Heilbrigðisstarfsmenn vakna af covid-19 bólusetningarblundi

Samtök heilbrigðisstarfsmanna í Ástralíu (Australian Medical Professional‘ Society) hafa skrifað til allra þingmanna í einstökum ríkjum Ástralíu, á sjálfstjórnarsvæðum og Alríkisþinginu, sem og allra læknaháskóla álfunnar, í þeim tilgangi að benda á, hversu varhugaverð bóluefnin við covid-19 séu.

Bréfið er vitaskuld grundvallað á fjölda vísindalegra gagna, m.a vísindalegri samantekt Phillip M. Altman, lögfræðilegri álitsgerð í sambandi við yfirlýsingu heilbrigðisstarfsmanna og álitsgerð félagsskaps Ástrala um áhættu af bólusetningum.

Hér eru nokkrar stiklur úr fyrrnefndubréfi:

Félögum ofannefndra samtaka heilbrigðisstarfsmanna var í raun bannað að draga gagnsemi og framkvæmd bólusetninga við covid-19 í efa, þar sem stjórnvöld höfðu staðhæft við almenning, að bóluefnin væru bæði „örugg“ og „gagnleg.“

Ritrýnd rannsókn hefur sýnt fram á, að broddhvítan (spike protein), sem mRNA (boðkjarnsýra), hvetur til framleiðslu á, smýgur inn í kjarna frumunnar og hefur áhrif á erfðaefnið (DNA).

Málhelsi eða þöggun heilbrigðisstarfsmann var til þess fallin að styðja við bólusetningu með efnum, sem engin hafði sýnt fram á með fullnægjandi hætti, að virkuðu, hvorki í bráð né lengd.

Fram að þessu hafa engin efni í mannkynssögunni valdið fleiri dauðsföllum, veikindum, skaða og fötlun samkvæmt opinberum skráningum. En í raun og reynd eru aukaverkanirnar miklu fleiri.

Í Ástralíu hafa verið skráð fleiri aukaverkanir á einu og hálfu ári en síðustu hálfa öld fyrir önnur bóluefni.

Úr skýrslu Phillip M. Altman:

„Bólusetning um heim allan með covid-19 erfðabóluefninu (gene-based vaccine) hefur í bráð stuðlað að miklu fleiri dauðsföllum, sjúkdómum, skaðsemi og fötlunum, heldur en nokkurt lyf í sögu læknisfræðinnar. Sökum þess, að algjörlega er gagna vant um áhrif [bóluefnanna] í lengd, er viðbúið, að hugsanleg skaðsemi (þar með talin krabbamein, sjúkdómar í taugkerfi og ónæmiskerfi) gætu orðið enn þá afdrifaríkari.“

Meðan ástralskir heilbrigðisstarfsmenn mótmæla og yfirvöld sitja við sinn covid keip, heldur Pfizer fúskið áfram eins og ekkert hafi í skorist, m.a. með bólusetningum barna.

Ísraelski ónæmisfræðingurinn, Zvika Granot, segir t.d. á þessa leið: Meðan á covid-fárinu hefur staðið, höfum við orðið vitni að margs konar misþyrmingu á vísindum, auk lyga og vafasamra sanninda. Oftsinnis höfum við heyrt ágeng stjórnvöld boða aðgerðir á grundvelli vísinda i skötulíki.

https://rumble.com/v18qeyh-dr-clare-craig-on-why-the-fda-should-not-have-granted-vaccine-approval-for-.html https://steigan.no/2022/06/trenger-barn-under-5-ar-en-mrna-sproyte/ https://steigan.no/2022/08/trenger-barn-under-5-ar-en-mrna-sproyte-3/?utm_source=substack&utm_medium=email https://rumble.com/v1f6ud7-prof.-granot-of-the-pecc-on-pfizer-covid19-vaccine-trial-in-babies-and-todd.html https://wsau.com/2021/12/31/robert-f-kennedy-jr-explains-why-fauci-is-going-after-children/ https://www.foxnews.com/opinion/tucker-carlson-politicians-continuing-use-covid-pretext-force-agendas https://www.commonsense.news/p/us-public-health-agencies-arent-following https://www.commonsense.news/p/us-public-health-agencies-arent-following?triedSigningIn=true https://nypost.com/2022/07/14/us-agencies-arent-following-the-science-on-covid/ https://energycommerce.house.gov/sites/democrats.energycommerce.house.gov/files/documents/Witness%20Testimony_Hoeg_OI_2021.09.22.pdf https://expose-news.com/2022/08/14/gov-reports-prove-hundreds-thousands-dying-covid-vaccine/ https://avn.org.au/ https://amps.redunion.com.au/healthreformdeclaration?utm_source=hs_email&utm_medium=email&_hsenc=p2ANqtz-8AUTHaSFnppNrGRqhFIdKmBiksb8c15HJ8jVzoIIbr86VytivL0Cyx8ZChhHRIwMcoOAVy https://8630368.fs1.hubspotusercontent-na1.net/hubfs/8630368/AMPS/Altman%20Report%20Final%20Version%2011-8-22%20(1).pdf?utm_source=hs_email&utm_medium=email&_hsenc=p2ANqtz-8AUTHaSFnppNrGRqhFIdKmBiksb8c15HJ8jVzoIIbr86VytivL0Cyx8ZChhHRIwMcoOAVy https://informedchoice.substack.com/p/amps-puts-all-medical-organisations http://npaq-8630368.hs-sites.com/covid-19-an-update-of-evidence-based-information


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband