Heimildarmynd um grænu geggjunina. Málfrelsi er lýðræðinu skeinuhætt

Fyrir nokkrum áratugum síðan komst samkunda auðkýfinga, svokallaður Rómarklúbbur, að því, að hugmyndin um helvítishlýnun gætu orðið viðskiptum þeirra til framdráttar, þ.e. aukið auð þeirra.

Framhaldinu er prýðilega lýst í heimildarmyndinni, eftir Martin Durkin. Glöggir áhorfendur sjá, að aðferðin er svipuð og þegar kvenfrelsunarvitleysan, þ.e. að karlar hefðu frá örófi alda kúgað konur, komst á koppinn. Hvort tveggja – eins og veirufaraldurinn reyndar einnig – fylgir svipaðri uppskrift.

Bábiljur sértrúarsöfnuða eru blásar upp í fjölmiðlum, fjármagn tekur að streyma til þeirra, vísindamönnum er mútað sem og fjölmiðlum til að flytja boðskapinn. Smám saman verður til trúarhreyfing, rétttrúnaður, sem grópast í vitund manna, verður almannarómur.

Almannarómurinn blindar, enda eiga margir lifibrauð sitt undir honum, sérstaklega á því stigi, þegar rétttrúnaðurinn hefur verið löggiltur og komið á laggirnar stofnunum til að varðveita hann. Þá er fokið í flest skjól.

Þegar frjáls hugsun og umræða er skert, skerðist dómgreind og lýðréttindi. Ríkisvaldið skarar stöðugt eld að eigin köku og styttir í ólinni. Það þykir um þessar mundir skiljanleg afstaða, að málfrelsi sé lýðræðinu skeinuhætt. (CIA hefur reyndar lengi starfað samkvæmt því boðorði.)

Í Skotlandi taka t.d. gildi 1. apríl lög um hatursorðræðu og reglu á almannafæri, á Íslandi og í Kanada er slík löggjöf í deiglunni, og í Dakóta er talað fyrir löggjöf, sem gerir gagnrýna umræðu Ísrael að Gyðingahatri. Þetta eru bara nokkur dæmi.

Geggjunin hefur reyndar gengið svo langt, að til viðbótar skordýrabuffum er nú mannakjöt komið á matseðilinn í grænu paradísinni. Þar munu spóka sig öðrum fremur frelsaðar konur, ef unnið verður áfram samkvæmt Sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, Alheimsefnahagsráðsins og íslensku ríkisstjórnarinnar.

Lýsingu á mannlífi framtíðarinnar má ef til vill sjá í kvikmyndinni, „Minority Report.“ Það er nefnilega svo, að fjármagnseigendurnir, sem fjármögnuðu veiruvitfirringuna, grænu geggjunina og kvenfrelsunarfárið, stjórna vitundarsmiðjunni í Hollývúdd eins og fjölmiðlunum. Þar erum við oft og tíðum búin undir það, sem koma skal, samtímis því, að gamlar rétttrúnaðarsögur eru sagðar til að styrkja okkur í trúnni.

Trúlega hefur fyrrverandi dómsmálaráðherra og vinur Ríkislögreglustjóra, horft sér til innblásturs og gagns á fyrrnefnda kvikmynd. Þar eru nefnilega sýndar „afbrotavarnir“ þær, sem hann og Kristilega jafnaðarmannaflokkinn dreymir um á Íslandi, þ.e. að handtaka fólk fyrir afbrotahugsanir og jafnvel skjóta það með rafbyssum.

https://www.youtube.com/watch?v=s3Tfxiuo-oM https://corbettreport.substack.com/p/burn-hollywood-burn-with-irina-slav?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=142786644&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.rollingstone.com/culture-council/articles/how-hollywood-is-crafting-new-climate-change-narrative-1234972469/ https://substack.com/@irinaslav https://irinaslav.substack.com/p/lets-eat-each-other https://www.newscientist.com/article/mg26134783-600-is-it-time-for-a-more-subtle-view-on-the-ultimate-taboo-cannibalism/ https://www.eugyppius.com/p/my-interview-with-irina-slav-on-the https://vigilantcitizen.com/latestnews/scientist-proposes-cannibalism-to-save-the-climate-on-swedish-tv/ https://irinaslav.substack.com/p/burn-hollywood-burn?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://dailysceptic.org/2024/02/27/green-billionaires-press-hollywood-to-promote-armageddon-climate-messages-in-movies/ https://www.igor-chudov.com/p/excessive-free-speech-is-a-threat?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=142814708&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://twitchy.com/amy-curtis/2024/03/01/canada-hate-crime-law-levant-n2393461#google_vignette https://steigan.no/2024/03/vil-canada-forby-precrime/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.heraldscotland.com/news/24194006.police-scotland-hate-crime-training-leaked/


Bloggfærslur 23. mars 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband