Hollensku rannsóknablaðamennirnir, Janet Ossebaard og Cynthia Koeter, hafa lokið við gerð heimildamyndaraðar í 26 þáttum (enn sem komið er) um fyrirbæri, sem kallað er ýmsum nöfnum, rétt eins og kært barn; t.d. Hinir upplýstu (Iluminati) eða Kaballinn (The Cabal). Í nokkrum þáttanna fjalla þau um fóstureyðingar og iðnaðinn í sambandi við þær. Umfjöllunin hér grundvallast á þáttum þeirra.
Það eru mörg samtök og fyrirtæki í Bandaríkjum Norður-Ameríku, sem bjóða fóstureyðingar. Eitt þeirra, Fjölskylduáætlanabandalag Bandaríkjanna (Planned Parenthood Federation of America), var sett á stofn 1942. Heiðursforseti þessa bandalags var afar merkileg kona, sem kvenfrelsarar gera tilkall til í söguskrifum sínum, Margaret (Louise Higgins) (Slee) Sanger (1879-1966), hjúkrunarfræðingur að mennt.
Nafni fyrirtækisins var síðar breytt í Fjölskylduáætlunina (Planned parenthood - PP). Fyrirtækið rekur u.þ.b. 400 fóstureyðingasjúkrastofur (clinic) í Bandaríkjunum (BNA), sem eyða 350.000 fóstrum árlega.
Í sumum ríkja BNA eru fóstureyðingar leyfðar fram að fæðingu. Umrætt fyrirtæki, sem er stærsta fóstureyðingafyrirtæki BNA, stundar líka virka markaðssókn, bauð t.d. mæðrum ókeypis fóstureyðingu, þegar fellibylurinn, Katrina, reið yfir.
Fyrirtækið er styrkt af yfirvöldum, Gates sjóðnum, Warren Buffett (stundum kallaður konungur fóstureyðinganna) sjóðnum, Ford sjóðnum, Turner sjóðnum og fl. Í stjórn þessa merkilega fyrirtækis sat faðir Bill Gates, arfbótasinni (eugenics - eugenecist) mikill.
Stofnandi fyrirtækis, Margaret, var athafnasöm mjög. Hún blés t.d. til alþjóðlegrar ráðstefnu um fólksfækkun í Genfar árið 1927. Hún var einnig forseti Alþjóðlega fjölskylduáætlanasambandsins (International Planned Parenthood Federation), sem var stofnað árið 1953.
Í bók, sem heitir Kvenfrelsunarlygar. Jafnrétti var aldrei baráttumálið (The Feminist Lie. It Was Never About Equality), fjallar höfundur, Bob Lewis, lítillega um Margaret.
Eins og margir á hennar tímaskeiði hreifst hún af hugmyndafræði nasista um hreinleika kynþáttarins og mannkynbætur. Hún skrifaði fjölda rita um hugðarefni sitt. Á tímabili gaf Margaret út tímaritið Kvenandófsmanninn (The Woman Rebel). Starf hennar þótti fullt róttækt, enda var henni stungið í fangelsi um mánaðartíma.
Margaret var eins og gefur að skilja, mikill talsmaður fjölskylduáætlana og getnaðarvarna, opnaði fyrstu getnaðarvarnarsjúkrastofuna í Bandaríkjunum.
En Margaret var ekki öll, þar sem hún var séð. Hún lét þessi orð einu sinni falla: Við viljum ekki, að það verði heyrinkunnugt, að fyrir okkur vaki að útrýma svörtu fólki.
Árið 1923 sagði hún á þá leið, að markmið hennar væri að leysa úr læðingi og hlúa að betri eðlisþáttum samfélagsins, en bæla niður, uppræta, og ef svo bæri undir, eyða gölluðu ætterni (stock) því mannlega sæði, sem ógnar blómgun hinna fegurstu blóma bandarískrar menningar.
Margaret hafði einnig ráð undir rifi hverju um fólksfækkun: Líknardráp á nýbura í stórri fjölskyldu er það mannlegasta í stöðunni.
Margaret fór sum sé hvergi í launkofa með mannkynbóta- og fólksfækkunarviðhorf sín. Hún talaði líka fyrir æxlunarleyfi handa körlum og konum frá hinu opinbera.
Þrátt fyrir auðsýnda mannfyrirlitningu hefur Margaret hér um bil verið tekin í dýrlingatölu meðal kvenfrelsara og fólksfækkunar- og mannkynbótasinna.
Verðlaun eru veitt í hennar nafni. Hin góðkunna, Hillary Rodham Clinton, mærir skoðanasystur sína einlæglega, kallaði Margaret bæði framsýna og hugrakka. Enda hlaut hún umrædd verðlaun árið 2009 fyrir óbilandi baráttu fyrir heilbrigði og réttindum kvenna allan sinn starfsferil.
Hillary þakkaði fyrir sig með þessum orðum: Þau [verðlaunin] eru hluti hreyfingar, sem starfar að efnahags- og stjórnmálalegum viðgangi kvenna og stúlkna. Hún lofar starf samtakanna í þágu æxlunarfrelsis kvenna m.a.
Fóstureyðingu telur Hillary eins og Katrín Jakobsdóttir, sálufélagi hennar, vera grundvallarmannréttindi. Slíkra mannréttinda nýtur aftur á móti ekki fóstur, sem er rétt um það bil að verða nýburi, þ.e. skömmu fyrir fæðingu. Katrín vill heimila geðþóttafóstureyðingar mæðra fram að fæðingu afkvæmis.
PP á margvísleg viðskipti með fóstur og fósturhluta. Rannsóknablaðamenn áttu árið 2014 samtal við Deborah Nucatola, yfirmann lækninga hjá PP. Það er hið fróðlegasta samtal. Þar kemur t.d. fram, að fóstrin séu sum hver dregin úr móðurkviði lifandi lífs, síðar drepin og hlutuð sundur, samkvæmt pöntun viðskiptavinarins.
Í öðrum tilvikum er lögð sérstök áhersla á að skaða ekki þau líffæri fósturs, sem sóst er eftir, eins og lifur t.d., enda þótt fóstrið sé deytt í móðurkviði. Þá er iðulega stuðst við hljóðbylgjutækni, þegar skurðarhnífnum er beitt. Stundum er fóstri þó snúið, áður en það er togað út. Fleiri viðtöl eru aðgengileg um efnið.
Það er góður markaður fyrir fósturfrumur, rétt eins og forhúðir drengja. Þessar líkamsleifar fóstra og ungsveina eru notaðar við framleiðslu matvæla, t.d. í gervikjöt, gosdrykki, eins og Pepsi, og í snyrtivörur. Eitt þeirra fyrirtækja, sem verslar með fósturfrumur, er StemExpress.
Grimmúðlegar fóstureyðingar eru einnig framkvæmdar í Kína með stuðningi Sameinuðu þjóðanna, Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Population Fund - UNFPA. Fyrsti forseti hennar var John Davison Rockefeller III (1906-1978), sem einnig hefur borið fé á kvenfrelsunarhreyfinguna, ásamt fleiri auðjöfrum. Þessi mannvinur samdi einnig áætlunina um hamfarahlýnun, ásamt félögum sínum í Rómarklúbbnum).
Stjórn Mannfjöldastofnunarinnar var að miklu leyti skipuð áhugamönnum um erfðabætur mannkyns. Auðjöfrar af sama sauðahúsi og John Rockefeller fjármögnuðu einnig rannsóknir á æxlun og ófrjósemisaðgerðum. Vísindamenn á mála hjá þeim skrifuðu greinar eins og: Ófrjósemisaðgerðir til að stuðla að betra mannkyni (Sterilization for Human Betterment).
Líklega eru auðjöfrarnir og vildarvinirnir, Warren Buffet og Bill Gates, öflugustu stuðningsmenn fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða á líðandi stundu. Þeir láta fé ótæpilega af hendi rakna. (Framhald)
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- Munu hefja fjöldaframleiðslu á eldflaugunum
- Tillaga Trumps um frið í Úkraínu ekki algalin
- McGregor sekur: Borgar um 36 milljónir í skaðabætur
- Trump mun ekki sæta refsingu
- Ákærður fyrir morð á 13 ára stúlku
- Svíar virða ögranir Rússa að vettugi
- Efast ekki um að Bandaríkin átti sig á skilaboðum
- 281 hjálparstarfsmaður drepinn á árinu
- Sjötti ferðamaðurinn er látinn
- Segjast hafa drepið fimm vígamenn