Loftlagsváin er áróðursbrella

Fyrir hálfri öld eða svo, sátu á rökstólum David Rockefeller (1915-2017) og sálufélagar hans í ”Club of Rome,” jöfrar viðskipta og andagiftar, útvaldir þjóðarleiðtogar, stjórnmálamenn, embættismenn Efnahags- og samvinnustofnunar Evrópu (Organization for Economic Co-operation and Development (OECD) og Sameinuðu þjóðanna.

Fundarmenn höfðu áhyggjur af fólksfjölgun og takmörkum vaxtar í veröldinni, fátækt og ýmsu fleiru. Þeim hugkvæmdist þó ekki þá – eftir því sem ég best veit – að konur hefðu frá örófi alda verið kúgaðar af körlum. En sú hugmyndafræði fékk byr undir báða vængi með fjármagni frá m.a. Rockefeller- og Fordsjóðunum og er nú óspart beitt í áróðri fyrir alheimsstjórn Alþjóðaefnahagsráðsins og sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

En fólksfjölgun og álag manna á umhverfið hefur verið vísindalegt viðfangsefni í eina og hálfa öld eða svo, ámóta lengi og vangaveltur um misjafnan rétt hinna ýmsu hópa fólks til lífsins. (Sbr. „félagsþróunarhyggjuna (social darwinism) og kenningar Thomas Robert Malthus (1766-1834).)

Fyrrnefndum David, blandaðist ekki hugur um ágæti alheimsstjórnar. Í endurminningum sínum fórust honum orð á þessa leið:

„Sumir trúa því jafnvel, að við [Rockefeller fjölskyldan] séum hluti leynisamfélags (cabal), sem vinni gegn hagsmunum Bandaríkja Norður-Ameríku. [Þeir] lýsa fjölskyldu minni og mér sjálfum sem „alþjóðasinna,“ [sem] spinna samsæri í félagi við aðra í veröldinni, í þeim tilgangi að skapa fyrirkomulag, þar sem samtvinnuð eru alheimsstjórnmál og -efnahagskerfi – eða með öðrum orðum, einn heim. Sé það ákæran, er ég sekur, og ég er stoltur af því. Yfirþjóðleg yfirráð gáfumannaúrvals (intellectual elite) og bankamanna á heimsvísu er örugglega betri kostur en það þjóðræði, sem tíðkaðist fyrr á öldum.“

(Hugmyndin er vafalítið sótt til rússneska byltingarleiðtogans, Lenin, eða Vladimir Illyich Ulyanov (1870-1924), sem kenndi, að úrval gáfumanna ætti að stjórna paradís öreiganna fyrir þeirra hönd. Samtök auðmanna sendu þennan fátæka gáfumann til Sánkti Pétursborgar til að steypa rússneska keisaranum eða miklu fremur til láta að kné fylgja kviði, því fátækur konur, sem vantaði brauð, höfðu þegar plægt akurinn,)

Olíukreppan á áttunda áratugi síðustu aldar, sem margir hafa gleymt, en verða nú minntir á, var í algleymingi, þegar fyrsta skýrsla Rómarklúbbsins kom út; ”Takmarkanir vaxtar” (The Limits to Growth). Kreppan var eitt af áhyggjuefnum Efnahags- og samvinnustofnunar Evrópu (Organization for Economic Co-operation and Development (OECD). Sumir starfsmanna hennar voru þátttakendur í starfi Rómarklúbbsins. (OECD tók við af „Evrópsku efnahagssamvinnustofnuninni“ (Organization for European Co-operation - OEEC), sem hafði sérstaka umsjón með Marshall aðstoð Bandaríkjamanna.)

Á þessum tíma var það ríkjandi skoðun meðal loftslagsvísindamanna, að loftslag færi sífellt kólnandi og veröldinni stafaði hætta af ógnarfrera. En nú brá svo við, að klúbbfélögum þótti hið andstæða vænlegra til áróðurs, þ.e. að veröldin hitnaði svo skart, að vá væri fyrir dyrum.

Vísindamenn voru svo keyptir eða styrktir til að skjóta vísindalegum stoðum undir þessa hugdettu, sem væntanlega á fyrst og fremst rætur að rekja til viðskiptalegra hagsmuna. Stjórnmála- og embættismenn Sameinuðu þjóðanna voru einnig virkjaðir sem og fjölmiðlar. Stuðningur Alþjóðaefnahagsráðsins er óbrigðull. Það er líka stuðningur „Góða klúbbsins,“ en svo er nefndur hópur velgjörðamanna mannkyns undir forystu Bólusetninga-Bill.

Svo vel hefur til tekist, að hin tilbúnu vísindi um hamfarahlýnun eru orðin að heimstrúarbrögðum. Íslenska ríkisstjórnin er m.a. á valdi þessara trúarbragða. Guðlaugur Þór lýtur höfði og segist verða að hlýða „vísindamönnunum.“

En, en! Vísindi eru ekki bara vísindi. Það hefur ekki tekist að kaupa alla vísindamenn, múta þeim eða þvinga þá til fylgilags. Betur hefur gengið með stjórnmálamennina, sérstaklega þá, sem gengið hafa í ungleiðtogaskóla Alþjóðaefnahagsráðsins. Hugmyndafræði þeirra mótast einkum af hamfarahlýnunarhugarfóstrinu, hugmyndinni um samþjöppun valds á alþjóðavettvangi, lotningu fyrir markmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, staðhæfðri nauðsyn til bólusetningar allra jarðarbarna, ásamt meinlokunni um frelsun stúlkna og kvenna frá vondum körlum.

Fjölmargir óháðir vísindamenn á „veðurfarssviðinu“ stofnuðu samtökin, „Loftlagsgreind“ (Climate Intelligence – Clintel) í þeim tilgangi að koma á framfæri óháðum vísindum. Forseti samtakanna er hollenski eðlisfræðingurinn, Guus Berkhout. Hann sendi nýlega heimsins börnum tilkynningu samtakanna. Þau eru stutt og laggóð: „Það ríkir ekki neyðarástand í lofslaginu.“ Rökstuðning má finna í kræktri grein hans.

Áður sendu 1400 loftlagsvísindamenn sama boðskap til heilaþveginna meðborgara sinna, „Yfirlýsingu um loftslag heimsins“ (World Climate Declaration). Hún ber titilinn: „Það er engin loftslagsvá“ (There Is No Climate Emergency).

Þess ber að geta, að gervivísindamennirnir, sem ráðnir voru til að semja handritið að hamfarahlýnun – eins og fréttastofa RÚV kallar trúarbrögðin – beita „nýjustu tækni og vísindum,“ tölvuforspárforritum. Landsmenn kynntust fyrirbærinu í covid-kreppunni, þegar Thor Aspelund var að vandræðast með sitt á skjám landsmanna. Niðurstöðurnar ráðast af þeim forsendum, sem gefnar eru, og segja í sjálfu sér ekkert um staðreyndir eða raunveruleika, hvorki í raunvísindum né heilbrigðisvísindum, sbr. spárforit bresku endemisvéfréttarinnar, Neil Ferguson, sem starfar í umboði Bólusetninga-Bill. Neil spáði líka um framvindu drepsóttarinnra, sem aldrei kom.

Vonandi gleðjumst við fljótlega eins og landnámsmennirnir, yfir kornrækt norðan Skagagarðs Í Rosmhvalasókn (á Suðurnesjum) og greiðfærri þjóðleið um Vatnajökul, sem einu sinni hét Klofajökull.

Ef til vill ætti Katrín og sálufélagar hennar í VG að drífa sig upp á Klofajökul með minningarskjöld – að undangengnu umhverfismati náttúrulega – áður en það verður um seinan. Og svo mætti blása til umhverfis- og kvenfrelsunarblóts í leiðinni.

https://www.youtube.com/watch?v=aIxy0fXW7o8 https://en.wikipedia.org/wiki/The_Limits_to_Growth https://altamontenterprise.com/09252019/elitists-have-created-myth-climate-change-eliminate-national-sovereignty https://www.theguardian.com/world/2009/may/31/new-york-billionaire-philanthropists https://www.epw.senate.gov/public/index.cfm/2014/7/post-53280dcb-9f2c-2e3a-7092-10cf6d8d08df https://www.researchgate.net/publication/313483535_'Born_in_the_corridors_of_the_OECD'_The_forgotten_origins_of_the_Club_of_Rome_transnational_networks_and_the_1970s_in_global_history https://expose-news.com/2022/10/27/there-is-no-climate-emergency-clintel/ https://en.wikipedia.org/wiki/Club_of_Rome http://www.clubderoma.net/archivos/CoR/CoR-ClimateEmergencyPlan-Diciembre2018.pdf https://www.breitbart.com/politics/2021/02/07/delingpole-study-disputes-earth-climate-emergency/ https://clintel.org/about-us/ https://clintel.org/world-climate-declaration/ https://clintel.org/wp-content/uploads/2022/10/M2P-v2.pdf https://clintel.org/there-is-no-climate-emergency-a-message-to-the-people/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband