Árið 2016 naut Donald hylli þeirra, sem þreyttir eru orðnir á yfirgangi kerfisins eða djúpríkisins. Þetta er gömul atkvæðaveiðabrella Franklin D. Roosevelt. Hann þóttist ætla að berjast gegn spillingu bankaveldisins í þágu almennings, en sendi í staðinn syni alþýðunnar á vígvelli Evrópu. En það ber ekki á öðru, en að Donald leiti á sömu, fengsælu mið.
Í því ljósi ber að líta á val varaforsetaefnis, James David Vance (James Donald Bowman - f. 1984). Sá er vasaútgáfa af foringjanum. Hann er hreykinn af uppruna sínum og uppvexti, sveitastrákur af keltneskum landnemum kominn og meira að segja úr fátækt. Hann lýsir t.d. í bók sinni, Sorgaróði afdalanna (Hillbilly Elegy), hvernig amma hans kveikti í afanum sofandi, því henni þótti karl of drykkfelldur.
Sjóndeildarhringur James D. er þó stærri. Hann setur ástandið í heimahögunum í sambandi við þróunina í Bandaríkjunum almennt; útvistun iðnaðar, upplausn í samfélaginu vegna ofbeldis og fátæktar, sem m.a. hefur leitt til ofdrykkju og áfalla, upplausnar fjölskyldna og svo framvegis.
Þó ótrúlegt megi virðast gagnrýnir James D. utanríkisstefnu Jóseps á trúarlegum grunni, talar m.a. um eyðileggingu kristinna samfélaga við innrás Bandaríkjamanna í Írak og nú í Úkraínustríðinu. En það kemur hins vegar eins og skrattinn úr sauðarleggnum, að James skuli hrósa Kínverjum, sem Nató hefur gert að aðalfjandmanni Vesturlanda, samkvæmt samþykkt afmælisfundarins nýverið.
En James David (Donald) hefur fleira til brunns að bera. Eins og títt er um bandaríska (og breska) þingmenn á hann sér efnaðan bakhjarl, Peter Thiel, sem er einn eiganda Palantir, framleiðenda netnjósnabúnaðar. Leyniþjónusta Bandaríkjanna er bæði hluthafi og viðskiptavinur, ásamt fjölmörgum stofnunum og fyrirtækjum í Bandaríkjunum, Ísrael og víðar. Búnaði þess er m.a. beitt í stríðunum í Ísrael og Úkraínu. Forstjórinn, Alex Karp, tók þannig til orða, að tækni fyrirtækisins væri endrum og sinnuð notuð til að drepa fólk.
Peter, stjórnarmaður í Bilderberg auðjöfrafélaginu, hjálpaði líka fóstursyninum til að koma fjármálafyrirtæki á koppinn og kynnti hann fyrir Donald. James David hefur líka eins og svo margir aðrir þegið fé frá hollvinum Ísraelsríkis. Það orkar varla tvímælis, að Donald vilji auka hróður Bandaríkjanna. Vígorðin eru Bandaríkin á oddinn (America first) og Gerum Bandaríkin stór á nýjan leik (Make America Great Again MAGA). MAGA er reyndar orðin að eins konar kosningahreyfingu innan Lýðveldisflokksins (Repúbikana), sem hugsanlega nýtur stuðnings upp undir helmings flokksmanna.
Eins og áður leikur Donald á strengi útlendingaþreytu innan lands, innflutnings fólks frá latnesku Ameríku og löndum Múhammeðstrúarmanna. Hann bannaði á tímabili meira að segja heimsóknir þegna frá þessum löndum. (En Grænland vildi hann þó kaupa.)
Eins og áður er ýjað að er full ástæða til að ætla, að Donald haldi áfram þeirri stefnu Jósefs og Lýðræðisflokksins (Demókrata) að efla og auka viðveru bandaríska heraflans í Suðaustur-Asíu í kjölfar friðarsamninga við Úkraínu og eflingu hervarna Evrópubúa sjálfra. Kyrrahafið vilja Bandaríkjamenn gera að heimatjörn.
Fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, stríðsdrottningin sjálf, Hillary Diane Rodham Clinton, lét hafa eftir sér um eign Bandaríkjanna, Kyrrahafið:
Við frelsuðum það, við vörðum það. [ ] Og [í raun] mætti endurskíra það, Bandaríska hafið (American Sea), sem næði frá vesturströnd Kaliforníu og alla leið til Filippseyja [fyrrum nýlendu Spánar og Bandaríkjanna]. Við ætlum okkur að umkringja Kína með eldflaugavörnum og staðsetja meira af flota okkar á svæðinu [Suður-Kína hafi].
Donald hefur með réttu verið hrósað fyrir að hefja ekki stríðsrekstur á erlendri grundu. En aftur á móti hefur hann heldur ekki lokið eða dregið úr stríðum þjóðar sinnar í veröldinni. Hersetan í Sýrlandi og Írak er eitt dæmi. Hvorki Donald né James David eru friðardúfur, þótt þeir tali utan af því að stofna til friðarsamninga í Úkraínu sem vitaskuld er jákvætt.
Í ljósi umróts, upplausnar og vansældar almennings með stjórnvöld, spyrja nokkrir stjórnmálaskýrendur þeirrar spurningar, hvort koma muni til forsetakosninga í ár. Um fimmtungur þjóðarinnar virðist líta svo á, að við slíkar aðstæður sé réttlætanlegt að grípa til vopna.
Byltingaráætlanir eru kunnar í sögu Bandaríkjanna, eftir að borgarastríðinu lauk. Líf og starf hins margverðlaunaða hershöfðinga í Bandaríkjaher, Smedley Darlington Butler (1881-1940), er afar áhugaverð í þessu sambandi. Þá tókust líka á auðkýfingatröllin í Bandaríkjunum.
Önnur meginfylkinganna kom að máli við Smedley 1933, þ.e. hópurinn í kringum veldi Éleuthére Irénée du Pont de Nemours (1771-1834) og John Pierpoint Morgan (1837-1913), og reyndi að fá hann til að leiða Bandarísku herdeild (American Legion) þeirra í uppreisn gegn yfirvöldum (The Business Plot, Wall Street Putsch, White House Putsch) og steypa Frank D. Roosevelt af stóli.
Samsærismennirnir komu úr hópi Bandaríska frelsisbandalagsins (American Liberty League). Flestir þeirra voru einnig úr hópi stofnanda Utanríkismálaráðsins (Council on Foreign Relations), sem enn mótar utanríkisstefnu Bandaríkjanna, að verulegu leyti. Bandalagið hafði tengsl, bæði við Adolf Hitler (1889-1945) og Benito Mussolini (1883-1945). Enginn þeirra var dreginn fyrir dóm.
Talið er, að opinberar framkvæmdir forsetans (New Deal) og afnám gullfótarins 1933 hafi valdið mestu um. Síðar ullu glingrur hans við Rússa titringi og vanþóknun, þrátt fyrir að Frank D. hefði fest hergagnaiðnaðinn í sessi með þátttöku í annarri heimstyrjöldinni og gert gull almúgans upptækt.
Smedley afþakkaði heiðurinn um að gerast fasískur einræðiherra auðjöfranna. Í bók sinni, Stríð eru fjárglæfrar (War is a Racket), segir Smedley m.a.:
Ég hef varið 34 árum ævi minnar í herþjónustu og lungann úr þeim árum hef ég þjónað sem háttsett vöðvatröll (muscle man) fyrir viðskiptajöfrana. Ég lagði gjörva hönd á plóg, þegar plægður var jarðvegur Haiti og Kúbu, svo bankastrákarnir í National City Bank [Rockefeller banki] gætu uppskorið.
Smedley sótti heim Þingnefnd um andbandarísk málefni og sagði henni alla sólarsöguna. Gyðingamiðillinn, New York Times, sagði frásögnina, Tröllaukna samsæriskenningu.
Viðbrögð Franklin D. voru m.a. þessi: við höfum skapað nýjar stofnanir almannavaldsins. Þessi völd eru af hinu góða í höndum ríkisstjórnar fólksins. En ræni stjórnmáladúkkur auðjöfrayfirstéttarinnar þessum völdum verða lýðréttindi þess færð í fjötra. Séu völdin færð auðjöfrunum í hendur munu þeir taka sömu stefnu og allar yfirstéttir fortíðar beita völdunum í eigin þágu og hneppa almenning í þrældóm.
(Grant Hamilton Stone hefur skrifaði um þetta bók 2021: The Business Plot: Smedley D. Butler, Anti-Democratic Dissidence, and the Recession of the American Right 1932-1936.)
Nú eru það aðrir bankastrákar og athafnamenn, sem takast á. Í grófum dráttum eru það gömlu auðkýfingastéttirnar, sem glíma við þær nýju, tækniauðkýfingana í Silicon Valley. Þar er PayPal-gengið áhrifamikið, ekki síst Mark Zuckerberg og Elon Musk, sem eys fé í kosningasjóði Donald.
Bæði Elon og Peter Thiel eru ungir leiðtogar Alheimsefnahagsráðsins og virkir við mótun markmiða þess um fjórðu iðnbyltinguna, endurreisnina miklu og alheimsstjórn undir vökulu tækniauga. Keppikefli fylkinganna er það sama; yfirráð yfir djúpríkinu, skattheimtu og hernum. Það má ljóst vera, að Alheimsefnahagsráðið hafi nú náð hreðjataki á Donald.
Hugsanlega má þó greina vonarglætu í viðsjárverðri veröld. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands og æðsti talsmaður ráðherraráðs Evrópusambandsins (Council of the European Union Consilium) út þetta ár (2014), virðist ættaður úr sauðahúsi en hinir leiðtogar í Evrópu. Viktor vil tala og semja í stað þess að skjóta og drepa. Nefndum leiðtogum til sárrar gremju heilsaði hann upp á Volodymyr Zelensky, Vladimir Putin, Xi Jinping, og nú síðast Donald Trump. Vonandi plægir hann frjósaman jarðveg fyrir samninga, svo forðast megi ragnarök. Viktor hefur fengið bágt fyrir.
Viktor sagði: Kínverjar eiga friðaráætlun í pússi sínu. Bandaríkin semja stríðsáætlanir. Og Evrópa afritar einfaldlega áætlanir Bandaríkjanna í stað eigin nálgunar.
Vegna óvinsælda og vanþóknunar gæti því miður svo farið, að Viktor muni deila örlögum með japanska stjórnmálamanninum, Shinzo Abe (1954-2022) og fleirum. Shinzo var andsnúinn Alheimsefnahagsráðinu og áætlunum þess um alheimsyfirráð, en trúlega myrtur af trúarlegum hefndarhvötum.
Forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico, hefur eins og fyrrgreindur, aflað sér óvinsælda. Hann vann sér til óhelgi að tala fyrir friði í Úkraínu og rannsókn á bólusetningaglæpum lyfjaiðnaðarins, stjórnvalda og alþjóðastofnanna. Hann hlaut makaleg málagjöld fyrir hættulegar samsæriskenningar., sögðu fjölmiðlar í þjónustu þeirra.
Lyfja- og stríðsauðvaldið fer hamförum gegn þeim, sem andæfa gjörningi þeirra og fyrirætlunum. Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar og auðjöframiðlarnir, hafa lýst stríð á hendur þeim, sem dreifa falsupplýsingum og skapa upplýsingaóreiðu. Robert er sem sé einn þeirra.
Grunur vaknaði t.d. um maðk í mysunni við andlát afrísku leiðtoganna; forseta Burundi, Pierre Nkurunziza (1964-2020), forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, Hamed Bakayoko (1965-2021), forsætisráðherra Eswatini, Ambrose Mandvulo Dlamini (1868-2020) og forseta Tansaníu, John Pombe Magufuli (1959-2021).
Leiðtogarnir þráuðust, að sögn, við að meðtaka boðskapinn um bólusetningar og aðrar varnaraðgerðir gegn covid-19. Einn þeirra, forseti Tansaníu, lét meira að segja gera PCR prófun á kálhausum og geitum. Kálið og geiturnar þjáðust, samkvæmt niðurstöðum prófsins, af covid-19.
Bandaríski blaðamaðurinn, Chris Hedges, segir um stöðuna í Bandaríkjunum: Einasta von okkar er að umbylta sameignarríkinu [corporate state samtvinnun valds stjórnmálamanna og atvinnuveganna í ríkisvaldinu], sem seldi upp Trump. Lýðræðislegar stofnanir okkar, þar með talin löggjafarsamkunda, dómstólar og fjölmiðlar, eru gíslar sameignarríkisins. Þær eru ekki lengur lýðræðislegar [í raun].
Kanadíski sagnfræðingurinn, Cynthia Chung, segir í þessu sambandi: Hvenær mun það renna upp fyrir Bandaríkjamönnum, að þeim stafi ekki mestri ógn að utan heldur innan eigin víggirðingar. Þar hafa hinir ógnvænlegu grafið um sig síðustu 116 árin.
Þýski blaðmaðurinn, Patrik Baab kynnir til sögu svipaðar hugleiðingar og Chris og Cynthia. Hann gagnrýnir stríðsæsingamennina í Evrópu fyrir fátæklega hugsun og nefnir utanríkismálaráðherra Þýskalands, Annalena Baerbook, og fyrrum forsætisráðherra Eistlands, Kaja Kallas, sem dæmi. Patrick segir á þessa leið:
Þegar þýskir stjórnmálamenn í æðstu stöðum sýna málþroska á við börn, er skiljanlegt, að þeir telji hvern þann, sem er fær um að segja þrjár villulausar setningar á þýsku, hallan undir Vladimir Putin. Þannig er ógöngum stjórnmálaumræðunnar vel lýst, segir Patrik.
Þessi lýsing gæti sem hægast átt við um marga íslenska stjórnmála-, Alþingis- og fjölmiðlamenn, bæði hvað varðar málfar og stjórnvisku.
Bandaríski málfræðingurinn, Noam Chomsky, sagði í anda Peter Baab: Til að stuðla að hlýðni og dauðýflishætti [þegnanna] er affararsælast að afmarka nákvæmlega tækan umræðuvettvang, en leyfa og örva gagnrýna andófsumræðu innan marka hans. Þá trúir fólk því, að frjáls hugsun eigi sér stað, en samtímis festast í sessi forsendur kerfisins vegna skorðanna, sem umræðunni eru reistar.
Vitfirringarnir teyma blindingjana fram á vígvöllinn, sagði breska skáldið, William Shakespeare (1564-1616). Það er hverju orði sannara.
Eftirmáli: Josep hefur nú dregið sig í hlé sem forsetaframbjóðandi. Varaforsetinn, Kamala Harris, tekur nú (að öllum líkindum) við keflinu eins og væntanlega var ákveðið í hrossakaupunum við síðustu kosningar. Kamala er sárabót fyrir sneypu stríðsdrottningarinnar og erkikvenfrelsarans, Hillary Rodham Clinton (Lady Macbeth). Varla verður breytt um búktalara.
Samsæriskenningin um elliglöp Jósefs varð býsna skammlíf. Hún er nú hverju orði sannari. Já, það er fjör, sagði Eiríkur Fjalar. Almenningur er fíflaður með alls konar fimbulfambi.
En það er þó of snemmt að útloka aðra frambjóðendafléttu; kynskiptinginn, Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú, eða stríðsdrottninguna sjálfa. Eymdarhyggja (woke), kven- og kynfrelsun, er rykið, sem þyrlað hefur verið í auga almennings til að draga dul á heimsveldisstefnuna. Fáni kvenfrelsunarfóstureyðinga hefur þegar verið dreginn að húni.
Stuðningsmenn skipta um hest í vaðinu miðju. PayPal-gengið úr Silicon Valley, sem hefur auðgast með dyggri hjálp leyniþjónustunnar, CIA, hefur nú gegnið í raðir Donald Trump. Haukarnir í því gengi eru handgengnir Alheimsefnahagsráðinu. Því má varlega álykta sem svo, að nýi auðkýfingaherinn sæki í sig veðrið til að vinna að sameiginlegum markmiðum Ráðsins og Sameinuðu þjóðanna. Soros feðgar sitja við sinn Kamala-keip.
En grundvallarstefnan verður sú sama, hvort heldur vinnur, Donald eða Kamala. Kosningabaráttan er eins og hvert annað öldugjálfur. Það snertir varla djúpsævið. Það vekur óneitanlega athygli, að Jósef sitji áfram, enda þótt hann sé metinn óhæfur sem frambjóðandi. Það er margt skrítið í kýrhausnum og heimskan ríður sjaldan við einteyming.
Bæði Donald og Kamala virða samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Þær lúskra á okkur stöðugt, skapa skelfingu, plægja jarðveginn fyrir alræðisstjórn á heimsvísu. Framtíðarráðstefnan, haldin fyrir skemmstu, ályktar:
Við glímum við sífellt fleiri tivistarógnir og hamfarahættur. Ef við tökum ekki nýja stefnu sem skjótast, er hætta á því, að við hrötum inn í framatíð þrálátrar kreppu og eyðileggingar, sem ekki verður ráðin bót á.
https://archive.org/details/TheMoneyMasters1996 https://realnewsandhistory.com/anyt-07-22-24/ https://steigan.no/2024/07/oligarkenes-kupp-i-usa-de-dumpet-biden/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/kamalas-coronation-as-the-de-facto?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146869982&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/my-thoughts-on-biden-dropping-out?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=146891414&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://caitlinjohnstone.com.au/2024/07/22/genocide-monster-drops-out-endorses-fellow-genocide-monster/ https://drjacobnordangard.substack.com/p/is-donald-trump-the-elites-wreck?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=146661783&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2023/11/26/contrary-to-dominant-folklore-evidence-indicates-that-like-oswald-john-wilkes-booth-was-part-of-wider-conspiracy/#post-62683-footnote-ref-2 https://www.youtube.com/watch?v=0MwusRGpRvg https://www.indianpunchline.com/this-isnt-the-time-to-engage-sullivan-in-a-conversation/ https://www.aljazeera.com/news/2020/5/3/tanzania-president-questions-coronavirus-kits-after-animal-test?traffic_source=KeepReading https://corbettreport.substack.com/p/a-brief-history-of-political-assassinations?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=146843268&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=hTdx6vEUtIA https://allthatsinteresting.com/the-business-plot https://gilbertdoctorow.com/2024/07/19/is-trump-jd-vance-going-to-transform-the-us-foreign-policy-interview-with-nima-alkhorshid-on-dialogue-works/ https://www.youtube.com/watch?v=zMqcGrgHKZg https://expose-news.com/2024/07/21/trump-and-the-crowd-shot-by-multiple-shooters/ https://unlimitedhangout.com/2024/07/investigative-reports/the-man-behind-trumps-vp-pick-its-worse-than-you-think/?ref=unlimited-hangout https://unlimitedhangout.com/2024/07/press/redacted-14/?ref=unlimited-hangout https://cynthiachung.substack.com/p/the-origins-of-americas-secret-police-c7d?utm_source=cross-post&publication_id=309240&post_id=119756256&utm_campaign=260045&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2024/07/16/sugar-daddy-of-trumps-vp-pick-has-deep-ties-to-cia/ https://www.youtube.com/watch?v=4pdFI3iUlIY https://corbettreport.com/how-palantir-conquered-the-world/ https://corbettreport.substack.com/p/are-you-not-entertained-new-world?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=146741097&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/trump-threat-deep-state-war?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=146656721&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/trumps-val-av-vicepresident-ar-en-uttalad-kritiker-av-usas-bistand-till-ukraina/ https://bmanalysis.substack.com/p/brilliant-sniper-interview?utm_source=post-email-title&publication_id=1105422&post_id=146626864&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://stopworldcontrol.com/trumpvaccines/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR3oQv-UdlCn5tyiOXxb_p1shOnqXnagzTz24BlV0-ZJ_YJa-4AK7Qq8O-Y_aem__ZS5qDUDtI5dadQ387sjEQ https://rumble.com/v5736cy-leaked-secret-service-video-proves-trump-assassination-attempt-was-inside-j.html https://tuzarapost.substack.com/p/deleted-world-economic-forum-memo = https://rumble.com/v4w7mjw-deleted-wef-memo-reveals-trump-is-on-hit-list-of-leaders-to-be-assassinated.html https://www.nbcnews.com/news/tucker-carlson-says-us-speeding-assassination-trump-stoking-conspiraci-rcna102976 https://www.realnewsandhistory.com/anyt-07-15-24/ https://www.britannica.com/topic/MAGA-movement https://www.globalresearch.ca/russiagate-2-0-donald-trump-has-opted-for-real-peace-negotiations-with-a-foreign-adversary/5862691 https://www.townandcountrymag.com/society/politics/a61622921/secret-service-history-explained/ https://www.youtube.com/watch?v=8474PcH-eXY https://x.com/RandomTheGuy_/status/1812826935635890635 https://www.secretservice.gov/sites/default/files/reports/2023-06/secret-service-fy23-27-strategic-plan-final.pdf https://www.kpbs.org/news/2015/09/10/marine-corps-study-finds-all-male-combat-units https://matthewehret.substack.com/p/breaking-history-ep-54-the-uncomfortable?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=146754216&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v57ep6c-breaking-history-ep-54-the-uncomfortable-truth-behind-presidential-assassin.html https://www.youtube.com/watch?v=cpp4-HXuJU4 https://www.youtube.com/watch?v=lYrwhCSzV60 https://www.politico.com/news/2024/07/16/iran-plot-assassinate-trump-00168830 https://www.politico.com/news/2024/07/16/iran-plot-assassinate-trump-00168830 https://beeley.substack.com/p/trump-elevated-to-the-chosen-status?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=146740962&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://simplicius76.substack.com/p/ruling-class-finally-awakens-to-the?utm_source=post-email-title&publication_id=1351274&post_id=145853907&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/theyre-finally-revealing-the-deep?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=146592752&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/trump-barely-escapes-assassination-attempt/5862601 https://www.caitlinjohnst.one/p/the-us-came-close-to-having-two-presidential https://geopolitiq.substack.com/p/maria-zakharova-and-dmitry-peskov?utm_source=post-email-title&publication_id=2232768&post_id=146598185&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://simplicius76.substack.com/p/special-bulletin-america-teeters?utm_source=post-email-title&publication_id=1351274&post_id=146588043&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email%C3%A4l https://bmanalysis.substack.com/p/welcome-to-plan-b?utm_source=post-email-title&publication_id=1105422&post_id=146598276&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.igor-chudov.com/p/trump-questioned-vaccines-on-june?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=146590273&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=emailhttps://www.igor-chudov.com/p/trump-questioned-vaccines-on-june?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=146590273&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.urmedium.net/c/presstv/130106 https://chrishedges.substack.com/p/my-thoughts-on-the-attempted-trump?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=146606276&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.thomasfazi.com/p/the-fracturing-of-the-american-psyche https://www.realnewsandhistory.com/anyt-07-14-24/ https://korybko.substack.com/p/america-was-less-than-an-inch-away?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146594110&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=ge41WdMgpS4 https://darkfutura.substack.com/p/cracks-begin-to-show-at-davos https://rawnews.com/how-peter-thiel-and-silicon-valley-funded-the-sudden-rise-of-jd-vance/ https://steigan.no/2024/07/misbruket-av-begrepet-konspirasjonsteori-en-57-ar-gammel-psyops/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/in-defense-of-jd-vance-as-trumps?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146703028&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v57d59t-wef-memo-reveals-three-more-trump-assassination-attempts-incoming.html https://www.globalresearch.ca/trump-use-assassination-attempt-save-america-ukraine/5862662?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://steigan.no/2024/07/hva-vil-j-d-vance-bety-for-europa/?utm_source=substack&utm_medium=email https://frettin.is/2023/09/17/vitundarmotun-og-vitfirring-lygar-stjornmalamanna-og-fjolmidla/ https://www.youtube.com/watch?v=ChwSTuDa9RY https://www.secretservice.gov/careers/women https://fiamengofile.substack.com/p/fight-fight-fight-vs-diversity-diversity?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=146763849&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
(Ítarlegur heimildarlisti fylgir seinni hluta.)
Það var fyrir rétt um ári síðan, að bandaríski blaðamaðurinn, Tucker Carlson, spáði fyrir um morðtilræði gegn forsetaframbjóðenda og fyrrum forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Spáin rættist fyrir fáeinum dögum síðan.
Tilræði og morð á forsetum og forsetaframbjóðendum, sem hinum máttugu stafar ógn af, er reyndar engin nýlunda í Bandaríkjunum. Síðan 1835 hefur níu slíkum verið sýnt banatilræði, en ellefu ráðnir af dögum. Þessi fjöldi bliknar þó vitaskuld í samanburði við fjölda morðtilræða Bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) gegn Fidel Castro (1926-2016). Samkvæmt göngum hennar voru þau 638 að tölu.
Fyrir liðlega fjörutíu árum síðan (1981) var Ronald Reagan (1911-2004) sýnt banatilræði. Áttatíu árum fyrr var William McKinley ráðinn af dögum (1843-1901). Þá var Öryggisleyniþjónustunni (Secret Service) falin vernd forseta og frambjóðenda.
Tilræðið gegn Donald minnir óhugnanlega á morðtilræðið gegn Theodore Roosevelt (1958-1919) 1912, þegar hann bauð sig fram gegn William Howard Taft (1857-1930). Bakhjarlar Theodore voru auðjöfrarnir, Bernard Mannes Baruck (1970-1965), Jacob Henry Schiff (1847-1920) og Paul Moritz Warburg (1868-1932). Allir voru þeir Gyðingar og fulltrúar alþjóðaauðvaldsins. Framboð Theodore tryggði Woodrow Wilson (1856-1924) sigur. Almælt var, að Bernard hefði forsetann í bandi.
Einnig var reynt að ráða frænda Theodore, Franklin Delano Roosevelt (1882-1945), af dögum. Hann var kjörinn til forseta í nóvember 1932. Um mánuði fyrir embættistökuna var forsetanum sýnt morðtilræði. Tilræðismaðurinn hæfði augljóslega ekki, en borgarstjóri Chicago, Anton Cermak (1873-1933), týndi lífi.
Það gerði einnig Thomas James Walsh (1859-1933), sem Franklin D. hafði skipað dómsmálaráðherra (U.S. Attorney General). Sá hafði svarið að fjarlægja yfirmann Alríkislögreglunnar (Federal Bureau of Investigation), John Edgar Hoover (1895-1972). Sá næsti, sem reyndi, Hale Boggs (f. 1914), lést í flugslysi 1972. Hann hafði einnig gert athugasemdir við rannsókn á morði John Fitzgerald Kennedy (1917-1963). Þá tókust tröllin á eins og nú.
En þekktust eru trúlega morðin á Abraham Lincoln (1809-1865) og bræðrunum, Robert Francis Kennedy (1925-1968) og fyrrgreindum, John Fitzgerald. Það var reyndar í sambandi við gagnrýni á vinnubrögð svokallaðrar Warren nefndar, sem rannsakaði morðið á þeim síðastnefnda, að CIA tók upp á því að nota hið margþvælda hugtak, samsæriskenningu. Nú sýslar Öryggisleyniþjónustan við að rannsaka sjálfa sig í sambandi við síðasta harmleik.
Öryggisþjónustan hefur tekið stakkaskiptum í áranna rás. Joseph Biden skipaði t.d. kvenforstjóra, Kimberley A. Cheatle. Jafnrétti er hennar hjartans mál. Þjónustan skal tryggja þátttöku kvenna, kynskiptinga, fatlaðra og svo framvegis. Samkvæmt forstjóranum er lögð sérstök áhersla á ráðningu kvenna eins og hefur átt sér stað í hernum. Þá má einu gilda sú staðreynd, að konur séu öðruvísi af Guði gerðar með tilliti til afls, úthalds og vinnubragða, við álag. Sem lífverðir og hermenn standa þær körlum að baki, samkvæmt fjölda rannsókna. Fjórðungur starfsmanna Öryggisleyniþjónustunnar eru konur. Konur og karlar þjálfa saman.
Kimberley segir: Í faðmi okkar rúmast fjölbreytni (diversity), meðvera (inclusion), réttlæti (equity) og aðgengileiki (accessibility) (DEIA) alls staðar í stofnuninni. Þessu verða allir að lúta og sýna í verki við sérhvert verkefni á degi hverjum.
Það er væntanlega ljóst hverjum manni, sem upptökur hefur séð frá morðtilræðinu gegn Donald Trump, að Öryggisleyniþjónustan stóð sig ekki í stykkinu. Samkvæmt gögnum hennar skal þjálfun og starfi þannig háttað, að engin mistök eigi sér stað. Svo var ekki í þetta sinn og engu líkara, en að sjónleikur hefði verið settur á svið. Eins og jafnan er, þegar slíkir sjónleikir eru samdir, er tilræðismaðurinn sagður brjálaður undanvillingur. Þannig er það líka nú. Skýringa á tilræðinu er ákaft leitað.
Donald hefur verið þyrnir í augum Nató, gerir kröfu um, að bandalagsþjóðirnar kosti sjálfar eigin varnir í meira mæli. Framverðir Bandalagsins og hins frjálsa heims í Úkraínu hafa fengið kul í iljarnar. Donald hefur nefnilega látið að því liggja, að hann efist um getu herafla Úkraínu og Nató til að bera sigurorð af Rússum og leggja undir sig rússneska stórveldið.
Sjálfur hefði Donald fyrirskipað, væri hann forseti, að sprengja bæði Moskvu og Bejing, þ.e. ef Kínverjar legðu undir sig Taívan. Hann sagði upp samningunum um takmörkum meðaldrægra kjarnorkuvopna (Intermediate-Range Nuclear Forces INF) og samningnum um Opna himna (Open Skies Treaty) við Rússa.
Og svo má ekki gleyma því, að Donald dró Bandaríkin út úr samningum við Írani um kjarnorku 2018. Í ljósi stuðnings hans við hernað Ísraela þætti mér ekki ólíklegt, að hann sendi heita kveðju til Teheran líka.
Nató þróast reyndar nú þegar í átt að eins konar hernaðar-Schengen með Þýskaland í forystu. Varnarlínan, sem allt kapp er lagt á að efla frá norðri til suðurs, er kennd við Evrópusambandið. Það mætti jafnvel búast við því, að Evrópusambandið og Nató stofnuðu í alvöru Evrópuher. Donald fór fram á það á sínum tíma, að bandlagsríkin hækkuðu útgjöld sín til hernaðar í 4% af þjóðarframleiðslu.
Donald samsinnir leiðtogum Nató um hættuna af Kína. Þar á bandaríski herinn að gera garðinn frægan og ef til vill að hjálpa Ísraelum að ganga milli bols og höfuðs á Palestínumönnum. (Líklega heimsækir hann líka þorpið á hinum sýrlensku Golanhæðum, Trump hæðir, sem Benjamin Netanyahu, vinur hans skírði svo.) Steve Bannon, herkænskufræðingur Hvíta hússins, sagði reyndar fullum fetum, að Bandaríkin ættu í stríði við Kína.
Stofnun fyrrgreinds Evrópuhers myndi létta þrýstingi af Bandaríkjamönnum í Evrópu. Vonandi verður hann ekki jafn heilalaus og Nató, samkvæmt Emmanuel Macron.
Alheimsefnahagsráðinu (World Ecomic Forum) hefur þótt Donald tregur í taumi og lyfjafyrirtækin sýna ygglibrún. George Soros, öflugasti stuðningsmaður eymdarhyggjunnar (woke) og litaskrúðsbyltinga um víða veröld, segir Donald oddaóvin samkundunnar í Davos.
Í Íran nýtur Donald heldur ekki vinsælda. Íran hefur verið gert af skotspóni bandarískra yfirvalda eins og Írak fyrir rúmum tveim áratugum síðan, þegar tvíburaturnarnir voru jafnaðir við jörðu.
Vissulega hafa Íranir margs að hefna í garði Bandaríkjanna; umfangsmikilla og þrálátra viðskiptaþvingana, morðsins á írakska hershöfðingjanum, Abu Nahdi al-Muhandis (f. 1954), og íranska hershöfðingjanum, Qasem Soleimani (f. 1957), árið 2020, og þátttöku í morðum Ísraelsmanna á fulltrúum Írans- og Sýrlandsstjórnar. Dómstólar í Írak hafa gefið út handtökuskipun á hendur Donald Trump, sem fyrirskipaði fyrrgreind morð.
Það er einnig skynsamlegt að hafa í huga, þegar afrek Donald eru skoðuð, að undir stjórn hans var beitt sígildri utanríkismálastefnu Bandaríkjanna í Mið- og Suður-Ameríku. Stjórnvöldum í Bólivíu var steypt af stóli og sams konar tilraun gerð í bæði í Venesúela og Nígaragúa.
Á innlendum vettvangi eru líka viðsjár. Sitjandi forseti hefur lýst keppinauti sínum, Donald Trump, sem tilvistarógn við Bandaríkin og talað um hann sem skotmark. Leyniþjónustan (CIA) og Alríkislögreglan (FBI) líta Donald hornauga. Sumir muna, ef til vill, herferð FBI gegn Donald til að sýna fram á tengsl hans við Rússa (Crossfire Hurricane var aðförin kölluð).
Eymdarherinn (woke) hefur grafið upp stríðsöxina og kvenfrelsarar sérstaklega beina að Donald spjótum sínum fyrir margs konar ávirðingar gegn konum. (Hatur kvenna nær að vísu út fyrir landsteina og alla leið til Íslands. Erna Magnúsdóttir við Læknadeild HÍ óskaði sér í nokkrar sekúndur að árásarmaðurinn hefði hitt.)
https://fiamengofile.substack.com/p/fight-fight-fight-vs-diversity-diversity?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=146763849&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Það er kjarninn í trúboði kvenfrelsaranna, að skaparanum (eða náttúrunni) hafi orðið á mistök, þegar karl- og kvenkyn komu til sögunnar, því karlkynið hafi kúgað hitt. Móðurhlutverkið er þáttur í þessari kúgun. Því ríkir ójafnrétti millum kynjanna og frelsisbarátta kvenna er nauðsynleg.
Mistökin uppgötvuðust upp úr miðri nítjándu öldinni hjá yfirstéttarfrúm Evrópu og Bandaríkjanna. Eftir aðra heimstyrjöld fékk kvenfrelsunartrúboðið byr undir báða vængi. Auðjöfrar og sjóðir þeirra báru fé á hreyfingu kvenfrelsara. Skólarnir, sem þeir fjármagna, að miklu leyti, tóku hugmyndunum með opinni buddu. Kvenfrelsunarfræði urðu að virðulegum vísindum og trúarbrögðum meðal stjórnmálamanna og almennings.
Kvenfrelsunarvísindamennirnir spreyta sig stöðugt á að finna ný tilbrigði við kúgun karla á konum og færa á þau sönnur. Stríðið gegn körlum er árangurríkt, en samtímis hafa konur aldrei verið ólukkulegri. Geðlyfjaneyslan er ótrúleg. Karlar eru líka ólukkulegir. Þeir skrá sig út úr samfélaginu; draga sig til hlés, svipta sig lífi eða gefa sig fíkn á vald. Það þarf varla að fjölyrða um bágindi barna. Strákarnir eru orðnir skólaskussar og forðast æðri menntun, enda illa læsir margir.
Næsti þáttur í upplausnarframvindunni var kynið sjálft. Fleiri mistök skaparans komu í ljós. Kvenfrelsunarspekingarnir beindu spjótum sínum að eðlislægri kynskiptingu í karl- og kvenkyn. Eðliskyn er ekki til, sögðu þeir. Kyn er valfrjálst og það þarf að kenna börnum frá unga aldri.
Kennslumyndir hafa verið gerðar í þessu skyni eins og Mamma er með yfirrvaraskegg (Mama has a Mustache). (Katrín Jakobsdóttir beitti sér sérstaklega fyrir samningu þess háttar námsefnis.) Auðjöfrar eins og kynskiptingurinn, Jennifer (James) Pritzker, opnuðu budduna eins og sjóðir Ford og Rockefeller (og fleiri) áður, þegar fyrri mistök skaparans uppgötvuðust.
Skólaðir kvenfrelsarar segja kynfrelsun byltingu mannkyns. Rosa Lee gerir sér í hugarlund, að kynskiptingar séu hin nýja framvarðarsveit kúgaðs verkalýðs. En eins og kunnugt er boðaði Karl Marx (1818-1883) frelsun hans í blóðugri byltingu. Bók sína kallar Rosa Kynskiptingabyltingarfræði (Transgender Marxism).
Kynskiptingurinn, Susan Stryker, hefur heldur ekki legið á liði sínu við eflingu fræðanna. Hún segir trúboðsstarf sitt felast í að skapa kynjaóreiðu, svo auðveldara verði að umbreyta kyninu með tilliti til samfélags og umhverfis. Kroppur hennar sé farvegur reiði og hefndar gegn gagnkynhneigðinni, segir hún. Markmiðið er að vinna gegn kúgun náttúrunnar og eyðileggja hefðbundin fjölskyldugildi. (Þetta er líka boðskapur Alheimsefnahagsráðsins.)
Samtímis þróun fræðanna vinna kynskiptingabyltingarmennirnir að því að meitla trúna í löggjöf. Jósep Biden segir það jaðra við synd að neita barni um kynbreytingameðferð, þ.e. lyf og skurðaðgerð. Slíkar aðgerðir eru víða stundaðar í Bandaríkjunum. Kynbreyting er arðvænlegur atvinnuvegur.
Það veldur þó sumum læknum og hjúkrunarfræðingum ónotum að skemma líkama ungra barna. Eitam Heim, sem starfaði á stærsta barnasjúkrahúsi Bandaríkjanna í Texas, ofbauð. Hann gerðist uppljóstrari. Nú situr hann á sakamannabekknum, ákærður fyrir að hafa gægst í sjúkraskrár.
Blaðamaðurinn, Christopher Rufo, skrifaði um þetta grein og margar fleiri um efnið. Ein þeirra ber fyrirsögnina; Konungar kynskiptanna (The Transgender Empire).
Annar óþekktargemlingur, sálfræðingurinn kanadíski, Jordan Peterson, á fróðlegt viðtal um málið við hinn geðþekka Eithan. Það má nefna í þessu sambandi, að Jordan er til rannsóknar hjá Sálfræðingafélaginu sínu. Sakarefnið er óvirðing við fjölbreytileikann, þ.e. afbrigðilegt kynferði og iðkendur afbrigðislegs kynlífs.
https://christopherrufo.com/p/the-business-of-transgenderism https://www.youtube.com/watch?v=Xwsekb5QReo https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2303856 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/4/ https://frettin.is/2023/04/19/kynami-kynjavitfirring-kennarar-og-logreglumenn/ https://frettin.is/2022/08/27/kyngimognud-kynleysa-og-mugsefjun/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/5/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2265051/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2269999/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/7/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/6/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/9/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/10/ https://frettin.is/2022/10/02/kynskipti-eru-drengir-randyr-en-stulkur-tholendur/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2262632/ https://frettin.is/2023/04/04/sjuk-kvenfrelsun-kynbreytingaidnadurinn-redurofundin-og-ofbeldid/ https://formannslif.blog.is/blog/formannslif/entry/2303842/?fb=1&fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR1U6YJ4TlgD22qUDt1HxGtvgRghrhepPPJROTevp4EuYr_OD25QUV6MVVc_aem_J6hegwZzKtkOXQSVKaEtwA https://frettin.is/2023/05/22/born-eru-blekkt-til-ad-thiggja-kynstadfestingar/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/3/ https://www.visir.is/g/20201999956d/kyn-roskun-stulkna.-hin-nyja-modur-syki- https://www.transgendermap.com/issues/topics/media/christopher-rufo/ https://www.city-journal.org/article/the-murky-business-of-transgender-medicine https://apnews.com/article/texas-doctor-transgender-care-indicted-80f26e760bdf857c4728bd39e2fddc50 https://www.youtube.com/watch?v=-5n1m2eXUDw https://corbettreport.com/qfc082-trans-humanism/
Erich Neumann (1905-1960) var þýsk-ísraelskur heimspekingur, læknir og greiningarsálfræðingur (analytische psychologe). Hann fæddist í Berlín árið 1905, nam heimspeki við háskólann í Erlangen-Nuremberg og lauk því námi með doktorsgráðu árið 1927. Erich hélt áfram námi í læknisfræði við háskólann í Berlín. Því námi lauk hann árið 1933. Ári síðar hvarf Erich frá Þýskalandi ásamt fjölskyldunni og fluttist til Ísrael. Banamein hans var krabbamein.
Erich snéri öðru hverju til Evrópu, Sviss, þar sem hann starfaði með Carl Gustav Jung (1875-1961), upphafsmanni greiningarsálfræðinnar (analytische psychologie). Erich hefur skrifað nokkrar bækur eins og t.d. Sögu uppruna vitundarinnar (Ursprungsgeschichte des Bewusstseins The Origins and History of Consciousness), sem kom út árið 1949. Lærifaðirinn skrifað lofsamlegan inngang að verkinu. Sjö árum síðar gaf Erich út Miklu móður. Arfmynd (fornmynd) hins mikilúðlega í fari konunnar (Die grosse Mutter. Der Archetyp des Grossen Weiblichen The Great Mother).
Erich lagði drjúgan skerf af mörkum til skilnings á tilurð vitundarinnar. Hann eins og lærifaðirinn lagði sérstaka áherslu á andlega arfleið mannsins eins og hún birtist í goðsögnum, arfsögnum, ævintýrum og list. Það gerði reyndar einnig upphafsmaður sálgreiningarinnar, hinn austurríski Sigmund Freud (1856-1939).
Erich sækir fróðleik og innblástur til beggja nefndra snillinga, en hann og fleiri stóðu í sérstakri þakkarskuld við svissneska lög- og fjölfræðinginn, Johann Jakob Bahofen (1815-1887), sem með bók sinni, Móðurréttinum. Athugun á kvenræði fornaldar samkvæmt trúarbrögðum hennar og réttarreglum (Das Mutterrecht: eine Untersuchung über die Gynaikokratie der alten Welt nach ihrer religiösen und rechtlichen Natur - Mother Right: A Study of the Religious and Juridical Aspects of Gyneocracy in the Ancient World), sem kom út árið 1961.
Erich styðst aukin heldur við þrjú önnur meginrit, sem eru: 1) Mæðurnar: Kvenveldiskenningin um félagslegan uppruna (The Mothers. The Matriarchal Theory of Social Origins), eftir fransk-skoska lækninn og mannfræðinginn, Robert Stephen Briffault (1874-1948), gefin út árið 1927. 2) Hugarheimur frumstæðra þjóða (Les Fonctions mentales dans les sociétés inférieures) eftir franska mann- og þjóðfræðinginn, Lucien Lévy-Bruhl (1857-1939) og mörg seinni rit hans um efnið. 3) Heimspeki táknanna (Philosophie der symbolischen Formen), sem út kom í þrem bindum á árabilinu 1923-1929, eftir þýska heimspekinginn, Ernst Alfred Cassier (1874-1945).
Og hver er svo þessi hugskotsmóðir, sem fylgt hefur mannkyninu frá örófi alda alla vega u.þ.b. fjórtán þúsund ár? En áður en lengra er haldið verður til skilningsauka að minnast á frumhvolfið eða frumbauginn (uroboros). Í upphafi mynduðu himinn og jörð frumhvolfið, hina fullkomnu (sam)einingu og óþrotleika. Snákurinn eða drekinn, sem bítur í hala eða sporð, er fornt tákn upphafsins. Karl og kona voru í þessum hugarheimi samþætt, samkyns, einkynjuð.
Indversk arfsögn er á þessa leið (Upanishad): Við upphaf veraldarinnar var Sálin (Atman) alein í mynd veru. Þegar hún svipaðist um, bar ekkert fyrir augu, nema hana sjálfa. Fyrst varð henni að orði: Ég sjálf. Í rauninni var hún eins mikil um sig og kona og karl, samslungin. Veran skipti sér í tvennt. Þannig urðu til eiginkarl (pati) og eiginkona (patni). Andstæður höfðu skapast.
Johann Jakob segir: Móðirin er til, áður en sonurinn kemur til sögunnar. Móðirin hefur forgangsrétt, hin karlkennda sköpun kemur síðar til sögu sem aukafyrirbæri. Konan er í upphafi, karlinn verður til. Jörðin er gundvallarviðmiðun, frumefni hins móðurlega.
Hann heldur áfram: Því er það, að í ríki náttúrunnar er karlreglan annars flokks, undirgefin hinni kvenlegu. Í þessu felst frumgerð og réttlæting kvenræðis [og] hér hafa um ómunatíð legið rætur hugtaksins um ódauðlega móður, sem binst dauðlegum föður böndum. Um alla eilífð er hún ein og söm, en áar karlsins fjölga sér í það óendalega. Hin Mikla móðir, ævinlega söm við sig, eðlar sig sífellt með nýjum körlum.
Í upphafinu ber sonurinn vitni móðurmætti og frjósemi. Því er Mikla móðir tvíkynja eða beggjakynja, hið karllega er samþætt því kvenlega. Móðirin er dýrkuð, blótuð til frjósemi. Hún er táknuð sem haf, stöðuvatn eða á. Mannsandinn smíðar í hugskoti sínu gyðjur í móðurstað.
Erich segir um þetta: Frumbaugssvipmótið leynir sér ekki, sérhverju sinni sem Mikla móðir er dýrkuð sem beggjakynsvera, t.d. skeggjuðu gyðjurnar á Kýpur og í Karþagó [Carthage, fyrrum höfuðborg púnverska heimsveldisins, nú í Túnis]. Konurnar með skeggið eða reðinn, afhjúpa frumbaugssvipinn í ljósi samþættingar hins kven- og karllega. Síðar mun þessi einkynjungur (hybrid) víkja fyrir skýrt aðgreindum kynverum, því blönduð og tvíræð gerð hans er tákn árskeiðs [í sögu vitundar og hugarheims mannkyns], sem elur af sér andstæður í fyllingu tímans.
Skeggjaða gyðjan á Kýpur er sjálf Afródíta (Aphrodite), Freyja grískrar menningar. Hún er Venus (Venus barbata, skeggjaða, eða Venus armata, vopnaða) meðal Rómverja. Gyðjan í Karþagó, sem Erich minnist á, er trúlega Tanit (Tanith, Tinnit), sem er eldforn gyðja Föníkumanna og annarra (í einni eða annarri mynd) fornþjóða við Miðjarðarhaf.
Mikla móðir var dýrkuð frá Egyptalandi til Indlands, frá Grikklandi til Litlu-Asíu [og] til myrkviða Afríku. [Hún var] alls staðar álitin gyðja veiða og stríðs. Blótsiðir hennar voru blóði drifnir, blótin hömlulaus. Allt er þetta samþætt í eðli sínu. Blóðlagið, djúpt í iðrum hinnar miklu Jarðarmóður skýrir enn frekar, hvers vegna piltarnir, sem hún leggur ást sína á, ættu að óttast geldingu. (Erich Neumann)
Árið 1869 kom út lofgjörð enska heimspekingsins, John Stuart Mill (1806-1873), Kúgun kvenna (The Subjugation of Women). Höfundur var undir sterkum áhrifum ástmeyjar sinnar og síðar eiginkonu, kvenfrelsarans Harriet Taylor (1807-1858), svo mjög, að hann átti í erfiðleikum með að greina eigin hugsanir frá hennar. Bókin var fljótlega þýdd á fjölmargar tungur. Íslensk þýðing Sigurðar Jónassonar (1863-1887) á danskri þýðingu Georg Brandes (1842-1927) var gefin út árið 1900 á kostnað hins íslenzka kvennfélags.
Íslenskir kvenfrelsarar hafa bókina í hávegum: Með réttu er John Stuart Mill kallaður kvenréttindamaður og má jafnvel skipa honum á bekk með öndvegis femínistum. (Auður Styrkársdóttir) Kvenfrelsarar víða um veröld taka undir orð Auðar. Kúgun kvenna er fyrsta bókin eftir þekktan hugsuð þar sem færð eru rök fyrir jafnrétti kynjanna og þar er þetta gert af öllum þeim sannfæringarkrafti sem Mill hafði til að bera. Af þessari ástæðu er hún, eins og vænta má, enn í miklum metum hjá femínistum hvarvetna. (Bryan Magee, Robert Jack þýddi.)
Um kúgun konunnar segir John Stuart Mill m.a.: [F]rá bernsku mannkynsins hefur konan talið sig ofurselda sem ambátt manninum [karlinum] sem þótti vænt um að eiga yfir henni að segja og honum gat hún eigi veitt mótþróa sökum þess að hún var kraftaminni. ... Og þar sem mönnum [körlum] einu sinni hafa boðist þessi kostakjör til þess að ná völdum yfir konum og hafa áhrif á þær, hafa þeir af nokkurs konar ósjálfráðri eigingirnishvöt notað tækifærið, sem þeim þótti einkar hentugt, til þess að halda þeim í kúgun með því að leiða þeim fyrir sjónir að það sem menn gengjust mest fyrir hjá konum væri veikleiki þeirra, sjálfsafneitun og það að þær legðu sinn eigin vilja í mannsins hendur.
Röksemdafærslan er í sjálfu sér rýr í roðinu, en þess ber þó vitaskuld að geta, að hér um bil hálfri annarri öld síðar, hefur þekking aukist verulega. Þær konur, sem heimspekingurinn á við, eru vafalítið enskir milli- og hástéttarkvenfrelsarar. Það kemur ekki á óvart, að konur þær hafi talið sig misrétti beittar af körlum. Hin ósjálfráða eigingirnishvöt, fer óneitanlega milli mála. Það ber ekki á öðru, en að spekingurinn sé í mótsögn við sjálfan sig í þeim efnum, sbr. t.d.: Hugprýði og hermannlegar dyggðir yfir höfuð hafa á öllum tímum stórum verið að þakka löngun þeirri sem karlmenn hafa til þess að vera dáðir af konum ... Kúgun er varla til þess fallin að laða fram aðdáun kvenna. En það er að sjálfsögðu hugsanlegt, að þær viti ekki um kúgun sína: Hvernig ætti kona sem fædd er við hin núverandi kjör kvenna og er ánægð með þau að geta metið gildi þess að vera eigi háður öðrum en sjálfum sér. Tja! Stórt er spurt.
Ónefndur lagaprófessor í Dýflinni, tekur nú til máls um stöðuna í Stóra-Bretlandi í bókinni, Lagaleg kúgun karla (The Legal Subjection of Men). John Stuart Mill er horfinn af sjónarsviðinu, en harmakvein hans um kúgun kvenna hljóma enn í eyrum fólks daglega. Þau bera vott mælsku, þau eru hátíðleg og brjóstumkennanleg, þrungin riddaramennsku. Ný útgáfa ofangreindrar bókar kom út 1908, endurbætt og viðaukin af enska lögfræðingnum, sagnfræðingnum og heimspekingnum, Ernest Belfort Bax (1854-1926). Hann hrósar New Age Press fyrir hugrekki. Forlagið tók nefnilega þá áhættu að móðga fólk með réttar skoðanir.
Höfundur mælir tæpitungulaust. Sú hugmynd, að konur lifi lífi sínu undir oki karla, er orðin að almennri firru eða bábilju, sem litar vangaveltur um það, sem í raun gæti borið á milli kynjanna. Sjaldan í mannkynssögunni hefur jafn ljúgfróður og öfugsnúinn áróður berið á borð borinn. Og kvennahreyfingin (Womens Movement), talsmenn kvenréttinda og baráttumenn fyrir kosningarétti kvenna, kunna ekki að skammast sín. Sá, sem skoðar heimssöguna í fordómalausu ljósi, neyðist til að viðurkenna, að enda þótt karlar hafi farið skelfilega að ráði sínu gagnvart kynbræðrum sínum, hafi þeir farið tiltölulega mildum höndum um konur.
Breytingar á stöðu kvenna frá aðstæðum í lénsveldi til aðstæðna í auðvaldssamfélagi einkennast af því, að brott er numinn sérhver vottur af auðsveipni eða vanhæfi, að því viðbættu, að tengd uppbótarsérréttindi eru aukin, og samtímis er bætt við nýjum forréttindum. Árangurinn er um síðir sá, að okkur [körlum] er íþyngt með stétt kyngöfginnar (sex-noblesse)....
Hin byltingarkennda kenning um jafnrétti frá 1789 [franska byltingin] er einungis látin taka til annars aðiljans [þ.e. konunnar]. Og það er gengið út frá því sem grundvallarreglu [að karl sjái] fyrir konu og að hún hafi rétt til að gera nákvæmlega það, sem henni þóknast. Samtímis er það álitið sjálfgefið, að hún sé frelsuð frá þeirri skyldu að sýna honum auðsveipni og háttprýði. Til viðbótar niðurstöðunni um drottnun í anda kvenfrelsunar er lokastaðhæfingin sú, að karlinn eigi að láta sér lynda (without redress) hvers konar óskammfeilni og svívirðu af hennar hálfu.
Fullyrðingar um kúgun kvenna hafa fest í sessi sem guðspjall um ranglæti gagnvart konum, enda þótt lögfræðingar samtíðarinnar hafi bent á, að slíkar fullyrðingar eigi sér ekki stað í lögum. Lög greina hnífskarpt á milli karla og kvenna. Í einkamálarétti er kveðið á um sérstök réttindi þeirra, í refsirétti um undanþágur.
Skoðun staðreynda leiðir í ljós, að misréttis og óréttlætis í lögum gæti einvörðungu í garð karla. Konur njóta forréttinda í lögum, hvort heldur er átt við einkarétt eða refsilöggjöf. Forréttindin eru tilkomin vegna nýrra lagaákvæða samtímis því að haldið er í lagabókstafi fornra tíma, þegar konur voru ósjálfstæðar og skiljanlegir í því ljósi. En við aðstæður nýrra tíma stuðla þessir bókstafir að harðstjórn gegn körlum.
Dæmi: Eiginkarli ber að sjá fyrir konu, hvernig sem á stendur meira að segja, sé hún ótrú. Þetta viðbótarákvæði var samþykkt fyrir atbeina kvenfrelsara 1895; eiginkarl er ábyrgður fyrir öllum gerðum eiginkonu sinnar, jafnvel þótt hún smáni hann og yfirgefi. Karlinn þjónar sem blóraböggull; fremji eiginkona glæp í viðurvist eiginkarlsins, er hann talinn ábyrgur; kvartanir eiginkonu í garð karls síns eru ekki vefengdar, viðurlög eru fangelsi, aðskilnaður, missir forsjár barna, framfærsla þeirra og móður þeirra, sem oft og tíðum eitrar hugskot barnanna gagnvart honum (fyrri réttarregla var sú, að börn voru falin í umsjá móður sinnar fram að sjö ára aldri eða svo); eiginkarli er gert að sjá fyrir barni, getnu í framhjáhaldi konunnar; eiginkona hefur óskoruð yfirráð yfir eignum og fjármunum, sem henni hafa áskotnast með einhverjum hætti, samtímis því að eiga kröfur í eignir eiginkarlsins; það er bannað að gera kröfur í eignir eiginkvenna; skilnaður er karlinum miklu fyrirhafnarmeiri og dýrari í lagalegri framkvæmd; kona getur án viðurlaga yfirgefið fjölskyldu sína andstætt við karlinn (áður fyrri hafði karl rétt til að halda aftur af konu sinni).
Í lögum er kveðið á um algjöra friðhelgi eiginkvenna og jafnframt um sekt og skaðabótaskyldu karlsins, fremji hún glæp gegn honum sjálfum í hjónabandi, sem er einungis að nafninu til. Sektina þarf karlinn sem sé sjálfur að greiða. Sé um sérstaklega skaðvænlegan glæp að ræða, kynni eiginkonan að hljóta fangelsisdóm, en vistun hennar næmi einungis einum tuttugasta af vistunardómi karls fyrir sama glæp. Þegar hún svo losnar úr fangelsi, er karl hennar nauðbeygður til að taka við henni aftur og sjá fyrir henni.
Afbrot kvenna gátu verið alls konar: [K]venmorðingi er venjulega látinn laus. Sé konan sakfelld er nær eingöngu um að ræða manndráp af gáleysi (manslaughter), en ekki morð. En vilji svo til, að kona sé dæmd fyrir morð, líður ekki á löngu uns upphefst áróður fyrir því, að hún sé látin laus. Kvenmorðingjar komast þannig hjá hengingu, nema einu sinni eða tvisvar á aldarfjórðungi.
[R]aunin er sú, að hengingar kvenna hafa verið aflagðar fyrir konur, sem myrða karla sína. Það gildir þó öðru máli, myrði þær aðrar konur eða börn þeirra. En samt sem áður sleppa þær við hengingu, drepi þær eigin kornabörn. Hver svo sem glæpurinn er, þ.e. ekki einungis dráp eigin ungbarna, er miklu auðveldara á fá dóminn mildaðan. Einnig er það miklu auðveldara fyrir konu að losna úr fangelsi.
Meinsæri: Konur beita einnig þeim klækjum að bera á karla rangar sakargiftir, stunda meinsæri. Þeim er ekki refsað. Sumar læra meinsærislistina snemma. T.d. sinnaðist tveim unglingstúlkum við föður sinn, þegar hann tók í lurginn á þeim fyrir þjófnað. Þær kærðu hann fyrir að hafa flekað sig. Það er fyrir því óræð ástæða, að kona skuli álitin ófær um að smána karlmann.
Kynferðislegt ofbeldi: Tæli kona undir lögaldri karl til samræðis, er hann sekur gerr fyrir afbrot. Öðru máli gegnir um drengi undir lögaldri, tældir til samræðis af fullvaxta konu: Rýja nokkur bar vitni um, að hún hefði tælt til samræðis nokkra drengi, yngri henni að árum. Áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu, að drengina skyldi dæma til fangelsisvistar. Konan var laus allra mála.
Falskar ákærur kvenna um kynferðislegt ofbeldi karla voru þekktar: Árið 1893 segir hinn virti skurð- og kvenlæknir Robert Lawson Tait (1845-1899): [Þ]að má ljóst vera, að fjöldi falskra ákæra í þessu efni er ískyggilega mikill. Stundum eru þær framsettar af einskærri hefnigirni, stundum til að þvinga fram hjúskap, stundum til fjárkúgunar. Hann segir einnig: [E]nda þótt karlar hendi að því gaman og spaugyrði leiki þeim á vörum, forðast þeir að ferðast aleinir í járnbrautarklefa með ókunnri konu. Þeim er fullkunnugt um það, að bendi kona að honum fingri með ásökun um kynferðislega áreitni, eru honum allar bjargir bannaðar og gildir þá einu, hver dómur réttarins verður.
Það var á valdi eiginkonunnar að draga karl sinn fyrir kvenvænan rétt, sem dæmdi samkvæmt kvenhollum lögum. Þar að auki var það í hennar valdi, að eyðileggja mannorð hans. Berji karl ögrandi konu frá sér og þá má einu gilda, hversu særandi, ósvífin eða ofbeldisfull ögrunin er - eru viðurlög skilnaður og refsivinna; [aukin heldur] eru eigur hans gerðar upptækar eða laun hans tekin að veði. Allt gengur þetta umsvifalítið fyrir sig fyrir tilstilli löggæsluréttarins [police court, lægsta stig sakadóms].
Skilnaðarréttur var stofnaður 1857. Síðan hafa öll réttindi eiginkarls verið að engu gerð eða ákvæði þess efnis numin úr lögum, samtímis því hafa öll eldri ákvæði, sem tryggja rétt eiginkvenna, haldið velli, og fleirum bætt við, eins og þeirri, að eiginkarli beri að sjá fyrir ótrúrri eiginkonu jafnvel við skilnað.
Orð Ernest Belfort Bax hljóma eflaust kunnuglega í eyrum þeirra, sem látið hafa sig jafnrétti kynjanna varða. Barátta kvenna hefur um langan aldur verið háð undir fölsku flaggi jafnréttis og að miklu leyti snúist um að viðhalda forréttindum þeirra, skráðum og óskráðum. Ennþá gera konur kröfur um framfærslu (frá körlum/hinu opinbera); ennþá er mæðrum miklu oftar dæmd forsjá barna, heldur en feðrum; enn þá er miklu harðar gengið fjárhagslega að körlum; ennþá er miklu oftar litið á karla sem kynfauta og misyndismenn; ennþá er liðin alls konar fordæming karla; ennþá er litið mildari augum á afbrot kvenna (séu þau yfirleitt viðurkennd); ennþá hljóta karlar harkalegri dóma; ennþá er konum ívilnað í samfélaginu almennt og yfirleitt. Ástandið er svipað á öllum Vesturlöndum.
Stundum hefur löggjafinn reyndar ekki rænu á að fela misréttið. Í sænsku jafnstöðulögunum (jämndställdhetslagen) stendur t.a.m.: Fyrst og fremst er tilgangurinn með lögum þessum að bæta skilyrði kvenna í atvinnulífinu. Í seinni lögum um sama málefni (diskrimineringslagen) er svo kveðið á um eða túlkað: Bannið við mismunun hindrar ekki, að körlum og konum sé mismunað, að því tilskildu, að markmiðið sé réttlætanlegt og sú aðferð, sem beitt er, sé við hæfi og nauðsynleg til að ná takmarkinu. T.d. Bannið hindrar ei heldur beitingu ákvæða um skráningu til herþjónustu og herskyldu eingöngu fyrir karla [...]. Ennfremur: Bann við mismunun hindrar ekki aðgerðir, þegar um er að ræða viðleitni til að stuðla að jafnrétti kynjanna. (Pär Ström)
Valerie Jean Solanas (1936-1988), var norður-amerískur, sálfræðimenntaður rithöfundur. Hún er einkum þekkt fyrir morðtilræði gegn listamanninum, Andy Warhol (1928-1987), árið 1968, ári eftir, að hún gaf út kvenveldisávarpið eða SCUM Manifesto. Kverið markar þáttaskil í kvenfrelsunarfræðunum. Ofstopi, ofbeldi, hatur og öfgar hafa þó ævinlega sett mark sitt á kvenfrelsunarbaráttuna. Í kverinu leggur Valerie þunga áherslu á gildi ofbeldis í byltingarkenningu sinni. Með útgáfunni skipaði hún sér í úrvalssveit kvenbyltingarstjórnleysingjanna, ásamt t.d. sálfræðingnum og sállækninum, Phylis Chester (f. 1940). Áberandi kvenfrelsarar á borð við heimspekinginn, Ti-Grace Atkinson (f. 1938), og lögfræðinginn, Floryncy Rae Kennedy (1916-2000), töldu hana fyrstu framúrskarandi hetju baráttunnar fyrir kvenréttindum og hetju kvenfrelsunarhreyfingarinnar.
Kvenveldisávarpið veitti margvíslegan innblástur herskáum baráttuhreyfingum kvenfrelsara eins og samkynhneigðu hefndarenglunum (Lesbian Avangers) og skæruliðastelpunum (Guerilla Girls). Ávarpið hefur hins vegar miklu víðtækari skírskotun í kvenfrelsunarhreyfingunni. Það er herkænskubiblía kvenfrelsaranna, mikilvægur hugmyndafræðigrundvöllur þriðju bylgju kvenfrelsunar - og þeirrar fjórðu, sem hófst fyrir áratugi eða svo.
Látum Valerie hefja upp raust sína: Karlmaðurinn stjórnar samfélaginu, enda þótt hann beri hvorki skynbragð á rétt né rangt. Hann er samviskulaus, firrtur sjálfi. Þar sem hann er ófær um að vinna með öðrum og þrúgaður af eðlislægri samkeppni, vaknar þörfin fyrir leiðsögn og stjórnun að ofan. Þess vegna skapaði hann yfirvöld af ýmsu tagi og sá til þess, að þau væru karlkyns til að styrkja eigin karlmennskuímynd. En karlinn er dauðhræddur við aðra kynbræður sína. Því leitast karlmenn við að vera eins, kynstofn einn og samur. Hann hefur þó döngun í sér til að vera frábrugðinn öðrum að því marki að gangast við viljaleysi sínu og þránni til að vera kona, þ.e. öfugkynsþrá. Þeir, sem lengst ganga, eru klæðskiptingar, kvendrottningar. Karlinn er svekktur yfir því að vera ekki kona, vera ófullkominn, og verða stöðugt fótaskortur.
Karlinn fann upp trúarbrögð og heimspeki til að reyna að ráða bót á tilgangsleysi sínu, fylla upp í innra tóm sitt. Í list sinni leitast hann við að færa sönnur á, að hann sé konunni fremri, jafnvel þótt honum sé ofviða að skapa. Reyndar hryllir hann við menningu, fólki, borgum og aðstæðum, þar sem þarf að ná sambandi við fólk, því hann er aflokaður í sjálfum sér, ófær um að teygja sig til annars fólks, tilfinningalega einangraður. Karlinn ... situr á svikráðum og einu viðeigandi viðhorfin í karlasamfélaginu eru tortryggni og kaldhæðni.
Brýna nauðsyn ber til að bylta slíku samfélagi eins og gefur að skilja, stofna samfélag skynsemisvera. Þegar best lætur er samfélag vort drepleiðinlegt, að engu leyti boðlegt konum. Það liggur fyrir ábyrgum konum, sem láta sig samfélagið varða og sækjast eftir unaði og spennu, að velta ríkisstjórninni úr sessi; uppræta peningakerfið, innleiða fulla sjálfvirkni og eyða karlkyninu.
Lög, ríkistjórn og leiðtogar eru ónauðsynlegir í samfélagi skynsemisvera, sem búa yfir samhygð; fullskapaðar og firrtar þörf fyrir samkeppni. Ást skynsemisveranna er mikilvæg: Ást getur ekki blómstrað í samfélagi peninga og inntakslausrar vinnu; þörf er fullkomins frelsis á sviði efnahags og einkalífs; [þörf er] frístunda og tækifæra til að sinna í algleymi líferni, sem er tilfinningalega fullnægjandi [og] að lifa meðal þeirra, sem metnir eru að verðleikum; [þörf er] lífernis, þar sem hnýtt eru sterk vináttubönd.
Fólk á ekki að þurfa að vinna meira, heldur en tvær til þrjár stundir á dag í mesta lagi. En það eru ómennskar ástæður fyrir því, að karlar vilja halda í peningakerfið; til að ástunda kynlíf með konum (pussy) í þeirri von að verða heilar mannverur; til að blekkja með nytsemistálsýninni, því ófærir um ást verða karlmenn að starfa; til að stjórna og beita valdi; til að bæta upp meðfætt ástleysi, gefa peninga; til að skapa markmið og tilgang; til að leggja grundvöll að föðurhlutverkinu, sem er geðveiki líkast, þ.e. að stjórna og ráðskast með börn og girnast dætur sínar. ... Útrýming launavinnu mun ... frelsa konur undan oki karla, en ekki fjárhagslegt jafnrétti.
Eins og gefur að skilja er um að ræða kvenbyltingu: Því karlbyltingarmaður er skrumstæling; þetta er samfélag karlanna, hannað af karlinum til að fullnægja þörfum hans. Hann er aldreii ánægður, því hann er ófær um ánægju. Þegar allt kemur til alls, er bylting karlsins uppreisn gegn eigin eðli. Því eru örlög kvenna sjálfgefin: Konan mun, hvort sem henni líkar betur eða verr, taka öll völd í fyllingu tímas, jafnvel þótt væri bara af þeirri einu ástæðu, að hún neyðist til þess þegar öllu er á botninn hvolft hverfur karlinn af sjónarsviðinu.
En ætli karlar eygi vonarglætu? Það rennur sífellt skýrar upp fyrir þeim [körlum], að hagsmunir kvenna séu þeirra hagur; að þeim sé einungis fært að lifa fyrir tilstuðlan kvennanna; að aukin hvatning til kvenna til að lifa lífi sínu og rætast sem konur, en ekki karlar, geri hann sjálfan lífvænlegri. Þeim er orðið ljóst, að auðveldara sé að lifa fyrir tilstuðlan kvenna, heldur en að hrifsa til sín eiginleika þeirra, ...
Áður en sjálfvirknin hefur verið innleidd og vélar koma í stað karla ætti karlinn að gera konunni gagn, þjóna henni til borðs, hlaupa eftir duttlungum hennar, hlýða hverju og einu boði hennar, beygja sig fullkomlega í duftið fyrir henni, ... Það er ofur skiljanlegt háttalag í ljósi eftirfarandi: Á sama hátt og mannverur hafa æðri tilverurétt, heldur en hundar, því þær eru þróaðri og hafa yfirburðavitund, hafa konur æðri tilverurétt, heldur en karlar.
Beygi hann sig í duftið með ofangreindum hætti, kynni að vera von, því líf konunnar snýst um að skapa tengsl, láta ljós sitt skína, elska og vera hún sjálf. Líf karlsins snýst um að framleiða sæði. ... [L]íf konunnar snýst [ennfremur] um að skoða, uppgötva, finna upp, leysa vanda, skapa hnyttinyrði og semja tónlist allt í anda ástarinnar. Sæðisframleiðendurnir gætu líka reynt að sækja um inngöngu í hjálparsveitir kvenna til að bjarga skinni sínu, enda þótt [s]érhver karlmaður gangi ekki að því gruflandi, að hann sé jafnvirði skíts. En þrátt fyrir þetta er karlinum ljóst, að upplýst og vitundarvakin kvenþjóð boðar hans skapadægur.
Karlinn er bágstödd vera, ef veru skyldi kalla, því [k]arlinn er þróunarslys ... ófullkomin kona, fóstureyðing í lifanda lífi, ónýtur á erfðavísisstigi. ... Karlinn er skertur, býr við tilfinningalega takmörkun. Karlmennska er skerðingarsjúkdómur og karlar eru tilfinningalegir krypplingar. Karlinn er að öllu leyti sjálfhverfur, gildra sjálfum sér, ófær um samúð og samkennd, ást, vináttu og blíðu. Hann utangarðseining, ófær um að stofna til sambands við annað fólk. Viðbrögð hans eru einvörðungu eðlislæg, firrt vitundarstjórn; greindin er tæki, sem stjórnað er af hvötum og þörfum hans; ástríða er honum fjarri sem og andleg samskipti; hann skynjar ekkert annað, heldur en innri hræringar. Hann er hálfdauður, fáskiptið dauðyfli, ófær um að veita og þiggja unað eða hamingju; ... Karlinn er ... uppnagaður af sektarkennd, ótta og óöryggi; tilfinningum, sem eiga rætur í karleðlinu...
En snúum okkur að byltingunni. Afhausarafélagið (SCUM Society for Cutting up Men) leiðir byltinguna. Forystusveitin er skipuð úrvalskonum, afhausurum. Afhausarar eru konur, sem búa yfir sjálfsstjórn og eru eftir atvikum viti bornar (cerebral) og eru nánast firrtar þörf fyrir kynlíf; eignir hefta þær ekki, ei heldur aðlaðandi viðmót, háttprýði, almenningsálit, siðvendni, virðing fyrir fábjánum, ...
[E]f mikill meirihluti kvenna væru afhausarar (SCUM), myndu þær á nokkrum vikum hrifsa til sín öll völd með því að leggja niður vinnu og þar með lama alla þjóðina. ... Ef konur gæfu karla upp á bátinn og neituðu að hafa saman við þá að sælda nokkru sinni, alla karla þ.m.t. ríkisstjórn, þá yrði hagkerfi þjóðarinnar lagt í rúst. Konur gætu einnig náð fullkomnum yfirráðum yfir körlum, jafnvel án þess að yfirgefa þá í ljósi yfirburða sinna og valds. Í heilbrigðu samfélagi myndi karlinn vera hlýðinn konunni, því eiginlega er karlinn auðsveipur og leiðitamur, lætur sér ljúfur lynda drottnun sérhverrar konu, sem hefur nennu til þess að drottna yfir honum.. Í ljósi þessa stendur baráttan milli afhausara og pabbastelpna, sem m.a. eru alúðlegar, skynlausar, ósjálfstæðar, smeykar, kúgaðar, háttprúðar, siðvæddar, aðgerðafælnar, og þurfa sterkan karlmann sér við hlið.
Það þarf reyndar ekki nema lítinn hóp afhausara til að taka völdin innan árs með því að tæta í sundur kerfið, eyða völdum eignum og myrða. Úrvalssveitin er skipuð drápsmönnunum. Afhausarnir munu ganga milli bols og höfuðs á öllum körlum, sem ekki eru skráðir í hjálparsveitir þeirra. Það eru karlar, sem eru mauriðnir við að tortíma sjálfum sér ... Játning þeirra skal hljóma: Ég er skíthæll, já, lúalegur, fyrirlitlegur skíthæll.
Í kvenveldinu skyldu konur ekki ganga að því gruflandi, að [k]arlinn [sé] ómannleg skepna, ... sem eðli sínu samkvæmt [sé] blóðsuga, tilfinningalegt sníkjudýr. Þess vegna er líf hans ekki réttlætanlegt úr siðferðilegu sjónarhorni séð, þar sem enginn hefur rétt til að lifa á kostnað annarra. ... Því er tortíming karlkynsins réttlát og góð gjörð, sem kemur konum vel, samtímis því að vera líknargjörningur. En það er ekki víst, að til þessa komi, því til viðbótar hinum sígildu stríðum, fækkar karlmönnum sökum fíkniefnadauða og öfug- eða samkynhneigðar, þ.e. hann gengst við því að vera kona.
Fyrir og eftir byltingu (þ.e. sé körlum enn til að dreifa) verða konur að halda vöku sinni m.a. vegna þess, að kynlíf karlsins er dýrslegt: Það er karli upphafning, sé hann kallaður dýr; hann er vél, gangandi reður ... þráhyggja hans er að serða. Skýring er vandfundin: Sjálfsfróun dugar til að losa spennu. Spennulosun er því ekki svarið. Það er ekki styrking sjálfsins, því hún skýrir ekki samfarir við lík og hvítvoðunga. ... Samfarir eru því örvæntingarfull áráttuhegðun, viðleitni karlsins til að sýna fram á, að hann sé ekki vanvirkur, sé ekki kona. En [engu að síður] er hann vanvirkur og langar að vera kona. Karlinn er ófullgerð kona og leitast því við í lífi sínu að verða [alvöru]kona. Hann umgengst konur, vingast við þær og staðhæfir, að dæmigerðir eiginleikar kvenna séu í rauninni hans, þ.e. tilfinningaþróttur og sjálfstæði, dugur, atorka, ákveðni, sjálfsstjórn, hlutlægni, skörungsskapur, hugrekki, ráðvendni, fjör, styrkur, manngerðarþroski, fágæti og svo framvegis. Einkennum sjálfra sín varpa þeir yfir á konur: hégóma, léttúð, smámunasemi, breyskleika og svo framvegis.
En hvernig skyldi æxluninni vera háttað í kvenveldinu? Þegar hér er komið sögu gæti vel verið, að kvenkarlarnir væru ekki lengur tilkippilegir, þar eð kynmök eru vörn karlsins gegn ósk sinni um að vera kona. Upphafsmaður sálgreiningarinnar, Sigmund Freud (1856-1939), hafði nefnilega á röngu að standa í kenningu sinni um fyðilöfund kvenna: Konur ... ala ekki á fyðilöfund; karlar [aftur á móti] þjást af láfuafbrýði. Það eru raunar öll tormerki á kynlífsástundun: Kynlíf er athvarf hinna skynlausu. Og því skynlausari sem konan er, því dýpra hefur hún gefið sig á vald karlmenningunni. Í hnotskurn; því viðkunnanlegri sem hún er, því graðari er hún. ... Viðmótsþýðustu konurnar í samfélagi voru eru með brókarsótt.
Kynlíf er reynsla í einmannaleika, ófrjó, stórkostleg tímasóun. Konur geta auðveldlega miklu auðveldar, heldur en þær grunar afmáð kynhvötina, svo þær sitji algjörlega við eigin stjórnvöl og frjálsar að því að stofna til gildra sambanda og athafna; ...
Það verður að leita annarra leiða við æxlun. Það er ekki einvörðungu, að kynlíf sé tímasóun, heldur býður faðirinn hættunni heim: Faðirinn elskar ekki börn sín, því hann er tilfinningalega bæklaður. ... sorp. ... Áhrif feðra hafa orðið til þess að tæra veröldina með karlmennsku. ... Æxlun án aðkomu karla er tæknilega kleif.... Við þurfum að láta hendur standa fram úr ermum í þeim efnum. Varðveisla karlsins er ónauðsynleg, jafnvel þótt litið sé til hins vafasama tilgangs að æxlast.
Forsætisráðherra vor, hin gjörvilega Katrín Jakobsdóttir, er sæl með hreyfingu sína, Vinstrihreyfinguna grænt framboð eða VG í daglegu tali. Kvenfrelsun er ein grunnstoða hreyfingarinnar. Þar segir m.a., að konur [séu] undirskipaðar en karlar yfirskipaðir. ... Kvenlægir eiginleikar eru þannig taldir minna virði en þeir karllægu. Á því byggir svo yfir- og undirskipan kerfisins. Lögð er áhersla á, að Ísland [líklega átt við Íslendinga] taki virkan þátt í baráttu kvenna hvarvetna fyrir kynfrelsi og yfirráðum yfir eigin líkama. ... Standa þarf vörð um rétt kvenna til fóstureyðinga. (Þetta mætti allt eins lesa í prófritgerð frá kvenfrelsunardeild Háskóla Íslands.)
Það virðist ljóst, að undirokun karla sé einhliða. Allavega minnist hin dugmikli forsætisráðherra aldrei á karlfrelsi, eftir því sem næst verður komist. Misréttið verður einungis leiðrétt með því að auka rétt kvenna og/eða skerða rétt karla. Þegar Katrín berst með VG fyrir meira jafnrétti á hún líklega við minna misrétti. Kredda VG og Katrínar um harðneskju og grimmd karla hljómar óneitanlega kunnuglega sem bergmál úr fjarlægri fortíð. Einn frumkvöðla kvenfrelsunar, Elizabeth Cady Stanton (1815-1902) hafði á orði: Karlinn er þrunginn tortímingu; harðneskjulegur [og] sjálfselskur. Hann unnir stríði, ofbeldi [og] sigurvinningi, miklast af sjálfum sér og leggur að fótum sér. Eins og í hinum veraldlega heimi sáir hann í siðferðið ósætti, glundroða, sjúkdómum og dauða. Stefanía Traustadóttir einfaldar kreddu kynsysturinnar: Ég lít svo á að konur séu kúgaðar vegna þess að þær eru konur.
Enn eru til konur í vestrænum samfélögum, sem eru undirokaðar og í alvarlegri kröm, en gera sér ekki grein fyrir kúgun feðraveldisins - og þá er [f]öðurveldið ... [nefnilega] skeinuhættast, þegar kúgunin virðist ekki vera kúgun, ... (Marcie Bianco). En VG kemur til skjalanna og vekur konur til vitundar um kúgun sína, frelsar þær eins og hvítir riddarar Alþingis.
Mona Eltahawy (f. 1967) gæti sem hægast mælt fyrir munn Höllu Gunnarsdóttur, aðalhugmyndafræðings VG um kvenfrelsun og ráðgjafa ríkisstjórnarinnar í málaflokknum, þegar hún segir: [K]venfrelsun snýst um það að koma konum til valda, svo þær megi uppræta feðraveldið, fremur en að halda því við. ... Ímyndið ykkur feðraveldið sem kolkrabba. Höfuð hans er feðraveldið, því þaðan kemur hugmyndafræðileg stjórnun griparmanna átta. Þeir eru, hvað kalla má, kúgunarkerfin eða hinar aðskiljanlegu stofnanir, sem kúga oss eins og yfirráð hvítra, auðvaldið, kvenfæð, samkynhneigðarfælni, ofstæki og lítilsvirðandi fordómar (ableism).
Skipulögð kvenfrelsun (sé franska byltingin undanskilin) hefur bráðum staðið yfir í tvær aldir. Enn þá hefur smiðshöggið á frelsun konunnar ekki verið rekið, að dómi kvenfrelsara innan VG og utan. (Að vísu virðist söguþekkingu þeirra í nokkru ábótavant, t.d. frelsara, sem stöðugt frelsa geirvörturnar sínar og móðurlíf.) Því eru boðaðar nýjar leiðir: Ég bið fólk að hugleiða ... sviðsmynd, þar sem við [konur] myrðum ákveðinn fjölda karlmanna í viku hverri. Hversu mörgum þyrftum við að koma fyrir kattarnef, þar til feðraveldið sest niður handan borðsins og segir: Gott og vel, látum gott heita. Hvernig er það í okkar valdi til að stansa aflífunina? (Mona Eltahawy) Eftirfarandi orð Mary Daly (1928-2010) mætti einnig sjá fyrir sér í stefnuskrá byltingarflokksins: Afeitrun jarðarinnar verður að eiga sér stað, eigi líf að þrífast til framtíðar. Ég hygg, að hún verði samhliða þróun, sem hafi í för með sér verulega fækkun karlmanna. Eins og allir vita eru karlar ábyrgir fyrir tortímingu jarðarinnar.
Í ljósi undirokunar karla á konum og eyðingar þeirra á vistkerfinu sýnist einboðið að leita þurfi leiða til að auka vald konunnar. Rétturinn til eyðingar fósturs er ein þeirra, enda [h]afa konur í ljósi sögunnar verið skilyrtar til að trúa því ... að megintilgangur þeirra í lífinu sé að búa til börn. (Marcie Bianco) Valdefling kvenna heitir slíkur réttur á tungumáli kvenfrelsaranna. Katrín Jakobsdóttir er í þann mund að skipa sér á bekk þeirra öfgafyllstu. (Þar fór góður biti í hundskjapt, hefði amma sagt.) Katrín sagði við atkvæðagreiðslu á Alþingi um hið nýja frumvarp til laga um fóstureyðingu eða þungunarrof (orðið leiðir hugann óhjákvæmilega að landrofi, rofabarði og vítahringjum), að það sé skref í þá átt, að gera konur í þessu landi frjálsari. Helst hefði forsætisráðherra viljað, að verðandi móður væri heimil fóstureyðing fram að fæðingu barns. Systir hennar í trúnni, Svandís Svafarsdóttir var í sigurvímu og fagnaði því sérstaklega, að við [séum] hér með þessum lögum að festa í sessi sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama og ákvörðunin um það, hvort hún vill halda meðgöngu áfram eða ekki fram að ákveðnum tíma meðgöngunnar er hjá henni, en engum öðrum ...Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, kvenfrelsunarsystir úr Sjálfstæðisflokknum, tekur í sama streng: Hér greiðum við atkvæði um eitt stærsta réttindamál kvenna í seinni tíð...
Það vekur athygli, að umræddum hugmyndafræðingum, sem lagt hafa gjörva hönd á samþykkt alþjóðasamninga um mannréttindi, vernd barna gegn ofbeldi og lögleiðingu kvenna sem fórnarlamba karla - í samræmi við stefnuskrá VG - virðist ekki leiða huganna að því, að ofangreindir samningar og lög gætu átt við fóstur eða börn í móðurkviði. Er réttlætanlegt að beita ófædd, heilbrigð börn ofbeldi, þegar líf og heilsu móður er engin hætta búin? Sameinuðu þjóðirnar skilgreina ofbeldi svo: [Það er ofbeldi ], þegar afli er beitt eða beitingu þess er hótað gegn sjálfum sér, einstaklingi, hópi eða samfélagi, í þeim ásetningi að valda skaða [líkamlega] eða andlega, hefta þroska eða skerða - eða stuðla að því, að slíkt gerist.
Ofbeldi gegn börnun eins og annað ofbeldi er daglegur kostur í mannfélögum. Fóstureyðingar eru tiltölulega nýtilkomnar sem ofbeldisaðgerð gegn börnum og þekkjast því varla í samfélögum einfaldari að gerð miðað við hin vestrænu. En ungbarnadráp eru þekkt meðal fjölda þjóða og ættflokka. Ungar mæður af kynþætti Ayoreo í Bólivíu og Paragvæ kviksetja (eða kviksettu) ungabörn, jafnvel hvert á fætur öðru. Ástæður eru m.a. þær, að móðir nýtur ekki stuðnings föður; að barnið sé afmyndað; að annað ungbarn sé fyrir; að um tvíbura sé að ræða. Auk þessa eykur móðirin með gjörningnum líkur á því að krækja sér í eiginmann. Ungbarnamorð tíðkast með svipuðum hætti hjá Yanomamö og Ache fólkinu í Suður-Ameríku. Hið síðastnefnda drepur unglinga einnig. Á tilteknu tímabili voru rúm níu af hundraði barna undir fimmtán ára aldri, sem misst höfðu feður sína, líflátin. En þetta átti við einungis um 0.6 af hundraði barna, sem átti föður á lífi.
Öll samfélög í Asíu fremja (eða frömdu) ungbarnamorð; í Afríku, Norður-Ameríku og Suður-Ameríku eru (eða voru) þau algeng. Í samfélögum, þar sem iðnbyltingin átti sér stað, voru börn einnig drepin í um helmingi þeirra.Útburður hvítvoðunga á Íslandi er væntanlega kunnur flestum landsmönnum. Nú er slíkt háttalag bannað með lögum, en löggjafinn heimilar verðandi móður eyðingu fósturs fram yfir miðja meðgöngu. Það er kaldranaleg sviðsmynd og nöturleg, þar sem læknar berjast á stofu við að bjarga fóstri á meðan læknar handan þils eyða öðru á svipuðu reki.
Fóstureyðingar eru algengar. Þegar fyrir aldarfjórðungi síðan var endir bundinn á tæpan þriðjung þungana með fóstureyðingu, sem þá var algengust læknisaðgerða í Bandaríkjum Norður-Ameríku (BNA) - svo dæmi sé tekið. Í Stóra-Bretlandi er fimmtungi fóstra eytt sökum vanheilsu móður. Tíu af hundraði þeirra mæðra sýna verulegar og þrálátar truflanir á sálinni, að aðgerð lokinni. Ótalin eru þau þrjú af hundraði reifabarna (í BNA), sem láta lífið vegna fíkniefnaneyslu móðurinnar. Það er öflug fóstureyðing. Reyndar eru rúm tíu af hundraði barna í BNA fædd fíkniefnaneytendum. Þau sýna yfirleitt margvíslegar þroskaskerðingar. Hlutaðeigandi mæður eru ekki sóttar til saka. Máttur þeirra er mikill.
Enn þá eru börn deydd á Vesturlöndum, einkum af ungum og ógiftum mæðrum, sem myrða börn sín á grófan hátt, þegar feður barnanna skirrast við að ganga í hjónaband til að styðja þær. Í Kanada til að mynda eiga ógiftar konur, að meðaltali um tuttugu og þriggja ára, um tólf af hundraði nýbura. Þær myrða hins vegar börn sín í rúmlega sextíu af hundraði tilvika. Í dómsmálum, tengdum barnsmorði, kennir margra grasa; ung pör, sem deyða nýfætt barn sitt, unglingsmóðir, sem víkur sér af dansleiki, fæðir barn, deyðir, kastar líkinu í sorptunnu og heldur dansleiknum svo áfram. Mæður deyða einnig stálpuð börn. Dæmi: Nýskilin móðir, Súsanna, átti tvo sonu, þriggja ára og fjórtán mánaða. Í tilhugalífi sín með nýjum ástmanni ásakaði hún negra um að hafa numið drengina á brott. Það sanna í málinu var hins vegar, að hún drekkti þeim, þar eð kærastinn vildi ekki ala upp annars manns börn. Það kynni að vekja skelfingu og undrun, að morð Súsönnu sé ekki djöfulleg undantekning heldur að mörgu leyti dæmigert. Hin morðæðislega æxlunarrökhyggja hennar er áþekk þeirri sem konur víðs vegar um veröldina beita, þegar barn stendur í vegi fyrir hjónabandi ellegar ógnar tímgunaröryggi þeirra til lengri tíma litið. Barnsvíg virðist ritað í erfðir okkar, en slík hegðun losnar einkum úr læðingi hjá ungum, ógiftum og örvæntingarfullum mæðrum, sem sálga nýfæddum börnum sínum. (Michael P. Ghiglieri)
Forsætisráðherra vor virðist ekki hafa áhuga á ofangreindu valdi mæðra án afskipta dóms og laga. Nýveittur réttur þeirra til að deyða fóstur er hugleiknari. Hann skyldi aukinn enn. Ofangreindir morðingjar sleppa vel sökum allsráðandi móðurhyggju. Afbrotafræðingurinn, Barbara Kervin, hefur bent á, að engin þrjú hundruð mæðra í Bandaríkjum Norður-Ameríku og Bretlandi, sem drepið hafa hvítvoðunga sína, þurfti að gista fangageymslur eina einustu nótt. Staðan hjá grönnum okkar er svipuð. Haft eftir Vibeke Ottesen, afbrotafræðingi, sem varði doktorsritgerð sína um barnsmorð í Noregi á árunum 1990 til 2009: Mæðurnar eru tilgreindar, en engin þeirra er látin sæta ábyrgð. Morðin eru þess í stað skilgreind sem einstaklingsbundinn harmleikur kvenna í lífskreppu. Og hún heldur áfram: Morð eru oftast framin, þegar kreppir að í lífinu. Hlutaðeigandi konur vekja samúð öndvert t.d. við karla, sem myrða sambýliskonur sínar. Þeir eru sömuleiðis á bólakafi í kreppu og hafa týnt ástinni í lífi sínu. Í því sambandi vekur enginn máls á miskunn. Réttarkerfið virðist deila þeirri trú Katrínar, að mæður skuli ekki hljóta refsingu fyrir ofbeldi gegn börnum og feðrum þeirra. Mikill er máttur kúgaðra kvenna.
Enn skulu sem sé völd kvenna aukin með nýrri löggjöf um fóstureyðingar og enn eykst raunverulegt misrétti gegn körlum. Þeir eiga helming fósturs eða barns. Hví skyldu þeir ekki eiga sama rétt til yfirráða yfir líkama sínum og konur? Hví skyldi faðir ekki eiga sama rétt til eyðingar sameiginlegs fósturs og móðirin, t.d. þegar sæði hans er stolið eða svikið út úr þeim?
Ætli það sé vegna þess, að konur séu æðri hluti mannkyns: Iris Marion Young (1949-2006) prófessor í stjórnmálafræði, bergmálar aldagamla sannfæringu kvenna: Í kvenmiðaðri kvenfrelsun ... er fólgin sú hugsun, að gildi hefðbundinnar reynslu kvenna sé æðri og því er gildum í þeim stofnunum, sem karlar ríkja, hafnað. ... Líkami kvenna og hefðbundin sýsla þeirra er uppspretta jákvæðra gilda. ... Félagsleg mótun okkar og venjubundið móðurhlutverk þjálfar okkur í að næra og vinna saman. [þ]að gæti verið einasta leiðin til björgunar heimsins ..., [því] í venjubundinni kvenmennsku er að finna þau gildi, sem ber að rækta til að skapa betra samfélag.
Nú er kátt í höllu kvenfrelsarana, feðraveldið líður senn undir lok: Þegar stjórnmálaflokkar eða foreldrar keppa um að sýna stúlku/konu (female) ástríki til að vinna ástir hennar, er uppskeran ekki þakklæti heldur réttindi. ... [Þannig] fer forgörðum verkefni sérhvers foreldris og stjórnmálaflokks til að geta af sér fullveðja einstakling í stað þess að ala önn fyrir [eilífðar]barni. ... Þegar réttindabörnin eru meirihluti kjósenda snýst málið ekki lengur um, hvort við búum við mæðra- eða feðraveldi. [V]ið búum við fórnarlambsveldi. (Warren Farrell)
Eins og kunnugt er hafa konur átt undir högg að sækja frá örófi alda í kúgandi feðraveldi.
Hlín Agnarsdóttir (f. 1953) sagði t.d. um samskipti kynjanna: [Þau] endurspegla [oftar en ekki] augljósa kynóra karlmanna, sem aldrei blygðast sín. Konur og þeirra viðhorf hafa þar lítil áhrif, eins og víðast annars staðar í þessum heimi. Þær eru sem fyrr hið þögla viðfang. Frumstæðar kynórahugmyndir misþroska og ofvirkra karla hafa dómínerað umræðuna of lengi og viðhorf kvenna hafa í þessu sem öðru orðið útundan og ósýnileg.
Lögð hefur verið áhersla á systrasamstöðuna til að uppræta þetta kúgunarfár. Fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkja Norður-Ameríku, hin tékknesk fædda Madeleine Jana Korbel Albright (f. 1937), var skorinorð: Það er til ákveðinn kimi í helvíti fyrir konur, sem ekki leggja lið kynsystrum sínum, sagði hún. (Og hver vill ferðast þangað í kófinu miðju?)
Því sætir það varla undrum, að konur dreymi um betra samfélag. Stundum birtist það óvænt í feðraveldinu miðju eins og eyja í Ballarhafi, t.d. hjá norður-ameríska leikaranum, Anne Bancroft (1931-2005) við töku myndarinnar, Hvernig á að búa til ameríska ábreiðu (How to make an American Quilt). Hún réði sér ekki af einskærum fögnuði við upptökurnar á myndinni, þegar engan sá hún karlmanninn: Ég hélt ég væri dauð og hefði horfið til himna. Það er vafalaust til kvenfrelsunarkimi þar uppi eins og kimi fyrir ófrelsaðar systur í neðra. En þó eru það vitaskuld karlar, sem verða að taka sig á.
Ónafngreindur kvenfrelsari reit: Karlar verða að þroskast eða deyja út ella. Konur munu einfaldlega stofna fjölskyldu án eiginkarla eða lífsförunauta, þar eð þær eru nú þegar í stakk búnar til að sjá um sig sjálfar. Það er nóg sæði að finna í sæðisbönkum, svo sérhver kona á jörðinni megi eignast tvö börn alla næstu öld. Þið [karlar] eruð úr ykkur gengnir.
Spænska kennarann og félaga í spænska jafnaðarmannaflokknum, Aurelia Vera (1966?), dreymir um samfélag kvenlegra gilda. En hvernig á koma því á? Hún segir: Ég hef hugmynd; gelding útvalinna [karla]; ég sé í hendi mér, að það verði ljótt. Í því felst ákveðinn ókostur. En mun ekki tilgangurinn helga meðalið í þessu tilviki, [þ.e.] að bjarga veröldinni í skiptum fyrir geldingu fjórðungs mannkyns?
Hún talar til karlnemenda sinna: Það kæmi ykkur vel, ef böllurinn væri skorinn undan ykkur; [því] karlar yrðu knúnir til gefa frá sér völdin og afhenda þau konum. Völdin myndu þeir láta gefa andstöðulaust frá sér, [en] við þurfum að rétta þeim hjálparhönd við geldingu útvalinna. Hún yrði framkvæmd strax eftir fæðingu. Þið þekkið, hvernig söngfuglar meðal drengja eru vanaðir. Það er flókið mál að skera burtu eistu fullorðins karlmanns. Sjálfsvirðing karla felst í reðinum.
Egypsk/norður-ameríski blaðamaðurinn, Mona Eltahawy (f. 1967) hefur kynnt svipaða hugmynd: Ég bið fólk að hugleiða ... sviðsmynd, þar sem við [konur] myrðum ákveðinn fjölda karlmanna í viku hverri. Hversu mörgum þyrftum við að lóga, þar til feðraveldið sest niður handan borðsins og segir: Gott og vel, látum gott heita. Hvað getum við gert til að stansa aflífunina?
Norður-ameríski kennarinn og rithöfundurinn, Sally Miller Gearhart (f. 1931) hefur mælt út hæfilegan fjölda karla. Hlutfall karla verður að skera niður í og halda í u.þ.b. tíunda hluta mannkyns. Hún er þó ögn hófsamari en landi hennar og starfssystir, Valerie Solanas (1936-1988), sem talaði um að gerreyða karlkyninu.
Það fjölgar stöðugt nýstirnum á kvenfrelsunarhimninum. En eplið fellur ekki langt frá eikinni. Fyrir neðan í Ástralíu skín Clementine Ford (1981), rithöfundur og einstæð móðir sonar, í kappi við aðrar stjörnur. Og sannast nú aftur hið fornkveðna, að skín á gull, þótt í skarni liggi. Hér lýsir Klementína draumi sínum um karlfæðareyríkið:
Ég, organdi kvenfrelsunarrefsinornin, hef um langa hríð átt þann draum að sigla fleyi mínu um hafsjó karlatára til eyjarinnar, þar sem manngildi kvenna er metið að verðleikum og hreiðra þar um mig. Konur af öllum litum, stærðum og gerðum, með mismunandi trúarbrögð og reynslu í farteskinu, myndu lifa þar saman í sátt og samlyndi undir jafningjastjórn.
Að kvöldlagi myndum við horfa á sólarlagið saman. Við fengjum okkur í glas og hrærðum í því með þurrkuðum reðum, meðan við lofsyngjum samfélag, sem lætur hjá líða að staðsetja okkur á jaðri hins raunverulega mannheims og væntir þess ekki, að við göngumst auðmjúklega við veikleikum, sem okkur eru bornir á brýn.
Við létum brandarana fjúka, því konur eru svo fyndnar. Þar væri hvorki að finna mýflugur né baráttumenn karlréttinda, því áreitið suð andstyggilegra skaðræðiskvikinda yrði bannað.
Frúr mínar! Ég á mér þennan karlfæðardraum. En hvaða undur önnur mætti finna á Karlfæðareyju? Sláist þið í för. Ég velti vöngum yfir, hvernig slík staðleysa liti út.
Hér eru nokkur undranna: Konur myndu þiggja þrjátíu af hundraði hærri laun en karlar, án tillits til hæfni; í skólum yrði kennt á kvenfrelsunarbækur; kvikmyndir yrðu gerðar um hrellda kvensnillinga; fósturvígsstöðvar yrðu gerðar aðgengilegar; samfélagsmiðillinn myndi heita Kvenbók; stofnsett yrði æxlunarmiðstöð, þar sem skapaðar yrðu konur með leysigeislaaugu.
Með þessum hætti væri hugsanlega unnt að hneppa karla í þrældóm, gangi þeir of langt, í ljósi þeirrar ógnar, sem við búum yfir til að refsa þeim. Líklega þyrftum við ekki að nota leysigeislann neitt að ráði; það ætti að duga til árangurs, að þeir hafi vitneskju um, að gætum beitt honum.
Í þessu móðurveldi verður konum umbunað fyrir það eitt að vera konur. Körlum verður haldið í skefjum.
Og hvað með þá, sem halda uppteknum hætti, sýna uppsteit eða fara í taugarnar á okkur? Tja! Við göngum af þeim dauðum.
http://www.dailylife.com.au/news-and-views/dl-opinion/misandry-island-this-is-what-a-feminist-utopia-would-look-like-20150126-12yk8a.html
Á líðandi stundu eru feður feigðarfé, mæðrum og börnum til óþurftar. Enn má þó notast við þá sem sæðisgjafa, svo og til framfærslu, hvort tveggja sem meðlags- og skattgreiðendur. En það eru blikur á lofti í þessum efnum! Sæði hefur rýrnað mjög að gæðum á Vesturlöndum, karlar draga sig í hlé frá fjölskyldu- og atvinnulífi, kinoka sér við að ganga kvenmenntakerfinu á hönd, samtímis því, að karlfósturvísum er í auknum mæli eytt.
Að óbreyttu mun kvenfrelsunardraumurinn um gyðjusamfélagið rætast fyrr en varir, þ.e. draumurinn um kvenveldið, þar sem fjöldi karla er takmarkaður við u.þ.b. tíu af hundraði til undaneldis og til óþrifa- og áhættustarfa. Verulegur hluti barna elst nú þegar upp, án föður, og sum þeirra kannast einungis við karlmann af afspurn eða af myndum eins og risaeðlur væru. Í Bandaríkjum Norður-Ameríku eru þegar til kvenveldisríki í ríkinu meðal þeldökkra, þ.e. samfélög raðgetnaðarmæðra, þar sem sæðisgjafar koma og fara. Framfærslan er að mestu leyti á könnu hins opinbera.
Eru mæður fullgildir foreldrar í sjálfum sér? Þessi unga kona, lætur það í veðri vaka. Feðra er ekki þörf. Í fréttinni veltir hún vöngum yfir erfiðleikum með sæðisval, hamingju sjálfrar sín, menntun og fjárhagi. Hugsanlega tjáir hún sig um velferð sonarins síðar.
Það vill nefnilega svo til, að föðurleysi hefur vond áhrif á bæði kyn, en hefur sérstaklega meinlegar afleiðingar fyrir drengi. Rannsóknir gefa skýrar vísbendingar í þá veru, sbr. eftirtaldar glefsur úr greininni: Föðurleysi, umhverfi og aðbúnaður drengja, sem birtist í sama miðli 17. júní 2020: (Aðgengileg á: arnarsverrisson.is.)
Athyglisbrestur (ADHD), geðsjúkdómar, þroskaskerðing og námsörðugleikar færast í vöxt, jafnvel svo, að talað er um taugaþroskakreppuna (neural crises). Börn þunglyndra mæðra eru allt að tvisvar sinnum líklegri til að glíma við ADHD, svo og þeir drengir, sem ekki búa við aðhlynningu feðra sinna. Konur verða stöðugt daprari í bragði og neyta ógnarlegs magns þunglyndislyfja, samtímis því, að mikill fjöldi drengja nýtur ekki föðurhandleiðslu. T.d. elst um þessar mundir um þriðjungur barna upp við föðurleysi í Bretlandi og BNA.
Drengjum er þrefalt hættara, en stúlkum, við að ánetjast tölvuleikjum. Þeim er einnig hættara við að ánetjast klámi, áfengi og öðrum fíkniefnum. Þeir hrökklast umvörpum úr framhaldsskóla og stunda síður nám við æðri menntastofnanir. Þeir eru reknir þrisvar sinnum oftar úr skóla, en stúlkur. Einkunnir þeirra eru yfirleitt lakari, nema séu þeir stúlkulegir í hátt. Þá fá þeir svipaðar einkunnir. Slök frammistaða í lestri er sérstakt áhyggjuefni, því lestur er nefnilega fyrirboði árangurs í lífinu. Greind drengja hrakar einnig. Það er skiljanlegt í ljósi aðbúnaðar þeirra í samfélagi og skóla. Rannsóknir frá Bretlandi benda til, að drengir hafi glutrað niður 15 stigum greindarvísitölu síðan 1980. Jafnvel þótt samvistir með föður fyrir 11 ára aldur stuðli ákveðið að aukinni greind þeirra, er föðurleysið samt sem áður geigvænlegt.
Læknaneminn ungi er fulltrúi nýrra tíma, nýs upphafs í lífi mannkyns. Fyrir um hálfri milljón ára birtist umhyggjufaðirinn í þróun tegundarinnar, þ.e. faðirinn, sem veitti móður og afkvæmum skjól og aflaði þeim verulegs hluta fæðunnar. Án þeirra hefði mannkyn ekki þróast í núverandi mynd. Það voru þessir sömu feður, sem beittu sér fyrir þróun tækninnar, sem nú gerir þá feiga. Þetta er skíma dagrenningar í nýrri veröld - án feðra.
https://www.frettabladid.is/frettir/auveld-akvorun-a-vera-einstok-moir/
Ég var lánsamur, ólst upp við aðstæður, sem löngu eru horfnar. Mamma starfaði heima. Það gerðu reyndar allar mæður mínar í stigaganginum, átta að tölu; það var þvegið, matreitt úr frumhráefni, skinn voru verkuð, gert var að fiski, saumað, bakað og bjástrað að degi og nóttu. Yfrið nóg að sýsla. Mæðurnar skutust í heimsóknir milli anna og fengu sér tíu. Þær svolgruðu í sig heilu kaffifljótunum, þegar því var að skipta og mikið lá við, t.d. þegar rædd var landsins gagn og nauðsynjar og okkar litlu veröld var stýrt að tjaldabaki. Það efaðist enginn um, hver hefði tögl og haldir. Þar var mörg Ásdísin bak við tjöldin: [F]rú Ásdís Þorgrímsdóttir [móðir Önnu Sigurðardóttur, kvenréttindafrömuðar] var hin styrka stoð heimilisins, prúð, hávaðalaus, en þó stjórnsöm. Húsmóðir í beztu merkingu. Húsfreyjuvaldið hefur alltaf verið öðru valdi ofar í raun og sann. Þessar konur eru stundum kallaðar húsenglar.
Húsengillinn var arfur frá nítjándu öldinni, tillíking við hina hreinu mey, Maríu guðsmóður. Svo segir norður-ameríski kvenfrelsarinn, sálfræðingurinn og sállæknirinn, Shari L Thurer (SLT), í bók sinni: Goðsagnir um móðurgjörninginn. Hvernig menningin endurskapar hina góðu móður (The Myths of Motherhood: How Culture Reinvents the Good Mother. Það var ... um miðja nítjándu öldina að Madonna var alfarið endurtamin til að gegna hlutverki móður Viktoríutímabilsins.
Móðurgjörningurinn varð að göfugri köllun. Það dró úr mikilvægi föðurins á heimilinu, en móðurinnar jókst. ... [Þ]að væri einfeldningslegt að trúa því, að móðir á Viktoríutímanum væri algjörlega áhrifalaus. Hún beitti oft og tíðum því afli, sem fólst í ósjálfstæði og sjálfsfórn til að hvetja karl sinn til góðrar hegðunar. Karlinn er ekki alfarið firrtur samvisku. ... Nokkrar konur af hverri kynslóð hafa verið færar um að beita ókostum undirskipunar sinnar sjálfum sér til framdráttar.
Þetta hafði enginn í stigaganginum mínum hugmynd um. Lífið var leikur. Þegar saman safnast var, krakkar léku saman. Það var oft kátt í koti og höllu. Yfirleitt sýndu mæðurnar barnahópnum umhyggju. Það gerðu reyndar feðurnir einnig, þegar svo bar undir, grunlausir um þá kúgun, sem þeir beittu. Þeir voru þó ekki hvunndagsverur. Feðurnir voru úti að vinna dagvinnu, eftirvinnu, yfirvinnu og helgarvinnu. Stöku mæður unnu stundum úti til að drýgja tekjur heimilisins. SLT lýsir stöðunni svo: Á tuttugustu öldinni var fjarvera feðra frá heimili meiri og meiri. Feður voru nú sem óðast að verða óviðkomandi í hvunndagslífi fjölskyldunnar. ... Í augum barnanna varð hann fremur launaumslag, heldur en faðir. Greind börn og langþjáðar eiginkonur skopuðust að honum, notfærðu sér hann og sýndu yfirlætisgóðvild. En ég rek ekki minni til, að nokkur hafi orðið var við kúgun mæðranna, fyrr en þær birtust, konur á rauðu sokkunum.
Ég hafði brennandi áhuga á þessum rauðu sokkum og mannlífinu. Þegar ég svo komst til vits og ára las ég mér til. Mér til nokkurrar undrunar uppgötvaði ég, að mæðurnar mínar átta sættu umfangsmikilli kúgun og að kúgararnir væru sem sé pabbarnir og við, strákarnir, þ.e. karlkynið. Samviskubitið hefur nagað mig síðan. Hafði ég verið vondur við mæður mínar, ömmur, systur, frænkur, bekkjarsystur og vinkonur?
Ég fór að lesa mig til. Og viti menn! Þennan boðskap fluttu margar klókar konur; Simone de Beauvoir (1908-1986), Elizabeth Gould Davis (EGD) (1910-1974), Shulamith Firestone (1945-2012), Marilyn French (1929-2009), Katherine Murray Millet (1934-2017), Germaine Greer (f. 1939) og Betty Friedan (1921-2006), svo nokkrar séu nefndar til sögu.
Við, strákarnir, dáðum mæður okkar og hefðum vaðið fyrir þær eld og reyk eins og óskrifuð lög frá fornu fari gera ráð fyrir. Við hefðum vafalítið tekið undir með SB, þegar hún sagði: Móðirin er rótin, er greinist djúpt í iðrum alheimsins. [Hún getur] sogað upp safana; hún er uppsprettan. Þaðan gýs hið lifandi vatn, sem einnig er næringarrík mjólk.
Það olli okkur heldur meiri umhugsun, að við værum síðri mannverur, heldur en mæður og systur. Því hélt EGD fram í bók sinni: Úrvalskyninu (The First Sex). Hún sagði m.a. Æxlunarfæri konunnar eru miklu eldri og þróaðri, heldur en [æxlunarfæri] karlsins. ... Sönnun þess, að reðurinn varð til miklu síðar í þróunarsögunni, heldur en sköp kvenna, er rakinn til ummerkja þess efnis, að karlinn sjálfur sé síðkomin stökkbreyting frá hinni upphaflegu kvenveru. Því karlinn er bara ófullkomin kona. ... Fyrstu karlarnir voru stökkbrigði, viðrini, sem urðu til við tjón á erfðavísum. [Þau] orsökuðust hugsanlega vegna sjúkdóms eða heiftarlegrar geislunar frá sólinni. Viðrinin hafa fjölgað sér skart.
EGD sagði, að andlegt líf okkar, karla, ætti meira eða minna rætur í öfund og miðaði að því að kúga konur: Í menningarsamfélögum samtímans ... tekur snípöfund og skautafbrýði á sig óræðar myndir. Óseðjandi þörf karlsins til að til að smána konuna, auðmýkja hana, meina henni um jafnrétti og gera lítið úr afrekum hennar eru tilbrigði við meðfædda afbrýði og ótta hans [gagnvart konunni].
Hins vegar voru hugmyndir hennar um kvenveldið ekki eins framandi: Hugmyndin um kvenvaldið hefur rækilega skotið rótum í mannlegri undirvitund. Þrátt fyrir að hafa um aldir búið við föðurrétt, líta börn sjálfkrafa á móðurina sem hið hæsta yfirvald. Barnið lítur á föður sinn sem jafningja í sömu skör settan og það sjálft. Það verður að kenna börnum að elska föður sinn, heiðra hann og virða. Það verkefni tekur móðirin venjulega að sér.
Karlmenn eru svo sannarlega aumkunarverðar verur. Við, strákarnir, höfðu óneitanlega orðið þess áskynja, að kynfæri okkar væru viðkvæm og háskalega staðsett. Þannig að þessi boðskapur kom ekki verulega á óvart: [K]arlar eru berskjaldaðir. Staðsetning kynfæra þeirra eru háskalegri [og því] er áhættan á áverkum meiri, heldur en á kynfærum kvenna. Konur eru færar um [ýmist] að gera sér upp kynörvun eða leyna henni. Fyðill karls getur orðið leiksoppur óumbeðins holdriss; lafir í þvermóðsku eða lyppast niður, þegar minnst varir ... auðmýkjandi aðstæður. Konan getur fengið fullnægingu margsinnis við samfarir; geta karls [til þess arna] er takmarkaðri. Getuleysi karla hefur m.a. í för með sér vangetu til frjóvgunar. Jafnvel þótt kona sé ekki kynferðislegra örvuð býr hún yfir getu til samræðis, getnaðar og móðurgjörnings. Kynferði karla jafnast engan veginn á við kvenna. Það er ekki að undra, að karlar hafi lifað í eilífum ótta við konur. (ST).
Ég lærði líka, að tímabil hinna átta mæðra í mínu lífi, var kennt við nafnlausa vanda kvennanna eða kvenfrelsaranna öllu heldur. Þeir gengu sem sé í rauðum sokkum andstætt við kynsystur þeirra í Lundúnum heilli öld fyrr, sem þyrsti í fjölþætta menntun og gengu í bláum sokkum, Blásökkurnar svokölluðu. Kúgun húsfreyja og mæðra var nú í brennidepli. Þær skyldi frelsa. Byltingarforkólfarnir í Rússlandi sögðu, að í vinnu fælist frelsun. Það sagði líka þjóðernisjafnaðarmannaforinginn, Adolf Hitler: Vinnan frelsar (Arbeit macht frei) eins og einhverja lesendur rekur vafalaust minni til. Lögð var áhersla á efnahagslegt sjálfstæði kvenna og betra kynlíf. Mæður skyldu menntast betur og losna undan barnaati og heimilisstússi. Gerð var krafa til feðra um að sinna börnum sínum meira. Krafan um vistun yngri barna varð hávær. Margt var af skynsemi sagt á þessum árum.
Samfélagið var statt í annarri bylgju kvenfrelsunar. BF gerði eftirfarandi uppgötvun í bylgjunni miðri.: Engin kona fær [kynferðislega] fullnægingu við það að bóna eldhúsgólfið. Við, strákarnir, höfðum reyndar rætt þetta á málfundum okkar um kynlíf og þess háttar óræð fyrirbæri - og reyndar komist að sömu niðurstöðu. Við höfðum eftir þetta mikið dálæti á BF og gerðum hana einróma að heiðursfélaga í kynfræðafélagi okkar.
Við fylltumst forvitni um kúgun BF, lásum lýsingu hennar sjálfrar: Öll þau ár, sem ég vann að [bókinni], hinni kvenlegu dulúð ([Feminine Mystique], lagði ég glaðlega frá mér vinnu mína, þegar dóttir mín litla kom heim úr skólanum eða drengirnir ... [stunduðu íþróttir] og eins þegar ég veitti karli mínum Martini, að vinnu lokinni. [Sama átti við, þegar fyrir lá að] elda, ræða málin, skreppa í kvikmyndahús, stunda kynlíf, fara með í verslun eða á sveitauppboð á laugardögum, skipuleggja útimáltíð á Eldeyju [Fire Island], skreppa með börnin á vígvelli Gettysburg, fara í útilegu á Hatteras höfða það sem fjölskyldulíf snýst um.
Þrátt fyrir kúgunartalið virtust forkólfar annarrar bylgju þó ennþá tiltölulega sáttir við fjölskyldulífið eins og baráttumenn fyrstu bylgju, ef marka má líferni og móðurgjörning Elizabeth Cady Stanton (1815-1902). Hún segir í bréfi til annars forsprakka hreyfingarinnar, Susan Brownell Anthony (1820-1906): Ég vildi ekki eiga færri en sjö [börn], þrátt fyrir skammirnar, sem yfir mér dundu fyrir slíkt óhóf. SLT segir eitthvað á þess leið: Hinir fyrstu aðgerðasinnar sáu ekki þörf fyrir að beina sjónum að móðurgjörningnum sem kúgunarfjötrum. Þeir mótmæltu ekki móðurskyldum sínum. Það viðhorf átti rætur í stöðu þeirra sem forréttindakvenna á þeim tímum, þegar heimilisfólki gnægtaheimila var þjónað til borðs og sængur. T.d. hafði frú Stanton afbragðsgóða þjónustustúlku, Amy Willard. Móðurhlutverkið taldi hún enga byrði, sem þyrfti að létta af sér.
En viðhorf til fjölskyldulífs, kynlífs og móðurgjörnings áttu eftir að breytast. T.d. segir KM: Karlar og konur búa í raun við sitt hvora menninguna sökum mismunandi félagslegra aðstæðna. Og lífsreynsla þeirra er allsendis ólík. Og hún hélt áfram: Almennt hefur líf kvenna einskorðast við dýrslegt líferni í rás menningarsögunnar, þar eð þær hafa veitt körlum kynferðislega útrás og sinnt því dýrslega verkefni að æxlast og fóstra ungviðið. Ah, ha, sagði mamma, þegar ég bar þessa kennisetningu undir hana.
KM furðaði sig á því, að konur skyldu ekki umsvifalaust gerast kvenfrelsarar upp til hópa. Skýringuna kann hún að hafa fundið í byltingarfræðum, Karl Marx (1816-1883), sem samdi kenningu um falska vitund, eða við lestur bókarinnar, Kúgunar kvenna, sem breski heimspekingurinn, John Stuart Mill (1806-1873), samdi skömmu fyrir þar síðustu aldamót. Að vísu var hann ekki öldungs klár á því, hvort orðin væru hans eða ástkonunnar, kvenfrelsarans og heimspekingsins, Harriet Taylor Mill (1807-1858). En hvernig sem því víkur við, sagði KM: Margar konur líta svo á, að þeim sé ekki mismunað. Það er óræk sönnun þess, hversu gjörsamlega þær hafa verið skilyrtar. Já, einmitt það, sagði mamma, með þykkju í röddinni. Eyðing hefðbundins hjónabands er hið byltingarkennda og draumórakennda (utopian) markmið kvenfrelsunar. Nú varð mútterin dolfallin og átti ekki til orð í eigu sinni.
SF sló á svipaða strengi. Hún sagði m.a.: [U]mgjörð fjölskyldunnar er uppspretta kúgunar í sálarlegum, efnahagslegum og stjórnmálalegum skilningi. ... Það verður ekki gengið milli bols og höfuðs á bandormi þrælkunarinnar, nema byltingin uppræti grundvallarstofnunina, hina náttúrulegu (biological) fjölskyldu, [því] hún getur [auðveldlega] orðið gróðrarstía andlegs valds.
Sheila Cronin, leiðtogi Þjóðarsamtaka kvenna (National Organization of Women) í Bandaríkjum Norður-Ameríku, tók undir orð SF: Þar eð hjónabandið felur í sér þrælahald fyrir konur, ætti það að vera augljóst kvennahreyfingunum að einbeita sér að árás á þessa stofnun. Frelsun kvenna verður ekki að veruleika, nema hjónabandið sé afnumið.
Sjálfri þótti SF ekki nóg að uppæta feðraveldið, karlmenn. Ráðast þyrfti einnig til atlögu við náttúruna sjálfa og þurrka karlkynið endanlega út: [V]ið getum með engu móti lengur réttlætt kynstéttarmismunun með skírskotun til náttúrulegs upphafs þess. ... [K]venfrelsarar verða ekki einasta að brjóta til mergjar vestræna menningu eins og leggur sig, heldur einnig innri skipan hennar og ... jafnvel skipan náttúrunnar [sjálfrar]. ... Lokatakmark kvenfrelsunarbyltingarinnar er ekki einvörðungu uppræting karlforréttinda eins og fyrsta kvenfrelsunarhreyfingin [fyrsta bylgja kvenfrelsunar] barðist fyrir, heldur að þurrka út kynjamun í sjálfum sér. Mismunandi kynfæri fólks ættu ekki lengur að skipta máli í menningarlegu samhengi.
Árin hafa færst yfir. Flest það, sem ofangreindir og fleiri kvenfrelsarar hafa skrifað um mannlífið, hef ég að mestu lesið mér til skemmtunar, gerði ráð fyrir, að skrifin hyrfu á vit gleymskunnar eins og svo mörg önnur mannanna verk. Ég gerði einnig ráð fyrir, að ofstækið myndi dvína. Það rann þó stöðugt skýrar upp fyrir mér, að ég hefði verið tekinn í bólinu. Æsingaskrif, ævintýri og áróður eru orðin að rétttrúnaði og ætlunarverk kvenfrelsaranna langt komið.
Fjölskyldan er meira eða minna í rúst, heimilistekjur eru svipaðar tekjum einnar fyrirvinnu (föðurins) áður, fleiri börn alast upp föðurlaus, drengir eru hornrekur í menntakerfinu, tíðni sjálfvíga meðal drengja og ungra karla er ógnvænleg, konur verða stöðugt vansælli, karlar draga sig í hlé, kynvitundarbrenglun eykst og er orðin að tískufyrirbæri jafnvel, börn og unglingar þjást.
Við stefnum hraðbyri til fyrirheitna landsins; draumríki kvenveldisins, sem öðrum þræði er hvorugkynsparadís einnig. Og ennþá er körlum stjórnað með afli samviskubitsins, vondrar samvisku yfir því að reynast konunum ekki nægilega vel, fullnægja þeim ekki. Sumar eru meira að segja með verulegt óþol líka. Mikil eru völd fórnarlambsins.
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021