Drápu Bretar og Bandaríkjamenn Alexei Navalny eða var það Vondi-Valdi

Fyrir nokkrum mánuðum síðan lést bandaríski blaðamaðurinn, Gonzalo Lira, í fangelsi Úkraínumanna. Það þótti ekki merkileg frétt á Vesturlöndum. Gonzalo hafði dirfst að flytja fréttir frá Úkraínu, sem yfirvöldum þóttu óæskilegar.

Það var ekki síður sorglegt, að Alexei Navalny, hafi látist nýlega í rússnesku fangelsi. Bjarni Benediktsson, utanríkismálastjarna vor, lýsti því samstundis yfir, að rússnesk yfirvöld, Vondi-Valdimar, væri ábyrgður fyrir dauða hans. Sama gerði goð Bjarna og véfrétt, Jósef Biden.

Öllum, sem fylgst hafa með heimsmálunum, ætti að vera ljóst, að Alexei sálugi hafi verið málaliði M16 og CIA, og einn leiðtoga svokallaðra litaskrúðsbyltinga (color revolution) fyrrgreindra þjóða (og Vesturlanda) í Afríku, Austur-Evrópu og Vestur-Asíu, m.a. í Úkraínu, Georgíu og Hvíta-Rússlandi.

Söguþráðurinn er sá sami og við eiturbyrlun MI6 á rússneskum stjórnarandstæðingum, sbr. Sripal feðginin, Yulia og Sergei, í Englandi, þ.e. Vondi-Valdimar vill losa sig við andstæðinga. Sá Vondi hló nú reyndar hæðnislega að þessum áskökunum á sínum tíma og þótti lítið gert úr morðhæfni rússnesku leyniþjónustunnar.

Þegar allt kemur til alls, hafði Alexei sálugi afar takmörkuð áhrif í Rússlandi. Stundum var áróður hans eins og t.d. um einkahöll Vonda-Valda, bara broslegur. Þetta áróðursbragð ku hann hafa úthugsað með leyniþjónustuvinum sínum á sjúkrabeði í Þýskalandi. En þangað leyfðu rússnesk yfirvöld honum að fara, eftir fyrstu eitrun, sem misheppnaðist.

Vissulega á Valdi sínar vondu hliðar. En heimskur er hann varla, ber reyndar af öðrum stjórnmálamönnum á alþjóðavettvangi fyrir þekkingu, prúðmennsku, stjórnkænsku, rökvísi og samningsvilja.

En þó! Hann lét blekkjast af fagurgala nafna síns Zelensky, Emmanuel Macron og Angelu Merkel. En tæpast er Valdi svo skyni skroppinn að drepa andstæðing sinn svo lúalega og auglýsa, rétt fyrir kosningar – eða hvað?

Áróðursgildi dauðra útsendara og flugumanna er stundum meira en gjörningar þeirra í lifenda lífi. Þeir verða píslarvottar. Ætli það eigi við um Alexei?

Ætli það sé tilviljun, að dráp Alexei eigi sér stað, skömmu eftir viðtal Vonda-Valda við Tucker Carlson átti sér stað? Ríkisstjórnum Vesturlanda tókst ekki að múlbinda þá. En eins og kunnugt er telja þau boðskap Rússa og Tucker afar óhollan fyrir sálarlíf okkar.

Ætli það sé líka tilviljun, að Alexei sé drepinn rétt í þann mund, að stríðsfrúr Vesturlanda hittast til skrafs og ráðagerða um það einu sinni enn, hvernig megi klekkja á Rússlandi? Svo einkennilega vildi einnig til, að ekkja Alexei, Yulia, var kvödd til leiks, og er að eigin sögn staðráðin í að taka að sér hlutverk eiginkarlsins.

Gilbert Doctorow velkist ekki í vafa um sök. Bretar drápu Alexei, segir hann.

https://www.scottritterextra.com/p/the-tragic-death-of-a-traitor https://www.youtube.com/watch?v=B9MxNJzl-1o https://www.defenddemocracy.press/the-unraveling-of-the-scripal-case-did-anybody-really-attack-them/ https://www.youtube.com/watch?v=abYJ9WNHndo https://www.globalresearch.ca/alexei-navalny-death-curious-well-timed-coincidences/5850071 https://www.theinteldrop.org/2024/02/16/cia-murders-navalny-in-russian-prison-to-bury-ukraine-defeats-to-the-comic-page-truth-bomb/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/navalnys-death-a-western-instigated https://gilbertdoctorow.com/2024/02/18/after-trt-world-failed-to-post-my-interview-on-the-death-of-navalny/ https://www.globalpolitics.se/mordades-navalnyj-av-vasterlandska-underrattelsetjanster-forbjuden-fraga/ https://korybko.substack.com/p/putin-had-no-reason-to-kill-navalny?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=141752237&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/vem-var-avlidne-navalny/ https://gilbertdoctorow.com/2024/02/16/death-of-aleksei-navalny-the-brits-did-it/ https://steigan.no/2024/02/alexei-navalny-dode-i-fengsel-dodsarsaken-ikke-klarlagt/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/navalny-death-western-instigated-false-flag/5850124 https://korybko.substack.com/p/yulia-navalnayas-embrace-by-biden?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142019964&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&open=false&utm_medium=email


Sú snjalla stjórnar

Einn af aðalhugmyndafræðingum bandarískrar heimvaldastefnu og Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum), Henry Kissinger, sagði eitt sinn, að sú, sem stjórni fæðuöflun, ráði yfir fólkinu; sú, sem orkunni stjórni, ráði yfir heilu álfunum; og sú, sem fjármagninu stjórni, ráði yfir veröldinni.

Þetta eru reyndar leiðarstefin í baráttu Alheimsefnahagsráðsins, samtökum auðjöfra, stjórnmálamanna og ýmissa heilaþveginna handbenda þeirra.

Ráðið vill Nýja heimsskipan, endurbyggja betur, það, sem þeir hafa rústað. Úkraína á að verða fyrirmyndarríkið. Í Úkraínu eins og í Ísrael eru gerðar tilraunir með gervigreind. Hún er t.d. notuð til að beina drápsflaugum rétta leið að almenningi á Gaza.

Úrvalið hefur einnig tekið snjallvæðinguna og þriðju víddar tæknina í sína þjónustu til eftirlits og stýringar. Forustumaður kristilegra jafnaðarmanna á Íslandi, Bjarni Benediktsson, segir þessa byltingu í þágu fólksins.

Byltingin felur m.a. í sér eftirlit í gegnum snjallsíma og söfnun hins opinbera á gögnum, t.d. heilsufarsupplýsingum. Hið opinbera og fyrirtæki ýmis konar vinna saman. Mörgum brá í brún, þegar skólabróðir Katrínar Jakobsdóttur, Justin Trudeau, frysti bankareikninga vörubílstjórni í veirufaraldrinum.

Veirufaraldurinn var ein leið til að skapa fólki ótta og berja það til hlýðni. Önnur leið er hin grængolandi geggjun um helvítishlýnunina, endurtekið efni óprúttinna presta.

Valdagræðgi og drottnunarsýki heimsyfirvaldsins er skelfileg. Nú þegar liggja fyrir áætlanir um, hvað þú megir borða, hvernig þú skulir klæðast og ferðast – eða öllu heldur kyrrsetjast – á grundvelli útdeildra hlýðnistiga, þ.e. um sæluna í stundarfjórðungsborgunum. Samtímis er unnið markvisst að tölvuuppfærslu mannshugans.

Maria Zeee er ómyrk í máli. Hún á m.a. viðtal við ástralska þingmanninn, Malcolm Roberts, um fyrirætlanir Ráðsins. Orkumál eru í brennidepli. Það er sem sé víðar en á Íslandi, að orka er af skornum skammti. Orkunni er bæði í Ástralíu og í Suður-Afríku stjórnað gegnum snjallmæla. En slíka mæla nota íslensk orkufyrirtæki líka.

Skerðing orkunnar er einmitt – og Henry Kissinger sagði – beitt til að ná tökum á atvinnulífinu. Eitt af markmiðum Ráðsins er að afiðnvæða Vesturlönd. Skerðing orku eykur verð hennar. Samtengin milli landa auðveldar inngrip og yfirráð eiginlegra valdhafa, þ.e. auðjöfranna og hagsmunasamtaka þeirra eins og Ráðsins. Hækkun orkuverðs á sér stað um alla norðanverða Evrópu. Það verður t.d. Þýskalandi að falli, eftir að Bandaríkjamenn sprengdu gasleiðslu þeirra og fleiri ríkja í Eystrasalti.

Sólar- og vindorka er víða niðurgreidd af skattgreiðendum og einkum til þess fallin, að auðga eigendur veranna.

María hvetur okkur einarðlega til að taka aftur völdin. Malcom minnir á, að stjórnmálamenn þiggi vald sitt og umboð frá kjósendum. Kjósendur verði að vera þess minnugir að velja hæfa fulltrúa. Hann segir fá á ástralska þinginu vita nokkuð í sinn haus, hvað sé um að vera í veröldinni. Hvernig ætli því sé varið á Alþingi Íslendinga?

https://zeeemedia.com/interview/maria-zeee-senator-malcolm-roberts-on-infowars-globalists-begin-cutting-aussie-electricity/


Bólusetninga-Bill er bjargvættur vor og mannvinur. Auðjöfraræði

Blaðamaðurinn, Timothy Schwab, hefur skrifað bók, sem ber titilinn: ”Vandræðabarnið Bill Gates. Uppgjör við goðsögnina um hinn góða milljarðamæring” (The Bill Gates Problem. Reckoning with the Myth of the Good Billionaire). Viðtal Alan MacLeod við höfund er afar athyglisvert.

Um síðustu aldamót urðu eins konar ásýndarhamskipti á Bill Gates, ekki ósvipað því, sem gerðist með John D. Rockefeller á sínum tíma, þegar hann fór að gauka smáaurum að aumingjunum, samkvæmt ráði almannatengslafulltrúa.

Báðir gerðust mannvinir miklir í kjölfar dóma gegn einokun þeirra í atvinnulífinu. Manngæsku kappanna var gefin útrás í mannvinnafyrirtækium eða frjálsum félagsamtökum (non-governmental organization), sem yfirvöld undanþáðu skatti að miklu leyti.

Það vill svo til, að Sameinuðu þjóðirnar opnuðu einnig dyr sínar fyrir áhrifum og auðævum þessara mannvinafyrirtækja um svipað leyti.

Auðjöfrar heims eins og Rothschild ættin, Rockefeller ættin, Ford ættin, Soros ættin og margir fleiri, notfæra sér mannvinafélögin til að hlutast til um stjórn veraldarinnar, spinna heilu þjóðunum örlög, oft í samvinnu við ríkisstjórnir, eða með því að kúga þær til hlýðni.

Bill átti t.d. samvinnu við ríkisstjórnir eins og þá norsku og bresku, um stofnun GAVI, einka-opinbers bólusetningafélagsskapar. Auðvaldurinn fjármagnar líka Alþjóðaheilbrigðisstofnunina. Völd hans eru gríðarleg.

Bill er margfaldur í roðinu. Tilraunir með alls konar bólusetningaóþverra skilja eftir sig slóð örkumlaðra barna og fullorðinna. Nýjasta uppátæki hans er að framleiða bólusetningamýflugur.

Bill og Melinda, fyrrverandi frú hans, þar til upp komst upp samfarir bónda hennar og barnaníðingsins, Jeffrey Epstein, hafa líka beitt sér fyrir menntun barna, samkvæmt eigin hugmyndum. Það er reyndar kjarninn í hugmyndafræði þeirra um manngæskuaðstoð; „verði okkar vilji.“

Hinn rómaði bjargvættur mannkyns er líka einstaklega áhugasamur um að drepa niður hefðbundinn landbúnað og kaupir upp land í því skyni. Þessi heimsbóndi lætur sig heldur ekki muna um að hlutast til um landbúnað í Afríku. Bændur þar um slóðir beiðast þó undan „hjálp“ hans.

Samhliða því að koma bændum á vonarvöl einbeitir Bill sér að ræktun skordýra og gervikéts úr frumum í þar til gerðum fæðuræktunarverum. Skordýra- og gervikétsbuff eru þegar kominn á markað – meira að segja á Íslandi.

Og svo til að enginn velkist í vafa um manngæsku sína, heilindi og fórnarlund, hefur Bólusetniga-Bill keypt fjölda fjölmiðla, mennta- og vísindastofnana, og veitir öðrum styrk til að vernda orðspor sitt og heilaþvo okkur, vesalingana. Að ógleymdum staðreyndafyrirtækjunum.

Það þarf varla að taka fram, að Bill loðnar stöðugt um lófana, bæði vegna starfsemi sinnar sem fjárfestir og mannvinur. Hann græddi svo mikið á bóluefnaframleiðslu við svikaveirunni, Covid-19, að honum ofbauð jafnvel sjálfum. Og er þá mikið sagt.

Bill bjargvættur er að sjálfsögðu meðal innstu koppa í búri Alheimsefnahagsráðsins, þar sem Katrín Jakobsdóttir nemur við hné helstu spekinga um mótun heimsríkisins, hina nýju veröld. Hún er meira að segja sérstakur ásýndarfulltrúi stofnunar „hans,“ Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

https://reclaimthenet.org/gates-foundation-pushes-national-digital-id-tech https://www.bitchute.com/video/sT5udNiXuqhl/ http://www.sfaw.org/newswire/2014/11/13/bill-gates-and-the-anti-fertility-agent-in-african-tetanus-vaccine/ https://www.youtube.com/watch?v=JaF-fq2Zn7I https://www.youtube.com/watch?v=gM1QcAs_VRg https://www.youtube.com/watch?v=rhNxDp8e7p8 https://expose-news.com/2023/05/06/bill-gates-disturbing-influence/ https://ingaghall.blog.is/blog/ingaghall/entry/2289562/?fbclid=IwAR11Vikmt3uAB9hUEmO4G2ZX47LXmdoPsfg2coFs2bGF9xeKGGRtshM_AbI https://expose-news.com/2023/03/28/follow-the-money-unmasking-bill-gates/ https://www.youtube.com/watch?app=desktop&v=fr4UtmbeW44&fbclid=IwAR1PXPZdpW4ns1vYQ_FROmTlzWzPfru1ZNou0-rdI-lgLNeNd0ALgmSnj9A https://rumble.com/v24t3ss-bill-gates-vows-to-pump-mrna-into-food-supply-to-force-jab-the-unvaccinated.html https://expose-news.com/2022/11/04/polio-vaccines-are-ineffective/ https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-wealth-influence-covid-pandemic-cola/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=f0f46a34-59de-47b7-a8a7-63f46b911219 https://www.bitchute.com/video/vCgkdnLYLWKi/?fbclid=IwAR1DOg6YZc9XpNL3UpWLvjWAwuhMcYXJV3q_23QqBN0EswCpD155f9DEJqw https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-melinda-gates-foundation-investments-global-digital-id-system/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=860f34cb-4036-4ddb-8ad2-b49ad0da72c7 https://indianbarassociation.in/more-trouble-for-bill-gates-and-adar-poonawalla/ https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-genetically-engineered-seeds-world-hunger-ecological-disaster/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=8ad4e1dd-353b-431d-9c30-7212afb73ef1 https://steigan.no/2022/09/amerikanske-politico-retter-kritisk-sokelys-pa-hvordan-bill-gates-co-brukte-covid-19-til-a-oke-sin-makt/?utm_source=substack&utm_medium=email https://childrenshealthdefense.org/defender/covid-nw-bill-gates-takes-abuse-people-dont-know-fauci-outside-us/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=25571782-5efc-45cf-aafd-3065a6b7bfaf https://expose-news.com/2022/09/15/bill-gates-mhra-pfizer-corruption/ https://expose-news.com/2022/08/17/bill-gtes-sinister-plan-force-you-eat-fake-meat/ https://www.facebook.com/TheNewAmerican/videos/651882949340024 https://fortune.com/2022/08/09/bill-gates-foundation-polio-vaccine-new-york-positive-case-rockland-county-wastewater/ https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-great-reset-global-food-system-cola/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=b28a3eb1-9ac3-436d-aedb-3052f10e80e6 https://expose-news.com/2022/07/28/orwellian-think-tank-is-targeting-irish-citizens/ https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-great-reset-global-food-system-cola/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=4d9020e2-4c38-4822-b0ca-eb9e5698c9d2 https://steigan.no/2022/07/hvem-star-bak-de-globale-helsekrisene-vi-plutselig-stadig-blir-rammet-av-sist-ute-apekopper/?utm_source=substack&utm_medium=email https://african.business/2022/04/apo-newsfeed/bill-melinda-gates-foundation-pledges-continued-support-for-kenya/ https://steigan.no/2022/07/korrupsjon-i-kenya-who-driver-landgrabbing-for-a-lage-nytt-krisesenter/?utm_source=substack&utm_medium=email https://grain.org/en/search?s=bill+gates https://www.gmwatch.org/en/106-news/latest-news/16631 https://www.latimes.com/business/la-na-gatesx7jan07-sg-storygallery.html https://steigan.no/2014/11/bill-gates-milde-gaver-til-hvem/ https://www.latimes.com/business/la-na-gatesx7jan07-sg-storygallery.html https://steigan.no/2022/04/bill-gates-alle-rike-land-bor-bytte-til-100-syntetisk-kjott/ https://frettin.is/2022/06/03/af-hverju-er-mannvinurinn-bill-gates-svona-haettulegur/?fbclid=IwAR1pxNb5QaQqRXocqI2aF6BigeeJ6AQELktHuAysbfsWaQ1JDn4TaYTvGDA https://www.weforum.org/agenda/2018/09/africas-rapid-population-growth-puts-poverty-progress-at-risk-says-gates https://mail.google.com/mail/u/0/#inbox/FMfcgzGpGKdxHbPNgPqLWCFmFWSMjNnM https://expose-news.com/2022/05/26/bill-gates-bioterrorist/ https://brownstone.org/articles/choice-quotes-from-bill-gatess-new-book/ https://unherd.com/2022/05/bill-gates-wants-to-build-a-dystopia/?tl_inbound=1&tl_groups[0]=18743&tl_period_type=3&mc_cid=5b6d096958&mc_eid=1c4c09eceb https://steigan.no/2014/11/bill-gates-milde-gaver-til-hvem/ https://dailyexpose.uk/2022/05/08/watch-bill-gates-attempting-to-sell-his-germs/ https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-biotech-gmo-mosquito/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=e5b2380e-0674-48ed-939d-ecd709cd8561 https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-africa-industrial-farming/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=c117171f-c56d-47ce-aa59-7b4fdda8e9f0 https://dailyexpose.uk/2022/04/21/private-owners-of-more-farmland-than-anyone-in-usa/ https://steigan.no/2022/04/bill-gates-alle-rike-land-bor-bytte-til-100-syntetisk-kjott/ https://childrenshealthdefense.org/defender/bill-gates-ag-project-failed-food-security/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=e099eb75-edfb-43b7-a156-efd9cfe8464f https://www.cnbc.com/2022/02/24/bill-gates-australia-covid-blueprint-could-help-prevent-next-pandemic.html https://dailyexpose.uk/2022/02/24/gates-admits-failure-natural-immunity-is-gold-standard/ https://www.rt.com/news/549937-bill-gates-omicron-vaccines/ https://newspunch.com/bill-gates-caught-funnelling-319-million-to-media-to-brainwash-the-public/ https://www.mintpressnews.com/unraveling-bill-gates-global-web-influence-tim-schwab/286859/


Bændur og búalið á vonarvöl. Skrifræðismorðið

Fyrir rúmum tveim áratugum síðan sótti ég Kúbu heim með fjölskyldu minni. Ferðin var í senn ánægjuleg og fróðleg. Þar bar margt nýstárlegt fyrir augu og ferðafélagarnir veittu innblástur. Ég minnist rútuferðar til Havana um sveitir hinnar frjósömu eyju, þar sem Spánverjar drottnuðu og þar sem Bandaríkjamenn tóku fyrstu heimveldisskrefin. Við hlið mér sat skrafhreifinn bóndi úr Skagafirði. Skyndilega þagnaði hann. Eftir drykklanga stund, þegar við höfðum ekið milli óræktaðra akra um stund, drundi í karli; „Hér mætti rækta mikið af kartöflum.“

Svipuð hugsun hafði leitað á hugann, þegar ég festi ráð mitt í Danmörku fyrir mannsaldri eða svo, skömmu eftir að Evrópusambandið hafði verið stofnað. Dönskum bændum var þá greitt fyrir að láta hjá líða að yrkja jörðina. Það þótti mér kyndugt í heimi fátæktar, misskiptingar auðs og hungursneyðar. Hungursneyðin í Biafra var mér enn þá í fersku minni.

Síðar rann upp fyrir mér, að þessi landbúnaðarstefna væri svo sannarlega ekki eingöngu til þess ætluð að útvega þjóðum sambandsins ódýran, góðan mat. Hún var nefnilega til þess fallin að koma jarðnæði á fárra hendur og auka fleirþjóðlegt vald yfir örlögum fólks, bæði í framleiðslulandinu og einnig í svokölluðum þriðja heimi. Það, sem féll af borðum Evrópubúa, mátti selja ódýrt til Afríku og drepa niður alla samkeppni þaðan. Það sama á við um þá manngæsku að senda þangað ódýran afgangsklæðnað, sem framleiddur er í þrælabúðum Asíu. Þannig er innlendur iðnaður drepinn niður.

Þessari stefnu hefur verið lyft á æðra stig á Vesturlöndum. Alheimssinnar, sem áður góluðu um götin í ósonlaginu, sem nú eru gleymd, undu sínu kvæði í kross og hófu upp feiknlegan áróður fyrir gróðurhúsalofttegundum, hitun jarðar vegna m.a. koltvísýrings. Fólki hlyti að vera ljóst, að kýrnar prumpuðu of mikið. Samkvæmt gapuxunum munum við stikna í Helvíti bráðum.

Það er sem sé ekki bara of mikið af fólki í veröldinni heldur líka kúm. Hvoru tveggju verður að slátra. Sultur og hungursneyð vofir yfir okkur eins og Knut Hamsun í Ósló forðum daga.

Samtímis kaupa auðjöfrar upp jarðnæði um allar álfur með góðu eða illu. Í Úkraínu eru sex flugur slegnar í sama högginu; fólki (körlum) fækkað, frjósamt jarðnæði keypt upp af alþjóðalandbúnaðarauðvaldinu, uppgrip í vopnasölu, flóttamannastraumur, skerðing á ódýrri orku og áburði og Rússum ógnað.

Draumur alheimssinna er að búta Rússland niður eins og Júgóslavíu og stela auðævum þess eins og annars staðar á jarðarkringlunni. Þetta styður íslenska ríkisstjórnin heils hugar.

Alheimslandbúnaðarauðvaldið hefur þegar læst klónum í afrískan landbúnað eins og landbúnað í Ameríku allri.

En það er von. Bændur víðs vegar – og meira að segja í landi stríðsvíkinganna, Noregi - hafa risið upp gegn Evrópuskrifræðinu og hella mykju á stræti og torg. Þeir ættu líka að reka kusurnar til Brussel og leyfa þeim að prumpa þar eitlítið. Skriffinnarnir gætu vafalaust sett veirugrímur fyrir vit sér.

Það er vissulega ekki bara landbúnaðurinn, sem er á heljarþröm. Iðnaðurinn rambar og útgjöldin vegna stríðs Nató við Rússa tærir pyngjuna – líka þá íslensku.

Og þegar stjórnmálamenn Evrópu hafa enn á ný safnast saman í Brussel til að leggja á ráðin um frekari ógæfu í stríðinu gegn eigin þegnum og Rússum, verður mér hugsað til Neró keisara, sem lék á hörpu, meðan Róm brann, og til ömmu, sem sat upp á þaki og spilaði og söng, meðan kotið stóð í ljósum logum.

https://www.globalpolitics.se/landsomfattande-bondeuppror-i-indien-fortsatter/ https://www.realnewsandhistory.com/anyt-02-21-24/ https://gilbertdoctorow.com/2024/02/22/german-parliament-to-vote-on-delivery-of-long-range-air-borne-missiles-to-kiev/ https://www.faz.net/aktuell/bundestag-debattiert-ueber-ukrainekrieg-und-deutsche-waffenlieferungen-19537018.html https://www.zeit.de/wirtschaft/2023-02/institut-fuer-wirtschaftsforschung-kosten-energie-krieg-ukraine-folgen https://www.oaklandinstitute.org/new-report-take-over-ukrainian-agricultural-land https://www.globalpolitics.se/faller-eus-gemensamma-jordbrukspolitik-samman/


Bloggfærslur 25. febrúar 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband