Vildarvinir úkraínskra nasista á Vesturlöndum. Herþjálfun

Fjórum árum áður en byltingareinvaldur Ráðstjórnarríkjanna, Georgíumaðurinn, Joseph Vissariononovich Stalin eða Ioseb Besarionis dze Jughashvili (1878-1953) geispaði golunni, og áður en Úkraínumaðurinn, Nikita Sergeyevich Khrushchev (1894-1971) eða „Krússi“ bjó til sjálfsstjórnarhéraðið eða -lýðveldið, Úkraínu (Krímskagi var þar innifalinn), reyndi leyniþjónusta Bandaríkja Norður-Ameríku að ybba kíf í landinu, m.a. með fjárstuðningi við andstöðuöfl og þjálfun hermanna. En sú bylting rann út í sandinn.

En nú er öldin önnur. Glóaldingula byltingin í Kænugarði 2014 tókst betur. Fé var borið á Úkraínumenn og hermenn þeirra þjálfaðir. Bandaríkjamenn og Vesturveldin hafa bundist samtökum við úkraínska nasista, sem hafa verið áberandi í sjálfstæðisbaráttu þjóðar sinnar. Bandaríkjamenn hafa nú einnig stuðning af Nato, sem stofnað var sama ár og CIA varð að láta í minni pokann í fyrstu tilraun, þ.e. árið 1949.

Kanadamenn láta sitt ekki eftir liggja, frekar en aðrar þjóðir Nato og Evrópusambandið. Fjárframlög þeirra til Úkraínu, síðan Glóaldingulu byltingin rann sitt skeið á enda, nema 890 milljón dölum. Þeir hafa aukin heldur þjálfað Azov hersveit nasista, sem þeir sátu á rökstólum við árið 2018.

Kanadamenn hafa reyndar stofnað eigin hersveit (Joint Task Force Ukraine). Þessi hersveit er hlut stærri herfylkis, sem m.a. er skipuð Dönum, Svíum, Litháum, Pólverjum, Slóvökum, Bretum og Bandaríkjamönnum.

Centuria eða svartstakkarnir er félagsskapur ýgra öfgamanna í tengslum við Azov hersveitina. Leiðtogi Azov og svartstakkanna er Oleksiy Kuzmendo. Talsmenn Svartstakkanna hefa tjáð sig opinberlega um þjálfun á vegum Kanadahers og fleiri Nato-landa.

https://ottawacitizen.com/news/national/defence-watch/allegations-of-canadian-troops-training-neo-nazis-and-war-criminals-sparks-military-review

https://twitter.com/kooleksiy/status/1289994301087178753?lang=en

https://steigan.no/2022/02/canadiske-tjenestemenn-som-motte-azov-bataljonen-fryktet-at-offentligheten-skulle-fa-greie-pa-det/

https://www.canada.ca/en/department-national-defence/services/operations/military-operations/current-operations/operation-unifier.html

https://ottawacitizen.com/news/national/defence-watch/canadian-officials-who-met-with-ukrainian-unit-linked-to-neo-nazis-feared-exposure-by-news-media-documents

https://www.ctvnews.ca/world/far-right-extremists-in-ukrainian-military-bragged-about-canadian-training-report-says-1.5631304

https://www.belltower.news/centuria-was-a-far-right-militia-behind-an-attack-on-a-kyiv-club-126645/

https://www.jpost.com/diaspora/western-countries-training-far-right-extremists-in-ukraine-report-682411


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband