Íslenski utanríkisráðherrann, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, gerist viðreist, frá Washington til Kænugarðs, með viðkomu í Genfar. Boðskapur hennar er einn og samur; frelsun kvenna og barna, hvort heldur er í Íran, Afganistan eða Úkraínu.
Ofsafengin harka stjórnvalda gegn mótmælendum vekur upp óhug og depurð. Ég dáist að hugrekki ykkar og allra þeirra sem mæta grimmilegum viðbrögðum stjórnvalda. Það er skylda okkar sem kvenkyns utanríkisráðherrar að sýna samstöðu með konum í Íran og styðja baráttu ykkar og málstað, sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á ráðstefnu kvenkyns utanríkisráðherra.
Þetta var í þriðja sinn sem kvenkyns utanríkisráðherrar funda en á fyrri fundum var fjallað um bága stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan og afleiðingar heimsfaraldurs COVID-19 fyrir konur og stúlkur. Kvenfrelsun er greinilega snar þáttur í utanríkisstefnu Íslendinga.
Þórdís Kolbrún lýsti því yfir í Washington, að Íslendingar styddu fullnaðarsigur Úkraínumanna á vígvellinum, í Genfar voru vígorðin, fyrir konur, lífið og frelsið, og í Úkraínu endurtók Þórdís sömu stuðningsyfirlýsingar og í Washington og lofaði íslenskar fatasendingar. Skæðunum þótti henni sérstakur fengur í, því á íslenskum skóm og með vopn í hönd yrðu stríðsmenn Úkraínu, ófáir strákhvolpar þar á meðal, vígreifir.
Þórdís og Katrín keppast við að lofa Úkraínumönnum stuðningi. Því miður er það ekki svo, að fjármagnsstuðningurinn rati eins og prjónlesið til þurfandi. Hann rennur að miklu leyti í vasa spilltra ráða- og embættismanna í Úkraínu, jafnvel utanlandsherdeildarinnar, þ.e. hinna velstæðu og ofsaríku, sem flúðu landið og hreiðrað hafa um sig í Evrópu og sólarlöndum annars staðar.
Sumir þeirra flatmaga á snekkjum sínum og láta ölduna vagga sér, meðan féð frá skattgreiðendum Vesturlanda streymir inn á reikning þeirra. Í fréttamynd frá úkraínska sjónvarpinu eru þeir kallaðir Mónakóherdeildin. Svo ramt kveður að flótta þingmanna, að þingið er vart starfhæft. Meira að segja vestrænum fjölmiðlum þó ekki RÚV er nóg boðið. CBS sjónvarpsstöðin hefur einnig gert heimildarmynd um þessa landflótta stríðsmenn fyrir lýðræði og frelsi kvenna og friði þeim til handa.
Auðmennirnir hætta ekki lífi sínu á vígvellinum. Fátækir unglingspiltar og karlmenn að sextugu eru aftur á móti þvingaðir á slátrunarvellina. Mótmæli mæðra þeirra skipta Volodymyr engu. Það virðast gilda svipuð lögmál um fjárstuðninginn og hergögnin. Enginn getur hent reiður á aðstoðinni. (Krækjur á báðar myndirnar má finna í greininni frá Scotland Today.)
Því miður má við því búast, að Rússar láti senn sverfa til stáls og fari í alvöru stríð. Neyð mun enn aukast. Alþýða manna er hvött af stjórnvöldum til að flýja land. Þeirra bíða þó ekki snekkjur, sem vaggað er notalega af yndisöldu. Jafnvel þó mannúðarfaðmur Vesturlandabúa sé stór og hlýr eins og vera ber, kemur að því að hann kólni, skattfé gangi til þurrðar og kurrinn aukist.
Það eru enn tök á því að afstýra verstu hörmungunum í Úkraínu. Hvernig má það verða, að friðsamir Íslendingar vilji stuðla að stríði með kvenkyns ráðherra í fararbroddi? Ætli það séu skrök, að konur séu miklu friðsamari en karlar? Því halda kvenfrelsararnir fram.
Hví taka þessar kvenfrelsunarkonur sér ekki vopn í hönd og skunda á vígvellina? Þórdís Kolbrún og Katrín væru vafalaust jafn miklar valkyrjur á vígvellinum og í þingsölum. Volodymyr mun á íslenskum vígaskæðum vafalaust bjóða þær vígasystur velkomnar.
Þar mun Þórdís Kolbrún geta barið sér á brjóst og endurtekið tístið sitt: Þrátt fyrir villimannlega grimmd og sprengjuregn Rússa, munu Úkraínumenn ganga með sigur af hólmi. Svona tala barasta ekta, íslenskar valkyrjur.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/11/24/beint_fundur_i_mannrettindaradi_sth_ad_beidni_islan/ https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/10/25/Kvenkyns-utanrikisradherrar-fundudu-um-stodu-kvenna-og-mannrettinda-i-Iran/ https://www.dv.is/eyjan/2022/11/28/thordis-kolbrun-heimsaekir-kaenugard-segir-ad-ukraina-muni-vinna-thratt-fyrir-sprengjuregn-russa-og-villimannslega-grimmd-theirra/ http://www.informationclearinghouse.info/57367.htm https://eadaily.com/ru/news/2022/09/06/ermak-i-arahamiya-popalis-na-grabezhe-gumanitarki-dlya-zaporozhya https://news.ati.su/news/2022/06/13/v-rade-vskryli-korruptsiju-na-ukrainskoj-tamozhne-vo-vremja-vojny-316426/ https://www.telegraph.co.uk/global-health/terror-and-security/how-volunteers-delivering-wartime-aid-sidestepping-ukraines/ https://www.ifw-kiel.de/topics/war-against-ukraine/ukraine-support-tracker/ https://www.volynnews.com/news/all/skandalnyy-ekszastupnyk-holovy-volynskoyi-ova-pislia-zlovzhyvan-z-humanitarkoiu-pratsiuye-v-rnbo-/ https://www.newsweek.com/billions-us-aid-vanished-afghanistan-will-ukraine-same-1733077 https://www.ruv.is/frett/2022/11/24/vid-skuldum-ironskum-stulkum-segir-thordis http://www.informationclearinghouse.info/57371.htm https://maxpark.com/community/7300/content/7594219 https://thegrayzone.com/2022/08/18/ukraine-veterans-us-aid-soldiers-war/ http://www.informationclearinghouse.info/57368.htm https://scotlandtoday.online/bye-bye-kiev-hello-cote-dazur-as-westerners-send-aid-heres-how-ukraines-corrupt-elites-are-profiting-from-the-conflict
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021