Mirotvorets og morð í Kænugarði. Oles Buzina

Dr. Knut Erik Aagaard, norskur, rússneskumælandi sálfræðingur – eiginlega fjölfræðingur – hefur skrifað margt áhugavert um norskt samfélag og menningu Slava. Nýjasta þáttaröð hans fjallar um norrænar rætur Rússa og þróun rússneska ríkisins. Fyrsti þáttur ber titilinn, „Væni guttinn Ólafur Tryggvason.“ Afar fróðlegt.

Einn af heimildarmönnum Knúts Eiríks var Oles Oleksiovych Buzina/Buzyna (1969-2015), úkraínskur mál- og sagnfræðingur, sem m.a. hafði skrifað bókina: „Rússar fyrir tíma Kænugarðs.“

Oles hélt því fram, að Rússar, Hvít-Rússar og Úkraínumenn, væru ein og sama þjóðin. Það þóttu ekki góð fræði í Kænugarði, þegar frumstæður þjóðernisrembingur náði þar heljartökum á huga fólks og úkraínskar nasistabullur voru settar á stall.

Hreyfingu nýnasista nýttu sér bandaríska og breska leyniþjónustan – ásamt mannréttinda og lýðræðishreyfingu George Soros – til að kynda undir lýðræðislega kjörinni stjórn Úkraínu, sem lyktaði með blóðugri byltingu og kollsteypu hennar 2014.

Oles var Þrándur í Götu þessarar valdaránshreyfingar. Enda var hann settur á drápslista (mirotvorets) Úkraínustjórnar. Þann sextánda apríl 2015 var hann myrtur. Knútur Eiríkur hefur þýtt minningargrein um Oles, sem birtist í rússneska dagblaðinu „Argumenty i Fakty,“ fimm árum eftir morð hans.

Morðingjarnir eru þekktir, ganga lausir, eftir skamma fangelsisvist. Því þeir eru þjóðhetjur í augum valdhafa og nasista. Morðið á Oles var eitt af mörgum.

Oles starfaði einnig sem blaðamaður og andæfði ofbeldi nasistanna. Fólk af því sauðahúsi þolir illa gagnrýni eins og sýnir sig sömuleiðis á vígstöðvum síonistanna í Palestínu. Þar eru þeir markvisst drepnir.

Í Úkraínu heldur harmleikurinn áfram. Þúsundum úkraínskra og rússneskra karla er fórnað á altari alþjóðaauðvaldsins og handbenda þess í stjórnmálum í Bandaríkjunum og Evrópu. Íslendingar taka virkan þátt í þessum drápum og hvetja Úkraínumenn til þess að berjast til síðasta (karl)manns.

Þar fer fremst í flokki skjaldmærin af Skaganum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Það liggur við, að hún slái við eistnesku valkyrjunni, Kaja Kallas, sem nú tekur við sem „utanríkismálaráðherra“ Evrópusambandsins.

Stjórnmálamenn - einkum í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og VG – biðja okkur um að endurnýja umboð sitt og lofa umboðslausum forseta Úkraínu frekari stuðningi til stríðsrekstrar í töpuðu stríði.

https://www.youtube.com/watch?v=P2riqNJDqlo https://www.bbc.com/news/world-europe-32337621 https://steigan.no/author/knuterikaagaard/ https://steigan.no/2024/11/mord-i-kiev/?utm_source=substack&utm_medium=email


« Síðasta færsla

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband