Það er mikið vatn runnið til sjávar, síðan ég, ungur háskólanemi, hlýddi á Vegginn (The Wall), plötu Pink Floyd, árið 1979. Tónlist þeirra hafði djúpstæð áhrif á mig, mér rann hvað eftir annað kalt vatn milli skinns og hörunds, svo ógnarleg voru umbrotin. Þegar tónlistinni lauk sat ég sem lamaður, stjarfur.
Þessi fyrstu kynni af Veggnum rifjuðust upp fyrir mér um daginn, þegar ég hlustaði á spjall þeirra Janice Fiamengo, Tom Golden og Paul Elan. (Krækja neðanmáls.) Þá varð mér ljóst, að hér er að miklu leyti lýst sálarumbrotum í lífi Roger Waters (f. 1943), sem var meðal stofanda sveitarinnar. Hún var stofnuð í Lundúnum 1965. Roger yfirgaf sveitina árið 1985.
Roger fæddist foreldrum sínum, kennurum að mennt, í Surrey á Englandi. Stóri bróðir var þá barnungur. Faðir Roger skráði sig í herinn, enda þótt friðarsinni væri. Hann féll við Anzio á Ítalíu, þegar Roger var aðeins fimm mánaða gamall. Móðir hans fluttist til Cambridge.
Tónlistin á umræddri skífu varð á árinu 1982 umgjörð kvikmyndaðs söngleiks. Alan Parker (1944-2020) leikstýrði og Robert Frederic Zenon (Bob) Geldof (f. 1951) lék aðalhlutverkið.
Í myndinni er lýst í tónum og myndum innri baráttu rokkstjörnunnar, Bleiks, sem verður brjálæði að bráð, þegar hann missir föður sinn. Í áhrifamiklu upphafsatriði myndarinnar situr drengurinn hrjáður af sorg vegna dauða föðurins og í hugskotinu leiftra myndir af orrustunni við Anzio.
Í öðru eftirtektarverðu atriði er því lýst, þegar Bleikur er niðurlægður af óhamingjusamri kennslukonu fyrir kveðskap sinn. Skólanum er lýst sem kjötkvörn. Í hugarórum söguhetjunnar gera börnin uppreisn og kveikja í skólanum. (Á Íslandi eru dæmi um slíkt, bæði leik- og barnaskóla.)
Á fullorðinsaldri minnist Bleikur ofverndunar af hálfu móður sinnar. Ofverndunarmæður gefa börnum sínum hvorki lausan taum, né skapa þeim skilyrði til andlegs sjálfstæðis. Næsta móðir í lífi hans er eiginkonan, sem svíkur hann í tryggðum.
Þegar Bleikur hverfur á vit herbergis síns í gistihúsi býður hans kvenaðdáandi, iðandi í skinninu. En Bleikur bregst hinn versti við, brýtur allt og bramlar í ofstopakasti. Myrkur þunglyndis hellist yfir hann. Veggurinn eða múrinn einangrar listamanninn frá umheiminum. Heltekinn angist verður Bleikur fangi hugaróra um stríð og ofbeldi, ánetjast fíkniefnum.
Undir lokin sameinast konurnar í líf hans og leita fulltingis hjá réttarkerfinu. Hann er ásakaður fyrir að sýna tilfinningar, sem gætu hér um bil verið mannlegar. Roger eru engin grið gefin. Dómarinn krefst þess, að veggurinn sé rifinn (eins og Berlínarmúrinn nokkrum árum síðar) og móðir hans reynir að særa hann heim. (Að töluverðu leyti byggt á grein í Wikipedia.)
Föðurleysið hefur í áratugi verið mér umhugsunarefni. (Bendi áhugasömum á viðeigandi greinar á: arnarsverrisson.is.) Í viðurstyggð seinni heimsstyrjaldarinnar ber hátt milljónir föðurlausra (og munaðarlausa) barna. Hvaða áhrif hafði hildarleikurinn á þau?
Það liggur beint við að álykta, að þau hafi fæst notið föðurhandleiðslu eða föðurígildishandleiðslu - og fullnægjandi örvunar. Mörg þeirra hafa ratað inn á opinberar uppeldisstofnanir. Gæti verið, að raunveruleg og ímynduð vonbrigði í garð feðra, karla, skýri þá ógnarlegu föðurfjandsemi eða múgsefjun gegn körlum, sem fékk byr undir báða vængi með fyrstu kynslóðum eftir stríð?
Fjandskapur gegn feðrum og körlum vindur upp á sig. Stöðugt ný og endurnýjuð vonbrigði skapa meiri úlfúð. Um þriðjungar barna er nú meira eða minna föður- og karlmannslaus. Hvað ætli þessi börn hugsi um eigin feður og feður almennt?
Það er ófáar sorgar- og haturssögur ungra kvenna um feður sína á allra vörum. Karlar óttast að líta stúlkubarn augum (og börn yfirleitt) af hræðslu við ásakanir um óþverrahátt. Einn þeirra sá litla stúlku ráfa niður að þorpstjörninni. Hann varð skelfingu lostinn eins og allir feður verða við slíkar aðstæður. En óttinn bar dómgreind og föðureðli ofurliði. Stúlkubarnið drukknaði.
Í vitund fólks meira að segja glöggra kvenna vofir vondi karlinn sífellt yfir. Vansælar konur, samkynhneigðar konur og kynlausar, eru áberandi meðal hatursfullra fræðimanna kvenfrelsaranna og þeirra, sem boða kvenfrelsunarsamfélagið, hið nýja gyðjuveldi. Þarna gætu verið skilningssamhengi.
https://www.youtube.com/watch?v=17e_KuKRbrM
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021