Bandaríki Norður-Ameríku eru forustusauðir samfélagsþróunar á Vesturlöndum. Það á einnig við um skóla og menntun. Í námsgreininni, kynjafræði, er kennt, að kyn séu í raun ekki til, hugarfóstur. Því skuli hver og einn skilgreina og endurskilgreina eigin kynskilning.
Foreldrar eru greinilega ekki einhuga um ágæti þessarar fræðslu. Hér er frétt um efnið. Móðir gerir uppreisn á fundi skólanefndar og les m.a. úr því lesefni, sem skólabörnum er ætlaður. Nefndin reyndi að þagga niður í henni. Samkvæmt fréttinni tísti einn nefndarmanna, Karl Frisch, svohljóðandi:
Svo það sé alveg á hreinu; ekkert mun trufla trúfestu skólanefndar gagnvart lesbíum, hommum, tvíkynungum, kynskiptingum, hvorugkynungum (hinsegin), millikynungum og kynleysum [LGBTQIA lesbian, gay, bisexual, transgender, queer, intersex, asexual], svo og nemendum, fjölskyldum og starfsliði. Ekkert!
Bækurnar fjalla um kynlíf fullorðinna karla og drengja, alls konar kynferði eða kynleysur, allra handa kynlif að öðru leyti, t.d.: um kyn- og kynþáttarörvæntingu drengs, sem enn hefur ekki uppgötvað, að hann sé samkynhneigður; um hugarvíl stúlku, þegar rennur upp fyrir henni, að hún sé tveggja-anda persóna í kjölfar umræðu við vinkonurnar, sem upplýsa hana um, að hin fornu kynrit útiloki hið góða líf; um uppgötvun þeldökkrar telpu á kynferði sínu, kúgun kvenna og blakkskinna; um valdeflingu unglingsstúlku í anda töfraraunhyggju, en með hana að vopni brýtur mærin til mergjar sameiginlega þætti kynþáttafordóma, kynárása og kynslóðaáfalla, og svellur móður að greiningu lokinni; um blökkustúlku, sem yfirgefur vinahóp hvítra stúlkna, leitar á náðir litsystra sinna og kemst þá að því, hvernig mismunun svertingja, örýgi eða örárásir (microaggression) og meðvirkni sjálfrar hennar, móta tengslin heima við og í skólanum.
Þessum kennslubókum er mælt með af deild í Samtökum norður-amerískra bókasafna (American Library Association), sem nefnd er Bókasafnsþjónustu fyrir yngri fullorðna, (Young Adult Library Services YALSA). Samkvæmt sama miðli hefur þessi þjónustudeild talsverð áhrif á, hvers konar bækur skólabókasöfnin kaupa inn. Þar sé lögð áhersla á, að mæla með róttækum bókum (far-left political influence), sem áhrif hafa á móttækilega, unga huga.
Það er ekki síður athyglivert, að þjónustudeildin mælir með bókum, sem innihalda kynferðislegar og hugmyndafræðilegar öfgar nú einnig myndablöð um efnið. Eitt slíkra rita, sem um ræðir fyrir aldurshópinn 12 til 18 ára, er Hinseginkynið (hvorugkynið). Minningar (Gender Queer: A Memoir), eftir Maia Kobabe (f. 1991). Kynskilningur þess er á þá leið, að það sé hinsegin, kynlaus og margskauta (nonbinary).
Íbúar í landi hinna frjálsu bregða upp framtíðarspegli Íslendinga. Spegill, spegill, herm þú mér .
https://www.dailywire.com/news/watch-mom-reads-graphic-gay-porn-found-in-school-library-to-school-board?utm_source=facebook&utm_medium=social&utm_campaign=benshapiro&fbclid=IwAR2uFF1RFb0wwgfxVEQ_8KFek7fmZAy9cVCF7S4BugsQd3qn0c4iR8nUnsc
Þar heitir á Hálogalandi. Fyrir nokkrum árum féll í því landi dómur, sem þótti eftirtektarverður. Réttað var í máli látins karls, fjölskylduföður frá Búðarey (Bodö), sem er höfuðstaður Norðurlandsfylkis í Noregi. Þar um slóðir virðast skjaldmeyjar enn lifa góðu lífi.
Norska kvöldpóstinum (Aftenposten) segist svo frá: Héraðsdómstóli í Hálogalandi þótti á það færðar sönnur, að eiginkarlinn hefði árum saman orðið fyrir líkamlegu ofbeldi, ógnandi hátterni og andlegri misnotkun. Ár á ár ofan var karl rekinn niður í kjallarastofu. Þar hafði hann ekki aðgang að baði, salerni og eldhúsi.
Skjaldmær þessi á áttræðisaldri, eiginkona karls og móðir þriggja barna þeirra og amma var vissulega hörð í horn að taka. Jafnaðarlega fékk hún fólskuköst. Þegar svo bar undir rústaði hún húsinu og réðist að karli sínum.
Dóttirin segir, að móðir hennar hafi pyntað þau í fjóra áratugi. Hún varð m.a. vitni að því, þegar móðir hennar skar föðurinn í handlegginn með hnífi. Meðan blóðið fossaði hótaði kerla að stúta karli. Hún gekk berserksgang froðufellandi og barði hann með hverju því, sem hönd á festi. Slíkar uppákomur voru venjulegar.
Í bílskúrnum geymdi hann mat og hafði með sér lyfin sín, hvert sem leið hans lá. Að öðrum kosti hefði hún getað neitað honum um lyfin, en líf hans lá við. Það hafði hún reyndar gert. Persónulegan póst lét hann senda á annað póstfang.
Einu sinni datt karli í hug að vera viðstaddur fermingu barnabarnsins. En kerling greip þá til þess ráðs að mála yfir glugga bifreiðarinnar, svo karl komst hvergi.
Hin ákærða neitaði öllum sakargiftum, sagði karl sinn hafa borið lygar í börnin, sem öll vitnuðu gegn henni. Dóttirin segir móður sína hafa fengið makleg málagjöld; þriggja ára fangelsisvist. Hæstiréttur hafnaði áfrýjun málsins.
Því má svo við bæta, að tveim árum, áður en til réttarhalda kom, hafði frúin snúið sér til lögreglu með beiðni um, að karlinn yrði fjarlægður af heimilinu.
https://www.nrk.no/nordland/_-mishandlet-ektemannen-i-40-ar-1.8138189
Það er líklega alkunna, að Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) hafa helgað 25. nóvember á ári hverju baráttu gegn kynbundnu ofbeldi, þ.e. kynofbeldi karla gegn konum. Um er að ræða upphafsdag sextán daga baráttulotu. Í nafni jafnréttis gefur að skilja, að SÞ þyki ekki bera nauðsyn til að berjast með viðlíka hætti gegn ofbeldi í garð karla.
SÞ reka reyndar sérstaka áróðursstofnun, Kvenfrelsunarstofunun SÞ (UN Women), með landsdeildir á víð og dreif um heiminn. Karlfrelsunarstofnun innan vébanda þeirra hefur enn ekki séð dagsins ljós.
Stella Samúelsdóttir er forstýra Íslandsdeildar SÞ. Hún tjáir sig jafnaðarlega um nauðsyn þess að trúa konum, sem kveðast hafa orðið fyrir kynofbeldi. Slíkir sakaráberar eru kallaðir þolendur. Hún segir: Við verðum að hætta að rengja trúverðugleika þolenda ...
Fleiri stofnanir SÞ láta iðulega til sín taka í þessu efni, m.a. Upplýsingamiðstöð þess (United Nations Information Centre UNIC). Áður en til lokunar kom árið 2015, beitti Upplýsingamiðstöð Evrópusambandsins sér einnig fyrir málefninu. Hugmyndafræðin um almenna kúgun og ofbeldi karla í garð kvenna endurspeglast líka í alþjóðlegum samningum, sem leiddir hafa verið lög á Alþingi Íslendinga.
Umrædd barátta á sem sé víðtæka skírskotun og er háð á mörgum vígstöðvum. T.d. svaraði forstýra Hörpu, Svanhildur Konráðsdóttir, ákalli Stellu: Harpa verður lýst upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis. Utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, lék aðra fiðlu. Utanríkisráðuneytið geislaði glóaldingulu ljósi þennan merka baráttudag til að minna þjóðina á kynofbeldishneigð karla.
Árið 2019 flutti fyrrum forstýra Kvennaathvarfs og núverandi forsæta ASÍ, Drífa Snædal, barátturæðuna í ljósagöngu Kvenfrelsunarstofnunar SÞ. Hún sagði m.a.:
Ég hef alltaf dáðst að því hvað konur eru friðelskandi. Þrátt fyrir aldalangt misrétti og skipulagða kúgun hafa konur ekki gripið til vopna.
[L]aun kvenna [eru] kerfisbundið lægri en karla, kynbundið ofbeldi er staðreynd og konur ná síður framgangi en karlar. Hið dulda kerfi sem er svo óskaplega erfitt að vinna á köllum við feðraveldi. ...
Feðraveldið birtist í sinni tærustu mynd þegar stjórnmálamenn hampa jafnréttisparadísinni Íslandi á sama tíma og þeir tala um konur eins og nytjahluti og meta þær eftir útliti. Feðraveldið birtist líka þegar minnt er á það að karlar hjálpa körlum að arðræna og svíkja þjóðir úti í heimi
Og feðraveldið birtist þegar minnt er á kynbundið ofbeldi en það verður alltaf að taka fram hið sjálfsagða að ekki allir karlar nauðga. Allir eru fylgjandi jafnrétti í orði en við verðum öll vör við andstöðuna í hinu smáa. Kynjamisrétti er þannig hversdagslegt og svo algengt að ýmsir eiga erfitt með að greina það.
Þegar það er ekki lengur í lagi að vera karlremba opinberlega þá er það gert í lokaðri hópum á börum. Og það eru fleiri samtök sem hasla sér völl á vígstöðvunum kynofbeldis. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), undir forystu Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, lögfræðings (sem tók við af Elínu Björku Jónsdóttur), sendi á frá sér eftirfarandi tilkynningu:
BSRB hvetur sem flesta til að taka þátt í ljósgöngunni og styðja átak gegn kynbundu ofbeldi á vinnustöðum.
Fyrrnefnd forsæta ASÍ hefur áður staðhæft: "Það er alveg horft fram hjá því að 95% þeirra sem beita heimilisofbeldi eru karlar og 95% sem verða fyrir því eru konur." Enn hefur Drífa ekki orðið við þeirri áskorun Þorsteins Sæmundssonar að birta heimildir fyrir slíkri staðhæfingu. Enda eru engar slíkar heimildir til. Staðhæfingin lýsir hugarfari Drífu og kvenfrelsunarhugmyndafræði hennar. Alvöru rannsóknir hafa í áratugi leitt í ljós tiltölulegt jafnrétti kynjanna við barsmíðar á hvoru öðru í nánum samböndum.
Þrátt fyrir blekkingu Drífu og sálufélaga hennar um friðelskandi konur, virðast kynsysturnar leita ýmissa leiða til að klekkja á körlum. Dálætisvopnið um áratugi og aldir er ásökun um kynofbeldi. Þjóðin hefur þráfaldlega orðið vitni að því síðustu árin. En það gæti farið að renna upp fyrir skynsömu fólki, að slíkar sakargiftir sýni oft og tíðum dæmigerðan vopnaburð kvenna í heilagri baráttu þeirra gegn karlillskunni. Drífu verður skiljanlega ekki tíðrætt um hann, enda blinduð af aðdáun sinni á friðareðli kynsystra sinna.
Peter Joyce tæki vafalítið treglega undir orð Drífu. Hann er kennari að mennt, eftirlaunaþegi frá Nýja-Sjálandi. Peter hefur eins og margir aðrir karlmenn þurft að sitja undir fölskum ákærum um kynofbeldi og neyðst til að verja sig gegn feðraveldislöggæslunni. Dóttir vinar hans, tæplega fertug, lagði fram kæru um nauðgun. Hún kærði einnig föður sinn fyrir endurteknar nauðganir. Hann hafði, að sögn dótturinnar, fengið vini í lið með sér til að svívirða hana. Peter var sem sé einn þeirra, enda þótt þau hefðu aldrei sést. Þetta er þekkt tilbrigði við grundvallarstefið.
Peter hefur skrifað bók um reynslu sína, Þurraís. Sönn frásögn um falska nauðgunarákæru (Dry Ice. The True Story of a False Rape Complaint). Hana má fá sem rafbók (Kindle). Peter heldur einnig úti heimasíðu: blackstonesdrum.com. Auk þess hefur hann skrifað blogg um martröðina á thedailyblog.co.nz. Neðanmáls má finna krækju á spjall við Bettina Arndt.
Í Nýja-Sjálandi eru einnig Drífur og Katrínar. Þjáningasystur þeirra setja eins og víða á Vesturlöndum fram kröfur um fleiri kynofbeldisdómsmál gegn körlum, fleiri sakfellingar og þyngri dóma. Stöðugt er sótt að löggjafanum um útþynningu skilgreininga á kynbundu ofbeldi og afléttingu sönnunarfærslu við sakaráburð, þ.e. koma skal til móts við kröfur kvenfrelsunarhreyfinganna um að trúa þolendum. Sú trú skal duga til sakfellingar.
Á grundvelli reynslu sinnar segir Peter m.a. um frumvarp (Sexual violence bill) þess efnis, sem nú bíður afgreiðslu á ný-sjálenska þinginu: Regluna um sakleysi uns sekt sé sönnuð hefur rýrð þegar verið varpað á. Þegar dæmt er í kynafbrotamálum er einungis um þvælt kjörorð að ræða. Og verði fyrirliggjandi frumvarp samþykkt verður á hærri bratta að sækja fyrir saklausa karla, sem sæta ákæru [fyrir kynofbeldi]. Ég tala af skelfilegri reynslu sem saklaus sökunautur. Mér var ekki varpað í fangelsi, en svo hefði hæglega getað orðið eins og á við um ókunnan fjölda saklausra karla.
Peter heldur áfram: Falskar sakargiftir eru algengar, en þeim er lítill gaumur gefinn Jafnvel þegar færðar eru sönnur á óheiðarleika sakarábera er fátítt að þeir séu sóttir til saka vegna opinberra hagsmuna (public interest). [M]ál eins og mitt eru ekki flokkuð sem falskar ákærur, heldur eru þau sett á ís sem opnar ásakanir um kynofbeldi. Það er kaldhæðnislegt, að farið sé með þær sem sannar væru í staðtöluyfirlitinu (tölfræðinni). Það veldur bólgu í þeim misvísandi gögnum, [sem sýna lágt] hlutfall sakfellinga í [kynafbrota]málum og flytjendur frumvarpsins beita fyrir sig.
Það er eingöngu fólk, sem hefur blinda tiltrú á lögreglu og réttarkerfi, sem ekki elur á ótta við ásakanir um kynofbeldi, sem kunna að koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. Það er of einfalt til að bera skynbragð á þann einskæra hrylling, sem gæti verið handan við hornið. Svo ógeðfelldum furðum mun fjölga, verði frumvarpið samþykkt. [Sömuleiðis] verða fleiri saklausnir karlar ákærðir.
Ros Burnett, afbrotafræðingur við Oxford háskólann, höfundur bókarinnar: Rangar ásakanir um kynofbeldi og misnotkun barna (Wrongful Allegations of Sexual and Child Abuse), segir í umsögn um bók Peter:
Við rannsóknir mínar á áhrifum rangra ásakanna hafa mér ósjaldan flogið í hug upphafsorðin í skáldsögu [tékkneska, þýskumælandi skáldsins, Franz] Kafka [1883-1924], Réttarhaldinu [Der Process]. Þau lýsa því skelfilega, en fáránlega andartaki, þegar maður er tekinn höndum, án þess að þekkja ástæðuna. Frásögn Peter Joyce er nýlegt bergmál [slíkrar reynslu], þegar hann, skekinn eftir heimsókn lögreglunnar, minnist laglína í bragi The Doors: Við lifum torkennilega daga, undarlegir dagar hafa elt okkur uppi. Þeir munu tortíma græskulausri gleði okkar.
Hún segir enn fremur: Peter Joyce lýsir á skýran, ljóslifandi, einlægan og aðdáunarverðan hátt hugsunum, sem svo margir aðrir, sem að ósekju hafa verið ásakaðir um hryllilega glæpi, líkast til hafa hugsað.
Í grein sinni um efnið, birt á heimasíðu stuðningssamtaka fyrir fórnarlömb tilhæfulausra ásakanna um misnotkun, FACT (supporting victims of unfounded allegations), segir Ros: Almennt er það svo, að oft og tíðum eru engin áþreifanleg ummerki því til sönnunar, að glæpur hafi verið framinn. Framburður sakarábera er vitnisburðurinn. Og því er treyst, að hann sé góður og gildur, þegar ekki er um andstæðan vitnisburð að ræða. Eins og í öðrum lögsagnarumdæmum (að Skotlandi undanskildu) í Englandi og Wales eru ekki gerðar kröfur til yfirlýsts sökunautar um vitnisburð til stuðnings ásökun. [Hún dugar ein og sér] til málssóknar af hálfu saksóknara og til sakfellingar kviðdóms. (Eftir því sem ég best veit, hafa lög um skoska réttarkerfið nú verið færðar til svipaðs horfs.)
Íslenskir kvenfrelsarar með Katrínu Jakobsdóttur í broddi fylkingar berjast fyrir ofangreindum breytingum á íslenska réttarkerfinu. Katrín kallar það umbætur.
https://www.bettinaarndt.com.au/video/surviving-a-false-historical-rape-allegation/
Bloggfærslur 30. september 2021
Nýjustu færslur
- Rússneska Gyðingabyltingin 1917 og stríð í Evrópu. III: Stríð...
- Rússneska Gyðingabyltingin 1917 og stríð í Evrópu. II: Byltin...
- Rússneska Gyðingabyltingin 1917 og stríð í Evrópu. I: Alþjóðl...
- Stórar, saklausar stelpur og graðir græskugaurar. Kynrándýr
- Síonistabyltingin og gjöfulir Gyðingar. Byltingargyðingaprest...
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021