Hamfarasmitun og frelsisskerðing

Eins og lesendur kynnu að muna æfðu hagsmunaaðiljar ”sjósetningu” og framvindu covid-19 faraldursins. Æfingin var kölluð ”Atburður 201“ (Event 201).

John Hopkins háskólinn, fjármagnaður af auðkýfingum, Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) og Gates hjónin fyrrverandi, stóðu straum af kostnaði við æfinguna. Sömu hjón hafa með glotti á vör boðað enn þá alvarlegri faraldur. Æfingar fóru fram fyrir skemmstu. Hún heitir ”Hamfarasmitun.”

Það var dreginn margvíslegur lærdómur af æfingunni, sem er mjög í anda þess, sem átti sér stað, meðan covid-19 faraldurinn stóð sem hæst:

Leiðtogarnir verða að búa sig undir að taka erfiðar ákvarðanir, heilbrigðisstarfsmenn allra landa að sameinast, koma sér saman um vísindalegan skilning, reisa skorður við rangfærslum meðal almennings, auka traust til yfirvalda og deila systurlega takmörkuðum lýðheilsuúrræðum.

Svo virðist sem Alheimsveirustjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar – að töluverðu leyti í „eigu“ Bill Gates - hafi ekki borið á góma, en hún er í burðarliðnum, enda þótt ríkisstjórn Íslands haldi spilunum þétt að sér.

Alheimsefnahagsráðið, sbr. orð forsprakka þess, Klaus Schwab, hefur látið þá von í ljósi, að aðgerðir stjórnvalda í covid-19 faraldrinum greiddu götu „Endurræsingarinnar miklu“ (The Great Reset), sem alþjóðaauðvaldið í samvinnu við ríkisstjórnir, hafa á prjónunum.

Enn hefur ekki tekist að berja sauðsvartan almúgann fyllilega til hlýðni, þrátt fyrir frelsisskerðingar og ógnarstjórn, meðan á covid-19 faraldrinum stóð. Því er „Áætlun hamfarasmitun,“ skipulögð í nánustu framtíð, líklega 2025.

Búast má við frekari frelsisskerðingum í þeim faraldri. Frelsi er þyrnir í augum margra eins og t.d. Christopher John MacRae Whitty, landlækni Englendinga, sem leggur loftmengun að jöfnu við covid-19, og hvetur stjórnvöld til gerræðislegra aðgerða eins og þeirra, sem nú eru fyrirhugaðar í Öxnafurðuskíri (Oxfordshire) á Englandi árið 2024.

Almenningur skal hræddur til hlýðni með góðu eða illu.

https://steigan.no/2022/12/ny-scenarioovelse-forbereder-neste-pandemi-bill-gates-co-er-pa-han-igjen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2022/12/12/the-great-reset.aspx?ui=50823ccf152775dc8e8154c0ff79da522ef0aa959b384df904857f2fc49c6730&sd=20221129&cid_source=dnl&cid_medium=email&cid_content=art3HL&cid=20221212_HL2&cid=DM1305034&bid=1667419833 https://www.visionnews.online/post/true-oxfordshire-county-council-are-planning-climate-lockdown-trials-in-2024 https://unser-mitteleuropa.com/will-take-precedence-over-national-constitutions-who-establishes-global-agreement-on-pandemic-preparedness/ https://frettin.is/2022/12/07/viljum-vid-alraedisvald-who/?fbclid=IwAR3cjnbIigqKCNkINPT-cExA3PlK043WgFCRiFNasWKEDjzbKYVLXowewjc https://www.visionnews.online/post/air-pollution-just-as-dangerous-as-coronavirus-says-lockdown-fanatic-chris-witty?postId=764e32b4-c065-450c-80ca-ca903819d29b&utm_campaign=3f83ec16-040a-4fd0-b862-e959e5018c27&utm_source=so&utm_medium=mail&utm_content=7060362a-18a7-408d-925b-002ecbe3c7a1&cid=13822ff6-9cac-4fec-a138-6b457b06a2f5 https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2022/03/03/council-gives-green-light-to-start-negotiations-on-international-pandemic-treaty/ https://www.centerforhealthsecurity.org/our-work/exercises/2022-catastrophic-contagion/participants.html https://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2022/12/11/cause-unknown-epidemic-sudden-death.aspx?ui=50823ccf152775dc8e8154c0ff79da522ef0aa959b384df904857f2fc49c6730&sd=20221129&cid_source=dnl&cid_medium=email&cid_content=art1HL&cid=20221209&cid=DM1302988&bid=1665253673 https://www.consilium.europa.eu/en/policies/coronavirus/pandemic-treaty/ https://www.centerforhealthsecurity.org/our-work/exercises/ https://www.centerforhealthsecurity.org/our-work/exercises/2022-catastrophic-contagion/lessons.html https://jamesroguski.substack.com/p/catastrophic-contagion?utm_source=post-email-title&publication_id=746475&post_id=89655972&isFreemail=true&utm_medium=email


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband