Dansað við djöfulinn í Hruna. Moluk og Zaraþústra

Nú er dansað dátt í höllu Síonfasistanna um heim allan. Þeir íslensku dansa af gleði eins og dansað var í Hruna forðum. (Ég skýt þeirri hugmynd að söfnuðinum að bjóða Lindey Graham til dansmessu. „Game on, pray for Israel,“ sagði hann.)

Það er von, að Síonistar dansi og dufli. Leyniþjónusta Ísraela, Mossad – í samvinnu við starfssystur sínar í leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), Bretlands (MI6) og Úkraínu (SBU) – ásamt með stuðningi Frakka og Þjóðverja, hefur enn á ný afrekað slíkan djöfulskap, nú í Íran, að bærilega heilbrigt fólk hlýtur að drúpa höfði í sorg.

Leyniþjónustur Vesturlanda (Nató) virðast hafa samhæft njósnir, undirróður og aðferðir við ódæðis- og hryðjuverk. (Ísrael er ekki einasta talið Evrópuríki í Söngvakeppninni, heldur líka á hernaðarsviðinu.)

Árásin á Íran var vandlega undirbúin eins og árásin á Írak á sínum tíma, svo og árás Nató langt inn í Rússland. Það var nauðsynlegt að ná yfirráðum yfir lofthelgi Sýrlands. Það var gert í samvinnu við Tyrki (Nató).Lofthelgi Jórdaníu er Ísraelum opin, enda leppriki Bandaríkjanna eins og furstadæmin við Persaflóa, sem leyfðu afnot af herstöðvum Bandaríkjanna.

Lofhelgi Íraks er á valdi Bandaríkjanna, þar til í september. Bretar veittu aðgang að herstöð sinni á Kýpur. Það ber ekki á öðru, en þar sé að finna skjól fyrir orrustuvélar Ísraels undir árásum Írana á flugvelli í Ísrael. Þýskar flugvélar hafa líka sést á sveimi.

Því skal ekki neitað, að samvinna Bandaríkjanna (tækniauðjöfranna í hirð Donald Trump) og Ísraela á sviði njósna, eftirlits og gervigreindar, gerir það að verkum að þeir eflast af allri dáð í drápsdjöfulskapi sínum eins og dæmin hafa sannað í stríði þeirra gegn Palestínumönnum, Líbönum og Sýrlendingum.

Við nánari eftirgrennslan hefur þó komið í ljós, að um hefðbundin sprengjutilræði hafi einnig verið um að ræða í skyndiárásinni um daginn, þegar netárás (cyber attack) var gerð á eldflaugavarnarkerfi Írana. Því var slegið út í átta klukkutíma eða svo.

Samningsgildran, sem Íranar voru teymdir í, var þó algert meistarastykki eins og þegar Rússar og Austur-Úkraínumenn undirrituðu Minsk samningana, sem Öryggisráðið og Nató (Þýskaland, Frakkland) ábyrgðust.

Svo lést Dónaldur Jón vera spældur út í Bensa-barnamorðingja, fordæmdi fautaskap forvera sinna, þáði tilboð Arabaþjóða um fjárfestingar og dávænar fúlgur fjár handa sjálfum sér. Veröldin skyldi halda, að hann væri orðinn afhuga Síonistahluthöfum sínum og Ísrael.

Samtímis þessu sjónarspili var gjörspillt Alþjóðakjarnorkuráð (International Atomic Energy Commission) látið greiða atkvæði um skýrslu, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu, að Íranar hefðu brotið gegn ákvæðum samnings um útbreiðslu kjarnorkuvopna (non-proliferation treaty). Ráðið liggur líka undir grunsemdum um njósnir fyrir Ísrael, sem myrti átta kjarnorkuvísindamenn Írana, til viðbótar almennum borgurum og herforingjum.

Gvöð, hvað þú ert „bjútífúll“ sagði Dónaldur Jón við spegilmynd sína þann örlagaríka morgun og þóttist enn vilja gera betrun og yfirbót vegna riftunar fyrri samnings um kjarnorkuvopn og semja á ný.

Samtímis raupinu í honum og hinum fasteignasalanum, Steve Witkoff, lagði hann sem sagt, þ.e. leyniþjónustan og herinn, á ráðin um sams konar aðgerð í Íran og áður hafði verið framkvæmd í Rússlandi.

Bandaríkin styrktu einnig stöðugt herafla sinn í námunda við Íran og B52 stórsprengjuflugvélar þeirra bíða átekta í Diego Garcia herstöðinni. Bandaríkjamenn og fleiri Natóríki (t.d. Ítalir og Þjóðverjar) senda Ísraelum vopn.

Hinn hausinn á Tvíhöfða þursinum, Bensi-barnamorðingi, skyldi nú loksins sjá fjörutíu ára draum Ísraels og Bandaríkjanna rætast, stjórnarbyltingu í Íran, og fleiri launmorð. Beitt var sams konar bragði og í Írak, forðum daga; ásökun um yfirvofandi beitingu gereyðingarvopna. Gjörspillt eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna, samdi ruglskýrslu um brot Írans á alþjóðasamningum eins og áður var imprað á.

Þetta sagði Dónaldur Trump, sem hefur endanlega misst allt niður um sig, svo Jeffrey Epstein eða Lólítuhreðjatak Mossad blasir við:

„Ég gaf Íran endurtekið tækifæri til samninga. Ég tjáði þeim tæpitungulaust; „gangið umyrðalaust til samninga.“ En það mátti einu gilda, hversu mjög þeir lögðu að sér og hversu nærri lá undirritun. Þeir heyktust.

Ég gerði þeim grein fyrir, að svo færi sem horfði, ættu þeir yfir höfði sér meiri skelfingar en þeir gætu gert sér í hugarlund. Þeir voru líka upplýstir um, að Bandaríkin framleiddu langtum betri og banvænni vopn en nokkur annar í heimi hér. Þau væru óviðjafnanleg og Ísraelar kynnu að beita þeim og ættu nægar birgðir og miklu meira væri á leiðinni.

Í Íran voru nokkrir, sem töluðu digurbarkalega. En þá grunaði ekki, hvað í vændum var. Nú eru þeir allir dauðir. Og enn harðnar á dalnum.

Nú þegar hefur ringt eldi og brennisteini [yfir Íran], en enn þá gefst tóm til að ljúka þessari slátrun, hún mun aukast enn og verða miklu hrottalegri. Þess vegna verða Íranar að haska sér til samninga, áður en þeir verða máðir út og bjarga þannig Íranska stórveldinu. [Bjálfinn á líklega við Persíu hina fornu.] Forðist frekari dauða og eyðileggingu, gerið gangskör [til samninga], áður en það verður um seinan. Guð blessi ykkur öll.“

Þessi hraksmánarlegi hræsnari og böðull sagði í viðtali, að samningamenn Írana hefðu verið ráðnir af dögum; þeir drápust hvorki af flensu né covid, sagði hann kankvíslega.

Síðasta viðbótin við fasistahjal hins nýja keisara heimsbyggðarinnar er:

„Íranar hefðu átt að undirrita samninginn, sem ég lagði að þeim að undirrita. Hvíklík skömm og fórnir mannslífa. Skorinort; Íranar skulu ekki komast yfir kjarnorkuvopn. Ég hef marglýst því yfir. Allir ættu að flýja Teheran.“

Í Teheran búa um sextán milljónir villuráfandi sálna. Trúlega er um helmingur þeirra kvenkúgarar. Ísraelska ríkisstjórnin segist ætla að brenna Teheran til grunna og Pakistanar ýja að því að senda Írönum kjarnorkuvopn sem svar við kjarnorku- og efnavopnum Ísraela. Það er fjör!

Andspyrnuhreyfingin og stjórnvöld í Írak hafa lýst yfir, að þau muni ekki sitja hjá í þessu stríði, Persaflóaríkin sverja af sér alla ábyrgð, en Kínverjar virðast birgja Írana upp af hergögnum og Rússar hafa tekið af öll tvímæli um stuðning við bandamenn sína. Í stærra samhengi má skoða árásir Vesturveldanna (alheimsauðvaldsins) á Rússa og Íran sem aðför að BRICS+.

Það er beinlínis átakanlegt, að öryggi heimsins barna sé undir geðbiluðum, tvihöfða þursi, Síonfasistunum, Benjamin Netanyahu og Donald John Trump, komið. Þeir eru reknir áfram af gengdarlausri græðgi eftir völdum og auðæfum með skírskotun til ofstækisfullra túlkana á Gamla testamentinu (Hebresku bíblíunni).

Áður dýrkuðu hinir fornu Gyðingar/Ísraelsmenn guð illsku og blóðfórna, Molok (Moloch, Molech), með því að fórna börnum. Gamla testamentið skammar konunga Júdeu, Ahaz (732-716), Manasseh (697-643) og sjálfan Salómon (970-931) fyrir slíkt háttalag.

Nú eru börnin skotin og sprengd í loft upp til dýrðar Molok og ísraelskum börnum kennt að hata börn í Palestínu. Þeim er enn kennt, að þau séu ofurbörn, sem ekki megi samlagast öðru fólki af þeim sökum. Í jólasöngvum sínum syngja þau t.d. óð til Ísraelska varnarhersins, sem drepur Palestínumenn. (Mæli í þessu sambandi t.d. með heimildarmyndinni: „Israelism.“ (https://www.youtube.com/watch?v=Z7E13ODKsA8)

Það er svo sem ekki að furða, að verulegur hluti Ísraelsmanna styðji – að bestu og kunnugustu manna yfirsýn, studd könnunum – útrýmingu Gazabúa og fari í mótmælagöngur til stuðnings nauðgurum.

Menn, þjóðir, ættbálkar, velja sér guði – eða guðlegar útleggingar - samkvæmt innræti sínu og hagsmunum. Samkvæmt skilningi Douglas Reed (1895-1976) (The Controversy of Zion);

Afkomendur Levi Jakobssonar og Leu, hinir landlausu Levítar (ættstofn Levi), töldu sig yfir aðra afkomendur Jakobs og barnsmæðra hans (Rakel, Bila og Zilpa) hafna. Prestar þeirra (af ætt Arons) lögðu grundvöll að hebresku Bíblíunni (Gamla testamentinu).

Ættfaðir Gyðinga, Abraham og afi Jakobs, fæddist í Ur í Mesópótamíu (Írak). Þaðan kom líka amma hans, Sara. (Það er athyglivert, að Jakob giftist náfrænku sinni, dóttur Laban, sem var bróðir Rebekku. Rachel fæddist líka í hinni fornu Mesópótamíu (nú norður Sýrland eða Tyrkland) í borginni, Haran. Hún var einnig náskyld eiginmanninum, Ísak, bróðurdóttir Abrahams.)

Í hinu sérstaka afbrigði eða skrumstælingu Gyðingdóms Levíprestanna er rík áhersla lögð á guðlegan rétt þessa ættstofns til yfirgangs, ofbeldis og einangrunar. Illska og hefndarþorsti er áberandi.

Þetta er í aðalatriðum sá stofn, sem m.a. Persar herleiddu og Rómverjar tvistruðu um Miðausturlönd og löndin umhverfis Miðjarðarhaf. (Svokallaðir Spánargyðingar (Sephardic Jews) voru trúlega öflugasti hópurinn og átti nána samvinnu við arabíska drottnara á sunnanverðum Spáni.) Hinir ellefu ættstofnarnir (afkomendur sona Jakobs) samlögðust fólki í heimshlutanum. Þá sleppir Douglas Reed.

Samanburður við trúarspeking Persa (Írana) gæti verið forvitnilegur, nú þegar Ísraelar og Bandaríkjamenn (Nató) hafa gert árás á Írana til að steypa stjórn þeirra af stóli (aftur) til að frelsa konur, kenna lýðræði og mannréttindi – en eiginlega til að komast yfir auðlindir þeirra. (Kjarnorkuvopnin eru yfirvarp eins og efnavopnin í Írak fyrir aldarfjórðungi síðan) og 9/11 fyrir „stríðið gegn hryðjuverkamönnum“ í Vestur-Asíu.)

Hinn forni Guð Persa, Zaraþústra, sem þrátt fyrir Múhammeðstrú landsmanna, á djúp ítök i sálu þeirra, latti til stríðs eins og allir góðir guðir, en bauð þeim þó að verja hendur sínar.

Andleg og siðferðisleg stríð taldi Zaraþústra nauðsynleg. Það gæti verið skýringin á því, að Íranar eru seinþreyttir til vandræða og hafa engin stríð háð um áratugi, nema það, sem Írakar (og Bandaríkjamenn) háðu gegn þeim. Persía eins og Afganistan eru sögulega kunn sem kirkjugarðar heimsvelda. Nú þarf að taka stóra gröf fyrir Samrunaheimsveldið, meðan hrundansinn er stíginn.

Orð sonar John Adams (1735-1826), forseta Bandaríkjanna, stjórnvitringsins, John Quincy Adams (1867-1848), sem líka var forseti Bandaríkjanna, gætu þjónað sem grafskrift. Hann kvengerir Bandaríkin í ræðu 4. júlí 1821 og segir: (Ég leyfi mér að láta gervigreindina um að þýða, lítillega lagfært.)

„Hún [bandaríska fjallkonan] fer ekki utan til að leita að skrímslum til að tortíma. Hún veit vel að með því einu að ganga undir öðrum fána en sínum eigin — jafnvel þótt það væru fánar erlends sjálfstæðis — myndi hún flækja sig í óleysanlegan vef allra þeirra stríða sem snúast um eiginhagsmuni og ráðabrugg, græðgi einstaklinga, öfund og metnað sem taka sér frelsislitina og stela merki frelsisins. Grundvallarstefnur hennar í stjórnmálum myndu smám saman breytast úr frelsi í vald. Ljóminn á enni hennar myndi ekki lengur geisla með óræðri dýrð frelsis og sjálfstæðis, heldur yrði í staðinn sett keisarakóróna sem glitrar í fölskum og flekkuðum ljóma, dimmum geislum drottnunar og valds. Hún gæti orðið drottningarvaldið yfir heiminum — en hún væri ekki lengur drottnari eigin anda.“ (Krýning Dónaldar Jóns gæti verið innan seilingar.)

Þess má til fróðleiks geta, að Zaraþústra átti aðdáun Jóns Þorlákssonar. Jón stofnaði Sjálfstæðisflokkinn, sem er löngu horfinn í aldanna skaut. Þar hafa hreiðrað um sig herskáustu eintök Íslendinga og þar þrífst Síonistakirkjan.

https://glenndiesen.substack.com/p/col-lawrence-wilkerson-from-perpetual?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=166060307&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/there-are-signs-that-us-military?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=166119061&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/donald-trump-doubles-down-on-crazy/ https://steigan.no/2025/06/kilder-usa-vil-ga-inn-i-israels-krig-mot-iran/?utm_source=substack&utm_medium=email https://savageminds.substack.com/p/the-folly-of-a-war-with-iran?utm_source=post-email-title&publication_id=65949&post_id=166138810&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/jeffrey-sachs-us-prepares-to-join?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=166145886&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://responsiblestatecraft.org/israel-iran-war/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=c6c3492c5a&mc_eid=ae33554485 https://www.globalresearch.ca/zenith-western-asymmetric-warfare-iran-ukraine/5891309 https://www.globalresearch.ca/israeli-weapons-of-mass-destruction-a-threat-to-peace-israel-s-nuclear-arsenal/4365 https://steigan.no/2025/06/64-av-israelerne-sier-ingen-uskyldige-mennesker-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email - https://archive.vn/Vl5Kv https://steigan.no/2025/06/iran-med-massiv-gjengjeldelse-mot-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.cbsnews.com/news/iran-israel-drone-attack-retaliation-strikes-on-nuclear-sites-and-commanders/ https://www.kitklarenberg.com/p/hidden-history-how-israel-acquired?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=165902079&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/the-silver-lining-in-the-dark-war-cloud-over-iran/ https://corbettreport.substack.com/p/israel-attacks-iran-an-open-source?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=165911534&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=0oGP6bj1F8Q&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://www.youtube.com/watch?v=Vp91gF8mMvM&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=eX2NDHmfJXw https://www.youtube.com/watch?v=tog35UINyBE https://www.youtube.com/watch?v=CgKlIrXJqY4 https://www.youtube.com/watch?v=TTUpoY-vWA8 https://www.defensenews.com/naval/2017/07/03/netanyahu-on-israel-a-mighty-aircraft-carrier-of-the-us/ https://21stcenturywire.com/2025/06/14/us-secret-missile-shipment-to-israel-before-strike-on-iran/ https://steigan.no/2025/06/israelske-styrker-dreper-103-palestinere-i-gaza-inkludert-21-som-ba-om-hjelp/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.aaronmate.net/p/trumps-pretend-diplomacy-enabled?hide_intro_popup=true https://21stcenturywire.com/2025/06/15/sunday-screening-israels-bomb-a-radioactive-taboo-2012/ https://www.youtube.com/watch?v=522M-pv0qhY https://www.youtube.com/watch?v=7bzgC-alNlo&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=1 https://www.youtube.com/watch?v=Bsm7aMDKLBE&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=AEHK-R1q_1A&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=2 https://www.youtube.com/watch?v=Bsm7aMDKLBE&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=1GUN3Kukb9Q&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=1 https://kucinichreport.substack.com/p/tame-the-rising-lion-before-it-eats?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=166099256&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://savageminds.substack.com/p/eb8a20d5-859b-4210-98f9-435e57a8e744 https://21stcenturywire.com/2025/06/16/despite-us-help-iran-delivers-crushing-blow-to-zionist-regime/ https://www.youtube.com/watch?v=qQHUro6u6Kc https://www.youtube.com/watch?v=Z7E13ODKsA8 https://www.declassifieduk.org/permoid/ https://www.globalresearch.ca/italy-germany-war-front-manlio-dinucci/5891154 https://www.globalresearch.ca/memo-iran-ready-washington-policy/5891033 https://www.globalresearch.ca/israel-attacks-iran-consequences-the-turning-of-the-tables-peter-koenig/5891152 https://sonar21.com/trumps-schizophrenic-middle-east-policy-facilitating-disaster/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.moonofalabama.org/2025/06/lies-used-to-justify-war-on-iraq-get-reused-to-wage-war-on-iran.html https://www.youtube.com/watch?v=9L-A8bx8-X0&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=4 https://beeley.substack.com/p/israel-isnt-a-state-with-an-army?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=166055197&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/vanessa-beeley-following-israels?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=166085741&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://alexkrainer.substack.com/p/trumps-iran-deception-is-it-regular?utm_source=post-email-title&publication_id=1063805&post_id=166061336&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.geopoliticaleconomy.report/p/israel-war-iran-us-trump-support?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=165931477&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


« Síðasta færsla

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband