Staðreynd í stað skelfingar, eru einkunnarorð hins óvenjulega ónæmis- og veirufræðings frá Kanada, Byram W. Bridle. Hann er prófessor í ónæmisfræði við háskólann í Guelph.
Byram hefur, ásamt tveim starfsbræðrum sínum, stutt vörubílstjóranna í Kanada, forsætisráðherra sínum, Justin Trudeau, til mikillar mæðu. Sá mikli stjórnvitringur úr skóla Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum), hefur látið hafa eftir sér:
[A]ndmælendur [covid ] bólusetninga, [eru] öfgamenn, sem trúa ekki á vísindin, sem oft og tíðum eru kvenhatarar, oft kynþáttahatarar. Eigum við umbera svona fólk. Stjórnarskrárbundin mannréttindi lætur hann sér í léttu rúm liggja: [Þ]að má einu gilda, hvort vegið sé að rótum grundvallarréttinda. Við höldum ótrauð áfram með þær [bólusetningarnar].
Byram, ásamt félögunum, Roger Hodkinson og Paul Alexander, sem báðir eru ónæmis- og veirufræðingar, buðu Justin og þrem embættismönnum í heilbrigðisþjónustunni, sem borið hafa hitann og þungann af sóttvarnaraðgerðum í Kanada, til opinberrar umræðu um aðgerðirnar, og þá vísindalegu hugmyndafræði, sem að baki liggur. Þeir létu ekki sjá sig.
Byram sagði: Við leggjum land undir fót til höfuðstaðar þjóðarinnar til að gefa til kynna ásetning okkar um að eiga virðingarvert spjall um vísindin og lækningafræðin, sem liggja covid-19 til grundvallar. Rök í þá veru, að okkur skuli meina um vettvang, sem gefi hugmyndum okkar gildi, eru nú hriplek. Kanadamenn vakna um þessar mundir til vitundar um þann auðsæja veruleika, að sitthvað sé bogið við ástandið í landinu og langt handan þess.
Það má einu gilda, hvaða skilningur er lagður í málefnið; ritskoðun og hefting virðingarverðrar, vísindalegrar umræðu er röng. Það er nauðsynlegur þáttur vísindanna að fræða alþýðu manna með gegnsæjum hætti.
https://viralimmunologist.substack.com/p/doctors-supporting-the-freedom-convoy
https://www.bitchute.com/video/clfdugP213LE/
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021