Forystumenn Vesturlanda eru stöðugt sauðdrukknir af stríðsveigum. Stríðsórar gera þá að berserkjum. Það á vissulega við um þá norrænu.
Þrátt fyrir friðarvilja almúgans ætla þeir í stríð og bíta í skjaldarrendur eins og berserkirnir forðum. Áður en til skarar er látið skríða þarf að hrella kjósendur, búa til óvin og vopnvæðast. Og hver ætli hann sé?
Sænski Úlfurinn bendir í austur eins og Svíum er tamt. Mette minnkabani Frederiksen segir í sambandi við öll flygildin, sem flögrað hafa yfir Danmörku (og nokkur voru send yfir Kattegat og Skagerak):
Við höfum ekki sannanir fyrir því, að Rússar valdi, en okkur er kunnugt um, að Rússar eru stærsta ógnin, sem vofir yfir Evrópu. (Mette er greinilega illa að sér í landafræðinni.)
Þetta sögðu leiðtogarnir líka, þegar Bandaríkjamenn í vitorði með Svíum og Dönum, sprengdu upp gasflutningsæð Rússa og Þjóðverja í Eystrasalti.
Eystrasaltið skal verða Nató-salt, í lofti og legi eins og Svartahaf Natóhaf. (Þetta er í fullu samræmi við leyniskýrslu Rand stofnunarinnar: Veikja Þýskaland, styrkja Bandaríkin frá 2022 (Weakening Germany, Strengthening the U.S.)
Eistar hafa þegar stækkað flugeftirlitssvæði sitt og saka Rússa um að þrengja sér inn í það. Áætlanir hafa þegar verið gerðar um hernað gegn Kalingrad millum Póllands og Lithaugalands (Litháen).
Sænski alþjóðarýnirinn, Jan Öberg, skrifar um flygildatækni Úkraínumanna. Hann telur þá hafa náð lengra en Rússa, framleiði um 200.000 á mánuði. Framleiðendur, sem Rússar eru vafalaust að eltast við í Vestur-Úkraínu, eru um hálft þúsund. Danir hafa verið hjálplegir í biðinni eftir langdrægum eldflaugum.
Danir þjálfa úkraínka flygildisflugmenn á gömlum flugvelli í Værlöse. Framtakið er fjármagnað af Vesturlöndum (International Fund for Ukraine). Stykkið kostar um eina og hálfa milljón danskra króna. Helsti framleiðandi er Norrænir vængir (Nordic Wing). Í Værlöse eru líka þjálfaðir flugmenn og flugvirkjar fyrir F-16.
Það gæti haft við rök að styðjast, að leitað sé langt yfir skammt að drónadónunum.
Rússafjandarnir treysta böndin. Svíar og Pólverjar gera varnarsamning til viðbótar þeim, sem þeir hafa gert við Breta og Bandaríkjamenn - og Natóríkin öll að sjálfsögðu.
Það er tal manna, að nú skuli skjóta niður rússneskar herþotur og varpa kjarnorkusprengjum á Rússa. Sú hugmynd á rætur aftur til Bandaríkjanna skömmu eftir annan áfanga heimstyrjaldarinnar.
En draumurinn um að leggja rússneska björninn að velli er margra alda gamall. Þátttaka Íslendinga kynni að skipta sköpum í þetta sinn.
Það er varla blöðum um það að fletta, að Nató undirbýr stríð við Rússa; sálhernaðurinn gegn eigin þegnum er þaulhugsaður, herirnir eru elfdir, og innviðir eins og sjúkrahús undirbúnir. Skattgreiðendur eru skelfdir til að auðvelda stríðsskattheimtu.
Í ljósi þess, sem að framan er sagt, landvinninga Nató í stjórnkerfi Moldóvu við kosningasigur Maia Sandu og hernaðaruppbyggingar í Rúmeníu og Ódessa, má líklegt teljast, að þar muni krauma á landi og láði, samtímis hernaði í lofti um alla víglínuna.
https://www.voltairenet.org/article221421.html https://www.globalresearch.ca/europe-myth-russian-nemesis/5901413 https://korybko.substack.com/p/ukraine-is-at-the-center-three-interlocking?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=174898335&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/09/moldovas-pro-eu-parti-vant-ved-manipulasjon-og-eu-innblanding/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=moldovas-pro-eu-parti-vant-ved-manipulasjon-og-eu-innblanding https://expose-news.com/2025/09/30/french-interference-moldova-elections-exposed/?utm_medium=email&utm_source=es https://steigan.no/2025/09/absurd-valgsvindel-i-moldova/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=absurd-valgsvindel-i-moldova https://restmedia.io/eus-dirty-deal-propping-up-maia-sandus-iron-fist-and-smashing-moldovas-democratic-illusion/ https://steigan.no/2025/08/moldova-ukonstitusjonell-maktovertakelse-for-valget-i-2025/ https://www.youtube.com/watch?v=cxJrYiwsMUo https://www.voltairenet.org/article218068.html https://korybko.substack.com/p/the-first-ever-polish-swedish-joint?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=174807381&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=e-zZNM8gi50&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=1 https://nyheder.tv2.dk/samfund/2024-03-01-ukrainske-dronepiloter-traener-paa-nedlagt-flyvestation-i-danmark https://steigan.no/2025/09/ikke-la-deg-lure-andre-kan-ha-mer-interesse-av-a-sende-droner-til-norden-enn-russland/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=ikke-la-deg-lure-andre-kan-ha-mer-interesse-av-a-sende-droner-til-norden-enn-russland https://michaeltsnyder.substack.com/p/9-signs-that-the-united-states-and?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=174888664&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021