar Gaza hafa líka reynt friðsamlegri leiðir eins og Gönguna miklu til baka (Great March of Return). Allt kom fyrir ekki. Leyniskyttur Ísraels limlestu þúsundir friðargöngumanna.
Það var á sínum tíma foringi Frelsishreyfingar Palestínumanna (PLO Palestine Liberation Organization), Yasser Arafat (Mohammed Abdel Rahman Abdei Raouf Arafa al-Quadwa al-Husseini) (1929-2003), sem veitt hafði leitar- og vinnsluleyfi úti fyrir ströndum Gaza.
Yasser vann til friðarverðlauna Nóbels ásamt Yitzhak Rabin (1922-1995) árið 1994. Friðarsamningurinn var undirritaður 1993. Yitzhak var myrtur 1995 af ofstækisfullum Gyðingi. Það eru vísbendingar um, að ísraelsk stjórnvöld hafi hjálpað Yasser inn í eilífðina.
Fyrrnefndur Benjamin vildi fyrir alla mundi vinna gegn sameinuðum Palestínumönnum og þeirri tveggja ríkja lausn, sem Sameinuðu þjóðirnar höfðu ályktað um og samið var um í Ósló á sínum tíma. Því veðjaði hann á Hamas samtökin til að skáka Yasser. Honum var vitanlega fullljóst, að samtökin sæktu innblástur í Bræðralag Múhameðstrúarmanna, sem leyniþjónustur Bretlands og Bandaríkjanna höfðu elft, styrkt og fjármagnað.
Bræðralaginu beittu Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra gegn yfirvöldum í ríkjum Múhameðstrúarmanna eins og Líbíu, til að skapa forsendur fyrir arabíska vorinu. Bræðralag Múhameðstrúarmanna var fyrirrennari Alkæda (al Qaeda), sem fyrrgreindar leyniþjónustur komu einnig á koppinn.
Í Sýrlandi, Afganistan og Írak eins og í Úkraínu, birtast sameinaðir málaliðar Bandaríkjamanna, Breta og Ísraela, sem Múhameðstrúarríki Íraks og Sýrlands (ISIS - Islamic State of Iraq and Syria eða Islamic State of Iraq and the Levant -ISIL).
Háttalag þessara viðbjóðslegu hrottasamtaka og áróður hefur eins og ráð var fyrir gert skiljanlega skekið almenning á Vesturlöndum inn að hjartarótum og inn í beinmerg.
Hvítu hjálmarnir (Syria Civil Defense (nafnfölsun) - White Helmets) eru önnur samtök vestrænna málaliða í Sýrlandi, stofnuð af breskum málaliða og fjármögnuð af Bretum og Bandaríkjamönnum. Ísraelar björguðu þeim með skottið milli fótanna út úr Sýrlandi um Jórdaníu. (Heimildarmynd um þessa undirhreyfingu Alkæda, Síðustu mennirnir í Aleppo (Last Men in Aleppo) hlaut Óskarsverðlaun.)
Því má segja, að gömul kúgunarkænska Vesturlanda að spilla friðsamlegri sambúð Gyðinga, Múhameðstrúarmanna og kristinna manna, hafi verið árangursrík, þrátt fyrir að vopnin hafi snúist í höndum Benjamin. Benjamin er búinn að vera, fullyrðir bandaríski blaðamaðurinn, Seymour Hersh.
Wikeleaks komst yfir skjal árið 2007, þar sem lesa má þau orð Amos Yadlin, varnar- og öryggismálaráðherra Ísraela, að Ísraelsmenn myndu gleðjast við, ef Hamas næði yfirráðum á Gaza, því þá gæti herinn beitt sér gegn fjandsamlegu ríki. Samkvæmt Benjamin er þetta yfirlýst stefna ísraelskra stjórnvalda.
En það er ekki öll nótt úti enn. Þjóð hinna hugprúðu og frjálsu hefur siglt herskipum, gráum fyrir járnum upp að strönd Levantíu til bjargar hinni útvöldu þjóð. Nú verður fróðlegt að sjá, hvort Bandaríkjamenn svari þrábeiðni Benjamin um að sprengja Íran í loft upp.
Algleymi þriðju heimstyrjaldarinnar gæti sem hægast brostið á í nálægri framtíð. Það neistar einnig frá gleymda stríðinu í Úkraínu, sem Vesturlöndum og alþjóðaauðvaldinu gengur hægt að vinna. Um þessar mundi eru Rússar meira að segja í sókn á öllum vígstöðvum. Og vopn eru næg til blóðsúthellinga á báðum vígvöllunum, hafa bandarísk yfirvöld lýst yfir.
Þegar þetta er fært í letur (14. okt.) vinna Rússar að tillögu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á hjaðningavígum Ísraels og Hamas.
Ábending um lesefni: Robert Dreyfuss. Devils Game: How the United States Helped Unleash Fundamentalist Islam
Secret affairs : Britain's collusion with radical Islam : Curtis, Mark, 1963- : Free Download, Borrow, and Streaming : Internet Archive
https://rumble.com/v3oxsla-1961-benjamin-freedman-warns-america.html https://www.corbettreport.com/who-are-the-muslim-brotherhood-video/ https://www.history.com/topics/ancient-middle-east/silk-road https://www.theguardian.com/world/2020/oct/31/assassination-yitzhak-rabin-never-knew-his-people-shot-him-in-back https://www.corbettreport.com/the-white-helmets-are-a-propaganda-construct/ https://21stcenturywire.com/2018/01/28/last-men-aleppo-al-qaeda-presented-white-helmets-annual-terrorist-oscarnomination/ https://www.corbettreport.com/white-helmets-flee-hacking-elections-nxivm-case-new-world-next-week/ https://www.mintpressnews.com/john-pilger-white-helmets-propaganda-construct/228238/ How Soviet Russia and Pravda Spoiled the 'Secret' Sykes-Picot Agreement - The Atlantic https://www.history.com/news/silk-road-trade-goods https://www.theguardian.com/world/2021/jul/01/court-rejects-yasser-arafat-reopen-investigation-death-family https://www.corbettreport.com/who-are-the-muslim-brotherhood-video/ https://www.motherjones.com/politics/2011/02/what-is-the-muslim-brotherhood/ https://www.thenation.com/article/archive/secret-history-muslim-brotherhood/ https://www.theguardian.com/world/2013/nov/06/yasser-arafat-poisoned-polonium-tests-scientists https://gilbertdoctorow.com/2023/10/14/todays-talking-head-exercise-on-wion-latest-prognosis-for-denouement-of-the-israeli-hamas-war/ https://korybko.substack.com/p/russias-draft-ceasefire-is-the-last?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=137946544&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.aljazeera.com/program/investigations/2012/7/14/what-killed-arafat/ https://ia800102.us.archive.org/7/items/WhyTerrorWallStreetJournalAlQaeda/Al%20Qaeda_%20The%20Data%20Base%20_%20Global%20Research-Robin%20Cook-2.pdf https://ia803204.us.archive.org/34/items/10ALQAEDATRAININGMANUELOperationCyclone1979179_201610/How%20CIA%20Created%20AlQaeda%20and%20ISIS/ISIS_Al-Qaeda_and_Robin_Cook_-_ClearNFO.pdf https://archive.org/stream/WhyTerrorWallStreetJournalAlQaeda/ISIS_Al-Qaeda_and_Robin_Cook_-_ClearNFO_djvu.txt https://infiniteunknown.net/2008/01/11/former-british-foreign-secretary-robin-cook-al-qaida-literally-the-database-was-originally-the-computer-file-of-the-thousands-of-mujahideen-who-were-recruited-and-trained-with-help-from-the-c/ https://www.theguardian.com/uk/2005/jul/08/july7.development https://www.corbettreport.com/alqaeda/ https://corbettreport.substack.com/p/false-flags-the-secret-history-of https://www.youtube.com/watch?v=bSLV2Xy9IO0 https://archive.org/details/ep409-aq2 https://archive.org/details/false-flags-part-3 https://www.globalresearch.ca/biden-deploys-secretary-state-israel/5836071 https://www.youtube.com/watch?v=LzxmUNNRALA&t=16s https://www.history.com/topics/21st-century/isis https://steigan.no/2023/10/krigen-kom-til-israel-som-aldri-for/?utm_source=substack&utm_medium=email https://killinggaza.com/ https://covertactionmagazine.com/2023/03/29/chechen-fighters-sign-deal-with-ukraine-to-form-all-chechen-brigade-to-fight-russians/?mc_cid=a804d1ea71&mc_eid=5cd1ec03b1 https://covertactionmagazine.com/2022/11/23/georgian-legion-carries-out-isis-style-executions-in-ukraine-with-covert-u-s-support/ https://informationclearinghouse.blog/2023/10/12/the-geopolitics-of-al-aqsa-flood/ https://seymourhersh.substack.com/p/netanyahu-is-finished?utm_source=post-email-title&publication_id=1377040&post_id=137880462&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://rumble.com/v3okr0q-breaking-history-ep-15-anglo-venetian-hands-disrupting-the-middle-east.html https://www.globalresearch.ca/desperate-hamas-gamble-mass-slaughter-allow-palestinians-future/5835605 Israel: Gas, Oil and Trouble in the Levant - Global ResearchGlobal Research - Centre for Research on Globalization https://michelchossudovsky.substack.com/p/war-natural-gas-israeli-invasion-gaza-gas-fields?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=137832719&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.timesofisrael.com/for-years-netanyahu-propped-up-hamas-now-its-blown-up-in-our-faces/
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021