Góð ræða af götuvígi í Ottawa. Brian Peckford, Justin og Katrín

Alfred Brian Peckford (f. 1942) er kanadískur kennari og fyrrum forsætisráðherra Nýfundnalands (ríki í kanadíska ríkjasambandinu). Hann er einlægur lýðræðissinni og rennur til rifja gerræðistilburðir alríkisstjórnarinnar og forsætisráðherra hennar, Justin Trudeau.

Sjálfur tók Brian þátt í að skrifa og samþykkja ”Stjórnarskrárlögin” (Constitution Act), árið 1982, þar sem kveðið er á um almennan rétt til frjálsra ferða, mótmæla og tjáningar m.m. Hann er síðasti núlifandi forsætisráðherra í Kanada, sem tók þátt í að semja þessa löggjöf.

Brian er reyndar svo ofboðið, að hann hefur höfðað mál á hendur alríkisstjórninni fyrir veiruvarnir hennar. Nýlega hélt hann svo ræðu í tengslum við mótmæli vörubifreiðastjóra í Ottawa.

Hann segir m.a.: Ríkisstjórnir Kanada halda því nú fram, að þeim sé heimilt að skauta yfir áðurnefnd réttindi með skírskotun til fyrsta kafla laganna. En þeir fara með rangt mál. Þessum ákvæðum skyldi einungis beitt „í stríði, uppreisn, eða, ef ríkið yrði fyrir hótun eða ógn. Því skyldi ekki beita til hernaðar gegn veiru, sem fólk að 99% læknast af og drepur innan við 1%. Það felur ekki í sér ógn gegn ríkinu. Því er ákvæðinu [kafla 1] beitt ólöglega af ríkisstjórnum Kanada.“

Vonandi munu Íslendingar sjá sóma sinn í því að fylgja fordæmi Brian og sækja græn-fjólubláu ríkisstjórnina til saka fyrir brot á stjórnarskrá, mannréttindum og fyrir margvíslegt tjón á heilsu og efnahagi landsins barna.

Því má svo við bæta, að íslensk þjóð hreykir vanhæfum forsætisráðherra sínum á stall, tekur hana í dýrlingatölu, meðan Kandamenn kippa sínum, skólabróður hennar úr auðjöfraskóla Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum), ofan af sínum.

Það kann að vera, að þessi orð hafi orðið Justin að falli: „[A]ndmælendur [covid ] bólusetninga, [eru] öfgamenn, sem trúa ekki á vísindin, sem oft og tíðum eru kvenhatarar, oft kynþáttahatarar. … Eigum við umbera svona fólk.“ Stjórnarskrárbundin mannréttindi lætur hann sér í léttu rúm liggja: „[Þ]að má einu gilda, hvort vegið sé að rótum grundvallarréttinda. Við höldum ótrauð áfram með þær [bólusetningarnar].“

Katrín sýnir sömu grundvallarviðhorf og kvenfrelsunarbróðirinn, Justin, þótt orðvarari sé, henni til hróss, og heldur hefur hún ekki kallað kjósendur „ömurlega“ eins kvenfrelsunarsystirin, Hillary Clinton. En trúbróðir hennar, Steingrímur Sigfússon, bætti um betur. Andmælendur ríkisyfirráða yfir hálendinu kallaði hann eins og kunnugt er, „örlítinn grenjandi minnihluta.“

https://nationalpost.com/news/politics/this-could-cost-him-his-job-a-blockaded-canada-turning-on-trudeau-poll-finds?fbclid=IwAR2pDvIW3kaZLIhJrp5aru2GoDD7pz5ltYsdmVISoOlasTr9gsP0uWcVFwg

https://www.youtube.com/watch?v=EdhFuMDLBDM

https://www.theepochtimes.com/last-living-premier-to-sign-canadas-charter-in-speech-to-freedom-convoy-section-1-of-charter-being-illegally-used-by-governments_4274213.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2025

S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband