Vísindin, víðsýnin og veiran. Byram W Bridle

”Staðreynd í stað skelfingar,” eru einkunnarorð hins óvenjulega ónæmis- og veirufræðings frá Kanada, Byram W. Bridle. Hann er prófessor í ónæmisfræði við háskólann í Guelph.

Byram hefur, ásamt tveim starfsbræðrum sínum, stutt vörubílstjóranna í Kanada, forsætisráðherra sínum, Justin Trudeau, til mikillar mæðu. Sá mikli stjórnvitringur úr skóla Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum), hefur látið hafa eftir sér:

„[A]ndmælendur [covid ] bólusetninga, [eru] öfgamenn, sem trúa ekki á vísindin, sem oft og tíðum eru kvenhatarar, oft kynþáttahatarar. … Eigum við umbera svona fólk.“ Stjórnarskrárbundin mannréttindi lætur hann sér í léttu rúm liggja: „[Þ]að má einu gilda, hvort vegið sé að rótum grundvallarréttinda. Við höldum ótrauð áfram með þær [bólusetningarnar].“

Byram, ásamt félögunum, Roger Hodkinson og Paul Alexander, sem báðir eru ónæmis- og veirufræðingar, buðu Justin og þrem embættismönnum í heilbrigðisþjónustunni, sem borið hafa hitann og þungann af sóttvarnaraðgerðum í Kanada, til opinberrar umræðu um aðgerðirnar, og þá vísindalegu hugmyndafræði, sem að baki liggur. Þeir létu ekki sjá sig.

Byram sagði: „Við leggjum land undir fót til höfuðstaðar þjóðarinnar til að gefa til kynna ásetning okkar um að eiga virðingarvert spjall um vísindin og lækningafræðin, sem liggja covid-19 til grundvallar. … Rök í þá veru, að okkur skuli meina um vettvang, sem gefi hugmyndum okkar gildi, eru nú hriplek. … Kanadamenn vakna um þessar mundir til vitundar um þann auðsæja veruleika, að sitthvað sé bogið við ástandið í landinu og langt handan þess.

Það má einu gilda, hvaða skilningur er lagður í málefnið; ritskoðun og hefting virðingarverðrar, vísindalegrar umræðu er röng. Það er nauðsynlegur þáttur vísindanna að fræða alþýðu manna með gegnsæjum hætti.“

https://viralimmunologist.substack.com/p/doctors-supporting-the-freedom-convoy

https://www.bitchute.com/video/clfdugP213LE/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband