Við skulum ala á hatri eða fara forgörðum ella. Gleðilega þjóðhátíð

Loft er lævi blandið hvarvetna. Hatur, hatur og meira hatur! Veröldin stefnir í bál og brand einu sinni enn. Rússar hafa verið útnefndir sem fyrsti fjandi Íslendinga og annarra Natóríkja. Það er í sífellu alið á hatri gagnvart þeirri miklu menningarþjóð. Í RÚV og fleiri fjölmiðlum Vesturlanda kveður við áróðursíbylja. Stríðsbrjálæðingarnir þurfa á fjanda að halda.

Hatursáróðurinn í dag minnir um margt á áróðurinn gegn Þjóðverjum áður. Auðjöfrar meðal Gyðinga sögðu Þjóðverjum stríð á hendur á millistríðsárunum. Nokkrum árum síðar tældu hernaðarauðjöfrar Bandaríkjamanna Japana til árása á Perl Harbour undir forustu Franklin Delano Roosevelt (1882-1945). Þannig var hatur Bandaríkjamanna leyst úr læðingi og beint gegn Þjóðverjum og Japönum, bandamönnum þeirra.

Bandaríkjamenn lögðu mikla elju og alúð í áróður sinn. Menningar- og fræðaherdeild var stofnuð í því sambandi, „Rithöfundastríðsnefndin“ (Writers War Board). Fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar, Gyðingurinn, Henry Morgenthau (1891-1967), hafði veg og vanda af nefndinni. Hann hafði einnig sérstakan áhuga á því að rústa iðnaði Þjóðverja (sbr. Morgenthau Plan). Nú hafa Bandaríkjamenn endurtekið leikinn.

Rithöfundurinn, Rex Stout (1886-1975), var fenginn til að veita nefndinni forstöðu. Hann lýsti yfir í magnaðri grein með titlinum; „Við skulum ala á hatri eða fara forgörðum ella“ (We Shall Hate, or We Shall Fail):

„Hatrið, sem ég á við, er djúprætt og langrækin tilfinning gagnvart Þjóðverjum sökum villidýrslegrar árásar þeirra á réttindi og virðingu manna; andstyggð vegna grimmdarlega árása á fólk og eigur hinna saklausu og góðviljuðu [sem og] fyrirlitning vegna hrokafullrar og ósvífinnar kenningar um þýska ofurmennið.“ …

„Ég hata Þjóðverja og skammast mín ekki fyrir það. Í ljósi dáðanna, sem þeir hafa drýgt og með tilliti til þess, sem landsmenn mínir eru tilbúnir til að gera þeim, myndi ég þvert á móti dauðskammast mín, ef ég hataði þá ekki.“ …

„Adolf Hitler ætti ekki að koma á óvart. Glöggur nemandi þýskrar sögu hefði getað, [þegar] árið 1900, séð Hitler í burðarliðnum, fullkominn holdgerving andlegra kauna og djúprættar hugsýki þýsku þjóðarinnar.“ …

Svona hugarórahatursspuna er auðvelt að spinna um allar þjóðir. Málið snýst venjulega um hagsmuni, græðgi, hugarfar og innræti.

Íslendingar fagna í dag fullveldi um áttatíu ára skeið. Lýðveldið fæddist, þegar hatrið, sem Rex Stout dásamar svo mjög, hafði leitt til tortímingar milljónatuga manna, m.a. hundruða Íslendinga.

Um þessar mundir blossar hatrið upp sem bölvað bál. Það bál þarf að slökkva umsvifalaust. Kjarnorkuvopn hafa verið dregin fram. Natóherir eru á leið til Úkraínu og Rússlands. Fólk er myrt tugþúsundum saman í Sómalíu, Kongó, Palestínu/Ísrael og Úkraínu.

Við stofnun fullveldisins var lofað ævarandi hlutleysi, friðarvilja og sáttfýsi íslensku þjóðarinnar. En stjórnmálamenn hennar brugðust.

Gefum okkur gjöf. Losum okkur við stríðshaukanna á Alþingi og í ríkisstjórn, segjum okkur úr stríðsbandalaginu, Nató, lýsum aftur yfir hlutleysi, berum klæði á vopnin, leggjum til gott orð og gjörning. Látum anda Þorgeirs Ljósvetningagoða svífa yfir vötnum.

Börn okkar og barnabörn eiga það skilið, heimsbyggðin öll.

https://www.realnewsandhistory.com/hating-germany/ file:///C:/Users/arnar/Downloads/85071898.pdf


Trójutrukkur Bandaríkjamanna og Breta á Gaza. Af guðlegri geðbilun

Það hlýtur flestum eða vera orðið ljóst, að ekki verði friður á Gaza, fyrr en Ísraelsmenn hafa unnið fullan sigur á Hamas – eða þeirri deild samtakanna (og fleiri slíkra raunar), sem þeir berjast við. Annars væri vopnahlé auðvelt viðfangs. Hætti Ísraelsmenn hernaði og láti alla palestínska fanga lausa, verða gíslar látnir lausir.

En Ísraelsmenn halda ótrauðir áfram með dyggri aðstoð Bandaríkjamanna og Breta. Þegar Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna tókst þó, þrátt fyrir allt, að sameinast um friðartillögu, sem Hamas sætti sig við, brugðust Ísraelar öndverðir við. Stofnun Stór-Ísrael (Eretz Israel) virðist ófrávíkjanlegt markmið og liður í drottnunaráætlun Bandaríkjamanna – með stuðningi Nató – í Miðausturlöndum.

Áætlun þessari var fagnað á ráðstefnu í lok janúar, þar sem þátt tóku tólf starfandi ráðherrar í stjórninni. Slík áætlun er í samræmi við hugmyndafræði Gyðingafasistans og aldarvinar Benito Mussolini (1883-1945), Rússans, Vladimir (Ze‘ev) Jabotinsky (1880-1940).

Ze‘ev staðhæfði fullum fetum eins og Síonistar um þessar mundir, að Guð hefði gefið þeim land það, sem Stór-Ísrael skal spanna, þ.e. drjúgan skerf Miðausturlanda. Dráp og hreinsanir í Palestínu á Krist- og Múhammeðstrúarmönnum eru því taldar Guði þóknanlegar. (Hér má hlusta á boðskap Brjálaða-Bensa: https://x.com/partisangirl/status/1771737207528734813?s=46&t=fg8tvLgoX9gg2blXwO8RlA )

Boðskapnum trúa kristnir Síonistar einnig. Þeir eru ekki síður geðbilaðir eins og t.d. Nikki Haley, sem skrifaði á drápsflaugar Ísraela: „Tortímið þeim [íbúum á Gaza]. Annar örviti af þingi Bandaríkjanna, Lindsay Graham, hvatti til innrásar Bandaríkjamanna í Hag, ef Alþjóðadómstóllinn dirfðist að hreyfa við Ísraelum. Svona fólk er alþjóðaauðvaldinu, sem stjórnar bak við tjöldin og ásælist náttúruauðlindir svæðisins, auðvelt viðfangs.

Því má skilja, hvers vegna aðiljar forðist að semja um frið. Friður er eitur í þeirra beinum. Síðasta hernaðarafrek Ísraela, nú sem endranær í samvinnu við Bandaríkin og Breta, var innrás í flóttamannabúðirnar, Nuseirat. Í kjölfar sprengjuregns tóku stríðsmenn traustataki trukka nokkra, sem notaðir eru til flutnings hjálpargagna. Þeir stukku út úr þeim með alvæpni, náðu að drepa þrjá gísla, frelsa fjóra, drepa um 270 Palestínumenn og særa um 700.

Þetta þótti afrek svo lofsamlegt, að Ísraelar dönsuðu á götum úti eins og Palestínumenn gera einnig gjarnan, þegar þeim tekst á klekkja á óvininum. Varnarmálaráðherrann, Yoav Gallant, réði sér vart fyrir fögnuði og sagði þessa aðgerð „einhverja mestu og sérstökustu hetjudáð, sem hann hefði orðið vitni að á tæpri hálfri öld í varnargeiranum.“ Slíkt fláræði er raunar talið afbrot í hernaði.

En Ísraelum flökrar ekki við að brjóta alþjóðalög, skráð og óskráð, frekar en að gefa skít í samþykktir Öryggisráðsins og alþjóðlega dómstóla. Í því efni keppast þeir um heimsmetið við Bandaríkjamenn.

Hrifning unnenda Ísraelsríkis vekur óneitanlega athygli. Olaf Scholz taldi aðgerðina vera „vonarneista,“ Rishi Sunak „létti óskaplega.“ Það fylgir sögunni, að gíslarnir voru lofsamlega vel haldnir eins og þjáningabræður og -systur, sem áður var sleppt úr haldi, og báru ofbeldismönnum sína góða sögu – si svona eftir atvikum.

Sömu sögu segja fráleitt höfundar skýrslu, sem unnin var á vegum alþjóðlegs og óháðs rannsóknarráðs, sem starfar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (UN Commission of Inquiry – COI). Þar eru ísraelsk yfirvöld sökuð um stríðsglæpi; svelti, dráp af ásetningi, þvingunarflutninga, kynofbeldi, pyndingar og ómannúðlega meðferð fólks.

Ástandið í Miðausturlöndum verður sífellt alvarlegra. Vopnasendingar frá Bandaríkjamönnum og Bretum halda áfram, enda þótt bandarískur almenningur sé þeim afhuga og andsnúinn.

Það kynni að skýrast af því, að í Bretlandi þiggur um fjórðungur þingmanna mútur frá Ísrael eða fjárveitendum þeirra. Í Bandaríkjunum þiggja þingmenn og forseti einnig mútur, bæði frá Ísrael beint, svo og „Ráðinu um opinber málefni Ísraels og Bandaríkjanna“ (American Israel Public Affairs Committee – AIPAC), hagsmunasamtökum Gyðinga í þágu Ísraels. T.d. hefur hver og einn lýðveldisflokksmaður (Repúblikani) sérstaka „Ísraelsfóstru.“ Talið er að Jósef forseti hafi þegið um tólf milljónir dala á ferli sínum.

Ísraelar eru kokhraustir. Það á við um almenning, stjórnmálamenn og her. Allir þekkja vafalítið viðhorf Brjálaða-Bensa. En það eru fleiri brjálaðir en hann. Einn herforingja hans sagði t.d.:

„Við stefnum ótrauðir að heimstyrjöld. Þess vegna ættu Ísraelar ekki að halda aftur af sér og grípa til róttækustu aðgerða [í stríðinu á Gaza]. Þær verða í baksýnisspeglinum litnar mildum augum, eftir þau grimmdarverk í heimstyrjöldinni, sem í vændum er.“ Því er auðskilið, hvers vegna Brjálaði-Bensi gerði samninga við vini og samherja í Hamas um tálbeituárás á landa sína 7. október í fyrra. Síðan hefur hann lagt sig fram um að etja Bandaríkjunum og Íran saman í þeirri von, að úr verði stríð allsherjar.

Það kvað hins vegar við annan tón hjá Itzak Brik, uppgjafahershöfðinga:

„Hagkerfið er í rúst, alþjóðlegra viðskiptaþvingana gætir í æ meira mæli, samfélagið er í upplausn eins og herinn og alþjóðatengsl. Við heyjum stríð án nokkurs tilgangs; okkur er ókleift að sigrast á Hamas og þeir eru í óða önn að undirbúa sig fyrir umfangsmikið stríð.“ Ísak mun vafalítið reynast sannspár.

Ísraelsk yfirvöld virðast ekki skynja sjálfsvígið, sem þau eru í þann mund að fremja. Hisbolla í Líbanon hefur þegar gert nyrsta hluta landsins óbyggilegan og lamað nokkrar herstöðvar í landinu. Ansarullah (Hútarnir) í Jemen berjast hugdjarfir gegn Ísrael, Bandaríkjunum og Bretum á nálægum hafsvæðum.

Andspyrnuhóparnir í Sýrlandi og Írak eru í þann mund að samhæfa aðgerðir sínar gegn bandarísku hernámsliði í löndum sínum, svo og Ísrael. Íranar gerðu Ísrael og Bandaríkjunum ljóst, að þeim sé í lófa lagið að senda eldflaugar heim í ísraelskar stofur.

Aukin heldur mætti ráða þannig í orð Vonda-Valda Putin, að hann íhugi að væða andspyrnuríki Ísraels ofurflaugum. Þær bíða líka tilbúnar á Kúbu við stofudyr Bandaríkjanna eins og 1962.

Hvenær ætli almenningur á Vesturlöndum rísi upp gegn geðbiluðum stríðshaukum?

https://informationclearinghouse.blog/2024/06/12/the-day-the-west-defined-success-as-a-massacre-of-270-palestinians/15/ https://steigan.no/2024/06/nikki-haley-besoker-israel-skriver-gjor-slutt-pa-dem-pa-israelsk-artillerigranat/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.declassifieduk.org/gaza-revolt-in-the-foreign-office/ https://www.mintpressnews.com/follow-money-israel-linked-billionaires-silenced-campus-gaza-protests/287431/ https://www.jpost.com/israel-news/article-803701 https://www.declassifieduk.org/60-british-war-planes-have-landed-in-israel-since-gaza-bombing-began/ https://www.declassifieduk.org/britain-greenlit-dozens-of-arms-deals-with-israel-amid-gaza-war/ https://www.youtube.com/watch?v=cIdwTn3eVO8 https://www.globalresearch.ca/israel-done-americans-past-week/5858524 https://informationclearinghouse.blog/2024/05/30/nikki-haley-writes-finish-them-on-israeli-bomb-bound-for-gaza/10/ https://libertarianinstitute.org/news/israeli-knesset-considers-law-that-will-label-un-aid-agency-as-terror-group/ https://steigan.no/2024/05/usas-molo-i-gaza-brot-sammen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/way-new-palestine/5858264 https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/us-threatens-icc-israel-gaza?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=144987481&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/stotter-folkemord-for-a-stoppe-multipolaritet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/den-libanesiske-motstanden-har-blindet-israel-i-nord/?utm_source=substack&utm_medium=email https://mosaicmagazine.com/essay/israel-zionism/2017/06/the-forgotten-truth-about-the-balfour-declaration/ https://steigan.no/2024/06/tropper-gjemte-seg-inne-i-hjelpebil-for-en-dodelig-amerikansk-israelsk-operasjon-i-nuseirat/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/den-forste-jemenittisk-irakiske-fellesoperasjonen-mot-vapensendinger-til-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/den-libanesiske-motstanden-har-blindet-israel-i-nord/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/tropper-gjemte-seg-inne-i-hjelpebil-for-en-dodelig-amerikansk-israelsk-operasjon-i-nuseirat/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/den-forste-jemenittisk-irakiske-fellesoperasjonen-mot-vapensendinger-til-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.commondreams.org/news/sanders-boycott-netanyahu-speech https://beeley.substack.com/p/israel-violates-syrian-air-space?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=145285059&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://fadilama.substack.com/p/israel-the-jewish-settler-colony?utm_source=cross-post&publication_id=2335947&post_id=145188349&utm_campaign=716517&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2024/05/28/how-much-longer-will-the-cia-and-mi6-be-able-to-employ-their-dirty-tricks-together-without-retribution/?mc_cid=5bdc61cfef&mc_eid=5cd1ec03b1 https://www.globalresearch.ca/israel-launch-losing-battle-hezbollah/5859534?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://www.globalresearch.ca/explosion-middle-east-only-one-strike-away/5840816?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://english.almayadeen.net/news/politics/-israel--would-lose-war-against-hezbollah-within-24-hour--re https://www.youtube.com/watch?v=5XZM55XCTxU&t=663shttps://www.youtube.com/watch?v=5XZM55XCTxU&t=663s https://www.globalresearch.ca/israel-prepares-open-second-front-north/5859473 https://www.unz.com/article/the-extreme-hyper-ethnocentrism-of-jews-on-display-in-israeli-attitudes-toward-the-gaza-war/ https://www.globalresearch.ca/twilight-western-settler-colonialist-project-palestine/5859487 https://beeley.substack.com/p/us-justifies-zionist-collateral-damage?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=145492964&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://mondoweiss.net/2024/06/i-heard-all-of-my-friends-last-breath-testimonies-from-the-nuseirat-massacre/ https://www.counterpunch.org/2007/03/30/israel-s-last-chance/ https://steigan.no/2024/06/flertallet-i-usa-sier-nei-til-a-sende-vapen-til-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.declassifieduk.org/israel-lobby-funded-a-quarter-of-british-mps/ https://www.youtube.com/watch?v=74ZA-GdeQP4 https://www.scribd.com/document/740568401/Cbsnews-20240609-SUN-NAT#1fullscreen=1 https://english.almayadeen.net/news/politics/-bodies-were-in-pieces--scattered-in-the-streets---nuseirat https://www.youtube.com/watch?v=sPeL5m22JJ4 https://english.almayadeen.net/news/politics/-bodies-were-in-pieces--scattered-in-the-streets---nuseirat https://www.youtube.com/watch?v=sPeL5m22JJ4 https://www.voltairenet.org/article220965.html#google_vignette https://www.globalresearch.ca/biden-gaza-ceasefire-fiasco/5859870 https://informationclearinghouse.blog/2024/05/19/how-washington-protects-israel/13/ https://steigan.no/2024/06/det-nordlige-israel-er-under-massivt-angrep/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/palestine-apartheid-stolen-lives-and-land-history-erased-united-nations-deaf-mute/5601586 https://www.globalresearch.ca/pentagon-involved-nuseirat-massacre/5859886 Viðbót https://english.almayadeen.net/news/politics/palestinian-resistance-s-response-to--israel-s--ceasefire-pr https://informationclearinghouse.blog/2024/06/14/john-mearsheimer-the-biden-admin-is-lying-about-the-cease-fire-deal-hamas/12/ https://www.globalpolitics.se/tank-om-krigen-i-gaza-och-i-ukraina-eskalerar/ https://www.yahoo.com/news/latest-us-national-security-adviser-092322773.html https://www.mintpressnews.com/us-direct-involvement-israel-nuseirat-massacre/287571/ https://www.youtube.com/live/A4fll7taZTw?t=63s


Við fljótum sofandi að feigðarósi. Stríðsgeðveiki og drápsdýrkun

(Ole Petter) Arnulf Överland (1889-1968) var norskt ljóðskáld, sem skrifaði á millistríðsárunum áhrifamikið kvæði: „Þú skalt ekki sofa“ (Du må ikke sove). Ljóðið var ort 1937, þegar stríðsblikur voru á lofti. Hann bauð okkur að leggja ekki aftur augun, halda vöku okkar. Arnulf var dæmdur til fangabúðavistar fyrir andófið.

En við höfum því miður ekki farið að ráðum skáldsins. Við fljótum sofandi að feigðarósi.

Niðurlag ljóðsins er svona:

„Ég hugsaði með sjálfum mér: Nú er eitthvað í vændum. Við erum heillum horfin – Evrópa stendur í björtu báli.“

Ljóð Arnulf hefur orðið hinni snjöllu Evu Thomassen innblástur að hugvekju, sem á brýnt erindi til okkar. Stríðsgeðveikin og drápsdýrkunin er meginstef greinarinnar. Hér er stiklað á stóru:

Stjórnmálamenn um þessar mundir lifa og hrærast í hugarheimi ofsóknarbrjálæðis sjálfhverfra, vitstola valdasjúklinga. Þeim er fyrirmunað að iðka stjórnmál í þágu hins góða. Þeir þjást af endurtekningakvilla (ekkolali, echolalia). Þeir éta upp orð hvers annars. Þeir vilja tæla okkur inn í stórmennskubrjálæði bandarískra leiðtoga.

Veiruvitfirringin var prófsteinninn á það, hvort unnt væri að tæla okkur til dráps- eða dauðadýrkunar. Við urðum svo hlýðin [hlýða Víði], að við báðum leyfis til að taka þátt í eigin jarðarför. Meðan Englandsdrottning satt í kirkju ein og yfirgefin með grímu fyrir vitum sér við jarðarför eiginmannsins, sat Boris Johnson að sumbli í Downingstræti. Bóluefnið, sem þvingað var í okkur, var rottueitur.

En rotturnar sluppu. Hinir smituðust af tilbúinni geðveiki, sem ekki virðist slota. Og það finnast ekki bóluefni gegn henni. Við vorum eins og hlýðnir hundar. Leiðtogarnir tóku okkur steinbítstaki. Flott frumsýning. Leiðtogarnir stóðu sig með ágætum; áhrifaríkari heilaþvottur hefur aldrei sést í veraldarsögunni.

Svo kom stríð. Þá lauk veiruvitfirringunni skyndilega. Eins og áður skyldum við lúta sjúklegum bönnum. Það er talin varhugaverð grimmd að hugsa tvær hugsanir samtímis. Við því er engin lækning. Þannig fólk skal útlægt gert. Það skal „bólusetjast.“ Nú er það löggan, fjölmiðlar, stjórnmálamenn og samtök, sem sjá um verkefnið. Veikindin eru fólgin í röngum hugsunum.

Ein þessara samtaka er „Helsingforsráðið“ (Helsingforskomitteen). Það eru „frjáls félagssamtök“ (non-governmental organization), sem þiggja fé frá norsku ríkisstjórninni. Þeirra verkefni er m.a. að þefa uppi rússneska stríðsglæpi í Úkraínu. Þau hafa fengið sjö (norskar) millur til þess arna.

Leiðtogum okkar hefur tekist að telja okkur trú um, að dauðinn sé lífinu betri, að stríð sé eftirsóknarverðara en friður. Þeim hefur tekist að særa fram hatrið í sálu okkar. Þeir hrópa einum rómi á mörgum tungum; „hættan í austri.“ Kínverjum er gert að styðja stríðið í Úkraínu eða eta það, sem úti frýs.

Sagan er fölsuð. Einu sinni var það svo, að Rússar hafi unnið aðra heimstyrjöldina. Nú er það ólöglegur forseti Úkraínu sem situr með sigurpálmann í höndunum. Einu sinni vöktu nasistar óhug. Nú vopnvæðum við þá, köllum hetjur og fylgjum þeim til grafar.

Hvernig tókst leiðtogunum að teyma okkur inn í þessa geðveiki, sem er í þann mund að eyðileggja lýðheilsu Evrópumanna? Og ekki síst Evrópu sjálfa. Leiðtogarnir halda hópinn og kyssa og kjassa hvern annan. [Fáir eru iðnari við þetta en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Katrín Jakobsdóttir.] Þeir halda Kænugarðsforsetanum þétt að brjósti sér.

Kjörtímabili Volodomyr, „rússneska“ Gyðingsins, rann út í maí. [Rússneska er hans móðurmál.] Kosningar eru að sönnu mikilvægar, en ekki í þetta sinnið. Hann hefur ekki fleiri hermenn til ráðstöfunar. Þeim var tortímt. Það kemur þó ekki að sök. Við beitum bara drápsvænni vopnum. Við ætlum okkur að vinna stríðið, enda þótt það sé ógjörningur. Við hlöðum skattfé á Volodomyr í stað þess að verja því til þarfari verkefna.

Látum ekki teyma okkur í blindni af þeim drápssjúku. Skyggnumst aftur í söguna, áður en við rýnum inn í framtíðina. Spyrjum okkur: „Er vopnaskak leiðin til friðar“ eins og Jens Stoltenberg endurtekur í síbylju.

Frá eigin brjósti: Það eru leiðtogar í suðri, sem kallast á við Evru í norðri. Viktor Orban, Robert Fico og nú forsætisráðherra Serbíu, Aleksander Vucic. En hann er vondaufur; ég heyri bara stríðsæsingatal, segir hann réttilega. Friður er ekki á dagskrá. Lestin hefur yfirgefið lestarstöðina. Það er útlit fyrir allsherjarstyrjöld innan fjögurra mánaða, ef enginn grípur í taumana.

Sofnið ekki á verðinum, áminnir Eva okkur.

https://www.globalresearch.ca/train-left-station-no-one-stop/5859967 https://www.globalpolitics.se/tank-om-krigen-i-gaza-och-i-ukraina-eskalerar/ https://www.boktips.no/dikt/norske-dikt/du-maa-ikke-sove-av-arnulf-overland/ https://www.youtube.com/watch?v=D8NHv8n9yP0 https://steigan.no/2024/06/du-ma-ikke-sove-ledes-norsk-og-europeisk-politikk-fra-et-galehus/?utm_source=substack&utm_medium=email


Úkraína er gulls ígildi: Barnaræktun og líffæranám

Bandaríski þingmaðurinn, Lindsey Graham, lýsti því nýverið yfir, að Úkraína væri „gullnáma,“ sem fyrir alla muni þyrfti að koma í veg fyrir að félli í hendur Rússa og Kínverja.

En Úkraína er gulls ígildi á margan hátt. Þar drýpur smér af hverju strái. Málmar, gas og olía í jörðu er einungis ein þeirra auðlinda, sem landið býr yfir. Í gróðurmoldinni „vex allt,“ nema hermenn og vopn. Alheimsauðvaldið hefur þegar komist yfir verulegan hluta jarðnæðis, m.a. með hjálp löggjafar, sem auðveldar fjárfestingar auðvalda Vesturlanda. Þar er leikinn sami leikurinn og í Afríku og Bandaríkjunum og víðar. Sæðið kemur úr „erfðabreytingasæðisbönkum“ alþjóðafyrirtækjanna. Monsanto er þar áberandi.

Úkraínska þingið hefur líka samþykkt löggjöf þess efnis að skera megi, án leyfis, líffæri úr deyjandi eða látnum hermönnum. Þau eru ýmist flutt úr landi eða ígræðsluteymi birtast á vettvangi. Það eru óneitanlega uppgrip. Um hálfri milljón ungra karla hefur verið fórnað á lýðræðis- og frelsisaltari Vesturlanda. Mömmur og eiginkvinnur mótmæla.

Líffæri eru líka numin úr börnum, ýmist brottnumdum eða sérræktuðum í því skyni. Úkraínskar konur hafa af þessu nokkrar tekjur, enda þótt verksmiðjueigendurnir, græði mest. Það eru meira að segja haldin barnauppboð fyrir barnaníðingana. Börn eru - eins og hlutar úr hermönnum - útflutningsvara í Úkraínu. Barnavændi er þar atvinnugrein eins og alls konar vændi reyndar. Úkraína er eins og Ísrael, paradís barnaníðinga, sbr. fréttir í Kænugarðspóstinum (Kiev Post) þar um og Jórsalapóstinum (Jerúsalem Post) hinum megin.

RÚV flytur okkur aldrei fréttir af þessu hátterni, en er hins vegar tíðrætt um ásakanir Volodomyr um þann glæp Rússa að bjarga munaðarlausum börnum frá Donbass (sem nú er, samkvæmt vilja íbúanna og í samræmi við alþjóðarétt, rússneskt landsvæði) undan stríðsátökum. (Alþjóðaglæpadómstóllinn virðist líta svo á, að glæpur hafi verið framinn og hefur gefið út handtökuskipun á hendur Vladimir Putin m.a.)

Rússar hafa aftur á móti bent á viðbjóðslegt athæfi gegn börnum í Úkraínu, m.a. meint kynofbeldi Hunter Biden, sonar forseta Bandaríkjanna, Jósefs. Hann er heldur ekki barnanna bestur í þessu tilliti. Jósef kallar starfsbróður sinn í Rússlandi, Vonda-Valda, glæpamann. Ætli það sé þess vegna, að Vondi-Valdi ýjar að því að birta myndskeið af Hunter (að öllum líkindum) við iðju sína. Hunter og pabbi gamli þénuðu sömuleiðis vel á efnahagslegri spillingu í Úkraínu.

Misþyrmingar barna og sala þeirra er reyndar alþjóðleg eða vestræn atvinnugrein. Ógnvænlegur fjöldi barna hverfur sporlaust á hverju ári. Sú mynd afdrifa þeirra verður æ skýrari, að þau séu notuð til öfuguggakynlífis og blóðfórna auðkýfinga og áhrifamanna í siðspilltum og hnignandi Vesturlöndum. Blóðdrykkja er stunduð. Blóðið er einnig notað til framleiðslu á örvandi töflum.

Bandaríkjaforsetar eru áberandi í þessu sambandi, rétt eins og Hillary Clinton, sem deildi þeim örlögum með Katrínu Jakobsdóttur að verða aldrei forseti. Það vakti töluverða athygli, þegar upp komst, að einhverju leyti, um óþverrahjörðina í kringum Jeffrey Epstein. Hann átti samstarf við ísraelsku leyniþjónustuna, Mossad, eftir því sem best verður að komist.

Hversu marga milljarða gefa íslenskir skattgreiðendur til úkraínska fyrirmyndarþjóðfélagsins, sem heldur í heiðri vestræn gildi og lýðræði og berst fyrir frelsi okkar?

https://rumble.com/v50lbl6-hillary-clinton-facing-life-in-prison-for-crimes-against-children.html https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/ukraine-12-trillion-minerals-west-china-russia?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=145596404&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v518gzb-putin-vows-to-release-sickening-hunter-biden-child-sex-tapes-that-will-end-.html https://rumble.com/v4rwvn6-sickening-tape-of-bernie-sanders-raping-boy-surfaces-in-new-pizzagate-files.html https://rumble.com/v2t29jy-tanks-for-kidneys-rt-documentary-crimesagainsthumanity.html https://rumble.com/v5163qi--organ-harvesting-ukraine-has-a-dark-secret-and-ukrainian-families-are-dema.html?e9s=rel_v1_b


D-dagurinn, sjálfsdýrkun Vesturlanda og kjarnorkusjálfsvígið

Einu sinni var vondur karl, sem hélt Adolf Hitler (1889-1945). Hann fékk þá flugu í höfuðið að drepa alla Gyðinga í veröldinni og leggja undir sig heiminn. Adolf sagði því öðrum Vesturveldum stríð á hendur.

En þá kom krókur á móti bragði. Vesturveldin, sem búa við lýðræði, frelsi og góða siði, urðu fá við og snerust til varnar gegn Andstyggilega-Adolfi. Ungum karlmönnum var milljónum saman smalað í þjálfunarbúðir til að verja lýðræði og frelsi Vesturlanda.

Því næst gersigruðu Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn, andskotann, Adolf. Naglinn í líkkistuna var innrásin í Normandí á Frakklandi 1944. (Hún kostaði 4.414 karlmenn lífið.)

Svona er nýja sagan um aðra heimstyrjöldina í grófum dráttum. Nýlega héldu Vesturveldin mikla athöfn til minningar um atburðinn og kynntu þar nýju heimssöguna. Það gleymdist alveg að minnast á það, að Bretar og Frakkar sögðu Þjóðverjum stríð á hendur, þrátt fyrir ítrekaðar tillögur Þjóðverja um frið.

Athöfnin var að mörgu leyti grátbrosleg. Jósef elliæri Biden var aðalleikari dagsins, eins konar skemmtikraftur. Karlanginn reyndi margsinnis að setjast á ímyndaðan stól, milli þess, að hann flutti söguræðu sína.

Fjarvera Rússa í minningu og athöfn var eftirtektarverð – og ekki síður, að Volodymyr Zelensky og frú skyldu vera viðstödd. Í söguritun búktalara Jóa hefur forseta Rússa, Vladimir Putin eða Vonda-Valda, nú verið skipað á stall með Adolfi Hitler. Yfirhershöfðingi bandamanna, verðandi forseti Bandaríkjanna, Dwigth David Eisenhower (1890-1969), kallaði Rússa í annarri heimstyrjöldinni „hina voldugu (great) bandamenn,“ og þá kallaði hann „sameinuðu þjóðirnar.“ Baráttunni við heri Adolfs er aftur á móti nú líkt við baráttu Nató við rússneska herinn. Frumlegt með afbrigðum!

Slátrunin á strákunum á Normandí skipti ekki sköpum í stríðinu. Þjóðverjar höfðu þá þegar tapað stríðinu í raun á austurvígstöðvunum. Því var harla takmörkuð mótstaða í Evrópu 1944 og 1945. George Smith Patton (1885-1945) hafði þess vegna í hyggju að æða austur um álfuna og m.a. hertaka Berlin.

En það bannaði nefndur yfirhershöfðingi. Það hafði nefnilega verið gert samkomulag við Josef Stalin (1878-1953) um, að Rauði herinn, vígvæddur af Vesturveldunum – einkum Bandaríkjunum – skyldi hertaka Berlin.

Rauði herinn frelsaði einnig fanga Þjóðverja úr fangabúðunum í Póllandi, en þar voru flestar þeirra. Dráps-, misþyrmingar- og nauðgunarfýsn rauðliðanna, samkvæmt hvatningu og skipun Lazar Moiseyevich Kaganovich (1893-1991), sem stundum hefur verið kallaður Gyðingur Jósefs, var hryllileg. Ótaldir eru þeir varnarlausu borgarar – ekki síst konur – sem urðu fórnarlömb þessa hryllings.

En Rússar létu hjá líða að bjarga þýskum uppgjafahermönnum úr fangabúðum Bandaríkjamanna. Þar voru drepnar um 1.2 milljónir Þjóðverja til viðbótar þeim milljónum almennra borgara, sem Rauði herinn og flugher Breta og Bandaríkjamanna, drap með köldu blóði með gífurlegu sprengjuregni. T.d. féllu jafnmargar sprengjur í Dresden og Hamborg og Brjálaði-Bensi hefur nú varpað yfir íbúa á Gasa, um 70.000 tonn. (London er reyndar meðtalin.)

Það er heldur hvergi minnst á þær um 27 milljónir Rússa, sem drepnar voru í stríðinu. Margfalt fleiri kristnir Rússar voru drepnir en Gyðingar af ýmsum þjóðernum. Drápum á þeim er hins vegar stöðugt haldið á lofti af „Bandamönnum,“ þ.e. drápum Þjóðverja sérstaklega. Króatar t.d. sleppa oftast, en Þjóðverjar „björguðu“ um 40.000 þeirra úr „sláturhúsi“ Króata og fluttu í þýskar fangabúðir.

Helförin (holocaust) eru dráp Þjóðverja á Gyðingum kölluð. Söfn um hana spretta upp eins og gorkúlur. Þeir, sem gera athugasemdir á grundvelli staðreynda um þessa áróðurssögu, eru kallaðir helfararafneitendur. Aðrar „helfarir“ þykja ekki ýkja merkilegar eins og t.d. helför Armena, sem Tyrkir stóðu fyrir. Þar var drepin um ein milljón manna.

Helförin er reyndar orðinn eins konar iðnaður og enn er haldið á loft eldgamalli áróðurstölu frá því löngu fyrir stríð, þ.e. 6 milljónum útrýmdra Gyðinga. Í síðustu pólsku rannsókninni var hampað tölunni 1.2 milljónum eða svipuðum þeim fjölda þýskra hermanna, sem lést í bandarískum fangabúðum.

Rauði krossinn segir 271.000 hafa farist í fangabúðum Þjóðverja, flestir úr veikindum. Herlögregla Bandamanna í stríðslok sagði engin ummerki um kerfisbundna útrýmingu fanga í þessum búðum.

Skjalið frá Wahnsee um „Endlösung“ (lokalausnina, þ.e. útrýmingu Gyðinga) virðist vera klaufalega falsað. En fiskisögurnar fljúga engu að síður um útrýmingarbúðir fyrir Gyðinga.

Þá eru ótaldir þeir þýsku uppgjafahermenn, sem vesluðust upp í Gúlaginu sovéska. Það er einnig sjaldan minnst á um það bil 70.000 Frakka, sem Bandamenn sprengdu í tætur. Sömuleiðis er farið hljótt með kjarnorkusprengjur Bandaríkjamanna, sem grönduðu hundruðum þúsunda Japana. Það voru skelfileg grimmdarverk unnin í styrjöldinni, bæði af Öxulveldunum og Bandamönnum.

Það er sorglegt til þess að vita, að þessar mannfórnir – eins og í fyrsta heimsstríði – hafi verið færðar á altari alþjóðlegs peningaauðvalds. Gyðinglegur hluti þess er áberandi. Nú má segja, að þriðja heimstyrjöldin sé í raun hafin fyrir atbeina sömu afla.

Sömu leiðtogar og minnast dauðra drengja í Normandí nú hvetja til frekari stríðsátaka. Um hálf milljón ungra karla liggur nú þegar í valnum bara í Úkraínu fyrir utan alla rússneska kynbræður þeirra. Þá eru ótaldir almennir borgarar. En leiðtogarnir vilja enn dauða og eimyrju. Heróp þeirra er það sama og Þórdísar Kolbrúnar; stríð, stríð, meira stríð.

Bandamenn eða Nató hafa tekið þátt í stríðsátökum í Úkraínu frá upphafi stríðsins og stjórnað ma. eldflaugunum, að mestu innan landamæranna. En nú hefur öllum takmörkunum verið létt af vopnaburði Úkraínumanna.

Langdrægar eldflaugar hafa þegar verið sendar langt inn í Rússland og fleiri eru á leiðinni, samkvæmt leiðtogunum. Aðflutningsleiðir hergagna og herliðs frá Natólöndunum til Úkraínu og Rússlands eru skipulagðar. Rússar vara við. Vondi-Valdi hefur tekið af sér sikihanskana.

Bandaríkjamenn sögðu upp samningum um að beita ekki langdrægum kjarnavopnum. Rússar undirbúa notkun bæði skamm- og langdrægra vopna. En þeir búa líka yfir ofurflaugum (hypesonic), sem bandamenn hafa ekkert svar við. Vondi-Valdi talar um ósamhverfa (asymmetric) svörun, þ.e. að útvega öðrum andstæðingum Vesturvalda þessi viðbjóðslegu vopn.

En sjálfum yrði þeim ekki skotaskuld úr því að senda óvinveittustu þjóð Vesturlanda, Íslendingum, heita kveðju. Þá þarf ekki að spyrja að leikslokum.

Stríðsóvitanir á Íslandi næðu ekki einu sinni að rumska við slíkt kjarnorkusjálfsvíg.

https://realnewsandhistory.com/anyt-06-06-24/ https://www.globalresearch.ca/watching-washington-foment-nuclear-war/5858854 https://www.globalresearch.ca/watching-washington-foment-nuclear-war/5858854 https://english.almayadeen.net/news/politics/far-more-bombs-dropped-on-gaza-than-london--dresden--hamburg https://www.globalresearch.ca/red-army-operation-bagration-not-d-day-landings-broke-back-german-fascism/5859026 https://www.visir.is/g/20242581657d/tengdi-stridid-i-ukrainu-vid-bar-attuna-gegn-fas-ismanum?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR10UbNTipae4Tj7E0GlhngxoZKOmdv6F-7xSt2lfyl5y9W0UVqJmPsxZsc_aem_AcTKpDjD41EtDtcm0rLmgTcPqyFg8VEU_L4VAc_noNMdSdCHEeq4-EKkc2qw1TKw8jBdfrf6tEz0RcsB3NT8oLUe https://denniskucinich.substack.com/p/d-day-1944-e-day-2024-and-the-advancement?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=145421730&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Torg hins himneska friðar og himnasælan í lyginni

Þeir, sem komnir voru til vits og ára fyrir rúmum þrem áratugum síðan reka vafalaust minni til „fjöldamorðanna“ á Torgi hins himneska friðar í Bejing, dagana 2-6. júní 1989. Alþjóðlegir fjölmiðlar eða fréttaveitur – með þær bandarísku og bresku í forystu eins og nú – sögðu okkur frá hryllingsverkum kínverskra yfirvalda, sem notuðu skriðdreka til að fletja lifandi, saklausa stúdenta.

Alið var á andúð gagnvart Kínverjum eins og Þjóðverjum áður. Nú hafa Rússar tekið við þessu nauðsynlega hlutverki í vitundar- múgsefjunarstjórnun yfirvalda á almúga Vesturlanda. Nató foringjarnir hafa samþykkt, að Rússar séu helstu óvinir bandalagsins. Kínverjar koma þar næst á eftir. Bandarísk yfirvöld undirbúa í gríð og erg stríð gegn þeim líka.

En það er eins með þessi morð og gereyðingarvopn Saddam Hussein, dráp írakskra hermanna á reifabörnum í Kúvæt, vændisbúr japanska hersins í Kóreu, og svo mætti lengi áfram telja. Þetta eru lygar. Þeim er beitt til að rugla fólk í ríminu, brengla vitund þess og búa til andstæðing, svo réttlæta megi stríð. Ritskoðun og brengluð kennsla tryggir heilaþvottinn!

Því miður er það svo, að lygin verður svo snar þáttur í jafnvægi sálarinnar, að fáir leggja sig eftir hinu sanna og fyrtast jafnvel við ábendingar og fræðslu. Hugarróin er mikilvæg.

Eftir því sem næst verður komist var enginn drepinn á Torginu. Hins vegar fórust um tvö hundruð mótmælendur og hermenn í götuóeirðum, sem mótmælendur áttu frumkvæði að.

Bandaríska og breska leyniþjónustan sá sér leik á borði, þegar ungir flokksmenn mótmæltu Kínverska byltingarflokknum á Torginu himneska, og blésu lífi í glæðurnar í samvinnu við kínverska málaliða sína og flugumenn, m.a. Chai Ling (f. 1966), sálfræðinema við Bejing háskóla.

Chai, sem var einn af forystumönnum stúdentanna, hefur síðar ljóstrað því upp, að mótmælakænskan hafi falið í sér að ögra yfirvöldum ofbeldis. Að hennar dómi þurfti blóðið að renna til að vekja kínverska alþýðu til vitundar um kúgun sína. Hún var tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels 1990.

Chai hlaut fyrir þjónustuna heiðursgráðu frá Princeton háskólanum í Bandaríkjunum. Öðrum óeirðaseggjum var skutlað til Bandaríkjanna, samkvæmt áætlun, „Gulfuglinum“ (Yellow bird).

Yfirleiðtogi óeirðaseggjanna var hins vegar Zhao Ziyang (1926-2005), aðalritari kínverska byltingarflokksins frá 1987, þekktur stuðningsmaður Alheimsefnahagsráðsins (en þar er George Soros mikilvægur koppur í búri) og ákafur talsmaður samruna manna og véla (transhumanism).

Zhao komst til áhrifa fyrir tilstuðlan Deng Xiaoping (1904-1997), sem leiddi iðnvæðingu landsins og umbótaviðleitni. Zhao var stundum kallaður Gorbasjoff (Gorbachev) Kína. Zhao var varpað í stofufangelsi með samþykki velgjörðamanns síns, Deng.

Þarna var meira að segja staddur sjálfur „litskrúðsbyltingar-hugmyndafræðingurinn,“ bandaríski stjórnmálafræðingurinn, Gene Sharp (1928-2018). Aðgerðin var fjármögnuð af þeirri deild bandarísku leyniþjónustunnar, sem kölluð er „Lýðræðistrúboðsdeildin“ (US National Endowment for Democracy – NED).

Hugmyndin var að kollsteypa kínversku stjórninni. En það fór út um þúfur. Breskir fjölmiðlar í Hong Kong fluttu skelfingarfalsfréttirnar og New York Times sá um að festa þær í sessi.

Það fylgir sögunni, að undirróðursmaðurinn geðbilaði, Gyðingurinn, George Soros, var gerður brottrækur úr Kína með dali sína og undirróðursfélög. Georgíumönnum stendur hugur til þess líka, en eiga aðra litskrúðsbyltingu á hættu fyrir vikið.

Litskrúðsbyltingin í Kína var eins konar frumsýning fyrir svipaða byltingu í Ráðstjórnarríkjunum skömmu síðar. Í kjölfarið fylgdu byltingar af svipuðu tagi í Serbíu, Norður-Afríku (Afríska vorið), Georgíu, Hvíta-Rússlandi, Úkraínu og víðar. Í Íran og Tyrklandi hafa þær mistekist.

https://frettin.is/2022/04/04/fjolmulavil/ https://frettin.is/2022/12/08/kvenfrelsun-uppthot-og-arodur-i-iran/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2302325/ https://steigan.no/2024/06/mytisk-beijing-massemord-i-1989/?utm_source=substack&utm_medium=email https://en.wikipedia.org/wiki/Chai_Ling https://www.bbc.com/news/world-asia-china-50097221 https://en.wikipedia.org/wiki/The_Gate_of_Heavenly_Peace_(film) https://www.washingtonpost.com/archive/opinions/1991/06/02/the-great-escape-from-china/5da31d0d-aca1-4c56-9178-767d14c29f62/ https://chinarising.puntopress.com/2020/06/04/every-4-june-the-wests-big-lie-propaganda-machine-blpm-spews-tiananmen-projectile-vomit-across-earth-hoping-to-destroy-the-chinese-people-and-their-communist-socialist-way-of-life-china/ https://canadianpatriot.org/2020/12/17/who-is-creating-a-new-chinese-boogey-man-an-examination-of-modern-psychological-warfare/ https://canadianpatriot.org/2021/08/20/the-comprehensive-tiananmen-square-massacre-hoax-dossier/ https://canadianpatriot.org/2022/04/04/tiananmen-square-the-failure-of-an-american-instigated-1989-color-revolution/ https://canadianpatriot.org/2021/08/20/how-chinas-gorbachev-was-flushed-in-1989/ https://matthewehret.substack.com/p/the-tiananmen-square-hoax-massacre-6ac?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=145317459&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://militarywatchmagazine.com/article/the-truth-behind-the-myth-of-the-tiananmen-square-massacre-opinion-piece-by-dr-dennis-etler


Valkyrjan valinkunna og stríðsóvitarnir á Alþingi Íslendinga

Valkyrjan, Þórdís Kolbrún, spyr: Hví kaupum við vopn handa Úkraínumönnum? Hún svarar:

“Vegna þess að fólk sem berst fyrir sjálfstæði sínu og frelsi gegn blóðugri innrás þarf vopn til að verja sig. Ef við ættum vopn, þá myndum við senda þau. En þegar kemur að fjármagni þá viljum við nýta það til brýnustu þarfa Úkraínu, samkvæmt þeirra eigin mati.“ …

„Varnir eru ekki andstaða við frið heldur eru varnir til að verja friðinn.“ …

„Ísland er og verður á hernaðarlega mikilvægum stað.“ …

„Það hefur því verið áhersla mín, í góðu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og ríkisstjórn að Ísland leiti allra leiða til þess að sýna vina- og bandalagsþjóðum okkar fram á að við séum verðugir bandamenn. Sú skuldbinding sem aðrar þjóðir hafa gert gagnvart okkur krefst þess að við séum fær um að taka skýra afstöðu með þeim þegar ógnir steðja að þeim.“ …

„Höfum líka í huga að öll helstu vina- og bandalagsríki ganga mun lengra í stuðningi við Úkraínu og ekkert þessara ríkja lætur beinar hótanir og ógnandi talsmáta Rússa slá sig út af laginu.“ …

„Ísland er friðsælt. Fjarlægð frá heimsins vígaslóð hefur verið okkar besta trygging fyrir þessari friðsæld gegnum aldirnar. Nútíminn virðir slíkar fjarlægðir engu.“ …

Það er næsta augljóst, að Þórdís Kolbrún hefur gengið í utanríkismálaskóla herskáasta jafnaðarmannaflokks þjóðarinnar og þess kristilegasta. En hún mætti að ósekju læra rökhugsun og framsetningu á íslensku, bæði í ræðu og riti. Þekking skiptir reyndar ekki máli í þessu sambandi, því um utanríkistrúmál er að ræða.

En sumir lesenda kynnu að hafa áhuga á því að vita, að Úkraína er ekki aðildarríki Nató (ennþá) og þar af leiðandi eiga Íslendingar engum varnarskyldum að gegna gagnvart íbúum hennar.

En hins vegar gæti Þórdís Kolbrún, ásamt ríkisstjórn og utanríkismálanefnd, orðið sér úti um hjálm og byssu, lagst í austurvíking og höggvið mann og annan.

Andstætt öfugsnúnum þankagangi stríðsóvitanna á Alþingi Íslendinga, hafa Rússar ævinlega verið Íslendingum vinveittir, þrátt fyrir trúboðshyggju stjórnvalda í Kreml á tímum Ráðstjórnarríkjanna.

Það er grandskoðað og almælt, að úkraínsk samfélag sé meðal alspilltustu ríkja heims, og þar eru öll lýðréttindi fótum troðin. Bandaríkin og Bretar (Nató) steyptu lýðræðislega kjörinni stjórn Úkraínu af stóli og málamyndastjórn tók við. Þegar ný stjórn var lýðræðislega kjörin, var friður eitt af kosningaloforðunum. En borgarstríðið, sem málamyndastjórnin lýsti á hendur rússneskumælandi íbúum Donbass, hélt áfram.

Friðarsamningarnir tveir, sem kenndir eru við Minsk, og Rússar áttu frumkvæði að, voru sviknir af Úkraínustjórn, Nató og Öryggiráði Sameinuðu þjóðanna (þ.e. þeir síðari).

Rússar hafa í aldarfjórðung beðið um frið, jafnvel þátttöku í Nató. Þeir hafa þrásinnis bent á, að innganga Úkraínu væri öryggisógn. Þegar þýsku ríkin voru sameinuð og Kremlverjar drógu herlið sitt í Þýskalandi og Austur-Evrópu tilbaka, var þeim lofað, að útþensla Nató í austur myndi ekki eiga sér stað.

Ítrekað hafa Rússar beðið um samninga, síðast á árinu 2021, áður en innrásin í Úkraínu hófst. En Nató hefur skellt skollaeyrum við – og Íslendingar með. Þess má líka geta, að Bandaríkjamenn sögðu upp samningunum um langdræg kjarnorkuvopn, og stofnuðu í Úkraínu og víðar í nágrenni Rússlands, rannsóknastofur, sem sýsluðu með lífefna- og eiturvopn.

Hvar var þá hin friðelskandi þjóð á landinu, sem „.. er og verður á hernaðarlega mikilvægum stað,“ fjarri „heimsins vígaslóð [sem] hefur verið okkar besta trygging... Nútíminn virðir slíkar fjarlægðir engu.“

Ég geri ráð fyrir, að Þórdís Kolbrún eigi við, að fjarlægð dugi ekki til varna. (Það hefur hún reyndar aldrei gert.) Þar rekst henni nefnilega rétt orð á munn.

Þórdís tíundar ógnir frá Rússum. Þeir hafa reyndar engu ríki í Evrópu ógnað, nema Úkraínu nú. Austan Svartahafs vörðust þeir „litskrúðsbyltingum“ (color revolution) Bandaríkjanna og málaliða þeirra í Tétníu og árásum Georgíumanna í Abkasíu.

Öðru máli gegnir um bandamenn okkar, Bandaríkin og Nató. Nató sprengdi Líbíu, Afganistan, Írak og Beógrad, í tætlur, hernam Kosovó og hluta Sýrlands. Ætli Þórdís Kolbrún hafi hugmynd um það? Bandaríkin, sem Nató skópu, hafa stundað sífelldar árásir á önnur ríki á „friðartímum.“ Norðmenn hafa verið sérstaklega liðtækir við að sprengja fólk í loft upp.

Því er það nú sem fyrr, að líklega stafar Íslendingum helst ógn af svokölluðum bandamönnum sínum; Bretum, Bandaríkjamönnum, Dönum og Norðmönnum. Þeir síðastnefndu efndu til borgarastyrjaldar á Íslandi og þráuðust við að viðurkenna sjálfsstæði þjóðarinnar. Hinar þjóðirnar hafa allar hernumið Ísland.

Þórdís Kolbrún lætur hjá líða að nefna, að Natóríki eins og Slóvakía og Ungverjaland, taka afstöðu gegn stríðsbröltinu í Úkraínu. Meira að segja Ítalir harðneita að senda þangað hermenn. Þórdís skipar sér í stríðsóðustu Natósveitina með þjóðum eins og Finnum, Eistum, Lettum, Pólverjum og Frökkum.

Ætli Þórdís Kolbrún, ríkisstjórnin og utanríkismálanefnd, átti sig á því, að veröldin sé á barmi kjarnorkustyrjaldar?

Hvar er nú Þorgeir Ljósvetningagoði?

https://www.visir.is/g/20242581243d?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR3NJ1fUa34voisXcVCZHD3A0VX2C6D0JWA5Ht3yEFigTJIO5t62Kf8B7JE_aem_AS09fMn0rdijPUa2LGFCK6zzCbzDKtkm78dvZ6z9L0On3YlR7EV_DbzF1dmgva7lw1Cxs8r2KctMkMYXxSiyVDZH


Robert Fico "upprisinn.“ Fyrsta ræðan: Tilræðismaðurinn var ekki einn á báti

Eins og menn muna væntanlega var Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, sýnt morðtilræði þann 15. maí. Hann lifði af og hefur nú flutt sína fyrstu ræðu. Endursegi nokkur aðalatriði:

Robert segist ekki bera kala til tilræðismannsins. Hann sé boðberi illsku og stjórnmálahaturs, fullyrðir Robert. „Ég hef ekki ástæðu til að ætla, að hér sé um að ræða vitfirring, sem einn sé á báti.“

Hann rekur misbeitingu valds fyrrum stjórnvalda í Slóvakíu gegn stjórnarandstæðingum og blaðamönnum, fangelsun og morðum jafnvel, án athugasemda frá alþjóðastofnunum.

Undirgefni fyrri stjórnvalda í Slóvakíu gagnvart stórþjóðum og hagsmunagæslu í þeirra þágu, er honum einnig hugleikin. Sjálfstæð utanríkisstefna var illa séð. Vegið var að fullveldi þjóðarinnar á vettvangi Nató, Evrópusambandsins og af hálfu erlendra félagssamtaka.

Robert lýsir andófinu innan Evrópusambandsins og Nató vegna afstöðu hans til Úkraínustríðsins, stöðvun vopnasendinga og ákalls um friðarsamninga. Það virðist eins konar þráhyggja að koma þurfi Rússum á kné, sama hvað það kosti. Þeir, sem ekki kokgleypa það fagnaðarerindi, eru sakaðir um að ganga erinda Rússa, og þeim útskúfað.

Það gætti óhamingju í Nató, þegar ég neitaði að taka þátt í loftárásum á Beógrad (Serbíu, Júgóslavíu), segir Robert ennfremur eða þegar ég kallaði heim hermenn okkar frá Írak.

Í Evrópusambandinu vakti það ekki lukku, þegar Robert stóð í vegi fyrir afnámi neitunarvaldsins og samþykktar skyldukvóta fyrir ólöglega flóttamenn. Rétturinn til mismunandi skoðana í Evrópusambandinu er horfinn, segir Róbert.

Hví eigum við ekki stjórnmálamenn af þessu bergi á Íslandi?

https://steigan.no/2024/06/robert-fico-jeg-tilgir-attentatmannen-noen-sto-bak-ham/?utm_source=substack&utm_medium=email


Tjáningarfrelsið og kjarnorkuváin. Scott Ritter meinað að ferðast til Rússlands

Úkraínsk stjórnvöld skilgreina bandaríska vopnaeftirlitsmanninn, Scott Ritter, sem „upplýsingahryðjuverkamann.“ Því skal hann tekinn úr umferð, jafnvel drepinn. Hann er á svarta lista þeirra með velþóknun yfirvalda í Bandaríkjunum. Scott hefur gagnrýnt utanríkismálastefnu Bandaríkjanna.

Á John F. Kennedy flugvellinum var hann gripinn glóðvolgur á leiðinni til Sankti Pétursborgar. Hann var sviptur vegabréfi sínu, án skýringa.

Í umræðuþætti Andrew Napolitano, sem reyndar var einnig á leið til sama staðar, er um atvikið fjallað og sömuleiðis um yfirvofandi kjarnorkustríð. Hvernig munu Rússar svara frekari eldflaugaárásum Vesturveldanna inn í Rússland? Skoðanir Scott og Gilbert Doctorow í þessu sambandi eru afar áhugaverðar.

Rússnesk yfirvöld hafa þráfaldlega varað við þessari þróun og leggja áherslu á að beitt verði skammdrægum kjarnorkuvopnum. Scott gerir sér í hugarlund, að Natólönd verði skotmörk, Gilbert ímyndar sér hins vegar, að Kænugarður verði fyrsta skotmark. Reynslan mun skera úr um það. Vesturlönd eru í raun varnarlaus, sökum yfirburða Rússa á vopnasviðinu.

Samtímis heyja bandarísk yfirvöld stríð gegn eigin þegum til að svipta þá lýðréttindum eins og tjáningarfrelsi og ferðafrelsi í nafni lýðræðis, frelsis og þjóðaröryggis. Sömu þróunar gætir víðar eins og t.d. í Kanada. Justin Trudeau sendi fanta sína til að þakka niður í „Rússafræðingnum,“ Patrick Armstrong. Hann gagnrýnir stefnu Kanadastjórnar og Vesturlanda. Hann kallar Nató „pappírskisu.“

https://gilbertdoctorow.com/2024/06/04/10461/ https://www.globalpolitics.se/har-usa-blivit-en-polisstat/ https://www.unz.com/mwhitney/every-escalation-brings-washington-closer-to-defeat-in-ukraine/ https://www.globalresearch.ca/russia-victory-ukraine-near/5859083 https://www.youtube.com/watch?v=0PGxPvK0Bw4 https://patrickarmstrong.ca/author/gparmru/ https://patrickarmstrong.ca/2021/12/16/csis-comes-to-call/ https://patrickarmstrong.ca/2021/12/16/csis-comes-to-call/ https://denniskucinich.substack.com/p/us-targets-journalists-who-criticize?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=145302471&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/06/04/freedom-of-speech-in-the-u-s-a-think-again/


Sögukennsla Jeffrey Sachs og Vladimir Putin. Heimur á hverfandi hveli

Flestum ætti að vera ljóst, að Íslendingar eru stefnulausir í utanríkismálum eins og Þórdís Kolbrún hefur bent á. Við fylgjum hinum, sagði hún. „Hinir“ eru í raun stríðssjúklingarnir, sem Bandaríkjunum stjórna í blóra við vilja almennings.

Flestum ætti líka að vera ljóst, að bandarísk stjórnvöld hafa háð nær látlaus stríð frá annarri heimstyrjöldinni og þverbrotið alla góða siði, reglur og alþjóðalög, eins og náinn bandamaður, Ísrael – og Nató vissulega einnig.

Stríð og dráp yfirvalda hafa kostað bandarískan almenning gríðarlega fjármuni og orðið hundruðum þúsunda að fjörtjóni, en að sama skapti tryggt Bandaríkjunum yfirburðastöðu með tilliti til stjórnmála, hernaðar og viðskipta. Bandaríkin hafa herstöðvar í 80 löndum eða hér um bil, um 800 að tölu. Ísland er raunverulega slík herstöð.

Herstöðvum Bandaríkjamanna fjölgar skart á Norðurlöndunum og við Eystrasalt, þar sem tekist hefur að æra stjórnvöld til að vígbúast af kappi og blása lífi í Rússafælnina. Norski stríðsfautinn, Jens Stoltenberg, á þar drjúgan hlut að máli.

Stríðið í Úkraínu og Gaza – enn þá háð að mestu við hjálp staðgengla – eru síðustu afrekin. RÚV og ríkisstjórnin hafa viljað telja okkur trú um, að ýmist Rússar eða Palestínumenn hafi tekið frumkvæði að þessum stríðum að tilefnislausu og allt sé þeim að kenna. Í þeirra fátæklega huga byrjaði veraldarsagan í þessu viðfangi annars vegar 7. okt. 2023 og 24. febrúar í 2022.

Þeir, sem söguna þekkja, og eru lausir við stjórnmálatrú, vita, að svo er ekki. Hér gefst áhugasömum kostur á að fræðast af tveim afburðakennurum, sem báðir hafa lifað og hrærst í atburðarásinni um áratugi, gagnmenntaðir báðir.

Jeffrey Sachs er hnífskapur greinandi, bandarískur hagfræðingur og afi. Hinn þekkja trúlega allir af vondu umtali, lögfræðinginn, Vladimir Putin eða Vonda-Valda, forseta Rússneska ríkjasambandsins, sem er maður gagnfróður og snjall, jafnvel þótt hafi látið blekkjast af fagurgala stjórnmálamanna í „Villta vestrinu,“ hvað eftir annað. En það er komið annað hljóð í strokkinn. Nú skulu Bandaríkin og Nató ekki komast upp með meiri moðreyk.

Tucker Carlson er viðmælandi beggja og ferst það hlutverk ljómandi vel úr hendi, enda er maðurinn fróður og beinskeyttur. Sagnfræðingurinn, T.P. Wilkinson, skrifar fróðlegar athugasemdir um viðtölin.

Afskaplega fræðandi, meira að segja um veirustríðin. Fróðleiks- og viskubrunnur! Ausið úr honum, sérstaklega þið, sem hafið látið telja ykkur trú um, að við séum að verjast Rússum, og hugrekki hafið. Rússagrýluafturgangan fer ljósum logum í fjölmiðlum og á ríkisstjórnarfundum. Afinn, Jeffrey, gefur okkur ráð; göngum ekki fram á gnípu kjarnorkustyrjaldar.

Þá er heldur ekki úr vegi að minna á rússneska kafbátaforingjann, sem forðaði heiminum frá kjarnorkustyrjöld 1962, Vasily Arkhipov (1926-1998). Við stöndum öll í þakkarskuld við hann. (Sbr. bók Martin Sherwin (1937-2021), „Heimstortímingaráhættuleikinn: Kjarnorkurúllettuna frá Hirosima til Kúbukreppunnar“ (Gambling with Armageddon: Nuclear Roulette from Hirosima to the Cuben Millile Crises).

Dómgreindarskorturinn og vitfirringin, sem er svo dæmigerð fyrir vestræna stjórnmálamenn um þessar mundir, lýsir sér vel í orðum finnska forsætisráðherrans, Alexander Stubb. „Leiðin til friðar liggur um vígvöllinn.“

Fleiri forystumannaóvitar hafa látið svipaða speki út úr sér eins og Kaja Kallas og okkar ástsæla stríðsgyðja, Þórdís Kolbrún.

Íslensk stjórnvöld beita íslenska skattgreiðendur siðferðilegu og lýðræðislegu ofbeldi með milljarðaflóði skatta þeirra til gjörspilltra og stríðsbrjálaðra yfirvalda í Úkraínu. Það er rík ástæða til að ætla, að drjúgur skerfur þessara fjármuna rati inn á einkareikninga stjórnmála- og embættismanna í „fyrirmyndarlandinu.“

Enn eru nokkrir stráklingar á lífi þar um slóðir, sem etja má á blóðforaðið.

https://www.msn.com/en-us/news/world/finnish-president-stubb-s-grim-forecast-the-path-to-peace-in-ukraine-is-through-the-battlefield/ar-BB1m9cfV https://www.amazon.com/Gambling-Armageddon-Roulette-Hiroshima-1945-1962/dp/0307266885 https://www.bbc.com/news/world-europe-24280831 https://www.vice.com/en/article/bvmdqa/the-story-of-the-soviet-submarine-officer-who-saved-the-world-is-now-an-opera https://allthatsinteresting.com/vasili-arkhipov https://www.globalresearch.ca/unbecoming-american-tucker-carlson-jeffrey-sachs/5858828


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband