Bólusetningablessun: Tvíburafaraldur einhverfu og hraðkrabba - Paracetamol (Tylenol - acetaminophen)
Umræða um bólusetningar eru enn litnar hornauga af heilbrigðisyfirvöldum og þeim, sem trúa yfirvöldum eins og Biblíunni. Þó virðist hilla undir breytingar. Youtube virðist til að mynda sjá að sér og með nýjum heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, Robert Kennedy, kom nýr andblær í Ráðuneyti heilbrigðis og almannaþjónustu (Department of Health and Human Services HHS).
Það ber ekki á öðru, en að Róbert geri sér far um að taka til í heilbrigðisgeiranum. T.d. var forstýra CDC (Heilsugæslustöðva Centers for Disease Control and Prevnention), Susan Monarez, rekin úr starfi.
Hún mælti með bólusetningum ungbarna svo heiftarlegum, að þau fá í sig um 25 taugaeiturefni á fyrsta aldursári. Í nafni lýðheilsu fá börn um 70 bólusetningar, áður en yfir lýkur, stundum fjórar í einu. Það sýndi sig, að forstjórinn brottrekni var á mála hjá lyfjafyrirtækjunum.
Nýlega hélt Róbert blaðamannafund ásamt forseta sínum. Þar var m.a. varað við því, að þungaðar konur neyttu Paracetamóls, sem er algengt verkjalyf, oft og tíðum notað gegn sótthita einnig hjá börnum.
Íslenska heilbrigðisráðfrúin, Alma Möller, var fljót til að mæla starfsbróður sínum í mót. Sagði ekkert geta hnikað sannfæringu íslenska læknasamfélagsins. Aukin heldur bar hún Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, fyrir því, að Paracetamol væri öldungis meinlaust og gagnlegt eins og covid-19 bóluefnin.
Upplýsingaóreiða staðhæfa forystumenn íslenska heilbrigðiskerfisins. Svo bendir Alma á, að Robert Kennedy sé umdeildur maður. En sjálf er hún óumdeild valkyrja heilbrigðismála á Íslandi.
Nicolas Hulscher, faraldursfræðingur við Mccullough stofnunina í Bandaríkjunum, er ósammála Ölmu og Rúnu.
Hann bendir m.a. á þetta: Paracetamol, sem ósjaldan er gefið við sótthita í kjölfar bólusetninga, bæði hjá þunguðum konum og kornabörnum, yfirgæfir afeitrunarviðleitni líkamans og bælir eða veikir þannig viðspyrnu/ónæmisviðbrögð við öðrum eiturefnum eins og áli í bóluefnunum. Það getur valdið skemmdum í miðtaugakerfi (heila), sem beint eða óbeint valda einhverfu. Tíðni einhverfu hefur aukist skelfilega.
Það liggur fyrir fjöldi rannsókna (þótt Alma viti ekki um þær) um 100 - sem benda til samhengis milli taugaþroskasjúkdóma (einhverfu autism) hjá börnum og bólusetninga. Dýrarannsóknir gefa svipaðar niðurstöður.
Aðrar rannsóknir benda til sambands bólusetninga barna við asma og skyndidauða hvítvoðunga (Sudden Infant Death Syndrome). Eitrun, sem berst milli kynslóða, kynni að skýra umframdauðsföll meðal nýbura á þessu Herrans ári.
Tony Rogers, sem hélt áhugavert erindi fyrir bandaríska þingmenn, er sérstaklega áhugavert: https://x.com/newstart_2024/status/1965495998232338696?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1965495998232338696%7Ctwgr%5E2c507335fe3b8f90c644340ed4b620c8081e6ce2%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Ftvillingvaksineepidemiene-autisme-og-turbokreft%2F
Niðurstaða Tony, eftir grandskoðun á rúmlega eitt þúsund rannsóknum, er þessi:
Einhverfa og faraldur langvinnra sjúkdóma (chronic disease epidemics) orsakast fyrst og fremst af eiturefnum, að mestu leyti úr bóluefnum og um það bil tylft annarra eiturefna.
Margir eiga um sárt að binda vegna lækninga og lýðheilsuframtaks yfirvalda, ekki síst vegna krabbameins, sem birtist eins og skrattinn úr sauðarleggnum, greinist oft á fjórða stigi, og drepur hratt.
Eitt fórnarlambanna er krílið Calum frá Kanada. Hann reynir af veikum mætti að brosa gegnum (bóluefna)tárin. Krabbinn er að eta upp heila hans. Hraðkrabbinn (turbo-cancer) hlífir engum.
https://thehill.com/policy/technology/5517922-youtube-reinstates-banned-creators/ https://blog.maryannedemasi.com/p/exclusive-fda-lab-uncovers-excess https://www.globalresearch.ca/red-alert-issued-excess-deaths-skyrocketing-covid-vaxxed-children/5876292 https://www.globalresearch.ca/covid-mrna-vaccine-injury-turbo-cancer-4-months-old-canadian-baby/5876297 https://steigan.no/2025/09/sjokkerende-innrommelse-vaksinene-ble-aldri-testet-for-dna-fragmenter/ https://x.com/newstart_2024/status/1965495998232338696?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1965495998232338696%7Ctwgr%5E2c507335fe3b8f90c644340ed4b620c8081e6ce2%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Ftvillingvaksineepidemiene-autisme-og-turbokreft%2F https://x.com/NicHulscher/status/1965416435867390088?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1965416435867390088%7Ctwgr%5Ecf22ed0643911308501a9a892b519d3b417cf7fb%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Ftvillingvaksineepidemiene-autisme-og-turbokreft%2F https://www.thefocalpoints.com/p/breaking-first-population-wide-study?utm_source=publication-search https://www.thefocalpoints.com/p/the-twin-vaccine-epidemics-autism?hide_intro_popup=true https://forumgeopolitica.com/article/all-disinformation-how-the-state-interferes-with-freedom-of-expression-and-freedom-of-the-press https://expose-news.com/2025/09/28/moldova-elections-today-more-important-than-you-think/?utm_medium=email&utm_source=es
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021