Goðsögnin um glerþakið

Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra, gerði heiðarlega tilraun til að koma talnaviti fyrir kvennahóp þann, sem undir forystu verkefnastýrunnar, Maríönnu Clöru Lúthersdóttur, stóð fyrir mótmælum kvenna á Arnarhóli að áliðnu síðasta ári. Grundvöllur mótmælanna var goðsögnin um almenna launakúgun kvenna. Eins og vænta mátti voru móttökur kvennaskarans óblíðar og báru greinilegan keim af kunnuglegri rökfimi á þeim vettvangi. Víst hallaði á konur í launum, þrátt fyrir, að enginn gildur, vísindalegur fótur sé fyrir svo almennri staðhæfingu.

En það hékk fleira á spýtunni eins og við fyrri uppákomur af þessu tagi - eins og endurspeglast í texta kröfuspjalda: „Borgið okkur mannsæmandi laun og hættið að nauðga okkur“ [líklega átt við karla],“ mátti lesa á áróðursspjöldunum við sams konar mótmæli 2015. Og nú, segir Maríanna verkefnastýra: „Þetta snýr allt að vinnustöðum og vinnustaðamálum og við viljum í rauninni bara sýna að þetta falli undir það líka, að konur geti verið óhultar í vinnunni. Við erum að tala fyrir mann¬réttindum og kjörum í víðum skilningi.“ Í yfirlýsingu hópsins stendur til frekari glöggvunar: „Og við krefjumst þess að hlustað sé á þolendur og tekið sé mark á sögum þeirra. Konur sem upplifa ofbeldi, áreitni, niðurlægingu og smánun eru ekki lítill hópur heldur allar konur samfélagsins úr öllum kimum samfélagsins.“ „Talskona“ druslugöngunnar, Helga Lind Mar, skýrir málið frekar: „Kynbundinn launamunur og ofbeldismenning er ekki sitt hvor hluturinn, þetta eru allt mismunandi hliðar á teningnum sem er valdaójafnvægið.“

En snúum aftur að launamuninum: Þorsteinn Víglundsson, aðstoðarleiðtogi Viðreisnar og fyrrverandi jafnréttisráðherra, sá einnig ástæðu til að snupra Sigríði. „Konur eru um 20% stjórnenda á vinnumarkaði. Ekki vegna þess að þær hafi lakari menntun eða skort á metnaði heldur vegna þess að þær búa við mun lakari framgang í starfi en karlar. Það heitir glerþak og ætti að vera fólki sem lætur jafnréttismálin sig varða ágætlega kunnugt.“ Þar hitti Þorsteinn mig fyrir á heimavelli. Hugtakið er vissulega „gamall góðkunningi.“

Glerþakshugtakið er eignað norður-ameríska rithöfundinum og stjórnunarráðgjafanum, Marilyn Loden, sem fyrst notaði það opinberlega fyrir um fjórum áratugum síðan. ( BBC taldi Marilyn í hópi eitt hundrað áhrifamestu kvenna árið 2017.) Á fréttasíðu BBC lét hún í ljósi það álit sitt, að „gamlinginn“ væri enn í fullu fjöri. Marilyn segir m.a.: „[K]onum reyndist erfitt að klifra metorðastigann upp fyrir miðjumoð stjórnenda. ... [É]g færði rök fyrir „ósýnilegu glerþaki“ – að hindranir á framabrautinni væru menningarlegs eðlis en ekki persónulegs....“ Síðar segir hún: „Á árinu 1978 var það algengt viðkvæði, að konur hefðu ekki til að bera hæfni og reynslu til að stjórna með árangursríkum hætti. Sú gagnrýni getur ekki lengur réttlætt, hversu hægt þeim miðar upp á tindinn.“ Staðhæfingar hennar voru þegar um síðustu aldamót undir skoðun í Noregi. Þá bentu fyrstu niðurstöður til þess, að hugtakið væri brothætt. Hæfum konum væri þvert á móti venjulega tekið með kostum og kynjum á stjórnunarframbrautinni. Þær kinokuðu sér hins vegar við að leggja á brattann.

Síðustu tvo áratugina hefur efnið verið þaulrannsakað vestan hafs og austan. Niðurstöðurnar eru býsna samhljóma. Það er ekkert glerþak. Kristin Skogen Lund , forstjóri: „Það er trúa mín, að skortur á konum í atvinnulífinu snúist um konuna sem slíka. Margar þeirra hafa ekki áhuga á að standa sig.“ (Kristín var tvo ár í röð kosin valdamesta (mektigste) kona Noregs af viðskiptatímaritinu, Kapital.) Jens Ulltveit-Moe, fyrrum leiðtogi samtaka atvinnulífsins, (NHO – næringslivets hovedorganisasjon) sagði, að hugtakið hefði haft ákveðið gildi fyrir 20 árum. Tom Colbjörnsen, prófessor við viðskiptaháskólann í Björgvin (Bedriftsökonomisk Institutt) hefur rannsakað efnið til þrautar. Hann segir: „Konur burðast með [innri] tálmanir, sem gera það að verkum, að þær vanmeta iðulega eigin hæfni og efast um getu til að taka að sér yfirmannsstöðu á tindinum.“ Anne Grethe Solberg, félagsfræðingur að mennt, starfandi ráðgjafi í eigin fyrirtæki og „ráðgjafi ársins“ í Noregi, hefur einnig rannsakað fyrirbærið: „Glerþakskenningin er komin til ára sinna ... Kenningin hefur öðlast goðasagnakenni inntak um dulin og torgreinanleg áhrif kynferðis. Við verðum að skipta um sjóngler við rannsóknir á stjórnum og kynferði. Ég greini allavega ekkert glerþak í minni rannsókn,“ skrifar hún.

Lögfræðingurinn, Markus Plesner Dalin, hefur brotið rannsóknir um efnið til mergjar. Niðurstaða hans er þessi: „Konur eru jafn hraðskreiðar [körlum] á framabrautinni velji þær rétta menntun. Þær virðast jafnvel stíga hraðar í metorðum en karlar með sömu menntun. ... Ef við reiðum okkur á rannsóknir, en ekki eingöngu á álit og frásagnir, er engin ástæða til að ætla, að glerþök séu raunveruleg í Noregi eða öðrum vestrænum ríkjum.“

Terina Allen, ráðgjafi, leiðtogaþjálfi og alþjóðlegur fræðari, gerði í Forbes tímaritnu (ágúst 2018) grein fyrir fyrrgreindum innri tálmunum kvenna: 1) Konur gera ekki kröfur; 2) konur vanmeta getu sína og forðast tæknina; 3) konur treysta sér ekki til forystu og kinoka sér við ágreiningi á vinnustaðnum; 4) konur telja sig þurfa meiri sveigjanleika en gerist og gengur og vinna minna en karlar; 5) konur skilja ekki nauðsyn þess að setja ákveðja hluti í fyrirrúm, forgangsraða, vilja gína yfir öllu; 6) konur veigra sér við áhættu og eru hræddari við mistök.

Í júní útgáfu sama blaðs, gerir Homira Kabir, kvenleiðtogaþjálfi og ráðgjafi, niðurstöður rannsókna að umtalsefni. Þar kemur m.a.í ljós kom, að konur séu áhættufælnar og hræddar við óheppilegar afleiðingar, tækju þær áhættu. Greinarhöfundur segir svo viturlega: „Það er ógjörningur að hreinsa raunheiminn af áhættu og óöryggi, sérstaklega á flóknum vinnustöðum, sem eru sífelldum breytingum háðir. Það er einnig ógerlegt að inna gagnlegt starf af hendi, án þess að sleppa bjarghringnum, láta slag standa og arka inn á óþekktar slóðir, enda þótt það bjóði heim hættu á mistökum og gagnrýni. ... [Þar bíða] áskoranir í samskiptum, sem eiga rót í ómeðvituðum og dómgreindarbrenglandi væntingum og siðboðum. Slíkar dómgreindarbrenglanir rista djúp í sál bæði karla og kvenna. Þær liggja oft og einatt í þagnargildi í mörgum stofnunum.“ Þjálfun telur Homira gagnlega, en þó: „Velflestar þjálfunarskrár beita hugþjálfun (cogitive approaches) á grundvelli skynsemi og raka. ... Þó að þessi nálgun gagnist sumum, dugar hún ekki til að ná kjarna þess, sem í sannleika heldur aftur af flestum kvenna.“ ... „Þær hræðast vanþóknun þá, sem vond ákvörðun kynni að hafa í för með sér.“ ... „Þá erum við fyrst færar um að glíma af skynsemi við mistök og gagnrýni, þegar okkur lánast að kasta fyrir róða tilfinningaseminni. [Þá getum við] lært og látið okkur vaxa fiskur um hrygg.“

Konrektor við háskólann í Osló, Ruth Valtvedt Fjeld, slær þó vissa varnagla við ofangreindun niðurstöðum, og veitir kvenleg ráð: „Að mínum dómi er heldur djúpt í árinni tekið, þegar bent er á, að konur skorti vilja til að sinna yfirmannsstöðum. Það eru ljón í vegi margra kvennanna. Það er kostur, að konur séu elskulegar og prúðar, vilji þær vinna sig hratt upp metorðastigann – og kunni daður.“ (Á Íslandi eru karlar rændir æru og starfi fyrir slík orð – minnir mig.)

Þegar allt þetta er sagt, hljóta það að vera ánægjuleg tíðindi, að verulegur meirihluti íslenskra kvenna þverneitar því, að karlar hindri þær á frambrautinni. Þetta var niðurstaða könnunar á vegum forsætisráðuneytisins fyrir hálfum öðrum áratugi eða svo. Áfram stelpur!


Góðir strákar og gerendameðvirkni. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, Stígamótahetja

«Góðir strákar» merkir karlfauta, sem meiða konur og nauðga, en hafa barasta ekki hugmynd um það. Þá skortir nefnilega einhvers konar «kynlífsofbeldisnæmi.» Þetta er hugtak, sem áberandi kvenfrelsarar líðandi stundar beita til að opna augu karla og ala okkur upp til betri siða í heilögu frelsunarstríði kvenna. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir skrifaði okkur opið bréf nú á vordögum, þar sem sama hugtak var í brennidepli. Ég hef annars staðar gert því skil og fjölyrði því ekki um það hér.

Greinar sínar skrifa Hildur og Þordís ýmist í Stundina (sem sérstaklega hefur auglýst grein hennar á Fésbók) og Kjarnanum, sem, ásamt fréttastofu RÚV, stunda rannsóknarblaðamennsku á útvöldum sviðum. Eitt þeirra er kvenfrelsun.

Hildur skrifaði einmitt grein í Kjarnann (24. maí þ.á.) með fyrirsögninni: „Af reikningskilum og gerendameðvirkni.“ Og þar er góðu strákunum ekki vandaðar kveðjurnar. Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni, að rannsóknarfjölmiðlunum hefur nú tekist að skapa nýja „mee-too-byltingu“ - og meira að segja séríslenska. Samkvæmt skilningi Hildar er svokölluð „gerendameðvirkni“ kveikjan að henni:

”Gerendameðvirkni á sér margvíslegar birtingarmyndir. Sú gerendameðvirkni sem kveikti yfirstandandi #metoo bylgju átti sér stað eftir að sjónvarpsmaður tók viðtal við sjálfan sig þar sem hann öskurgrét yfir ranglætinu sem fólst í kjaftasögunum um að hann beiti konur margvíslegu ofbeldi. Hann lagði þar sérstaka áherslu á að hann væri, eins og allir vita, góður strákur. Þegar hann var svo kærður fyrir téð ofbeldi hvarf hann úr sviðsljósinu.

En gerendameðvirkni birtist ekki bara með góðu strákunum sem sverja ofbeldið af sér. Hún birtist ekki síður, þegar góðu strákarnir stíga fram og „axla ábyrgð“ á öllum mistökunum sínum. Gera „reikningsskil“. Þeir eru nefnilega svo góðir.” (Til samanburðar má geta þess, að nýjasta danska kvenfrelsunarbylgjan reis við uppljóstrun konu um kynhneykslismál. Forustumaður stjórnmálaflokks hafði lagt hönd á hné hennar fyrir u.þ.b. áratugi síðan.)

Hildur heldur áfram: „Samfélagið tollerar þessa menn. Þeim er hrósað fyrir djörfung og hetjuskap, sanna karlmennsku, hreint hjarta, einlægni, heiðarleika, hreinskilni, auðmýkt og þroska. Með þessu fylgjast svo þolendur þessara manna. Brotnar konur sem voru ekki hafðar með í ráðum, fengu ekki tækifæri til að undirbúa sig, fengu ekki að segja skoðun sína, fengu ekki að koma útgáfu sinni af atburðum á framfæri. Hafa aldrei fengið fyrirgefningarbeiðni og kannast bara alls ekki við alla þessa einlægni og auðmýkt.“

Hafi það við rök að styðjast, að körlum sé hampað fyrir játningar um dólgshátt í garð kvenna (kannast reyndar ekki við það), á það ekki síður við um allar kvenhetjurnar, sem stíga á stokk og lýsa eymd sinni og óhamingju. Raunar er Hildur bæði hetja DV og verðlaunuð hetja Stígamóta fyrir baráttu sína gegn kynillsku karla.

En þolendunum fallast ekki hendur, segir Hildur: „Í lokuðum hópum á víðlendum internetsins deila þessir þolendur upplifun sinni hver með annarri. Ég er ein þeirra. Og eftir þessa #metoo bylgju sitja fjöldamargar konur í sárum vegna þess að gerandinn þeirra steig fram opinberlega, sagði afskræmda og sjálfshyllandi útgáfu af ofbeldinu sem hann beitti þær og var fagnað ótæpilega af almenningi í kjölfarið. Það sem að ofan er lýst heitir ekki að axla ábyrgð eða gera reikningsskil. Það heitir að hampa sjálfum sér á kostnað þolenda. Það heitir gaslýsing [andlegt ofbeldi] og áframhaldandi ofbeldi.“

Svo koma ráð til okkar, góðu strákanna: „Ef þú, góði strákur, hefur nauðgað konu, þröngvað þér inn á yfirráðasvæði hennar, troðið tungunni upp í hana, króað hana af, gert hana hrædda, látið hana finna að sjálfsvígshugsanir þínar séu á hennar ábyrgð, suðað um að fá að fara inn í hana þangað til hún örmagnast, tekið hana næstum áfengisdauða með þér heim og klætt hana úr buxunum af því að þú verðir að fá að sýna henni hvað þú ert góður í að fullnægja konum með tungunni, almennt beitt konu eða konur einhverskonar þvingunum, gaslýsingum [andlegu ofbeldi] og ofbeldi, og ert að íhuga að „stíga fram“ og segja hjartnæma sögu af því hvað þú ert góður strákur og ætlar að axla á þessu ábyrgð með því að auðmýkja þig í fjölmiðlum eða hætta tímabundið eða seinna í vinnunni, þá bið ég þig að hugsa þig tvisvar um.“

Það er mikil gæfa karla að mega njóta siðvits Hildar og hirtinga, þrátt fyrir dóma gegn henni fyrir ærumeiðingar á því sviði. Því enn eru dómstólar ekki nægilega kvenráðir og kvenvænir. Hildur og Þórdís Elva eru happafengur Kjarnans og Stundarinnar í rannsóknarblaðamennskunni.

Til umhugsunar má bæta því við, að þegar undirritaður vildi leggja orð í belg kvenfrelsunarumræðunnar, svaraði hinn jafnréttissinnaði ritstjóri Kjarnans, Þórður Snær Júlíusson, erindinu á þann veg, að hann vildi „ekki leggja blaðið undir einhliða umræðu.“ Ætli það lýsi góðri rannsóknarblaðamennsku?

https://kjarninn.is/skodun/af-reikningsskilum-og-gerendamedvirkni/


Glerþak eða gullið búr

Staðhæft hefur verið, að karlar væru sem gagnsæ ljón í vegi kvenna á framabraut í atvinnulífinu - og torvelduðu stjórnunarframa þeirra. Glerþak hefur fyrirbærið verið kallað, eignað norður-ameríska rithöfundinum og stjórnunarráðgjafanum, Marilyn Loden, sem fyrst notaði það opinberlega fyrir um fjórum áratugum síðan. Hugtakið hefur verið til vísindalegrar skoðunar í áratugi.

Norsku vísindamennirnir, Sigtona Halrynjo og Selma Therese Lyng, gerðu t.d. grein fyrir rannsókn á tæplega 4000 lögfræðingum, verkfræðingum og hagfræðingum. Titill hennar er: „Framaréttur feðra – biðskylda móður? Frami, kyn og umönnunarábyrgð í úrvalsstörfum.“ Greinin birtist í „Tidsskrift for samfunnsforskning“ árið 2010. Höfundar orða niðurstöðu sína svo: „Við afhjúpum engan mun á framasókn barnlausra karla og kvenna. Aftur á móti er greinilegur munur mæðra og feðra. ... Hefðbundið kynjafyrirkomulag skýrist af því, að hans framaval er sett skör hærra en hennar. Samt sem áður er fyrirkomulagið henni að skapi, því hún leggur áherslu á og finnst mikilvægt að vera lengur samvistum við börnin.“

Gamalreyndir hagfræðingar í Bandaríkum Norður-Ameríku, June E. O´Neill [prófessor í hagfræði við Háskólann í Nýju Jórvík] og Dave M. O´Neill [við sama háskóla], skrifuðu árið 2005 greinina: „Hvað segir launamunur okkur um misrétti á vinnumarkaði.“ Niðurstaða þeirra hljómar svona: „Kynjamunur með tilliti til menntunar og hæfni (cognitive skills) [...] er hverfandi og skýrir launmun [einungis] að litlu leyti. Aftur á móti skýrist hann af þeim ákvörðunum, sem karlar og konur taka [í þessu sambandi] og þeirri atorku og tíma, sem fólk er tilbúið til að nýta í framsókninni. Þetta endurspeglast í starfsreynslu, hlutastörfum og öðrum þáttum tengdum starfi og starfsvettvangi.“

Þýski félagsfræðingurinn, Fabian Ochsenfeld, skrifaði fyrir sex árum síðan grein í „Kölner Zeitschrift für Soziologie und Sozialpsychologie. Fyrirsögnin er: „Glerþak eða gullbúr: strandar stjórnunarframi kvenna af mismunun í fyrirtækjunum eða skyldum við fjölskylduna?“ Spurningu sinni svarar hann svoleiðis: „Launamunur kynjanna skýrist [...] að öllu leyti af tveim utanaðkomandi (ausserbetriebliche) þáttum; annars vegar vali menntunar, sem þeim [konum] er í sjálfsvald sett, og hins vegar, hvað flestum viðkemur, mismunandi afleiðingum þess að stofna til fjölskyldu.“ Kastljósið beinist að námsvali og stofnun fjölskyldu. Aðrar rannsóknir benda í sömu átt.

Laun kynjanna hafa einnig verið rannsökuð á Íslandi. Lengstum hefur verið komist að þeirri niðurstöðu, að konum væri vangreitt fyrir vinnu sína, þrátt fyrir eftirfarandi jafnréttisákvæði Búalaga frá 1775: „[Ef konan] gjörir karlmanns verk með slætti, róðri, eður torf-ristu; þá á að meta verk hennar sem áður segir um karlmann til slíkra starfa,“ svo og ákvæða seinni laga um jafnrétti kvenna og karla til launa. Flestar þessara kannana hafa verið vísindalega gallaðar. Athygli hefur verið vakin á þessu.

Í viðtali við baðamenn Morgunblaðsins sagði t.d. Einar Steingrímsson, stærðfræðiprófessor, að engin áreiðanleg gögn sýni fram á kynbundinn launamun á Íslandi. Einar segir að munurinn sem haldið er fram að sé til staðar sé það lítill að það væri „tölfræðilegt kraftaverk“ ef það hallaði alltaf á konur. Hann bendir m.a. á, að í nýlegri úttekt velferðarráðuneytisins komi fram, að konur á aldrinum 18 til 27 ára í opinbera geiranum, séu að meðaltali með hærri laun en karlar.

Helgi Tómasson, prófessor í tölfræði, segir m.a.: Aðferðin [við rannsókn á launamuni kynjanna] byggir á því að störf, menntun og starfsreynsla séu eins verðlögð hjá öllum einstaklingum í öllum fyrirtækjum og stofnunum. Laun þessa staðlaða einstaklings eru borin saman við laun karla og kvenna. Munurinn á meðaltölum kynjanna er síðan kallaður kynbundinn launamunur. ... Þar sem niðurstöður eru yfirleitt þær að það halli á konur er ályktað að öll fyrirtæki og stofnanir mismuni konum (jafnmikið) í launum sem nemur þessari prósentu. ... Þetta er kolrangt af mörgum ástæðum. Má þar nefna að mikilvægir þættir sem áhrif hafa á laun eru ekki teknir með í reikninginn, s.s. færni, sjálfstæði, frumkvæði, ábyrgð og álag. Þessa þætti er ekki að finna í þeim launakönnunum sem ályktanir um kynbundinn launamun eru dregnar af en í vísindum hagrannsókna og tölfræði eru ýmsar leiðir til að takast á við slíkt. ... Annar stór galli á þessum könnunum er sá að hópar starfsfólks í mjög mismunandi fyrirtækjum eru lagðir saman. Sá möguleiki er fyrir hendi að ekkert fyrirtæki eða stofnun stundi þá mismunun gagnvart konum sem menn þykjast lesa út úr meðaltalinu um kynbundinn launamun.“ Hin vondu vísindi í þessu efni leiða óhjákvæmilega til skakkrar niðurstöðu. Helgi segir: „Sú skoðun að munur á meðallaunum kynja sé til vitnis um að einhvers konar misrétti kynja er ef til vill ein útbreiddasta tölfræðiblekking 20. aldar.“ Áróður, sem byggir á áðurgreindri tölfræðiblekkingu, afbökun og oftúlkunum, er varasamur. „[S]töðugar vitnanir í hugtakið kynbundinn launamun þar sem gefið er í skyn að gervallt kvenkynið sé fórnarlamb mismununar af völdum karla. Ófullkomin gögn og einfaldir meðaltalsútreikningar leyfa ekki svo hrikalega ályktun. Útilokað er að slík óskynsamleg hegðun og umfangsmikil mismunun geti átt sér stað, þótt einungis sé litið til þess kostnaðar sem af henni hlytist.“

Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor, hefur einnig bent á, „að þær kannanir á launamun kynjanna hér á landi sem birtar hefðu verið væru tölfræðilega alvarlega gallaðar og niðurstöðurnar því í besta falli afar óáreiðanlegar. Þar að auki segðu þær ekkert um orsakir þess launamunar sem kynni að vera fyrir hendi.“

Það virðist ríkja einhvers konar rétttrúnaður í þessum efnum. Þór Rögnvaldsson, sem reyndi í grein í Morgunblaðinu að leiðrétta rangfærslur í sambandi við launakönnun BHM, framkvæmdri árið 2015, lýsti þessu svo: „Þessa grein skrifaði ég um mitt sl. sumar – en heyktist síðan á að birta hana: ég hræddist ofsafengin viðbrögð vegna þess hvað málefnið er eldfimt. Nú hins vegar er mér svo ofboðið að ég hlýt að láta alla varkárni út í veður og vind hverfa: ég get ekki lengur orða bundist.“

Viðbrögð við gagnrýni hefur ekki látið á sér standa. Ólafía Rafnsdóttir, fyrrverandi formaður VR, skrifaði t.d. í félagsblað sitt: „Ég frá¬bið mér hroka þess¬ara miðaldra karl¬kyns pró¬fess¬ora sem telja sig þess um¬komna að segja mér og öðrum kon¬um að launamun¬ur kynj¬anna sé ekki til. Ég er til í að ræða við þá mál¬in – þegar þeir hafa öðlast skiln¬ing á því hvað það þýðir að vera kona í karla-heimi.“

Launakönnun, unnin í samvinnu Velferðarráðuneytis og Hagstofu Íslands árið 2015, er vafalítið haldbesta könnun á efninu. Höfundur hennar er Sigríður Snævarr, hagfræðingur. Höfundur varar við víðtækum ályktunum um launamun á grundvelli skýrslunnar, óútskýrður launamunur körlum í vil sé lítill Sigríður segir: „Í rannsókninni var jafnframt leitast við að meta hvaða þættir skipta mestu í greiningu milli skýrðs og óskýrðs launamunar. ... Niðurstaða þess er sú að mestu skiptir að karlar og konur starfa í mismunandi atvinnugreinum og gegna mismunandi störfum innan þeirra. Með öðrum orðum kynbundinn vinnumarkaður er meginorsök kynbundins launamunar.“ ... „Almennt er launamunurinn minnstur þar sem opinber umsvif eru hvað mest, í heilbrigðis- og félagsþjónustu, opinberri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi og veitum.“ ... „Niðurstaðan er skýr: starfstengdu breyturnar, atvinnugrein og starfsstétt, skýra langmestan hluta launamunarins. Vinnumarkaður er kynbundinn og launamuninn má rekja einkum til þess.“

Athygli vekur, að hér er í aðalatriðum um að ræða svonefndar kvennastéttir. Sænsk-íranski fræðimaðurinn, Nima Sanandaji (Cato Institute), hefur rýnt í þessa staðreynd og spyr; gæti einokun hins opinbera stuðlað að tálmunum í frama og launabaráttu kvenna. Hann segir: „Opinber einokun heilbrigðisþjónustu, umhyggju barna og aldraðra leiðir til vanþróunar í þessum hluta atvinnulífsins, sem knúinn er áfram af konum. Háir skattar og velferðarhlunnindi hvetja konur til að vinna færri stundir, löng fæðingarorlof hvetja þær til að dvelja heima. Allt þetta hefur áhrif á metorðaklifrið.“

Margar rannsóknir, þar með talin sú vandaðasta, unnin á vegum Velferðarráðuneytisins, benda til, að mæður velji frekar hlutastörf og velji fremur að sinna börnum sínum heima, heldur en að berjast til frama á samkeppnisvinnustöðum. Feður og karlar, trúir ævafornu hlutverki sínu, samsinna og láta það eftir konum sínum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, kynni að hitta naglann hnitmiðað á höfuðið, þegar hann kallar þetta „gæfumun“ kynjanna. (Þýðingar eru höfundar.)


Gjörningaveður og kyngaldrar

Á því Herrans ári 1484 reit Innocentius páfi VIII (1432-1492) örlagaríkt bréf. Glefsur úr því hljóma svo: „Hafa þeir [trúvillingar] með særingum, álögum, sjónhverfingum og öðrum argvítugum galdraiðkunum og – athæfi, óhæfu og hræðilegri viðurstyggð, deytt afkvæmi kvenna, jafnvel í móðurkviði, sem og ungviði búfjár, eyðilagt afurðir jarðarinnar, vínþrúgur, ávexti trjáa, já, jafnvel konur og karla, áburðardýr, hjarðdýr sem önnur dýr, víngarða, aldingarða, engi, beitilönd, maís, hveiti og annað kornmeti. ... [Að] undirlagi óvinar alls mannkyns [djöfulsins] hika þau ekki við að fremja og drýgja andstyggilegasta ófögnuð og saurugustu öfgar, steypandi sálu sinni í glötun, svívirðandi Guð almáttugan, fjölmörgum til hneykslunar og skaða.“ (Þýð. Ólína Þorvarðardóttir. Brennuöldin).

Bréfið varð hvatning hinum kynbældu svartmunkum, Heinrich Kramer (1430? – 1505) og Jakob Sprengler (1436? – 1495), til að rita hinn skelfilega Nornahamar (Malleus Maleficarum), leiðarvísi um galdraofsóknir, þrunginn kvenhatri. Andskotinn sjálfur hafði samkvæmt djöflafræði kirkjunnar tekið sér bólfestu í sálum manna, einkum klögumálakvenna af alþýðustéttum og kynsystra þeirra í klaustrum, sem ástunduðu saurugt líferni. Kölski var viðsjárverður og brá sér í allra kvikinda líki.

Eins og páfi benti á gerði djöfullinn konur undirgefnar sér í kynsvalli. Einnig rændi hann og ruplaði, eyddi og deyddi fyrir þeirra tilstuðlan, sbr. eftirfarandi vitnisburð fórnarlamba. Fyrra dæmi: „Hún hafði ekki aðeins bruggað banaráð mönnum jafnt sem skepnum; hún hafði einnig haldið við djöfulinn sjálfan í 38 ár. Hann hafði vitjað hennar „í mannsmynd, svartur á hár og skegg, meiri á velli en nokkur dauðlegur maður, svartklæddur“ á næturþeli, ríðandi, búinn riddarastígvélum með spora og gyrtur sverði.“ Þegar á svallhólminn var komið, upphófust almenn kynmök.

Síðara dæmi: „Þar kemur djöfullinn inn um glugga sem „stór maður, allur svartklæddur með mikið og kolsvart skegg og augnalit mjög tindrandi og óttalegt. ... Hvílubrögð hans eru öflug og þjösnaleg, veita ekkert yndi, og hann er jökulkaldur viðkomu . ... Hann otaði frá lendum sér ófögnuði nokkrum, köldum sem ís, er gekk allt upp undir bringspeli eða á móts við geirvörtur á fyrrgreindum sakborningi.“ (Galdrafárið í Evrópu, eftir Hugh Trevor-Roper, þýð. Helgi Skúli Kjartansson)

Tæpum fjórum öldum síðar, var ritað annað „bréf.“ Grundvallarkenningasmiður kvenfrelsaranna, Elizbeth Cady Stanton (1815-1902), skilgreindi fjanda okkar tíma: „Karlinn er þrunginn tortímingu; harðneskjulegur [og] sjálfselskur. Hann unnir stríði, ofbeldi [og] sigurvinningi, miklast af sjálfum sér og leggur að fótum sér. Eins og í hinum veraldlega heimi sáir hann í siðferðið ósætti, glundroða, sjúkdómum og dauða.“ (Þýð. höfundur)

Nútímaútfærsla Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur á kennisetningu fræðaformóður hennar er áhugaverð. „Veruleiki kvenna er þessi. Kynbundið ofbeldi ógnar lífi þeirra og heilsu. ... Vondi karlinn á sér enga eina birtingarmynd, hann er alls staðar og hvergi og þú veist aldrei hvort eða hvenær þú mætir honum. Stundum þekkir þú hann bara af góðu einu þar til hann snýst gegn þér. Stundum laðar hann þig til sín og brýtur á þér.“

Kvenfrelsarar berjast hatrammri baráttu gegn karldjöflinum. Þeir hafa valið áþekka leið og fyrrgreindur páfi, Jósef Vissarionovich Stalín (1878-1953), Adolf Hitler (1889-1945) og Joseph Raymond McCarthy (1908-1957). Áróður þeirra ýmist ól á eða skapaði ótta, örvæntingu og ógn. Í áróðursherferðum kvenfrelsaranna hefur karlmönnum í hálfa öld verið brigslað um djöfullegar misþyrmingar barna sinna og ástvina. Karlmaðurinn kvelur aukinheldur dýr jarðar og spillir náttúrunni, svo heimsendir er rétt handan við hornið. Fólk, sem verður viti sínu fjær og veit ekki sitt rjúkandi ráð, verður auðveldlega bráð múgsefjunar, þar sem beitt er hugmyndafræði eða trúarbrögðum. Einhvern þarf að hafa til blóra. Um þessar mundir er það feðraveldið. Blóraböggulinn rúmar allan sálarsorann, enda um að ræða hálfa fjórðu milljón karla.

Hefndarþorsta er svalað og refsigleði mögnuð. Hreinsunareldurinn brennur glatt. Lög eru endurtúlkuð og ný samin. Sönnunarbyrði sakarábera er léttvæg fundin. Æra karla fuðrar upp á galdrabálkesti almenningsálits og fjölmiðla.

Málstaðurinn er studdur eins konar „fræðihringekju,“ þar sem höfundar styðjast við „sannleika“ hvers annars. Staðreyndir, skynsemi og rök hripa af þeim sem vatn af gæs. Áróðurinn er hertur, fjármagnaður af opinberu fé. Kerfisbundið er þaggað niður í „villutrúarmönnum,“ sem ýmist eru dæmdir af löglegum dómstólum, sýnardómstólum eða dómstóli götunnar.

Það er fátt nýtt undir sólinni. Gengur galdrafárið í endurnýjun lífdaganna á okkar méli?


Hið mikla frelsisstríð; frelsun kvenna, kynlífs, kyns og mannkyns: 3

Víkjum þá aftur að draumi kvenfrelsaranna og Alheimsefnahagsráðsins um tölvumennið. Þróun þessarar tækni er komin vel á veg. Beint inngrip í hugann og eftirlit er t.d. framkvæmt með stafrænni tækni, rafsegulbylgju-, örgjörva- og tölvuagnatækni (nanotechnology). Sú síðastnefnda var m.a. notuð við gerð bóluefna gegn covid-19 veirunni. En taugaflöguígræðsla er vissulega líka þekkt.

José Manuel Rodriguiez Delgado (1915-2011), var brautryðjandi við flöguígræðslu (chip) í heilabú manna og dýra. Hann skrifaði, árið 1969, bókina: „Efnislega stjórnun hugans: Áleiðis til sálsiðaðs samfélags (Physical Control of the Mind: Toward a Psychocivilized Society). Hann segir m.a.:

„Maðurinn hefur engan rétt til eigin hugþroska. Frjálslyndisleg viðhorf í þessu efni hafa víðtæka skírskotun. Það verður að raftengja heilann. Sá dagur mun koma, að herjum og hershöfðingjum verði stjórnað við raförvun heilans.“

Aukin þekking í líffræði og tölvutækni býður forsjárhyggju- og stjórnlyndisfólkinu sífellt upp á nýjar aðferðir við notkun tölvuagnstýra eða -ráða (nanobot). Fræðigreinin um þetta kallast tölvuagnfræði (nanobotics). Ofursmáar agnir úr gerviefnum eru forritaðar, svo þær megi örva eðlileg boð líkamans eða yfirtaka þau.

Raymond Kurzweil (f. 1948) hefur líka skrifað bók um efnið; „Sérstaðan er nálæg: Þegar mannkind rýfur múra eðlisins (The Singularity is Near: When Humans Transcend Biology). Hann hefur einnig skrifað um þetta grein í The Guardian.

Agntölvurnar, sem streyma um blóðrásina, má forrita með ýmsum hætti, t.d. til að greina og virkja varnir gegn sjúkdómum, endurræsa frumur eða styrkja, hugsanlega með þeim árangri, að við yrðum ódauðleg. Slík inngrip gera manninn að tölvumenni, mannslíki (transhumanism, cyborg), blending lífveru og tölvu. Líftölvuagnfræði heitir sú grein (bionanotechnology). Agnir (nano eða nanometre eða agnmetri er einn milljarðasti úr metra) voru t.d. notaðar til að koma hluta covid-19 veirunnar inn í frumur líkamans.

Taugatölvutækni (neural nanotechnology) má beita til að koma stjórnráði (nano-sized robot) í blóðrásina, sem tekur sér bólfestu í námunda við tiltekna frumu. Þannig má beintengja heilann við gervigreindartölvu fram hjá vökulum skilningarvitum.

Tölvuagnastýring er náskyld gervigreind (artificial intelligence), gerð tölvuvélmenna (cyborg) og líf-tölvu-tengivirkja (computer interface) þeim, sem taugatæknifyrirtæki eins og Neuralink Corporation (Elon Musk) vinna að.

Það sama gerir Richard A. Normann, líftæknifræðingur við háskólann í Utah. Rannsóknahópur hans hefur smíðað rafskautatengil (array), þ.e. samskipan fjölda örnála eða einangraðra rafskauta (electrode), sem komið er fyrir í heilabúinu. Þar fylgjast þau með taugaboðum miðtaugakerfisins og hafa áhrif á þau samkvæmt forritun. Vonir standa til, að þeim megi t.d. beita til að lækna sjúkdóma í miðtaugakerfi.

Richard þessi tengist einnig „Heilafrumkvæði“ (Brain Research through Advancing Innovative Neurotechnologies) bandarískra stjórnvalda, þ.e. sameiginlegri áætlun opinberra stofnanna og einkaaðilja til rannsókna á notagildi taugatækni.

Tækniheimspekingurinn, Kevin Kelly (f. 1952), talar um tækniveruna (technium) í bók sinni: „Hvað ætlast tæknin fyrir“ (What Technology Wants). Þar segir hann m.a.:

„Hún [tækniveran] kann einu sinni að hafa verið jafn einföld í sniðum og gamalt tölvuforrit, sem eingöngu gerði það, sem fyrir það var lagt. En núna hefur hún svipmót miklu flóknari veru, sem oft er á valdi eigin hvata.“

Heimspekingurinn, James Giordano (f. 1953), lýsir þessari þróun eins og hverjum öðrum stríðsvettvangi og aðvarar gegn misnotkun tækninnar. Skyldi engan undra. Nató hefur þegar fundið smjörþefinn. Áætlun þess heitir: „Hugstríðsáætlunin“ (Cognitive Warfare Project). Þar segir m.a.:

„Hugstríð er því að skilja sem óhefðbundinn hernað, þar sem tölvutækni (cyber) er beitt til að skapa hugarfarsbreytingu og nýttir eru hleypidómar eða spegilvirk (sjálfhverf) hugsun (reflexive thinking) til að brengla hugarfar, hafa áhrif á ákvarðanatöku og koma í veg fyrir hegðun, sem hefði neikvæðar afleiðingar, hvort heldur einstaklingur eða múgur á í hlut.“ [15]

Bill Gates og vinir hans í Alheimsefnahagsráðinu eru vitaskuld miklir áhugamenn um tölvumennið, sem er í deiglunni. Klaus Schwab tengir það beinlínis fjórðu iðnbyltingunni, þegar endurreisnin mikla (Great Reset) rennur upp.

Klaus segir byltinguna „leiða til sjálfsskilnings, sem er samþætting líkama, tölvutækni (digital) og lífeðlis.“ Leitað verður leiða – t.d. við fjarstýrða raförvun – til að fólk uni sælt og glatt við sitt, enda þótt það sé öreigar. En það er framtíðarsýnin í sjálfbæra sæluríki Alheimsefnahagsráðsins. Slíkri raförvun, þ.e. örvun sælustöðvarinnar í heilanum, hefur verið beitt með góðum árangri á rottur.

Nicholas Negroponte (f. 1943) er annar vísindamaður, sem hefur skoðað notkun tölvutækni við stjórnun mannshugans. Hann bendir á, að upplýsingum megi koma fyrir í heilabúinu með agntölvu, t.d. ritsafni Sigmund Freud (Gesammelte Werke). Tæknin býður einnig upp á, að draumur forsjársinna um að stjórni fólki að vild gæti ræst.

En betur má, ef duga skal. Svissneskir vísindamenn hjá fyrirtækinu FinalSpark, hafa nýverið kynnt uppgötvanir, þar sem sneitt er hjá ófullkomleika forritaðrar gervigreindar. Galdurinn er fólginn í notkun líförgjörva (bioprocessor), þ.e. fruma úr forheila manna, sem unnar eru úr stofnfrumum.

Forheilafrumur eru öðrum fremur gæddar hæfileikanum til úrvinnslu, aðgerða og skapandi greindar. Slíkur „taugatölvuvangur“ (neuroplatform) „lifandi tölva“ notar auk þess einungis brot af þeirri orku, sem tölvur, tölvumenni og gervigreind, nota. Tæknin er því umhverfisvæn og tölvumennið getur hugsað, en ekki einungis lagt á minnið eða starfað samkvæmt forritun eins og hver annar tölvuþræll. Tölvumennið hugsar og dregur ályktanir.

Líftölvubúnaður hefur því bæst við hugbúnað (soft ware) og vélbúnað (hard ware). Starf líftölvunnar er kallað „líftölvun“ (wetware computing). Lífgjörvinn, þ.e. fjöltengdar forheilafrumur, eiga fremur stutta ævi, en tæknimönnunum hefur tekist að láta þær tóra og starfa í hundrað daga, jafn lengi og Jörundur hundadagakonungur ríkti á Íslandi. Beitt er svokallaðri „örstreymistækni“ (microfluidics) til að lengja líf þeirra. Æskilegt starf er verðlaunað með dópamíni (ánægjuvaka), en refsað með örvunaróreiðu. (Slík óreiða er algeng hjá Landlæknisembættinu, að sögn Landlæknis.) [16]

„Þetta er allt að koma“ eins og lítill sonarsonur segir, þegar hann rembist við að auka þekkingu sína. Því japanskir vísindamenn hafa tilkynnt, að þeim hafi lánast að rækta húð, sem þekja má andlit tölvumennisins. Húðin er þeim ólíkindum gædd að geta sýnt mannleg svipbrigði og grætt sjálfa sig. [15]

https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304047 https://krossgotur.is/gervigreind-skitur-inn-skitur-ut/ https://peakprosperity.com/dismantling-the-illusion-how-information-control-shapes-reality/?ref=unlimited-hangout [16] https://www.youtube.com/watch?v=SL_j2PSV0kI https://www.newstatesman.com/encounter/2023/03/mary-harrington-interview-make-sex-consequential https://unherd.com/newsroom/mary-harrington-feminism-against-progress/ https://www.youtube.com/watch?v=8-pTX3X4yVE https://winteroak.org.uk/2024/07/22/truth-reality-tradition-and-freedom-our-resistance-to-the-great-uprooting/


Hið mikla frelsisstríð; frelsun kvenna, kynlífs, kyns og mannkyns: 2

Hinseginfræði Judith Butler eru nú námsefni handa börnum í „kynjafræði“ á Vesturlöndum. Í hnotskurn: Kyn verður til fyrir gjörning orðanna, í samtali, og því síkvikt og breytilegt. Hvítir karlar beita skilgreiningarofbeldi til að sannfæra börn um, að þau séu annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Börn ættu að varpa af sér oki slíks ofbeldis og skilgreina kyn sitt sjálf. Fræði Judith endurspeglast þegar í löggjöf um „kynrænt sjálfræði.“ [5]

Næsti, stóri áfanginn í hugmyndafræði kven- og kynfrelsunar markast af útgáfu bókar Donna Haraway, árið 1985; „Tölvumennaávarpinu. Vísindum, tækni og jafnaðarkvenfrelsun“ (A Cyborg Manifesto. Science, Technology, And Socialist Feminism). Donna lýsir viðhorfum sínum sem „tæknimannúð“ (techno humanism).

„Cyborg“ eða tölvumenni skilgreinir Donna sem samruna tölvu- eða stýritækni (cybernetics) og manns (töluvdýr er einnig unnt að skapa). Tölvumenni er sköpunarverk kynfirringartímaskeiðsins (postgender). Í þessu sköpunarverki felst frelsun (liberation), þ.e. i uppbyggingu vitundarinnar, og felur í sér sköpunarmátt og reynslu kvenna síðan á tuttugustu öldinni og viðleitni til frelsunar frá hefðum vestrænna vísinda og stjórnmála, þ.e. hefð karlþrunginnar auðvaldshyggju og kynþáttafordóma.

Tölvumenni endurspeglar nýsköpun, bæði með tilliti til einstaklings og samfélags, samkvæmt skilningi kvenfrelsara (self feminist must code). Tölvumenni leitast ekki við að endurskapa fjölskylduna, játast ástinni eða eðla sig, fjölga sér. Beitt verður samskipta- og líftækni við að endurskapa líkamann.

Það vakir fyrir Donnu – eins og Judith reyndar – að endurskoða (challange) bæði hefðbundin hugtök eins og kynskilning eða kynskilgreiningu (essentialist/biological) og sjálfsskilning (identity). Aukin heldur lýsir höfundur efnislegum breytingum á félagslegum raunveruleika vorum. Í því felst ávarpið eða nánar tiltekið það að semja kaldhæðnislega goðsögn stjórnmálanna, sem er trú kvenfrelsun, jafnaðarhyggju (socialism) og efnishyggju.“

Verkið er rökstuðningur fyrir þeirri ánægju að rugla fólk í ríminu. Það er einnig viðleitni til að leggja af mörkum til jafnaðarkvenfrelsunarfræða (socialist-feminist) um menningu, ójarðbundinnar hugmáttarhugsunar (postmodernist, non-natural) og drauma um kynfrjálsa veröld. Hún bendir á, að hið kvenlega sé ekkert sérstakt, hugtakið, „kona,“ sé margrætt.

Enn sækja kvenfrelsunarfræðimenn innblástur í verk Shulamith og Judith. Fyrir þrem árum síðan (2021) kom út merkilegt ritsafn í ritstjórn Jules Joanne Gleeson og Elle O‘Rourke, „Kynskiptabyltingarfræði“ (Transgender Marxism) á forlaginu, „Pluto Books.“ Höfundar fjalla um reynslu kynskiptaaflifenda (trans survival), raunir þeirra og kúgun í auðlegðarsamfélaginu. Hræðsluáróðri „öfgafullra hægri manna“ gegn „kynhugmyndafræði“ (gender ideology) eru líka gerð skil. Rosa Lee lýsir svo þeirri skoðun sinni, að nú muni kynskiptingar skipa úrvalssveit byltingarmanna, þ.e. í byltingu öreiganna í anda Karl Marx. [6]

Draumur kvenfrelsaranna er einnig draumur Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum). Það er félagsskapur auðkýfinga, stjórnmálamanna og annarra áhugamanna um alheimsyfirráð – eina alheimsstjórn. Slík stjórn er reyndar á dagsskrá Sameinuðu þjóðanna líka. Til fróðleiks má geta þess, að það voru sömu auðkýfingar (eða sjóðir þeirra), sem fjármögnuðu kvenfrelsunarhreyfinguna, þegar önnur bylgja hennar brast á, skömmu eftir miðja síðustu öld.

Á u.þ.b. tuttugu ára tímabili skutu rótum bæði kvenfrelsunar- og náttúruverndarhugmyndafræðin, samtímis eflingu gamalla hugmynda um fækkun mannkyns, mannbætur (eugenics), mengun náttúrunnar (þ.m.t. loftslag) og heimsvaldastefnu Vesturlanda, sér í lagi Bandaríkjanna. Fækkun karla er kvenfrelsurum þó hugstæðari en fækkun kvenna. [7]

Rockefeller-ættin (sem stundum er kölluð „veraldleg“ ásjóna Rothschild-ættarinnar eins og bankaveldi John Pierpont Morgan (1837-1913)) kemur víða við sögu, hvort heldur er um að ræða stuðning við kvenfrelsun, stofnun auðkýfingasamtaka eins og Bilderberghópinn og Rómarklúbbinn. Ættin stuðlaði líka að stofnun Sameinuðu þjóðanna (gaf land undir byggingu þeirra m.a.) og Þríhliða ráðsins (Trilateral Commission - Tricom), ráðs auðvaldsstjórnmálaafla í Bandaríkjunum, Vestur-Evrópu og Japan. [8]

Gagnkvæm hugmyndafræðileg frjóvgun átti sér stað á þessum árum. Helstu rit kvenfrelsunarjöfra annarrar bylgju (sem allar segja meira eða minna það sama) komu út á sama skeiði og loftlagshamfarabíblía Rómarklúbbsins (Club of Rome), „Takmörk vaxtar“ (Limits to Growth - 1971). [9]

Þrem árum, eftir útgáfu bókarinnar, lét Klúbburinn eftirfarandi frá sér: „Jörðin þjáist af krabbameini. Krabbinn er maðurinn. … Heimsbúar horfast í augu við dæmalausar vandræðaflækjur eins og offjölgun mannkyns, fæðuskort, ósjálfbærar auðlindir, umhverfismengun og slæma stjórnun.“ [10]

Sama má segja um þróun kvenfrelsunarlöggjafar og -alþjóðasáttmála, svo og um loftlagshamfarir og atvinnulíf, sbr. merkilega skýrslu, sem unnin var af George Dvorsky og James Hughes, á vegum „Stofnunar um siðfræði og sprotatækni“ (Institute of Ethics and Emerging Technologies) í umboði kanadísku stjórnarinnar. [11]

Grundvallartónninn endurspeglar kvenfrelsunarfræðin, þ.e. veröldin er á barmi tortímingar af völdum bleikskinna af karlkyni, þ.e. hvítra karlmanna, sem eru of graðir og gráðugir, borða of mikið kjet, kúga konur og móður náttúru, Gaia, og nauðga öllu, sem þeir komast yfir.

Maurice Stong,(1929-2015), sem var eins konar samnefnari Alheimsefnahagsráðsins, Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegs bankaveldis – einkum Rockefeller-veldisins, samsinnti kvenfrelsurunum. Á Umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Río 1992, sagði Maurice:

„Það má ljóst vera, að lífshættir og neyslumynstur efnaðrar millistéttar um þessar mundir – sem nær til verulegrar kjötneyslu, neyslu mikils magns frystra matvæla og tilbúinnar fæðu (convenience foods), brennslu jarðefnaeldsneytis, notkunar tækjabúnaðar, loftkælingar á heimilum og vinnustöðum, ásamt búsetu í úthverfum – er ekki sjálfbært.“ [13]

Árið 1991 var svo lagður grundvöllur að nýjum sameiginlegum trúarbrögðum mannkyns, þegar Rómarklúbburinn gaf út nýju biblíuna; „Fyrstu alheimsbyltinguna: Skýrslu ráðs Rómarklúbbsins“ (The first global revolution: A report by the council of the Club of Rome). Þar skrifar Alexander King (1906-2007), einn stofnenda þessarar virðulegu samkundu:

„Í leitinni að sameiginlegum óvini til að skipa okkur saman fæddist sú hugmynd, að mengun, ógnin af ofhitun alheimsins, vatnsskortur, hungursneyð og þess háttar, væri líkleg til árangurs. … Hinn raunverulegi óvinur væri mannkynið sjálft.“ [12]

Indverski kvenfrelsarinn, Vandana Shiva (f, 1952), tekur meira að segja svo djúpt í árinni að kalla nútíma áburð gereyðingarvopn. „Loftlagsbreytingar kalla ég efnaskiptasjúkdóm jarðarinnar. Áburður er gereyðingarvopn. Áburðarnotkun er stríði líkust, því áburður rekur rætur til stríðs.“ [14]

Því þyrfti, segir Vandana, að hverfa aftur til búskaparhátta, sem tíðkuðust fyrir tíma iðnbyltingar, svo sefa megi reiði Gaia. Hamfarahlýnunarpáfarnir eru á sömu skoðun. Hiti á jarðarkringlunni má ekki víkja nema eina og hálfa gráðu frá hitastigi fyrir iðnbyltingu, jafnvel þótt enginn viti, hvert það var.

Kvenfrelsarar hafa fylkt saman öllum þeim, sem harma eiga að hefna gagnvart bleikskinnum, í samskipunarkvenfrelsunarhreyfingu (intersectional feminism). Þar er að finna litskinna og alls konar hinsegin og öðruvísi fólk með tilliti til kynferðis og kynlífs. Gyðingar (Anti Defamation League – ADL) er síðasta viðbótin við heraflann. Þessir hópar hafa, að eigin sögn, öðlast heilagan rétt til hefnda á kúgurum sínum - og beita honum óspart.[5]

https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304052 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/10/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304102 https://www.jstor.org/stable/pdf/48749190.pdf?refreqid=fastly-default%3A8408e1da178dd8b2301ec2ae2293e2a3&ab_segments=0%2Fbasic_phrase_search%2Fcontrol&origin=&initiator=search-results&acceptTC=1 https://www.plutobooks.com/9780745341668/transgender-marxism/ https://internationalviewpoint.org/spip.php?article7213 [6] https://www.amazon.com/Revolve-Mans-Scientific-Rise-Godhood-ebook/dp/B004JF4M60 https://archive.org/details/anarchy_Cyborg_Manifesto_Harroway/page/n3/mode/2up = https://warwick.ac.uk/fac/arts/english/currentstudents/undergraduate/modules/fictionnownarrativemediaandtheoryinthe21stcentury/manifestly_haraway_----_a_cyborg_manifesto_science_technology_and_socialist-feminism_in_the_....pdf https://www.youtube.com/watch?v=Q9gis7-Jads https://www.youtube.com/watch?v=XiF9SBrzWoU [7] https://www.aier.org/article/overpopulation-an-ancient-myth-refuted/ https://frettin.is/2023/01/18/ondvegisovinur-rikisins-jordan-peterson-og-menningarbyltingin-a-vesturlondum/ https://www.globalresearch.ca/boom-trilateral-commission-declares-2023-year-one-new-global-order/5812598 https://www.technocracy.news/trilateral-commission-the-secret-circle-that-controls-governments/ https://www.trilateral.org/about/members-fellows/ [8] http://www.williamengdahl.com/gr22October2022.php [9] https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304056 [10] https://web.archive.org/web/20120112140039/http:/www.green-agenda.com/turningpoint.html https://expose-news.com/2024/07/09/the-dark-origins-of-the-great-reset/ [11] https://www.visir.is/g/20201384476d/lagaleg-kugun-karla Wayback Machine (archive.org) https://corbettreport.com/biodigital-convergence-bombshell-document-reveals-the-true-agenda/ https://www.visir.is/g/202024327d/kven-frelsun-og-kven-verndar-log [12] https://quadrant.org.au/opinion/doomed-planet/2015/12/discovering-maurice-strong/ [13] https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304046 [14] https://spacecommune.substack.com/p/energyempire-part-2-ideological-war


Gyðingar sem ekki vilja drepa og Rússar sem rumska. Í minningu Muhammed Bhar

Benjamin Netanyahu hefur viljað telja okkur trú um, að hann sé fulltrúi allra Gyðinga í heimi hér og að allir séu þeir síonistar og Semítar. Því sé gagnrýni á Ísraelsstjórn andgyðingleg og jaðri við helfararafneitun. Þetta fimbulfamb gýs stöðugt upp úr honum, ásamt heitstrengingum um að eyða Hamas. Íbúar Jemen, Vesturbakkans, Líbanons og Írans mega fara sömu leið.

Það ættu allir að hlýða á messu hans á þingi Bandaríkjanna. Það var hryllingssýning. Þingmenn hegðuðu sér eins og smábörn í bíó, risu úr sætum með köllum og klappi, þegar barnamorðinginn seldi upp hverri haturslygaspýjunni á fætur annarri. Hann er átrúnaðargoð vestrænna stjórnvalda, verndari vestrænna gilda í Palestínu eins og Volodymyr Zelensky í Úkraínu. Efasemdarmenn um tilvist samrunaheimsveldis Ísraels og Bandaríkjanna (og Breta) ættu ekki að láta sýninguna fram hjá sér fara.

Jeremy Bernard Corbyn, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, andmælti. Hann var að vonum fjarlægður úr stóli forsætisráðherra. En enn þá þiggur flokkur hans mútur frá velunnurum Ísraels eins og þriðjungur breska þingheimsins og enn þá fleiri á þingi Bandaríkjanna.

Alþjóðaglæpadómstóll (International Criminal Court) Sameinuðu þjóðanna stríðir Brjálaða-Bensa um þessar mundir. Eins og glöggir lesendur hafa áttað sig á, hefur dómstóllinn nú, eftir samráð við lögfræðinga hér um bil 60 ríkja, áréttað samþykktir Sameinuðu þjóðanna um ólög Ísrael; landþjófnað, aðskilnaðarstefnu, stríðsglæpi, þjóðarmorð og hersetu. Samtímis hefur Dómstóllinn áminnt önnur ríki um skyldu þeirra til að koma Palestínumönnum til hjálpar.

Dómurinn hefur misboðið Ísraelsmönnum eins og allir, sem viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínumanna. Þeir sneru t.d. baki við norska ráðherranum, Espen Barth. Norðmenn dirfðust einmitt að viðkenna ríki Palestínumanna. Eftir því sem ég best veit, þiggja norskir þingmenn ekki mútugreiðslur eins og þeir bresku og bandarísku.

Fleiri dómstólar láta að sér kveða. Hæstiréttur Ísraels hefur kveðið upp dóm þess efnis, að nú skuli allir Gyðingar skrá sig í herinn, líka sá hópur Ísraelsgyðinga, sem neitar að drepa í nafni Gyðingdóms.

Það mætti af þessu ráða, að ísraelsk yfirvöld séu að undirbúa frekari hernaðaraðgerðir. Jemenar og Hesbollaliðar gera þeim hverja skráveifuna á fætur annarri. „Leyfi“ hefur nú fengist frá Bandaríkjunum um að herja í Líbanon. Það er ljóst, að báðir geta eins og Íranar og Írakar, sent heitar kveðjur inn í mitt land, ef þeim býður svo við að horfa.

Jemenar hafa valdið miklum usla í Ísrael og fælt burt skip á Rauða hafinu á leið til Ísraels. Hesbolla hefur flæmt Ísraela burt úr landamærahéruðunum við Líbanon. Ísraelum blæðir efnahagslega og samtímis dragast fjárfestingar saman. Ferðamenn halda sig fjarrri og fólk flýr úr landi. Það stefnir í að svo fari með Ísrael sem Úkraínu; bæði ríkin verða á framfæri Vesturlanda. Þó eru líklega reytingstekjur af líffærasölu úr Palestínumönnum.

Óþokkaskapurinn á Gaza heldur áfram af fullum þunga, stutt nýjustu eftirlits- og miðunartækni. Ungbörn eru meira að segja skotmörk leyniskyttna Ísraelshers, að sögn bandarísks læknis. Um daginn staðfesti ísraelski herinn morðið á Muhammand Bhar. Sá var með Downs heilkenni. Herinn sigaði á hann hundum heima hjá sér. Hundarnir tættu handleggi Muhammad. Honum blæddi út. Fjölskyldan kom að rotnandi leifum hans. Muhammad var 24 ára.

Mannfallið á Gaza er að öllum líkindum töluvert meira en tölur Hamas gefa til kynna. Fangar eru enn sem fyrr pyndaðir í ísraelskum fangelsum og drápsflaugar eru sendar í tugatali á skotmörk í Sýrlandi, Jemen og Líbanon. Miðausturlandastríðið er í sjálfu sér hafið. Vopnaframleiðslufyrirtæki um allan heim fitna eins og púkar á fjósbita og ráða sér ekki fyrir fögnuði. Almenningur kaupir í þeim hlutabréf, fjárfestir í drápum, eldi og eimyrju.

Í Miðausturlöndum eiga sér stað athyglisverðar hræringar. Kínverjar hafa vakið athygli fyrir utanríkisstefnu, þar sem sættir og samvinna eru í öndvegi. James David Vance, næsti varaforseti Bandaríkjanna, klappar þeim meira að segja lof í lófa, þótt skringilegt sé. En ætli hann læri?

Kínverjum hefur t.d. tekist að sætta stjórnendur Írans og Sádí Arabíu og skipað saman fjölda frelsishreyfinga í Palestínu. Rússar liggja heldur ekki á liði sínu í þessu efni. Fyrir þeirra atbeina eru nú líkur á því, að Tyrkir og Sýrlendingar semji frið. En sem kunnugt er tóku Tyrkir óbeinan þátt í byltingartilraunum Bandaríkjamanna og Ísraels í Sýrlandi fyrir um áratugi síðan, og beittu fyrir sig Íslamska Ríkinu (ISIS).

Nýlega hélt Bashar Addad, forseti Sýrlands, til fundar við Vonda-Valda í Mosku. Fundurinn fór hljótt og lítið heyrst um niðurstöður. En líklegt má telja, að rædd hafi verið hernaðaraðstoð Rússa í því stríði, sem Ísraelar og Bandaríkjamenn (Nató) munu væntanlega heyja fyrir botni Miðjarðarhafs í fyrirsjáanlegri framtíð gegn Líbanon og Íran og fleiri ríkjum. Stór-Ísrael er enn á dagskrá sameinaðs heimsveldis Bandaríkjamanna, Breta og Ísraela.

Stuðningur Ísraela og Vesturveldanna við Úkraínu hefur angrað Rússa verulega, svo og hryðjuverk unnin af leiguliðum Vesturveldanna, stundum af þeim sjálfum með eigin vopnum. Stuðningur Rússa við andstöðuríki Ísraels mun verða þeim hvatning til að efla andstöðuna við Ísrael og Vesturveldin í Levantíu og Vestur-Asíu. Því er ekki ólíklegt, að senn muni rigna rússneskum drápsskeytum yfir Ísraelsmenn og herstöðvar Bandaríkjamanna og Breta. Það yrði harmleikur.

Rússar eiga líka í samræðum við ríkisstjórnina í Jemen (þ.e. Ansrullah (Húti) í Sana, ekki leppstjórn Sádi-Araba og Vesturlanda í Aden) um aðild að BRICS, viðskipti og öryggismál. Í raun hefur stríðinu við arabísku nágrannanna ekki linnt fullkomlega, síðan 2015.

Forsætisráðherrann, Abdulaziz Saleh bin Habtoor, lýsir óvinunum sem „fjandsamlegu bandalagi 17 ríkja með fullum stuðningu Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, samtímis allsherjar þvingunum í lofti, láði og legi.“ Mannúðaraðstoð Bandaríkjanna var hætt 2020. Hungur og sjúkdómar steðja að þjóðinni.

Jemenar taka samningsbundnum tilmælum Sameinuðu þjóðanna um aðstoð við Palestínumenn alvarlega, þrátt fyrir endurteknar árásir frá Sameinaða heimsveldinu (Ísraelum, Bandaríkjunum og Bretum) með stuðningi Nató.

Þrátt fyrir endurteknar samþykktir á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og í Öryggisráðinu, þess efnis, að Ísraelar séu landþjófar, hersetuveldi og þjóðarmorðingjar, sitja þeir við sinn keip – líka með fulltingi Nató.

Svokölluð tveggja ríkja lausn er steindauð. Að sjálfsmorði Ísraela loknu mun verða eitt ríki í Palestínu/Ísrael – líklega lýðræðisríki. En þá er viðbúið, að flestir Gyðinga hafi flutt á brott. Fjöldi þeirra hefur þegar tekið pokann sinn.

https://www.haaretz.com/israel-news/2024-07-22/ty-article/.premium/idf-left-palestinian-with-down-syndrome-to-die-after-dog-attack-in-gaza-home/00000190-d5e5-dbe5-a7fa-f7ff225b0000 https://www.globalresearch.ca/war-criminal-netanyahu-us-congress/5863708 https://www.globalresearch.ca/humanitarian-crisis-yemen/5863631 https://www.globalpolitics.se/puzzlet-mellan-jemen-och-ryssland/ https://derimot.no/tiljublet-av-norske-statsvitere-usa-repeterer-sine-feil-ustanselig/ https://steigan.no/2024/06/antall-drepte-i-gaza-er-mye-hoyere-enn-det-vi-far-vite/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.msnbc.com/top-stories/latest/gaza-death-toll-lancet-israel-hamas-war-rcna160902 https://decensored.news/haaretz-idf-hannibal-directive-october-7/ https://x.com/ImtiazMadmood/status/1807145540372791392?t=GFr8rAAwGz1_bjMbJb0nVQ&s=07 https://steigan.no/2024/06/israelske-fengsler-bruk-av-utsulting-som-torturmetode/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/06/hvem-er-elefanten-i-rommet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/israel-bombs-syria-two-days-before?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=146037044&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=o5PONyV1yn4 https://gilbertdoctorow.com/2024/07/04/new-truce-possibilities-in-gaza-a-step-to-peace-or-a-sidestep-to-war-in-lebanon/ https://korybko.substack.com/p/israel-should-think-twice-before?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146229946&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.kitklarenberg.com/p/british-spies-built-zionist-propaganda?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=146195776&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.declassifieduk.org/pro-israel-tycoon-gives-labour-half-a-million-pounds/ https://steigan.no/2024/07/sliten-israelsk-haer-ikke-klar-for-krig-i-libanon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/blackrock-wall-street-banks-profit-israel-gaza?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=146369202&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=pefEIwoTEnE https://steigan.no/2024/07/kampen-mot-terror-er-domt-til-a-mislykkes/?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/07/26/the-assad-visit-to-moscow-two-days-ago-about-which-you-have-heard-nothing-irans-press-tv/ https://steigan.no/2024/07/washington-gir-netanyahu-full-stotte-til-a-utvide-krigen-mot-libanon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.972mag.com/lavender-ai-israeli-army-gaza/ https://steigan.no/2024/07/netanyahu-en-krigsforbryter-hyllet-og-applaudert-i-den-amerikanske-kongressen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/the-zionist-movement-in-britain-david?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=146430419&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/rapport-bekrefter-at-israel-beordret-hannibal-direktivet-som-svar-7-oktober/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/the-lancet-dodstallene-i-gaza-kan-ga-opp-i-hundretusener/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.instagram.com/p/C9MTFFkO82U/?igsh=MW9oYXYwdDF5bW1zZg%3D%3D&fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR2fkigIgp1pDra8ZIMMDDON4nP3bk59K4OgWsz75GBaYES1z71FJU6udVk_aem_w7erOVsK9pUiDYiosGc8QA https://www.globalresearch.ca/western-supported-zionist-genocide-and-the-pathology-of-evil/5861907 https://chrishedges.substack.com/p/the-old-evil?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=146544240&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=0VXye0HXaxI https://steigan.no/2024/07/iran-vil-stotte-hizbollah-med-alle-midler-hvis-israel-angriper-libanon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/is-israel-destroying-itself?utm_source=podcast-email&publication_id=716517&post_id=146433462&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_gif&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email hhttps://www.timesofisrael.com/up-to-60000-israeli-businesses-may-close-in-2024-as-war-takes-toll-on-economy/ https://www.globalpolitics.se/fn-domstolen-i-haag-israeliska-bosattningar-ar-olagliga/ https://www.globalpolitics.se/hundraarskriget-mot-palestina-bosattarkolonialism-och-motstand/ ttps://steigan.no/2024/07/israel-nekter-a-snakke-med-espen-barth-eide/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.declassifieduk.org/israel-lobby-funded-half-of-keir-starmers-cabinet/?utm_source=drip&utm_medium=email&utm_campaign=In+Case+You+Missed+It%C2%A0 https://samstodin.is/2024/07/israel-sprengdi-skola-a-gasa-med-bandariskri-sprengju/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR3z58bv5_vYSyYchm_3SJnmRjJGVIP4-a0i_ZxMVXay2plbqc7Lg5uoWvY_aem_yLrNn7CoJ9b748OVSDQo9w https://www.timesofisrael.com/up-to-60000-israeli-businesses-may-close-in-2024-as-war-takes-toll-on-economy/ https://www.globalpolitics.se/fn-domstolen-i-haag-israeliska-bosattningar-ar-olagliga/ https://www.globalpolitics.se/hundraarskriget-mot-palestina-bosattarkolonialism-och-motstand/ https://steigan.no/2024/07/israel-og-utmattingskrigen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/amerikansk-kirurg-som-jobbet-frivillig-i-gaza-sier-idf-snikskyttere-skyter-smabarn/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/standing-ovation/5863664 https://caitlinjohnstone.com.au/2024/07/25/netanyahus-speech-was-as-american-as-it-gets/ https://www.globalpolitics.se/vad-fns-hogsta-domstols-utslag-innebar-for-israel/ https://www.newarab.com/news/rights-groups-hail-icj-ruling-israel-occupation-palestine https://www.972mag.com/haredi-protest-army-conscription-ruling/ https://www.bbc.com/news/articles/cz9drj14e0lo https://www.middleeasteye.net/news/gaza-palestinian-down-syndrome-left-die-israeli-soldiers-after-combat-dog-attack


Hið mikla frelsisstríð; frelsun kvenna, kynlífs, kyns og mannkyns: 1

(Hér kemur fyrir sjónir lesenda fyrsti þáttur af fjórum í þessari pistlaröð. Heimilda er getið í lok hvers þáttar.)

Í hinu mikla frelsisstríði, sem hófst með frelsun kvenna frá körlum, tekur hver orrustan við af annarri. Kynfrelsunarorrustan stendur nú sem hæst undir gunnfána kynskipta (transsexual). Kynlífsfrelsunin, þ.e. viðleitni til að trufla eðlilegan kynþroska barna og kenna þeim kynlífsástundum frá unga aldri – einnig með fullorðnum – er í burðarliðnum (child og pedophile emanicipation/liberation).

Lokafrelsunin, frelsun mannkyns, felst í samruna lífs og tölvu til mannslíkja (transhumanism) undir einni alheimsstjórn. Konan verður kvenlíki, sem losnað hefur undan oki náttúrunnar, barnsburði – og vitaskuld einnig undan oki karla. Fóstureyðingar verða óþarfar. [1] Grundvallarhugmyndafræðina, inntak, stefnu og aðferðir, má lesa um í verkum kvenfrelsunarfræðimanna.

Grundvallarhugsunin er sú að hverfa þurfi til goðsögulegs upphafs mannkyns, þar sem hin mikla móðir ríkti yfir kvennaparadís í sátt og samlyndi við móður jörð, Gaia. Karlkúgun eyðilagði þessa draumaveröld. Undirokunar karlsins gætir á öllum sviðum; í kynlífi og samskiptum almennt, í vísindum, viðhorfum til náttúru, tónlistar, tungumáls og svo framvegis.

Kvenfrelsarana dreymir um afturhvarf til ríkis Miklu móður í sátt við Gaia, þ.e. til skeiðs frumstæðs landbúnaðar. Kvenna- eða kvenfrelsunarfræði vísa veginn. Undirgreinarnar eru margar; kvenheimspeki, -samfélagsfræði, -umhverfisfræði, -tónfræði, -jöklafræði, -hagfræði, -stærðfræð, -eðlisfræði og -umhverfisfræði, svo dæmi séu tekin. Sú byltingarkennda frelsunarhugsun ræður för, að þekkingarfræði og vísindi hafi verið reðurmiðuð (phallocentric) og því ógild. [2]

Á Íslandi hefur t.d. verið ráðinn kvenumhverfishagfræðingur að Seðlabankanum og kvenjöklafræðingur hefur einnig ratað inn í náttúruverndarskrifræðið til leiðbeiningar „feðraveldinu.“ Jafnréttisstofa skipar einnig viðurhlutamikinn sess í þessu viðfangi.

Konur sigra í hverri orrustunni á fætur annarri í stríðinu gegn körlum. Það hefur verið yfirlýst stefna kvenfrelsara að gera litið úr hlutverki feðra, fjarlægja þá af heimilinum, yfirtaka hefðbundinn starfsvettvang þeirra, ýta þeim til hliðar í stjórnmálum, gelda þá og fækka þeim, bæði í móðurkviði og utan. [3]

Ofangreindir sigrar hafa unnist á heimavelli sem og á alþjóðavettvangi. Þeir endurspeglast í starfi og markmiðum alþjóðastofnanna eins og Evrópuráðinu, Sameinuðu þjóðunum og fleiri. Sameinuðu þjóðirnar og Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) hafa sammælst um svokölluð sjálfbærnimarkmið, þar sem kvenfrelsunarhugmyndafræðin endurspeglast greinilega í öllu, sem lýtur að samskiptum kynjanna, nýtingu auðlinda, loftslagi, þróun mannkyns til mannslíkja (transhumanism) og samfélagsfyrirkomulagi. [4]

Bandarísku kvenfrelsararnir, Judith Butler (f. 1956) og Donna Haraway (f. 1944), eru meðal merkustu kvenfrelsunarfræðinga á nýöld, sem svo er kölluð. Þá er einkum átt við tímaskeiðið, eftir lok annarrar heimstyrjaldarinnar og þróun fræðilegrar hugsunar (postmodern, postmodernism). Aðalstefin í þessum fræðum er máttur hugans (subject) og vald. Fátt er fast í hendi. Flest er „á floti alls staðar,“ þ.e. hugtök og fyrirbæri af öllu tagi eins og kyn t.d. Völd yfir konum hrifsuðu karlar til sín í árdaga – sérstaklega hvítir karlar þó. Skrif beggja eru yfirleitt afar torræð.

Báðar byggja þær, Donna og Judith, á verkum Shulamith Firestone (1945-2012), nemanda franska heimspekingsins, Simone de Beauvoir (1908-1986). Á áttunda áratugi síðustu aldar sagði Shulamith í bók sinni, „Þrætubók um kynin: Rökstuðningi fyrir kvenfrelsunarbyltingu“ (The Dialectic of Sex: The Case for Feminist Revolution) m.a.:

„Það verður ekki gengið milli bols og höfuðs á bandormi þrælkunarinnar, nema byltingin uppræti grundvallarstofnunina, hina náttúrulegu (biological) fjölskyldu, [því] hún getur [auðveldlega] orðið gróðrarstía andlegs valds.“ Hún lagði einnig hugmyndafræðileg drög að afnámi kyns.

Rétt um áratugi síðar tók landi Shulamith, heimspekingurinn, Judith Butler (f. 1956), við hugmyndafræðikeflinu. Judith er margverðlaunuð fyrir fræði sín, torskiljanlega texta. Hún á sér aðdáendur víða um heim – m.a. á Íslandi.

Geir Svanson (1957-2022), bókmenntafræðingur, skrifaði fyrir síðustu aldamót, fræðandi grein um Judith (sjá safnritið. „Flögð og fögur skinn,“ ritstýrt af Jóni Proppé).

Við lestur og þýðingu á verkum Judith, þótti Geiri íslenskan sníða þessum merka hugsuði stakkinn þröngan. Því „neyddist“ hann til að smíða ný orð. Eitt þeirra er „kyngervi,“ þar sem „kynferði“ rúmaði ekki hugsun Judith. „Kyngervi“ er nú orðið eitt af eftirlætisorðum kvenfrelsara.

Geir segir m.a. svo um „Judith-arfræði“: „Við sögu koma ýmsir kyngervisútlagar; dragdrottningar; kyn- og klæðskiptingar. Umræðan snýr einnig að samkynhneigðum og öllum þeim sem eru á skjön við forræði gagnkynhneigðra. Kvaðir þessarar valdaformgerðar sem enginn samfélagsþegn getur virt að vettugi eru grundvallaðar á rammri eðlishyggju, tvíhyggju og tvenndarandstæðuhugsun sem skilyrðir allar birtingarmyndir kyngervis innan hins gagnkynhneigða kerfis.“ …

Um kyngervisblöndun og kyngervisstælingu: „Kyngervisblöndun (gender blending) er regnhlífarhugtak yfir kyn- og klæðskipti og allar birtingarmyndir þessara fyrirbæra. … Kyngervisskæling (gender blending) er notað um meðvitaða blöndun í þeim tilgangi að gera hefðbundna aðgreiningu kyngerva óljósa. Nýlega er farið að nota orðið „transgenderism“ fyrir pólitíska afstöðu sem felst í því að skæla kyngervi og hafna gagnkynhneigðri tvenndarskiptingu kyngerva.“ Og þar með hafna þeirri „pólitísku hugmyndafræði sem dylst á bakvið tvenndarkerfi kyngervis.“

Þessi dulda hugmyndafræði elur m.a. af sér kvenímynd, sem „fellur að öllu leyti að þeirri ímynd sem föðurveldi hinnar gagnkynhneigðu skyldu heldur að konum.“ Kyngervisskælingin og kyngervisblöndunin skapar „kyngervisútlaga“ (gender outlaw).

Ofangreint er inntak hinseginfræða: „Hinsegin fræði eru ekki eingöngu akademísk fræði heldur einnig hugarfar og pólitískt andóf sem stundað er utan háskóla. … Með hinsegin fræðum er kannski kominn vettvangur þar sem samkynhneigðir, kynskiptihneigðir, konur, og aðrir sem eru hinsegin í gagnkynhneigðu skipulagi, geta unnið gegn útilokun og markað sér rými og réttlæti.“

Um bók Judith, „Kyngervisusla: Femínisma og niðurrif sjálfsmyndar (Gender Trouble: Feminism and the Subversion of Identity), segir m.a.: „Þættar hún saman baráttustrengi samkynhneigðra, kvenna og þeirra sem eru á skjön við norm samfélagsins. Óvinurinn er sameiginlegur. Að baki fordómum og óréttlæti því sem téðir einstaklingar og hópar þurfa að þola gnæfir gagnkynhneigt forræði.

Kyngervisusli er róttæk gagnrýni á ráðandi karlhyggju en líka á þá tegund eðlishyggju sem hefur valdið glundroða innan femíniskra fræða. …. Í uslanum felast möguleikar á andófi gegn þeim grunnformgerðum gagnkynhneigðs forræðis sem einkum hyglir hvítum (kristnum) körlum.“

Og áfram gerir Geir grein fyrir Judith-arfræðum: „Kyngervi eru ekki náttúrleg heldur verða til í gjörningnum, um leið og þau eru „sögð“: Gjörningurinn framleiðir það sem átti að búa í „eðli“ kyngervisins. Til að staðfesta sig verða kyngervi að endurtaka sig í sífellu. En það er einmitt í endurtekningunni, eða endurtekningarferlinu, sem óstöðugleiki kyngerva kemur í ljós: hver ítrekun er aldrei nákvæmlega eins og sú á undan. Afbygging [niðurrif] kyngerva býr því í hjarta hins „upprunalega“ og kyngervi eru því hvorki eðlileg né einungis tvö heldur áunnin og fjölmörg. Þau verða því að skoðast sem eftirlíkingar án upprunalegrar staðreyndar.“ …

„Skyldubundin gagnkynhneigð skilgreinir sig út frá því sem er öðruvísi og sjúkt, þar sem samkynhneigð er gölluð eftirmynd hinnar upprunalegu gagnkynhneigðar. Butler bendir á að hið upprunalega byggi þannig á eftirmyndinni. Gagnkynhneigð eigi því ekki óskorðan rétt á upprunaleika og náttúrlegri tilvist þar sem hún þarfnist samkynhneigðar til að staðfesta tilvist sína. Sama gildi um allt sem setji sig í stöðu hins upprunalega. Tvenndarandstæðan sé því komin í uppnám og jafnframt gagnkynhneigt forræði.“

Svo skilmerkilega mælti Geir um fræði Judith Butler – og trauðla nokkru við að bæta. [1]

https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_pedophile_advocacy_organizations https://www.ipce.info/ https://dailysceptic.org/2023/05/14/outrage-over-who-guidance-on-sexuality-for-infants/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/4/ https://www.visir.is/g/20201999956d/kyn-roskun-stulkna.-hin-nyja-modur-syki- https://stopworldcontrol.com/children/ https://rumble.com/v55y28s-lgbtq-leaders-sign-wef-treaty-to-accept-pedophiles-as-legally-protected-min.html https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/day/2021/11/8/ https://corbettreport.substack.com/p/trans-formers-psyops-in-disguise?utm_source=substack&utm_medium=email [2] https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2303879/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304053 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304054 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/month/2021/3/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2262039/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2302594/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304082 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2263204/ [3] https://frettin.is/2023/04/04/sjuk-kvenfrelsun-kynbreytingaidnadurinn-redurofundin-og-ofbeldid/ https://www.visir.is/g/20191900819d/fostur-eydinga-for-saetis-rad-herrann https://frettin.is/2022/12/12/kynofbeldisbyltingin-eda-sidaskiptin-i-framhaldsskolum-landsins/ https://www.visir.is/g/2019856643d/kven-veldis-a-varpid https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304058 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304057 https://www.visir.is/g/20191374068d/odur-til-fedra https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/?year=2021;month=7 https://www.visir.is/g/2019359291d/karland-ud-i-stjorn-malum-daegur-menningu-og-log-gjof https://www.visir.is/g/2020542209d/hug-prudasta-hlinin-i-holly-vudd-rauda-pillan-og-stora-raudka [4] https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar/entry/2301872/ https://expose-news.com/2024/03/24/gppp-is-a-scam-that-robs-the-poor-to-give-to-richest/ https://frettin.is/2022/12/14/kvennavernd-a-islandi-grevio-skyrslan-og-kvenfrelsunarkirkjan-2/ https://frettin.is/2022/12/17/kvennavernd-a-islandi-grevio-skyrslan-og-kvenfrelsunarkirkjan-annar-hluti/


Karltyftunarráðuneyti, kvenfrelsunarbifvélavirkjar og aumingjans kvenmorðingjarnir

Ítalski kvenfrelsarinn, Silvia Guerini, segir m.a.: „Sjónarmiðum LGBTQ+ [lesbía-(karl)homma-tvíkynja-tvískiptinga-kynlausra og fl.] er nú gert hátt undir höfði hjá hinum valdamiklu og formælendur þeirra rísa til metorða í fjölmiðlum, æðri menntastofnunum og sérstaklega þó meðal viðskipta-, góðagerða- og tæknijöfra.“ Hún bætir við:

„Aðförin að börnum, einkum og sér í lagi í skóla og fjarri vernd foreldra, er nánast að skilja sem markvissa félagsverkfræði.“ Hún bendir á, að við séum barna steinsnar frá veröldu „án mæðra.“

Íslenskir kvenfrelsarar hafa víða ítök í samfélaginu, ekki síst í skólakerfinu, allt frá leikskólum til æðri menntunar. Nemendur í bifvélavirkjun eru þar á meðal. Í Borgarholtsskóla þurfa þeir – drengir væntanlega í yfirgnæfandi meirihluta – að taka skyldunámskeið í kynjafræði (gender studies). Kennarar eru þrjár konur undir stjórn eins alræmdasta kvenfrelsara þjóðarinnar, Hönnu Bjargar Vilhjálmsdóttur. Öllu er greinilega til tjaldað:

„Kynja- jafnréttis- og hinseginfræðsla. Birtingarmyndir kynjaskekkjunnar, hugtök kynja- og hinseginfræða skoðuð, greind og ígrunduð. Nemendur eru hvattir til að rýna í umhverfi sitt og menningu með kynjagleraugum, verða meðvituð um kynjakerfið, orsakir þess og afleiðingar. Lýðræðisleg nálgun er mikilvæg í áfanganum og umræður nemenda eru rauður þráður í náminu. Námsmat er fjölbreytt og áhersla er á alla grunnþætti menntunar, en þó sér í lagi grunnþáttinn jafnrétti.

Þekking, leikni, hæfni: Þekking: • Hugtök kynja- og hinseginfræða • Þekking á birtingarmyndum kynjaskekkjunnar í nær og fjær samfélagi nemenda • Tilurð kynjafræði sem fræðagreinar, fræðileg- og félagslegt inntak greinarinnar Leikni: • Að nemandi geti beitt hugtökum kynjafræðinnar á ólíkar aðstæður • Að meta jafnrétti út frá menningarlegum gildum samfélagsins • Að nemandi geti rýnt í poppmenninguna, vinnumarkaðinn, stjórnmálin og önnur svið samfélagsins og áttað sig á stöðu kynjanna eins og hún birtist þar Hæfni: • Nemandi hafi hæfni til að skilja helstu orsakir mismununar á kynjunum í samfélagi skv. hugmyndum kynjafræðinnar • Að nemandi geti tengt menningu samfélagsins, gildi og viðmið – við eigið líf • Nemandi hafi hæfni til að beita hugtökum kynjafæðinnar á markvissan hátt um málefni kynja- og hinseginfræðanna. [Ég geng út frá því, að hér sé átt við kynjafræði, en ekki „kynjafæð.“ Hana búa karlar reyndar stöðugt við.]

Verkefni: • Verkefni 1: Knúz (munnleg skil) 5% • Verkefni 2: Karlmennska – „The mask you live in“, 5% • Verkefni 3: Kvenska – Barbie, 5% • Verkefni 4: Kynjaþing framhaldsskóla 5% • Verkefni 5: Kyn og fjölmiðlar – „Codes of Gender“, 5% • Verkefni 6: Kynbundið ofbeldi - Kverkatak 5% • Verkefni 7: Hinsegin/kynsegin 5% • Verkefni 8: Lokaverkefni 5% • Verkefni 9: Lokaígrundun 5%.“

Hér er margt fróðlegt að lesa. Verkefnið, „Karlmennska - „The mask you live in,“ er sérstaklega áhugavert. Það er svo mergjað, að kennarar þurfa að bregða undir sig betri málfætinum til að koma inntaki þess til skila. Þetta er líklega sótt í sístarfandi fræðasmiðju kvenfrelsara í Ameríku; rjúkandi fersk næring. Það gæti verið, að kvenfrelsunarfræðimenn hafi komist að því, að það sé í raun bara karlmennskugríman sem sé eitruð, en ekki karlinn sjálfur inn við beinið. Það væri huggun.

Íslendingar og Ástralar eiga harðskeytta og ötula kvenfrelsara. Þeir fyrir neðan bjóða vafalítið upp á svipuð námskeið. Þar að auki eru drengir látnir biðjast afsökunar á kynferði sínu opinberlega í eins konar kórjátningu.

Slíkt skólastarf verður trúlega fært yfir í nýtt ráðuneyti (í Viktóríuríki); karltyftunarráðuneytið. Það hefur enn sem komið er einum ráðuneytistjóra (secretary) á að skipa, karlmanni með kvensál, ef að líkum lætur, Tim Richardson.

Jacinda Allen, forsætisráðherra, segir tilganginn vera að „gera Viktóríuríki öruggt fyrir konur og börn“ og slá varnagla gegn „harmþrungnum dauðdaga kvenna í ríkinu af völdum karla.“

Nýlega voru í alríkisþinginu samþykkt lög gegn kúgunarstjórn karla á konum (coercive control). Þetta hlýtur Hanna Björk að fræða bifvélavirkjapiltana um. Íslenskir kvenfrelsar á Alþingi hljóta að girða sig í brók og bæta gagngerum lögum í safnið.

Það þarf varla að vekjast í vafa um, að meginstefið í tyftuninni í Ástralíu verði frábrugðið því, sem ungu drengirnir í Borgarholtsskóla þurfa að þola; konur búa við kúgun karla og svo hefur verið frá upphafi vega. Kvenfrelsunarvísindamenn við æðri menntastofnanir leita stöðugt að nýjum tilbrigðum við þessa kúgun.

En það eru líka til alvöruvísindi. Janice Fiamengo er meðal þeirra, sem bent hefur á niðurstöðurnar: Alið er kerfisbundið á karlfæð í samfélaginu. Ofbeldi karla er stöðugt í fréttum, ofbeldi kvenna síður. Þegar svo ber undir, er jafnan reynt að réttlæta það með skírskotun til kúgunar karla.

Sé konum gerð refsing er hún venjulega mildari, en ef um karlmann væri að ræða. Það eru mörg óhugnanleg dæmi um ofbeldi mæðra, t.d. konan í Texas, sem lét soninn kveðja föður sinn í upptöku, en skaut hann síðan í höfuðið.

Janice bendir á, að tæplega annan hvern dag (1.7) drepur kona reifabarn í Bandaríkjunum, oftar eigið barn en annarra. Hún bendir einnig á niðurstöður úr írskri (kvenfrelsunar)rannsókn. Þar segir, að við rannsókn á stöðu mála í 33 löndum hafi komið í ljós, að mæður voru gerendur í 55% tilvika, þegar um morð á börnum undir 18 ára aldri (filicide) var að ræða. Í þrettán löndum voru mæður gerendur í 72% tilvika, þegar um kornabörn var að ræða, þ.e. börn á fyrsta ári (infanticide) og í sama fjölda landa voru þær einar um að drepa nýbura (neonaticide).

Kvenfrelsunarstefin eru þessi: „… í raun er konum refsað tvisvar fyrir afbrot sín – hið fyrra sinnið fyrir að brjóta lög og í hið síðara sinnið fyrir að hegða sér á skjön við boð um hegðun kynjanna.“ Og: „Karlar hafa tilhneigingu til að beita ofbeldi til að öðlast yfirráð, konur beita því dæmigert til að verjast í vök.“

Hvernig ætli þetta verði matreitt fyrir bifvélavirkjadrengina í Borgarholtsskóla? Ætli þeim verði líka kennt um alþjóðlegan baráttudag karla eða um kynbundinn samúðarklyft (gender empathy gap day) eða alþjóðlegan geldingardag karla?

Janice segir: „Þegar litið er til refsinga stafar [samúðar]klyfturinn af því, að allir – þar með taldir saksóknarar, dómarar og kviðdómar – hafa tilhneigingu til að trúa því, að afbrotakonurnar láti stjórnast af öðrum en sjálfum sér, venjulega karlmönnum. Þeim sé þröngur stakkur skorinn um valkosti vegna fátæktar, misnotkunar í æsku, geðveiki eða fíknar. Við hikum við að taka barn úr umsjá móður, en það vekur ánægju að senda feður í fangelsi.“

Kynjafræðinámsefni: https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304388 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304389 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304390 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304391 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304392 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304393 ---------- Kvenfrelsunarvísindi: https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304054/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304394 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2279128/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2279802/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2279804/ ------ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2287270/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2287317/ https://kjarninn.is/skodun/2018-05-08-fodurleysi/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304397 https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/KYN2A05.pdf?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR21cQAmz643cTa-7p_sy4msMRIwpkrz1sj_zVLyWXKbyN08WMt-x9CDMic_aem_oNfYKN197qOIMwG67Rpfsw https://www.visir.is/g/202020251d/slaemar-stelpur https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304383 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2261748/ https://www.visir.is/g/20212110487d/-hvad-i-fjandanum-er-eg-ad-gera-i-kynjafraedi-?fbclid=IwAR13CMeuJYwln9efG4yoz5VuidVePcXpcSof-8gwtQr0hFNmhrQNxOwcFMY https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/08/13/gagnrynir_ksi_og_bendir_a_frasogn_af_hopnaudgun/ https://www.dv.is/frettir/2021/08/30/naermynd-hver-er-thessi-hanna-bjorg-vilhjalmsdottir/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304382 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2262164/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/35255182/ https://www.premier.vic.gov.au/statement-premier-126 https://psycnet.apa.org/record/2019-14080-005 https://winteroak.org.uk/2024/07/22/truth-reality-tradition-and-freedom-our-resistance-to-the-great-uprooting/ https://fiamengofile.substack.com/p/july-11th-is-gender-empathy- gap-day?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=146512126&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://fiamengofile.substack.com/p/everyone-agrees-that-the-murder-of?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=146110157&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=e_tltm2FTUU https://womensagenda.com.au/latest/a-nation-first-jacinta-allan-announces-new-parliamentary-secretary-role-to-change-mens-behaviour/ https://bettinaarndt.substack.com/p/women-are-great-at-coercive-control?utm_source=post-email-title&publication_id=448263&post_id=146458852&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Skortir börn karlmennsku?

Frá örófi alda hefur það tíðkast um víða veröld, að karlar og konur hafa sinnt uppeldi ungviðisins. Það má einu gilda, hvort um sé að ræða hin eða þessi afbrigði móðurvelda eða föðurvelda í mannfræðilegum skilningi hugtakanna. Karlar hafa vitaskuld kennt bæði stúlkum og drengjum, hvað í karlmennsku fælist, verið báðum kynjum fyrirmynd. Karlmennskan hefur endurspeglast í dæmigerðum karlhlutverkum.

Frá upphafi mannkyns er allt sem bendir til, að karlmenn hafi að miklu leyti annast veiðar, jarðyrkju, varnir, hermennsku og flest það, er lýtur að málefnum utan fjölskyldunnar, þ.e. stjórnun og ytri samskiptum, stjórnmálum. Fram á okkar daga hafa karlmenn verið í meirihluta meðal listamanna, fræðimanna og vísindamanna. Einkum meðal listamanna hefur hin karlmannlega mýkt og blíða fundið sér farveg í ástaróði til náttúrunnar, fósturjarðarinnar, hins góða og fallega, til konunnar; mæðra, dætra, eiginkvenna, frilla og ástkvenna.

Stundum er talað um hina indó-evrópsku frumgerð karlmennskunnar. Góður karl sýnir gjöfli og hugprýði. Karlinn verndar konur og börn og sér þeim farborða. Honum er annt um heiður og forðast smán. Helgi Þorláksson, sagnfræðingur, lýsir hinu íslenska afbrigði til forna svo: “Allir frjálsir karlar urðu að vera undir það búnir að bregðast við hvers kyns áreitni og máttu ekki sýna nein veikleikamerki, vildu þeir halda heiðri óskertum.”

Þráinn Bertelsson, rithöfundur, lýsir svipuðum gildum karlmennskunnar um miðja síðustu öld: „Ég lærði smátt og smátt nokkur undirstöðugildi karlmennskunnar. Maður átti að vera kaldur, það er svipað og hugprúður í fornsögum, hæfilega fámáll eða orðvar, og umfram allt átti maður ekki að láta sér bregða við sársauka eða óþægindi og fara að grenja. Grenjuskjóður voru lítils metnar.“

Þráinn lýsir hér eins konar karlmennskuvígslu, en þær hafa einkennt uppeldi drengja frá upphafi vega og verið í umsjón karlpeningsins, einkum feðra, móðurbræðra og afa. Þeim eru kenndar listir kynbræðranna, færni þeirra og hlutverk. Þjálfunin getur falið í sér voðalegar þrautir og svaðilfarir. Stundum eru drengirnir einir síns liðs í bráðhættulega umhverfi eða stunda voveiflegar íþróttir og veiðar. (Vígsla stúlkna er einnig þekkt meðal fjölmargra kvenveldisþjóða Vestur-Afríku. Þar sjá reyndar konur um vígsluna.)

Þráinn var litinn hornauga fyrir að brynna músum, sem væntanlega hefur valdið honum hugarangri, en afleiðingarnar voru oft og tíðum miklu þungbærari, klikkuðu drengir í karlmennskunni. Mæður fnæstu að smánuðum sonum sínum og snéru baki við þeim, sem voru liðleskjur við veiðar. Ótti karla við að bregðast væntingum fann sér sums staðar farveg í goðsögnum og trúarbrögðum; sbr. djöflagyðjuna fjöllimuðu og karlgráðugu, sem nauðsynlegt var að nálgast með kurt og pí, og töfrandi og tælandi kvendjöfulinn, sem vond hafði áhrif og heimtaði fæðu.

Breyttir atvinnu- og lífshættir í menningu vorri hafa að sumu leyti skekkt ofangreinda mynd. Góðu heilli fjölgar listamönnum og fræðimönnum af kvenkyni, en illu heilli hverfa karlmenn úr stéttum, er sinna uppeldi, heilbrigðis- og félagsþjónustu. T.d. virðast ljósfeður gersamlega horfnir og eru yfirsetufræði nú kölluð ljósmóðurfræði. Karlmannsleysið er sérstaklega áberandi í uppeldi. Konur eru nær einráðar á þessum sviðum, þ.e. á uppeldisstofnunum og heimilum. Uggvænlega stór hluti barna hefur hvorki náin kynni af föður né föðurígildi. Við búum börnum því uppeldi, sem áður er lítt þekkt í sögu mannkynsins. Sú spurning hlýtur að vakna, hvort hið nýja uppeldisfyrirkomulag skipti máli og hvernig.

Ofstopakvenfrelsarar fagna nýrri uppeldisöld. Þeir hafa löngum viljað karlmennskuna feiga. Svipaða skoðun virðist Ingólfur Ásgeir Jóhannesson aðhyllast. Sá ágæti fræðimaður við Háskóla Íslands hefur fjallað um karlmennsku og jafnrétti. Hann efast um gildi karlkennara „Ég tel að við séum ekki mikið betur sett með leik- eða grunnskóla með fleiri körlum í hópi starfsfólks ef þeir eru ógagnrýnir á hefðbundna karlmennskuímynd ..., hvort sem það er í formi verkaskiptingar eða annarrar kynlægrar hegðunar eða viðhorfa.“

Ég hlýt að taka undir með Ingólfi, að sjálfsgagnrýni sé af hinu góða. En ekki er að sjá, að slíkar kröfur séu gerðar til kvenna. Það gæti jafnvel verið móðgun við kvenkennara að efast um hæfni þeirra til að kenna karlmennsku. Ingólfur hefur „lagt áherslu á að með því að líta á karlmannsleysi í kennaraliði og starfsliði skóla sem sérstakan vanda sé gert lítið úr starfi kennslukvenna og hæfni þeirra til að kenna börnum af báðum kynjum.“

Djúpt er tekið í árinni. Ingólfur varar við kynbræðrum sínum: „Verði á annað borð rekinn opinber áróður fyrir því að fjölga kennslukörlum í leik- og grunnskólum ætti líklega að byrja á því að útbúa vinnureglur fyrir kennslukarla og leiðbeinendur um hvers konar hegðun gagnvart börnum sé eðlileg.“ Ætli felist í þessum orðum Ingólfs sú hugsun, að hegðun kvenna gagnvart börnum sé eðlilegri en hegðun karla? Nú kastar tólfunum í málflutningi Ingólfs: „Ekki verður undan því vikist að nefna þá hættu að einhliða áróður fyrir nauðsyn fleiri kennslukarla verði til þess að kynferðisglæpamenn sæki í að gerast kennarar eða leiðbeinendur ungra barna.“

Ætli Ingólfi sé ókunnugt um kynferðisglæpi kvenna gegn börnum? Hvert ætli þær leyti? Allavega varar hann ekki við konum, eftir því sem ég best fæ séð. Ingólfur sækir innblástur til ástralsks kvenmenntunarfræðings, Glenda MacNaugton að nafni. Glenda „leggur áherslu á nauðsyn þess að kennarar tileinki sér femínisma til að þeir skilji almennilega mikilvægi kyngervis [kynferðis] í lífi og námi barna frá ungum aldri. Undir það tek ég; við verðum að skilja áhrif orðs og æðis okkar sem kennara á kyngervi og kynjahugmyndir nemenda okkar. ... [L]ögð [er] áhersla á að almenn kynjafræði og sérstaklega femínismi fái að hafa meiri áhrif á menntastefnu samfélagsins og starf skóla á öllum skólastigum.“

Vitaskuld tek ég undir áherslu Glendu og Ingólfs um nauðsyn þess að gera sér grein fyrir áhrifum kennara á ungviðið og kynferði þeirra sérstaklega. En ég efast um gildi þess að innræta börnum þá grunnhugmynd kvenfrelsara, að karlar séu illir og sitji um konur í feðraveldi sínu til að nauðga þeim, hrella og hefta á alla lund.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband